Lagalisti

Sigtryggur vann

Þursaflokkurinn

Ætli það sé eki nauðsynlegt að skella inn einhverju íslensku inn á þennan lista. Og hvað er þá betra en alíslenskt þjóðlagarokk af bestu gerð, eftir Þursaflokkinn sem fjallar um einn besta glímukappa Íslands. Það verður ekki íslenskara.

Þetta lag vísar semsagt í Sigtrygg glímukappa sem vann Grettisbeltið alveg ótrúlega oft og þar af 3 sinnum í röð. Ástæðan fyrir setningunni Sigtryggur vann, er sú að þetta var orðinn nokkuð föst setning í glímuheiminum og voru úrslitin eiginlgea ráðin fyrir - Sigtryggur vann.

Það er því kannski við hæfi að lagið byrji á "Stígið!" og örfáum sekúndum eftir harðan gítar heyrist "Sigtryggur vann". Þá byrjar frábær söngvur Egils í ótrúlega skemmtilegu lagi. Þetta þjóðlaga rokk er að gera sig. Textarnir sem fylgja Agli eru líka alltaf jafnskemmtilegir og töff, alveg sama í hvaða hljómsveit hann er. "Farðu vel með Vatnsdæling" og skiptir svo í "Hér er gott að dansa".

Þursaflokkurinn er að meirihlutanum til original Stuðmenn (eða réttarasagt 2/3 úr Þursaflokknum urði Stuðmenn) þar fyrir utan var svo Kalli Sighvats úr Trúbrot á orgelið. Það er kannski vel við hæfi því að Kalli var snillingur á orgelið. Það kemur ekki á óvart, því að hann var hámenntaður kirkjuorgelleikar (frá Þýskalandi að ég held). Kirkju-orgelleikari í rokktónlist eins og Þursaflokknum og hvað þá Trúbrot. Það er er algjör snilld. Það heyrist líka.

Verst að ég veit takmarkað um Þursaflokkin nema það sem hér hefur fram komið. Ætlaði að kíkja á netið en fann ekkert að viti. Spurning um að redda sér bókinni hans Dr. Gunna um íslenska rokktónlist.