Lagalisti

Wulfgang - Machinery

Varr að renna í gegnum iTunes safnið og þá rakst ég á þennan hittara frá Wulfgang. Mér finnst alveg ótrúlega gaman að því hvað íslensk tónlist er að koma ótrúlega sterk inn. Mér finnst standardinn hafa verið að hækka með árunum og við erum sífellt að sjá fleiri og fleiri skemmtilegar hljómsveitir með killer lög. Machinery hefði t.d alveg eins getað verið með erlendri hljómsveit og orðið fínn hittari.

Veit ekki hvaðan ég fékk upptökuna, en hún hefði reyndar mátt vera aðeins betri, vantar smá dýpt  og þykkt í hana og þar af leiðandi smá dósahljóð þegar maður hlustar á þetta í alvöru headfónum.