Lagalisti

She wants to move

N.E.R.D

Her ass is a spaceship I want to ride! Fyrsta píkupoppið komið inn á listann. Hér er þó um að ræða gæðapíkupopp, því hér á ferðinni strákarnir úr N.E.R.D.

N.E.R.D er rapp/popp grúppa sem þróaðist útfrá The Neptunes. The Neptunes eru einmitt núna eitt af eftirsóttustu pródusenturum í bandaríkjunum í dag.

Þeir unnu t.d. Slave 4 U með Britney, Like I love you með Justin Timberlake og Hot in Here með Nelly. Allt saman FM hittarar með meiru. Fólk hlustar á The Neptunes án þess að gera sér grein fyrir því. Sem dæmi, lagið Boys með Britney sem flestir kannast við, er í raun og veru Boys [Coed Remix] eftir strákana (þá sem Clipse). Þar að auki hafa þeir t.d endurútgefið Sympathy for the Devil í ansi skemmtilegri útgáfu.

Eftir að hafa pródúserað ansi margara hittara fyrir helstu stjörnur Hollywoods ákvaðu the Neptunes að setja saman saman sína eigin rapp/popp grúppu N.E.R.D eða No One Ever Really Dies. Þetta er tiltölulega ungir strákar sem eru búnir að vera hrærast í þessu frá grunnskóla.

She Wants To Move ómaði á öllum tónlistarstöðvum úti á Portúgal í æfingabúðunum. Fyrst þegar ég heyrði þó lagið, vissi ég ekkert með hverjum það var (hafði þó mínar hugmyndir) og fannst ekki neitt rosalega mikið til þess koma. Í annarri hlustun var ég byrjaður að fíla það alveg ágætlega og þeirri þriðju langaði manni bara að hækka í tækinu og dilla sér.

Það verður ekki tekið af þeim, að strákarnir í The Neptunes / N.E.R.D eru asskoti flínkir við að semja og útbúa hittara. Eitt fyrsta verkefnið á dagskrá þegar heim var komið var því að niðurhlaða þetta lag og spila í almennilegum græjum, en ekki einhverjum 5.000kr sjónvarpstækjum eins og úti.