Lán í óláni
Fór í þessa fínu ferð til Lauga að keppa á föstudaginn. Væri ekki frásögufærandi nema að ég vildi helst ekki missa helgina og ákvað því ekki að keyra, tjalda og skella sér í rafting eins og flestir ætluðu að gera. Ég pantaði mér því flugfar á föstudegsmiðdegi og aftur heim með tíu vélinni. Það var semsagt planið.
Fyrst var nefnilega mótið skráð að hefjast kl 18:00 en eftir að ég pantaði miðana var búið að seinka mótinu til 19:00. Gauti stangastökkvari var svo farið mitt milli Lauga og Akureyrar og þar vandaðist málið því að stangastökkstkeppnin hófst líka um það bil 30 min seinna eða heilum 1,5 klukkutíma seinna en ég gerði ráð fyrir í planinu.
Til þess að ná kvöldvélinni heim þurfti Gauti að keyra eins og brjálæðingur með stangirnar ofan á á fleygiferð inn í þessar beygjur sem fylgja landslaginu. Ég mætti upp á flugvöll 21:53 og sé að vélin er ennþá út á velli en átti að fara 21:55.
Bergur : Ég átti flug til Reykjavíkur
Stelpan: Eh já..þú ert helst til seinn
Bergur : Já ég veit, ég var að keppa, geturu ekki hleypt mér inn?
Stelpan: Nei því miður, hefðiru mætt fyrir 3 minútum en það er búið að kveikja á vélinni
Bergur: Já geturu samt ekki hleypt mér inn, ég er ekki með neinn farangur
Stelpan: Nei því miður, eftir að það hefur verið kveikt á hreyflunum er ekki slökkt.
Bergur: Það þarf ekkert að slökkva á hreyflunum, opnaði bara landgöngubrúnna og hleypið mér inn!
Stelpan: Því miður sko.
Bergur: Er ekkert sem þú getur gert!? Ég verð að komast til Reykjavíkur
Stelpan: Nei því miður
Bergur: Oh glæsilegt, ég er fastur á Akureyri!
Stelpan: Þekkiru engan hérna?
Bergur: Nei ekki sem ég man eftir, en ég hlýt að finna einhvern, ég redda mér.
Stelpan: Sko ég gæti reddað handa þér gistingu ef þú vilt
Bergur: Já ég tími bara ekki að borga hótel sko
Stelpan: Nei nei ég é er ekki að tala um hótel
Bergur: Nú ok, það væri náttúrlega glæsilegt ef þú gætir reddað mér húsnæði.
Stelpan: Ég er með litla íbúð hérna stutt frá, gætir gist þar og svo tekið morgunflugið bara daginn eftir.
Bergur: Já veistu, ég held ég þiggi það bara. Takk kærlega, þú ert alveg að redda mér!
Ótrúlega fyndið hvað ég var fúll fyrst yfir því að missa af fluginu en hvað rættist svo úr þessu. Reyndar missti ég svo af morgunfluginu, þar sem ég svaf yfir mig sökum þreytu en endaði svo með að ná hádegisfluginu. Þannig að já bara massa helgi.
13 Athugasemdir
Trausti skrifar :
haaa? "... missti ég svo af morgunfluginu, þar sem ég svaf yfir mig sökum þreytu ..."
Keyrði stúlkan þig alveg út eða hvað?
16.07.2008, kl. 18:19 | #
Sölvi skrifar :
Sagan þín endaði bara alltof snemma, kemur framhald??
16.07.2008, kl. 23:23 | #
Silja Úlfars skrifar :
Þú klárlega skrifaðir ekki allt, það vantar endinn... helluuu sleppir ekki svona auðveldlega, hlakka til að lesa framhaldið um "gistinguna"...
17.07.2008, kl. 1:03 | #
Alla skrifar :
Hvenær ferðu svo næst til Akureyrar? Færðu líka gistingu þá? (o:
17.07.2008, kl. 8:22 | #
Bergur skrifar :
Haha sénsinn að ég sé að fara segja eitthvað meira...en jú ég held að ég lendi ekki vandræðum með að redda mér gistingu á Akureyri í framtíðinni.
17.07.2008, kl. 14:04 | #
Óli Margeirs skrifar :
DRENGUR!
17.07.2008, kl. 20:53 | #
Hannes skrifar :
Snilld :) Gott trikk, þarf að muna þetta ;) Sérð einhverja sæta gellu í afgreiðslunni þegar þú lendir og síðan mætiru "óvart" of seint þegar þú ætlar að ná fluginu heim... bulletproof.
18.07.2008, kl. 0:56 | #
Sigurjón skrifar :
Hefði átt að spila þetta trikk á gamla gaurinn í Miami sem vildi varla hleypa mér í flugið til Bolivíu.
Ha? Ekki?
18.07.2008, kl. 2:12 | #
Robbi skrifar :
Slakið á krakkar mínir, það gerðist ekkert, við erum að tala um Berg og einhverja gellu. Ekkert gerðist!
18.07.2008, kl. 13:42 | #
Óli Tómas skrifar :
"Robbi skrifar :
Slakið á krakkar mínir, það gerðist ekkert, við erum að tala um Berg og einhverja gellu. Ekkert gerðist!"
Hahahahahaha
18.07.2008, kl. 16:17 | #
Bjöggi skrifar :
"
Óli Tómas skrifar :
"Robbi skrifar :
Slakið á krakkar mínir, það gerðist ekkert, við erum að tala um Berg og einhverja gellu. Ekkert gerðist!"
Hahahahahaha"
HAHAHAHAH
18.07.2008, kl. 16:36 | #
Óli Tómas skrifar :
"
Óli Tómas skrifar :
"Robbi skrifar :
Slakið á krakkar mínir, það gerðist ekkert, við erum að tala um Berg og einhverja gellu. Ekkert gerðist!"
Hahahahahaha"
HAHAHAHAH"
Hahahaha
22.07.2008, kl. 19:53 | #
rarfknsaye skrifar :
V7zGXW ubtjoasebrgs, [url=http://ykwqkyhvgfgw.com/]ykwqkyhvgfgw[/url], [link=http://ovfchccevikc.com/]ovfchccevikc[/link], http://metxolzmekwx.com/
27.03.2010, kl. 6:34 | #