Lagalisti
Everything is Changing
Keane
Já það er eins og ég spáði, þeir munu koma nokkrum hitturum í gang. Næsti hittari er Everything is Changing sem er alveg stakasta snilld að mínu mati. Ég er að fíla þessa hljómsveit alltaf meira og meira. Veit samt ekki enn hvort þetta verða næstu stórstjörnur, þarf aðeins að pæla í því.Aftur á móti verður því ekki neitað að það er mjög skemmtilegt að hlusta á hljómsveit sem spilar ekkert útá gítarinn. Þetta er eitthvða sem maður hefur ekki heyrt. Tríó sem samanstendur af píanó, trommum og söng - og spilar svona tónlist. Píanóleikarinn Tim Rice Oxley spilar reyndar á öll önnur hljóðfæri sem vantar inn, svosem bassann. Hann semur að auki lang flest (ef ekki öll) lögin, sem útskýrir kannski afhverju píanóið spilar svona stóran þátt og er svona sterkt í lögunum.
Ég get heldur ekki annað en hugsað öðru hverju hvað röddin á Tom Chaplin söngvara líkist stundum skuggalega mikið Tom Yorke (Radiohead). Mjög sérstakt og flott, í falsettustíl.