Lagalisti

Evil Woman

Electric Light Orchestra

Mjög vanmetin hljómsveit að mínu mati. Fáir sem kannast við hana og enn færri sem fíla hana.

Dálítið Bítlaleg hljómsveit sem byggir mikið á skemmtilegu melódísku rokki þar sem strengjaútsetningar skipta höfuðmálinu.

Evil Woman er bara eitthvað lag sem ég valdi. Hefði getað verið næstum hvaða lag sem er. T.d Mr. Blue Sky, Living Thing, Turn to Stone, Telephone line og svona gæti ég haldið áfram.

Best of diskurinn hefur verið mikið í fartölvunni. Billy Joel í bílnum og ELO heima í græjunum.