Lagalisti
Rolodex Propoganda
Relationship of Command hlýtur að teljast ein merkasta og besta rokkplata seinustu ára. Þvílíkt meistaraverk sem er þannig að ef þú spyrð einhvern rokkara hvað sé uppáhaldslagið hans af plötunni sé getur hann ómögulega valið og svörin eru jafnmörg ef ekki fleiri en fjöldi spurða.
Þetta er ekkert handboltarokk sem allir geta hlustað á. Fyrir mér er þetta seinasta stigið að geta kallað sig rokkara.
Ég get hlustað endalaust á þessa plötu og fæ ALDREI leið á henni, hún rennur í gegn og skilur mann eftir í allt öðrum ástandi en maður var áður en hlustunin hófst.