Blogg

Baðherbergið

24.11.2008

Það er alveg frábært að búa með 15 og 16 ára stelpum í húsi þar sem er aðeins eitt klósett. Það þyrfti að setja upp bókunarforrit fyrir það, það er ALLTAF upptekið. Á laugardeginum sit ég inn í herbergi þegar Heiður systir bankar upp á og spyr hvort ég þurfi að nota klósettið því hún sé að fara í bað. Ég svara að það sé allt í góðu. Þetta er klukkan fimm.

Planið hjá mér var að kíkja smá út um kvöldið þannig að þegar klukkan er orðin 19 að þá ætla ég að skella mér í sturtu, nema hvað að baðið er læst og ég heyri vatn renna. Ég kalla þá inn "eh er einhver í sturtu?" en og fæ svar á móti að nú sé Ingibjörg systir kominn í baðið, þótt hún sé í raun búin, bara að bíða eftir Heiði sem var nú komin í sturtu. Því það er víst ekki hægt að þvo á sér hárið í baði. Jæja þær hleypa mér inn og ég hoppa í sturtu. Þegar ég er búinn klæði ég mig og ætla svo aftur inn á bað til að setja eitthvað í hárið en viti menn það er læst. Ég heyri í vatni og kalla "eruði að grínast, er einhver í baði eða sturtu". Þá var það Ingibjörg systir komin í sturtuna því, jú það er víst ekki hægt að þvo sér um hárið í baði.  Þannig að basically var baðherbergið upptekið frá 17 til 20. Þær eru reyndar alltaf það tillitssamar að taka pásur og hleypa mér inn, en engu að síður finnst mér þetta alveg magnað.



5 Athugasemdir

  1. Halla skrifar :

    hahaha! Já það er stundum erfitt að vera stelpa og hvað þá strákur sem býr með stelpum. Ég með mitt síða hár get nú reyndar alveg þvegið það í baði en sturtan er samt mun betri! Þannig að já... ég get alveg sagt að ég skilji systur þínar, eeen pirrandi fyrir þig samt hehe!

    25.11.2008, kl. 12:11 | #

  2. IngibjörgAndrea skrifar :

    ég skil engan veginn hvernig þér tekst að þvo það í baði!
    ég er nú ekkert með rosalega sítt hár,
    en það er bara ekki séns að skola úr hárinu, því þá þarf maður að liggja undir bununni og hárið allt í niðurfallið!
    ég var samt ekki það lengi í sturutunni
    og var ótrúlega góð og hoppaði 2 úr henni fyrir þig ;)

    25.11.2008, kl. 16:43 | #

  3. Robbi skrifar :

    Það er ekkert mál fyrir mig að þvo hárið í sturtunni. Það væri eiginlega kjánalegt ef ég myndi gera það í baði.

    25.11.2008, kl. 17:33 | #

  4. Sverrir Örn skrifar :

    Það verða bara að vera innáskiptingar og möguleiki á að taka leikhlé til að ræða málin. Ef fólk virðir svo ekki leiktímann þá er það bara útaf með það: ekkert aðgengi að sturtu daginn eftir.

    26.11.2008, kl. 15:07 | #

  5. Óli Tómas skrifar :

    Kannski hafa þær bara verið með svona svaðalegann niðurgang og setið á klósettinu tímunum saman. Sett svo bununa í gang til þess að það koma í veg fyrir að sannleikurinn afhjúpist.

    26.11.2008, kl. 19:24 | #

Skrifa athugasemd