Súkkulaðihúðaður Bergur
Hljómar vel er það ekki? Átti nefnilega helvíti gott move fyrir nokkru sem átti sér stað í saununni í World Class í turninum. Var búinn með þessa fínu æfingu og ákvað eins og svo oft áður að slaka á í sauna og hoppa þess inn á milli í kalda ísturtu. Ég var náttúrlega eins og sönnum íþróttamanni sæmir með einhvern hroðalegan súkkulaði protein shake. Eitthvað hafði ég nú samt verið að flýta mér að blanda hann því að það var ALLTOF mikið af vatni og því brúsinn næstum því fullur upp að brún.
Ég leggst á bakið inn í saununni og leyfi streytunni að líða úr mér um leið og ég halla hristarann upp að vörunum. Eitthvað var þessi hreyfing ekki alveg nógu samhæfð hjá mér, því að einhvern veginn hitti ég ekki á varirnar auk þess sem hann var svo stútfullur að hann þyngdin sveiflaðist það fljótt til að ég fékk bara hálfan líter af súkkulaði shake yfir mig allan þarna.
Ég ligg því í saununni ógeðslega sveittur og hress með súkkulaði próteinhristing yfir mig allan. Þökk sé svitanum og hitanum að þá var þetta ekkert smá pollur heldur bara rennur út um allt. Ég náttúrlega hugsa að það sé ekki séns að ég labbi fram í sturturnar allur í þessu. Ég gríp því eitthvað handklæði sem einhver hafði skilið eftir inn í saununni og næ að þurrka það mesta af mér svo ég geti nú skotist í sturtuna án þess að það sjáist súkkulaði hristingur dropa af mér.
5 Athugasemdir
Óli Tómas skrifar :
Vá hvað (eins og þetta comment) þetta blogg endar skyndlega.
28.11.2008, kl. 22:47 | #
Pjétur G skrifar :
Mér líður "skítugt" eftir að hafa lesið þetta!
29.11.2008, kl. 13:32 | #
Halla skrifar :
hahaha! Hva, þú hefðir bara átt að labba stoltur í sturturnar, hefðir sennilega komið af stað nýju "trendi". Hefðir getið logið því að þetta væri gott fyrir húðina...
01.12.2008, kl. 0:51 | #
Bergur skrifar :
@Óli: hehe já sorrý. Ekki mikið annað sem var samt hægt að segja í kringum þetta. Fór í gufu -> Hellti yfir mig -> Þurrkaði mér.
@Halla: Já það er reyndar ágætis pæling, gufa og súkkulaði fyrir húðina. Hljómar alveg eins og eitthvað sem hægt væri að selja fólki.
01.12.2008, kl. 19:09 | #
vieszhlgvzf skrifar :
TOgE1s yulxyadcimfu, [url=http://fqrmewkilsmo.com/]fqrmewkilsmo[/url], [link=http://zvueawftjuld.com/]zvueawftjuld[/link], http://iwrkyebxaqav.com/
20.12.2009, kl. 10:52 | #