Út að borða með Bjögga og Bergi

Hugmyndin að þessum lið kom þegar við settum áramótaheit um að fara ekki út að borða á Ruby Tuesday á nýju ári. Við höfum nefnilega farið þangað þó nokkrum sinnum og eiginlega alltaf pantað það sama: Bergur pantaði Bacon Jack eða Colossal Burger og Bjöggi BBQ Ribs. Við vorum sammála um það að ánægja okkar með staðinn, fór alltaf dvínandi og því var tekið upp á þessu áramótaheiti.

þar sem við höfum báðir mjög gaman að fara út að borða og erum miklir matar menn, þróaðist þetta svo út í þá reglu að við megum ekki fara út að borða á sama staðnum á nýju ári fyrr en við erum búnir að prófa "alla staðina" í Reykjavík.

Umsagnir

Red Chili

5.2.2008

Bergur segir:

Red Chili er nokkuð kúl staður, það er fjölbreyttur matseðill og verðið er nokkuð sanngjarnt miðað við aðra veitingastaði. Umgjörðin er flott og setur svona rétta andan miðað við ímynd staðsins.

Í forrétt fengum við okkur nachos til að narta í, og ég er ánægður með að það var nóg af kjöti og sósu til að dýfa flögunum í og reyna veiða upp.

Í aðalrétt pantaði ég mér stóran Red Chili Borgara sem hamborgari með mexikósku ívafi. Hann var mjög fínn en ekkert brilliant, dálítið sterkur úthaf jalepenos fyrir þá sem fíla það. Franskarnar eru stórar og þykkar þannig að maður veit að þetta eru/voru kartöflur en ekki einhver strá og fá þeir plús fyrir það.

Annars er svosem lítið hægt að segja um þennan stað. Þetta svona nokkuð plane staður - What You See Is What You Get, fínn matur - fínt verð.

Bjöggi segir:

Skrifa athugasemd