Lagalisti
Heart in a Cage
The Strokes
The Strokes er hljómsveit frá New York og var ein af þeim hljómsveitum sem kom aftur með hráleikann í rokkið. Frumraun þeirra Is This It tröllréði öllu og gjörsamlega sló í gegn. Ég hlustaði rosalega á þessu plötu enda er hvert einasta lag smellur.
Room on Fire var næsta plata þeirra og það var nokkuð ljóst að þeir voru komnir til að vera. Þeim tókst að halda í það sem einkenndi þá og gerði þá að því sem þeir eru, en jafnframt tókst þeim að þróa tónlistina og pössuðu sig á að staðna ekki, án þess að sleppa rótunum.
Nýjasta plata þeirra First Impression of Earth fór heldur betur vel af stað með single-num Juicebox þeir virðast bara bæta sig með hverri plötunni. Mér finnst fátt skemmtilegra en þegar hljómsveit sem er að meika það, heldur áfram að þróast og gerir sífellt betri tónlist en heldur samt í það sem einkennir tónlistina.
Heart in Cage er pottþétt rokklag sem gjörsamlega svínvirkar. Mér finnst líka gaman að Casablancas er byrjaður að syngja og hættur að nota effectin yfir röddinni. Kemur í ljós að hann er bara hinn fínasta söngvari.
Gef þessu lagi mína hæstu einkunn. Þetta getur einfaldlega ekki klikkað.