Bergur segir:
Hereford Steikhús kom skemmtilega á óvart, sérstaklega þar sem það er klassa ofar en ég hafði ímyndað mér það. Við mættum frekar seint (rúmlega 21) og fengum því strax sæti. Ég var ánægður með það að okkur var boðið borð sem var hvorki nálægt eldhúsinu (læti og skarkali) né frammi við ganginn (mikill umgangur). Þannig að við gátum setið í rólegheitunum án þess að allt væri á fleygiferð í kringum okkur. Allt leit mjög vel út þarna og stemmingin var mjög töff nema við vorum sammála um að flottari stólar myndu gera gæfumuninn.
Þjóninn kom mjög fljótt til okkar, þegar við vorum rétt byrjaðir að renna yfir matseðilinn og sýndi okkur vínseðilinn og þriggja rétta matseðil kvöldsins sem samanstóð af rjómalagaðari humarsúpu, 200 gr nautalund og volgri súkkulaðiköku í eftirrétt. Við ákváðum að skella okkur á það. Verðið var 5900 kr og við reiknuðum út að það er svona rúmlega 1000 kr afsláttur frá því að setja saman sinn eigin þriggja rétta matseðill.
Maturinn kom mjög fljótt á borðið og súpan var vrikilega góð að mínu mati. Mér finnst humarsúpa geðveik góð, en stundum hef ég lent í að það er of mikið svona fiskibragð af henni. það var ekki tilfellið hérna, hún var mjög mild og góð.
Ég vildi nautalundina mína rare og hún var alveg fullkominn, var svona bleikur roði/stígull frá enda og inn og svo alveg hrá í miðjunni. Það sem ég set kannski mest út á er að það var lítið meðlæti, ég fékk mér bakaða kartöflu með sýrðum rjóma en það var lítið um grænmeti. Reyndar var smá steikt grænmeti með en það virtist meira vera upp á lúkkið. Ég tók svo eftir því að það þyrfti að panta Hereford Salat með sem auka ef maður vildi alvöru meðlæti með annað en kartöfluna.
Súkkulaðikakan var alveg góð, en ekkert brilliant. Aftur á móti fannst mér ískúlan sem var með virkilega góð. Fannst því eiginlega ísinn betri en kakan.
Eitt sem er vert að minnast er að leirtauið var virkilega flott og ýtti staðnum upp í kúlstigum með ótrúlega funky og flottum diskum.
Bjöggi segir:
Bergur segir:
Red Chili er nokkuð kúl staður, það er fjölbreyttur matseðill og verðið er nokkuð sanngjarnt miðað við aðra veitingastaði. Umgjörðin er flott og setur svona rétta andan miðað við ímynd staðsins.
Í forrétt fengum við okkur nachos til að narta í, og ég er ánægður með að það var nóg af kjöti og sósu til að dýfa flögunum í og reyna veiða upp.
Í aðalrétt pantaði ég mér stóran Red Chili Borgara sem hamborgari með mexikósku ívafi. Hann var mjög fínn en ekkert brilliant, dálítið sterkur úthaf jalepenos fyrir þá sem fíla það. Franskarnar eru stórar og þykkar þannig að maður veit að þetta eru/voru kartöflur en ekki einhver strá og fá þeir plús fyrir það.
Annars er svosem lítið hægt að segja um þennan stað. Þetta svona nokkuð plane staður - What You See Is What You Get, fínn matur - fínt verð.
Bjöggi segir:
Bergur segir:
Bestu pizzurnar í bænum svo einfalt er það. Þessi staður er ótrúlega nettur í mínum augum, alveg pínulítið hús hálfpartið falið á einu götuhorni. Það er dálítill sjarmi yfir þessum stað miðað við að þetta pizzustaður.
Það er svosem ekki mikið hægt að fjalla um þennan stað, hann býður upp á bestu pizzurnar á Reykjavíkursvæðinu, það er kosturinn, ókosturinn er að hann býður ekki upp á heimsendingu. Reyndar er það kannski ekki ókostur því að hluti af því að fá sér Eldsmiðju pizzu er að fara á Eldsmiðjuna sjálfa.
Verðið er svona í ætt við aðra pizzu staði kannski örlítið dýrara, þar sem það eru engin tilboð t.d. tvennutilboð eða eitthvað.
Bjöggi segir:
Bergur segir:
Austurlenska Hraðlestin kom mér skemmtilega óvart í fyrsta skipti sem ég fór þangað en eftir það finnst mér sjarminn pínulítið farinn og staðurinn ekki heilla eins mikið.
Staðurinn í smáranum er mjög flottur og lúkkar vel, en mér finnst mjög lélegt að það er engin þjónusta miðað við verðið á matnum. Maður þarf sjálfur að sækja sér diska, hnífapör og glös á borð sem þarna og setja á borðið.
Maturinn er mjög góður, það verður ekki tekið af þeim, en það er eiginlega eina sem staðurinn hefur sér til framdráttar. Fyrst fannst mér t.d. þessi stóru borð virkilega flott og svöl en fattaði svo að ég gæti aldrei sest þarna með date-i því að það eru einingus huge stór borð og maður sæti því langt frá viðkomandi. Það sama gerist í stórum hópi þar sem erfitt verður að fylgjast með samræðunum útaf stærð borðsins.
Mér finnst það pínulítið svekkjandi því þessi staður gæti verið svo geggjað kúl með smá lægfæringum.
- Hafa þjón til vísa þér á borð
- Vera búinn að leggja á borðið eða láta þjónin gera það
- Bjóða upp á minni borð svo fólk geti talað saman og notið samverustundarinnar.
Semsagt ef þú vilt góðan mat fyrir 2.500 kr að þá er Austurlenska Hraðlestinn málið en það er það eina sem þú færð. Í raun finnst mér nefnilega meira heillandi að sækja hjá þeim og setjast að snæðingi í stofunni hjá vinafólki, þar sem hægt er að spjalla og njóta góðs matar.
Bjöggi segir:
Bergur segir:
Hornið er mjög nettur staður og keppir við Eldsmiðjuna um bestu pizzurnar í bænum.
Staðurinn er mjög lítill og nettur hefur skemmtilegan sjarma yfir sér, virðist laus við allt svona commercial fíling, heldur virðist bara hugsa um að bjóða uppa á góðan mat í notalegu umhverfi.
Staðurinn er mjög lítill en það gerir það að verkum að nálægðin er mikil. Maður situr nálægt viðkomandi og því er auðvelt að spjalla og ræða málin án þess að þurfa kalla yfir borðið.
Það er líka skemmtilegt að þeir gera pizzurnar fyrir opnum dyrum þannig að maður sér þá hnoða degið, fletja út og setja inn í ofnin, svona old-style og ég fílaða í tætlur.
Ef þig langar í pizzu í miðbænu mæli hiklaust með þessum stað, hann gæti komið þér skemmtilega á óvart.
Thorvaldsen býður upp á svona Asian-Fusion matargerð sem ég fíla mjög vel. Andrúmsloftið er mjög rólegt og afslappandi og uppsetning á staðnum er skemmtileg.