Lagalisti
Sunrise
Norah Jones
Þessi stúlka er snillingur. Ég hlustaði að gömlu plötuna hennar út í gegn aftur og aftur. Var að fá nýju plötuna: Feels Like Home og þetta lag er á repeat. Hef ekki gefið mér tíma að hlusta á hin lögin. Þetta er bara svo ótrúlega töff lag.Las að þegar platan var tekin upp var ekkert notað til að tweaka, dubba eða autotone-a neitt. Þannig að söngurinn er bara pjúra söngur. Útaf þessu á hann jafnvel til að verða hrjúfur eða jafnvel fara kannski aðeins útaf. Finnst það alveg ótrúlega kúl hugmynd bara að setja sönginn inn eins og hann raunverlega er. Gefur þessi ákveðna stemmingur, maður er orðinn svo samdauna því að allt efni sem er gefið út nú til dags er fixað svo hrikalega til í studíóinu.
Þetta lag er algjört snilld og raddanirnar eru svo ótrúlega þægilega flottar og kontrabassinn er að rúla. Maður fær bara svona þægilega tilfinningu við að hlusta á ungfrú Jones.