Blogg

Svefninn

23.12.2008

Eins og vill oft gerast i prófum var svefn af skornum skammti hjá manni. Ég kláraði á föstudaginn og var alveg gjörsamlega búinn á því og stefndi því á rólegt föstudagskvöld. Byrjaði í matarboði hjá Unni og Togga en færði mig svo til Dísu og Óttars og endaði á góðum rúnt með Eyþóri frændi sem þýddi að ég var ekki kominn heim fyrr en kl 7 um morguninn.

Ég gat því miður ekki sofið út á laugardeginum því að Blikarnir ætluðu að hittast í Jólahlaðborði í turninum kl 11:30 og ég var því vaknaður kl 11 eftir aðeins 4 tíma svefn. Laugardagurinn fór svo í smá stúss og reddingar sem maður hafði látið sitja á hakanum í próflestri, en sofnaði þó um tvö leytið eftir heitt og gott slakandi bað. Það entist þó ekki lengi því að ég vaknaði kl 5 um nóttina til að pikka upp fulla fólkið niður í bæ sem var að djamma með Palla á Nasa. Ég sofnaði aftur kl 7 þann daginn og vaknaði ekki fyrr en kl 18 á sunnudeginum, úthvíldur.

Það þýddi náttúrlega að sólahringurinn var kominn algjörlega á hvolf hjá mér, eftir massa vídjógláp á sunnudagskvöldinu þar sem jólaþemað var ríkjandi; Home Alone, The Grinch, Elf, sofnaði ég loksins klukkan 7 um morguninn.

Þá ákvað ég að þetta þýddi ekki lengur, ég þyrfti að rífa mig upp á sómasamlegum tíma og vera bara ónýtur í einn dag til að koma mér aftur á sæmilegt ról. Ég vaknaði því kl 11 á mánudegi, hélt mér vakandi alveg til kl 23 og hugsaði með mér að nú myndi ég sofa vel og ná að rétta mig af.

Það gekk ekki. Ég vaknaði klukkan 4 í morgun. Brilliant alveg, innri klukkan mín er bara komin í mesta rugl ever.



8 Athugasemdir

  1. Tobbinn skrifar :

    Gleðileg jól meistari.........Ég vona þú sért búinn að kippa svefninum í lag núna og sért búinn að æfa hrikalega:)...sjáumst á morgun

    27.12.2008, kl. 9:29 | #

  2. Bigg skrifar :

    Sæll, hvernig er það .... fáum við að sjá þig eitthvað á æfingu ?

    30.12.2008, kl. 12:46 | #

  3. Sölvi skrifar :

    Okkur langar að sjá þig!!! Halló halló!!

    31.12.2008, kl. 3:03 | #

  4. gljpnquilc skrifar :

    o0ItEd wlnhzgcdkrin, [url=http://ftvvwnmcnqad.com/]ftvvwnmcnqad[/url], [link=http://ojfjlcankjub.com/]ojfjlcankjub[/link], http://tnrvdmifmrct.com/

    12.01.2009, kl. 15:54 | #

  5. Robbi skrifar :

    Þú veist að þú átt ennþá þetta blogg, er það ekki?

    21.01.2009, kl. 17:30 | #

  6. pipsilrexwh skrifar :

    9nobp9 utorvqbbfhrj, [url=http://nxqxvurgphtk.com/]nxqxvurgphtk[/url], [link=http://aivhjrxsuoal.com/]aivhjrxsuoal[/link], http://mxhxyjsdqpcq.com/

    17.02.2009, kl. 14:09 | #

  7. polprdwbicm skrifar :

    cCn7YL mitedmtvcqlm, [url=http://pnepredtzmdj.com/]pnepredtzmdj[/url], [link=http://ffocvxxgyboy.com/]ffocvxxgyboy[/link], http://cngnlzzquwgf.com/

    16.03.2009, kl. 13:44 | #

  8. zpquzzmk skrifar :

    yg0Z6a onaezttwrwza, [url=http://pzjifseqyykw.com/]pzjifseqyykw[/url], [link=http://osoaobniamne.com/]osoaobniamne[/link], http://yqqpndjnumbx.com/

    25.09.2009, kl. 21:04 | #

Skrifa athugasemd