Lagalisti
Moonshadow
Cat Stevens
Get ekki annað en skellt þessu lagi hérna inn. Ég er búinn að vera með þetta á heilanum í heila viku og geri ekki annað en að raula I''m beeing followed by a moonshadow, moonshadow, moonshadow!.Ástæðan fyrir þessu er að best of platan hans Remember: The Ultimate Collection fær gjarnan að hljóma í mp3 spilaranum þegar ég er að vinna í tölvunni, þægileg og róleg lög sem er mjög fínt að vinna við inn á milli rokksins hjá Bush, Foo Fighters, Coldplay og allra þeirra sem oftast rata í spilarann.
Þessi lagasmíði hjá honum er alveg frábær, þægileg róleg meladísk lög sem eldast virkilega vel. Svo einhvern tíman um 1980 ákveður hann bara að gerast múslimi og heita Yusuf Islam, stofna skóla og lenti eitthvað í ruglinu. En þessi lög hjá honum lifa, það er engin spurning.
p.s. valið stóð á milli Peace Train og Moonshadow.