Lagalisti
Hate it or love it
The Game ft. 50 cent
Skrítið rapplag. Minnir mig frekar á eitthvað eftir RJD2, Aesop Rock eða einhverja þessháttar kauða. Jafnvel kannski The Roots, eða J5 sem eru meira í hip-hoppinu en einhverju hardcore rappi eins og 50 cent. Vona að The Game haldi sig frekar í þessari stefnu í staðinn fyrir að færasta nær 50 cent / Dr. Dre klúbba rappinu.Í raun myndi þetta lag virka rosalega vel líka sem bara þægilegt tjill lag ef rappið væri ekki yfir þessu. Eitthvað svona þægilegt ambiance hip-hop. Skemmtilegur taktur, trompetarnir sem koma fram og svo að heyra í Mary J í bakgrunninum. Kemur allt mjög vel út.