Lagalisti
King of the Rodeo
Kings of Leon
Nú er ég fíling. Náði mér loksins í lagið King of the Rodeo með Kings of Leon. Ég er búinn að vera að leita að því á netinu seinustu vekur en ekki fundið það nema í gölluðum eintökum og hef því ekki getað hlustað á það eins og ég vildi. Þar af leiðandi hef ég neyðst til að hringja inn á útvarpsstöðvarnar og biðja um þetta lag. Maður verður jú að fá sinn ráðlagða dagskammt af Kings of Leon.Kings of Leon er rokkhljómsveit frá suðurríkjunum í Bandaríkjanum. Kemur frá Nashville og spilar hressilegt og flott rokk með smá country stíl. Þetta er því ekki garage hljómsveit heldur miklu frekar sólpalla hljómsveit. Hljómsveitin er skipuð þremur bræðrum og frænda þeirra. Hljómsveitin er skírð í höfuðið á pabba strákana, sem hét einmitt Leon.
Hljómsveitin gaf út sína fyrstu breiðskífu 2003 sem bar nafnið Youth and Young Manhood og innihélt smelli eins Red Morning Light, California Waiting og Molly''s Chambers sem er einmitt lagið sem kom mér inn á þá. Vissi ekkert hvaða hljómsveit þetta var, en heillaðist strax af þessu lagi. Hljómsveitaleikurinn voðalega hrár, lagasmíðarnar nýstárlegar og söngurinn þannig að rétt mætti kallast söng en í heild snilldar lag.
Söngstíll Caleb Followill er einmitt sér á báti. Maður heyrir rosalega þennan southern hreim, teygir rosalega orðin og hættir svo við að klára þau, þannig að stundum er hann hreinlega illskanlegur. Það er líka mikill hrárleiki í röddinni en það flotta er hvað þessi hrárleiki er hátt tónaður. Mætti jafnvel kalla hann skrækan. Allt saman eiginleikar sem mér finnst gera lögin enn flottari.
Á þessu ári gáfu þeir svo út Aha Shake a Heartbrake sem hefur hreinlega verið að dæla út hittirum á borð við The Bucket, Four Kicks, King of the Rode og fleiri góðum.
Það sem mér finnst skemmtilegast við þessa hljómsveit að allar Bandarísku stórhljómsveitirnar eru ekki að koma úr suðurríkjunum heldur frekar miklu norðar eins t.d. New York og get nefnt The Strokes og The Bravery og fleiri góðar því til stuðnings. Suðurríkin hafa alltaf verið frekar þekkt fyrir country tónlistina og er alltaf eiginlega litið á sem eitthvað cult. Algjörir rednecks sem enga samleið með okkur hinum.
Þarna erum við loksins komið með alvöru rokk þaðan. Gefur þessu souterh-rokki spark í rassinn. Maður hefur ekki séð neitt í líkingu við þetta frá því að Lynard Skynard voru og hétu. Þetta country-íblandaða rokk minnir mig líka óneitanlega á Creedence Clearwater Revival og fleiri þannig hljómsveitir sem kollréðu 70''s rokkinu. Það er einmitt fílingurinn sem ég fæ af Kings of Leon, þessi hrái, og ótrúlega flotti 70''s rokkfílingur sem ég er svo hrifinn af.