Lagalisti

Somewhere we know

Keane

Svosem ekkert nýtt efni hér á ferð, en ný hljómsveit að flytja það. Maður hefur heyrt þetta hjá Travis, Snow Patrol, Starsailor og þessháttar böndum. Finnst þeir samt spila samt meira út á píanóið, sem keyrir þetta dálítið áfram.

Mér finnst þetta í heildina fínt lag og er því búinn að hlusta dálítið á það. Þó aðallegaþegar ég er að fletta milli rása hvort sem er á sjónvarpinu eða á útvarpinu í bílnum og lendi á því.

Einhverstaðar las ég að þetta band ættu að vera næsta stórband Englands. Ég veit nú ekki alveg hvort ég geti verið sammála því, en ég held samt að þeir eigi eftir að koma nokkrum singlum í spilun.