Lagalisti
I Need More Love
Robert Randolph & The Family Band
Þessi gaur er náttúrlega ógeðslega kúl. Svona Pedal Steel "gítar" er ótrúlega töff hljóðfæri og RR er snillingur á það.Þetta lag er mest funk í geimi. Bassaleikarinn er líka nettur, þeir saman gera þetta lag að því sem þetta er. Auk þess að vera nettur á bassanum fer hann ótrúlega hátt upp í söngnum og það sem er mest töff við það er að gaurinn er svona svipaður og Shaq. Fáránlega stór og mikill risi, eins og maður myndi ímynda sér ef einhver segði "svartur durgur í húsasundi" en hann syngur hæstu falsetturnar eins og ekkert sé eðlilegra og gerir það fáránlega vel.
Það er bara svo mikill töffleiki í þessu bandi. Ég hef líka séð myndbönd frá þeim og þeir eru bara á fullu á sviðinu. Robert Randolph þarf að sitja útaf því að hann spilar á Steel Pedalinn en hann er samt á fullu og í lok lagsins munar engu að hann sé búinn að henda öllu niður.
Mæli að allir nái sér í þetta lag. Langt síðan að ég heyrði það fyrst og það átti svo lööööngu að vera komið inn á playlistann hjá mér.