Lagalisti

Baba O'Riley

The Who

Leigði mér The Girl Next Door um helgina. Þar var lokalagið Baba O''''Riley eftir The Who. Lag sem ég hafði algjörlega gleymt og ætti að sparka í rassinn á sjálfum mér fyrir það. Pete Townshend setti bara saman hittara eftir hittara t.d. Pinball Wizard sem flestir þekkja úr rokkóperunniTommy (þar var Elton John pinball snillingurinn). Who are you og Won''''t Get Fooled Again, ættu flest allir líka að þekkja en það eru þemalögin úr C.S.I og C.S.I: Miami. Veit ekki hversu margir vissu það, en það sýnir bara að það er hægt að nota gömul og góð lög og nýta þau vel. Þau smellpassa í þættina.

Svo er það Baba O''''Riley. Eitt af mínum uppáhaldslögum hjá The Who. Held að aðal ástæðan fyrir því sé þetta ógeðslega flotta hljómborðs sampl sem kemur í upphafi lagsins og setur algjörlega tónin og stemminguna. Ofan á það byggist svo afar einfaldt píanó sem færist í harðan gítar og allt passar þetta snilldarlega við og keyrir lagið áfram. Það er líka þessi ekta rokkarasöngur sem er svo góður. Afhverju heyrir maður ekki í svona rokksöngvurum lengur sem einkenndu þetta tímabil svo rosalega? Mér finnst útsetningarnar svo skemmtilegar og góðar. Lagið sjálft er kannski ekki flókið í sjálfu sér (þ.e.a.s þessi gítarhljómur), en að setja þetta hljómborð undir allt lagið og leika sér svo með röddina í algjörri þögn og setja svo fiðlur í lokin til að klára lagið í allt öðrum stíl.

Ég fíla þetta lag í botn og mæli með fyrir alla sem fíla gott rokk. Maður heyrir t.d. mjög mikil The Who áhrif í hljómsveitum sem koma seinna inn eins og Bachman-Turner Overdrive og Lynard Skynard og það má jafnvel heyra þetta í nýlegri hljómsveitum eins og Pearl Jam.