Blogg

25 ára

20.7.2008

Ég hélt upp á 25 ára afmælið mitt í gær, tvöfalt. Fyrst hélt ég smá veislu fyrir blikana og þar var þemað 5 ára afmæli. Keypti allt í teikimyndinni Cars sem hægt var, pappadiska, dúk, glös, you name it. Maður er svo mikið að mæta einmitt í svona fancy 25 ára veislur, eða útskriftaveislur þar sem allir eru voðalega dannaðir, uppdressaðir að sötra rauðvín og borða osta og snittur. Það er í rauninni ekkert að því, mér finnst það töff, ég vildi bara prófa eitthvað nýtt. Krakkarnir voru líka ekki lengi að taka við sér, þar sem gjafirnar voru í ætt við það ég fékk t.d. pening frá stelpunum (man alltaf hvað það var gaman að fá pening þegar maður var lítill - YESS 1000 kall mar!) og strákarnir gáfu mér massa LaserTag system. en það er reyndar tvöföld vísun í það: barnaafmæli og "cause playing lasertag is awsome!" (fyrir HIMYM aðdáendur). Maggi og Björg gáfu mér svo Puma bol, sem margir myndu telja rugl sökum Nike áráttu minnar, en mér fannst það sniðugt þar sem ég er allur að koma til í þessum málum.

Um kvöldið bauð ég síðan fólkinu sem ég er að umgangast mest í smá veislu hérna heima, það heppnaðist bara mjög vel að mínu mati. Aðeins 3 afboðuðu þannig að það var mjög góð mæting. Þemað þar var svona pínu mexíkósk, bauð upp á Enchiladas, Nachos rétt og DIY Fahitas sem síðan var hægt að skola niður með ísköldum Carona eða Sangriu. Í eftirrétt var ég svo með Snickerito með ís, ávöxtum og nammi. Um kvöldið var síðan hægt að narta í heitt salsa og dorritos með bjórnum og Tequila sem stóð reyndar sem fastast á stofuborðinu. Hmm ég sem hélt að Tequila væri svo vinsælt! ;)

Í heildina heppnaðist kvöldið ótrúlega vel, þarna voru komnir saman bestu vinir og ég vil þakka þeim kærlega fyrir að gera þetta kvöld ógleymanlegt. Ég gæti ekki ímyndað mér betri vinahóp en þann sem var samankomin í gær. Gjafirnar hittu líka beint í mark, það er svo gaman að fá gjafir sem sýna að viðkomandi þekkir mann. Ég fékk geggjað Diesel úr, eitthvað sem ég hef lengi ætlað að kaupa. Ég er pínu nautnaseggur, hef gaman að því að dressa mig upp og lúkka og ég bölva því alltaf þegar ég fer í jakkafötin að vera með Timex íþróttaúrið á höndinni. Ég fékk líka gjafakort í bláalónið með besta félagsskap sem ég gæti ímyndað mér og það verður svo nice að slappa af og njóta félagsskapsins. Ég fékk sömuleiðis gjafabréf upp á guys trip til Akureyrar en seinasta svoleiðis ferð sló algjörlega í gegn. Ég fékk líka hristara til að búa til kokteila og "Jamie Oliver at home" matreiðslubók. Ég hef náttúrlega mjög gaman að því að stússast í eldhúsinu og þótt ég sé ekki mikill drykkjumaður að þá væri ég einmitt vís til að leika mér að búa til einhver massa kokteila. Að lokum er ég náttúrlega mikill aðdáandi nudds (sérstaklega ef það er framkæmt af austur-evrópskri gellu sem notar of mikið af olíu) og því lá náttúrlega beinast við að gefa mér 90 min nudd í Mecca Spa.  Ég fékk líka þetta fína ljóð sem hitti bara beint í mark.

Þú tugi tvo og hálfan fyllir í dag
af því tilefni við sömdum þennan brag
Guði við þökkum heppni þá
að þekkja drenginn þann er segir frá
Bergur er drengur góður og ekkert smá
flottur alveg frá toppi og ofan í tá
Við líka og huga leggur rækt
þó stundum skipulagið sé of flækt
Stæltur bæði og skemmtilegur fýr
sem stundum talinn hnefur verið hýr
Við betur teljum okkur vita þó
og þeirrar réttu beðið sé með ró
Við mikla teljum heppni vera okkar
að þekkja drenginn þann er ávallt rokkar
Vonandi við áfram þekkjum þig
svo félagsskapur okkar fari á æðra stig
Að eilífu munt lifa í okkar minni
við látum þetta duga að þessu sinni

Ég er ótrúlega sáttur með þetta kvöld og vill þakka öllum þeim sem komu og gerðu þetta að því kvöldi sem það varð!



4 Athugasemdir

  1. Robbi skrifar :

    Þetta hefði verið skemmtilegt ef það hefði verið eitthvað almennilegt að éta! ;-)

    Ég þakka kærlega fyrir mig, þú ert náttúrulega alveg magnaður gestgjafi, það fer ekkert á milli mála. Þetta var líka gaman, sérstaklega að sjá ÍR pakkið sem maður sér orðið alltof sjaldan :-P

    20.07.2008, kl. 16:35 | #

  2. Kristín Birna skrifar :

    Tek undir með Robba!
    Takk æðislega fyrir mig. Þetta var frábært kvöld í alla staði! :)

    20.07.2008, kl. 17:35 | #

  3. Hafdís Ósk skrifar :

    Sammála félögum mínum hér að ofan. Snilldarkvöld í afspyrnugóðum félagsskap!
    Takk kærlega fyrir mig!

    20.07.2008, kl. 18:38 | #

  4. vjuqwkbk skrifar :

    x86GcE zrbsnmihlxgb, [url=http://onntodgfolyk.com/]onntodgfolyk[/url], [link=http://sphzplznzejx.com/]sphzplznzejx[/link], http://ggxaoewsvblp.com/

    15.11.2009, kl. 19:29 | #

Skrifa athugasemd