Noka E51
Þá er ég loksins orðinn maður með mönnum! Ég er kominn með Nokia E51 sem er svona glæsilega útlítandi sími úr business línunni frá Nokía.

Þessi sími er að sjálfsögðu af þriðju kynslóðinni og skartar þar af auki allskyns skemmtilegum fídusum svosem Symbian stýrikerfi og WiFi tenginu. Ég á nú eftir að stilla hann til og leika mér með hann. Pælingin er jafnvel að setja upp Skype á honum og hringja í gegnum það til að spara símareikninginn þegar maður hringir utan kerfis. Ég stefni líka að setja einhvern sniðugan DOS-Emulator inn á þetta og ná þar með að spila alla gömlu góðu PC DOS leikina.
Ég á pottþétt eftir að leika mér meira með þennan grip, en ég er allavega sáttur sem stendur.
1 Athugasemdir
Óttar Birgis skrifar :
hæ, èg er lìka með svona sìma. Er nùna að nota hann til að skoða bloggið þitt. Ertu bùinn að finna Dos emulator ?
16.08.2008, kl. 22:46 | #