Nudd og nekt
Fór í nudd fyrir nokkru á Mecca Spa. Vinahópurinn úr Verzló var svo nice að gefa mér 90 min nudd þar í 25 ára afmælisgjöf eftir að þau lásu nuddsöguna góðu. Mjög fínt og flott. Þarna var indverji sem tók vel á mér en mér leið eitthvað kjánalega þegar hann spurði "is this too much" og af einhverjum ástæðum svaraði ég "no I like it hard". Fattaði eiginlega um leið og ég sleppti orðinu að þetta hljómaði ekki of vel þegar karlmaður er með olnbogann á rassinum á manni. Pottþétt á topp tíu listanum yfir "things not to say".
Ég ákvað líka að bera mig í World Class í dag. Tók þessa fína æfingu upp í Smára og þegar ég er að labba inn í klefann stendur "ATH þrif á klefa kl 8:30 - 09:00" og ég hugsaði ekkert meir um það. Skelli mér í sturtu og svo sauna sem er þarna í karlaklefanum. Þar sem ég gleymdi sundskýlunni heima skellti ég svona littlu World Class handlæði á bekkinn og tók svo það sem eftir var af því og henti því svona rétt yfir krjúnudjásninn. Ég sit þarna og heyri að það er verið að skúra frammi og svo allt í einu sé ég kústskaft detta fram fyrir sauna hurðina. Síðan sé ég KONU teygja sig eftir því, líta upp og voila beint á Berg Junior, þar sem ég var ekki betur hulinn en þetta. Þá loksins kveikti ég á afhverju það var sérstaklega verið að taka fram að þrif færu fram á ákveðnum tíma.
Jæja ég sit þarna og hugsa hvað ég geti gert í stöðunni en á endanum látum við eins og það hafi eiginlega ekkert gerst. Hún heldur áfram að þrífa þarna og ég sit inn í gufunni. Þegar þetta allt var að gerast, er ég búinn að sitja þarna inni í u.þ.b 15 min (já það er stundaglas þarna). Ég get náttúrlega ekki hreyft mig neitt því þetta handklæði nær ekkert utan um mann. Svo ég hugsa "hva hún getur nú ekki verið lengi að þrífa". Það var rangt, þetta er víst alveg heljarinnar process. Mér leið allavega eins og þetta væri heil eilífð. Aðallega vegna þess nú var mér orðið vel heitt, búinn að sitja þarna ég veit ekki hvað lengi, en mér leið eins og ég var farinn að nálgast 30 minúturnar. Ég píndi mig og píndi, var svona byrjaður að taka Robba á þetta eftir 5 min. Eldrauður og símásandi. Þangað til að ég hugsa "Nei þetta gengur ekki" reyni svona að hylja bestu partana og labba út. Hún lítur á mig þarna kófsveittan og nakinn "Á ég ekki bara að fara út í smástund svo þú getir klárað". Ég þakka pantaði fyrir.
7 Athugasemdir
Hafdís Ósk skrifar :
Sé Lauga-fréttir fyrir mér með fyrirsögninni Ugly naked guy perrast í gufu í 30 mínútur og berar sig ÍTREKAÐ svo fyrir skúringakonunni.
17.09.2008, kl. 16:31 | #
Gaui skrifar :
heheheh Bergur perri! -Ert svo að hneykslast í okkur að fara úr að ofan í partýi !!!!!!! Payback á þig right there.
"þakka pantaði"
ehhh... segir maður ekki annars; "þakkaði pent"
Bergur þú ert ágætur.
17.09.2008, kl. 21:30 | #
Óli Tómas skrifar :
Ef ég skil þetta rétt, þá sagði HÚN "Á ég ekki bara að fara út í smástund svo þú getir klárað?"
Svo þú getir klárað? Klárað hvað? Hún hefur greinilega séð eitthvað meira en þú segir frá!
18.09.2008, kl. 0:33 | #
Steinþór skrifar :
"no I like it hard!"
Þú ert stórkostlegur...
18.09.2008, kl. 9:46 | #
Bergur skrifar :
Jájá komið með þetta.
@Gaui: Strippið hjá mér var ekki viljandi og það var ekki fyrir framan hóp af öðrum hálf-nöktum karlmönnum.
@Óli: Jah kannski að klára saunað og gufuna. Þannig að ég þyrfti ekki að standa þarna sveittur og nakinn með eitthvað tiny handklæði í kringum djásnin á meðan hún þrifi. En jú annars hefur mér alltaf fundist ræstingarkonur heitar. Veit ekki hvað menn eru alltaf með þing fyrir hjúkkum ;)
@Steinþór: Já takk. Þetta var ekki alveg besta setningin, en ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að segja indverja sem rétt so talaði ensku að ég vildi ekkert klapp-nudd. Býst við að "I like hit hard" sé aðeins betra en "I like it rough".
18.09.2008, kl. 10:01 | #
Robbi skrifar :
Ekki reyna að klóra þig útúr þessu, Óli hitti naglann á höfuðið. Komdu með sannleikann.
18.09.2008, kl. 17:03 | #
Beta Becks skrifar :
Bergur þú ert algjör snillingur!
21.09.2008, kl. 0:37 | #