Hereford Steikhús
22.2.2008
Bergur segir:
Hereford Steikhús kom skemmtilega á óvart, sérstaklega þar sem það er klassa ofar en ég hafði ímyndað mér það. Við mættum frekar seint (rúmlega 21) og fengum því strax sæti. Ég var ánægður með það að okkur var boðið borð sem var hvorki nálægt eldhúsinu (læti og skarkali) né frammi við ganginn (mikill umgangur). Þannig að við gátum setið í rólegheitunum án þess að allt væri á fleygiferð í kringum okkur. Allt leit mjög vel út þarna og stemmingin var mjög töff nema við vorum sammála um að flottari stólar myndu gera gæfumuninn.
Þjóninn kom mjög fljótt til okkar, þegar við vorum rétt byrjaðir að renna yfir matseðilinn og sýndi okkur vínseðilinn og þriggja rétta matseðil kvöldsins sem samanstóð af rjómalagaðari humarsúpu, 200 gr nautalund og volgri súkkulaðiköku í eftirrétt. Við ákváðum að skella okkur á það. Verðið var 5900 kr og við reiknuðum út að það er svona rúmlega 1000 kr afsláttur frá því að setja saman sinn eigin þriggja rétta matseðill.
Maturinn kom mjög fljótt á borðið og súpan var vrikilega góð að mínu mati. Mér finnst humarsúpa geðveik góð, en stundum hef ég lent í að það er of mikið svona fiskibragð af henni. það var ekki tilfellið hérna, hún var mjög mild og góð.
Ég vildi nautalundina mína rare og hún var alveg fullkominn, var svona bleikur roði/stígull frá enda og inn og svo alveg hrá í miðjunni. Það sem ég set kannski mest út á er að það var lítið meðlæti, ég fékk mér bakaða kartöflu með sýrðum rjóma en það var lítið um grænmeti. Reyndar var smá steikt grænmeti með en það virtist meira vera upp á lúkkið. Ég tók svo eftir því að það þyrfti að panta Hereford Salat með sem auka ef maður vildi alvöru meðlæti með annað en kartöfluna.
Súkkulaðikakan var alveg góð, en ekkert brilliant. Aftur á móti fannst mér ískúlan sem var með virkilega góð. Fannst því eiginlega ísinn betri en kakan.
Eitt sem er vert að minnast er að leirtauið var virkilega flott og ýtti staðnum upp í kúlstigum með ótrúlega funky og flottum diskum.
Bjöggi segir:
1 Athugasemdir
fmdbudr skrifar :
AWus54 vialbmizenwv, [url=http://ltoeapcmlzsy.com/]ltoeapcmlzsy[/url], [link=http://xonmlzokliuf.com/]xonmlzokliuf[/link], http://ylcxwxdpesdt.com/
27.03.2010, kl. 1:37 | #