Blogg

Auh þarna er það!

29.1.2009

Fannst upplagt að rífa þetta blogg aftur upp með týpískum Berg, eða eins og strákarnir í versló hefðu orðað það "að taka Berginn á'etta" sem þýðir basically að vera pínu utan við sig en láta samt hlutina alltaf reddast. Svipað og þegar ég týndi símanum mínum í u.þ.b tvær vikur bara til að átta mig á því að hann var í íþróttatöskunni minni sem ég nota að lágmarki einu sinni ef ekki tvisvar á dag.

Á æfingu í dag tók ég nefnilega Berginn. Ætlaði að fara heim þegar ég átta mig á því ég finn hvergi tölvuúrið mitt. Ég byrja náttúrlega heljarinnar leit enda er þetta massa úr sem ég dýrka í tætlur. Byrja á að tékka alla vasa, gólfið sem ég lá á meðan ég losaði um sýruna úr lærunum, öll hólf í íþróttatöskunni en hvergi fannst úrið. Ég hugsa að það hefði getað dottið milli brautarinnar og byrja því að skríða á fjórum fótum, en nei ekki þar. Ég hringi í Tobba og Stebba til að athuga hvort þeir hafi tekið það í misgripum en allt kemur fyrir ekki. Ég sturta því úr íþróttatöskunni og geri dauðaleit sé að í einhverju leynihólfi þarna eru svört ól, en dreg ekki upp tölvuúrið heldur massa Diesel úrið mitt sem ég var EINMITT búinn að vera leita að í allri seinustu viku! Hentugt!

Að lokum ákvað nú Arndís að setja smá kvennlegt innsæi í leitina og fann að lokum tölvuúrið mitt góða inn í gaddaskónum. Viðbrögð mín voru "aaah já alveg rétt!".



8 Athugasemdir

  1. Hlynur skrifar :

    Enginn púllar Berg jafnvel og þú!

    30.01.2009, kl. 0:50 | #

  2. Tobbinn skrifar :

    Snillingur

    30.01.2009, kl. 16:55 | #

  3. Anna skrifar :

    HAHAHAHAHA Snilld!

    30.01.2009, kl. 18:43 | #

  4. ebbakaren skrifar :

    typical guy! en já það var mikið að þú bloggar gamli!

    30.01.2009, kl. 20:18 | #

  5. Robbi skrifar :

    Þú ert snillingur. Gott dæmi um hvernig jólasveinn þú getur stundum verið er þegar við Anna buðum þér í brunch fljótlega eftir áramótin og þú fannst hvergi bíllyklana þína. Eftir klukkutíma leit (og orðinn seinn í brunch-ið), þurftirðu að láta skutla þér til okkar.

    Seinna um daginn fannstu svo bíllyklana undir koddanum þínum. AF HVERJU lyklarnir voru undir koddanum veit enginn - allra síst þú.

    31.01.2009, kl. 10:17 | #

  6. biaopyd skrifar :

    shoPyV ugfvylruaxgu, [url=http://khtyuyiamwik.com/]khtyuyiamwik[/url], [link=http://wmwqkeixiqdt.com/]wmwqkeixiqdt[/link], http://rnbkymeiggwc.com/

    12.06.2009, kl. 19:58 | #

  7. pjmmzmwu skrifar :

    RQOXf9 nmyovafvspkl, [url=http://vxdzbeaiuinc.com/]vxdzbeaiuinc[/url], [link=http://ndpkbzghbnqq.com/]ndpkbzghbnqq[/link], http://eewmsqcerwub.com/

    20.07.2009, kl. 5:47 | #

  8. ggubwfuu skrifar :

    HEg5ga nsaclcxwspts, [url=http://lephjgathxle.com/]lephjgathxle[/url], [link=http://qcrxgqpbnada.com/]qcrxgqpbnada[/link], http://eoplxzoywqzt.com/

    25.09.2009, kl. 22:10 | #

Skrifa athugasemd