Lagalisti

Take Your Mama

Scissor Sisters

Ég segi að allt það skemmtilega í tónlist þessa dagana sé að koma frá Bretlandi. Bandaríkin eru að gefa út Hillary Duff og Lindsay Lohan. Þarf að segja meira? Það er þó alltaf ein undantekning og í þessu tilfelli er það Scissor Sisters. Ágætis band sem mér finnst vera að gera fína hluti. Þau er líka mjög vinsæl í Bretlandi.

Take Your Mama er sjálfsagt vinsælasta lagið með enda stórgott að mínu mati. Minnir mig jafnvel á sum lög eftir Primal Scream. Svipaðar pælingar stundum. Það sem ég fíla kannsk mest við lagið er laglínan og söngurinn. Finnst það svona það sem keyra lagið áfram og setja stemminguna.

Fékk þetta lag á heilann í partý-inu hans Daða og um leið og ég kom heim var það sett á repeat og eina lagið í spilaranum. Það er búið að ganga seinustu 24klst samfellt um það bil.