Lagalisti
Black
Pearl Jam
Ætli þetta sé ekki þekktasta lagi hjá Eddie og félögum, enda mjög nett lag á ferð sem kom fram á frumraun Perlusultunnar, Ten.Pearl Jam er ein af þessum hljómsveitum sem skutu sér upp í kringum 1990, í framhaldi af bandarísku rokk bylgjunni sem var þá t.d. Nirvana, Soundgarden, Stone Temple Pilots, etc.
Sagan segir að Pearl Jami hafi verið stofnuð í framhaldi af því að 25 ára surfari að nafni Eddie Vedder hafi heyrt demó sem gítarleikarinn Stone Gossard og trommuleikari Soundgardens Matt Cameron tóku upp. Eddie á semsagt að hafa heyrt demó-ið og sungið yfir það og í framhaldi verið boðið að vera í hljómsveitinni.
Veit ekki hversu satt það er, en góð saga engu að síður.
Önnur lög eftir Pearl Jam sem ekki má missa af: Alive, Betterman, Jeremy, Even flow, Last Kiss, State of Love and Trust, Elderly Woman Behind the Counter in a Small Town og mörg, mörg fleiri.