Lagalisti

One Night in Bangkok

Vinylshakerz

Á hótelinu í Portúgal voru 21 ein rás í boði í sjónvapinu. Flest allar voru ömurlegar, en þar leyndist ein þýsk tónlistarstöð sem hét VIVA. Á henni voru oft mjög skemmtileg lög, allskyns tónlistarlistarpælingar. Klassísk og þekkt lög fengu að hljóma þar, en oftar en ekki voru það hrikaleg hrikaleg dance/trance og rave lög sem stjórnuðu ferðinni. Lagaúrvalið var að sama skapi ekki mikið og því var þetta sami playlistinn að mestu leyti sem gekk aftur og aftur. Maður gat hlustað á sama lagið aftur og aftur með nokkra mínúta millibili.

Eitt af þessum lögum sem hljómaði var endurgerð á laginu One Night In Bangkok úr söngleiknum Chess. Murray Head er með upprunulega útgáfuna en þýskur hópur plötusnúða sem kölluðu sig Vinylshakerz endurgerðu lagið í svakalegum trance/rave stíl. Alltaf þegar við vöknuðum, tókum við fjarstýringuna og kveiktum á sjónvarpinu íog s settum í botn til að vakna alveg. Enda ekki annað hægt þegar þessi trance lög fóru í gang.

Ég setti þetta lag ekki inn útaf því hversu rosalega gott það er, heldur út af nostalgíufílingnum. Þetta er lag sem tengi tvímælalaust við Æfingabúðirnar 2005 í Portúgal. Ég sé bara fyrir mér okkur strákana fíflast inn á herbergi með hendurnar á loft að hrista okkur eins og sanna rave-ara, hálfsofandi og myglaða á morgnana.