Lagalisti
Stun Gun
Quarashi
Ég hef verið að setja dálítið öðruvísi lög inn á listann. Lög sem ég hlusta kannski ekki mikið á, en rekst á af tilviljun.Núna ætla ég aftur á móti að setja inn týpískt lag. Lag sem er inn á vinsældarlistunum. Lag sem ég er búinn að vera hlusta mikið á og lag sem ég flippaði hreinlega yfir þegar ég heyrði það á Pravda. Hoppaði, öskraði með handahreyfingarnar á hreinu, ef minnið bregst ekki.
Quarashi er ein af þessum hljómsveitum sem hefur vaxið alveg gríðarlega frá því að þeir gáfu út fyrstu smáskífuna sína - Switchstance, sem nú er orðinn safngripur. Það eru búnir að vera nokkra breytingar á hljómsveitinni frá því að Sölvi, Steini og Hössi mynduðu hana. Fljótlega bættist við DJ Dice en hvarf svo frá þegar sveitin stækkaði. Tarfurinn bættist við fyrir ameríku ævintýrið og sömuleiðis Ómar Swarez. Tarfurinn hætti og fljótlega Hössi líka sem var búinn að vera aðalrapparinn, en Steini alltaf í bakgrunninum. Þá kom O.P.E stutt inn, en hvarf jafnóðum og nú er þessi nýji rappari sem ég þekki ekki. Skrítið að Steini skuli sjaldan fá að spreyta sig á rappinu í staðinn fyrir að vera alltaf í bakgrunninn.
Þannig nú standa eftir þeir Steini og Sölvi af upprunalega bandinu (og hugsanlega má setja Ómar þarna inn líka). Sölvi er náttúrlega maðurinn bakvið bandið, þannig séð mega hverjir sem er vera í bandinu, því Quarashi er hreinlega Sölvi. Hann er heilinn sem semur lögin, útsetur og kemur þeim áfram.
Ég á tvær plötur með Quarashi, plötu númer tvö sem heitir hreinlega Quarashi, svo kom Xeneizes, sem ég sleppti, en keypti JINX sem var einskonar safnplata þeirra félaga sem þeir gáfu út í heimi. Þar tóku þeir lög af Quarashi og Xeneizes endurgerðu og en bættu líka við nýjum lögum. Það er massa plata hjá þeim félögum, en var meira út í rokk-rappið. Einhver riff á rafmagnsgíturum sem keyra lögin áfram. Núna eru þeir aftur komnir í basicið, flotta bassa undir, trommurnar og svo einhverjar texta yfir, það sem maður myndi kannski kalla píkupopp-hip-hop og það besta er - Það er bara drullugott hjá þeim!