Lagalisti

Love me like you

The Magic Numbers

Hljómsveit sem svo sannarlega sannar það að útlit skipti ekki höfuð máli þegar það kemur að tónlist.

Þetta er mjög catchy, létt og fjörugt lagt sem grípur mann alveg strax. Laglínan er þannig að manni finnst maður geta sungið og trallað strax með.

Mér finnst þetta líka svona pínu "oldies" tilfinning í þessu lagi. Söngurinn er mjög hreinn og léttur öfugt við það sem hefur verið að koma frá Bretlandi. Síðastliðin ár hefur hráa rokkið verið að koma sterk aftur inn; Strokes, Vines, Hives, The White Stripes og svo væri lengi hægt að telja, en The Magic Numbers virðast frekar hverfa aftur í mjúka melódíska rokkið.

Oldies tilfinningin kemur líka aðallega til af bakröddunum sem eru ekki að radda textan sjálfan í laginu heldur með svona gamaldags "ú húú ú húúú" og "aaaaah". Langt síðan ég heyrði svona bakgraddir í nútíma rokklögum. Kannski helst Franz Ferdinand og Kaiser Chiefs en þá eru það bara strákar en ekki stelpur og það munar.´

Fíla líka mjög hvernig rythminn á söngnum / laglínunni er miðað við lagið sjálft. Kemur virkilega vel út.