Út að borða með Bjögga og Bergi

Hugmyndin að þessum lið kom þegar við settum áramótaheit um að fara ekki út að borða á Ruby Tuesday á nýju ári. Við höfum nefnilega farið þangað þó nokkrum sinnum og eiginlega alltaf pantað það sama: Bergur pantaði Bacon Jack eða Colossal Burger og Bjöggi BBQ Ribs. Við vorum sammála um það að ánægja okkar með staðinn, fór alltaf dvínandi og því var tekið upp á þessu áramótaheiti.

þar sem við höfum báðir mjög gaman að fara út að borða og erum miklir matar menn, þróaðist þetta svo út í þá reglu að við megum ekki fara út að borða á sama staðnum á nýju ári fyrr en við erum búnir að prófa "alla staðina" í Reykjavík.

Umsagnir

Thorvaldsen

1.2.2008

Thorvaldsen býður upp á svona Asian-Fusion matargerð sem ég fíla mjög vel. Andrúmsloftið er mjög rólegt og afslappandi og uppsetning á staðnum er skemmtileg.

Skrifa athugasemd