Blogg

Sauna og gufubað

7.9.2008

Fjórum sinnum hefur mér tekist að fá starfsmann sundlaugar til að koma hlaupandi að mér, þar sem að viðkomandi hélt að ég væri í hættu. Ástæðan er sú að mér finnst fátt betra en að algjörlega ganga frá mér i gufu/sauna þangað til að ég get ekki meira og vera þá 2 min lengur. Þá er ég gjörsamlega að brenna upp og því langbest að hoppa í ískalda sturtuna eða út í snjóinn og kæla sig. Veit ekki hvað það er en ég er alveg bara hooked á þessu. Finnst "ekkert" skemmtilegt að fara í sund og hanga í buslulauginni - sé ekki pointið, það gerir ekkert fyrir mann. Ég þarf annaðhvort að vera á heitasta staðnum eða þeim kaldasta.

Vinahópurinn tekur misvel í þetta, sumir kalla mig geðveikan og aðrir harðann. Ég hef því ákveðið að skipta félögunum í tvo megin hópa.
Gufuvænir félagar og svo aumingjar. Reyndar bætist við þriðji hópurinn en það eru þeir sem ég man ekki eftir að hafa farið í gufu með.

Gufufélagar
Óli Tómas Freysson
Steinþór Gíslason
Jónas Hlynur Hallgrímsson
Sverrir Örn Hlöðversson
Hlynur Hallgrímsson

Aumingjar
Þorbergur Ingi Jónsson
Björgvin Víkingsson
Róbert F. Michelsen
Trausti Hannesson

Óvitað
Sigurjón Guðjónsson
Einar Bergur Ingvarsson
Jón Karl Sigurðsson

Nöfnunum er ekki raðað í neina sérstaka röð, en þess má þó til gamans geta að Robbi, eins góður félagi og vinur og hann er, þá er hann alveg hræðilegur gufuvinur.



8 Athugasemdir

  1. Hafdís Ósk skrifar :

    Hvað erum við að tala um að við þrauka lengi inni í gufunni?

    07.09.2008, kl. 20:43 | #

  2. Óli Tómas skrifar :

    Fyndið, ég hefði nefninlega sett þig á aumingja listann minn!

    07.09.2008, kl. 20:59 | #

  3. Kristín Birna skrifar :

    Hmm... Fara kvk vinir þínir ekkert með þér í sund? Eða komumst við bara ekki á listann.
    Ég er nú nokkuð viss um að ég væri á aumingjalistanum :/

    08.09.2008, kl. 2:18 | #

  4. Bergur skrifar :

    @Hafdís - já þetta snýst aðallega um hversu lengi maður getur þraukað inni og hvort maður sé nógu harður til að fara í ísbað strax á eftir eða fara út í kuldann.

    @Óli - Fyndið..NEI!

    @Kristín Birna: Ég man bara ekki eftir því að hafa farið með stelpu í sund. Hehehe jú reyndar en þá er alltaf hangið í buslulauginni.

    08.09.2008, kl. 10:54 | #

  5. Robbi skrifar :

    Ég get ekkert þrætt fyrir þetta. Ég gefst upp eftir 2 mínútna gufubað, ef ég þrauka lengur þá er ég helvíti harður.

    Mér þætti þó gaman að sjá hvort ég hafi bætt mig eitthvað því ég er orðinn "vanari" heitara loftslagi og meiri raka en áður fyrr.

    08.09.2008, kl. 15:40 | #

  6. Sigurjón skrifar :

    Það er rétt, við höfum aldrei farið saman í gufu en það er vegna þess að ég treysti þér ekki inn í litlu herbergi þar sem skyggni er slæmt.

    Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir þessu kvennmannsleysi hjá þér.

    08.09.2008, kl. 19:11 | #

  7. Bjoggi skrifar :

    Eg verd nu bara ad segja ad eg er mjog hissa ad eg se i aumingjaflokknum ;) Oli er ekkert skarri en eg!

    09.09.2008, kl. 13:01 | #

  8. Bergur skrifar :

    Já ég verð reyndar að viðurkenna að ég var á báðum áttum með þig. Þú varst algjör aumingi til að byrja með, en hefur verið að bæta þig jafnt og þétt og ert orðinn bara nokkuð fínn gufufélagi.

    10.09.2008, kl. 11:28 | #

Skrifa athugasemd