Lagalisti
She's Always a Woman
Billy Joel
Ekki skil ég afhverju Piano Man sé vinsælasta/mest spilaða lagið með Billy Joel þegar hann svo rosalegt safn af lögum seru mun betri. Eitt af þeim, að mínu mati er She''s Always a Woman.She''s Always a Woman kom út á snilldarplötunni The Stranger sem kom út 1977. Ég hlustaði þó ekki á plötuna fyrr en svona 91 þegar pabbi kom frá Englandi með nýja geislaspilarann og tonn af geisladiskum. Þar á meðan The Stranger og reyndar Innocent Man (1983) líka.
Billy Joel lýsti sér nokkuð vel í sjónvarpsviðtali. Þar sagði hann í grófum dráttum. "Ég er ekki píanósnillingur, ég er ekki frábær söngvari og ég er besti lagahöndurinn, ég er bara góður í öllu þannig að þetta kemur allt saman í eitt". Fannst það mjög góður punktur, ekki að vera snillingur í einu heldur vera góður í öllu. Svo þegar þetta er saman að þá ertu kominn með virkilega góða útkomu.
The Stranger er alveg ótrúlega konstant plata og reyndar Innocent Man líka, ef því er að skipta. Mætti kannski halda að þetta væri Best of Billy Joel part 1 og part 2. Því á þessum plötum ertu kominn með öll bestu lögin.
She''s Always A Woman er alveg ótrúlega hugljúft lag. Píanóið er bara alveg fullkomið. Passlega flókið og flott. Hefði það verið einfaldara hefði lagið ekki skilað sér og ef hann hafði sett eitthvað meira ofan á þetta þá hefði lagið verið allt og þungt. Alveg ótrúlega flott að hafa bara píanóið og bassann, og láta svo sönginn um restina.
Billy Joel kemur frá Long Island, NY þar sem hann lærði á píanó sem strákur. Þegar hann eldist færðist hann fjær frá píanionu og nær í í klíkurnar og slagsmál. Fór m.a í boxið á tímabili sem unglingur. Sagan segir samt að þegar hann hafi sé Bítlana á Ed Sullivan Show 1964 hafi hann ákveðið að snúa sér alfarið að tónlistinni. Hætti í grunnskóla rétt áður en hann útskrifaðist.
Á seinni unglingsárum gekk hann í nokkrar misvel heppnaðir hljómsveitir. Hann lenti líka í að fara í algjöran down-spiral þar sem hann lenti í miklu þunglyndi og reyndi í framhaldi að fremja sjálfsmorð.
...of þreyttur....klára þetta við tækifæri.