Lagalisti

Run

Snow Patrol

Gott lag frá hljómsveitinni Snow Patrol sem kom út fyrir nokkru. Þessi hljómsveit er að mínu mati nokkuð nett og ég nefndi hana meðal annars þegar ég var að fjalla um Keane vegna skyndleika þeirra.

Þessi hljómsveit er alls ekki svo ólík Keane. Byrjaði sem tríó (eru fjórir núna) og eru allir frá Bretlandi. Hljómsveit sem samanstendur af skólafélögum. Það eru þó líka skemmtilegar andstæður og sú stærsta er að Snow Patrol spilar út á skemmtilega gítarrythmum sem maður fær hreinlega á heilan meðan Keane gerir það sama með píanóið.

Lagasmíðarnar eru mjög svipaðar og væri hægt að hugsa sér að Keane væri Snow Patrol lög útsett fyrir eða öfugt. Snow Patrol sé Keane útsett sem meira gítarrokk.


Mér finnst líka merkilegt við þessar hljómsveitir hvað söngurinn heillar mig. Alls ekki að þeir séu líkir, heldur þvert á móti mjög ólíkir. En báðir einhvern veginn svona "warm and soothing". Svínvirka við þessi lög.

Ég veit annars svosem ekki mikið um þessa hljómsveit annað en hún byrjaði sem project hjá skólafélögum í Dundee University skotlandi og hefur síðan bara verið á uppleið. Fyrsta platan þeirra var í samræmi við nafn hljómsveitarinnar og hét Songs for Polar Bears og kom út um 1998.

Nýjasta afkvæmi þeirra heitir aftur á móti Final Straw og hefur verið að fá fínustu dóma. Spurning um að redda sér eintaki.