Blogg

Skilinn eftir af Mette Marit

23.9.2008

Smá innskot fyrst samt áður en ég fer í söguna um Mette Marit.

Það var heljarinnar frjálsíþróttadjamm fyrir rúmri viku síðan. Nú er náttúrlega hvíldin í gangi hjá flestu, eða flestir allavega svona í rólegri kanntinum og því var tilvalið að taka betur á því í drykkjunni. Kvöldið var alveg brilliant og ég skemmti mér konunglega. Leigður bara salur, hamborgarar grillaðir og áfengi drukkið.

Fyrst maður var líka kominn á sporið að þá fékk svona "oooh hvað  mig langar að kíkja út á lífið næstu helgi" alla vikuna. Sem er mjög fyndið því ég fæ svoleiðis aldrei. Þannig varð að ég, Tobbi, Jóhanna, Óli og Stebbi Már byrjuðum hjá Tobbanum að elda okkur mat og færðum okkur síðan yfir til Trausta og þaðan svo niður í bæ.  Þetta var í raun brilliant kvöld líka, en ég var helst til upptekinn af drykkjunni í staðinn fyrir að skemmta mér með hópnum. Magnið sem fór í mig og Tobba var bara insane.

Jæja on with the story.

hakonmette2Daginn eftir (laugardagskvöldið) fór ég svo í brúðkaup til frænku minnar og ég verð að hrósa henni fyrir ótrúlega kúl leik sem var í gangi allt kvöldið. Þetta var ótrúlega fallegt og flott allt saman, en þau brúðhjón höfðu gefið út að þetta ætti fyrst og fremst að vera til að skemmta sér saman. Liður í því var að þegar maður fór á borðið sitt var lítið spjald og límmiði. Á límmiðanum stóð nafn einhvers frægrar persónu og á miðanum smá lýsing á henni og tilhugalífi. Þannig var maður með svona Alter-Ego og fólk parað saman eftir því. Ég var t.d. Hákon Magnús Krónprins Noregs og einhversstaðar í salnum var því Mette-Marit Krónprinsessa. Þetta er nátturlega brilliant icebreaker þegar maður þekkir ekki alla í veislunni (hin fjölskyldan, vinafólk) og líka því að brúðurinn var actually búinn að vera semja þessa texta og velja fólk saman.  Þannig að það var ekki séns að ég myndi lenda á einhverri gamalli konu.

Um leið og borðhald var búið tók ég mig til og rölti á milli allra borðana þar sem voru sætar stelpur á mínu reiki: "Hæ hæ, má ég trufla?" "Hvað segiði gott? Ekki situr hún Mette Marit á borðinu hjá ykkur - Ég er nefnilega að leita af krónprinessu Noregs".  Mér gekk reyndar hálf illa að finna dömuna mína en fékk þó einhverjar vísbendingar frá Jennifer Lopez um að hún hafi sést úti að reykja.  Ég sagði náttúrlega bara að þá væri þetta samband búið og ég þyrfti klárlega að leita mér að nýrri krónprinsessu.

Þegar fólk var orðið svona aðeins léttara voru allir rifnir út á dansgólfið þar sem maður átti að taka snúning með date-inu sínu. En þetta var náttúrlega bara story of my life því að Mette bara sást ekki í húsinu. Hlynur var Justin Timberlake og var ekki lengi að finna Jessicu Biel þannig að ég tróð mér með þeim og Jada Pinkett Smith því Will Smith var heldur hvergi sjáanlegur. Ókosturinn fyrir Hlyn náttúrlega að vera Justin Timberlake er að það hlýtur að vera pressa á dansgólfinu. Ég aftur á móti, sem krónprins, þarf bara að lúkka vel í jakkafötum.

Ég var svo kominn heim svona skynsamlega snemma (í kringum tvö leytið). Enda krónprins og þarf að sinna skyldum mínum. Ég skildi samt eftir skilaboð að ef einhver myndi rekast á Mette að þá átti hún að hafa samband. Ég vaknaði því vongóður á sunnudagsmorgni að það biði mín sms en svo var ekki. Ég veit ekki hvort Mette mætti ekki þetta kvöld, hafi farið snemma eða hvort ég hafi bara ekki verið að lúkka jafnvel í jakkafötunum og ég hélt, en seriosly að þá hreinlega bara trúi því ekki!

8 Athugasemdir

  1. Robbi skrifar :

    Áts, deit-ið flýr af hólmi áður en hlutirnir byrja að gerast. Þú hefur alveg magnaðan chick magnet Bergur!

    23.09.2008, kl. 18:59 | #

  2. Ebba Karen skrifar :

    En sárt að finna aldrei deitið sitt. Þetta hljómaði svona lúmskt eins og ævintýri.
    Þú hefur ekki skilið eftir skó í tröppunum, eins og í öskubusku?

    23.09.2008, kl. 21:43 | #

  3. Bergur skrifar :

    Skór í tröppunum er svo mikið 1429, sms er nýja rómantíkin.

    24.09.2008, kl. 0:31 | #

  4. Halla skrifar :

    Snilldar leikur! Ætla að hafa hann bak við eyrað fyrir næsta partý, skal þá finna einhverja betri Mette handa þér! Þessa pía var greinilega bara ekkert skemmtileg!

    25.09.2008, kl. 18:48 | #

  5. Bergur skrifar :

    Ber mér að skilja að þið séuð að fara klára dæmið?

    26.09.2008, kl. 11:59 | #

  6. Sverrir Örn skrifar :

    Þú klúðraðir þessu þegar þú sagðir að nú þyrftiru að leita þér að nýrri prinsessu. Svekkj Bergur. Þú samt hvað þú þarft að gera: Þú þarft bara að lækka standardinn (hmmm, man eftir þessari umræðu alveg aftur til 2003) ;)

    26.09.2008, kl. 18:56 | #

  7. Bergur skrifar :

    Nei þetta var hint til J. Lo. Má kannski vera að ég þurfi að lækka standardinn, en niður fyrir reikingar fer hann ekki.

    26.09.2008, kl. 19:39 | #

  8. hqzasdjce skrifar :

    aeFVWl osiwzjuxfvjc, [url=http://icgcaapnbgal.com/]icgcaapnbgal[/url], [link=http://znprnnmtvzka.com/]znprnnmtvzka[/link], http://oaeqqhtcilut.com/

    01.11.2009, kl. 22:51 | #

Skrifa athugasemd