Lýsing á mér?
Ríkjandi pláneta þín er tunglið, pláneta tilfinninganna. Hún hefur mikilvæg áhrif á jörðina og stjórnar tilfinnalífi þínu. Elífar breytingar Tunglsins, hið dökka og hið ljósa, hiða falda og hið sýnilega, birtist í persónuleika þínum. Stundum ertu félagslydnur, hress og geislandi en verður síðan leyndardómsfullur, þögull, og fráhrindandi. Elskhugar þínir og ástkonur eiga erfitt með að reikan þig út og botna hvorki upp né niður í allri dulúðinni. Þú ert óútreiknanlega persóna sem enginn skilur og hefur valdið djúpum sárum með því að einu að lyfata annarri aguabrúninni til hálfs. Þú getur getur lýst mönnum leið eins og Tunglið eða sent þá inn í myrkrið, þitt er valið. Hugleiðsla mun gera þér gott og greiða götuna.
Umhverfi og venjur
Þér myndi hugnast að eiga stóra fjölskdylu og lítið eitt óreiðukennt heimili sem stöðugt ilmar af heimalöguðum mat. Þú þrífst best í góðum félagsskap og eldhúsið er miðpunktur heimilisins. Þótt þú sért ungur og smart kýstu frekar að halda matarboð heima hjá þér ena ða hitta vini þína á veitingastað út í bæ.Þú vilt hafa hreint í kringum þig, en þó verður að sjást að þar búi fólk og því heimili þitt bæði notalegur og afslappaður staður. Draumurinn er risastórt borðstofuborð og arinn í eldhúsinu, margar stærðir og gerðir af pönnum og pottum hangandi á krókum og grænmetisrekki fullur af ferskum og angandi jurtum. Það sem veitir þér hvað mesta ánægju er aðf á að sitja í ró og spekt með vínglas í henda og notalega tónlist í bakgrunni. Þig dreymir einnig um hús á ströndinni svo þú getir ráfað um á notalegu kvöldi, horft á tunglið og leyft gljáfrandi öldunum að sefa huga þinn.
Ertu dæmigerður krabbi?
Klisjurnar um að þú sért heimakær og umvefrjandi eru yfirleitt sannar. Þú nýtur þess að líta eftir öðrum, fæða þá og klæða. Heimilið er þér afar mikilvægt og ef þér líður ekki vel þar finnurðu til jafnvægisleysis. Þú ert móðurleg persóna, líka ef þú ert karlmaður og nýtir þess að vera í návist barna og fullorðinna sem varðveitt hafa barnið í sér. Þú ert hlýr og aðlandi og mjög viðkævmur. Þú gengst stundum depurðinni á hönd og flýrð inní draumaheiminn.
Hvað segið þið sem þekkið mig eitthvað?
6 Athugasemdir
Óli Margeirs skrifar :
"Elskhugar þínir og ástkonur..."
Come again!? HVAÐA elskhugar og ástkonur? :)
Eldhúsparturinn er frekar mikið þú, sælkerinn þinn
19.12.2008, kl. 12:04 | #
Hlynur skrifar :
Afstöður plánetna við jörðu, daginn sem að þú fæðist segir nákvæmlega ekkert um persónuleika þinn eða líf þitt. Stjörnuspár eru mesta djók í heimi.
Ég veit að þú trúir ekki á stjörnuspeki en samt sem áður... fólk sem trúir þessu bulli - endilega pælið í því af hverju tvíburar eru ekki með sama persónuleikann,lifa ekki nákvæmlega sama lífinu og lenda ekki í sömu atburðunum.
Og til að stimpla það inn hversu illa gefnir stjörnuspekingar eru... þá er tunglið ekki pláneta... heldur tungl. Þess vegna er það kallað TUNGLIÐ!
19.12.2008, kl. 13:10 | #
Hafdís Ósk skrifar :
Ég er algjörlega á andstæðu meiði við Hlyn. Ég hef fulla trú á því að ýmislegt hafi áhrif á okkur og persónuleika okkar.
Þetta er til dæmis afskaplega góð lýsing á þér þó svo að margt vanti inn í. Mér finnst þetta alla vega passa mjög vel við þig! Svo langar mig að fara að sjá þitt fríða fés!
20.12.2008, kl. 8:43 | #
Tobbinn skrifar :
Þetta er soldið mikið þú....Margt þarna sem passar fáránlega vel við þig eins og "Stundum ertu félagslydnur, hress og geislandi en verður síðan leyndardómsfullur, þögull, og fráhrindandi. Elskhugar þínir og ástkonur eiga erfitt með að reikan þig út og botna hvorki upp né niður í allri dulúðinni. Þú ert óútreiknanlega persóna sem enginn skilur" Matsmaðurinn mikill og búinn að mastera eldhúsið þó þú eigir ekki ennþá eitt... Það vantar bara í þennan texta.. Þú ert maðurinn
30.12.2008, kl. 9:57 | #
bhgebtxrv skrifar :
jv6HLy lsakriulfhmd, [url=http://shryhsndqbpc.com/]shryhsndqbpc[/url], [link=http://onuwcukgkpdg.com/]onuwcukgkpdg[/link], http://avozyhkinykt.com/
12.05.2009, kl. 21:35 | #
tvyizqvx skrifar :
MrciO5 whhicnwshuhw, [url=http://felphbgjxaau.com/]felphbgjxaau[/url], [link=http://zaehvvzvtfax.com/]zaehvvzvtfax[/link], http://gthliebeaksc.com/
25.07.2009, kl. 21:43 | #