Blogg

Próf og svefn

17.12.2008

Vaknaði algjörlega endurrnærður í morgun. Náði 14 tíma svefn, sem var akkúrat það sem ég þurfti. Ég er búinn að vera sofa 1-3 klst á nóttunum og læra eins og mófó. Ég hef þar af leiðandi ekki hreyft mig í 3 daga núna og var alveg byrjaður að finna fyrir því. Þegar maður er svona þreyttur og slepjulegur, hreyfir sig ekkert að þá verður maður bara ógeðslegur. Til að toppa þetta algjörlega og já þetta gæti hljómað ógeðslega en ég læt það flakka: Ég var ekki búinn að fara í sturtu í 3 daga. Ástæðan er einföld, ég fer alltaf í sturtu eftir æfingar, sem þýðir oftast tvisvar a dag. Nú þegar ég tek ekki æfingu að þá dettur sturtan líka út.

Í gær ákvað ég að snúa þessu við, fara sæmilega snemma að sofa. Djöfull svaf ég vel mar. Mig dreymdi ótrúlegan skemmtilegan draum, að ég væri í æfingabúðum út á landi neeeema að það voru bara stelpur í ferðinni. Þetta voru ekki frjálsíþróttastelpur heldur eitthvað lið úr annari íþrótt. Það kom reyndar aldrei fram í draumnum hvaða íþróttt þær voru að æfa,  en ég er alveg viss um að það hafi verið blak svona miðað við hvernig þær voru klæddar allan tíman í þessari ferð. Vaknaði svo úthvíldur, skellti mér í heita og góða sturtu, rakaði af mér skegghýjungana og er alveg bara alveg nýr maður.



6 Athugasemdir

  1. Robbi skrifar :

    Ok, þú ert sem sagt að segja að þegar þú dettur útúr æfingagírnum vegna vinnutarna og prófaanna og æfir ekkert í margar vikur (það hefur gerst) að þá ferðu ekkert í sturtu á meðan?

    17.12.2008, kl. 18:32 | #

  2. Bergur skrifar :

    Haha ég æfi nú alltaf eitthvað þótt ég sé ekki að æfa 6-11 sinnum á viku sko. En já það hefur gerst áður að það koma 2-3 dagar án æfinga og þá hefur sturtan klikkað.

    17.12.2008, kl. 19:21 | #

  3. Elísabet skrifar :

    Vá hvað ég er sammála þér með sturtuna! Tók mig laaaaangan tíma að sætta mig við það að ég þyrfti að fara í sturtu "út af engu" eftir að ég hætti að æfa ;Þ

    Líka ánægð með blakdrauminn, blakstelpur eru klárlega flottastar!

    18.12.2008, kl. 1:27 | #

  4. Bergur skrifar :

    Jamm það verður að viðurkennast að blakstelpur eru með þeim flottari sem fyrirfinnast. Þær eru nefnilega svo ótrúlega grannar, tónaðar og svo passlega vöðvastæltar, sem er ekkert nema flott t.d. Gabrielle Reece, holy mother of god sko.

    Algjör skandall að blak er ekki coed sport eins og frjálsarnr, annars væri alveg pæling að æfa blak.

    18.12.2008, kl. 10:04 | #

  5. Robbi skrifar :

    Við hliðiná ræktinni hjá mér er skautasvell og þegar ég er að rembast í hnébeygjum, sé ég yfir á skautasvellið. Ég get svo svarið það að stelpur í skautadansi eru álíka flottar og blakstelpur, ef ekki flottari. Við erum að tala um fáránlega flotta skrokka.

    18.12.2008, kl. 18:30 | #

  6. ynqsyhhqy skrifar :

    2w9y6R qzfjxcuhowdm, [url=http://gmmwzuvwsjiw.com/]gmmwzuvwsjiw[/url], [link=http://iywhoivhxrxr.com/]iywhoivhxrxr[/link], http://vuacenpqcydj.com/

    25.09.2009, kl. 21:37 | #

Skrifa athugasemd