Lagalisti

Unforgettable

Nat King Cole

Ég er algjör sökker fyrir svona lögum. Ég fíla þau bara aaalveg í gegn. Þetta er eitt af þeim flottari. Nat King Cole er líka með þessa ótrúlega flottu þykku rjómarödd.

Þetta er svona stemmingslag. Ég fer bara í allt annan heim þegar ég hlusta á þetta. Það munar nú bara litlu að maður stígi nokkur dansspor við þetta og svífi áfram.

Mæli með þessu lagi þegar það á að setjast niður, slappa af og njóta þess. Dóttir hans Natalie Cole endurgerði þetta svo seinna eftir lát föður síns, þar sem hún söng á móti honum.