Blogg

19.2.2009 : þið getið fengið stóla, en sófinn verður að fara

Á þriðjudaginn þar seinasti skellti ég mér í bíó með Bjögga, Helgu, Óla og Kristrúnu. Það var búið að vera planað dálítið lengi að skella sér The Curious Case of Benjamin Button og nýta sér 500 kr tilboðið á þriðjudögum. Tobbi áttu reynar að vera með líka, en hann valdi annan vinahóp framyfir þennan.

Eitthvað vorum við í léttum galsa því á leiðinni í bíóið stoppuðum við á ljósum við hliðina á tveimur stelpum. Óli sem var með loðhúfu útaf kuldanum var manaður upp í að veifa banananum sem hann hélt á, þannig að þær gætu ekki annað en tekið eftir því. Stelpurnar vissu náttúrlega ekkert hvernig þær áttu að hegða sér þegar og til að gera illt verra, opnuðum við gluggann og Óli reyndi sem hann gat að rétta henni ávöxtin góða. Ég hef sjaldan séð eins vandræðalega stelpu á ljósum. Óli með einhvern asnasvip, rússneska loðhúfu með hendururnar út úr glugganum veifandi banana og við hin inn í bílnum í hláturskrampa. Stelpan spólaði af stað þegar það kom grænt.

Við erum öll eitthvað í hláturskrampa þegar okkur dettur í hug hvað það væri fyndið að borga bíómiða með banana. En eins og Óli er nú gerður að þá hugsuðum við að það væri ekkert mál fyrir hann að rétta fram banana og segja "einn miða á Benjamin Button" og halda feisi. Aftur á móti er Bjöggi þannig gerður að hann kann ekki ljúga né að halda andliti og því endaði með að áskoruninnni meira bent að Bjögga. óli átti að biðja um miðja og rétta fram bananann og eina sem Bjöggi þurfti að gera var að halda kúlinu. Og þótt Bjögga hafi tekist að halda kúlínu í þetta skipti að þá hef ég aldrei séð eins uppspennta stelpu. Henni fannst þetta EKKERT fyndið.

Þegar inn er komið förum við í sjoppuna og birgjum okkur upp af poppi, kók og nammi. Við vorum reyndar dálítið í seinni kanntinum, kannski svona 5 min í að myndin byrjaði þannig að ég ákveð að hoppa inn á undan og reyna ná sætum. Vá hvað ég hef aldrei séð eins pakkaðan bíó sal, það var hvert einasta sæti tekið nema 2 alveg fremst. Ekkert eitthvað "eitt sæti laust hérna og eitt sæti laust þarna". Það var bara ekkert laust nema þessi tvö fremst. Ég labba fram og segi hópnum að annnaðvhort hafi verið seldir miðar umfram sæti eða það sé fólk þarna inni ekki með miða á þessa mynd. Því við séum 5 en einungis tvö sæti laus. Bjöggi labbar með mér inn og viti menn þá eru þessu tvö sæti farin. Við vorum greinilega ekki þau einu sem höfðum lent í þessu því nú var annað fólk byrjað standa þarna hálf kjánalega og rölta um að leita af sætum án árangurs.

Við löbbum fram og tölum við starfsmann að það sé ekkert laust sæti og við getum hvergi setið. Hann býðst til þess að koma með stóla fyrir okkur sem við gætum svo sett þar sem pallurinn fyrir hjólastólana eru. Við svona játum því, án þess að hugsa en föttum svo um leið og hann er farinn að það eigi eftir að sökka. Að sitja á kaffistofustólum á 3 klst mynd yrði ekki beint nice bíóferð. Við létum okkur því hverfa um leið og starfsmaðurinn fer að sækja stóla en tökum eftir að það eru stórir leðursófar fram á ganginum (þetta var í kringlubíó). Það var eins og ljósapera hefði kveiknað. Upp fór svarti leðursófinn og inn í bíósal!. Ég hef aldrei séð jafn skrítinn svip á fólkinu í efstu röðinni þegar við löbbum inn í kvikmyndasal með stóran leðursófa sem við plöntuðum á hjólastólapallinn. Þetta var ALLT annað, þótt við hefðum borgað 500 kr fyrir að fá sæti að þá var þetta nú alveg ásættanlegt.

Allir hinir sem voru ekki komin með sæti horfa alveg undrunar- en öfundunaraugum á okkur. Myndin var þegar byrjuð og við höfðum náð að redda okkur sætum þgar sambíóin voru að klúðra sínum málum. Þegar við erum aftur á móti að koma okkur fyrir í sófanum kemur strákurinn "strákar þið getið fengið stóla, en sófinn verður að fara". Við náttúrlega möldum eitthvað í móinn og ég segi að ef hann ætli að taka sófann vilji ég fó almennileg sæti í sal, en ekki einhverja kolla eða stóla. Við höfðum borgað það sama og allir hinir. Hann segir að það sé ekki hægt, en við getum fengið endurgreitt.

Á þessum tímapunkti er ég og flestir orðnir dálítið pirraðir yfir ástandninu og við segjum bara "já flott fáum endurgreitt" og löbbum út. Auðvitað er það pínu kjánalegt en eins og þetta var orðið var okkur eiginlega öllum sama því myndin var byrjuð, engin sæti og lausnin þeirra var að sitja á ömurlegum kaffistofustólum. Við vorum náttúrlega hlaðinn poppi og kók þannig að við byrjum á að fara í sjoppuna og segjumst vilja endurgreitt. Stelpan horfir á okkur: "ég get endurgreitt ykkur miðana, en þið eruð búin að fá ykkur af poppinu". Þá sprakk allt. Rólegi góði Bjöggi, sem hefði meira að segja hjálpað stráknum með sófann aftur út úr salnum þegar ég og Óli löbbuðum bara beint út og skilið strákinn einan eftir með sófan, kallaði "ekki að ræða það!". Ég hló nú bara eiginlega að henni "þú ert að grínast er það ekki?".

Við byrjuðum á því að verja mál okkar að við höfðum að sjálfsögðu keypt poppið og kókið í þeirri trúi að við fengjum sæti á þá bíómynd sem við keyptum miða á.  Þegar við erum öll búin að kalla eitthvað og útskýra snappar stelpan loksins "OK OK SLAKIÐI BARA Á!!". Hún var ekki sátt þegar hún rétti okkur peninginn til baka.  Ein önnur stelpa kemur og reynir að útskýra að sambíóin selji ALDREI miða umfram sætaframboð, en þegar hún sá að það voru svona 8 aðrir að reyna fá kolla/stóla og ég útskýri að salurinn sé pakkaður var hún fljót að bakka.

Við enduðum svo í miðasölunni og fengum miða í Álfabakkann á næstu sýningu sem var klukkutíma seinna (eða meira svona 40 min seinna útaf veseninu). Þá kom náttúrlega að því að fara í sjoppuna og birgja sig aftur upp með þessum 2.000 kr sem við höfðum fengið endurgreitt úr sjoppinu og viti menn, við höfðum fengið vitlaust til baka. Þótt ég hefði verslað fyrir 100 kr minna núna, þurftum við að leggja út 300 kr meira fyrir minna.

Fyndið hvað Sambíóin höfðu getað bara reddað þessu með að leyfa okkur að hafa sófann og actually fengið kúlprik. Einu skiptin sem þessi sófi er notaður þegar maður er a bíða eftir einhverjum sem hoppaði á klósettið. Mig langar pínu að fara alltaf í bíó á þriðjudögum og draga sófann inn í sal, þótt það sé laust. Auðvitað verð ég rekin út og fæ ekki endurgreitt en það er alveg þess virði að mæta alltaf þarna vikulega held ég :D



kl. 18:15 | Athugasemdir (13)

29.1.2009 : Auh þarna er það!

Fannst upplagt að rífa þetta blogg aftur upp með týpískum Berg, eða eins og strákarnir í versló hefðu orðað það "að taka Berginn á'etta" sem þýðir basically að vera pínu utan við sig en láta samt hlutina alltaf reddast. Svipað og þegar ég týndi símanum mínum í u.þ.b tvær vikur bara til að átta mig á því að hann var í íþróttatöskunni minni sem ég nota að lágmarki einu sinni ef ekki tvisvar á dag.

Á æfingu í dag tók ég nefnilega Berginn. Ætlaði að fara heim þegar ég átta mig á því ég finn hvergi tölvuúrið mitt. Ég byrja náttúrlega heljarinnar leit enda er þetta massa úr sem ég dýrka í tætlur. Byrja á að tékka alla vasa, gólfið sem ég lá á meðan ég losaði um sýruna úr lærunum, öll hólf í íþróttatöskunni en hvergi fannst úrið. Ég hugsa að það hefði getað dottið milli brautarinnar og byrja því að skríða á fjórum fótum, en nei ekki þar. Ég hringi í Tobba og Stebba til að athuga hvort þeir hafi tekið það í misgripum en allt kemur fyrir ekki. Ég sturta því úr íþróttatöskunni og geri dauðaleit sé að í einhverju leynihólfi þarna eru svört ól, en dreg ekki upp tölvuúrið heldur massa Diesel úrið mitt sem ég var EINMITT búinn að vera leita að í allri seinustu viku! Hentugt!

Að lokum ákvað nú Arndís að setja smá kvennlegt innsæi í leitina og fann að lokum tölvuúrið mitt góða inn í gaddaskónum. Viðbrögð mín voru "aaah já alveg rétt!".



kl. 22:30 | Athugasemdir (8)

23.12.2008 : Svefninn

Eins og vill oft gerast i prófum var svefn af skornum skammti hjá manni. Ég kláraði á föstudaginn og var alveg gjörsamlega búinn á því og stefndi því á rólegt föstudagskvöld. Byrjaði í matarboði hjá Unni og Togga en færði mig svo til Dísu og Óttars og endaði á góðum rúnt með Eyþóri frændi sem þýddi að ég var ekki kominn heim fyrr en kl 7 um morguninn.

Ég gat því miður ekki sofið út á laugardeginum því að Blikarnir ætluðu að hittast í Jólahlaðborði í turninum kl 11:30 og ég var því vaknaður kl 11 eftir aðeins 4 tíma svefn. Laugardagurinn fór svo í smá stúss og reddingar sem maður hafði látið sitja á hakanum í próflestri, en sofnaði þó um tvö leytið eftir heitt og gott slakandi bað. Það entist þó ekki lengi því að ég vaknaði kl 5 um nóttina til að pikka upp fulla fólkið niður í bæ sem var að djamma með Palla á Nasa. Ég sofnaði aftur kl 7 þann daginn og vaknaði ekki fyrr en kl 18 á sunnudeginum, úthvíldur.

Það þýddi náttúrlega að sólahringurinn var kominn algjörlega á hvolf hjá mér, eftir massa vídjógláp á sunnudagskvöldinu þar sem jólaþemað var ríkjandi; Home Alone, The Grinch, Elf, sofnaði ég loksins klukkan 7 um morguninn.

Þá ákvað ég að þetta þýddi ekki lengur, ég þyrfti að rífa mig upp á sómasamlegum tíma og vera bara ónýtur í einn dag til að koma mér aftur á sæmilegt ról. Ég vaknaði því kl 11 á mánudegi, hélt mér vakandi alveg til kl 23 og hugsaði með mér að nú myndi ég sofa vel og ná að rétta mig af.

Það gekk ekki. Ég vaknaði klukkan 4 í morgun. Brilliant alveg, innri klukkan mín er bara komin í mesta rugl ever.



kl. 7:20 | Athugasemdir (8)

19.12.2008 : Lýsing á mér?

Ríkjandi pláneta þín er tunglið, pláneta tilfinninganna. Hún hefur mikilvæg áhrif á jörðina og stjórnar tilfinnalífi þínu. Elífar breytingar Tunglsins, hið dökka og hið ljósa, hiða falda og hið sýnilega, birtist í persónuleika þínum. Stundum ertu félagslydnur, hress og geislandi en verður síðan leyndardómsfullur, þögull, og fráhrindandi. Elskhugar þínir og ástkonur eiga erfitt með að reikan þig út og botna hvorki upp né niður í allri dulúðinni. Þú ert óútreiknanlega persóna sem enginn skilur og hefur valdið djúpum sárum með því að einu að lyfata annarri aguabrúninni til hálfs. Þú getur getur lýst mönnum leið eins og Tunglið eða sent þá inn í myrkrið, þitt er valið. Hugleiðsla mun gera þér gott og greiða götuna.

Umhverfi og venjur
Þér myndi hugnast að eiga stóra fjölskdylu og lítið eitt óreiðukennt heimili sem stöðugt ilmar af heimalöguðum mat. Þú þrífst best í góðum félagsskap og eldhúsið er miðpunktur heimilisins. Þótt þú sért ungur og smart kýstu frekar að halda matarboð heima hjá þér ena ða hitta vini þína á veitingastað út í bæ.Þú vilt hafa hreint í kringum þig, en þó verður að sjást að þar búi fólk og því heimili þitt bæði notalegur og afslappaður staður. Draumurinn er risastórt borðstofuborð og arinn í eldhúsinu, margar stærðir og gerðir af pönnum og pottum hangandi á krókum og grænmetisrekki fullur af ferskum og angandi jurtum. Það sem veitir þér hvað mesta ánægju er aðf á að sitja í ró og spekt með vínglas í henda og notalega tónlist í bakgrunni. Þig dreymir einnig um hús á ströndinni svo þú getir ráfað um á notalegu kvöldi, horft á tunglið og leyft gljáfrandi öldunum að sefa huga þinn.

Ertu dæmigerður krabbi?
Klisjurnar um að þú sért heimakær og umvefrjandi eru yfirleitt sannar. Þú nýtur þess að líta eftir öðrum, fæða þá og klæða. Heimilið er þér afar mikilvægt og ef þér líður ekki vel þar finnurðu til jafnvægisleysis. Þú ert móðurleg persóna, líka ef þú ert karlmaður og nýtir þess að vera í návist barna og fullorðinna sem varðveitt hafa barnið í sér. Þú ert hlýr og aðlandi og mjög viðkævmur. Þú gengst stundum depurðinni á hönd og flýrð inní draumaheiminn.

Hvað segið þið sem þekkið mig eitthvað?

kl. 6:21 | Athugasemdir (6)

17.12.2008 : Próf og svefn

Vaknaði algjörlega endurrnærður í morgun. Náði 14 tíma svefn, sem var akkúrat það sem ég þurfti. Ég er búinn að vera sofa 1-3 klst á nóttunum og læra eins og mófó. Ég hef þar af leiðandi ekki hreyft mig í 3 daga núna og var alveg byrjaður að finna fyrir því. Þegar maður er svona þreyttur og slepjulegur, hreyfir sig ekkert að þá verður maður bara ógeðslegur. Til að toppa þetta algjörlega og já þetta gæti hljómað ógeðslega en ég læt það flakka: Ég var ekki búinn að fara í sturtu í 3 daga. Ástæðan er einföld, ég fer alltaf í sturtu eftir æfingar, sem þýðir oftast tvisvar a dag. Nú þegar ég tek ekki æfingu að þá dettur sturtan líka út.

Í gær ákvað ég að snúa þessu við, fara sæmilega snemma að sofa. Djöfull svaf ég vel mar. Mig dreymdi ótrúlegan skemmtilegan draum, að ég væri í æfingabúðum út á landi neeeema að það voru bara stelpur í ferðinni. Þetta voru ekki frjálsíþróttastelpur heldur eitthvað lið úr annari íþrótt. Það kom reyndar aldrei fram í draumnum hvaða íþróttt þær voru að æfa,  en ég er alveg viss um að það hafi verið blak svona miðað við hvernig þær voru klæddar allan tíman í þessari ferð. Vaknaði svo úthvíldur, skellti mér í heita og góða sturtu, rakaði af mér skegghýjungana og er alveg bara alveg nýr maður.



kl. 15:15 | Athugasemdir (6)

11.12.2008 : Rapp

Eyþór frændi sendi mér þetta vídjó. Reddaði kvöldinu algjörlega.

Þessi gaur er út úr kortinu!



kl. 10:26 | Athugasemdir (6)

10.12.2008 : Hópþrýstingur

Búinn að fá mikið af athugasemdum, böggi og spurningum varðandi bloggleysi. Vanalega læt ég nú ekki undan þegar fólk er að pressa á mig að blogga, þar sem ég blogga bara þegar ég hef eitthvað skemmtilegt frá að segja. Ákvað að gera undantekningu núna og blogga eftir að ég fékk "ég kíki daglega og það er aldrei neitt". Þannig að við viðkomandi segi ég bara.

Gjörðu svo vel.



kl. 20:34 | Athugasemdir (3)

1.12.2008 : Guilty pleasure

"A guilty pleasure is known as a something one considers pleasurable despite it being mainly received negatively or looked down on by a majority of society."

Hvað er ykkar guilty pleasure lag?

kl. 7:07 | Athugasemdir (17)

28.11.2008 : Súkkulaðihúðaður Bergur

Hljómar vel er það ekki? Átti nefnilega helvíti gott move fyrir nokkru sem átti sér stað í saununni í World Class í turninum. Var búinn með þessa fínu æfingu og ákvað eins og svo oft áður að slaka á í sauna og hoppa þess inn á milli í kalda ísturtu. Ég var náttúrlega eins og sönnum íþróttamanni sæmir með einhvern hroðalegan súkkulaði protein shake.  Eitthvað hafði ég nú samt verið að flýta mér að blanda hann því að það var ALLTOF mikið af vatni og því brúsinn næstum því fullur upp að brún.

Ég leggst á bakið inn í saununni og leyfi streytunni að líða úr mér um leið og ég halla hristarann upp að vörunum. Eitthvað var þessi hreyfing ekki alveg nógu samhæfð hjá mér, því að einhvern veginn hitti ég ekki á varirnar auk þess sem hann var svo stútfullur að hann þyngdin sveiflaðist það fljótt til að ég fékk bara hálfan líter af súkkulaði shake yfir mig allan þarna.

Ég ligg því í saununni ógeðslega sveittur og hress með súkkulaði próteinhristing yfir mig allan. Þökk sé svitanum og hitanum að þá var þetta ekkert smá pollur heldur bara rennur út um allt. Ég náttúrlega hugsa að það sé ekki séns að ég labbi fram í sturturnar allur í þessu. Ég gríp því eitthvað handklæði sem einhver hafði skilið eftir inn í saununni og næ að þurrka það mesta af mér svo ég geti nú skotist í sturtuna án þess að það sjáist súkkulaði hristingur dropa af mér.



kl. 12:52 | Athugasemdir (5)

27.11.2008 : Fimmtugsafmælið hans pabba

Í sumar náði pabbi gamli fimmtugsaldrinum. Hann var búinn að ræða mikið við okkur fjölskylduna um að honum langaði að gera eitthvað sérstaklega skemmtilegt í tilefni dagsins. Niðurstaðan var aftur á móti ein sniðugasta afmælisgjöf sem ég hef séð.

Pabbi er gamall rokkari sem varð heimsfrægur fyrir austan á sínum tíma. Þótt hann hafi alderi svosvem slegið í gegn kynntist hann fólkinu sem réði þessum tíma, misvel að sjálfsögðu.

Seinustu ár hefur pabbi verið að byggja upp lítið stúdió í stofunni og sótt hin og þessi námskeið í tónvinnslu auk þess að hafa byrjað aftur í tónlistarskóla. Í fimmtudagsafmælisgjöf ákvað hann því að endurvinna og gefa út þrjú lög eftir hann sem aldrei komu út. Eitt af þeim var meðal annars Dreams sem hann fékk Pétur Kristjáns heitinn til að syngja fyrir sig. Hann fékk gömlu félaga hans úr Start til að spila undir og gaf það út á 50. ára afmælisdaginn sinn. Viti menn lagið varð eitt af vinsællari lögum Bylgjunnar í sumar og heyrist enn.

Ég er náttúrlega ótrúlega stoltur, þótt þetta sé helst til mikið Bylgjulag fyrir minn smekk ;).  Aftur á móti finnst mér lagið sem hann tók upp með Eiríki Haukssyni á sínum tíma alveg brilliant. Upprunalega útgáfan er ennþá meir 80' glamúr rokk, en þeir settust niður og ákváðu að nútímavæða hana aðeins.

Það má að lokum geta að Eiríkur sagði einu sinni í viðtali að hann væri stoltastur af söngnum sínum í þessu lagi....en að spilamennsku hefði verið ábótavant. Það er semsagt búið að laga það núna. Vonandi fer þetta lag í spilun eftir áramót, þegar jólaflóðinu lýkur.



kl. 10:28 | Athugasemdir (2)

24.11.2008 : Baðherbergið

Það er alveg frábært að búa með 15 og 16 ára stelpum í húsi þar sem er aðeins eitt klósett. Það þyrfti að setja upp bókunarforrit fyrir það, það er ALLTAF upptekið. Á laugardeginum sit ég inn í herbergi þegar Heiður systir bankar upp á og spyr hvort ég þurfi að nota klósettið því hún sé að fara í bað. Ég svara að það sé allt í góðu. Þetta er klukkan fimm.

Planið hjá mér var að kíkja smá út um kvöldið þannig að þegar klukkan er orðin 19 að þá ætla ég að skella mér í sturtu, nema hvað að baðið er læst og ég heyri vatn renna. Ég kalla þá inn "eh er einhver í sturtu?" en og fæ svar á móti að nú sé Ingibjörg systir kominn í baðið, þótt hún sé í raun búin, bara að bíða eftir Heiði sem var nú komin í sturtu. Því það er víst ekki hægt að þvo á sér hárið í baði. Jæja þær hleypa mér inn og ég hoppa í sturtu. Þegar ég er búinn klæði ég mig og ætla svo aftur inn á bað til að setja eitthvað í hárið en viti menn það er læst. Ég heyri í vatni og kalla "eruði að grínast, er einhver í baði eða sturtu". Þá var það Ingibjörg systir komin í sturtuna því, jú það er víst ekki hægt að þvo sér um hárið í baði.  Þannig að basically var baðherbergið upptekið frá 17 til 20. Þær eru reyndar alltaf það tillitssamar að taka pásur og hleypa mér inn, en engu að síður finnst mér þetta alveg magnað.



kl. 15:50 | Athugasemdir (5)

17.11.2008 : Soundtrack

Pæli oft ótrúlega í tónlist í kvikmyndum og þáttum. Mér fannst t.d. ótrúlega magnað að tónlist var sjaldan notuð í Íslenskum kvikmyndum bara fyrr en mjög nýlega. Mér finnst hún skapa svo ótrúlega stóran sess í því að skapa rétta stemmingu fyrir hlutunum. Setja rétta andrúmsloftið.

Einn þáttur sem gerir þetta alveg brillaint vel er Dexter. Þar var samið sérstakt "score" bara fyrir þáttaröðina til að nota við ákveðin tilefni. Þeir nota lítið commerical lög eins og þekkist t.d. í Grey's eða The O.C (nefni þá því íslenskir flytjendur hafa fengið óvenju góða spilun þar). Þótt besta dæmið sé líklegast Entourage sem notar misþekkt lög eða búta úr lögum. Í Dexter aftur á móti voru bara samdir litlir laga stúfar eða bitar kannski 30-90 sek stef sem passa svo ótrúlega vel við að ég ég man ekki eftir öðru eins. Eitt gott dæmi er Party. Sumum finnst þetta nú ekki partý legt lag, en þetta algjörlega perfect fyrir Party þegar Dexter er annars vegar.

Annað sem fékk mig til að velta þessu fyrir mér er nýja Bond lagið. Finnst var ég nú ekki alveg að kaupa það, ekkert slæmt, ekkert gott bara svona lala. Svo fór ég aftur á móti að fíla það bara frekar vel. Þegar ég sá svo intro-ið við lagið. Grafíkina í byrjun myndarinnar (yfirleitt silúetta af Bond fljótandi eitthvað um). Að þá hugsaði ég að þetta smell passaði. Bond á náttúrlega mörg misjöfn lög og fólk er yfirleitt ekki sammála um hvað sé besta Bond lagið. En ég held að við getum öll verið sammála um hvað sé versta Bond lag ever.

kl. 0:00 | Athugasemdir (4)

13.11.2008 : Aha Shake

Lítið drifið á daga mína. Same old, same old. Skóli, æfingar og internet hangs. Skólinn gengur bara ágætlega, þarf aðeins að vinna upp nokkur dæmi en það er nú bara eins og gengur og gerist. Hópverkefni alveg á fullu þessa dagana eins og vill oft gerast í lok okt, byrjun nóv.

Æfingar ganga bara massa vel, hef aldrei verið sterkari og var aðeins "svona" frá því að henda upp 105 kg í klíni á þriðjudaginn. Er samt ekki alveg búinn að finna sprint fílinginn, ég er alltaf með 800 m genin í mér þannig að ég þarf alltaf svona að koma mér í sprint-pósurnar. Finnst ég actually hlaupa betur í flatbotna skóm. Hugsanlega stafar það af því að kálfarnir eru heeeel aumir og ná ekki að halda mér upp á göddunum.

Ég setti líka Íslandsmet um daginn þegar ég var sem verstur í kálfunum. Sat á þrekhjólinu í 65 fokkin mínútur. Þetta er náttúrlega það leiðinlegasta í geimi þannig að ég trúi því ekki að nokkur maður hafi farið áður yfir 60 min.

Búinn að vera lélegur að hitta fólk. Mikið að gera bæði hjá mér og öðrum, en er búinn að vera laga það. Skellti mér á Nings með Ernu, Vegamót með Hrönn og svo seinna með Sverri og í gær fór ég á Bond með Hafdísi og Sveinbirni. Stefnan var svo sett á ísrúnt með Tobba og Helgu Lísu en það var ekkert úr því þar sem ég fékk svona ótrúlegt tak í lærið á æfingu í dag. Ekki tognun, en eitthvað meira en venjulegur krampi. Ég er svona dofinn þar, finn fyrir svona smá sviða. Ég ligg því bara með íspokann á þessu. Svekkjandi að vera með ís á kálfunum þegar hann hefði getað verið í maganum. Léleg skipti finnst mér.

Um seinustu helgi kíkti ég til Láru þar sem verkfræðistelpurnar voru að fara á palla. Ég var með lyftingartest á þriðjudeginum þannig að ég lét nú áfengið eiga sig. Það var ótrúlega skemmtilegt. Þær voru duglegar í Mojito drykkjunni, sem byrjaði reyndar alveg horror með prótótýpunni hennar Láru en þegar verkfræðingarnir settu þetta í fjöldaframleiðslu fór allt á fleygiferð. Reyndar þegar líða fór á kvöldið fóru hráefnin að vera uppurin og því var blandaður kreppu Mojito með myntu stönglum og hvítum sykri. Ég hefði aldrei látið þetta ofan í mig, en þær voru orðnar það ölvaðar að þeim var nákvæmlega sama, eins og vill oft gerast eftir nokkur glös.

Annars er plan helgarinnar ekki stórfenglegt: Reikna, vinna í hópverkefni í gæðastjórnun, skella sér í ísrúnt og hafa það bara nokkuð nice.



kl. 23:15 | Athugasemdir (2)

6.11.2008 : Sex on fire

I don't know where Caleb got the lyrics for that one
Cos I'm pretty sure he's saving himself for marriage
so I'd say its probably more song of a fantasy
how he imagines it will go, eh but he's on to something,
cos it's only a minute and half song
and he apologizes at the end



kl. 0:32 | Skrifa athugasemd

29.10.2008 : Getraun: Lagastuldur?

Árið 2000 kom út nokkuð merkileg plata. Hljómsveitin var vel þekkt, búin að gefa út fimm plötur áður og þar af tvær sem slógu í gegn og gerðu hljómsveitin að því sem hún er í dag. Þrátt fyrir að platan hafi fengið mjög góða dóma fór hún einungis í gull og náði aldrei þeim hæðum sem 7. plata hljómsveitarinnar gerði.

Margir vilja kenna ófrumlegum lagasmíðum þar um. Öll lögin hljómuðu eins og eitthvað sem maður hafði heyrt áður, alveg frá Bítlunum til Drop Kick Murphy. Sumt var verra en annað og stóðu þessi þvö lög upp úr.

Hvaða hljómsveit er þetta, hvað eru lögin tvö og hvað heitir þessi plata?



kl. 3:18 | Athugasemdir (5)

22.10.2008 : Millibilsástand

Hljómar stelpulega en oh hvað ég hata hárið á mér akkúrat núna. Núna er ég með svona leiðinlega sídd sem þýðir að hair-doið er alltaf ljótt alveg sama hvað ég reyna að mólda, steypa og mynda eitthvað úr því. Ég ætla þó ekki að gefast upp á söfnunni og stefni ennþá ótrauður á almennilegalega sídd. Ég verð bara að sætta mig við nokkrar ljótar vikur, rain before the sun eða eitthvað.

kl. 18:47 | Athugasemdir (11)

19.10.2008 : I got bitches in the living room gettin it on and, they aint leavin til six in the mornin

Sjitt hvað gærkvöldið var insane mikið rugl. Ég hef bara sjaldan farið í eins mikið rugl. Ætluðum nú bara að hittast eitthvað, ég Tobbi, Óli Tómas og Stefán Már endaði í hardcore kallakvöldi bara.

Fórum ekkert út - elduðum heima - horfðum á How to lose a guy in 10 days á RÚV og svo snemma heim.

Sjitt mar, næsta helgi verður tekin rólega .



kl. 15:02 | Athugasemdir (7)

16.10.2008 : Grín: Hvað eiga þessi lög sameiginlegt?

Hvað eiga þessi tvö lög sameiginlegt?

Jú hljómsveitirnar sömdu annað nákvæmlega eins lag og enginn virtist fatta það.

</<p>

It's hip to be square...eh meina It's the Power of love.



kl. 11:10 | Athugasemdir (4)

15.10.2008 : Getraun: Kanntu að leggja saman?

Geturu lagt þessi tvö lag saman og fengið út frægt 80's lag, sem allir geta sungið með.

Þessi er nú í auðveldari kanntinum og því er Ólafi Margeirssyni, Sigurjóni Guðjónssyni og Hlyni Hallgrímssyni bönnuð þáttaka. En þar sem það eru miklu miklu fleiri sem lesa síðuna en þessir 6 sem kommenta vanalega ákvað að ég setja eitthvað upp sem allir ættu að geta tekið þátt. Vill því hveta þetta non-comment fólk að láta flakka, sérstaklega ef einhverjar af öllum þessum gellum sem lesa bloggið geta komið þetta.

Er svona líka að reyna finna nýjar leiðir. Fyrst var það sameiginlegur þáttur, svo finna original og nú leggja saman. Gaman að setja smá twist í þetta. Reyni svo að finna eitthvað svínslegt sem fólk getur rifist um við tækifæri.

kl. 4:23 | Athugasemdir (7)

14.10.2008 : Getraun: Kannu að deila?

Geturu fikrað þig aftur á bak frá þessari afbökun og fundið orginalinn. Fleiri skref = fleiri stig.

"My style can't be duplicated or recycled" -Aha akkúrat.

kl. 2:29 | Athugasemdir (215)

14.10.2008 : Myspace sjónarhornið

Hver kannast ekki við það að vera flakka á netinu, rekast á bloggsíður, týnast í tögguðum myndum á Myspace og/eða Facebook eða jafnvel vera skoða prófíla hjá fólki sem maður þekkir afar takmarkað. Ok hljómar kannski pínu creepy, en þetta er bara staðreynd. Þið getið reynt að neita þessu en það væri eins og fyrir strák að segja að hann hefði aldrei horft á klám og stelpu að segja að hún hafi aldrei prumpað.

Þessvegna fannst mér mjög fyndið að lesa um "The Myspace Angle" eða Myspace sjónarhornið. Þið fattið nákvæmlega hvað ég meina. Maður er að flakka og svo allt í einu "hey wow". Þegar maður fer aftur á móti að skoða betur er ekki allt sem sýnist. Fólk er nefnilega (og mjög skiljanlega) virkilega gott að taka svona prófíl myndir sem lúkka alveg sikk vel. Sjónarhorn sem kemur vel út, kannski lýsa aðeins upp myndina eða dekkja, eftir hvað hentar. Jafnvel auka contrastinn út úr kú til að fela bólur eða slæma húð.

Ég mæli sterklega með að þið tékkið á "The Myspace Angle". Þetta eru allt raunverleg dæmi frá Myspace, en þetta náttúrlega gildir allstaðar.

kl. 0:31 | Athugasemdir (2)

13.10.2008 : Þvílíkt klúður

Vá hvað þetta viðtal hjá Agli Helgasyni er mikið klúður. Þarna fær hann Jón Ásgeir í viðtal á þessum mögnuðum tímum og hann tapar sér bara. Enginn annar af þessum stórlöxum vildu ekki mæta en Jón Ásgeir ákveður að mæta þarna og ræða málin en í staðinn lendir hann á einhverjum manni sem eru bara alveg æfur.

"Hvernig ætlar þú að sættast við Íslensku þjóðina"
"Kannast þú við Tortolla eyju. Hefuru komið peningum þínum til Karabískra eyja"
"Hvernig finnst þér að Hannes Smárason búi í lúxus íbúð í Kensington í London"

Þetta var ekkert viðtal, þetta var bara reiðilestur hjá Agli. Mér finnst magnað hvað Jón Ásgeir náði að halda ró sinni og svara öllu bara nokkuð vel. Ég ætla ekki að fara dæma um hvort þessir einstaklingar séu ábyrgir fyrir "að setja Ísland á hausinn" eða hverjum er eiginlega um að kenna. Eina sem ég veit að þarna var bara fúskari á ferð. Þetta hefði getað verið svo gott viðtal, en nei brjálumst bara og fáum ekkert út úr því nema Egil segja Jóni að fara vinna á kassa í bónus.



kl. 21:47 | Athugasemd (1)

10.10.2008 : Oh helgin kom nokkrum klukkutímum of snemma

Damn it. Hata svona daga þar sem ég geri ekki rassgat. Vanalega er ég tíma á föstudögum þannig að ég drulla mér niður í skóla og geri eitthvað, svona allavega nóg til að friða samviskuna. Í dag er aftur á móti ekkert, þannig að ég er bara búinn að hanga heima. Þess í stað ákvað ég að gera eitthvað að viti hérna heima. Það er basically búið að fela í sér að

  1. Spjalla á msn
  2. Kommenta á myndir á facebook
  3. Taka þátt í facebook leikjum/forritum
  4. Lesa useless fróðleik á netinu t.d. Wikipedia
  5. Kommenta á bloggfærslur
  6. Elda sér hamborgara

Það er semsagt alveg komin helgi í mig og ég er ekki að nenna neinu. Hefði mátt koma svona 8 klst seinna, þannig að föstudagurinn sjálfur færi ekki í algjört hakk, þótt kvöldið færi í tjill.



kl. 13:58 | Athugasemdir (2)

5.10.2008 : Seinust helgar, drykkja og vinskapur

Ætla aðeins að recappa seinustu helgar. Aðallega fyrir mig svo ég hafi þetta nú documentað. Það er nú tilgangurinn með þessu bloggi. Hafa eitthvað fyrir mig til þess að skoða eftir 20 ár. Þið sem lesið þetta fáið bara að njóta þess að hlæja að mér núna.

Ég er búinn að komast að því að það er eiginlega bara eitt sem hefur áhrif á hvort kvöldið verði skemmtilegt eða leiðinlegt og nei ég er ekki að tala um áfengi, heldur fólkið í kringum mann.

Lokahófið hjá frjálsíþróttafólkinu var alveg brilliant. Hellingur af skemmtilegu fólki, allir með það markmið að skemmta sér. Var svona semi-rólegur í drykkjunni, bara sötrandi og labbandi á milli að reyna spjalla við sem flesta. Þegar maður lenti á áhugaverðum samræðum stoppaði maður lengur og hjá þeim sem höfðu ekkert áhugavert að segja stoppaði maður styttra.  Kíkti svo niður í bæ og dansaði af mér rassgatið.

Helgina eftir kíkti ég aftur út á lífið með félögunum en varð alveg hauslaus. Þá er ekkert skemmtilegt, maður er bara ráfandi um. Heldur að maður sé eitthvað töff en er í raun bara sveittur og ógeðslegur. Það kemur svosem ekki mikið að sök því 95% af fólkinu í bænum er í þessu ástandi og tekur því ekki eftir því. Það er bara ekkert skemmtilegt. Maður heldur tekur ekkert frá svonakvöldum, þetta var bara fyllerí. Hvað er spennandi við það?

Gærkvöldið var svo mjög skemmtilegt. Aðallega því að ég var skynsamur í drykkjunni og gat því verið að labba á milli og spjalla við skemmtilegt fólk. Áfengis magnið á nefnilega að vera akkúrat þannig að það maður slaki aðeins meira á, losi um málbeinið og þori að segja hluti sem maður myndi kannski ekki vanalega segja. Um leið og maður er kominn á það stig, er algjör óþarfi að vera drekka meira. Þannig var einmitt gærkvöldið, fyrir vikið mynduðust skemmtilegar samræður, allskyns fíflaskapur og maður kynntist fólki sem maður þekkti kannski sæmilega fyrir, mun betur.

Það kemur einmitt að næsta punkt og það er vinirnir. Það er nefnilega alveg ótrúlegt hvað rétta fólkið getur gert gæfu muninn. Ég hef lent í partý-um þar sem það er hauslaust fólk að bulla og rausa - og það eru ekki skemmtilegar samræður. Allt í einu er eitthvað alltof fullt fólk hangandi í kringum mann þegar maður vill bara skemmta sér með vinum sínum. Það eru mest pirrandi kvöldin. Það verður ekkert úr því.

Það er líka ótrúlega magnað hvað maður reynir að umkringja sig skemmtilegu fólki sem maður fílar. Það er samt hægara sagt en gert, því að það að halda sambandi er bara fulltime job. Það eru allir svo busy, og maður sjálfur meðtalinn. Ég get alveg nefnt helling af fólki sem ég hékk alltaf með og fannst ótrúlega gaman að gera eitthvað með, en ég heyri alltof sjaldan í. Í heildina vill ég samt meina að ég sé mjög duglegur að halda sambandi, það er bara svo auðvelt að missa tengsl. Það var nú m.a. pælingin hjá mér með 25 ára afmælinu, bara bjóða þeim sem ég hékk eða heng mest með. Afhverju að bjóða 80 manns í partý þegar maður nennir ekki að spjalla við 70% af liðinu.

Það er líka magnað hvernig svona group-dynamic virkar. Ég var t.d. ótrúlega ánægður þegar ég fékk póst frá Unnsteini og Auði og þau voru að bjóða heim í mat. Ástæðan er þetta er hópur sem ég "þekkti" eða vissi hver voru úr frjálsunum en kynntist raunverlega aldrei að neinu marki fyrr en fyrir nokkrum árum og í gegnum frekar skrítna leið.  Því að Kristin Birna var í ÍR sem ég kynntist í gegnum Bjögga. Þannig að hún dróg Bjögga og Bjöggi dróg mig síðan inn í þennan hóp. Síðan kynntist maður þessu afólki það vel að þótt Bjöggi og Kristín hafi hætt saman fékk maður ennþá að hanga með. Og svo núna þegar Kristín er erlendis og Bjöggi líka að þá er tengingin mín horfin. Punkturinn er semsagt að ég þarf ekki lengur tengingu sem ég var mjög glaður með, því að ég fíla þennan hóp ótrúlega vel. Þetta kvöld var líka alveg ótrúlega skemmtilegt í alla stað, þótt ég hafi verið underdressed dauðans sem btw ég fíla ekki, því það er náttúrlega alltaf gaman að suita sig upp.

Þetta voru svona þynnku hugleiðingar Bergs. Nei reyndar er þynnka ekki rétta orðið því að ég hef bara einu sinni verið þunnur og  þá hugsaði ég "VÓ líður fólki virkilega svona daginn eftir! Afhverju í andskotanum er fólk að drekka!!" Eftir öll önnur kvöld vakna ég bara hress og kátur eins og alla aðra daga. Í dag var engin undantekning. Maður er reyndar pínu þreyttur því að maður svaf ekki mikið.



kl. 16:27 | Athugasemdir (3)

3.10.2008 : Þessi lög

Heimurinn 0, Sigurjón 1000.

kl. 9:27 | Athugasemdir (2)

3.10.2008 : Hvað eiga þessi lög sameiginlegt?

1000 kúlstig í boði fyrir þann sem getur sagt mér hvað þessi lög eiga sameiginlegt.

kl. 1:18 | Athugasemdir (7)

2.10.2008 : Of geðveikt

Mér finnst þetta vídjó alltaf jafn insane kúl.

Það fyndna er að ég þekki actually mann sem getur gert þessi trick. Pælið í því.

kl. 3:21 | Athugasemdir (4)

23.9.2008 : Skilinn eftir af Mette Marit

Smá innskot fyrst samt áður en ég fer í söguna um Mette Marit.

Það var heljarinnar frjálsíþróttadjamm fyrir rúmri viku síðan. Nú er náttúrlega hvíldin í gangi hjá flestu, eða flestir allavega svona í rólegri kanntinum og því var tilvalið að taka betur á því í drykkjunni. Kvöldið var alveg brilliant og ég skemmti mér konunglega. Leigður bara salur, hamborgarar grillaðir og áfengi drukkið.

Fyrst maður var líka kominn á sporið að þá fékk svona "oooh hvað  mig langar að kíkja út á lífið næstu helgi" alla vikuna. Sem er mjög fyndið því ég fæ svoleiðis aldrei. Þannig varð að ég, Tobbi, Jóhanna, Óli og Stebbi Már byrjuðum hjá Tobbanum að elda okkur mat og færðum okkur síðan yfir til Trausta og þaðan svo niður í bæ.  Þetta var í raun brilliant kvöld líka, en ég var helst til upptekinn af drykkjunni í staðinn fyrir að skemmta mér með hópnum. Magnið sem fór í mig og Tobba var bara insane.

Jæja on with the story.

hakonmette2Daginn eftir (laugardagskvöldið) fór ég svo í brúðkaup til frænku minnar og ég verð að hrósa henni fyrir ótrúlega kúl leik sem var í gangi allt kvöldið. Þetta var ótrúlega fallegt og flott allt saman, en þau brúðhjón höfðu gefið út að þetta ætti fyrst og fremst að vera til að skemmta sér saman. Liður í því var að þegar maður fór á borðið sitt var lítið spjald og límmiði. Á límmiðanum stóð nafn einhvers frægrar persónu og á miðanum smá lýsing á henni og tilhugalífi. Þannig var maður með svona Alter-Ego og fólk parað saman eftir því. Ég var t.d. Hákon Magnús Krónprins Noregs og einhversstaðar í salnum var því Mette-Marit Krónprinsessa. Þetta er nátturlega brilliant icebreaker þegar maður þekkir ekki alla í veislunni (hin fjölskyldan, vinafólk) og líka því að brúðurinn var actually búinn að vera semja þessa texta og velja fólk saman.  Þannig að það var ekki séns að ég myndi lenda á einhverri gamalli konu.

Um leið og borðhald var búið tók ég mig til og rölti á milli allra borðana þar sem voru sætar stelpur á mínu reiki: "Hæ hæ, má ég trufla?" "Hvað segiði gott? Ekki situr hún Mette Marit á borðinu hjá ykkur - Ég er nefnilega að leita af krónprinessu Noregs".  Mér gekk reyndar hálf illa að finna dömuna mína en fékk þó einhverjar vísbendingar frá Jennifer Lopez um að hún hafi sést úti að reykja.  Ég sagði náttúrlega bara að þá væri þetta samband búið og ég þyrfti klárlega að leita mér að nýrri krónprinsessu.

Þegar fólk var orðið svona aðeins léttara voru allir rifnir út á dansgólfið þar sem maður átti að taka snúning með date-inu sínu. En þetta var náttúrlega bara story of my life því að Mette bara sást ekki í húsinu. Hlynur var Justin Timberlake og var ekki lengi að finna Jessicu Biel þannig að ég tróð mér með þeim og Jada Pinkett Smith því Will Smith var heldur hvergi sjáanlegur. Ókosturinn fyrir Hlyn náttúrlega að vera Justin Timberlake er að það hlýtur að vera pressa á dansgólfinu. Ég aftur á móti, sem krónprins, þarf bara að lúkka vel í jakkafötum.

Ég var svo kominn heim svona skynsamlega snemma (í kringum tvö leytið). Enda krónprins og þarf að sinna skyldum mínum. Ég skildi samt eftir skilaboð að ef einhver myndi rekast á Mette að þá átti hún að hafa samband. Ég vaknaði því vongóður á sunnudagsmorgni að það biði mín sms en svo var ekki. Ég veit ekki hvort Mette mætti ekki þetta kvöld, hafi farið snemma eða hvort ég hafi bara ekki verið að lúkka jafnvel í jakkafötunum og ég hélt, en seriosly að þá hreinlega bara trúi því ekki!

kl. 11:50 | Athugasemdir (8)

16.9.2008 : Nudd og nekt

Fór í nudd fyrir nokkru á Mecca Spa. Vinahópurinn úr Verzló var svo nice að gefa mér 90 min nudd þar í 25 ára afmælisgjöf eftir að þau lásu nuddsöguna góðu. Mjög fínt og flott. Þarna var indverji sem tók vel á mér en mér leið eitthvað kjánalega þegar hann spurði "is this too much" og af einhverjum ástæðum svaraði ég "no I like it hard". Fattaði eiginlega um leið og ég sleppti orðinu að þetta hljómaði ekki of vel þegar karlmaður er með olnbogann á rassinum á manni. Pottþétt á topp tíu listanum yfir "things not to say".

Ég ákvað líka að bera mig í World Class í dag. Tók þessa fína æfingu upp í Smára og þegar ég er að labba inn í klefann stendur "ATH þrif á klefa kl 8:30 - 09:00" og ég hugsaði ekkert meir um það. Skelli mér í sturtu og svo sauna sem er þarna í karlaklefanum. Þar sem ég gleymdi sundskýlunni heima skellti ég svona littlu World Class handlæði á bekkinn og tók svo það sem eftir var af því og henti því svona rétt yfir krjúnudjásninn. Ég sit þarna og heyri að það er verið að skúra frammi og svo allt í einu sé ég kústskaft detta fram fyrir sauna hurðina. Síðan sé ég KONU teygja sig eftir því, líta upp og voila beint á Berg Junior, þar sem ég var ekki betur hulinn en þetta. Þá loksins kveikti ég á afhverju það var sérstaklega verið að taka fram að þrif færu fram á ákveðnum tíma. 

Jæja ég sit þarna og hugsa hvað ég geti gert í stöðunni en á endanum látum við eins og það hafi eiginlega ekkert gerst. Hún heldur áfram að þrífa þarna og ég sit inn í gufunni. Þegar þetta allt var að gerast, er ég búinn að sitja þarna inni í u.þ.b 15 min (já það er stundaglas þarna). Ég get náttúrlega ekki hreyft mig neitt því þetta handklæði nær ekkert utan um mann. Svo ég hugsa "hva hún getur nú ekki verið lengi að þrífa". Það var rangt, þetta er víst alveg heljarinnar process. Mér leið allavega eins og þetta væri heil eilífð. Aðallega vegna þess nú var mér orðið vel heitt, búinn að sitja þarna ég veit ekki hvað lengi, en mér leið eins og ég var farinn að nálgast 30 minúturnar. Ég píndi mig og píndi, var svona byrjaður að taka Robba á þetta eftir 5 min. Eldrauður og símásandi. Þangað til að ég hugsa "Nei þetta gengur ekki" reyni svona að hylja bestu partana og labba út. Hún lítur á mig þarna kófsveittan og nakinn "Á ég ekki bara að fara út í smástund svo þú getir klárað". Ég þakka pantaði fyrir.



kl. 23:24 | Athugasemdir (7)

15.9.2008 : Emiliana Torrini

emilianatorrini

Ég hef alltaf verið með smá thing fyrir Emiliunu Torrini, alveg frá því að ég sá hana í Hárinu 1994, þá 16 ára gamla. Það var reyndar ekki stórt hlutverk en hún söng lagið Frank Mills:

Fyrst er hitti ég Frank Mills
Þá var fimmtándi september
Ég hitti hann einmit hér

Kann þetta ennþá. Var alveg heillaður hehe. Ekki nóg með að þetta var gullfallega sungið heldur fannst mér hún líka gullfalleg og finnst það enn.

Síðan þá hef ég reynt að fylgjast með henni og var t.d. það heppinn að fá að vinna í vefnum hennar í framhaldi af útgáfu "Love in the time of science" sem var fyrsta international platan hennar.

Hversu góður er þessi texti. Það er bara verið að syngja um einn hlut hérna.

It's not an accident
You ment to touch me
And that's exactly why I'm here

Þetta er einmitt það sem ég fíla við hana, þessi undirliggjandi kynþokki. Allir þessir litlu sexý hlutir. Mér finnst hún alveg ótrúlega kynþokkafull. Við erum ekki að tala um "gellu gellu" heldur ótrúlega sæta stelpu með náttúrulega fegurð. Það er líka ótrúlega gaman að hlusta á viðtöl við hana því mér finnst hún með ótrúlega seiðandi rödd.

Fólk er nú alltaf að "gera grín" að kvennmansleysinu og veltir fyrir sér hvað sé "týpan mín". Ég er ekki frá því að Emiliana Torrini sé týpan mín ;)

Ástæðan kannski fyrir þessu bloggi er að 8. sept kom út ný plata með henni.

Eina sem ég heyri þarna er:

some might say
i'm a silly woman to wait
but i know you still hold my love

Ó já.

kl. 2:08 | Athugasemdir (6)

13.9.2008 : Áfengi?

Ótrúlegt hvernig það atvikaðist alveg óvart að ég snerti varla á áfengi lengur. Seinasta skipti sem ég virkilega DRAKK var í febrúar á seinasta ári fyrir u.þ.b. 18 mánuðum. Eftir bikarkeppnina innanhús 2007. Það hefur reyndar ekki verið 100% því það hefur "læðst" áfengi inn um varir mínar í fjórum tilvikum á þessum tíma.

  1. Páskarnir: Fór með Óla Margeirs á TGI og fékk sopa af bjórnum hans
  2. 25 ára afmælið: Smakkaði Sangriuna þegar ég var að búa hana til, en drekk ekkert af henni.
  3. Miðjan ágúst. Fékk eitt glas af drykk sem Tobbi blandaði fyrir mig áður en við fórum á Sálarballið.
  4. Út í New Orleans í Okt. 2007 á Voodoo Music Experience  fékk ég mér 6 bjóra en ég var með frítt áfengi þarna sökum VIP passa, sem flestir hefðu nýtt betur.

Ég fór m.a. annars til Eyja með Sverri og fékk mér ekki sopa. Þarf að finna myndina sem var tekin af mér þar: Allir blind-ösku-fullir, sveittir og ógeðslegir, blautir og útmakaðir í hlandi og drullu - og þarna sit ég í miðri brekkunni að narta á þessu fína rauða epli :D

Fékk mér heldur ekkert á árámótunum 2008 og ekki heldur á bikardjamminu en það er nú oftast mesta rugl djammið. Já þetta er léleg þróun miðað við t.d. útskriftarferðina góðu þar sem ég hélt uppi heiðri Verzlinga og annari drykkjuóða Íslendinga.

Ég "drakk" heldur ekki á 25 ára afmælinu mínu en bauð samt að sjálfsögðu upp á bjór og Sangriu.

Ég var allsgáður í pittinum á Rage Against the Machine, þótt ég hafi sötrað á bjór dagana tvo eftir á. Var of freistandi að liggja í sólinni, hlusta á góða tónlist og hafa einn kaldan við höndina.

Ástæðan fyrir þessari vangaveltu er sú að nú gæti orðið breyting á. Ég er allavega búinn að setja breyting á því í kvöld. Ég er allavega búinn að setja 4 Stella Artois inn í ískáp sem hann Steinþór nokkur Gíslasson var svo örlátur að skilja eftir 25 ára afmælið.

Spurning hvort kvöld endi í vitleysu eða bara snemma heim í háttinn - eða öfugt, hvernig sem fólk skilgreinir vitleysu.



kl. 19:46 | Athugasemdir (4)

7.9.2008 : Sauna og gufubað

Fjórum sinnum hefur mér tekist að fá starfsmann sundlaugar til að koma hlaupandi að mér, þar sem að viðkomandi hélt að ég væri í hættu. Ástæðan er sú að mér finnst fátt betra en að algjörlega ganga frá mér i gufu/sauna þangað til að ég get ekki meira og vera þá 2 min lengur. Þá er ég gjörsamlega að brenna upp og því langbest að hoppa í ískalda sturtuna eða út í snjóinn og kæla sig. Veit ekki hvað það er en ég er alveg bara hooked á þessu. Finnst "ekkert" skemmtilegt að fara í sund og hanga í buslulauginni - sé ekki pointið, það gerir ekkert fyrir mann. Ég þarf annaðhvort að vera á heitasta staðnum eða þeim kaldasta.

Vinahópurinn tekur misvel í þetta, sumir kalla mig geðveikan og aðrir harðann. Ég hef því ákveðið að skipta félögunum í tvo megin hópa.
Gufuvænir félagar og svo aumingjar. Reyndar bætist við þriðji hópurinn en það eru þeir sem ég man ekki eftir að hafa farið í gufu með.

Gufufélagar
Óli Tómas Freysson
Steinþór Gíslason
Jónas Hlynur Hallgrímsson
Sverrir Örn Hlöðversson
Hlynur Hallgrímsson

Aumingjar
Þorbergur Ingi Jónsson
Björgvin Víkingsson
Róbert F. Michelsen
Trausti Hannesson

Óvitað
Sigurjón Guðjónsson
Einar Bergur Ingvarsson
Jón Karl Sigurðsson

Nöfnunum er ekki raðað í neina sérstaka röð, en þess má þó til gamans geta að Robbi, eins góður félagi og vinur og hann er, þá er hann alveg hræðilegur gufuvinur.



kl. 20:36 | Athugasemdir (8)

1.9.2008 : Áts!

Úff mar, ég er byrjaður að æfa aftur eftir u.þ.b þriggja vikna hvíld og vá hvað æfingarnar á undirbúningstímabilinu geta verið hardcore svona miðað þegar maður er að halda sér ferskum á sumrin. Ég hef eiginlega ekki lyft síðan í maí út í San Diego og er að byrja á því núna.  Það eru því u.þ.b 3 mánuðir og ég finn sko fyrir því.

Mér er búið að líða eins og hendurnar sé að rifna af mér, fæturnir höndla þetta ágætlega en efri líkaminn er ekki alveg sáttur. Samt sem áður er ég búinn að fara í sauna og ísbað eftir hverja einustu lyftingaræfingu.  Í dag er ég reyndar svona þokkalegur, mig kvíður allavega ekki fyrir því að klæða mig úr bolnum, þótt það sé vont að lyfta höndunum upp fyrir haus.



kl. 14:49 | Athugasemdir (3)

27.8.2008 : Klippingar

Mér finnst gaman að prófa nýja hluti og fikta með hárið. Það er frekar auðvelt og áhættulaust, þar sem það vex víst jú alltaf aftur. Núna er ég búinn að ákveða að safna hári fram að næsta sumri. Ætla bara að láta snyrta og særa það. Verður fróðlegt að sjá hvernig maður lúkkar með 8-9 mánuði af hári.

Svona til gamans ákvað ég að henda inn nokkrum gömlum klippingum.

klippingar

Einhver álit á hvað sé að lúkka best?



kl. 10:20 | Athugasemdir (11)

15.8.2008 : Sjóðandi heitt

Ég verð bara að segja það að Followhill bræðurnir í Kings of Leon halda áfram að koma mér algjörlega á óvart með frumlegum, grípandi, æðisgengnum lögum. Ég hef dýrkað þessa hljómsveit frá því að ég heyrði Molly's Chambers í fyrsta skipti í útvarpi. Ég er meira svo klikkaður að ég man meira að segja hvar, svona svipað eins og fyrsta keleríið.

20-kol

Nú er ég búinn að vera kynna mér fjórðu breiðskífu þeirra pilta Only by the night. Crawl var fyrsta lagið sem ég heyrði af henni, þökk sé Sigurjóni og nú er ég búinn að vera með Sex on fire á repeat seinustu daga. Manhattan er sömuleiðis að gera góða hluti. Ég ætla að vera varðbergi á torrent síðunum núna í lok ágúst og september og vona að ég finni eintak sem fyrst eins og ég gerði með Because of the Times. Þá mun ég loka mig inni í herbergi og ekki gera neitt næsta sólahringinn nema að liggja upp í rúmi með plötuna á repeat á hæsta volume.



kl. 22:35 | Skrifa athugasemd

11.8.2008 : Nice dagur

Svona eiga sunnudagar að vera. Byrjaði daginn á að skella mér á Jóa Fel og rölti svo um miðbæinn í sólskininu. Settist niður á Austurvöll að skoða mannlífið (lesist: tékka á gellunum). Maður mætti alveg gera meira af þessu, skella sér bara út í góða veðrinu, þótt maður sé ekki að gera neitt. Hafði bara rólegt og þægilegt.

Ég hafði semsagt ekkert að gera og kom því við í vinnunni aðeins að renna yfir nokkra hluti. Sat þar þó ekki lengi því að ég endaði á línuskautum í Nauthólsvík með Kristínu Birnu.  Lenti líka í góðu símtali á  leiðinnni því að síminn virkar þannig að ég stimpla inn Kr og fæ þá upp allar mögulegar Kristínar. Eitthvað hef ég svo rekist í takka og dottið niður á næstu Kristínu í símaskránni því ég hringdi óvart í Þóru Kristínu og lét hana vita að ég væri mættur. Hún skildi náttúrlega hvorki upp né niður og það tók mig smá tíma að átti mig á hvað hafði gerst.

Annars var alveg brilliant á línuskautunum. Ég var reyndar klárlega að halda aftur að Kristínu því að hún er ótrúlega góð á þessu, en ég hafði farið einu sinni áður með systrum mínu. Þetta gekk þó bara alveg ágætlega. Ég datt ekki nema bara tvisvar sinnum. En það var nokkuð ljóst að Kristín skemmti sér mjög vel fyrstu mínúturnar því inn á milli hláturskastanna mátti heyra "fyrirgefðu að ég sé að hlæja" og svo hélt hún bara áfram. En það svosem reyndar mjög skiljanlegt þar sem ég var eins og belja á svelli til að byrja með. Náði þó ágætis tökum á þessu hægt og rólega.

Vorum þarna í rétt tæpan einn og hálfan tíma. Mest megnis þó bara á bílastæðinu, sem var flatt og þægilegt fyrir mig en á meðan tók Kristín bara allskyns hopp, skrans og aðrar flotta takta.

Um kvöldið hélt ég svo áfram uppteknum tjill hætti og rúllaði til Bjögga með Gísla "hardcore " Einarssyni. Þar sem pöntuðum pizzu, slöppuðum af og hengum í tölvunni.



kl. 13:23 | Athugasemdir (4)

8.8.2008 : Of sæt

Fór niður í NOVA í gær til að klára símamálin frá. Nú veit ég ekki hverjir hafa komið þangað inn, en þetta er aðeins öðruvísi (og flottari) uppsetning en hjá flestum fyrirtækjum. Það er ekkert þjónustuborð per se. Það er bara starfsmenn þarna labbandi um (svipað og í Apple kassanum í NY) og svo geta þeir labbað að vinnustöð þurfi þeir að nota tölvu.

Jæja ég labba inn og byrja svona svipast um eftir þjónustu, þegar tveir kvennkyns þjónustufulltrúar taka eftir mér eiginlega á sama tíma og byrja báðar að labba í átt að mér. Þær fatta það sjálfsögðu og ein grípur utan um hendina á hinni til að stoppa hana og segir í leiðinni "Ég má aðstoða hann". Þá svarar sú "Nei ég ætla!!" og úr hefst svona lítill gamnislagur um það hver megi aðstoða mig.

Þegar sá ágreiningur var leystur fékk ég aðstoð við að breyta kennitölunni á símanum og hvernig ég gæti sett upp Facebook á símann. Þá nefndi ég við stelpuna að ég og bróðir minn höfðum verið að skipta yfir í NOVA á sama tíma og ég hafi tekið eftir því að hann hafi fengið bíókort (6 sinnum frítt í bíó = 6.000 kr) en það hafi einvherja hluta vegna ekki skilað sér til mín.

Stelpa: Já ok hvenær skráðiru þig?
Ég: Einhvern tíman í seinustu viku, man ekki alveg.
Stelpa: Hmmm, látum okkur sjá [flettir í tölvunni] - já þú skráðir þig 30 júli en tilboðið kom ekki fyrr en 1. ágúst og gildir eftir það.
Ég: Hehehe já ok þannig að manni er refsað fyrir að skipta fyrr yfir?
Stelpa: [Hlær] já það lítur út fyrir það.

Mig langaði svo að "rífast" yfir þessu, enda finnst mér þetta frekar asnalegt, en ég veit að þessi sæta ræður þessu náttúrlega ekki. Þar fyrir utan veit NOVA alveg hvað þeir eru að gera. Þarna var mjög sæt stelpa í þröngri hvítri skyrtu að aðstoða mig, sem var nýbúinn að berjast við vinkonu sína um að fá að þjónusta mig. Því stóð bara þarna og reyndi að halda kúlinu á sama tíma og það var verið að hafa af mér 6.000 kr.

kl. 11:10 | Athugasemdir (2)

6.8.2008 : Noka E51

Þá er ég loksins orðinn maður með mönnum! Ég er kominn með Nokia E51 sem er svona glæsilega útlítandi sími úr business línunni frá Nokía.

Nokia E51

Þessi sími er að sjálfsögðu af þriðju kynslóðinni og skartar þar af auki allskyns skemmtilegum fídusum svosem Symbian stýrikerfi og WiFi tenginu. Ég á nú eftir að stilla hann til og leika mér með hann. Pælingin er jafnvel að setja upp Skype á honum og hringja í gegnum það til að spara símareikninginn þegar maður hringir utan kerfis. Ég stefni líka að setja einhvern sniðugan DOS-Emulator inn á þetta og ná þar með að spila alla gömlu góðu PC DOS leikina.

Ég á pottþétt eftir að leika mér meira með þennan grip, en ég er allavega sáttur sem stendur.



kl. 19:28 | Athugasemd (1)

5.8.2008 : Verstu myndir ever

Búinn að fara tvær alveg virkilega góða myndir nýlega. Skellti mér á Batman Begins sem trónir á topp sæti IMDB listans og Wall-E sem situr í fyrsta sæti yfir gamanmyndir. Auglýsingarnar sem voru sýndar á undan Wall-E gefa aftur á móti til kynna að kvikmyndasumarið sé á enda.

Ég spái High School Musical 3 á bottom 100 á IMDB. Ég lá í hláturskasti í bíóinu, þetta var svo kjánalega-asnalegt og Chihuahua myndin var bara plain asnaleg.

kl. 1:20 | Athugasemdir (3)

28.7.2008 : Fíla þegar það er svoleiðis.

Eins fólk tók kannski eftir er nóg um að vera. Svona passlega skemmtilega mikið að gera, maður ekki að hanga, en það er heldur ekkert stress. Fíla þegar það er svoleiðis.

Ég er aðeins búinn að vera vinna með Jóni Karli í forriti sem hann er að smíða fyrir afa sinn sem er með einhverja rækjuframleiðslu. Við erum semsagt að halda utan um brettin, vörunúmerin og allt það dóterí. Svona passlega krefjandi og skemmtilegt. Líka ekkert stress, hittumst bara svona þegar við höfum báðir tíma og engin pressa. Fíla þegar það er svoleiðis.

Óli Tómas var líka snjall og sá að það var laust hjá mér á þriðjudeginum þannig að bókaði það kvöld og við skelltum okkur í Lagar Spa, en við erum báðir ákaflega miklir gufumenn. Nice að geta bara legið og slappað af. Skelltum okkur reyndar líka í ísbaðið. Í raun var dagurinn algjör recovery dagur því ég mætti seint í vinnuna, tók morgunæfingu, svo í pottinn og gufuna og beint í nudd. Þægilegt bara að taka það rólega. Fíla þegar það er svoleiðis.

Dinnerinn hjá Tinnu Karen var líka mjög nice, hún bauð upp á þennan dýrindis indverska mat og síðan var setið á spjalli. Skemmtilegur hópur, rólegt og þægilegt kvöld. Fíla þegar það er svoleiðis.

Föstudaginn var ég að fíla. Ég mætti í jakkafötunum í vinnuna við mikinn fögnuð, og sat við tölvuna að vinna uppdressaður. Svo pikkaði Bjöggi mig upp og þar sem við vorum nú báðir búnir að Suite-Up að þá var ekki annað hægt en að skella sér á þaksvalirnar á Oliver og fá sér Peking Önd. Ég komst líka að því að sætar, vel vaxnar stelpur missa ALLAN sjarma um leið og þær taka upp sígarettu. Eftir matinn rúlluðum við síðan á Eyrabakka þar sem Sigurjón var með opnunarpartý fyrir ljósmyndasýninguna sína Central Park. Mjög flottar myndir, öðruvísi andrúmsloft með skemmtilegu fólki.  Fíla þegar það er svoleiðis.

Meistaramótiið fór bara líka ágætlega svosem. Hljóp ágætlega í 400 m, á lélegum tíma reyndar en ágætlega útfært hlaup svosem nema að ég dó of mikið í lokin, eins og vill oft gerast. Hélt að ég væri með þetta en Keli var sterkari seinustu 40 metrana og seig fram úr mér á hárréttum tíma, þannig að ég gat lítið gert. Boðhlaupin gengu svona lala. Hefði verið gaman að vera í A-sveitinni í 4x100 en maður er bara ekki nógu hraður. Splittið í 4x400 m var líka ekki alveg nógu jákvætt, en ég skilaði mínu. Náði aftur á móti inn bætingu í 200 m utanhús og það er alltaf gaman þótt ég hugsa að ég geti aðeins meira. Fíla þegar það er svoleiðis.

kl. 22:36 | Athugasemdir (3)

22.7.2008 : Dagskráin

Allt að verða uppselt, allra seinustu forvöð til að bóka hitting fyrir sumarið.

21. júlí - Vinna / forrita með Jóni Karli
22. júlí - Afslöppun (laust) - Laugar Spa með Óla Tómasi

23. júlí - Boys night: Batman Begins + Út að borða + The Dark Knight
24. júlí - Dinner hjá Tinnu Karen

25. júlí - Opnunarpartý á ljósmyndasýningunni Central Park eftir Sigurjón
26. júlí - Keppa á Meistaramóti Íslands: 400 m (+ 4x100 m) + Hittingur um kvöld
27. júlí - Keppa á Meistaramóti Íslands: 200 m + 4x400 m + Afmæli um kvöld

28. júlí - Vinna / forrita með Jóni Karli
30. júlí - Bláa lónið
31. júlí - 100 m hlaup
1.-3. ágúst - Útilega með Alberti, Lóu, Sigurjóni, Jóhönnu, Bjögga, Hafdísi, Sveinbirni, Kristínu og Ernu.
7. ágúst - Sushi hjá Hrönn
9.-10. ágúst - Akureyraferð með Tobba, Bjögga og Óla Tómasi

kl. 16:29 | Athugasemdir (6)

20.7.2008 : 25 ára

Ég hélt upp á 25 ára afmælið mitt í gær, tvöfalt. Fyrst hélt ég smá veislu fyrir blikana og þar var þemað 5 ára afmæli. Keypti allt í teikimyndinni Cars sem hægt var, pappadiska, dúk, glös, you name it. Maður er svo mikið að mæta einmitt í svona fancy 25 ára veislur, eða útskriftaveislur þar sem allir eru voðalega dannaðir, uppdressaðir að sötra rauðvín og borða osta og snittur. Það er í rauninni ekkert að því, mér finnst það töff, ég vildi bara prófa eitthvað nýtt. Krakkarnir voru líka ekki lengi að taka við sér, þar sem gjafirnar voru í ætt við það ég fékk t.d. pening frá stelpunum (man alltaf hvað það var gaman að fá pening þegar maður var lítill - YESS 1000 kall mar!) og strákarnir gáfu mér massa LaserTag system. en það er reyndar tvöföld vísun í það: barnaafmæli og "cause playing lasertag is awsome!" (fyrir HIMYM aðdáendur). Maggi og Björg gáfu mér svo Puma bol, sem margir myndu telja rugl sökum Nike áráttu minnar, en mér fannst það sniðugt þar sem ég er allur að koma til í þessum málum.

Um kvöldið bauð ég síðan fólkinu sem ég er að umgangast mest í smá veislu hérna heima, það heppnaðist bara mjög vel að mínu mati. Aðeins 3 afboðuðu þannig að það var mjög góð mæting. Þemað þar var svona pínu mexíkósk, bauð upp á Enchiladas, Nachos rétt og DIY Fahitas sem síðan var hægt að skola niður með ísköldum Carona eða Sangriu. Í eftirrétt var ég svo með Snickerito með ís, ávöxtum og nammi. Um kvöldið var síðan hægt að narta í heitt salsa og dorritos með bjórnum og Tequila sem stóð reyndar sem fastast á stofuborðinu. Hmm ég sem hélt að Tequila væri svo vinsælt! ;)

Í heildina heppnaðist kvöldið ótrúlega vel, þarna voru komnir saman bestu vinir og ég vil þakka þeim kærlega fyrir að gera þetta kvöld ógleymanlegt. Ég gæti ekki ímyndað mér betri vinahóp en þann sem var samankomin í gær. Gjafirnar hittu líka beint í mark, það er svo gaman að fá gjafir sem sýna að viðkomandi þekkir mann. Ég fékk geggjað Diesel úr, eitthvað sem ég hef lengi ætlað að kaupa. Ég er pínu nautnaseggur, hef gaman að því að dressa mig upp og lúkka og ég bölva því alltaf þegar ég fer í jakkafötin að vera með Timex íþróttaúrið á höndinni. Ég fékk líka gjafakort í bláalónið með besta félagsskap sem ég gæti ímyndað mér og það verður svo nice að slappa af og njóta félagsskapsins. Ég fékk sömuleiðis gjafabréf upp á guys trip til Akureyrar en seinasta svoleiðis ferð sló algjörlega í gegn. Ég fékk líka hristara til að búa til kokteila og "Jamie Oliver at home" matreiðslubók. Ég hef náttúrlega mjög gaman að því að stússast í eldhúsinu og þótt ég sé ekki mikill drykkjumaður að þá væri ég einmitt vís til að leika mér að búa til einhver massa kokteila. Að lokum er ég náttúrlega mikill aðdáandi nudds (sérstaklega ef það er framkæmt af austur-evrópskri gellu sem notar of mikið af olíu) og því lá náttúrlega beinast við að gefa mér 90 min nudd í Mecca Spa.  Ég fékk líka þetta fína ljóð sem hitti bara beint í mark.

Þú tugi tvo og hálfan fyllir í dag
af því tilefni við sömdum þennan brag
Guði við þökkum heppni þá
að þekkja drenginn þann er segir frá
Bergur er drengur góður og ekkert smá
flottur alveg frá toppi og ofan í tá
Við líka og huga leggur rækt
þó stundum skipulagið sé of flækt
Stæltur bæði og skemmtilegur fýr
sem stundum talinn hnefur verið hýr
Við betur teljum okkur vita þó
og þeirrar réttu beðið sé með ró
Við mikla teljum heppni vera okkar
að þekkja drenginn þann er ávallt rokkar
Vonandi við áfram þekkjum þig
svo félagsskapur okkar fari á æðra stig
Að eilífu munt lifa í okkar minni
við látum þetta duga að þessu sinni

Ég er ótrúlega sáttur með þetta kvöld og vill þakka öllum þeim sem komu og gerðu þetta að því kvöldi sem það varð!



kl. 13:24 | Athugasemdir (4)

16.7.2008 : Lán í óláni

Fór í þessa fínu ferð til Lauga að keppa á föstudaginn. Væri ekki frásögufærandi nema að ég vildi helst ekki missa helgina og ákvað því ekki að keyra, tjalda og skella sér í rafting eins og flestir ætluðu að gera. Ég pantaði mér því flugfar á föstudegsmiðdegi og aftur heim með tíu vélinni. Það var semsagt planið.

Fyrst var nefnilega mótið skráð að hefjast kl 18:00 en eftir að ég pantaði miðana var búið að seinka mótinu til 19:00. Gauti stangastökkvari var svo farið mitt milli Lauga og Akureyrar og þar vandaðist málið því að stangastökkstkeppnin hófst líka um það bil 30 min seinna eða heilum 1,5 klukkutíma seinna en ég gerði ráð fyrir í planinu.

Til þess að ná kvöldvélinni heim þurfti Gauti að keyra eins og brjálæðingur með stangirnar ofan á á fleygiferð inn í þessar beygjur sem fylgja landslaginu. Ég mætti upp á flugvöll 21:53 og sé að vélin er ennþá út á velli en átti að fara 21:55.

Bergur : Ég átti flug til Reykjavíkur
Stelpan: Eh já..þú ert helst til seinn
Bergur : Já ég veit, ég var að keppa, geturu ekki hleypt mér inn?
Stelpan: Nei því miður, hefðiru mætt fyrir 3 minútum en það er búið að kveikja á vélinni
Bergur: Já geturu samt ekki hleypt mér inn, ég er ekki með neinn farangur
Stelpan: Nei því miður, eftir að það hefur verið kveikt á hreyflunum er ekki slökkt.
Bergur: Það þarf ekkert að slökkva á hreyflunum, opnaði bara landgöngubrúnna og hleypið mér inn!
Stelpan: Því miður sko.
Bergur: Er ekkert sem þú getur gert!? Ég verð að komast til Reykjavíkur
Stelpan: Nei því miður
Bergur: Oh glæsilegt, ég er fastur á Akureyri!
Stelpan: Þekkiru engan hérna?
Bergur: Nei ekki sem ég man eftir, en ég hlýt að finna einhvern, ég redda mér.
Stelpan: Sko ég gæti reddað handa þér gistingu ef þú vilt
Bergur: Já ég tími bara ekki að borga hótel sko
Stelpan: Nei nei ég é er ekki að tala um hótel
Bergur:  Nú ok, það væri náttúrlega glæsilegt ef þú gætir reddað mér húsnæði.
Stelpan: Ég er með litla íbúð hérna stutt frá, gætir gist þar og svo tekið morgunflugið bara daginn eftir.
Bergur: Já veistu, ég held ég þiggi það bara. Takk kærlega, þú ert alveg að redda mér!

Ótrúlega fyndið hvað ég var fúll fyrst yfir því að missa af fluginu en hvað rættist svo úr þessu. Reyndar missti ég svo af morgunfluginu, þar sem ég svaf yfir mig sökum þreytu en endaði svo með að ná hádegisfluginu. Þannig að já bara massa helgi.

kl. 4:19 | Athugasemdir (12)

6.7.2008 : Bikarkeppni FRÍ og Stuðsmiðjugrill

Helvíti skemmtileg helgi að baki þar sem ég var að keppa á Bikar og Stuðsmiðjan, starfsmannafélag Hugsmiðjunnar hélt grill heima hjá Ragga framkvæmdarstjóra.

Ég misnýtti mér stöðu mína sem verkefnastjóri og stalst fyrr úr vinnunni á föstudegi til að undirbúa mig fyrir mótið sem byrjaði á föstudegi. Ég var reyndar ekki með fast sæti í liðinu, þar sem Sigurjón Þórðar var búinn að hlaupa hraðar í 400 m en ég, en ákvað að vera við öllu viðbúinn. Það var líka eins gott því Maggi var ónýtur í lærinu og datt út úr 4x100 m og ég hoppaði inn. Ég er nú ekki vanur að hlaupa 100 m þannig að það þurfti svona smá "adjustment" en skiptingin hjá mér og Bigga gekk bara svona glimrandi vel. Ég tók seinasta sprettinn og skilaði keflinu annar yfir marklínuna bara nokkuð ánægður með minn hlut. Þótt ég hafi fundið eftir á að ég hugsaði ekki alveg nógu vel um stílinn. Sigurjón var samt duglegur að hrósa mér fyrir lúkkið á hlaupabrautinni þannig að hann hélt egóinu klárlega uppi fyrir mig.

Á seinni degi hljóp ég svo í 1000 m boðhlaupinu (100+200+300+400) og tók 300 m sprettinn. Ég verð bara að segja að ég fílaði mig alveg ótrúlega vel og negldi á það, dó reyndar smá seinustu 10-20 metrana, en fékk splitt upp á 35,40 sek og 35,20 sek. Ég er bara mjög sáttur við það svona miðað við allt sem hefur á gengið.

Bikarinn heppnaðist mjög vel að mínu mati og ég held bara allir Blikar að standa sig vel. Stemmingin í liðinu er líka ótrúlega góð ég fíla það í tætlur.

Á föstudagskvöldinu var grill hjá Stuðsmiðjunni, en þar sem ég var ekki búinn að keppa fyrr en rúmlega átta og þá átti maður eftir að skokka niður og fá sér að borða, að þá mætti ég ekki fyrr en rúmlega tíu að nálgast hálf-ellefu. Þá voru nú nokkrir menn orðnir helvíti mjúkir *hóst* Þráinn og Benni *hóst'. Ég var reyndar ekki alveg klæddur fyrir tilefnið, en fólk hafði samt gaman að því að hafa mig þarna í spandex gallanum held ég.

Á laugardagskvöldinu var svo haldið smá Bikardjamm, byrjuðum í Smáranum þar sem við gæddum okkur á grillmat og ís, eins og sönnum íþróttamönnum sæmir. Alveg ótrúlegt hvað maður getur étið eftir svona mót, það er eins og líkaminn séu á 1000%. Partý-ið færðist svo yfir til Helgu Kristínar þar sem fólk tók fram ölið og fjör færðist í leikinn. Í heildina var þetta bara ótrúlega skemmtilegt kvöld, þótt það hafi verið svona hlutir undir lokin sem ég var kannski ekki alveg að fíla.

Vaknaði svo ógeðslega tussuþreyttur og illasofinn klukkan hálf-ellefu eftir lélegan sex tíma svefn. Ákvað að vera duglegur og skella mér niður í vinnu og klára frá eitt verkefni sem ég skuldaði en þegar var nýsestur fékk ég sms frá Óla og Tobba um sundferð og ég stóðst það nú ekki í sólinni. Fór svo bara niður í vinnu og var að ljúka við verkefnið og bíð bara eftir símtali frá kúnna meðan ég skrifa þetta blogg svo ég geti farið að drífa mig heim.



kl. 17:15 | Athugasemdir (2)

2.7.2008 : Paul Simon

Ég skellti mér á, eina af skemmtilegustu tónleika sem ég hef farið, á í gærkvöldi. Meistari Paul Simon sem flestir þekkja úr dúettinu fræga Simon & Garfunkel kom og opnaði evróputúrinn sinn í Laugardalshöllinni.

Ég var mikið að velta fyrir mér hvort ég ætti að skella mér en ákvað svo að fara þar sem ferillinn spannar svo ótrúlega langan tíma. Paul Simon er nefnilega ekki síður þekktur fyrir sólóferilinn eftir að Simon & Garfunkel splittuðu. Af sömu ástæðu fór ég t.d. ekki á John Fogherty (Creedence) þar sem ferillinn hans afmarkaðist af mestu leyti af Creedence Clearwater og hann gerði lítið eftir það.

Fáir kannski þekkja öll lögin hjá Paul Simon, en ég held það komi fólki á óvart hvað það hefur hlustað á mörg lög eftir hann án þess að gera sér grein fyrir því. Lagasafnið er svo gríðarlegt.

Ég er ótrúlega ánægður með að ég hafi farið og gef þessum tónleikum toppeinkunn. Lögin eru öll ótrúlega flott og skemmtileg, og erfitt að gera upp á milli lagana en Graceland var geggjað og The Only Living Boy in New York er eitt af mínum uppáhaldslögum. Hljómsveitin var aftur á móti það sem stóð upp úr, þessir gaurar gefa orðinu "pro" bara algjörlega nýja merkingu. 24 strengjahljóðfæri voru á sviðinu og það var bara skipt um eftir hvert einasta lag. Gítarleikarinn var að auki með standandi saxafón til að geta blásið inn á milli þess sem hann spilaði á gítarinn og hljómborðsleikararnir spiluðu hreinlega á allt mögulegt, hafa ábyggilega spilað á svona 4-5 mismunandi hljóðfæri hvor, bara name it og það var þarna; klarinett, munnharpa, trompet, marakkas, hljómborð, saxafónn, harmónikka og ég veit ekki hvað og hvað.

Auðvitað voru tveir trommuleikarar, einn á klassískum og annar á heavy bongo setti. Hinn gítarleikarinn var frá Kamerún og spilaði á alla mögulegar tegundir af gíturum auk þess að hafa eina flottustu bassarödd sem ég hef heyrt. Gáfu öllum þessum flottu lögum sem eru inspire-uð af afríku alveg rétta tónin t.d. Diamonds on the sole of her shoes og Graceland svo fátt eitt sé nefnt. Bassaleikarinn var heldur EKKI af verri kanntinum, slappaði við hvert tækifæri sem gafst og actually tók bassasólós riffið í You Can Call Me Al eins og að drekka vatn. Alls 8 manns upp á sviði sem gáfu mér eitt flottasta music experience sem ég hef upplifað.



kl. 15:30 | Athugasemdir (3)

29.6.2008 : Allt og ekkert

Dagarnir hérna heima eru búnir að vera frekar þægilegir. Er að vinna hjá hugsmiðjunni og mæti þangað um klukkan 9/10 á morgnana og vinna til 17. Skelli mér þá á æfingu til svona 20 og slappa svo af um kvöldið. Hvort sem það felur í sér að gella sér í sund, bíó, partý eða hanga heima.

Fór reyndar helgina eftir að ég kom heim með Sverri og Höllu upp í bústað sem var náttúrlega virkilega nice. Slappa af í heita pottinum og gufunni og borða góðan mat.

Svo er ég búinn að vera duglegur að hanga í sundi, en svo virðist sem 14 ára stelpurnar séu búnar að gefast upp á mér. Ég fæ allavega ekki sömu athygli og ég vanur.

Ég er búinn að horfa massa mikið af bíómyndum síðan að ég fór út og alveg eftir að ég kom heim. Misjafnlega góðar náttúrlega, en ég átti t.d. alltaf eftir að sjá Seven aftur, en ég sá hana bara þegar hún kom út ég var 16 ára patti sem vissi ekki neitt. Hún stóð undir væntingum.

Talandi um bíómyndir að þá fór ég með Robba og Óla (og Agli) á Wanted með Angelie Jolie á föstudaginn sem var hin fínasta hasarmynd, þótt söguþráðir og leiklistahæfileikar koma lítið við sögu var þetta hin ágætasta skemmtun.

Ég ákvað líka að halda upp á 25 ára afmælið mitt, en ég hélt seinast upp á afmæli þegar ég varð tvítugur. Þá leigði ég og Trausti neðri hæðina á Gauknum. Ég var mikið að velta fyrir mér hvernig ég ætti að útfæra þetta afmæli, ég var með nokkrar hugmyndir.

  1. Fara aftur til fortíðar og halda 25 ára barnafmæli, eins og maður upplifði alltaf í gamla daga. Pylsur, heimabakaða pizzu, skúffuköku og nammi. Svo væri hægt að fara í stólaleikinn eða pakkaleikinn. Hugsa að það hefði verið dálítið öðruvísi.
  2. Leigja sal og bjóða massamörgum, bara allir sem maður hefur hitt "á lífsleiðinni" og kaupa massa mikið af áfengi og snakki. Setja alla inn í sal og úr verður heljarinnar djamm-fyllerís-partý.
  3. Ekki halda sérstaklega upp á það, en faraa út að borða með allra nánustu vinum.

Ég endaði með að velja svona millistig á milli 2 og 3.  Ég ætla semsagt að bjóða svona fólkinu sem ég umgengst mest eða langar að halda sambandi við heim í svona passlega grand veislu. Bjóða upp á einhvern sniðugan mat, kaupa smá áfengi og njóta kvöldsins í góðra vina hópi. Held að það sé fín lausn. Nú þarf ég bara að finna eitthvað sniðugt að borða fyrir 20 manns, sem er passlega grand án þess að setja mig á hausinn.



kl. 14:03 | Athugasemdir (3)

22.6.2008 : Lokavikan

Vá hvað þetta tók langan tíma. En já seinasta vikan í San Diego var ekki svo mikið frábrugðin hinum þrem. Ég tók morgunæfingu, tjillaði á daginn, tók seinni æfinguna mína og svo um kvöldið hékk ég með Kristínu, Mark, Sherraine og krökkunum.

Æfingarnar gengu vel, en ég lenti þó í allskyns "hnjaski". Ég var t.d. ekkert voðalega sáttur þegar ég kom heim einn daginn og tók eftir að ég hafði flagnað smá á öxlunum eftir að hafa tekið hnébeygjur, þar sem níðþung stöngin er náttúrlega að nuddast við. Ég HÉLT að það væri slæmt, en vá hvað það átti eftir að versna.

Þar sem ég var búinn að vera helst til kærulaus í sólinni keypti ég mér sérstöka íþrótta sólvörn sem átti að vera algjörlega "sweat resistant". Jæja, þannig að ég spreyja þessu á mig, skelli mér í bol, fer út að skokka og fer svo í lyftingarklefann þar sem ég tek vel á því og skokka svo heim. Þegar ég ætla svo að fara úr bolnum, dreg ég hann svona uppfyrir haus, en um leið og ég er kominn uppfyrir brjóstkassa finn ég að togið verður þyngra, eins og það sé eitthvað að toga á móti.Ég fatta fljótlega hvað....húðin á mér! Bolurinn var límdur við axlirnar á mér, þá hafði sólarvörnin mixað svona helvíti vel við svitann að þegar ég hleð lóðunum á bakið á mér að þá verður bakið á mér og bolurinn eitt. Ég var án gríns samgróinn bolnum.

21-bak 22-bolur

Veit ekki hvort það sjáist nógu vel á vinstri myndinni, en þið sjáið hvað bakið á mér er mislitt í kringum axlirnar (sést betur hægra megin). Það er basically efsta lagið af húðinni á mér sem sést svona greinilega og fallega á myndinni til hægri af bolnum.

Seinustu dagana var ég mikið að velta fyrir mér hvort ég ætti að reyna hitta eitthvað af fólkinu þarna úti. Það fór út um þúfur að hitta Betur og Bjarna í NY á leiðinni heim, en ég var mikið að velta fyrir mér að reyna hitta á Jón Karl sem var í Santa Barbara, sem er ekkert svo langt frá. Eftir mikla Excel útreikninga sá ég að það yrði of mikið vesen og of dýrt. Það skemmtilega við þetta er að þetta þýddi að ég gekk ekki 100% frá ferðaplönunum fyrr en á miðvikudeginum sem er kannski pínu tæpt þar sem átti flug frá JFK á föstudagskvöldi. Það þýddi auðvitað að flugið sem ég ætlaði að taka föstudagsmorgun frá San Diego var komið upp í 420 fokkin dollara. Þannig að ég tók ógeðslega ferðapakka á þetta ever. Flaug fimmtudagskvöld frá San Diego, nætur flug til Washington í connecting flight til JFK og var kominn þangað rétt fyrir hádegi á föstudegi.

Ég var búinn að heyra í Jóhönnu frönku sem var á leiðinni heim frá Florída með sama flugi heim að hittast á JFK og við gætum svo tekið quick tour um NY. En hún og Óskar hafa aldrei komið til NY. Á meðan ég er náttúrlega orðinn svo sjóaður að ferðast um NY eftir 4 ferðir þangað á innan við ári. ;)

Þegar við hittumst á JFK sögðum við nákvæmlega það sama við hvort annað "Vá ert þetta ALLT sem þú ert með!?" munurinn var bara áherslan á hvernig við sögðum það. Því hún var með held ég 8 stykki af ferðatöskum á meðan ég var með eina standard ferðatösku og bakpoka með fartölvunni. Í raun magnað hvað ég komst af með lítið fyrir fjórar vikur erlendis, en ég vill meina að ég sé pökkunarsnillingur. Hún náttúrlega var að koma heim eftir einhverja mánuði þarna úti (basically að flytja).

24-hardrock 23-hardrock

Ég byrjaði náttúrlega að fara með þau á Fifth, þar sem allt actionið er. Sáu Empire State og svo niður að Times Square í gegnum Broadway og leikhúshverfið. Ég reyndi reyndar líka með hjálps Hlyns og Google að finna kaffihúsið sem Central Perk úr Friends er byggt á, en það gekk ekki. Þetta Manhattan Café sem við fundum líktist engan vegi Central Perk, þannig að það gekk því miður ekki. Hefði verið gaman þar sem Jóhanna er mikill friends aðdáandi. Við hoppuðum svo inn á Hard Rock og sjitt hvað þetta er freakin' stór staður, alveg huge ass motherf*** stór. Virðist ekkert vera stór utanfrá en hann er bara alveg niðurgrafinn og nær, langt, langt inn. Þarna er bara tónleikasvið og alles. Tónlistaráhugamaðurinn ég hafði sko gaman að því.

Þessi allsherjar ferð hjá mér endaði svo þegar ég mætti heim kl 06 á laugardagsmorgni og alveg vel súr eftir að hafa verið á ferðalagi frá fimmtudagskvöldi.

Ég er alveg massa sáttur með þessa ferð og er Kristínu óendalega þakklátur fyrir að leyfa mér að koma og umbera mig í þessar tæpar fjórar vikur.

kl. 5:05 | Athugasemdir (2)

10.6.2008 : Í vafa

Ef það var einhver í vafa, að þá er ég kominn heim. Mætti hérna fyrir rúmlega viku eftir langt ferðalag. Hef ætlað að skrifa færslu lengi, en æfingar, sundlaugaferðir og hanga með vinum gengur fyrir. Skelli færslu fljótlega inn um seinustu dagana í San Diego, ferðina heim, New York og vikuna sem var að líða.



kl. 0:20 | Skrifa athugasemd

27.5.2008 : Three down - one to go

18-blauttutiSkelli mér á eitt stykki interval á sunnudeginum og kláraði þar með þriðju vikuna - one to go. Vanalega hef ég haft frí á sunnudögum en ég þurfti að hliðra dálítið til seinustu daga vegna stormviðvörunar á föstudeginum. Stoppaði mig samt náttúrlega ekki að fara út í gymm að taka aðeins á því í klefanum, þótt ég hafi ekki alveg viljað taka hámarkshraða spretti úti í veðrinu. Á leiðinni heim byrjaði svo að hellirigna og fólk sem sat í bílunum sínum starði vel á mig og hefur hugsað með sér hvaða rugludallur þætti væri þegar það sá mig hlaupa heim í rigningunni.

Á föstudagskvöldinu fórum við þremenningarnir svo Olive Garden sem er mjög skemmtilegur ítalskur staður og fengum okkur þetta fínasta pasta. Ég fékk mér eitthvað sem hét Tour of Italy og kom mjög vel út. Enduðum kvöldið svo á Cold stone creamery sem býður upp á hrikalegustu ísrétti ever, en vá hvað það er gott.

19-coldstoneSjáið hvað ég er snjall sko, það er ekki til nein sönnun fyrir því að ég hafi fengið mér *hóst*.

Sumir vilja nú meina samt að þetta sé uppskriftin að bætinum. Nóg af ís og bólguyeðandi. (og súkkulaðirúsínur reyndar líka) [Myndin er tekin í apótekinu]

Á laugardagskvöldinu var svo Kristen með smá partý heima sér útaf útskriftinni hjá sér. Ég hafði þegar gefið henni Telepathetics diskinn og hún þakkaði mér fyrir hann og sagðist fíla þetta mjög vel. Show me væri uppaháldslagið hennar. Hún var að útskrifast með einhverja arkitektagráðu og við fengum að kíkja á sum verkin hennar og ég verð að segja að margar af þessum teikningum lúkkuðu ógeðslega vel. Væri alveg til í að vera arkitekt ef ég kynni að teikna, en það er mér lífsins ómögulegt.

Ég hef annars lúmskt gaman að fara í svona partý þar sem maður þekkir ekki neinn. Maður þarf að fara upp að einhverjum og byrja bara spjalla upp úr þurru og maður kynnist fólki. Í gær kynntist ég einmitt helvíti nettum gaur Tim að nafni sem er svona léttur "Jói" í sér, dýrkar snjóbretti, hjólabretti og annað sem tengist útivist og hreyfingu. Hann hefur líka verið duglegur ferðast um allan heiminn og hafði m.a. annars komið til Íslands og gisti þá hjá hjálpræðishernum. Gaman að svona karakterum.

Lenti líka í skemmtilegum vangaveltum með Kristínu þegar einn strákurinn tók upp jónu og bauð fólki að setjast með sér. Við vorum spurð hvort gras væri algengt á íslandi og ég svaraði strax nei en Kristín er greinilega ekki öll þar sem hún er séð því hún svaraði já. Upp úr þessu hófust dálítið skemmtilegar vangaveltur, ég hef nefnilega bara einu sinni verið í partý þar sem gras hefur verið tekið upp og reykt og vill meina að það sé ALLS EKKI algengt á Íslandi. Er ég kannski bara svona mikill kórstrákur að ég er alveg blindur á þetta? Datt því í hug að enda þetta á smá skoðunarkönnun.

Er gras (e. weed) algengt í partýum á Íslandi?



kl. 19:00 | Athugasemdir (14)

24.5.2008 : Sake Bomb með Telepathics inn á milli æfinga

17-sushidiskurSkelltum okkur á þennan fína Sushi stað hópurinn. Kristen vinkona hennar Kristínar var að útskrifast og hópurinn ákvað að skella sér smá út. Þar sem við vorum 7 manns var biðin frekar löng en hún var alveg þess virði. Ótrúlega gott sushi þarna, mmm hvað ég dýrka sushi. Kristín og Mark voru líka svona helvíti öflug og tóku Saki Bombs og ég er ekki frá því að Kristín sé bara helvíti öflugur "sturtari". Er meir að segja með vídjó-ið til að sanna það, en verð að fá leyfi til að dreifa því. [Leyfi veitt en samt líklegast ekki til að sýna þar sem hún tapaði. Henni til varnar rústaði hún næstu sprengju].

Mætti segja að þetta hefði verið mjög international að kalla á íslensku skál í botn í San Diego ekki langt frá mexikó yfir japönskum bjór og hrísgrjónaskoti.

17-sushiÉg kom Kristen pínu á óvart með lítillí útskriftagjöf. Hún hlustar mjög mikið á rokktónlist og er stundum kölluð K-Rock útaf því. Seinast þegar ég var hérna var hún mikið að spyrja mig út í íslenska rokktónlist, þannig að núna kom ég með disk að heiman. Fattaði þetta ekki reyndar nema bara daginn sem ég fór og því lítill tími fyrir verslunarferð en stal einum Telepathetics diski frá Hlyni. Hún var mjög ánægð með þetta og bjóst greinilega ekki við þessu.

Æfingarnar ganga bara mjög vel. Samt ekki í forminu sem ég vil vera í núna í lok maí byrjun júní. [Hér kæmi inn ein massamynd, ef það væri ekki of asnalegt]. En til þess hef ég verið að æfa of stopult eftir jól. Það er víst ekki hægt að svindla á æfinga-bætinga-lögmálinu. Maður tekur bara út það sem maður leggur inn. Ég ákvað samt að reyna á það og vonaðist til að ég gæti svindlað mér í form með því æfa hérna út í San Diego í mest allan maí. Það er mjög fínt og ég er að komast í ágætis form en ég er ekki að sjá fram á miklar gloríur í sumar. Gerir mér samt mjög gott því þetta gefur mér allavega tækifæri á að vera með í sumar og hafa gaman af, sem ég stefni á að gera. Held samt að massífa bætingaseasonið verði að bíða betri tíma því miður. Maður veit samt aldrei hvað gerist. Búinn að vera mjög duglegur að æfa hérna og halda matarræðinu hreinu (eða allavega nokkuð nálægt því).

Planið mitt breyttist líka smá núna fyrir stuttu. Upphaflega ætlaði ég að kíkja á Betu og Bjarna í NY í einn eða tvo daga áður en ég flygi heim, eins og ég nefndi í seinustu færslu. Þau fá aftur á móti ekki húsnæðið sitt í Manhattan fyrr en 1. júní þannig að það verður því miður ekkert af því. Við verðum þá bara að drekka Cosmo við Austurvell í sumar í staðinn.

Í staðinn verð ég bara hérna 1-2 dögum lengur og næ inn nokkrum æfingum í viðbót. Sem er bara mjög fínt. Ég get ekki neitað því samt að ég er töluvert þreyttur, er í meira magni en ég er vanur, en samt sem áður að lyfta eins og spretthlaupari og taka spretti eins og 400 m hlaupari - tekur vel á að blanda þessu svona öllu saman. Það verður því svona bittersweet tilfinning að fara heim. Að hluta til get ég ekki beðið eftir að komast heim og að hluta til langar mig að vera lengur hérna, kíkja jafnvel á regionals og hvetja áfram Kristínu og Kára og leika mér eitthvað áfram í æfingum. Þetta er alltaf svona þegar maður fer í utanlandsferð :)

kl. 1:19 | Athugasemdir (3)

20.5.2008 : Smá kæruleysi

13-kristinchocEkki mikið búið að skrifa, aðallega því það hefur lítið verað gerast, allavega hjá mér. Var einn hérna í íbúðunni eins og ég nefndi þar sem Kristín og Sherraine fóru að keppa á conference. Báðar stóðu þær sig ótrúlega vel, í raun alveg brilliant. Ég eyddi því bara enn meiri tíma í æfingar og sólböð. Mark kíkti nú líka hérna öðru hverju og við skelltum okkur m.a. á Yogurt Express eitt kvöldið og áður en Tobbi skammar mig fyrir að eyðileggja köttið að þá er þetta 0% jógurtís og ég fékk mér small. Reyndar er nú köttið ekki neitt svakalegt ef ég á að vera hreinskilinn, en tanið er þó allt að koma til.

Þegar stelpurnar komu svo á laugardagskvöldinu var Mark og ég búnir að vera stússast "allan daginn". Keyptum hvítt og dökkt súkkulaði og bræddum yfir jarðaber, sem biðu svo eftir stelpunum þegar þær komu heim ásamt ísköldum Corona og auka pakka af súkkulaði svo það væri nú hægt að narta í það líka! Ég er ekki frá því að það hafi komið smá bros á þær þegar þær löbbuðu inn.

15-breakfastÁ sunnudagsmorninum skelltum við okkur svo niður á Ocean Beach þar sem við ætluðum að hitta John "Abs" Collins og Sandy konuna hans í morgunat. Fórum á þennan fína diner sem er út á bryggjunni sjálfri, mjög töff. Þannig að það var smá kæruleysi, pönnukökur, síróp og bacon. Í raun er búið að vera smá kæruleysi seinustu tvo daga því svo borðaði ég yfir mig af nachosi og öðru mexíkósku góðgæti í gær þegar við skelltum okkur á þennan fína veitingastað.

Núna á ég eftir rétt rúmlega viku og stefni bara að taka hana hardcore, keyra mig aðeins út og slappa svo af einn eða tvo daga í New York með Betu og Bjarna áður en ég kem heim. En ég flýg frá JFK þann 30. sem þýðir að ég lendi snemma morguns 31.



kl. 20:28 | Athugasemdir (3)

15.5.2008 : Niðurbrot og uppbygging

Seinustu 2 dagar hafa verið pínu erfiðir, bæði andlega og líkamlega. Er núna að klára aðra vikuna hérna og byrjaður að finna fyrir álaginu auk þess að finna fyrir því að vera æfa einn. Það getur tekið dálítið úr manni að þurfa að rífa sig einn á æfingu tvisvar á dag og vera einn að framkvæma þær einn á vellinum. Ég vissi samt alveg út í hvað ég var að fara þegar ég ákvað að fara í þessa ferð svo að það þýðir ekkert að væla. Bara dálítið skrítið að vera ekki með neinum á æfingu og svo að gera ekki neitt með félögunum svona inn á milli, eins og maður er vanur. Núna er ég svo aleinn í húsinu þar sem Kristín og Sherraine eru farnar til Texas að keppa. Kristín fór á þriðjudaginn og Sherraine í morgun, þær koma svo aftur á laugardaginn.

Sem betur fer er ég búinn að fá pepp-uppið sem ég þurfti. Byrjaði smá í gær á vellinum þegar það kom kall upp að mér þegar ég var að taka 100m spretti "I like that fact you're going up against the wind, good workout". Ég náttúrlega spilaði mig bara kúl "yeah, thanks" en hugsaði um hvaða fjandans vind era hann að tala?? Það er 25° C og "blankalogn" ég hefði kannski hlaupið 1/100 hraðar ef ég hefði hlaupið í hina áttina.

Í dag kom aftur á móti hvatningin sem ég hef verið að leita að. Var að skokka frá vellinum og er stopp á gönguljósi. Á götunni er hvítur pikkup með einhverjum 3  stelpum í og ég tek strax eftir því að þær eru eitthvað að horfa á mig, meira að segja það mikið að mér var byrjað að líða kjánalega, standandi þarna ber að ofan með heyrnatólin á hausnum. Gönguljósin eru alltaf fáránlega lengi að koma og ég stend þarna bara sveittur og vel glansandi, að reyna að lúkka kúl (leisist reyna að líta ekki út eins og fífl) þegar stelpan sem situr fram í tekur upp á því að skrúfa niður rúðuna. Ég horfi til þeirra og brosi létt og þær kalla eitthvað á mig en ég heyri ekkert vegna umferðarinnar. Loks kemur græni (reyndar hvíti) kallinn og ég hleyp yfir og þegar ég fer fram hjá bílnum þeirra heyri ég svo kallað "Looking good!!". Akkúrat orkusprautan sem ég þurfti.

kl. 22:44 | Athugasemdir (3)

14.5.2008 : Steik og ísing

Allt gott að frétta héðan frá Californíu. Ég fékk reyndar á tilfinninguna fyrir nokkrum dögum að Kristín sé að reyna fita mig.

Kristín: Hefuru prófað Outback?
Bergur: Já mjög góður staður, fór m.a. með þér fyrir 2 árum, prófuðum Outback og Cheescake Factory´.
Kristín: Ok við verðum samt að fara á Cheesecake Factory aftur!
Bergur: Já ég er game, bara whenever.
Kristín: Fílaru mexíkanskan mat?
Bergur: Já ég dýrka hann, fíla sterkan mat.
Kristín: Ok, ég veit um alveg perfect stað með svona home-made réttum.
Bergur: Hljómar vel
Kristín: Hefuru farið á Hooters?
Bergur: Nei, en ég meina fer einhver útaf matnum?
Kristín: Hann er reyndar óvenju góður
Bergur: Já Sigurjón vildi nú meina það, þótt ég hafi ekki alveg trúað honum.
Kristín: Svo er náttúrlega Olive Garden líka
Bergur: Já hef prófað hann, mjög góður.

Já svona einhvern veginn hljómaði samtalið um veitingastaði. Ég sé því fram á tvennskonar æfingabúðir næstu vikurnar. Við byrjuðum á Outback núna á sunnudeginum seinasta, skelltum okkur fjórmenningarnir: Ég, Kristín, Mark og Sherraine. Föttuðum reyndar ekki strax að það var Mother's Day og því dálítil örtröð en það var þess virði, þessar steikur þeirra eru bara geggjaðar.

08-aquaplexÞað var reyndar líka mjög nice sunnudagur: hvíldardagur og ég nýtti mér það í að slappa af við sundlaugarbakann að reyna ná upp smá tani. Ekki veitir af, sólin lét standa á sér fystu dagana en þetta er allt að koma. Ég er búinn að vera duglegur að hlaupa sprettina mína ber að ofan seinustu daga, eins og sönnum Íslendingi í æfingaferð sæmir.

11-atjohnsÁ mánudagskvöldinu kíktu við svo til Johns tugþrautamanns og ekki til að liggja upp í sófa og spjalla nei þvert á móti fórum við ískalda laugina til að kæla (og spjalla). Ég og Kristín hoppuðum alveg ofan í en strákunum leist ekkert á það og voru í bol að ofan og fóru því aðeins niður að mitti. Eftir 15 min af kælingu fórum við svo í heita pottinn í 15 min áður en við enduðum aftur í köldu lauginni. Kom blóðflæðinu alveg af stað og losaði um bólgur og stirðleika.



kl. 21:40 | Skrifa athugasemd

11.5.2008 : Út að borða á föstudagskvöldi, út að hlaupa á laugardagsmorgni

04-utadborda Titillinn segir eiginlega allt. Við skelltum okkur út að borða í gærkvöldi á þennan fína "all you can eat" stað, en samt mjög hollan, basically bara súpur og salöt. Reyndar er nú líka hægt að fá eitthvað sætabrauð og svona líka en ég og Kristín slepptum því nú alveg. Á myndinni eru einnig Steve, Mandy og Sherraine.


05-electrodes Um kvöldið hengum við svo hérna í íbúðinni, bara að spjalla hópurinn, hanga á netinu, skoða vidjó og leika okkur með TENS elektróðu-systemið hennar Kristínar. Steve var reyndar alveg að digga þetta, hélt að hann myndi nú bara lognast útaf í sófanum, honum fannst þetta svo afslappandi. Fórum reyndar að fíflast með þetta, Kristín athuga m.a hvort hún gæti lamið sig með því að festa þetta á hendurnar og setja svo allt í botn, gekk því miður ekki. Já svona eyðir frjálsíþróttafólk í San Diego föstudagskvöldum - fara á hlaðborð og leika sér með rafmagn.

07-patrickhenryÍ morgun var engin æfing hjá Aztec stelpunum þannig að ég fékk bílinn lánaðan hjá Kristínu og skellti mér á Patrick Henry völlinn. Úff ég fékk alveg slæmt flashback, því seinast þegar ég var þarna datt mér í hug að skokka á hann og hann er svona í 8 km fjarlægð sem er ekkert hræðilegt EN það er bara upp og niður, upp og niður og ekki neinar smábrekkur bara heavy duty shit. Enda tók það mig um það bil klukkutíma, þar sem ég viltist líka þá.

06-avellinumNennti ekki að lenda í því í dag sérstaklega þar sem mikilvægasta æfing vikunnar var á dagskrá: 3x200 m. Æfingin gekk bara alveg hreint ágætlega. Maður er allur að koma til, þrátt fyrir töluvert álag. Á myndinni hér til vinstri er ég eftir æfinguna, pínu súr...þótt það sjáist ekki á mér.

kl. 0:15 | Athugasemdir (5)

9.5.2008 : Stífí Wonder og áreiti

Eins og þið sjáið er útlitið hægt og rólega að koma til. Vonandi mun ég ekkert vinna í því í dag, þ.e.a.s. ég vona að það verði það mikil sól að ég eigi eftir að hanga á laugarbakkanum í dag (klukkan er 09:00 hérna). Mig langar að fara vinna í taninu!

Ég verð líka að biðja alla vini mina afsökunar, þar sem ég er ábyggilega að gera alla brjálaða með að senda þeim "Friend Requests" á LastFM og LinkedIn. Sorrý, sorrý, maður hefur bara ekkert að gera og því skráir maður sig á allt mögulegt! :D

Lappirnar eru verða helvíti stífar, kom með nuddtækið mitt með mér út og það er að halda mér gangandi. Þetta er svona elektróðu gaurar sem maður límir á lærið á sér, eins og maður fær hjá sjúkra. IcyHot kremið, er líka að gera góða hluti og Lacrosse boltinn sem ég er duglegur að ýta í auma vöðvana. Í gær fór ég svo að fordæmi Kristínar og skellti mér í ísbað. Úff. Kristín var samt hörðust því hún fór fyrst þegar mesti klakinn var. Það verður að segjast að Sherraine vinkona hennar sem býr hérna líka, var klárlega mesti kjúklingurinn en lét sig hafa það að lokum. Kristín reddaði mér svo nuddi á mánudaginn....ah það verður svo nice.

Þetta er samt það sem ég fíla við æfingabúðir, maður gefur sér tíma í alla þessu litlu hluti, maður er ekkert að æfa neitt úber mikið meira en heima, en æfingarnar eru lengri og maður eyðir meiri tíma í að fara vel með líkamann, getur hugsað betur um matarræðið, gefur sér lengri tíma í að teygja, hvíla. Það er ekkert sem bíður eftir manni, þannig að maður þarf ekki að drífa æfinguna af og flýta sér heim til að byrja að læra eða eitthvað.

Allavega, ég er farinn út að hlaupa.



kl. 16:09 | Athugasemdir (5)

8.5.2008 : Same old, same old

Lífið hérna í San Diego gengur sinn vanagang. Hljómar þetta ekki frekar skringilega þegar maður er bara búinn að vera hérna í 4 daga. En basically að þá vakna ég og fæ mér morgunmat, heng smá í tölvunni, skelli mér á æfingu, borða heng smá meira, skelli mér á æfingu, borða og fer að sofa. Vonandi þegar sólinn fer að skína meira hérna get ég hent út "hanga smá meira" í "liggja við sundlaugarbakkann". Það ætti að fara lagast á næstu dögum, veðrið er bara búið að vera sæmilegt 15-17 stiga hiti og dálítið skýjað. Það er þó öllu betra en 15° hiti heima því það er enginn ískaldur norðanvindur alltaf að blása á mann, þannig að veðrið er í raun bara mjög stillt og gott.

Lenti í dálitlu skringulegu í fyrradag, var að skokka eitthvað á völlinn og sé að það eru sjónvarpsbílar út um allt! Bara name-it, allar sjónvarpsstöðvar sem maður gæti talið upp voru á fleygiferð um campusinn í kringum fraternity húsin, að taka viðtöl við fólk og taka myndir. Vissi að það var greinilega eitthvað mikið í gangi og þegar ég kom heim sögðu krakkarnir mér að það hefði verið major drug bust í gangi, eitthvað sem var búið að vera plana í heilt ár. Um 100 nemendur teknir og ekki bara fyrir massíft mikið af dópi heldur skotvopn líka og ég veit ekki hvað og hvað.

Planið í dag er að hoppa út á pósthús og sækja supplementin sem ég pantaði mér og fara svo í klefann og pumpa allsvakalega. Kristín pantaði fyrir mig nudd í næstu viku sem verður nice, orðinn pínu stífur.

P.s var að leika mér að setja eitthvað nýtt lúkk á síðuna, gefið mér smá tíma, á eftir að leika mér í þessu eitthvað.



kl. 16:32 | Athugasemdir (3)

6.5.2008 : California

Dagur tvö í Californíu hálfnaður. Dagurinn í gær var svipaður og fyrir 2 árum. Ég nýtti morgun/hádegisæfinguna mína í að kynnast svæðinu. Tók góðan skokktúr í kringum svæðið, reyndar það langan að kálfarnir voru næstum búnir að gefast upp þannig að ég labbaði bara inn á milli og hélt svo áfram. Var í heildina klukkutími eða svo, maður er bara orðinn algjör langhlaupari. Fór svo á völlinn og tók massífasta teygju session sem ég held að ég hafi tekið á ævi minni. Þar sem ég var svo í langhlauparagírnum tók ég gott 4 km 2,5 km tempó heim á 3:45 paci. Stundum held ég að ég myndi fíla að æfa 5 km því ég dýrka þessa tilfinningu að vera "running on empty" og ætla þá að gefa í.

Var svo með einhvern smá hausverk í gærkvöldi og ákvað að leggja mig í kringum sex leytið, nema að ég bara rotaðist gjörsamlega og rumskaði ekki við mér fyrr en um 11 tímum seinna eða klukkan 05 um morguninn. Þá hafði ég um tvennt að velja, taka létt morgunskokk eða snúa mér á hina hliðina. Ég valdi seinni kostinn og svaf til hálf átta í morgun. Helvíti var það nice að sofa í kringum 13 tíma. Sorrý Sigurjón að ég gerði það ekki hjá þér - ég er allavega búinn að rétta mig við núna.

Annars er ég hræddur um að þetta blogg verði dálítið æfinga orienterað á næstu dögum og vikum, þar sem ég er náttúrlega ekki að gera neitt annað. Þannig að non-frjálsíþróttafólk er hér með varað við.

Dagskráin í dag er svohljómandi: Vakna, morgunmatur, hanga, æfing, hanga á netinu (current) - æfing - hanga - sofa.

Ætli ég reyndar leiki mér ekki að setja nýtt lúkk á síðuna eða eitthvað, dunno. Ef ég kynni eitthvað í sálfræði myndi ég reyna hjálpa Kristínu eitthvað þar sem það er mikið álag á henni, mót, æfingar og próf og svona. Vonandi get ég eitthvað hjálpað, þótt sumir vilja meina að ég sé vita gagnslaus.



kl. 21:17 | Athugasemdir (7)

5.5.2008 : Massaferð: NY - Cali

Laugardagskvöldið var heldur betur nice, við félagarnir skeltlum okkur á Unos Chicago Grill þar sem við borðuðum líkamsþyngd okkar af nachosi, steikum og ís-réttum. Verð reyndar að gefa þeim það að þessi "Brewsmaster's Steak" sem ég fékk var bara healvíti góð.

Sigurjón að drekka pepsí

Hér er Sigurjón að fá sér fyrsta gosdrykkinn sinn í tvær vikur. Ég er heldur betur að hafa góð áhrif á heilsu lífernið hjá honum.

En svo ég snú mér að máli málanna, að þá er ég búinn að sjá allt túrista dótið í New York, þannig að þessi helgi var bara mjög róleg og þægileg, en eins og ég nefndi í seinustu færslu nýtti ég tímann til að versla á laugardeginum og sunnudeginum, en þá kíktum við m.a. í B&H sem er ein magnaðasta búð sem ég hef séð.

Timex Triathlon Sleek iControl: Á spáni í fyrra keypti ég mér þetta fína Timex úr sem ég fílaði í tætlur, mun betur en Nike úrið sem ég hafði keypt mér árinu á undan. Því miður hafði ólin farið af þessu yndislega Timex úri og því keypti mér nýtt úr núna af sömu grunngerð nema með nýjum iControl fídus sem þýðir að úrið virkar sem fjarstýring á iPodinn minn. Frekar nice að geta bara stjórnað ipodinu frá úrinu. Brilliant fyrir mann með græjufíkn.

AKG K81 DJ: Brilliiant alveg, uppfærsla frá nettu K26P heyrnatólunum sem ég átti, þessi eru aðeins stærri og massífaðari en samt sem áður foldanleg þannig að þau taka lítið pláss. Sándið er alveg geggjað og þau einangra mjög vel bæði út og inn. Perfect alveg, redduðu mér svo í fluginu til San Diego, var alveg einangraður, ekkert suð í vélinni og ég truflaði engan.

Sennheiser PX100: Brilliant lítil headphone sem hljóma samt alveg insane vel, enginn myndi trúa því hvað hljómurinn er góður úr þessum litlu heyrnatólum. Fullkomin við iPodin, skokkið, bara whatever.

03-bergur

Hér sést ég í algjörum transi að hlusta á Take the Power Back með nýju headhpone-in og nýja úrið.

Annars lenti ég dálitlu fyndnu á lestarstöðinni á Astor Place rétt hjá Sigurjóni þegar ég var á leiðinni út á flugvöll. Ég stend bara og bíð eftir lestinni þegar tveir frakkar koma æðandi og eru greinilega eitthvað týndir því að þeir eru að spyrja fólk hvert lestin fari og hvort þeir megi kíkja á kort sem einhverjar kínverjar voru með þarna. Að lokum koma þeir upp að mér og spurja hvort ég sé að fara á JFK sem ég játa og spyrja þá hvort þeir megi bara ekki elta mig, sem ég sagði að væri nú minnsta mál.

Kínverjarnir með kortið góða heyrðu þetta og löbbuðu þá upp að mér og spurðu hvort þeir mættu elta mig líka, þannig að þarna hoppaði ég á milli subway stöðva með 2 frakka og 2 kínverja í eftirdragi.

Ferðin gekk samt vel þökk sé Archosinm góða og nýju AKG lokuðu heyrnatólana. Ég mætti svo til Kristínar um hálf-tólf á sunnudagskvöldi, vá hvað það var gaman að sjá hana. Mun skemmtilegra t.d. en að sjá Sigurjón. Sigurjón gat reyndar hamið ánægjusvipinn þegar ég rétti honum Maltesers fötuna, en það gerði Kristín ekki þegar ég rétti henni Nóa Kropps fötuna - hún hoppaði bara út um allt hús...án gríns! ;)

Núna ætla ég aftur á móti út í morgun/hádegisskokkið mitt, reyndar bara skítkalt hérna brrr 15 stiga hiti ;)

kl. 18:40 | Athugasemd (1)

3.5.2008 : Massaferð: New York

Þá er massaferðin hafin. Kláraði bara að pakka snemma á föstudeginum, skellti mér í hádegismat með Bjögga og tók svo rútuna út á völl.

Vanalega finnst mér þjónustan hjá IcelandAir ekkert til að hrópa húrra fyrir en núna var ég sko sáttur! Konan sem afgreiddi mig mega hress. Ég reyndar fattaði þegar ég var búinn að fara í gegnum allt að ég gleymdi að biðja hana um sæti við neyðarútgang og því var ég enn þá sáttari þegar ég sá að ég var með næst besta sætið í vélinni: Neyðarútgangur við gang (besta er neyðarútgangur við glugga - getur lagt þig upp við vegginn og þarft ekki að standa upp fyrir neinum).

Ég var búinn að hlaða Archosinn góða af massa mörgum myndum og ferðin var því bara enga stund að líða. Nartaði bara á fríhafnarnammi og náði að horfa á tvæ bíómyndir og byrja á þriðju áður en við lentum.

Mér finnst líka dálítið magnað hvað New York er í raun einföld borg. Ég kom hingað í október / nóvember og þá tók smá tíma til að átta sig á lestunum og uppsetningunni en núna labbaði maður bara í gegnum JFK og lestastöðvarnar eins og maður væri fastagestur hérna. Var því ekki lengi að koma mér til Sigurjóns og hringdi bjöllunni hjá honum um hálfníu í gærkvöldi.

Við skelltum og svo út á dinerinn á horninu þar sem ég fékk mér að sjálfsögðu ekta East Side diner hamborgara. Var bara óvenju góður.

Ég klúðraði reyndar æfinga metnaðinum hjá Sigurjóni. Ég hafði víst fengið e-mail frá honum þar sem ég var bannað að mæta með nammi. Ég sá það e-mail því miður ekki áður en ég fór og þar sem ég var búinn að gera ráð fyrir að mér yrði ekki hleypt inn nema ég myndi mæta með Maltesers að þá keypti ég heila fötu.

Þannig að ég klúðraði öllu, þar sem kvöldið fór í að spjalla, hlusta, og skiptast á tónlist og á meðan við stútuðum fötunni góðu.

Sigurjón

Hér er Sigurjón að reyna kynna mér fyrir yndisemdum Tool en ég hef ekki enn þá náð að "fíla þá" þótt ég diggi eitt og eitt lag með þeim.

Í dag vöknuðum við eldsnemma þar sem ég er náttúrleg ennþá á íslenskum tíma, Sigurjóni til mikillar gleði. Við skelltum okkur því bara í morgunmat og svo í létta verslunarferð, þar sem ég verslaði mér nýtt úr (nánar um það síðar) og nokkra hlaupasokka. Ótrúlegt en satt keypti ég svo ekkert í Nike Town þegar við kíktum þangað.

p.s Bergur Dalsgaard er ekki ofarlega á vinsældarlistanum mínum, nánar um það síðar.

kl. 18:01 | Athugasemdir (51)

2.5.2008 : Mæður vita best

Við morgunverðarborðið.

Mamma: Bergur þú ættir nú að byrja að taka saman fötin og dótið sem þú ferð með út svo þú verðir nú ekki að pakka í nótt.
Bergur: Hehe nei nei það er ekki að fara gerast, er einmitt bara að fara í þetta núna.

Núna er klukkan 00:46 og ferðataskan er ennþá inn í geymslu. Sem betur fer fer ég í flugið kl 17:00 og því hef ég nú daginn líka

kl. 0:34 | Athugasemdir (60)

28.4.2008 : Kvikmyndir

Ákvað að skella inn hingað stjörnugjöfunni minni á IMDB. Áhugasamir kvikmynda unnendur geta þá kommentað hverju þeir séu ósammála. Ég vil sérstaklega heyra frá Sigurjóni, Bjögga og Robba!

Ár 2001  2007  2006 2005 1957 2007 1999 2007 1985 2006 1942 1999 1964 2007 1994 1999 2007 2006 2007 2006 2005 2006 2005 2000 2007 1994 1954 2006 1998 1994
Kvikmynd / Þáttur  * Punktar 
Band of Brothers (2001) 10 Geðveikasta mini sería ever.
Californiacation (2007) 9 Frábærir þættir með skemmtilegum karakterum. Fox Mulder með comeback dauðans
 Dexter (2006) 9 Ég dýrka hvað þessi þáttur er svartur og brútal
How I met your mother (2005) 8 Skemmtilegustu gamanþættirnir síðan Friends
12 angry men (1957) 9 Myndin gerist inn í einu herbergi. Fáránlega vel skrifuð
3:10 to Yuma (2007) 9 Skemmtileg endurgerð. Gat ekki gefið 8,5 og lét hana njóta vafans
American Beauty (1999) 9 Kevin Spacey fer á kostum, brilliant mynd og karakterar
American Gangster (2007) 8
Back to the future (1985) 10 Þetta finnst mér ein skemmtilegasta mynd sem ég get horft á
Blood Diamond (2006) 9 Ótrúlegt hvað DiCaprio er geggjaður leikari
Casablanca (1942) 9 Já allt hype-ið á rétt á sér. Þetta er yndisleg mynd.
The Cider House Rules (1999) 8
Dr. Strangelove (1964) 6 Skil ekki afhverju þessu mynd er nr 1 sem besta gamanmynd allra tíma!
Eastern Promises (2007) 8 Eitt flotasta bardagaatriði í bíómynd.
Forrest Gump (19949) 10 Brilliant í alla staði
The Green Mile (1999) 9
Hot Fuzz (2007) 8 Mjög fyndin
The Illusionist (2006) 8
In the valley of Elah (2007) 7
Inside Man (2006) 8 Góð heist mynd
King Kong (2005) 7 Ekki eins geggjuð og allir vildu meina
Laberinto del fauna, El (2006) 8
Lucky number Slevin (2005) 8 Vá hvað þessi kom á óvart
Memento (20009 9 Töff uppsetning sem tekst
Michael Clayton (2007) 7 Hmm hefði kannski mátt fá 8 svefilast í kringum 7,5
Pulp Fiction (1994) 10 Insane töff mynd
Rear Window (1954) 9 Alfred kallinn með brilliant stykki. Spennumynd sem er fáránlega sniðug
Rescue Dawn (2006) 7 Steve Zahn kom á óvart.
Saving Private Ryan (1998) 10 Love it, love it!
The Shawshank Redemption (1994) 10 Er hægt að gefa 11?




kl. 9:41 | Athugasemdir (5)

28.4.2008 : Plan næstu daga

Jæja þá er maður loksins kominn aftur almennilega af stað eftir frekar slappa seinustu daga. Veiktist lítilega sem setti dálítð striki í æfingaplanið, erfitt að vera taka hardcore intervöl með heljarinnar nefrennsli, slím í hálsi og ógeðslegt bakflæði. Tók því bara þess vegna rólega, þar sem ég vil losna við allt fyrir ferðina góðu. Auk þess sem maður situr nokkuð fastur í próflestri. Planið næsta daga lítur því nokkurn veginn svona út.

Mánudagur
Sitja og læra af sér rassgatið og reyna troða inn einhverjum æfingum inn á milli.

Þriðjudagur
Sitja og læra af sér rassgatið, taka próf, skella sér á æfingu og sund.

Miðvikudagur
Boys's night out með pabba og Hlyni. Planið var að fara út við feðgarnir og fá sér eitthvað gott að borða og fara svoa á tónleika með Dúndurfréttum, Eiríki Haukssyni og Ken Hensley (Uriah Heep).

Fimmtudagur
Þvo þvott, taka til, pakka, taka létta æfingu

Föstudagur
Fljúga út til New York til Sigurjóns.  Eyða 1-2 dögum með honum þar.

Mánudagur
Mættur til Kristínar Birnu og byrja að æfa eins og brjálæðingur.

Fyndið hvað seinustu 10 dagar eru búnir að vera frekar óspennandi, og svo hvað þessi á eftir að byrja illa en svo bara hægt og rólega batna og batna! :D

kl. 8:07 | Athugasemd (1)

18.4.2008 : Seinustu dagar

Punkta bloggið klassíska

  • Fann að ég var byrjaður að veikjast lítilega rétt fyrir helgina. Smá svona kvefskítur.
  • Strákahittingur hjá Tobba á föstudeginum.
  • Útbjó massaborgara fyrir 7 manns á laugardeginum. Átti upphaflega bara að vera easy rólegt kvöld en breyttist einhvern veginn í einhverskonar partý.
  • Kíkti örstutt niður í bæ.
  • Massa rólegur og góður sunnudagur. Skemmtilegur hittingur heima hjá Hafdísi með crewinu.
  • Heavy fín sprint æfing á mánudeginum. Allt gengur mjög vel. Hengum svo í sundi þremenningarnar ég Tobbi og Bjöggi alveg fram að lokun, vel soðnir.
  • Fínt interval, hopp og lyftingar á þriðjudeginum.
  • Pantaði far til Californíu - þessvegna setti ég nú inn California Waiting með Kings of Leon. Sem er btw eitt besta live band sem hægt er að fára á.
  • Kvefið náði yfirhöndinni aðfaranótt miðvikudags, hálsinn og nefið alveg farið. Smá ógleði og svona.
  • Lét mig hafa það að kíkja í skólan og taka létta æfingu á miðvikudeginum. Tók 2666% af ráðlögðum dagskammti af C-vítamíni. Basically overdose-aði af vítamínum og hvítlauks töflum.
  • Á fimmtudeginum hékk ég heima eins og aumingi.
  • Líður miklu betur í dag, held að ég hafi bara ná þessu úr mér. Spurning um að taka létta æfingu og borða vel og þá verður maður hress sem fress á laugardaginn.


kl. 15:11 | Athugasemd (1)

15.4.2008 : Úje!

kl. 10:39 | Athugasemdir (4)

12.4.2008 : Mega skrítið nudd

Veit ekki alveg hvort ég eigi að skella þessu inn eða ekki, en ákvað svo að láta flakka.

Fór nefnilega alveg stórmerkilegt nudd í gær. Ákvað með stuttum fyrirvara að reyna skella mér í nudd, þar sem ég var allur mjög stífur og þreyttur. Sendi því SMS á Sigga nuddara sem ég er vanalega hjá: "Hey sorrý stuttan fyrirvara en áttu lausan tíma í dag". Því miður var það ekki raunin, ég bjóst svosem ekki heldur við því, enda var ég að biðja um tíma með 2 klst fyrirvara.

Þá mundi ég eftir að Elín sjúkraþjálfari hafði bent mér á stofu þar sem einhver austur-evrópskur hardcore nuddari væri að vinna. Vær einmitt mjög fyndið, því að þetta væri svona snyrti/nuddstofa og því væru margar konurnar sem ætluðu að fara í svona klapp nudd og en löbbuðu bara heim lestraðar algjöra óvanar hardcore rússnesku íþróttanuddi.

Þegar ég mæti á staðinn, tek ég strax eftir því að í biðstofunni situr virkilega sæt stelpa á svipuðum aldri og ég. Sem single strákur er það fyrsta ég hugsa var náttúrlega "hey nice, vá hvað hún er sæt". Bjóst við að þetta væri kúnni en svo stendur hún upp og spyr á ensku "are you here for the massage" og það kemur smá fát á mig "eh yes" og hugsaði bara "eeeh ertu að grínast", var svona á báðum áttum hvort ég fílaði þetta eða ekki. Hún var alveg ótrúlega vel vaxin og myndarleg en aftur á móti hef ég slæma reynslu af kvennkyns nuddurum þar sem ég fæ yfirleitt bara klapp hjá þeim. Ég vil nefnilega láta taka vel á mér og þessvegna hafði austur-evrópski nuddarinn heillað, en hann hefur klárlega ekki verið eins sætur og þessi stelpa.

Jæja svo hún spyr mig hvort ég hafi komið hingað áður sem ég neita, þannig að hún réttir mér handklæði og fer með mig smá túr. Sýnir mér búningsklefan, sturturnar og saununa sem ég gæti farið í fyrst til þess að mýkja mig aðeins meira upp.

Ég klæði mig náttúrlega úr fötunum og sest inn í saununa með handklæðið vafið utan um mig. Þegar ég er svo búinn að svitna smá og orðinn mjúkur og góður, skelli ég mér í sturtuna og labba svo fram til hennar. Ég var ekki alveg viss hvernig þetta færi fram þarna þannig að ég spyr hvort ég eigi bara að vera svona eða fara í nærbrók og fæ á móti "this is better".

Þá er ég kominn inn nuddherbergið sjálft, þar sem hún segir mér að leggjast á magan á bekkinn, koma mér vel fyrir og hún komi eftir smá stund. Þannig að ég leggst náttúrlega þarna bara með handklæðið utan um mig undir þetta örþunna lak. Þegar hún kemur svo inn spyr hún að þessu basic stuffi eins og "are you comfortable" sem ég náttúrlega bara játa og svo kemur allt í einu upp úr þurru "can I take the towel now?" og náttúrlega "eeeh yeah ok" þannig að hún tekur handklæðið af mér og þá ligg semsagt þarna butt naked undir þessu örþunna laki sem pottþétt allt sést í gegnum.

Ég náttúrlega hugsaði bara "Hmmm þetta verður eitthvað skrítið hehe". Svo byrjar hún að nudda og byrjar á iljunum og þar í kring. Nema að hún er ekkert að ýta heldur bara dælir nudd olíunni, þannig að ég er alveg löðrandi. Ég hef farið ó óteljandi mörg nudd hjá alveg slatta af mismunandi nuddurum og ég hugsaði bara "vóvóvó hvað þetta er mikil olía". Svo til þess að gera þetta ennþá skrítnara að þá til þess að geta nuddað lærin að þá þarf hún að færa lakið af öðrum fætinum og svona festa það á milli lærisins og djásnana. Og til að toppa þetta að þá er ég náttúrlega ekki í neinum nærbuxum þannig að ég er bara næstum alveg berskjaldaður þarna í gegnum þetta örþunna lak. Hún var heldur EKKI að nudda fast heldur bara svona strjúka og ég sver það ég hugsaði bara "sjitt ef hún fer ekki að ýta fastar og minnka þessa olíu að þá verður vesen og algjör vandræði þegar ég á að fara snúa mér við".

Þannig að þarna er ég að reyna slaka eins mikið á og ég mögulega get, en ég hef greinilega ekki verið duglegur í því þar sem ég fékk reglulega "its very important for you to breath with the massage" og eina sem ég er að hugsa er bara "já í alvöru, þú segir ekki!".  Svo náttúrlega endurtekur leikurinn sig á hinum fætinum og hún þarf að "festa" lakið  aftur, nú hinum megin og ég er bara "hmm defintive snerting aftur".

Þá er komið að mjóbakinu og þjófhnöppunum þarna í festingunum á milli mjóbaksins og rassins. Þetta er alltaf leyst þannig í nudd að þá brýtur nuddarinn lakið svona í nærbuxurnar og dregur þær örlítið niður. En ég var náttúrlega ekki í neinum nærbuxum þannig að það var bara allt lekið tekið niður að lærum!

Þannig að þá ligg ég þarna með rassinn upp í loftið og það er ekkert verið að ýta olnboganum í festingarnar, nei nei það er bara nógu mikið af þessari helvítis olíu og svo mjúkar strokur. Þarna var mér sko alveg hætt að lítast á bikuna.

Sem betur fer er ég nú maður með stáltaugar og viljastyrk á háu leveli þannig að ég náði nú að halda öllu í réttu formi og það varð ekkert vesen þegar ég þurfti að snúa mér við. Nema auðvitað að lakið var svo öööörþunnt að ég hugsaði bara sénsinn jénsinn að ég sé ekki berskjaldaður þarna og það sjáist ekki í gegn.

Nú ligg ég semsagt á bakinu og enn aftur þarf að festa lakið á milli lærisins og djásnana og eina sem ég get hugsaði er bara "er ekki verið að grínast í mér". Sama sagan líka með þessa olíu, bara setja nógu andskoti mikið og svo strokur alveg upp innanvert lærið.  Áfram fæ ég svo náttúrlega að heyra "its very important to breathe" sem er kaldhæðnislegt því að ég er bara að hugsaði var bara "SLAKA Á!!".

Svo byrjar hún á höndunum með þessum sömu strokum og rennir svo fingrunum svona ill á milli fingrana hjá mér þannig að hendurnar svona hálfpartinn læsast saman eins og við myndum haldast í hendur (eða fara í krumlu nema bara rólega með slatta olíu).

Svo staðsetur hún sig við höfuðið á mér og byrjar að nudda brjóstvöðvana, sem ég hef sjaaaldan lent í. Þarna stendur hún fyrir ofan mig að strjúka brjóstvöðvana og svo niður magan, alveg löðrandi í olíu og ég bara "anda, anda, anda"

Svo tekur hún axlirnar og hálsinn en lyftir mér alltaf upp þegar hún rennir höndunum undir bakið þannig að hausinn á mér svona lyftist í átt að höfðinu hennar, það nálægt að maður fann lyktina af henni og andardráttinn og þá var ég nú alveg að fara missa það, en reyndi bara að hugsa um að vera sem eðlilegastur, og þökk sem sjálfstyrk, vilja og stáltaugum að þá hafðist þetta nú að lokum og þessum blessaða nuddtíma lauk án vandræða.

Hún kveður og ég fæ svona tíma til að slaka og standa rólega upp. Ég fer upp og borga og tek eftir því að hún er farin, enda var ég seint í nuddi þarna, var ekki búinn fyrr en 19:30. Þegar ég labba svo útaf stofunni, tek ég eftir að hún stendur hinum megin við götuna við strætóstöð og byrjar að vinka mér. Ég náttúrlega bara vinka á móti og kalla eitthvað "takk takk" og hoppa upp í bíl og heim!

Vaknaði daginn eftir aaaalveg jafn stífur, allavega í löppunum, bakið lagaðist alveg ágætlega. En þetta er með því mest absúrd hlutum sem ég hef lent í á ævinni!



kl. 13:39 | Athugasemdir (2253)

10.4.2008 : Knocked out!

Úff hvað ég var rotaður í morgun mar. Langt síðan að ég hef fílað mig svona. Stundum þarf maður svona að hafa sig við til að rífa sig upp úr rúminu, en það var ekki break í morgun, bara ekki fræðilegur.

Mamma kom kl 07:30 og ýtti við mér, Ingibjörg systir kom inn kl 08:00. vekjaraklukkan hringdi klukkan 08:10. Ég fékk sms klukkan 09:00. Hin vekjaraklukkan hringdi klukkan 09:40 (backuppið sko). Síminn hringdi klukkan 10:00. Ég fékk annað sms klukkan 10:10 og ég ruuuumskaði ekki við þetta allt saman. Bara svaf sem fastast. Ég er ekki frá því að Rússar hefðu getað sent inn sprengjuflugvélar á Kópavoginn og ég hefði sofið í gegnum það og vaknað bara í rústunum.

Ég rúmskaði svo loksins klukkan 12:00, fattaði ekkert hvað ég var búinn að sofa lengi, leit á klukkuna og bara "SJITT". Það fyndna er að ég hefði alveg getað legið lengur upp í rúmi, var alveg það þreyttur en ákvað að maður þyrfti nú að fara koma einhverju í verk. Sit hér því á naríunum að blogga. Spurning um að fara drífa sig í föt og gera eitthvað.



kl. 12:40 | Athugasemdir (4)

7.4.2008 : Blaður

Skellti mér í bíó um föstudeginum með Sverri og Höllu. Myndin sem varð fyrir valinu var Vantage Point, mér fannst hún bara nokkuð skemmtileg með mjög kúl pælingu.

Ég þurfti reyndar að kötta á kvöldið þar sem ég þurfti að mæta snemma niður í laugardalshöllina þar sem MÍ 12-14 ára var haldið bæði á laugardag og sunnudag. Ég er semsagt byrjaður að þjálfa hjá Breiðablik og mest öll helgin fór því í þetta mót. Ég get ekki sagt annað en að krakkarnir hafi staðið sig ótrúlega vel, hellingur af bætingum og nokkrir titlar í hús og eitt íslandsmet.

Á laugardagskvöldinu sjálfu kíkti ég svo með Önnu til Óla, þar sem við sátum bara spjölluðum og höfðum það rólegt. Þegar leið á kvöldið kíktu nokkrir eldhressir gaurar við og fólkið dreif sig niður í bæ á Techno kvöld, en ég dreif mig bara heim upp í rúm.

Á sunnudeginum átti ég svo sunnudagsmatinn. Ég ákvað að bjóða upp á Piri Piri kjúkling með grillaðri grænmetisblöndu og ferskt ávaxtasalat með ís og nóakroppi í eftirrétt. Heppnaðist allt saman mjög vel. Systur mínar voru reyndar ekki alveg að höndla hvað kjúklingurinn er sterkur. Á flöskunni stóð "Blandan er mjög sterkt, farið varlega með óreynda bragðlauka" þannig að auðvitað sturtaði ég bara úr henni allri og kryddaði svo aukalega með Piri Piri kryddi ;) Mér fannst þetta allavega gott, sterkur kjúklingurinn með mildu grænmetinu.

Kvöldinu eyddi ég heima hjá Tobba. Þar sem ég slappaði af upp í sófa, nartaði á fríhafnarnammi og horfði á spólu. Algjör leti og kæruleysis stemming.

Pínu mórall hvað maður er búinn að borða of mikið og æfa of lítið bæði á laugardeginum og sunnudeginum. En ég þurfti þess kannski bara á þessa að halda.



kl. 12:05 | Athugasemdir (3)

4.4.2008 : Just take these old records of the shelf

Haha man einhver eftir því þegar Tom Cruise var ekki geðveikur í orðsins fyllstu merkingu.

Afhverju hefur mér aldrei dottið þetta í hug þegar ég er einn heima um helgina?

Trivia: Flottu Ray Bahn waferarnir sem allir kepptumst við að eignast á sínum tíma (og nú nýverið) eiga einmitt þessari mynd mikið að þakka.

kl. 9:23 | Athugasemd (1)

2.4.2008 : Svefn

Það eru búnar að koma nokkur kvöld þar sem ég á mjög erfitt með að sofna og/eða sef mjög illa. Fyrir stuttu ætlaði ég að reyna vera skynsamur og leggjast upp í rúm klukkan 22 en allt kom fyrir ekki og ég sofnaði um fjögur leytið. Maður var búinn að reyna allt þetta týpíska, standa upp fá sér vatns- eða mjólkurglas, rölta smá um, etc, etc.

Í gær aftur á móti sofnaði ég strax og svaf eins og ungabarn. Var nefnilega snjall og veðraði sængina mína út í sólinni í gær. Skiptu um á rúminu, skellti mér svo í heita sturtu og beint undir sæng. Það er fátt betra en að leggjast upp í rúm undir hrein og ný rúmföt. Jú kannski að láta þvo á sér hárið.



kl. 12:50 | Athugasemdir (8)

31.3.2008 : Sviss ferðin verður dýrari

Helvítis krónan!

Ég og Bjöggi lentum í Sivss um kvöldmatarleytið, og áttum pantaðan bíl hjá National. Við vorum vopnaðir korti frá Google Maps til að koma okkur til Robba og það gekk bara alveg ágætlega.

Sviss er með fínar hraðbrautir svosem, en það er tvennt sem maður tók strax eftir. Það er ekkert upplýst, orkan er ekki "gefins" eins og á Íslandi og því eru engir ljósastaurar og maður getur ekki notað háu ljósin því að það er stanslaust af bílum, annaðhvort fyrir framan mann eða að koma á móti manni.

Hitt var svo það að Sviss er þannig byggt að það er hellingur af litlum þorpum meðfram götunum og því er hámarkshraðinn stanslaust að breytast alveg frá 120 niður í 100, í 80 aftur upp í 120 og svo alveg niður í 60 á sumum stöðum.

Á leiðinni til Robba að þá fór maður í gegnum eða framhjá nokkrum svona bæjum og við vorum ekki alltaf alveg vissir hvaða hraði væri gildandi, auk þess sem við sáum voðalega lítið út fyrir. Það er ekki alveg eins bjart þarna og á Ísland á kvöldin, í raun bara niða myrkur.

Þannig vill það til að ég er að keyra þegar ég allt í einu hálf blindast af rosalegum rauðum blossa. Var ekki alveg viss hvað þetta væri en við hugsuðum báðir "oh sjitt ekki myndavél".

Í dag fékk ég bréf eða réttarasagt reikning upp á 163 franka fyrir of hraðan akstur í Sviss og miðað við gengi krónunnar að þá á þetta eftir að kosta an arm and a leg!

Uppfært kl 18:13

AAARG Ég hélt að þetta væri tvírít, en nei takk fyrir. Við vorum teknir tvisvar fyrir of hraðan akstur. Í fyrra skiptið á 89 km/klst þar sem 80 km/klst og borgum 143 franka þar. Í seinna skiptið á 69 km/klst þar sem 60 km/klst og borgum 163 CHF þar. Samtals um 300 yndislega franka! Þökk sé þessari blessaðari krónu og efnahagslífinu á Íslandi borgum við ennþá hærra núna, en ef þetta hefði verið greitt meðan við vorum úti. Yndislegt alveg :D

kl. 14:49 | Athugasemdir (5)

30.3.2008 : Lítið að frétta

Það er ekki mikið að frétta þessa dagana, þótt það sé nóg að gera. Maður er bara að læra, æfa og hanga. Lærdómurinn gengur svona la la, æfingarnar ganga bara óvenju vel og jah það að hanga er ekki svo erfitt.

Var reyndar fljótur að hringja í Tobba um leið og hann lenti á fimmtudeginum. Ég var búinn að hanga einn heima of mikð þannig að við skelltum okkur á Krua Thai og enduðum svo bara heima hjá kallinum í góðri afslöppun/spjalli.

Á föstudaginn var ég plataður af frænku minni til að hjálpa sér flytja. Var alveg búinn á því, búinn með tvær æfingar um daginn og kvöldæfingin var 3 klukkutíma hopp- og lyftingaræfing. Fór semsagt heim eftir kvöldæfingu, fékk mér að borða og eyddi föstudagskvöldinu í að bera skápa, sjónvörp, frystikystur, þurrkara og ég veit ekki hvað og hvað upp á 4 hæð á blokk sem er ekki með lyftu! Sjitt hvað ég var alveg búnn á því þegar ég kom heim um miðnætti.

Í gær átti Hrönn vinkona afmæli og ég ákvað að sjálfsögðu að kíkja. Hún var reyndar búin að "vara mig við" að hún hafi bara boðið vinkonuhópnum og svo mér. Ég veit ekki afhverju hún hélt að það myndi hljóma illa í mínum eyrum. Þannig að ég eyddi laugardagskvöldinu umkringdur stelpum. Veit samt ekki hvort ég megi túlka það sem hrós að vera eini karlmaðurinn á svæðinu eða hvort ég sé einfaldlega talinn einn af stelpunum!

Ég gaf henni svona heimatilbúin pakka. Setti semsagt saman á flotta plötu, gott rauðvín, kex, osta og sultur, olívur og svo Portishead diskinn dummy. Hún er rosalegur tónlistar unnandi og dýrkar gott rauðvín þannig að ég hugsaði það væri nice nice að hlusta á Portishead, sötra á rauðvíni og narta í osta.

Dagurinn í dag verður eitthvað eirðarlaus, nenni ekki alveg að læra ef ég á að vera hreinskilinn. Er að pæla að skella mér í sund og reyna svo kannski að hreinsa bílinn eða eitthvað.



kl. 11:49 | Skrifa athugasemd

26.3.2008 : Peningar

Peningamál innan vinahóps er merkilegur hlutur. Ég er svo heppinn að eiga vinahóp sem er ekki með stanslausar áhyggjur. Ég veit aftur á móti, að í mörgum vinahópum þarf að halda strangt bókhald um hver keypti hvað, annars er það yfirleitt sami einstaklingur sem borgar alltaf á meðan hinir reyna sleppa.

Í vinahópnum hjá mér, jafnast þetta svona nokkurn veginn út hér og þar. Það hafa þetta allir bakvið eyrað. Ah Jón bauð okkur í mat, þá býð ég næst, eða ég borgaði bíómiðana, Jón borgar næst. Svoleiðis jafnast þetta held ég nokkurn veginn. Því allir í hópnum hugsa um þetta og passa að enginn einn sé alltaf að standa í því að borga. Hjá sumum er þetta ekki svona einfalt, ég hef heyrt sögur að menn séu jafnvel að rukka inn kókdós sem kostaði 100 kr.

Þrátt fyrir þetta ákvað ég nú svona að renna lauslega yfir bókhaldið. Tékka á þessum stóru hlutum. Ég þarf reyndar ekki að stressa mig á þessu því ég lána aðeins fólki sem ég veit að borgar. Verð að viðurkenna að það var samt frekar fyndið að sjá að ég get rukkað inn 110.000 kr. Verið því ekki hissa ef Anni kallinn bankar upp á hurðina á næstunni.



kl. 11:45 | Athugasemdir (5)

25.3.2008 : Páskarnir

Jæja þá er páskunum lokið. Ég man ekkert hvaða málshátt ég fékk. Seinustu dagar eru búnir að vera voðalega rólegir. Hef að mestu eytt öllum tímanum með fjölskyldunni. Pabbi keypti dálítið af ostum/vínberjum fyrir hátíðarnar og við erum búin að vera dugleg að narta í það fyrir framan góðar kvikmyndir, voðalega rólegt og nice allt saman.

Kíkti til Hafdísar og Sveinbjörns á laugardaginn, þar sem við höfðum það bara líka notalegt og rólegt. Sá endan á Love Actually en Hafdís var búin að vera hneykslast á að ég hafði aldrei séð hana. Um seinustu jól reyndi ég því að horfa á hana en náði ekki að klára. Nú þarf ég bara horfa á Pretty Woman og þá er ég orðinn fullgildur fyrir Hafdísi.

Ég heyrði líka í honum Óla á laugardaginn og við skelltum okkur á "dinner & a movie". Fengum okkur að borða á TGI þar sem ég fékk mér meira að segja einn bjór með matnum. Kíktum svo á The Bucketlist með Jack Nicholson og Morgan Freeman. Tveir magnaðir leikarar, verst að þeir hafi ekki fengið stórmynd til að leika saman í. Fín skemmtun samt.

Á páskadag var aðeins fjölmennara en venjulega (held ég, ég hef náttúrlega alltaf verið erlendis). Mamma er svo ótrúleg fjölskyldu manneskja og góð í sér. Allir sem hún vissi að væru einir á páskunum voru nefnilega boðaðir yfir í mat. Auk þess sem við sóttum vinkonu Heiðar sem er nýbúinn að missa afa sinn. Aðeins að reyna létta undir og hjálpa til.

Um kvöldið lagðist ég bara upp í rúm og horfði American Gangster meðan ég nartaði í afganginn af páskaegginu. Núna tekur aftur á móti alvaran við. Ég ætla skella mér á æfingu og hlaupa ostana og páskaeggið af mér.

Annars er líka ótrúlega gaman að minnast á það að hún Jóhanna frænka og Gunni voru að gifta sig. Þau fóru út til Florída í nokkra mánuði útaf flugnáminu sem Gunni er í. Þau ákváðu að vera ótrúlega spontant, boðuðu nánustu fjölskylduna út og SUPRISE: gifting. Veit ekki hvort ég megi leka þessum myndum út, en Jóhanna skammar mig þá bara.

Brúðkaup

Fjölskyldan



kl. 13:11 | Athugasemd (1)

21.3.2008 : Home Alone

Ætlaði að finna mér eitthvað sniðugt að gera í gær þegar ég fattaði ég er einn eftir á þessum blessaða klaka!

  • Robbi er út í Sviss
  • Trausti er út í DK
  • Jón Karl er út í USA
  • Sigurjón er út í USA
  • Sverrir skrapp til DK
  • Bjöggi skrapp til Portúgal
  • Tobbi skrapp til Tenerife
  • Óli Tómas skrapp til Portúgal


kl. 15:11 | Athugasemdir (11)

18.3.2008 : Always have to still my kisses from you

Fæ þetta lag annars lagið algjörlega á heilann, það er svo auðvelt að raula með því. Svo fæ ég líka alveg feitt flash back frá New Orleans; sitja út í sólinni, með kaldan Bud í hendi, hlusta á þetta lag, hreyfa líkaman og klappa í takt og raula þetta stef með.

Nóg um það. Í fréttum er það helst að ég hef ákveðið að útnefna mig sem Wingman of the Year. Er kannski ekki búinn að vera öflugur í kvennamálunum þetta árið (hóst frekar en hitt árið), en það verður ekki tekið af mér að ég er búinn að vera standa mig í stykkinu sem wingman.

Skellti mér aftur á brettið í gær með Óla Tómasi. Var ekki alveg sáttur við frammistöðuna mína, miðað við laugardaginn en náði þó nokkrum góðum move-um. Hlynur sem er brotinn á hendi fór upp í fjallið (í 3 eða 4. skiptið eftir brotið) og náði að slasa sig enn frekar. Dálítið erfitt að vera á snjóbretti ef maður dettur og má ekki setja höndina fyrir sig vegna gifs og þarf að láta öxlina fyrir sig. Hann er þessi gáfa týpa, þið skiljið.

Samt dálítið overkill að taka morgunæfingu, hádegisæfingu, þjálfa, og hanga svo á snjóbretti og vera kominn í bæinn klukkan 10 um kvöldið. Pínu þreyttur. Stoppaði mig samt ekki í hanga heima hjá Bjögga til tvö um nóttina með strákunum.



kl. 14:19 | Athugasemd (1)

16.3.2008 : Sálin og bretti

20 ára afmælistónleikar Sálarinnar voru virkilega góðir. Ekki það að ég sé eitthver mikill sálarfan en þessi hljómsveit hefur bara haft gríðarlega mikil áhrif á íslensk tónlistarlíf og dægurlagamenninguna. Lagasmiður eins og Gummi sem fær söngvara eins og Stebba, ekki slæmt combo. Svo bætast við heljarinanr spilamenn eins og Jóhann Hjörleifs og Jens Hansson. Tónleikarnir voru afar vel heppnaðir og með þeim betri/skemmtilegri sem ég hef farið á í höllinni.

Sleppti því að fara í eftirpartý-ið á nasa, þar sem

a) Náði ekki að plata neinn með mér
b) Ég þurfti að mæta á æfingu daginn eftir kl 10

Laugardagurinn var alls ekki slæmur heldur nefnilega. Byrjaði á að taka fínt interval út í -6° kuldanum, þar sem höllin var lokuð. Alveg ótrúlegt hvað þessi höll gerir mikið fyrir íslenskt frjálsíþróttalíf (p.s verður EKKERT opin um páskana). Náði svo smá hita í kropinn með að fara innn og lyfta áður en ég rauk upp í bláfjöll með systkinum mínum þar sem ég ætlaði að hitta Hrönn og Sigurjón. Veðrið var alveg hreint geggjað og færðin yndisleg.

Ég gat þó lítið rennt mér með þeim, þar sem ég var í kennsluhlutverkinu að kenna Heiði systur og Ingibjörgu á bretti. Reif þær strax upp kónginn og lét þær renna sér niður öxlina. Var ekki nema svona rúmlega 1,5 klst að komast niður brekkuna með þær. En þær eru orðnar bara nokkuð góðar verð ég að segja.

Endaði svo þennan fína dag heima hjá Hafdísi þar sem hún var búin að smala í fámennt en afar góðmennt partý. Þar var bara setið, spjallað og notið félagsskapsins. Verð að minnast á það samt að ég fékk ekki mörg kúl-prik innan um alla nýju foreldrana við að byrja söguna á "já við ákváðum semsagt bara að skella okkur til Svissnesku alapana með litlum sem engum fyrirvara".

Var svo velta fyrir mér hvort ég ætti að kíkja niður í bæ þar sem Óli Tómas var í partý-i hjá Gunna Bergmann, en hætti við og lagðist bara upp í rúm.



kl. 11:02 | Athugasemdir (3)

14.3.2008 : Hauling Ass

Já það var það sem ég var að gera í gær í fjallinu. Vá hvað ég dýrka brettið mitt. Fjallið var brilliant, færðin mjög góð, lítið af fólki, veðrið var hinsvegar ekkert súper, vindur og skafrenningur. Lagaðist samt eftir því sem leið á kvöldið. Ég fór semsagt með Sverri, Höllu og Röggu upp í bláfjöll og svo fékk Hlynur bróðir að teika.  Það var reyndar mjög fínt, því þá var ég ekki eini bretta maðurinn.

Sverrir má eiga það að hann er helvíti lúnkinn á skíðunum, verst bara að hann er á skíðum og lúkkar því bara eins og auli, alveg sama hversu hratt hann fer, eða hversu flott trikk hann púllar.

Helgin verður nokkuð þéttsetin held ég, allavega of margir að spurja hvað eigi að gera, sem þýðir yfirleitt að maður endar á að sofa alltof lítið.

Planið í dag er samt nokkuð solid. Ætla að skella mér á æfingu bráðlega. Hugsa að ég taki bara saman morgunæfinguna og kvöldæfingu í hádeginu. Vaknaði nefnilega í seinna laginu og get ekki verið lengi á æfingu í kvöld. Verður samt dálítið brútal, sjáum hvort ég meiki það.

Ástæðan fyrir að ég get ekki verið lengi á æfingu í kvöld er að M&P ætlaðu að elda einhvern gourmet mat og bjóða svo familíunni á afmælistónleikana með Sálinni. Verður án efa mjög gaman. Hver veit nema að maður skelli sér í eftirpartý-ið á Nasa. M,P og stelpurnar fara LÍKLEGAST ekki þannig að ég ætti að geta troðið miðum á vinina.



kl. 11:31 | Athugasemd (1)

13.3.2008 : Æfingar og bretti

Úff púff. Mér líður eins og það sé október! Maður er kominn á hörku prógramm að reyna að koma sér í form og allur líkaminn er vel stífur og þreyttur. Hef samt gaman að því, eins leiðinlegt og það er að vera formlaus, er líka ótrúlega skemmtilegt að finna hvernig maður batna á hverjum degi.

Easy dagur í dag, þannig að ég ætla bara að taka æfinguna, þjálfa krakkana og skella mér svo upp í fjall með Sverri. Langar að æfa mig í svona ground-trikkum eins og að smyrja:

Bjöggi, Óli og Sigurjón fóru í gær og planið var að fara með þeim. En þurfti að þjálfa á þessum tíma, vorum með krakkana að taka tíma á þeim niður í höll í 200 m og kenna þeim boðhlaup. Var því niður í höll frá 16:00 til 20:30 eiginlega, því ég tók fyrst æfinguna mína.

Semsagt planið í dag: Æfing+þjálfa+fjallið.

kl. 11:39 | Athugasemd (1)

10.3.2008 : Ágætis helgi

Vikan gekk sinn vanagang, og helgin var bara hin fínasta. Á föstudeginum kíkti ég til Tobba Töffara ásamt Bjögga Rugl þar sem við elduðum okkur massaborgara, sem hefur bara sjaldan verið jafn vel heppnaður. Held að við séum búnir að ná hinni fullkomnu uppskrift núna.

Á laugardaginn hringdi svo Sverrir í mig og var að spá í að elda eitthvað gourmé. Aprikósuhúðaðar lynghænur með döðlusósu varð fyrir valinu. Heppnaðist bara alveg ágætlega hjá okkur. Nokkrir hlutir sem þarf að fínpússa hér og þar. Var reyndar miklu lengur hjá Sverri en ég hafði ætlað mér. Ástæðan var aðallega að hann þurfti á Hitcharanum að halda til að hafa smá Wingman fyrir kvöldið.

Þegar verki mínu var lokið þar skaust ég svo út í Hafnafjörðinn til Óla Tómasar sem var með svona hálfpartinn afmælispartý. Enduðum svo niðri í bæ.

Bæjarferðin virtist ekki ætla að verða merkileg en þegar ég var að gefast upp á bænum, snérist allt algjörlega við. Óli var að reyna halda mér í bænum með einhverju rugli eins og ef við myndum hitta Unni Birnu og það myndi eitthvað gerast. Ég hló náttúrlega bara og sagði að ef það myndi gerast eitthvað milli hans og Unni Birnu hefði hann algjöra stjórn yfir mér út árið (þe.a.s. ég gerði allt sem hann segði mér að gera). Þannig að hann byrjar að fíflast og spyr einhverjar stelpur hvort þær hafi tekið þátt í Ungfrú Heimur. Þá svarar stelpan "Nei en ég heiti samt Unnur Birna" Haha hverjar eru líkurnar.

Tussi Þruma átti líka helvíti gott move, sem byrjaði sem mönun hjá okkur strákunum en virkaði svona furðulega vel, öllum til undrunar. Ég er ennþá að reyna fatta þetta. Enduðum svo á Oliver til að hitta Tobba sem var að dansa mestmegnis ber að ofan fyrir konurnar þarna. Ég hélt að þessi stelpa þarna inni myndi nauðga honum á dansgólfinu. Hún var allavega ekki á því að sleppa honum þegar við vorum að gera okkur líklega til að fara.

Fljótlega eftir það dreif ég mig bara heim, sem virðist bara hafa verið hárrétt tímasetning, því eftir það virtist bara allt fara gjörsamlega í ruglið.

Sunnudagurinn var svo bara tjill of afslöppun, kíkti til Hafdísar og heilsaði upp á Sigurjón sem er kominn á klakann.  Náði þó ekki að vinna upp svefninn sem ég missti um helgina og var því alveg dauðþreyttur allan daginn. Það stoppaði mig samt ekki í því að fara seint að sofa á sunnudaginn líka.

Svaf þó út í morgun, smá kæruleysi í gangi, en er allavega útsofinn núna.



kl. 0:51 | Skrifa athugasemd

7.3.2008 : Version

Um miðjan febrúar sendi ég og Hlynur póst á RÚV þar sem var verið að gefa erlendu plötu vikunnar: Mark Ronson - Version. Þessi gaur er í raun pínu eins og Pharell/Neptunes þeirra Breta.

Mark Ronson

Búinn að vera bakvið ótrúlega marka flytjendur, bæði sem lagahöfundur en samt aðallega í útsetningu. Hann er líka að verða orðinn einn heitasti plötusnúðurinn út í New York / LA.

Nú nýlega gaf hann út plötu sem heitir Version og náði mér strax við fyrstu hlustun. Platan eru semsagt hin og þessi lög sem hann hefur sett í sinn búning (basically hans version af lögum). Þarna er að finna lög með Kasabian, Radiohead, Kaiser Chiefs, Coldplay, Britney Spears og fleiri og fleirum. Útgáfurnar eru svona hálfpartinn big-band-hip-hop. Ótrúlega nettir taktar með isnane blástursútsetningum.

Mæli t.d. með eftirfarandi á YouTube

Það má alveg deila um hvaða útgáfur eru betri, en mér finnst margar þeirra skemmtilegar og frumlegar. Maður er t.d. alltaf hræddur þegar einhver coverar lög eins og Just með Radiohead, en í þessu tilfelli finnst mér það tókast ótrúlega vel upp.

kl. 3:13 | Athugasemd (1)

4.3.2008 : Alparnir

Þá er maður kominn heim úr Svissnesku ölpunum. Þetta var alveg ótrúlega vel heppnuð ferð. Við lögðum af stað á þriðjudaginn um þrjú leytið og vorum mættir um miðnætti til Robba. Við flugum semsagt kef-köben-zurich og þaðan með bílaleigu bíl til Neuchatel.

Í flugvélinni

Auðvitað stemmdi ekkert það sem hafði staðið á netinu en eftir smá prútt og tiltal náðum við verði sem við vorum nokkuð sáttir með, ákváðum m.a. að sleppa tryggingu enda frábærir bílstjórar. Ég skil heldur ekki að við þurftum að borga sem "Young Drivers", þrátt fyrir að vera 25 og vera búnir að vera með bílpróf í 8 ár. Massa skrítið. Vorum samt voðalega ánægðir með að hún hafði gefið okkur "free upgrade" á bíl en við hlógum mikið þegar við mættum því fengum Peugot 307 sem hefði ekki mátt vera sentimetra minni til þess að brettin kæmumst í hann. Við vöktum svo Robba þegar við mættum á svæðið enda vorum við ekkert búnir að láta heyra í okkur og Robbi vissi ekki hvort við værum lífs eða liðnir.

Bjöggi að pikka upp brettin á flugvellinum

Á miðvikudagsmorgun vöknuðum nokkuð snemma og tilbúnir í Alpana. Við byrjðum reyndar á að kíkja í mollið, þar sem ég ætlaði að fjárfesta í nýu bretti og við þurfum að fá okkur að borða þar sem við fundum EKKERT heima hjá Robba, brauðhnífar, ostaskeri og aðrar nauðsynjar til að útbúa sér samloku voru algjörlega faldar. Bjöggi náði helvíti góðu momenti þegar hann keypti wax í sportsbúðinni, en mundi svo ekki pin-númerið á visanu, ætlaði þá að nota debetið en mundi heldur ekki pin-númerið þar, þannig að ég reddaði honum með kortinu mínu. Hann hélt samt áfram að brillera því þegar hann var búinn að fatta hvað pin-númerið væri (eða það hélt hann allavega) fór hann í hraðbanka og lét hann stela kortinu frá sér, því pin-númerið passaði ekki. Visa kortið hans Bjögga varð því eftir í Sviss.

Þegar við keyrðum svo upp í Alpana var ég sjálfskipaður bílstjóri með Bjögga sem navigator full útbúinn með kort og leiðbeiningar frá google.

Bergur driver

Það gekk bara fáránlega vel og við vorum enga stund að koma okkur á staðinn. Ég fór líka að hugsa um setninguna "It's the jorney not the destination" því á leiðinni upplifðum við eitt fallegasta náttúru landslag sem fyrirfinnst held ég bara. Fólk talar alltaf um hvað Ísland er fallegt land og það er satt, en Sviss er þarna á toppnum með okkur engin spurning, fjalla hlíðarnar, engin mengun, stöðuvötnin og þessi hús sem eru í raun bara bjálkakofar í miðri sveit. Vá hvað ég væri til í að vera þarna. Þarna fundum við líka drauma bæinn, lítill bær við stórt stöðuvatn við fjallshlíðina, umkringdur ölpunum. Ég er ekkert að grínast þegar ég segi bara beint út þarna væri ég til í að flytja.

Vidjóið er reyndar ekki það besta, þannig að ég stal eftirfarandi mynd á netinu.

leissigen

Fljótlega komum við svo í Grindelwald sem er lítill bær við rætur alpana inn á milli tveggja fjalla, þannig að það er hægt að fara upp hvoru meginn sem er. Þetta er svo töff svæði og möguleikarnir eru endalausir.

Grindelwald skíðasvæðið

Í miðjunni er semsagt Mannlichen svæðið og fyrir ofan það Kleine Scheiddeg og Jungfrau. Vinstra meginn við hrygginn í miðjunni er bærinn Grindelwald. Hann er semsagt mitt á milli Mannlichen og First sem er svæðið vinstra meginn. Hægra meginn við Mannlichen hrygginn er svo Wengen, sem er annar svo skíðabær í dalnum Snilldin er hvað þetta er allt tengt, því hægra megin við Wengen er svo  þriðja fjallið Shilthorn. Maður gleymir líka hvað fjallið nær langt inn, eftir að maður er kominn í um 2000 metra hæð hækkar maður ekkert mikið meira (kannski um 200-500 metra) en leiðirnar lengjast rosalega því maður er alltaf að fara innar og innar, lengra inn í fjallið.

Hvítt sem augað eigir

Við lékum okkur semsagt í Mannlichen/Jungfrau svæðinu eftir hádegi á miðvikudaginn og vorum fyrst frekar svekktir, þar sem við myndum bara ná um 4-5 tímum í staðinn fyrir 8-9  klst eins og við höfðum stefnt að. Það svekkelsi var aftur á móti ekki lengi til staðar því margar af þessum brekkum eru mjög krefjandi og við vorum alveg á fullu nánast non-stop allan tímann og þreyttumst vel. Þegar við keyrðum á þessar löngu brekkur safnaðist líka sýran upp í löppunum á engri stund og við þurftum að hafa okkur alla við til þess að halda okkur á fótunum.

Færið sjálft var geggjað, snjórinn og brekkurnar alveg geðveikar. Hellingur af leiðum sem hægt var að fara eins og þið sjáið á kortinu og umhverfið og útsýnið út úr þessum heimi.

Útsýnið

Það eina sem var að var skyggnið, það var svo mikil þoka að maður sá ekkert fram fyrir sig.  Það var svo lítið að og Bjöggi týndum hvor öðrum. Vorum að renna okkur niður hlið við hlið og svo allt einu var ég bara aleinn í brekkunni og sá engan og sama hjá Bjögga. Ég stoppaði og reyndi að kalla eitthvað ígegnum þokuna en að sjálfsögðu heyrðist ekkert.

Bergur í Mannlichen

Þarna stend ég t.d. í mjög brattri brekku sem nær ótrúlega langt niður en það er ekki möguleiki að sjá það, þar sem allt er hvítt.

Sem betur fer vorum við búnir að tala um að kíkja upp á Kline Scheidegg og fá okkur að borða. Þannig að ég hugsaði bara um að koma mér þangað og það sama gilti um Bjögga. Við settumst niður við veitingastað sem er í raun bara bjálkakofi upp í miðju fjallinu og servaði heitan man, ný eldaðan.

Bjöggi í skálanum

Að sjálfsögðu pantaði ég mér týpískan svissneskan mat sem stelpan mælti með og það klikkaði ekki. Hét Chasnatte eða eitthvað og var í raun bara fancy útgáfa af heitri samloku með skinku og osti, nema bara massíft mikið af skinku, einhverjum fancy svissneskum osti, steiktu eggi, lauk og einhverjum kryddum sem ég hef ekki skil á.

Bergur í skálanum

Passaði svo bara að kíkja upp á Eigergletscher sem er hæsti staðurinn sem hægt er að skíða niður frá og ákváðum bara að skíða alla leið til Wengen (semsagt niður hægra megin á Jungfrau fjallinu). 

Þessi leið var alveg stórkostleg, því hún byrjar á svartri leið sem er semsagt erfið/brött og sumar þessara svörtu leiða eru meira að segja notaðar í stórbikarnum, en svo breytist hún í medium og loks easy leið.

Eigergletscher

Það flotta er að þegar maður er kominn niður, liggur easy leiðin bara í gegnum bæinn. Það er án gríns skíðabraut inn í Wengen bænum sjálfum, við héldum að við værum komnir eins langt við gátum þegar við komum að hóteli og þar sem fólk út að borða en nei nei við gátum haldið áfram bara framhjá hótelinu inn á milli húsa, fram hjá fjósi þar sem beljurnar voru bara úti. Við renndum okkur semsagt alla leið í gegnum bæinn að kláfinum, ekki svona basic gondola heldur massífum kláfi sem gekk upp allan hlíðina að Mannlichen og renndum okkur svo alla leið niður að gondolanum sem tók okkur svo að Grindelwald. Mass löng og skemmtileg ferð.

Í fjallinu

Um kvöldið eldaði svo Robbi massa fínan kjúlla, það er greinilegt að það gerir honum bara gott að vera single þarna úti. Tókum svo í Carcassone sem Bjöggi rétt marði og Robbi tapaði.

Á fimmtudaginn rúlluðum við Bjöggi svo til Zurich þar sem Bjöggi var að fara í viðtal hjá ETH varðandi skólagöngu næsta haust. Ferðin heppnaðist nokkuð vel, þótt við höfðum báðir gleymt snúrum til að hlaða ipod og Robbi er ábyggilega eini maðurinn á jarðríki sem á ekki ipod. Við stálum því nokkrum diskum frá honum til að hlusta á, en tónlistar safnið var eitthvað takmarkað við enduðum því með Best of Eric Clapton, Best of 95 og Rush of blood to the head í bílnum. Eitthvað klúðruðum við líka beygjunum inn í bæinn því við enduðum einhverstaðar lengst upp í hlíðinni en ekki í miðbænum. þar sem ETH er staðsett. Við gáfum því skít í google og þeirra leiðbeininga og keyptum old fashion kort. Eftir það vorum við ekki lengi að finna bygginguna. Á meðan Bjöggi fór í viðtalið þeyttist ég um Zurich að leyta mér að drauma brettinu Burton Custom en ótrúlegt en satt fannst það ekki í allri Zurich, allavega ekki í minni stærð. Fór alls í u.þ.b 8 búðir eða eitthvað. Bjöggi kláraði því viðtalið áður en ég náði að klára verslunarleiðangurinn og því röltum við saman seinni hlutan um miðbæ Zurich í leit að brettinu, en án árangurs.

Bergur on top of the world

 

Við vorum svo komnir aftur til Neuchatel rétt fyrir hálfátta áður en mollið lokaði, svo ég gat hoppað aftur inn í sportverslunina til að kaupa varabrettið, þegar ég rakst í bretti sem var eiginlega bara insane og langt fyrir ofan draumabrettið: Burton T6 sem með last-years design og þvíá 1/3 af verðinu og í réttri hæð, ég skellti mér því á það ásamt Burton Cartel bindingum. Ég er því núna með sama setup og Terje Haakonsen sem er náttúrlega alltof gott fyrir mína getu, það er sérstaklega tekið fram "this board is NOT for those practicing your ride and jumps - if you don't

ride this board, this board will ride you!". Til að gefa ykkur hugmynd um fyrir hvað þetta bretti er notað mæli ég með þessu broti úr First Descent þar sem Terje ákvaður að skella sér niður þessa skemmtilegu "brekku".

Needless to say að þá er ég ekki alveg kominn á þetta level, en engu að síður massa ánægður með kaupin. Á meðan ég verslaði draumadrauma brettið keyptu strákarnir í matinn, en planið var að útbúa Massa-borgar Sviss stæl með fancy ostum og látum. Það heppnaðist ekki betur en svo að ekki fundust hamborgarbrauð né bacon, þannig að við notuðum einhver ömurleg pítubrauð sem voru næstum búin að kveikja í húsinu og einhverja fancy skinku sem var ekkert eins og bacon. Kjötið varð líka alltof blautt þannig hamborgarnir héldust ekki nógu vel saman, þannig að þetta fór alveg út um þúfur. Operation Massa-Borgari Sviss Style mistókst semsagt hræðilega.

massaborgari

Á föstudeginum var þá komið að því að ég gat prófað nýja brettið mitt. Eins og við var að búast réði ég lítið við brettið í byrjun. Það er ekki mjög fyrirgefanlegt, það er ekkert sem heitir "næstum því" hjá þessu bretti. Það er allt eða ekkert, annað hvort er maður að brillera eða á hausnum. Það var eiginlega munurinn sem ég fann fyrst fyrir. Á gamla brettinu sem var byrjenda bretti fann ég þegar ég var tæpur og hugsaði "ekki detta, ekki detta" en núna var ég bara á fleygiferð og næsta sem ég veit að þá er ég fljúgandi á hausinn.

Við ákváðum að prófa First fjallið þennan daginn og urðum ekki fyrir vonbrigðum, þarna komumst við aðeins hærra en á Jungfrau og leiðirnar voru geggjaðar.

Maður var kominn á fleygiferð áður en maður vissi af því. Ein leiðin var eiginlega bara eins og rússíbani, upp og niður með hallandi beygjum. Ég datt í bæði skiptin sem við fórum þarna. Í fyrra skiptið ætlaði ég að reyna vera töff og hoppa af einni brekkunni með þeim afleiðingum að ég lenti beint á andlitnu. Seinna skiptið var eiginlega bara legendary, Bjöggi lá í hláturskrampa, ég flaug svo upp í loftið, eiginlega bara heljarstökk fram fyrir mig, ég er ekki frá því að ég hafi séð rassinn á mér ég snérist svo mikið, svo stakst brettið alltaf í snjóinn í þessum kollhnísum og þá tók maður bara auka flipp. Ég fékk snjó upp allt bakið alveg frá rassi upp að háls. Mögnuð braut samt og fáránlega skemmtileg.

 Brekkan og brettið

Á leiðinni heim var ennþá sama vesenið með að tónlistin var engan veginn að gera sig, þannig að við ákváðum að vera fyndnir og völdum okkur eitt lag til þess að hlusta á alla leiðina heim. Lagið sem var fyrir valinu var In the Summertime með Shaggy af þessari hræðilegu Best of 95 plötu Þetta var ekkert smá asnalega fyndið, við sungum þarna hástöfum með shaggy og félögum og vorum byrjaðir að ná textanum óvenju vel þrátt fyrir að það sé lífsins ómögulegt að skilja hvað þessi maður er að syngja.

Lagið er svona 4 min og ferðint tekur um 120 min þannig að við höfum hlustað á það svona 30 sinnum eða svo. Fyrir vikið er þetta orðið algjört stemmingslag eins leiðinlegt og það er. Ef ég heyri þetta lag einhvern tíman hér eftir mun ég syngja hástöfum með og muna eftir Sviss.

Raclette

Um kvöldið bauð svo Robbi upp Raclette sem Svissneskur matur, kjöt og grænmeti coverað í osti. Bjöggi sem alltaf þarf að "go big" var ekki fljótur að finna upp á double cheese og manaði svo Robba í fjórfaldan ost, og komst svo að þeirri niðurstöðu að fyrst að maður væri að fara fjórfalt væri alveg hægt að fara fimmfalt. Ógeðslegri blöndu hef ég ekki séð í langan tíma. Vidjó-ið segir allt sem þarf

Um kvöldið keyrðum við svo til Önnu, frænku Robba, sem býr í Interlaken rétt hjá Grindelwald skíðasvæðinu en planið var að vakna snemma og nýta allan daginn þar sem það er svo stutt frá henni.

Enn og aftur tókst okkur að skemmta okkur konunglega þrátt fyrir enga ipoda. Robbi kom með Pottþét í 10 ár sem er þrefaldur geisladiskur með "bestu" lögunum frá 1995 - 2005. Fyrst var létt keppni þar sem við flökkuðum milli laga og áttum að nefna flytjanda og heiti lags. Bjöggi byrjaði vel en Robbi sat eftir til að byrja með. Um leið og lögin fóru svo að breytast frá rokki/poppi yfir í plain píkupopp með Britney Spears og Sugarbabes byrjaði Robbi að skína.

Ég var nokkuð stöðugur bæði í rokkinu og píkupoppinu en Bjöggi lá í hláturskrampa aftur í og öskraði stanslaust "hættu þessu Bergur í guðana í bænum" þegar ég nefndi hver aðra boyband og/eða stelpu hljómsveitina á eftir annari. Öruggur sigurvegari! :D. Það tók samt ekki langan tíma að renna í gegnum 3 diska þannig að við urðum að finna einhverja aðra leið til að skemmta okkur. Við enduðum með leik þar sem við máttum ekki skipta um lag fyrr en við værum búnir að læra allan textann. Wonderwall með Oasis og Common People með Pulp var lítið mál, Oops I did it again rann líka nokkuð auðveldlega en lang skemmtilegasta var Wannabe með Spice Girls, við mössuðum það svo rosalega að það var ekki fyndið. Við vorum jafnvel byrjaðir að læra línurnar eftir því hver syngur hvað hjá þeim. Byrjðum svo á lög unga fólksins með Nylon en náðum ekki að klára það áður en við komum til Önnu. Þetta var svo ótrúlega súr en fyndin stemming. Það er því fyndið að lög eins og In the Summertime með Shaggy og Wannabe með Spice Girls séu tvímælalaust lög ferðarinnar.

Þegar við vorum komnir til Önnu tók við ný keppni. Ég og Bjöggi höfðum nefnilega verið að rífast um hver væri lélegri í landafræði. Við tókum því með okkur bunka af Trivial Pursuit spurningum og Robbi fór svo í gegnum 20 spjöld og spurði okkur semsagt 20 bláar spurningar. Ég sem hélt að ég væri lélegastur í landafræði tapaði með 5 rétt svör en Bjöggi vann með 3 rétt svör.

Rétt áður en við fórum að sofa sýndi ég svo mikla staðfestu og viljastyrk (auk þrjósku og heimsku) að neita að slökkva á lampanum, þar sem ég neitaði að taka þátt í pant-ekki. Þetta var svona had-to-be-there moment en Robbi lá í hláturskrampa yfir hvernig ég og Bjöggi náðum að rökræða um þetta pant-ekki mál fram og til baka á eins heimskulegan hátt og mögulegt var.

Strákarnir í fjallinu

Á laugardagsmorguninn var svo planið að skella okkur allir þrír í fjallið en þegar Robbi ætlaði að fara leigja skíði sagði starfsmaðurinn okkur þar að það væri allt lokað. Við fórum því aftur heim til Önnu til að leita okkur af öðrum skíðasvæðum sem voru opin en voru kannski helst langt í burtu, þangað til að við komumst að því að kallinn í skíðaleigjunni vissi ekkert hvað hann var að tala um, því það var alveg opið í nokkrar lyftur þótt meirihlutinn hafi verið lokaður vegna vinds. Auðvitað hafði það samt engin áhrif á okkur, enda vanir því frá rokrassgatinu Íslandi.

Þótt dagurinn hafi kannski ekki lofað góðu rættist ótrúlega úr honum og úr varð heljarinnar fín skemmtun, sérstaklega að sjá klaufalegasta dett í geimi hjá Robba, hann var ný staðinn upp eftir létta byltu en datt jafnóðum niður þegar hann skellti öðru skíðinu í bólakaf ís snjóinn og datt svona fallega niður.

Bjöggi on top of the world

Við vorum líka dálítið grófir og tókum lest upp á Kleine Scheidegg rétt fyrir lokun og skíðuðum svo alla leið niður þegar búið var að loka ölpunum og snjótroðararnir farnir af stað. Rétt áður hafði starfsmaður stoppað eina stelpu þarna sem vildi komast niður en við náðum að laumast þarna í gegn og byrja að renna okkur.

Kleine Scheidegg

Fljótlega sáum við samt að starfsmaðurinn kom brunandi á eftir okkur til að reka okkur úr fjallinu. Því miður fyrir hann, en frábært fyrir okkur, var lítið annað hægt að gera en að leyfa okkur að klára leiðina.

Við rúlluðum svo aftur heim til Önnu til að gera okkur til áður en við færum út að borða, en planið var að bjóða Robba út eitthvað fancy. Maðurinn hennar Önnu Marcel (svisssneskur kall) hafði verið í business ferð, þannig að við höfðum ekki hitt hann deginum áður þegar við mættum. Það var því frekar kjánalegt þegar ég labba út úr baðherberginu á handklæðinu einu saman og heyri kallað "(h)allo!", líta til vinstri og út úr svefnherginu þeirra (sem hafði líka sturtu) labbar sömuleiðis karlmaður á handklæðinu einu saman. Ég stóð þarna eins og þvara í ókunnugu húsi með eigandan fyrir framan mig báðir hálfnaktir og Robba hvergi nærri og reyni að troða út úr mér "Ich bin freund of Robbi" og en hann hefur þottþétt séð hvað mér leið asnalega þarna því hann svaraði í léttum tóni "Yes yes I know, it's ok"

Við enduðum á að finna svona semi-fínan veitingastað sem hét Des Alpes og bauð upp á virkilega góðan mat en lélega þjónustu. Robbi og Bjöggi voru svo eins og nýtt ærustupar þarna þegar þeir ákváðu að panta sér tveggja mana fondue, mér leið bara eins og þriðja hjólinu.

Við vorum komnir heim til Robba í Neuchatel frekar seint og vorum ekki komnir upp í rúm fyrr en um tvö leytið. Ég og Bjöggi áttum flug heim klukkan 17:20 og vorum búnir að ákveða að vakna klukkan 06 um morguninn til að ná nokkrum klukkutímum í ölpunum áður en við færum. Við vorum byrjaðir að þekkja leiðina nokkuð vel þannig að við vorum mættir þarna fyrstir á svæðið og frekar nice að ná seinsta runni laugardagsins og fyrsta runni sunnudagsins þegar brekkurnar eru nýpressaðar og flottar.

Fyrstir á svæðið

Núna var líka skyggnið loksins gott og við gátum séð fram fyrir okkur, notið sólarinnar og þess að renna sér í umhverfi sem á sér engan líkan.

Ég verð líka að segja við vorum orðnir helvíti öflugir í brekkunum og æddum hreinlega niður. Fyrsta daginn hafði maður hugsað um að detta ekki en núna var maður að bölva öllu hæga fólkinu sem var fyrir manni. Við vorum að curva þessar brekkur og eins og enginn væri morgundagurinn.

Ég var líka búinn að venjast nýja brettinu og er orðinn mjög sáttur við það. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt, við vorum meira að segja orðnir það öryggir að við renndum okkur niður með myndavélina í annari hendi.

Í raun gátum við ekki rifið okkur í fjallinu og lögðum ekki af stað fyrr en um tvö leytið, en við þurtum náttúrlega að klára pakka á bílastæðinu þar sem við vorum í öllu brettadótinu. Frekar fyndið að sjá tvo gaura skipta um föt á bílastæðinu, eins gott að enginn sá mann strípast þarna um að hoppa í nærbuxurnar.

Við vorum komnir á flugvöllinn klukkutíma fyrir flug og búnir að tékka okkur inn 20 min fyrir flug. Við lentum á mjög hægvirkri en vandvirkri konu sem við bölvuðum til að byrja með en lofsömuðum svo í lokin þar sem hún gat tékkað farangurinn alla leið heim zurich-köben-kef og prentað út flugmiðana sjálfa frá köben-kef. Það reyndist bjarga okkur því að Sviss vélinni seinkaði um 30 min á flugbrautinni um 30 min sem er slæmt þegar við áætluðum 40 min á milli véla. Við hlupum því í gegnum alla bygginguna á milli terminala og rétt náðum að hoppa ínn í vélana áður en hún lagði af stað Íslands. Þvi miður gilti það sama ekki um farangurinn en það var lítið mál, hann kom um kvöldmatarleytið daginn eftir.

Í heildina var þetta alveg brilliant ferð, skyggnið fyrstu dagana var þó helst til lítið. Robbi var eiginlega miður sín því veðrið hafði verið geggjað gott áður en við komum og var geggjað daginn sem við fórum. Ekki það að ég láti veður hafi áhrif á svona ferð, ég er því alsæll með þetta allt saman.

Svört leið niður allt fjallið

Við Bjöggi vorum vorum sammála um það að taka eina massífa brettaferð á ári núna, gera þetta bara árlegt.

kl. 0:49 | Athugasemdir (11)

26.2.2008 : Stiklað á stóru

Skulum renna létt í gegnum seinustu daga og vikur

  • Búinn að vera æfa vel og formið að mjakast í rétta átt eftir janúar ruglið.
  • Var þulur á Meistaramót Íslands, vildi ekki keppa.
  • Ég og Bjöggi buðum Hafdísi, Sveinbirni og Jóhönnu í andabringur með hindberjasósu.
  • Óli Tómas átti afmæli skelltum okkur strákarnir á Hereford í tilefnu dagsins.
  • Búinn að vera duglegur að æfa
  • Bikarkeppni FRí var haldin, ég keppti ekki. Óli setti íslandsmet.
  • Mamma átti afmæli, ég útbjó nautalundur og gourmet.

Og já næstum búinn að gleyma...er að fara í Svissnesku Alpana á morgun með Bjögga. Heyri í ykkur á mánudaginn!!



kl. 0:23 | Athugasemdir (2)

23.2.2008 : Vinsæll á YouTube?

Búinn að fá tvö private bréf núna með stuttu millibili á YouTube, bæði varðandi tónleikaferðina sem ég fór í. Það fyrsta var frá 23 ára hasshausi. Hann segir m.a.

"I was about 50 feet in front of you at that show. i was on 5 hits of bad ass acid and when that classical piece came on it brought me to tears."

Hann er semsagt að tala um opnunarlagið sem Kings of Leon notaði.

Hann var semsagt að þakka mér fyrir að nú gæti hann upplifað þetta aftur og aftur og var í leiðinni að velta fyrir sér hvaða stef þetta væri í upphafi og þökk sé Burkna Helgasyni gat ég svarað honum að þetta væri Lacrimosa kaflinn úr Sálarmessu Mozarts. Nú getur hann semsagt haldið áfram að vera útúr reyktur og hlustað á Mozart.

Hitt bréfið var frá 21 ár stelpu frá Alabama sem ég tók vídjó af þegar hún var á mekanísku nauti á mjög slísi stað í New Orleans sem hét The Cowboy. Það kom mér á óvart að hún var alls ekki reið eða fúl yfir að ég hafi sett það á netið og rúmlega þúsund manns búin að horfa á hana, nei hún vildi bara kynna sig og spyrja í leiðinni hvort hún gæti fengið originalinn.

kl. 5:41 | Athugasemd (1)

12.2.2008 : Bestun á Bíó

Fór í bíó um helgina sem væri ekki frásögufærandi nema að ég var gaurinn sem ég venjulega hata. Ég, Bjöggi og Óli Tómas mættum svona temmilega seint, myndin átti að byrja 22:30 og við vorum að mæta um 22:35 sem var eiginlega úthugsað til þess að við þyrftum ekki að horfa á auglýsingar og annað crap sem tekur endanlausa tíma.

Okkur brá þó heldur mikið í brún þegar við löbbuðum inn í Sambíóin og þau voru PÖKKUÐ út að dyrum. Fólk var annaðhvort búið að hrúast fyrir framan miðasöluna eða fyrir framan innganginn af sölunum. Við vorum bara ekki að trúa því hvað það voru margir í bíó!

Ég stökk aðeins frá til að finna starfsmann þar sem ég var mjög forvitinn að vita hvað væri eiginlega um að vera. Loksins fann ég einhverja stelpu þarna.
Ég: Bíddu hvað er í gangi, afhverju eru svona margir í bíó?
Stelpan: Eeeh ég eiginlega veit það ekki
Ég: Ég meina, er verið að frumsýna einhverja mynd eða?
Stelpan: Jah sko, við vorum náttúrlega að frumsýna P.S I Love You í gær.
Ég: PS I Love You? Ekki segja mér að allt þetta fólk sé hérna til að horfa á PS I Love You!!?
Stelpan: Nah, ég sko eiginlega bara veit ekki.
Ég: Hehe vá fyndið, jæja takk.

Þegar ég hoppa aftur til strákana er Óli Tómas horfinn, en Bjöggi hringir í hann.
Bjöggi: Hvar ertu?
Óli Tómas: Ég er í miðasölunni.
Bjöggi: Ha? Í miðasölunni!? (brjáluð röð og það voru svona 2 min síðan við löbbuðum inn)
Óli Tómas: Já er að kaupa miða.
Bjöggi: Haha ok, keyptu þrjá.

Óli Tómas hafði semsagt hoppað frá og bara farið beint fremst í röðina framfyrir alla og keypt miða, án þess að enginn segði orð.

Þá var komið að næsta vandamáli: Það var pakkað fyrir utan salinn, allir að reyna komast sem fyrst inn til að ná góðum sætum. Við hugsum náttúrlega "wow við eigum eftir að þurfa setjast fremst" en sjaúm svo rampa til hliðar sem er hugsaður fyrir hjólastóla. Við vorum ekki lengi að hoppa þangað, labba hann upp, alveg að salnum og voila orðnir fremstir í öllu kraðakinu og enginn sagði orð. Svona 10 sek seinna koma svo starfsmenn til að rífa miðana og voila við fremstir. Vorum þar af leiðandi fyrstir inn í salinn og náðum bestu sætinum.

Við láum í hláturskasti, það voru svona án gríns 3-4 min síðan við komum inn Sambíóin sem voru pökkuð að útidýrahurðinni og við vorum komnir inn í salinn með bestu sætin.

Það var eitthvað ótrúlega skrítinn fílingur í okkur þetta kvöldið, því að við létum hreinlega eins og það voru engir aðrir í salnum. Í hlénu hoppaði ég fram til að kaupa mér popp og kók, og bauðst þá til að kaupa eitthvað handa strákunum í leiðinni. Þegar ég er svo að labba út úr salnum öskrar Óli yfir allan salinn "Bergur" og ég svara náttúrlega "Já!" og fæ þá á móti "Keyptu líka eitthvað að drekka" - "Já ekkert mál, sinnum tveir?" - "Já".

Þegar ég er svo búiinn að versla í sjoppunni, sé ég að ég ætti eftir að lenda í vandræðum með að koma þrem kókglösum, poppi, lionbar, hlunk og ístoppi inn í salinn. Þannig að ég set ísana og lion barið í vasaann og næ að halda á glösunum þrem og pokanum í höndunum.

Þegar ég er svo búinn að taka nokkur skref frá sjoppu borðinu dettur annar ísinn úr vasanum beint á gólfið. Ég sé að það stendur stelpa þarna rétt hjá og ég sný mér að henni:
Ég: Hæ, myndiru nokkuð nenna að pikka þetta upp fyrir mig?
Stelpan: Eh jájá ekkert mál.
Ég: Oh takk kærlega.....og kannski setja þetta í vasann minn fyrir mig.
Stelpan: Eh ok..hérna.

Og svo þakkaði ég fyrir mig labbaði burt.



kl. 21:30 | Athugasemdir (11)

5.2.2008 : Bollu pælingar

Ég fer alltaf að hugsa um það sama í kringum bolludaginn: Afhverju í ósköpunum vill fólk fá gerdeigsbollur á bolludaginn? Fyrir mér eru vatnsdeigsbollurnar svo miiiklu betri, ég get ekki ímyndað mér að fá mér gerdeigsbollu. Seriosly, afhverju bara ekki að smyrja sér brauð með sultu og rjóma??

 



kl. 13:36 | Athugasemdir (4)

4.2.2008 : 240 klst á bakinu

Já ég var að taka saman tímana í þessum mánuði. Niðurstaðan er rétt um 240 tímar give or take. Það er ágætt bara.

Jæja lærdóms/æfing gír here I come.

kl. 2:51 | Athugasemdir (4)

1.2.2008 : Alvöru blogg

Jæja kominn tími á alvöru blogg. Ástæðan fyrir því að ég hef lítið verið að skrifa er einfaldlega sú að það er búið að vera allt á 200% hjá mér. Vegna anna í vinnunni hef ég ekki náð að losna þaðan almennilega eftir að jólafríið var búið og hef því verið kallaður inn til að redda hinum og þessum hlutum. Ég tók líka að mér í haust verkefni fyrir Félag Íslenskra Tannlæknanema sem fór ekki alveg eins og ég sá fyrir og hef ég veriið að vinna í því að koma því frá.

Í þessu tvennu hef  ég semsagt verið í á fullu, jafnvel það mikið að sumar næturnar seinustu 3-4 vikur hef ég einfaldlega sleppt því að fara sofa vegna anna. Skólinn hefur setið því töluvert á hakanum sem ég er alls ekki sáttur með en það sem er verra er að æfingarnar hafa gert það líka.  Ég hef kíkt öðru hverju í HÍ ræktina svona til þess að fitna ekki upp úr öllu valdi, þótt það sé erfitt þegar maður er að reyna halda sér vakandi út í 48 klukkustundir eða meira með því að vera narta á einhverju sem maður á ekki að vera narta í.

Ég sé þó loksins fyrir endan á þessu núna. Vonandi klára ég allt frá í dag og/eða á morgun. Helgin verður semsagt nýtt í að klára frá þessa hluti og byrja að læra almennilega. Ég er aðeins byrjaður að hreyfa mig líka meira, hvort sem er litið til fjölda æfinga eða ákefðar.

Ég ætla þó að taka mér hvíld á laugardagskvöldinu til að elda eitthvað gourmé með Bjögga, vonandi 100% afslappaður um að allt sem standi á mér sé lokið.



kl. 12:49 | Athugasemd (1)

28.1.2008 : I'd love to see you pee on us tonight!

Þetta er að breytast í hið argasta YouTube blogg, en þetta er einum of fyndið. Get ekki sleppt því að deila þessu með ykkur. Indverskt dansatriði þar sem einhver gaur er búinn að "þýða" það sem þau er að syngja...eða réttarasagt þýða eins og söngurinn hljómar.

Ég er líka að pæla að stela nokkum move:um til að nýta mér á Hverfis um helgina.

Trivia: Lagið heitir Kalluri Vaanil og er úr myndinni Pennin Manathai Thottu. Í Bollywood er semsagt mjög algengt að þegar eitthvað stórkostlegt gerist, breytist umhverfið og allir byrja að dansa af gleði. Þetta tilefni er nánast undantekningalaust þegar hetjan verður ástfanginn af stelpunni og þau eru við það að kyssast - en byrja semsagt að dansa og syngja í staðinn (að sjálfsögðu!)

kl. 1:16 | Skrifa athugasemd

25.1.2008 : Toxic

Í bluegrass búningi hjá Nickel Creek spilað á fiðlu, mandolín, kassagítar og kontrabassa. Very nice.

kl. 6:06 | Athugasemdir (2)

22.1.2008 : Létt funk

Verð að pósta svona léttu funki. Fyrst með Robert Randolph í hraðari kantinum, fjörugt og skemmtilegt. Auk þess er svona Steel Pedal Guitar svo töff hljóðfæri að það er ekki eðlilegt og bassaleikarinn með þessa rödd er bara insane: Ótrúlega stór og mikill og svo þessi háa falsetta.

Svo er það Ben Harper and the Innicent Criminals. Með einmitt líka stóran og miklan bassaleikara en mjög dúpraddaðan. Sá þá úti í New Orleans og þeir voru mjög þéttir og skemmtilegir. Ímyndið ykkur að sitja í sólinni, slappa af, njóta lífsins, sötra á bjór og raula "always have to steal my kisses from you".

kl. 1:11 | Athugasemd (1)

21.1.2008 : Skrítið

Vanalega er ég svona frekar laid-back persóna. Ekki mikið að stressa mig á hlutunum eða velta mér mikið upp úr einhverju. En það hefur ekki verið tilfellið seinustu nætur og núna sérstaklega í kvöld. Núna t.d. get ég ekki sofnað því hausinn fór á fullt þegar ég lagðist upp í rúm og ætlaði að reyna sofna. Ekki bara hausinn heldur hjartað líka - pumpar bara á milljón. Er ekki frá því að ég sé í smá stress-kasti, með samviskubit, móral og áhyggjur. Vangaveltur um nánast allt, það er eins og hausinn hætti ekki að stoppa. Búinn að liggja upp í rúmi í rúman klukkutíma og næ hreinlega ekki að sofna. Ákvað því að standa upp og jafnvel að ég taki bara smá göngutúr, held ég þurfi ferskt loft eða eitthvað. Vá skrítið.

kl. 3:03 | Athugasemdir (3)

19.1.2008 : Ennþá á lifi

Rétt svo. Smá flott YouTube. Lag sem ég hef alltaf ætlað að finna en alltaf gleymt. Insane saxafónn.

Líka flott cover hjá Grohl og félögum.

kl. 3:25 | Athugasemdir (2)

2.1.2008 : Annáll 2007

Janúar

Nýja árið byrjaði vel. 6-X reunion var haldið heima hjá Ástu sem varð heljarinnar fjör og rugl. Skólinn byrjaði eins og vanalega og ég bauð upp á mitt listræna innsæi til að hjálpa Tobba með nýju piparsveins íbúðina. Ég keppti á alþjóðlegu boðsmóti í laugardalshöllinni þótt ég hafi ekki staðið mig neitt svakalega vel. Það hafði þó ekki áhrif á áhuga 14 ára stelpna í sundlaugunum landsins.

Febrúar

Ég startaði heilsuátaki niður í Hugsmiðju, og hópurinn skellti sér í Bootcamp. Vegna anna í skóla náði ég þó ekki að fylgja því alveg eftir. Ég hélt áfram að keppa inni með ágætis árangri og var að fá fína tíma sem lofuðu bara fínu sumri. Hápunkturinn í febrúar var samt án efa brettaferð til Ólafsfjarðar/Akureyrar með Hrönn, Láru, Bjögga og Óla. Brilliant ferð í alla staði. Ég keypti líka einn af topp 3 mest notuðu hlutunum hjá mér: AKG P26 headfóne. Ég plannaði og hélt líka heljarinnar djamm fyrir frjálsíþróttafólk landsins eftir Bikarkeppnina sem heppnaðist mjög vel þótt ég hafi verið smeykur til að byrja með.

Mars

Skellti mér á árshátíð verkfræðinema með Bjögga. Kvöldið var algjör snilld í alla staði. Ég tók þótt í Tækni og vit sýningunni í Fífunni með Hugsmiðjunni. Febrúar og mars einkenndust af miklu frjálsíþróttapartýstandi, þótt ég hafi nú yfirleitt verið rólegi gaurinn. Ég var einnig duglegur að hanga með Tobba og útbúa massa boargara eftir að hann varð single. Skólinn gekk bara nokkuð vel og það sama gilti um æfingar og æfingaferð til Spánar var farinn í lok mars.

Apríl

Apríl fór að mestu leyti í æfingar þar sem ég eyddi rúmum tveim vikum á Spáni að æfa eins og mófó. Ferðin var virkilega vel heppnuð og ég var að taka æfingar sem gáfu til kynna að ég yrði í mínu besta formi ever um sumarið. Massaði líka hörku hermunarverkefni í skólanum með Elísabetu eftir að ég kom heim.

Maí

Prófin hófust og enduðu með fínu prófloka- og Eurovision djammi heima hjá Láru. Ég hitti líka einn af hetjum frjálsra íþrótta þegar ég fór á fyrirlestur með Frankie Fredricks. Byrjaði að vinna á fullu hjá Hugsmiðjunni og keyrði líka betur á æfingarnar, sérstaklega eftir að maður sá hvað æfingarnar úti á Spáni lofuðu góðu.

Júní

Byrjaði að lenda í allskyns skrítnum hlutum með líkamann minn. Var byrjaður að finna fyrir stingjum, verkum og sviða í mest öllum líkamanum, missti kraftinn í löppunum og datt niður upp úr þurru. Eyddi miklum tíma í nuddi og sjúkraþjálfun en lítið virtist virka. Svefninn tók líka stökk og ég var byrjaður að sofa allt að 14-18 klst á sólahring. Náði þó eitthvað að slapp af í sumarbústað með Óla, Robba, Önnu og Unni en týndi tempur heilsukoddanum mínum. Í framhaldi af þessu rugli með líkamann ákvað ég að sleppa keppnisferð til Gautaborgar.

Júlí

Byrjaði júlí á hanga í laugardalslauginni í 6 heilar klukkustundir. Landsmótið var haldið í Kópavogi þar sem ég var bæði keppandi og einnig sem þulur. Hóf líka þá hefð mína að fá sundlaugaverði til að hlaupa út á sundlaugarbakka með hjartastuðtæki. Skellti mér á tónleika með TOTO í laugardalshöllinni og varð 24 ára þann 19. Neyddist til að taka góða hvíld frá æfingum og keppnum vegna líkamans, sem verður ekki rakið til neins annars en ofþjálfunar.

Ágúst

Skellti mér í fyrsta skipti á ævinni á útihátíð. Þá þýddi ekkert minna en húsbíll og eyjar með Sverri og Jón Karli. Var bæði alveg virkilega skemmtilegt og í leiðinni alveg virkilega ógeðslegt. Ég fékk líka geggjaðar afmælisgjafir frá Hlyni sem hafði verið á interrail um evrópu; steinn úr berlínamúrinum, nike hofinu og arnarhreiðrinu ásamt nagla þaðan. Komst ekki bikarliðið þetta árið enda ekki í neinu standi til að keppa. Fór þó hægt og rólega að koma mér aftur af stað. Ísi reddaði mér miða á prufu/vip sýningu á Superbad mörgum vikum fyrir sýningu og ég hef aldrei hlegið jafnmikið á mynd.

September

Skólinn byrjaði og ég stofnaði Facebook aðgang. Sólarhringurinn snérist líka algjörlega við þar sem HM var alltaf sýnt beint í sjónvarpinu. Ég tók líka algjöra skyndiákvörðun á nokkrum klukkutímum sem myndi reynast ein af betri ákvörðunum sem ég hef tekið á lífsleiðinni. Skóli og vinna gengu sinn vanagang og ég var duglegur í háskólaræktinni að koma mér koma mér aftur í gírinn að geta tekið almennilega á því í æfingum. Var líka duglegur að prufukeyra bíla þar sem pabbi var að skipta um bíl.

Október

Október byrjaði með stæl þegar ég hitti og spjallaði við Forseta Íslands. Hann hélt áfram að batna því ég náði öðrum sundlaugarverði og ég flaug til New York að hitta Sigurjón og New Orleans á Voodo Music Experience þar sem Rage Against the Machine, Kings of Leon, Smashing Pumpkins ásamt helling af öðrum góðum böndum voru að spila. Þetta er án efa það skemmtilegasta (og dýrasta) sem ég hef gert á ævinni og verður seint toppað.

Nóvember

Nóvember var frekar viðburðalítill mánuður. Af blogginu af dæma var ég þó duglegur að browsa YouTube, horfa á sjónvarpsþættina mína og pæla í tónlist. Elísabet átti svo uppákomu ársins með þvílíku klósetts ævintýri. Ég byrjaði líka að leika mér í klifurhúsinu.

Desember

Jólaprófin byrjuðu en ég var búinn óvenju snemma. Æfingar gengu virkilega vel og tölurnar í lyftingarklefanum hækkuðu með hverri viku sem endaði á 102,5 kg í bekknum þann 18. desember. Ég byrjaði að vinna hjá Hugsmiðjunni í jólafríinu og nýtti frítímann í að baka smákökur og annað álíka jólastúss. Þar sem jólin pössuðu mjög vel upp á helgar náði ég að snúa við sólahringnum og passaði mig á að vakna aldrei fyrir klukkan eitt á daginn, helst þrjú þegar maður þurfti ekki að mæta í vinnunna. Endaði svo gamla árið í faðmi fjölskyldunnar en byrjaði það nýja í góðra vina hópi.



kl. 2:07 | Athugasemdir (5)

27.12.2007 : Breiðskífa ársins

Loksins, búinn að taka saman það sem mér finnst vera bestu plötur ársins 2007. Tekur kannski smá tíma að renna í gengum þetta, en þá mæli ég bara með þessu þá yfir morgun- eða hádegismatnum.

Tilnefndar eru:

neonbibleNeon Bible með Arcade Fire

Hér er á ferðinni önnur plata kanadísku hljómsveitarinnar Arcade Fire. Fyrsta plata þeirra Funeral var að mínu algjört meistarastykki. Ég var reyndar óvenju lengi að átta mig almennilega á þeirri plötu en núna skapar hún sérstakan sess hjá mér. Kannski verður það tilfellið með Neon Bible líka en eins og staðan er núna að þá heillast ég hreinlega ekki eins mikið af Neon Bible og Funeral. Neon Bible er fín plata sem geymir ótrúlega mörg góð lög en mér finnst hún ekki nógu heilsteypt.

2323 með Blonde Redhead

Íslandsvinirnir sjálfir. Þetta finnst mér ótrúlega heillandi, aðeins mjúkari en Misery is a Butterfly. Þessi plata er eiginlega pínu upplifun, maður skellir henni af stað og áður en maður veit af er maður kominn marga hringi, hún rennur mjög vel í gegn.

inrainbowsIn Rainbows með Radiohead

Ég varð ástfanginn af Radiohead þegar ég hlustaði á The Bends árið 1995. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar hjá Radiohead. OK Computer fylgdi í kjölfarið á mjög svipuðum nótum og The Bends hafði verið. Báðar að mínu mati einar af bestu rokkplötum sem gerðar hafa verið. Það tók mig aftur á móti töluverðan tíma að átta mig á stökkinu sem varð frá OK Computer yfir í Kid A. Radiohead þróaðist en ég stöðvaðist og neitaði að fylgja þeim í gegnum Amnesiac og Hail to the Thief fyrr en löngu seinna. Nýjasta afurð þeirra In Rainbows er virkilega, virkilega góð plata. Persónulega finnst mér sándið hjá Radiohead núna alveg brilliant, margra ára þróun á lagasmíðum og útsetningum hefur skilað sér og In Rainbows er niðurstaðan. Einhverskonar mix á gömlu mýkri-rokk Radiohead plötunum (Pablo Honey,The Bends, Ok Computer) og svo nýja electro-experimental-rokkinu á hinum þrem. Ég er sáttur.

crossCross með Justice

Hvað er málið með frakkana og þessa formúlu? Það er ekki nóg með að Daft Punk og Air samanstandi af tveim frökkum sem spila skemmtilega raftónlist. Nú getur Justice bæst við í hópinn. Fáir kannast kannski við dúó-ið en þeir áttu stórsmellina We are you're friends og D.A.N.C.E. Hér á ferðinni hörku skemmtilega plata hörð, hröð og hrá. Það kannski lýsir því best að vanalega hlusta ég ekki á electro/dans/house tónlist þótt það séu auðvitað undantekningar. Justice er nú orðin af þessum undantekningum.

because_of_the_timesBecause of the Times með The Kings of Leon

Þriðja plata fjölskyldu- og suðurríkja hljómsveitarinanr Kings of Leon. Ég man nákvæmlega hvenær ég heyrði fyrst í Kings of Leon, það var Molly's Chamber kynnt líklegt til vinsælda á X-inu og ég fílaði það ekki! Þvert á móti hugsaði ég hvaða rugl þetta væri, hvort söngvarinn væri málhaltur eða hvað. Næst þegar ég heyrði það hækkaði ég aftur á móti í botn og vel það. Síðan þá hef ég verið eldheitur Kings of Leon aðdáandi. Það mikill að ég stökk upp í flugvél til New Orleans með engum fyrirvara til að sjá þá live. Ég beið því í eftirvæntingu eftir þessari plötu. Það skringilega er að ég fílaði hana ekki strax, þvert á móti lenti ég svipuðu og með Radiohead. Ég skildi ekki afhverju þeir voru að færa sig frá formúlu sem svo svínvirkaði og hafði skilað þeim geggjuðum lögum og tveim yndislega frábærum plötum. Ég ákvað þó að gera ekki sömu mistökin tvisvar og gaf henni annan séns. Þá fattaði ég að nýja formúlan á Because of the Times er betri uppfærð útgáfa svipað eins og In Rainbows með Radiohead.

 

favouriteworstnightmareFavourite Worst Nightmare með Arctic Monkeys

Arctic Monkeys áttu að flestra mati bestu plötu seinasta árs. Hér er því á ferð önnur plata ungu strákana frá Sheffield. Nýja platan er aftur á móti nokkuð umdeild, sumir vilja meina að hér sé brilliant plata á ferð á meðan aðrir vilja að meina að hún sé stórlega ofmetinn. Ég fer einskonar milliveg. Mér finnst þetta virkilega góð og skemmtileg plata sem hittir beint í mark. Aftur á móti er ekkert nýtt eða spennandi á ferð í þetta skiptið. Ég hef talað um formúlur hér að ofan og ætla að halda því áfram. Arctic Monkeys eru nefnilega ennþá með formúluna sem skilaði þeim verðlaunum ofan á verðlaun í fyrra: best new act, best album, best single, best debut og fleira og fleiri og fleiri frá helstu tónlistarrisum. Favourite Worst Nightmare er því ekki bitastæð vegna frumleika eða nýjunga, ekkert nýtt eða spennandi á ferð, heldur er platan bara beint framhald Whatever people say I am, that's what I'm not. Af þeirri ástæðu gæti ég aldrei gefið henni titilinn besta plata ársins, þótt mér finnist hún mjög skemmtileg og góð. Niðurstðan er að það klikkar lítið sem ekkert á þessari plötu en það er engin furða þar sem Arctic Monkeys tóku enga áhættu í þetta skiptið.

youngmodernYoung Modern með Silverchair

Hér er aftur á móti eitthvað algjörlega nýtt og spennandi. Gamla góða Silverchair hefur aldeilis þroskast frá því að vera 15 ára grunge ungstirni sem ætluðu að feta í fótspor Nirvana og halda grunge-rokkinu lifandi í að vera fullþroskuð alternetive rokk hljómsveit sem gefur þekktari nöfnum ekkert eftir. Það er því gaman að sjá Silverchair koma svona sterka inn eftir 6-7 ára pásu, sérstaklega þar sem þessi plata hélt Favoruite Worst Nightmare í öðru sæti í Ástralíu þar sem Young Modern sat á toppnum í 4 vikur. Eins og ég nefndi hefur hljómsveitin þroskast og lært mikið og platan er því virkilega metnaðarfull og lögin vel samin og útfærð. Ég er mjög hrifinn af þessari plötu, henni tekst að vera skemmtilegt mix af mainstremi og framsækni.

 

Og sigurvegarinn er....

Because of the Times með Kings of Leon

Algjört yndi að hlusta á, hvert einasta lag er geggjað og batnar bara með hverri hlustun. Platan er líka skemmtileg þróun hjá Kings of Leon, halda í gamla hráa suðurríkja gargið í bland við nýrra rafmagnaðara og elektrónískara rokk. Þeir fara ótroðnar leiðir og það tekst 100%, flestir yrðu t.d. hræddir við að byrja plötu á 7 mínútna rólegu lagi í stað þess að setja það sem lokalag og ég hef ekki ennþá fundið manneskju sem finnst Charmer ekki gott lag, þótt það sé kannski mest commercial lagið hjá þeim. Platan er líka þannig að eftir nokkrar hlustanir veit maður hreinlega ekki hvað maður á að velja sem besta lagið og það finnst mér einkenna plötu ársins. Það má kannski líka bæta því við að það fyrirfinnst varla hljómsveit sem er þéttari á tónleikum. Ástæðan er einföld, KoL hefur verið að túra síðan frumraun þeirra kom út. Allar plöturnar eru samdar á tónleikaferðum og lögin verða til við fikt og fíflagang bæði á æfingum og upphitunum.

 

Næstum því

mythsofthenearfutureMyths of the near future með Klaxons

Klaxons spila einhverskonar dansrokk sem heppnast bara nokkuð vel á þeirra fyrstu plötu. Þarna er að finna nokkur mjög skemmtileg lög. Flestir þekkja t.d. Golden Skans sem hefur fengið mjög mikla spilun hérna á klakanum. Aftur á móti finnst mér eitthvað vanta, platan rennur fínt í gegn en skilur lítið sem ekkert eftir sig og maður er fljótur að gleyma henni, helst vegna þess að hún er mjög mainstream og maður getur ábyggilega fundið helling af hljómsveitum sem spila það sama undir öðru nefni, þótt það sé skemmtilegt.

anendhasastartAn end has a start með The Editors

Ég beið nokkuð spenntur eftir þessari plötu eftir vel heppnaða frumraun hljómsveitarinnar. Tilfinning sem ég fæ samt við að hlusta á þessa plötu er að þeir hefðu getað náð svo miklu meira út úr sér. Ákveðin lög á plötunni sýna það svo auðveldlega að þessi plata hefði getað verið insane. Þess í stað myndast einhverskonar rússibani milli laganna og maður skiptir sjálfkrafa yfir á góðu lögin og sleppir þeim verri. Platan nær því ekki að standa undir væntingum þótt lög eins og An end has a start, Racing Rats, Bones og Smokes outside the hospital doors haldi plötunni frá því að vera flopp. So close, yet so far finnst mér lýsa þessari plötu best. Ég nauðga ákveðnum lögum en nenni aldrei að hlusta á alla plötuna.

 

Annað

longislandBeirut - Lon Gisland

Um þetta má aðeins deila. Lon Gisland er EP (e. Extended Play) og fellur því ekki í flokkinn Breiðskífa/Hljómplata (e. album) - munurinn liggur í spilunartíma. Aftur á móti er þetta alveg ótrúlega flott og falleg plata. Ég get ekki annað en raulað með og leyft ímyndunaraflinu að njóta sín, ég vitna bara í bítlana og segi Magical Musical Mystery Tour.  Þetta er svo allt öðruvísi en maður er vanur. Þessi EP plata lendir akkúrat á milli breiðskífnanna Gulag Orkestar og The Flying Club Cub sem ég hef hvoruga kynnt mér. Miðað við gæðin á Lon Gisland er það í raun skandall að maður hafi ekki kynnt sér Beirut og þessar breiðskífur betur.

 

Á eftir að skoða en hljómar spennandi

raisingsandRaising Sand með Robert Plant og Alison Krauss

Þegar maður er að flakka og skoða hvað öðrum finnst og athuga hvort maður hafi gleymt einhverju rekst ég alltaf á þessa plötu. Það ætti kannski ekki koma á óvart að hún sé góð þar sem þetta er samvinnuverkefni Roperts Plants sem allir þekkja sem söngvara Led Zeppelin og Alison Krauss úr Union Station, sem kannski færri þekkja en er alls ekki síðri tónlistarmaður.

ickythumpIcky Thump - The White Stripes

Hef hlustað á singlana af plötunni og þeir lofa virkilega góðu, en náði mér einhverja hluta vegna náði ég mér aldrei í alla plötuna. The White Stripes hefur mér þó alltaf fundist nokkuð skemmtilegt frá því að ég heyrði fyrst í þessum hrá gítar og einföldu töktum.

hissingfaunaHissing Fauna, Are you the destroyer? með Of Montreal

Komu, sáu og sigruðu Icleand Airwaves og fólk talar vel um þetta band og plötuna sem inniheldur einhverskonar nýaldar indie/pop sem ég hef ekki kynnt mér almennilega.

 

Íslenskt

Hef ekki kynnt mér íslensku plöturnar almennilega en í hnotskurn: Mugison klikkar ekki, Sprengjuhöllin er leiðinleg og ofmetin, Jakobínarínu hef ég aldrei náð og skil ekki allt hæpið og  Hjaltalín er að gera fokk góða hluti.



kl. 8:32 | Athugasemdir (4)

21.12.2007 : Jólagjöfin til '83 módelsins

Það er alltaf gaman að gleðja litil hjörtu og það tóikst mér í vikunni þegar ég gaf strákunum í vinnunni sem eru á svipuðum aldri og ég Flashback pakkann úr iTunes safninu mínu. Það inniheldur m.a. lög eins og

  • Babylon Zoo - Spaceman
  • C+C Music Factory - Gonna Make You Move
  • Coolio - Gangsta's Paradise
  • The Cranberries - Zombie
  • Four None Blondes - What's Going On
  • Haddaway - What is love
  • Offspring - Self Esteem
  • Presidents of USA - Peaches
  • Scatman John - I'm the Scatman
  • Skunk Anansie - Twisted (Everyday Hurts)

Að ógleymdum 2 Unlimted með Get Ready For This og No Limits. Ég verð nefnilega að viðurkenna að ég bað um 2 Unlimted Greatest Hits diskinn í jólagjöf eitt árið.

Þessi lög ög fleiri, alls 25 stykki glöddu Adda svo mikið í gærkvöldi að hann kom í morgun skælbrosandi til að tjá mér að ég hefði bjargað jólunum hans, þvílíkt flashback sem hann hefði upplifað

Lögin voru nefnilega sérvalin til þess að rifja upp gamla tíma og öskra "Ohh áttundi bekkur mar!!!" Svo er það skemmtilegt að allir tengja mismunandi hluti við lögin.

Til dæmis við það að hlusta á Twisted (Everyday Hurts) kemur alltaf upp í hugann á mér 10. bekkjarstelpan sem ég var svo hrifinn af þegar ég var í 8. bekk, en Skunk Anansie  var einmitt uppáhalds hljómsveitin hennar þá.

Four None Blones - What's Going On var líka held ég vinsælasta vangalagið á öllum böllunum hjá sveitaskólunum sem voru í samstarfi á vesturlandinu, þegar ég var í Varmalandsskóla. Minnir mig bara á þegar ég var spurður hvort ég vildi byrja með ákveðnni stelpu og ég svaraði "Hmm veit ekki" og fór svo til félaganna til að bera það undir þá!

Ekki tengir maður öll lögin við stelpur, þótt þetta tímabil hafi einkennst af miklum gelgjustlælum. Peaches með Presidents of the USA minnir mig bara á þegar ég var vanur að hanga heima hjá Jónasi besta vini mínum á þessum tíma. Þar læstum við okkur inn í herbergi, nörtuðum á saltpillum, hlustðum á tónlist sem bróðir hans hafði komið með að utan, töluðum um allt það sem við ætluðum að gera í framtíðinni og....já að sjálfsögðu stelpurnar í skólanum!

Væri gaman að heyra hvort það séu einhver lög sem vekja upp sérstakar minningar hjá fólki?

kl. 22:52 | Athugasemdir (3)

19.12.2007 : Trajan

Fékk þetta sent niður í vinnu frá honum Tóro og langaði að deila með ykkur. Dálítið sniðugt.

kl. 8:52 | Athugasemdir (3)

18.12.2007 : Byrjaður að vinna

Kláraði prófin um helgina og byrjaði að vinna núna á mánudaginn hjá Hugsmiðjunni. Það verður fínt að fá smá pening eftir New York / New Orleans ævintýrið og svo jólainnkaupin ;)

Búinn að vera duglegur að baka líka, búinn að henda í fjórar sortir. Skelli í 1-2 í viðbót. Svo þarf maður bara að fara taka almennilega jólahreingerningu, langt síðan ég hef dregið skápinn fram og þurrkað af bókum og öðru dóti sem er að finna í honum.

Á sunnudaginn skellti ég og Sverrir okkur í Sauna í Breiðholtslauginni. Fyndnir þessir gömlu kallar sem eru þarna, alltaf svona tuðandi um allt og ekkert. Einn þeirra vildi m.a. annars meina að við gætum ekki verið heilt tímaglas (~17 min) en við vorum nú ekki lengi að afsanna það.

Kíktum svo með Trausta í Smáralindina á smá jólarölt. Ég keypti reyndar ekkert í þetta skipti, en er þó vel á veg kominn með gjafainnkaupin. Við tókum okkur þó tíma til að setjast inn á kaffihús og fá okkur heitt súkkulaði og kökusneið í allri örtröðinni.



kl. 10:52 | Skrifa athugasemd

15.12.2007 : Jólageðveiki

Úff, nú eru Íslendingar alveg búnir að tapa því. Sjitt hvað það er allt brjálað, göturnar eru hreinlega stíflaðar hérna. Smáralind er bara eins og stríðssvæði, þvilík kraðak af fólki hlaupandi út um allt. Og greyið strákurinn hjá Hans Petersen á laugarveginum var um það bil að fá hjartaáfall miðað 3 starfsmenn í búð og 33 kúnna í bið.

Mér finnst eins og innkaupargeðveikin aukist bara með hverju árinu, fólk verður sífellt stressaðara og stressaðara.



kl. 5:35 | Athugasemdir (5)

13.12.2007 : Jólin nálgast

Þar sem jólin nálgast nú óðfluga datt mér í hug að setja inn lítð status box þarna hægra meginn. Þannig að hægt sé að fylgjast með hvernig jólastússið gengur :D - sem stendur hafa prófin forgang en það lagast nú um helgina.

Er búinn að ákveða flest allar jólagjafir, en þarf að fara kaupa þær. Ég stefni líka að byrja að leika mér að baka strax um helgina.

Annars ganga æfingar vel, ég er styrkist og styrkist með hverri viku en hraðaúthaldið er því miður ekki upp á marga fiska, en fer hægt og rólega batnandi. Nuddið á morgun verður kærkomið, hlakka til að taka bara lyftingar, skella sér svo í pottana og gufuna og nuddið. Þá verður maður aftur mjúkur og góður og tilbúinn í lokavikuna fyrir jól. Er búinn að vera mjög duglegur núna seinustu 3-4 vikur að æfa og hamurinn er hægt og rólega að lagast. Er búinn að keyra mig pínu í jörðina en svo verður tekin létt vika í kringum hátiðarnar 24-30 áður en maður fer aftur í hardcore lyftingar og neglingar.



kl. 1:54 | Athugasemd (1)

10.12.2007 : Stofan og sushi

Þá situr maður bara og les undir prófin. Ég klára óvenju snemma í ár, eða þann 15. des. Ég er því kominn í ágætis jólaskap. Sérstaklega því við erum vel kominn á veg með að skreyta allt.

Stofan er loksins líka að taka á sig mynd, en það var eins og warzone þarna fyrir nokkrum dögum. Það er búið að henda út gamla sófanum, stofuborðunum og helling af öðru drasli, mála alla stofuna setja inn nýjar innréttingar og þetta er bara ekki sama place-ið lengur. Það á samt eftir að klára tölvu-vinnu-studio-herbergið.

Ég tók mér annars frí frá lærdómnum á laugardagskvöldinu og kíkti í Sushi til Hrannar. Ég og Bjöggi höfðum boðið Hrönn, Láru og Þórólfi í heljarinnar matarveislu áður en ég fór út, og tókst mjög vel til. Nú var semsagt komið að Hrönn og bauð hún upp á dýrindis sushi. Mmm ég dýrka Sushi, tók mig smá tíma að fatta það en seinustu árin hef ég alveg dýrkað gott Sushi. Ég fíla líka sterkan mat eins og indverskan og asískan, þessvegna vil ég að láta extra mikið af wasabi og fá smá kick. Hreinsa ennisholurnar aðeins ;)

Kvöldið heppnaðist bara mjög vel og við sátum þarna og nörtuðum á sushi, hlustuðum á góða tónlist og spjölluðum saman. Fólkið fór svo niður í bæ, en þá lét ég mig hverfa heim.

Ég get líka glaður sagt frá því að ég uppgvötaði ný Kings of Leon lög. Ég var nefnilega svo graður í að ná mér í Because of the Times að ég vaktaði allar síður internetsins og náði mér í eintak u.þ.b mánuði áður en platan kom actually út. Ég kann held ég öll KoL lögin utan af þannig að þegar Hrönn setti svo KoL á fóninn heyrði ég að hjá henni leyndust tvo lög sem voru ekki hjá mér. Þetta er nefnilega gallinn við að sækja sér efni þegar það er ekki komið út, maður fær eitthvað bootleg dæmi sem er ekki official. Það er samt ótrúlega skemmtilegt hjá mér núna að hlusta "tvö ný" KoL lög sem ég hafði aldrei heyrt, nema einmitt á tónleikunum út í New Orleans, það eru lögin Black Thumbnail og My Party.



kl. 10:34 | Athugasemdir (2)

7.12.2007 : Tónlistaráhugi

Hef skemmt mér seinustu föstudaga að hjálpa Hafdísi og Rakel vinkonu hennar með tónlistargetraun í vinnunni. Eftir því sem ég best veit er Rakel með 11 af 12 stigum mögulegum sem stendur ;). Getraunin felur í sér að það er um 15-30 sek mp3 skrá með 6 samsettum lagastúfum og svo er bara keppni hver þekkir flesta flytjanda og lög.

Það kom mér pínu á óvart hvað maður hefur náð að safna af sér mikilli (ónauðsynlegri?) þekkingu á tónlist.

Ákvað því að deila með ykkur alveg ótrúlega flottu remake sem RATM gerði fyrir nokkrum árum á Renegades disknum sem er loka diskur RATM og tribute diskur til þeirra tónlistarmanna sem hafa haft áhrif á tónlistarþróun Rage. Þetta er titil lag plötunar og er eftir Africaa Bombaata sem var ein af þessum underground old school hip hop hljómsveitum sem voru til í kringum 1980 og voru oftast kenndar við New York / Bronx. Algjör klassík.

Africa Bambaataa - Renegades of funk (1984)

RATM - Renegades of funk (200)

Gaman að heyra hvað fólki finnst betri útgáfa?

kl. 9:10 | Athugasemdir (4)

5.12.2007 : Verkfall

Það er loksins eitthvað verkfall sem maður tekur eftir! Í gær horfði ég á "lokaþáttinn" af Heroes. Í seinust viku horfði ég á, án þess að vita það, lokaþáttinn af House. Allavega í bili.

Það er ljóst að þetta verkfall rithöfunda er að setja töluvert strik í reikningin hvað varðar sjónvarpsgláp. Sem betur eru þættir eins og How I Met Your Mother og Dexter það vinsælir og vel skipulagðir að búið var að skrifa alla seríuna, þannig að ég fæ þá allavega. Vona svo bara að það verði búið að leysa þetta áður en ný sería af Entourage byrjar.

Á meðan er ég búinn að vera nýta tímann í að vinna upp Nip/Tuck, ég horfði á fyrstu seríuna en einhverja hluta vegna fór ég aldrei í aðra seríu almennilega. Skil það reyndar ekki þar sem þetta eru svo fyndnir þættir. Það er eitthvað svo seriously disturbing við þá að ég hreinlega dýrka það.

 

P.S

Þetta er brill!

kl. 5:19 | Athugasemdir (3)

4.12.2007 : 10 mestu spiluðu lögin

Í tölvunni
1. Kings of Leon - True Love Way
2. Kings of Leon - On Call
3. Kings of Leon - Four Kicks
4. Billy Joel - Scenes From An Italian Restaurant
5. RATM - No Shelter
6. The Racounteurs - Togeter
7. Bad Company - Bad Company
8. Stevie Wonder - Masterblaster (Jammin')
9. Paul Simon - 50 ways to leave your lover
10. The Thermals - A Pillar of Salt

Í i-podinum
1. Kings of Leon - Four Kicks
2. RATM - Vietnow
3. Daft Punk - Technologic
4. Dropkick Murphys - Shipping up to Boston
5. RATM - Down Rodeo
6. Silverchair - Straight Lines
7. RATM - People of the Sun
8. Arcade Fire - Rebellion (Lies)
9. Kings of Leon - Red Morning Light
10. Stevie Wonder - I Wish



kl. 20:32 | Athugasemdir (2)

3.12.2007 : Í spilaranum

Þó nokkuð mikið í spilaranum þessa dagana eftir því hvað ég er að gera, ekkert nýtt, heldur vel reyndar plötur sem eru búnar að sanna sig.

Lærdómur:
Bad Company - The Original Bad Co. Anthology
Þessi plata fer alltaf í gang þegar ég sest niður við lokaverkefnisgerð. Rennur svona þægilega í gegn, gott solid rokk sem skemmtilegt og auðvelt er að raula með Paul Rodgers. Hann er með betri rokk söngvurum síns tíma, allavega nógu góður til að Queen fékk hann til að túra með sér. Ekki hverjir sem er sem gætu staðið undir þeirri pressi.

Lyftingar:
Rage Against the Machine - Evil Empire
Vanmetnasta plata RATM. Mun þyngri en sú fyrsta og Battle of LA, ekki bara tónlistarlega séð heldur líka textalega. Platan fókusar meira á rapp hlutann þar sem Zach fær að njóta sín og er mun hægari en Battle of LA sem er t.d. keyrð upp með hröðum katsí gítar- og bassariffum. Á þessari plötu er þó að finna margar af bestu perlum RATM eins og People  of the Sun, Vietnow og Down Rodeo. Það er ótrúlegt hvað maður nær að hæpa sig upp í klefanum með þessa í botni! Maður öskrar bara með og upp fara lóðin.

Þrekhjólið:
Silverchair - Young Modern
Nokkuð lýsandi nafn á þessari plötu þar sem hún fer töluvert frá hinni upprunalegu Silverchair sem var öll í grunge-inu og ætlaði greinilega að taka við af Nirvana. Seinasta plata þeirra Neon Ballroom var alveg hreint brilliant og þeir koma sterkir inn með þessa plötu. Þeir hafa greinilega mikið þroskast og það sést í lagasmíðunum. Þessi plata er mjög þægileg á þrekhjólið þar sem hún er ekki of róleg og ekki of þung. Einmitt passleg til þess að gleyma sér á þessu leiðinlega tæki.

Bíllinn:
Smashing Pumpkins - Zeitgeist
Þessi plata er búin að vera í spilaranum í bílnum síðan í sumar þegar hún kom út. Alveg fullkomin þegar það er leiðinlegt lag í útvarpinu, því þetta er bara mjög vel gert hjá Corgan og félögum. Hún minnir mann líka á New Orleans þar sem þeir spiluðu United States, með Corgan öskrandi "Revolution!!" og Chamberlain berjandi diskana þangað til að það fór að blæða úr eyrunum (eða svona næstum).



kl. 6:08 | Skrifa athugasemd

1.12.2007 : Lyftingar og klifur

Lítið að gerast þessa dagana, er að klára frá lokaverkefni áður en hinn eiginlegi próflestir byrjar. Er ekki byrjaður að hlaupa, en ætla að prófa á mánudaginn. Þess í stað hef ég verið duglegur í klefanum og þyngdirnar aukast jafnt og þett. Það er bara eitthvað svo skemmtilegt við að lyfta svona olympískar.

Annars skellti ég mér í klifurhúsið í dag og hékk þar í 2 klukkustundir áður en ég gafst upp og endaði í heita pottinum. Mjög nice.

Núna er ég aftur á móti eitthvað eirðarlaus, langar að gera eitthvað sniðugt, en samt ekki. Pæling að skella sér á American Gangster í stað þess að reyna læra, eða bara fara snemma að sofa, kannski kíkja á ísrúnt. Veit ekki. Allt óráðið, ligg bara eins og skata upp í rúmi að reyna fá mig til þess að gera eitthvað.



kl. 5:46 | Athugasemdir (5)

29.11.2007 : Hættu nú alveg!

Já það er greinilegt að sundlaugaverðir landsins hafa fengið góða þjálfun og eru sífellt á verði.

Hvað er málið að ég má ekki leggjast útaf og þá kemur starfsmaður hlaupandi í átt að mér. Þetta fer að hætta að vera fyndið.

Ég semsagt ákvað að skella mér upp í Salarlaug eftir lyftingaræfinguna í morgun, þar sem mér leið og eins og axlirnar væru að rifna af mér. Byrja á að skella mér í pottinn, leggst svo útaf upp á bekk til að láta kaldan vindinn kæla mig, allt í góðu með það. Fer svo inn í gufu og sýð beinin af, fer svo aftur út og leggst núna á hellurnar, þar sem bekkurinn hallar og því óþægilegt að liggja þar til lengdar. Auk þess eru hellurnar ískaldar og því gott að setja sjóðandi heitt bakið á þær og fá smá sjokk.

Eftir smá stund kemur starfsmaður "hlaupandi" út og byrjar að kalla hvort það sé ekki í lagi. Rökin hans voru náttúrlega að hann hafði aldrei séð fólk hvíla sig á hellunnum. Mér sem fannst það svo nice ;)

Hann var þó alls ekki stressaður og bara hress yfir þessu.  Ég komst meðal annars að því að ég er ekki í hættu að vera stuðaður, þar sem tækið eru orðin það tæknilega að það tékkar hvort það þurfi að gefa stuð. Starfsmennirnir gera í raun og veru ekkert nema að festa púðan í kringum hjartað og ýta á start, ef það er hjartslættur gefur tækið ekki straum.

Semsagt eftirtaldar sundlaugar hafa fengið Björgunarvottun Bergs: Salarlaug (kóp), Laugardalslaug (rvk) og Suðurlaugin (hfj). Þarf að prófa Garðabæ við tækifæri.

Bergur.is - coming to a pool near you!



kl. 2:27 | Athugasemdir (2)

24.11.2007 : Klifurhúsið og félagarnir

Ég skellti mér í klifurhúsið á fimmtudaginn með Hrönn. Ótrúlega langt síðan að ég hef farið, en þetta er alltaf jafn skemmtilegt. Hamurinn hefur ekki alveg verið að koma til eins og ég hafði vonast eftir. Ég hef því látið þrekhjólið og göngur duga. Það var því skemmtileg tilbreyting að klifra, en vá hvað þetta tekur á hendurnar. Ég held að faðmurinn hafi lengst um 2 cm. Frönsku stúlkurnar þarna voru líka að gera góða hluti, skelltu sér bara á brjóstahaldarann og klifruðu eins og ekkert væri.

Annars er Ólinn líka að gera góða hluti þessa dagana. Búinn að taka "tvöfaldan Berginn" á þetta. Í fyrsta lagi tók hann "ógeðslega gaurinn" upp í háskólarækt. Rennandi gegnumblaututur af svita. Í öðru lagi næst ekkert í hann því hann er að vinna eins og mófó. Honum tókst þó að toppa mig því hann skellti sér til DK fyrir allan peninginn. Ég veit ekki nákvæmlega hvað hann er að gera þarna, en það er greinilega mikið fjör og rugl í gangi.

Annars er Óli ekki sá eini sem skellti sér út. Því Bjöggi, Tobbi, Óli Tómas og Stebbi skelltu sér til Tenerife að æfa.

Ég er búinn að vera hlusta ótrúlega mikið á gömlu grunnskóla tónlistina. Hvar man ekki eftir þessu?


kl. 7:07 | Athugasemdir (4)

22.11.2007 : Hló mig máttlausan

Ef fólk hefur haft gaman að klúðurs-sögunum mínum að þá eru þær ekkert í samanburði við afrek Betunnar nú á dögunum: Verð að fá að henda inn inn, þetta er bara of fyndið til þess að deila þessu ekki.

Eftirfarandi færsla er tekin af síðunni hjá Betu og Bjarna
----

Annars er nú tilefni þessarar bloggfærslu atburður sem átti sér stað hér í 805 Hasbrouck Apartments fyrr í dag, án efa ein hræðilegasta uppákoma sem ég hef lent í!!. Ég vil þó byrja á því að vara viðkæma við því sem hér a eftir fer (þó að Bjarni hafi nú klárlega ritskoðað þennan texta og sagði "allar frænkur mínar eiga eftir að lesa þetta"

Þetta byrjaði allt saman þegar ég sat í rólegheitum á klósettinu seinni partinn í dag. Á einhvern óskiljanlega hátt (förum ekki út í díteils) tókst mér að rekast í hilluna sem er fyrir ofan klósetið þar sem ég geymi nánast ALLT málningardótið mitt. Það væri nú ekki frásögu færandi nema að þessi hilla er laus og féll hún því á gólfið ásamt öllu sem í henni var. Helmingurinn dreifðist um gólfið og var þar púðrið mitt í aðalhlutverki, smallaðist yfir allt (stelpur þið vitið hvað það er messí þegar maður missir púðurdós í gólfið) og hinn helmingurinn fór ofan í klóstið og ég var ekki búin að sturta niður OG HAFÐI VEIRÐ AÐ GERA NÚMER TVÖ!!!!!!!!!!!!

Ég náttúrlega tók eitt snökkt gelgjuöskur og svo án þess að hugsa meira um það dýfði höndunum ofan í klósett vatnið og reyndi að bjarga því sem hægt var að bjarga. Þetta eitt var nú nógu mikið sjokk en það sem fylgdi á eftir var enn verra. Ég sturtaði loks niður eftir að Bjarni hafði komið á vettvang en NEI vatnsyfirborðið tók að hækka og hækka ásamt því sem "ókindin" (e. Jaws, eins og Bjarni kaus að kalla vininn) flaut hærra og hærra. Kósettið var sem sagt stíflað (augnskuggarnir mínir ekki að gera góða hluti!!) og vatn flæddi út um allt baðherbergið!!!! Nú má ekki gleyma því að allt snyrtidótið mitt lá enn þá á gólfinu og ég tek annað panic kast þar sem ég reyni að bjarga því litla sem ekki var nú þegar ónýtt.

Næsti hálftímann barðist Bjarni svo hetjulega við ókindina og vatnið með drullusokk og plastpoka að vopni. Það gekk nú ekki betur en svo að það flæddi að minnsta kosti þrisvar aftur en við vorum þá við öllu búin með fötur og glös til þess að "tappa af" yfir í vaskinn. Þegar ég var búin að gefa upp alla von og búin að biðja alvöru plumber um að mæta á svæðið tókst elskunni minni loksins að drepa ókindina (sem endaði út í ruslatunnu!!) og hreinsa klósettið.

Þess má að lokum geta að tekinn var næsti strætó beint í mollið þar sem ég verslaði mér NÝTT SNYRTIDÓT Á NO TIME

---

Ég held að ég hafi ALDREI ALDREI hlegið svona mikið.

kl. 10:24 | Athugasemdir (3)

21.11.2007 : House

Hef nokkuð gaman af House M.D. Ég hef sérstaklega gaman að því hvernig rithöfundum tekst að gera grín að þættinum sjálfum.

Lupus

Alltaf í hverri einustu greiningu kemur upp tillaga að þetta sé Lupus, nema að auðvitað er þetta aldrei lupus. Þetta hefur gengið það langt að House er byrjaður að segja "Common, don't you learn IT'S NEVER LUPUS!"

Í einum þætti vantar honum læknahópinn sinn og þarf einhvern til þess að kasta hugmyndum á. Hann fær því ræstitækninn til þess að brainstorma með sér, og það fysta sem gaurinn nefnir er "Maybe it's lupus"

Í enn öðrum þætti er lupus ekki nefnt sem hugsanleg orsök þessa skringilega sjúkdóms, það er því auðvitað Lupus sem var orsökin, við það öskrar House "Finally I got my Lupus!"

Karakterar

Í svona þáttum að þá þurfa karakterarnir alltaf að haga sér eins til að þess að þátturinn gangi upp. House er hrokagikkur, Chase gerir allt fyrir hann, Cameron kemur alltaf inn á læknasiðferði og Foreman er alltaf á móti House. Í einum þættnum er House fastur í flugvél og lendir í því að þurfa greina sjúkdóm án teymsins. Hann býr því til 3 manna hóp úr farþegunum og segir einum að mótmæla öllu sem honum detti í hug, öðrum að játa öllu og ungri konu að vekja upp siðferðis spurningar, auðvitað leysist málið þannig!

Stafurinn

Þeir sem hafa slasað sig taka mjög fljótlega eftir því að House notar stafinn vitlausum megin. Sjálfsagt hefur þetta verið galli sem þeir hafa fattað of seint að laga og því haldið sig við það. Í einum þætti er gert óspart grín að þessu, þar sem House fer í sjúkraþjálfun þar sem hann er ónýtur í öxlinni útaf röngu álagi, sjúkraþjálfurinn segir þá "This is what happens, when you use your cane on the wrong side, you're a doctor, you should now this!"

Já ég er nörd.



kl. 9:51 | Athugasemd (1)

20.11.2007 : Enginn svefnfriður

Arrg. Ég ætlaði að vera ótrúlega sniðugur og fara snemma að sofa. Finnst búið að vanta smá rútínu á mig seinustu daga, ótrúlega magnað að þegar æfingar detta út, að þá verð ég bara loose cannon.

Aaaallavega, ég er búinn að sofa frekar illa seinustu daga þannig að ég skreið upp í rúm um 21 leytið í kvöld. Þegar ég er aaaalveg við að sofna bankar pabbi, þá var pósturinn að koma með pakka handa mér. Þá þurfti maður að rífa sig upp, klæða sig og fara niður.

Jæja ég skríð aftur upp í rúm og bylti mér og bylti og næ loksins að sofna. Svo svona 3 tímum seinna eða um 12 leytið hringir síminn og þá glaðvaknaði ég og ég næ ekki að sofna.

Eftir að hafa bylt mér í klukkutíma eða svo gafst ég upp og tók upp tölvuna og fór að hlusta á tónlist og browsa Youtube. Núna tveimur tímum seinna finn ég ekki til neinnar þreytu og get ekki hugsað mér að fara að sofa. Helvíti verð ég ferskur á morgunæfingunni sem ég ætlaði að mæta úthvíldur á klukkan 06 í fyrramálið.

Hendi samt með smá af YouTube flakkinu mínu. Mér finnst Vanilla Ice alltaf jafn fyndinn gaur. Jim Carey nær honum helvíti vel, textinn fyndinn.

Hér er originalinn.

Hann fékk náttúrlega líka mikla gagnrýni á sig, þar sem bassin er nákvæmlega eins og í Under Pressure, og það magnaða er að píanó-ið sem kemur ofan á er það sama líka upp á nótu.

Ég komst líka að því að Bryan Adams er óvenju góður að syngja óperur, mér finnst það allavega koma betur út fyrir hann en Pavarotti að syngja dæagurlög. Röddin hjá Pavarotti er samt náttúrlega ein sú þykkasta, sterkasta og flottasta og kemur fáránlega vel út bavkið til að keyra lagið upp hjá Adams i seinni flutningnum.

Hér er svo originallinn á þessu lagi, ótrúlega flott hvernig whiskey raddarnir hjá Stewart og Adams passa fáránlega vel saman og svo háa flotta röddin hjá Sting. Þetta er eins og sniðið saman, mjög töff tríó.

kl. 2:23 | Athugasemdir (2)

19.11.2007 : Vikan og helgin

Frekar viðburðalítil vika, gengur allt sinn vanagang. Tognaði á miðvikudeginum eins og ég nefndi. Á fimmtudeginum var ég svo fyrirmyndin uppmáluð og ákvað að baka og bjóða Trausta og Guðrúnu upp á afraksturinn. Ég var nefnilega ekki búin að heimsækja þau og kíkja og nýja soninn sem kom í heiminn meðan ég var úti. Ótrúlegt hvað þessi börn stækka hratt. Sævar Daði er 6 mánaða og hann er orðínn massa stór miðað við 3 vikna strákinn þeirra.

Fimmtudagurinn og föstudagurinn voru líka frekar leiðinleigir því ég lá upp í rúmi með hægri fótinn upp í loft með íspakka, bryðjandi bólgueyðandi. Kosturinn er að ég er búinn að horfa á 3 myndir sem ég ætlaði mér að sjá. Núna er ég aftur á móti byrjaður að labba og létt skokk (svo lengi sem ég teygi ekki of mikið úr löppinni).

Helgin var sömuleiðis viðburðalítil. Ég man nú ekki einu sinni hvað ég gerði á föstudagskvöldinu. Llaugardagskvöldinð var samt ekta strákakvöld.  Ég og Bjöggi fórum á Hornið að smakka pizzurnar þar áður en við kíktum svo til Óla Tómasar að hanga í XBox 360. Ég komst að því að ég er alveg mellufær í Fifa, en sjitt hvað ég var bara hlaupandi skotmark í Halo 3, sem betur fer kom Trausti a.k.a Tussi Þruma þannig að ég varð ekki lengur lélegastur.

Um tólf leytið fórum við svo á Vegamót, nældum okkur í borð þar, þar sem það var náttúrlega enginn mættur niður í bæ. Það breyttist þó fljótlega og um tvö leytið var ekki hægt að tala saman þarna inn fyrir 50 cent og félögum í G-Unit.

Við enduðum svo á dansgólfinu á Óliver með Tobba og Írisi, ég reyndar var kúl gaurinn sem dansaði ekkert heldur horfði á og nikkaði hausnum í takt við tónlistina. Það var þó einungis útaf tognuðum ham.

Í "þynkunni" daginn eftir, og ég nota gæsalappir því við vorum náttúrlega allir blá edrú, kíktum við til Hafdísar og Sveinbjörns og slöppuðum þar af í góðu yfirlæti gestgjafa.

Ingibjörg systir var með sunnudagsmatinn sem var alveg brilliant, nema að hún vandaði sig svo mikið við að láta allt líta vel út á disknum (og það tók sinn tíma) að margt var orðið frekar kalt þegar það kom á borðið :D.



kl. 7:17 | Athugasemd (1)

15.11.2007 : Kynþáttahatur

Vá hvað mér brá þegar ég sá þessa síðu, var ekki alveg viss hvort þetta væri grín eða hvort þarna væri fólki alvara. Í fyrsta lagi er ég það barnalegur að trúa því að það séu ekki ný-nasista samtök hérna á Íslandi og í öðru lagi datt mér ekki í hug að fólk væri ennþá það heimskt að tala um hreinsun!!

Þetta er greinilega samt ekkert grín, því ég rakst á frétt um málið á mbl.is

Ég er ekki frá því að kynþáttafordómar séu að aukast á Íslandi. Finnst eins og allir tali um "Helvítis Pólverjana", fólk tengi þá bara við nauðganir, glæpi og hverfandi fjármagn úr landinu.

Ég er alveg á því að það megi hugsanlega herða eftirlit eða stjórna betur innflytjendamálum, en mér finnst eins og allir tengi innflytjendur einungis við slæma hluti í þjóðfélaginu, sem á að sjálfsögðu ekki rétt á sér!

Auðvitað eru til low-life Pólverjar sem nauðga íslenskum stúlkum, en ég er ekki frá því að ég hafi heyrt alveg nóg um nauðganir áður en allir innflytjendurnir komu.

Þegar það er komið á það stig að byrja að tala um hreinsun og kynstofna að þá erum við komin útfyrir öll velsæmis mörk.

Mæli með að fólk horfi á Schindler's List og American History X.



kl. 5:38 | Athugasemdir (2)

15.11.2007 : Don't do drugs!

Alveg hreint ótrúlegt hvernig eiturlyfin fara með fólk.

Að sjá Pete Doherty ungan, hressan og meira að segja fyndin í viðtali fyrir Oasis tónleika og svo núna í einhverju sjónvarpsviðtali. Sjitt bara hvernig maðurinn er búinn að fara með sig

Before:

Aftter:

kl. 1:03 | Athugasemd (1)

15.11.2007 : Drasl

Ég var ekki par ánægður á æfingu áðan! Fann hvað ég var ótrúlega stífur í morgun, þannig að skynsami Bergur ákvað að taka létta æfingu í morgun. Tók 40 min cardio, teygjur og liðkandi, svona aðeins til að koma blóðinu af stað og vera aðeins ferskari fyrir intervalið seinna um daginn.

Í fyrsta sprettinum gengur allt vel, en þegar það eru svona 30 metrar í mark og ég kem niður beygjuna finn ég svona smá kipp í haminn, ekkert alvarlegt. Nefni það meira segja við Sölva "Hmm eitthvað tæpur í hamnum í dag". Jæja tek sprett númer 2 og allt gengur vel, sprettur númer 3, 150 metrar og ég ætla aðeins að reyna pikka upp hraðann og bamm! Finn gott tak á hamnum ekkert alvarlegt samt og er svona að ákveða hvort ég geti haldið áfram eða ekki, tek næsta skref og þá fór hann!

Eyddi því afgangnum af æfingunni með bundið um haminn, að kæla haminn með poka af ísmolum og í leiðinni að plata þá sem voru búnir með æfinguna að ýta í haminn.

Hreint ekki sáttur! Þetta var samt ekkert rosalegt held ég, engin úber tognun. Bara svona vel gott tak, held að ef ég taki því rólega næstu daga ætti þetta að vera allt í orden. Ég bara nenni ekki að fara lenda í einhverju rugli aftur eftir vonbrigði seinasta sumars.



kl. 0:14 | Skrifa athugasemd

13.11.2007 : Cooks my can

Ég er með youtube account svo ég geti leikið mér að henda inn vídjóum öðru hverju. Núna fékk e-mail notification að það væri einhver gutti orðinn "áskrifandi" af rásinni minni. Ég hló dálítið þegar ég smellti á kauða. Hann er vel steiktur.

kl. | Athugasemdir (5)

7.11.2007 : Part 2.2 New Orleans: Laugardagur

Við vöknuðum vel þreyttir á laugardaginn eftir brjálaði gærdagsins. Fötin voru meira að segja ekki orðin þurr, þótt ég hafi hengt þau til þerris á sturtuhengið. Skórnir mínir eiga líka að vera oregon grænir.

19-skor

Við vöknuðum það seint að við misstum af morgunmat. Þannig að eftir létt morgun fitness skelltum við okkur út á Bourbon Street sem var bara beint við hliðina á hótelinu. Ég var mjög sáttur með staðsetninguna á hótelinu, því það voru 20 metrar í Bourbon St. sem er svona Laugarvegur/Broadway New Orleans. Það var því stutt í alla veitinga- og skemmtistaði.

21-bourbon

Við skelltum okkur á veitingahús sem heitir Red Fishi (karfi). New Orleans matarmenningin snýst mjög mikið um sjávarrétti og barbeque og allt sem viðkemur fenjunum í kring. Í forrétt fengum við okkur því Krókudíla Gumbo og einhvern risarækju rétt. Aðalrétturinn var að sjálfsögðu Karfi og krabbakjöt og í eftirrétt tvöfaldur-súkkulaði brauðbúðingur. Alveg heavy nice máltíð. Þessi hickory karfi með krabbakjötinu var alveg virkilega góður. Krókidíllinn var ekkert slæmur en hann var ekkert sjúklega góður heldur. Bara svona venjulegur, pínu gúmmíleg áferð á kjötinu.

Við mættum því í seinna lagi upp í garðinn, en það kom ekki að sök. Hljómsveitirnar sem spiluðu á laugardeginum voru ekki alveg eins þekktar (allavega fyrir mér) og á föstudeginum. Við vorum aðallega að bíða eftir Ben Harper og Smashing Pumpkins.

22-bid

Ég man þegar ég hlustaði fyrst á Smashing PUmpkins. Ég var hooked á Tonight Tonight. Trommurnar hjá Chamberlain í þessu lagi eru stórkostlegar. Ég var því afar ánægður að heyra að Corgan og félagar gerðu sér grein fyrir að fólki langaði líka að heyra klassíkina.

Auðvitað eru þeir samt að túra til að kynna nýju plötuna Zeitgeist og því fékk mér að sjálfsögðu líka að heyra hittarana þaðan.

Við byrjuðum á að sitja í stúkunni, taka því rólega. Lögin hjá Smashing Pumpkins eru töluvert öðruvísi en hjá Rage. Það er ekki mikið um hopp og læti auk þess sem hvorugir okkar höfðu orku í að fara að berjast fremst efir gærkvöldið. Þess í staðinn nutum við þess að láta Corgan og félaga seyða ofan í okkur ein flottustu rokklög seinustu ára.

Ekki voru nú samt allir sammála okkur um ágæti SP og það var ótrúlegt að sjá fólk labba frá slíkum tónleikum. Ég held að allir hafi verið að miða þá við Rage kvöldið áður sem var náttúrlega geðveiki, en þetta eru bara tvær algjörlega mismunandi hljómsveitir. Smashing Pumpkins er ekki eins mikil "djamm" hljómsveit og Rage. Þegar á leið tónleikana færðum við okkur úr stúkunni og í þvöguna.

23-ljos

Þótt SP hafi ekki verið lokaatriðið létu þeir að sjálfsögðu klappa sig upp. Ég og Hlynur vorum nú dálítið stressaðir að fólk ætlaði ekkert að klappa þá upp. Það voru allavega ekki nærri því eins mikil læti, fólki hafði fækkað með SP spilaði. Held að margir hafi bara hlustað á 2-3 lög og svo hugsað "jæja búinn að sjá SP".

Þarna var líka tekið eitt skrítnasta uppklapp. Því allt í einu steinþögðu allir og kveiktu á kveikjurunum. Þögnin getur verið sterkari en mörg orð og það var tilfellið hérna. Smashing Pumpkins stigu á svið.

24-uppklap

Corgan má eiga það að hann er mjög duglegur að mynda tengsl við áhorfendur. Hann stoppaði milli laga spjallaði og grínaðist. Eitt af því sem hann var búinn að grínast mikið með var hvort þetta væri ekki ábyggilega New Orleans. Þeir væru búnir að túra mikið og hann vissi ekkert hvar hann væri að spila lengur. Eftir uppklappið kom hann fram og sagði aftur sama brandarann "This is New Orleans, right?" og fólkið náttúrlega öskraði því til staðfestingar. svo kom þetta lag.

Þvílík snilld að taka lag sem höfðar svo rosalega til New Orleans búaa, með kóngum suðurríkja rokksins: Creedence Clearwater Revival. Held að þeir hafi fengið ansi mörg kúlprik fyrir þetta, Þetta vídjó lýsir SP tónleikunum nokkuð vel. Stoppa í miðju lagi og öskra "I'm your heavy metal machine, and don't you fuckin' forget it!!" skipta yfir í það lag svo beint yfir í I love rock and roll.

Þegar Pumpkins voru búnir átti Tilesto að klára kvöldið, sem er víst eitthvað teknó band frá Hollandi ef ég man rétt. Við bræðurnar ákváðum þó að skippa því og kíkja frekar á lífið á Bourbon St.

25-bourbon

Hver sá sem sagði að Reykjavík væri með besta næturlífið hefur greinilega ekki komið til New Orleans. Á kvöldin er svo mikið af fólki á Bourbon St. að þeir loka götunni fyrir umferð. Þarna eru ótrúlega mikið af skemmtistöðum fyrir alla. Þú finnur staði sem spila týpísku Justin danstónlistina sem allir geta dillað sér við, en það sem mér fannst enn áhugaverðar er að þarna finnuru líka þvílíkt skemmtilegar búllur sem bjóða upp á live tónlist, djazz og blús af bestu gerð. Þannig lentum við inn á "Blues Bar". Við vorum einfaldlega að rölta þegar við heyrðum heavy flotta Stevie Wonder syrpu.

Við gátum ekki annað en sest þarna inn, fengið okkur einn öl og hlustað á þennan heavy nice blús. Málið er að það er til svo ótrúlega mikið af brilliant hæfileikaríku tónlistarfólki sem maður heyrir aldrei um. Það er ekki nema örfá prósent sem meika það og fá samning. Hinir sem eru alveg jafngóðir, ef ekki stundum betri en hafa ekki rétta lúkkið, enda á halda uppi svona búllum.

Bourbon St. er semsagt eins lifandi og svona götur verða. Það er samt pínu subbulegt hvað það er mikið af einhverjum klámbúllum þarna. Hefner var með "The Playboy house" og Larry Flynt var með tvo Hustler staði.

26-hustler

Þar sem það var líka Halloween var líka svipuð stemming á Mardi Gras. Þ.e.a.s allir með svona hálsmen (beads). Hugsunin er að maður á að gefa kvennfólkinu svona hálsmenn og þær eiga að flasha í staðinn. Veit ekki hverjum datt þessi snilldarhefð í hug, en það voru allavega flashandi brjóst út um allt. Þannig að ekki kvartaði ég.

Við lentum líka inn á skuggalegum bar svona í Anda Coyté Ugly. Við löbbuðum inn og þá var bara svona country tónlist spilandi og stelpur dansandi upp á bar borðunum. Þarna var líka svona mechanical bull sem við urðum að prófa. Við fórum í röðina en á undan okkur voru tvær vinkonur einhversstaðar frá mið-suðurríkjunum Alabama og þar í kring.

Þegar ég og Hlynur ætluðum svo að fara kom stelpa að okkur og bað okkur um að hleypa sér á undan. Hún vann þarna þannig að við byrjuðum eitthvað að pumpa hana að hún yrði að sýna okkur einhver serious moves ef hún átti að fara á undan. Vorum basically aðeins að fokka í henni.

Eins og þið sjáið er hún líka aðeins að fokka í okkur á móti með því að bleyta fingurnar og geyfla sig eitthvað. Það er samt magnaðast að hún var á þessu nauti án þess að halda sér. Fór bara hring og hring. Ég verð að segja að þótt hún sé alveg vel hórulegt er eitthvað sexý við þessar hreyfingar! Strákar back me up. (vídjó) Þá var komið af okkur bræðrunum og það er alveg hlægilegt hvað við erum ekki að láta þetta lúkka.

kl. 11:30 | Athugasemdir (5)

5.11.2007 : Helgin og fl.

Ég skelli inn vidjóum og myndum af laugardeginum og sunnudeginum úti fljótlega. Myndirnar eru líka inn á facebookinu, fyrir áhugasama.

Ég gerði annars fundamental mistake þegar ég kom heim á þriðjudagsmorguninn. Ég nefnilega lagði mig í stað þess að pína mig út daginn. Þar sem ég svaf takmarkað úti í NY og New Orleans og eiginlega ekkert í flugvélinni var ég alveg úrvinda þegar ég kom heim. Og útaf því að ég fór að sofa þegar ég kom heim um morguninn vaknaði ég ekki fyrr en um kvöldið sem þýddi basically að ég var vakandi alla nóttina og þar af leiðandi búinn að snúa sólahringnum við. Það þýddi að skóli og æfingar voru eitthvað út um þúfur út restina af vikunni. Náði svo að rétta mig af rétt fyrir helgina. Annars var þetta heavy plönnuð helgi. Er samt kominn með algjört ógeð á Bjögga.

Á föstudeginum var tékkað á Ruby með Bjögga, Jóhönnu, Hafdísi og Sveinbirni og svo setið á spjallinu fram eftir kvöldi. Mjög rólegt og þægilegt, en ótrúlega miklar vangaveltur.

Laugardagurinn fór að mestu leyti í að útbúa gourmet máltið. Helgina áður en ég fór út ætluðum við Bjöggi að útbúa einhvern gourmet mat og ákváðum að það væri nú hálfasnalegt að vera bara tveir að gera eitthvað fancy smancy, þannig að við buðum Hrönn og Láru. Þær komumst því miður ekki þá helgina og því var ákveðið að geyma það þangað til að ég kom heim.

Ég mætti til Bjögga klukkan 14 á laugardeginum og við vorum að til klukkan 19:30 að versla og útbúa matinn. Hann heppnaðist líka killer vel og ég held að allir hafi verið mjög sáttir og saddir. Ég og Bjöggi enduðum svo niður í bæ á Vegamótum þar sem við hittum Ylfu, Röggu, Möggu og Hrefnu. Beiluðum samt fljótlega og enduðum á röltinu með Tussa.

Sunnudagurinn fór í tiltekt og þvott en seinni partinn ákváðum við að tölvunördast heima hjá Bjögga. Smöluðum í 6 manna nörda partý. Sex strákar og 4 pizzur, brauðstangir og hvítlauksbrauð hreinlega hurfu. Það var orðinn svo mikill æsingur í tölvuleiknum að við enduðum með að vekja foreldra Bjögga sem ákváðu að fara snemma í háttinn. Þetta var samt geggjað stuð, en ég er ansi hrædddur um að nörda stuðullinn minn hafi hækkað alltof mikið þetta kvöld.



kl. 9:12 | Athugasemdir (5)

2.11.2007 : Part 2.1 New Orleans: Föstudagur

Þegar við komum til New Orleans vorum við orðnir ansi þreyttir. Við höfðum lítið sofið nóttina áður í New York og bekkir á flugvöllum eru ekki vel hannaðir til þess að leggja sig. Við bræðurnir vorum því orðnir frekar þreyttir og ákváðum að taka því rólega fimmtudagskvöldið. Við komum okkur fyrir og kynntum okkur hótelið og staðarhætti, hvar garðurinn væri og hvernig væri best að komast þangað.

Daginn eftir vöknuðum við ótrúlega spenntir. Tvær af okkar uppáhalds hljómsveitum voru að fara spila um kvöldið: Kings of Leon og Rage Against the Machine. Veðrið var ótrúlega gott á okkar mælikvarða en flugstjórinn deginum áður vildi meina að það væri frekar chilly, aðeins um 16 gráður sem vonandi myndi hækka eftir því liði á daginn, sem það gerði.

Eftir að hafa tekið morgunæfinguna skelltum við okkur á týpískan New Orleans bar. Ég var fyrirfram búinn að ákveða að allt sem ég myndi borða í þessari ferð væri matur sem ekki hægt að fá heima eða búið að bæta við orðunum New Orleans, Gumbo, Cajun, Bayou, BBQ eða Po-Boy við heitið. Ég fékk mér því mína bestu bbq samloku sem ég hef á ævinni fengið með bökuðum baunum og drykk sem hét Hurricane sem auðvitað var búinn til eftir Katrinu.

08-vip

Þegar við komum á svæðið sáum við að VIP passarnir voru aðeins meira en við héldum. Í fyrsta lagi þurftum við aldrei að bíða í röð sem er hentugt á tónleikahátíð þar sem búist var við um 100.000 manns. Við vorum því mjög ánægðir að hafa sérstakt "hospitality area" fyrir okkur þar sem var boðið upp á drykki og mat, ásamt sölubásum með varningi, svo við þyrftum ekki að bíða í röð með "almúganum". Auk þess voru allir styrktaraðilarnir með sér bása. Guitar Center sýndi helstu gítara sögunar frá Clapton, Page, Hendrix og fleirum. Playstation var með tölvur til að leika sér í og Citi var með Cabana tjald til þess að slaka á, ef maður týmdi ekki að borga fyrir nuddið sem var boðið upp á.

Uppsetningin á þessu var líka svo ótrúlega sniðug og skemmtileg. Hátíðin var haldin í New Orleans City Park sem er pretty much sama pæling og Central Park. Þeir breyta því ótrúlega stórum almenningsgarði í skemmti- og tónleikasvið.

09-gardur

Þetta eru ekki bara tónleikar heldur er hellingur um að vera, þarna er búið að setja upp 3 mismunandi svæði og hvert svæði með 2 svið. Í heildina eru því 6 svið og þar af leiðandi alltaf eitthvað um að vera. Skiptingin er frekar einföld "Le Carnival" eru svona eins og nafnið gefur til kynna allskyns lista- og menningaviðburðir. "Le Flambeau" býður upp á hljómsveitir og listamenn sem eru að skapa sér gott nafn og vert er að athuga betur (svipuð pæling og Iceland Airwaves) og svo "Le Ritual" þar sem stóru nöfnin verða.

10-playstation

Það sniðuga líka er að t.d. á Le Ritual eru tvö svið andspænis hvor öðru og á þeim er spilað á sirka 60-90 min fresti. Þannig að ef þú ert fremstur á Ben Harper (svið 1) ertu aftastur á Spoon (svið 2) og svo aftur fremstur á Smashing Pumpkins.

11-voodoo

Þessvegna voru VIP miðarnir alveg brilliant því maður var alltaf vel staðsettur fyrir Le Ritual þar sem hljómsveitirnar sem ég og Hlynur höfðum áhuga á sjá voru. Það skemmtilega við þetta festival var líka að þeir byrja snemma, nýta góða veðrið þannig að það skapast ótrúlega góð stemming, fólk sötrar á bjór, setur niður teppið og hlustar á skemmtilega tónlist.

Um morguninn heyrðum við einmitt í hljómsveit að nafni Earl Greyhound sem við höðfum aldrei heyrt í en vakti hjá okkur áhuga. Eftir að hafa hlustað á hana, hoppuðum við aftur upp á hótel þar sem við vorum komnir með vip gjafapoka sem við vildum ekki hafa á okkur þegar við færum að djamma um kvöldið við Kings of Leon og Rage. Það hentaði líka vel því við sáum að miðað við hvernig hitastigið og fólksfjöldin var að aukast væri betra að vera minna klæddur í pittinum hjá KoL og RATM. Þegar við komum til baka passaði akkúrat að Black Rebel Motorcycle Club voru að byrja.

Þetta vidjó er tekin úr VIP stúkunni sem er staðsett til hliðar svo við getum séð bæði sviðin. Eftir Black Rebel Motorcycle Club ákváðum við að fá okkur að borða svo við værum nú tilbúnir fyrir Kings of Leon og Rage Against the Machine.

Við ákváðum að vera ekki í stúkunni fyrir Kings of Leon og Rage. Við notuðum tímann meðan Kings of Leon voru að spila til að koma okkur fyrir í þvögunni sem hafði hægt og rólega myndast fyrir framan sviðið.

12-kol

Upphaflega var planið okkar að tala bara íslensku og ryðjast fremst og láta eins og við skildum ekkert þegar allir myndu bölva okkur. Það fór nú ekki alveg eins til stóð, því við komumst að því að Bandaríkjamenn voru bara mjög kurteisir, hleyptu okkur léttiléga í gegn og við þurftum ekkert að berjast fyrir því að koma okkur fram. Þrátt fyrir að það væri kannski 150 m löng stappa af fólki fyrir framan sviðin.

13-before

Þið sáuð á vidjó-unum áðan hversu stórt þetta er. Það var stappa af fólki á milli sviðana. Þegar við loksins stoppuðum, komnir svona 20-30 metra fyrir framan girðinguna kom stelpa upp að okkur "Have you guys stopped moving" og við bara "eeh yes for now", "ok cool, could you just scoop a little to left, thanks".

Aldrei hafði ég trúað að risatónleikafestival yrði svona. Við vorum því orðnir nokkuð sáttir með staðsetninguna og stemmingin var ótrúlega góð.

Eins og þið sjáið er allt öðru vísi stemming á þessum tónleikum en heima. Miðað við hitt vidjóið af svæðinu að þá sjáiði að við erum komnir ansi nálægt aðal sviðinu. Ég fæ bara algjöra nostalgíu fíling við að horfa á þetta. Ég hef sjaldan farið á tónleika með bandi sem eru svona hrikalega pottþéttir á sviði eins og Kings of Leon.

20-kol

Mér fannst samt mjög fyndið hvað það voru allir kurteisir og ég hugsaði bara Hmm þetta er ekki eins og á klakanum þegar einhver fer fyrir framan þig, heima að þá bölvar maður hálvitanum og reynir svo að komast fram fyrir hann. Við vorum því farnir að halda að þetta yrðu algjörir kurteisistónleikar. En þrátt fyrir það ætluðum við að skemmta okkur eins og við gætum.

Við ákváðum því bara að taka því "rólega" á Kings of Leon og taka Kanann á þetta. Standa með bjór í hendi og njóta góðrar tónlistar, en um leið og einhver færði sig eða fer úr, vorum við ekki lengi að skvísa okkur inn, þannig að hægt og rólega færðumst við framar og framar.


Þegar Kings of Leon voru búnir átti M.I.A að spila á hinu sviðinu og því um klukkustunda bið. En um leið og KoL hættu að spila að þá byrjaði ballið. Það væri eins og jarðýta væri fyrir aftan okkur, ruðningurinn var rosalegur. Fólk var að berjast fyrir að detta ekki í jörðina, hamagangur og öskur. Sumir meikuðu ekki lætin og færðu sig aftar. Ég og Hlynur nýttum okkur tækifærið og fórum með öldunni fram. Allt í einu breyttist staðan frá A í B. Og við nálguðumst grindverkin við sviðið óðfluga.

14-after

Við vorum komnir næstum því alveg fremst og Rage var EKKI BYRJAÐ. Lætin og ruðningurinn var hrikalegur og nei ég er ekki að tala um á ´íslenskum mælikvarða. Ímyndið ykkur um það bil 100.000 manns ætla að troða sér og ýta fremst á fólkið. Þetta er troðningur sem lætur Foo Fighters, Rammstein og Metallica tónleikana líta út fyrir að vera röðin í Hagkaupum á föstudegi.

Það var það mikill troðningur, læti og rugl að það var kölluð til Riot lögreglan. Það var ekki nóg að hafa kastarana sem Voodoo Festival sá um. Nei þarna var komin lögrlega með hjálma upp á dýrum sem ameríkanarnir kalla hesta en voru á stærð við fíla. Og hvað gerði fólksfjöldin þarna fremst þegar lögreglan raðaði sér fremst fyrir framan sviðið. Jú auðvitað byrjuðu allir að setja hendurnar upp í loftið, gáfu þeim fingurinn og sungu "Fuck you, we won't do what you tell us!! Fuck you, we won't do what you tell us". Ég hef aldrei upplifað eins mikið adrenalín.

Ruðningurinn og lætin voru líka það mikil að ég líki því einna helst við að vera í í björgunarvesti fljótandi í miðju norður-atlandshafi. Þegar fólkskarinn byrjar að hreyfast er ekkert sem maður getur gert, annað en að kreppa alla vöðva í líkamanum og reyna að halda sér uppi.

15-trodningur

Þannig að þótt við höfðum náð að komast næstum alveg fremst, með tvær línur fyrir framan okkur voru svo mikil læti að þegar einhver ýtti vel fór af stað keðjuverkun þannig að maður sveiflaðist bara fram og til baka og því sveifluðumst við að vera í "röð" númer 3 fremst að fara í svona röð 10 eða 11 og það var ekkert sem við gátum gert. Um leið og við flutum aftar var ekkert annað í stöðunni að byrja að troðast aftur fram og þannig var þetta alla tónleikana, barátta og læti.

Útaf þessu var Rage líka með sér kastara til þess að hjálpa til þar sem Voodoo kastararnir voru ekki nóg. Það var farið yfir reglurnar, þarna fremst urði allir að hjálpa hvor öðrum eða verða undir. Þetta voru möguleikarnir sem stóðu til boða. Það var búið til einskonar T-laga skurður í miðjan fólksskaran, þannig að það var hægt að komast út úr troðningnum. Þannig að það voru ekki bara verðir fremst fyrir framan sviðið þar sem eru alltaf girðingar heldur líka inn í miðjunni sjálfri upp að T-gatnamótunum. Þannig var búið að taka út hættulegasta svæðið, miðjuna.

Svo var loksins komið að því, reglurnar voru komnar á hreint og stundin nálgaðist óðfluga. Rage var að fara spila. Fólk búið að berjast þarna fremst í um það bil klukkutíma og allt á suðupunkti. Lætin stigmögnuðust, fólk öskraði, sumir af sársauka aðrir af spenningi. Menn vissu að núna væri að fara koma að því. Á þessum klukkutíma sem ég beið hafði myndast mun meiri stemming en ég hafði upplifað áður en og Rage var ekki einu sinni mætt. Hvernig myndi þetta verða? Þetta myndi bara aukast. Þetta var ástæðan fyrir að 100.000 manns voru mættir á sama staðinn. Hljómsveitin sem átti eftir að gefa orðinu "djamm" allt aðra merkingu.

Ég hef aldrei upplifað neitt annað á ævi minni. Ég hoppaði og öskraði eins og ég hef aldrei gert. Tónlistin tók algjörlega völdin. Fólk heldur að við séum fullir á þessum myndum, en þvert á móti. Við erum einfaldlega að berjast fyrir því að lenda ekki undir. Ég veit ekki hversu mörgum fullorðnum karlmönnum ég lyfti upp. Menn sem gátu hreinlega ekki meira, menn sem horfðu á á mig og kölluðu á hjálp "You gotta get me outta here, I gotta get me out, I can't breath!!" og eins og kastarinn talaði um urðum við að standa saman. Fólk var ekki að crowd-surfa til að skemmta sér, nei þvert á móti. Fólkið sem þið sjáið crowd-surfa var að crowd-surfa til að komast burt. Hitinn, þrengslin, loftleysið.

17-ratm2

Þetta var ekkert grín, það var allt brjálað. Þið sjáið líka á vidjóunum og myndunum hvað við færumst rosalega til í þvögunni. Það var ómögulegt að halda sér á einum stað. Bara t.d. í "Bullet in your head". Ég byrja mjög framanlega, en um leið og ég tek upp myndavélina, missi ég eina hendina og það er erfitt að berjast með annari hendi og því í lokin er ég komin aftar.

Þetta er án efa það skemmtilegasta sem ég hef á ævi minni gert. Nokkrum sinnum hugsaði ég samt "ég verð að fara" því ég var hreinlega að deyja. En ég ætlaði ekki að láta það fréttast að ég væri frá Rage.

16-ratm

Lappirnar voru orðnar gallsúrar, ég var orðinn rennandi blautur og uppþornaður. Ég var kominn með brunasár á framhandleggina útaf því að maður var alltaf að nuddast upp við blauta húð hjá öðrum. Ég var kominn með bláar tær útaf öllum hoppunum. Sköflungarnir voru orðnir rauðir af blóði, og undir öllu blóðinu voru marblettir. Ég fékk líka smá sár á brjóstvöðvana, marbletti og sár á tvíhöfða og axlir og það fyndna er að ég myndi gera þetta allt aftur. Þótt ég myndi þurfa að borga tvöfalt verð.

18-bunir

Þegar við komum heim upp á hótel var planið að fara út og skoða næturlíf New Orleans, en við vorum of uppgefnir, áttum ekki neina orku eftir. Þannig að við tókum heita sturtu og beint í svefninn eftir geggajð kvöld.

kl. 6:26 | Athugasemdir (1109)

31.10.2007 : Part 1/2 New York

Á mánudaginn 22. október vaknaði ég upp eldhress og góður tilbúinn í ferð lífs mins.

01-heima

Við komum til New York á mánudagskvöldið og gistum hjá Sigurjóni. Vorum að sjálfsögðu alveg dauðþreyttir þegar við loksins komum þannig að það var lítið gert annað en að spjalla. Að sjálfsögðu færði ég Sigurjóni það besta af íslensku nammi. Veit ekki hvort hann hafði meira gaman af, að sjá mig eða fötuna af Maltesers!

Á þriðjudaginn röltum við um borgina og skoðuðum okkur um. Kíktum m.a. í Empire State bygginguna og ákváðum að fara alveg upp á 102 hæð en flestir láta duga 86. hæð duga sem er í raun hin eðlilega útsýnis hæð. Þetta var alveg í takt við þessa ferð, þar sem allt var gert "to the maximum".

02-esb102

Þar sem við bræðurnir erum líka ótrúlega miklir Seinfeld aðdáendur ákváðum við líka að finna matsölustaðinn úr Seinfeld þáttunum. Við löppuðum þvert yfir alla Manhattan, alveg frá Sigurjóni í East Village, upp broadway, 5th avenue, central park að Upper Westside hinum megin á Manhattan. Daginn eftir fundum við líka fyrir því, fæturnir voru alveg búnir.

03-seinfeld

Sigurjón hló líka að mér að hafa 2 daga í New York og eyða þriðjudagskvöldinu í að finna mér rækt til að missa ekki úr æfingum, en eins og ég sagði að þá var allt gert to the maximum!

Á miðvikudaginn kíktum við í Museum of Modern Art, ætluðum að kíkja á Guggenheim, Natural Museum og Metro, en tíminn rann algjörlega frá okkur. Það var samt gaman að sjá nokkur af flottustu listaverkum nútímans, þótt ég hafi haft mest gaman að design & architecture hæðinni.

04-moma

Um kvöldið var planið að fara á Times Square og kíkja á leikhúsin. Við áttum pantaðan miða á Lion King...eða svo héldum við. Þegar við ætluðum að pikka upp miðana tjáði afgreiðslumaðurinn okkur að þessir miðar hefði verið fyrir 17 október (ekki 24). Ég var lengi að reyna finna út úr hvaða dagsetning það væri og hvernig þetta hafði geta klúðrast og komst að því að Ticketmaster hafði eitthvað klúðrað pöntunina, því ég pantaði miðana þann 17! Eitthvað hafa dagsetningar ruglast. Við vorum því frekar stressaðir og engu munaði að Hlynur myndi missa sig, en það þarf meira á hinn salispaka Berg og að lokum náði afgreiðslan að redda okkur miklu betri sætum þvert fyrir miðju í 4 röð á sýningu sem var uppseld á $111 í stað $250 eins og þessi sæti kosta vanalega.

05-lionking

Það er nokkuð ljóst að Íslendingar þurfa að taka leiklist 101 aftur, því að leikhús á Íslandi hreinlega sökka. Uppsetningin, búningarnir, sviðsmyndin, leikararnir, handritið, bandið, lögin. Þetta var ótrúleg upplifun alveg ógleymanlegt. Tók samt eftir tveim atriðum sem var búið að "ameríkuvæða" söngleikinn aðeins til þess að gera hann auðmeltanlegri.

Á fimmmtudagsmorgun flugum við svo til New Orleans...eða það var réttarasagt planið. Hinn yfirvegaði og salispaki Bergur sem hafði reddað málunum kvöldinu áður var aðeins of rólegur og við mistum af fluginu. Ekki útaf því að við vorum ekki mættir, þvert á móti vorum við alveg tímanlega, en í staðinn fyrir að labba beint inn í flugvélina og hanga þar í 30 min ákváðum við að það væri betra að bíða smá og fara þegar það væri nær brottför. Það kom okkur því alveg í opna skjöldu þegar 10 mín voru í flug og við ætluðum að labba inn að það væri búið að læsa og loka og núna að boarda fyrir Portland.

06-jfk

Þá var komið að semja við afgreiðsluna hjá jetBlue, við kveiktum á sjarmanum og náðum að koma okkur í flug til New Orleans sem færi seinna um daginn án þess að þurfa borga aukanlega. Við enduðum því með að eyða 5 klukkustundum á flugvellinum, þegar við ætluðum að spara okkur 10 min inn í flugvélinni. Það var þó líka lán í óláni því ég las alveg hreint æðsilega bók sem heitir Flugdrekahlauparinn. Alveg hreint mögnuð bók sem Robbi mælti einhvern tímann með fyrir mig og ég mæli með fyrir alla. Þetta var því alls ekki slæmt.

Klukkan 15:20 flugum við Hlynur frá New York til New Orleans þar sem biðu okkur LOA VIP miðar á Voodoo Music Experience.

07-voodoo

kl. 0:00 | Athugasemdir (8)

30.10.2007 : Some of those who burn crossess, are the same that hold office!!

Nú halda sumir að ég kunni ekki textann við Killing in the name of, en svona söng Zach það á besta kvöldi ævi minnar. Ég spái því að brúiðkaupsnóttin nái ekki að toppa föstudagskvöldið.  Holy sjitt hvað þetta var geeeeggjuð ferð!!

Þetta var útúr tryllt! Er með 6 gb af myndum og vidjó-um. Skelli inn heljarinnar bloggfærslu fljótlega.

 



kl. 9:08 | Athugasemdir (6)

19.10.2007 : Trip of a lifetime

Ég er að deyja úr spenningi.

Á mánudaginn leggjum við Hlynur bróðir í "a trip of a lifetime". Við leggjum af stað frá Keflavík klukkan 17 á mánudeginum og verðum lentir í New York klukkan 19:00

manhattan

Þar mun Sigurjón skjóta yfir okkur þaki þar sem sæmilegt hótel í New York kostar "an arm and a leg". Á þriðjudaginn munum við svo hanga og leika okkur og enda á að kíkja eitthvað út með Sigurjóni farastjóra, en hann þekkir náttúrlega alla bestu staðina.

Á miðvikudaginn skellum við okkur á Broadway, en við erum komnir með miða á Lion King söngleikinn (og já antilópurnar í bakgrunninum eru leikarar).

lionking01

Á fimmtudags morgun fljúgum við svo til New Orleans.

frenchquarters

Þar gistum við á hinu sögufræga Hotel Monteleone sem er staðsett í franska hlutanum beint við Bourbon St.

hotel

Við ákváðum að vera grand og panta okkur alvöru hótel með öllu mögulegu. Þarna verðum við semsagt í Deluxe herbergi beint yfir Bourbon st. með útsýni yfir Missipi ána. Full room service. aðgang að spa og líkamsræktarstöð og svo að sjálfsögðu sundlauginni sem er á þakinu með geðveiku útsýni.

Á föstudaginn stíga á stokk ástæðurnar fyrir þessari ferð. Þá spila sama kvöld Kings of Leon og Rage Against the Machine.

kol

ratm

Á laugardals kvöldinu spilar svo Smashing Pumpkins.

sp

Sunnudagskvöldið er svo búið snemma en þar spila þó margar áhugaverðar hljómsveitir eins og The Black Crowes sem lumar á mörgum góðum lögum. Hér er complete dagskráin.

Að sjálfsögðu keyptum við okkur VIP miða yfir helgina. Þá erum við í VIP Grandstands stúku með fullri þjónustu, hlaðborði og drykkjum, ásamt því að fá "special appearances" og enga biðraðir, auk þess að geta hoppað inn og út eins og okkur hentar.

voodo

Þar sem hótelið okkar er staðsett við Bourbon Street er einnig planið að rölta um á allar djazz búllurnar og flottu veitingastaðina og njóta lífsins.

bourbonstr

Á sunnudagsmorgun fljúgum við svo aftur til New York þar sem við eyðum líklegast því sem eftir verður af VISA heimildinni.

times

Klukkan 21 á mánudagskvöldi fljúgum við svo heim. Bláfátækir en betri menn!



kl. 0:46 | Athugasemdir (6)

18.10.2007 : Bergur og sundlaugarnar pt 2.

Má maður aldrei slapp af í sundi? Alltaf lendi ég í vandræðum með sundlaugarvörðinn. Í seinustu viku endurtók sagan sig næstum því. Ég skellti mér semsagt í suðurbæjarlaugina í Hafnarfirði og var bara að slaka á þegar mér dettur í hug að athuga hvað ég geti haldið í mér andanum lengi. Þannig að ég fer í grunnu laugina og byrja að halda í mér andanum. Til þess að spara sem mest súrefni er ég að sjálsögðu alveg afslappaður, þannig að ég svona hálpartinn flýt á vatninum með hausinn rétt ofan í og hendurnar svona fyrir ofan hausinn danglandi í vatninu. Allt í einu heyri ég einhver læti í gegnum vatnið en kippi mér ekki upp við það, þangað til að lætin verða alltaf meiri og meiri  og skiljanlegri: "Er allt í lagi með hann!!!?" þá lít ég upp og sé sundlaugavörðinn alveg brjálaða í skapinu. "Er ekki allt í lagi?" og ég eitthvað styn upp úr mér "ha jújú, ég var bara að æfa mig að halda í mér andanum" en hún er sko ekki sátt við mig "já sko það er nú ekki í lagi með þig drengur, hvernig þettur þér þetta í hug?" og eina sem ég gat sagt var "fyrirgefðu, ég ætlaði ekki að valda vandræðum, ég var bara að æfa mig í halda í mér andanum". Þá strunsaði hún bara burt tautandi "það er nú ekki allt í lagi...".

Og ég sem var að nálgast 2 minúturnar! Djöfullinn!



kl. 13:38 | Athugasemdir (3)

15.10.2007 : Djók!

Haha það hlaut að vera! Búinn að eyða allir helginni fyrir framan tölvuna að klára verkefni. Á föstudeginum sat ég, wait for it, frá 15:00 til 07 á laugardagsmorgun, með einni íspásu. Á sunnudeginum sat ég svo frá um hádegi alveg til klukkan 21 núna. Já er ekki enn farinn að sofa.

Ég er búinn að sitja og bölva þessu og reyna koma mér eitthvað áfram og var svo loksins svona að koma þessu í horf sem ég er svona sæmilega sáttur við núna. Tek þá allt í einu eftir að ég fæ póst frá kennaranum um að það sé búið að lengja skilafrestinn um viku!

Hefði verið frábært að fá þennan póstí gær. Ég er myglaðari en allt!

UPDATE: kl er 16:10 á þriðjudegi og ég var að vakna, skv. mínum útreikningum svaf ég í 17 kls eftir þetta rugl.

kl. 21:12 | Athugasemdir (6)

10.10.2007 : Never Ending Movie Quiz

Leik mér stundum að spila "The Never Ending Movie Quiz". Hló frekar mikið þegar ég sá þessa spurningu

----

In what movie is this line from

"I want you to hit me as hard as you can"

a. Bloodsport
b. Rocky III
c. Drunken Master
d. Fight Club
e. Paris Hilton Sex Tape



kl. 13:35 | Athugasemdir (2)

7.10.2007 : 22. Október

14 dagar and counting!!!

kl. 11:27 | Athugasemd (1)

5.10.2007 : Scenes from italian restaurant

..er eitt af mínum uppáhaldslögum og þegar það er flutt með svona mikilli innlifun og spilagleði á tónleikum að þá verður það bara æðisgengilegt. Vá hvað ég hefði gefið fyrir að vera á þessum tónleikum.

Takið líka eftir saxafón/klarinett leikaranum. Hann er að tapa sér. Þvílíkt góður og raddar svo efri röddina líka. Nice.

kl. 10:00 | Athugasemdir (4)

4.10.2007 : Bob had bitch tits

Vá hvað ég var vitni að skrítnum hlut í sundi fyrir nokkrum dögum. Var í klefanum, búinn í sundinu og var bara að þurrka mér þegar ég sé karlmann með ...wait for it... kvennmannsbrjóst! Nei þetta var ekki feitur karlmaður með lafandi brjóst. Þetta voru bara kvennsmannsbrjóst. Sjitt hvað þetta var skrítið, minnti mig bara á Fight Club.

Bob from Fight Club



kl. 13:09 | Athugasemdir (3)

1.10.2007 : Æfingar, Forsetinn og Bob Seger

Lítið að gerast þessa dagana. Æfingar byrjuðu officially aftur í dag og það var mjög fínt. Að sjálfsögðu bauð foringinn upp á ekta austur-evrópska stöðvarþjálfun eins og ég var búinn að spá fyrir.

Á sunnudeginum var ég að vinna við Alþjóðlega Hjartadaginn. Fyrst átti ég bara að vera kynnir en hljóðkerfið kom ekki nema svona 4 klst of seint þannig eitthvað varð lítið úr því hlutverki hjá mér. Ég reyndar tók mig til hoppaði upp á svið og gargaði yfir allan mannfjöldan hvar og hvenær hlaupin væru að fara byrja. Þá hélt ég að væri nú sloppinn, en var plataður í að vakta eina beyju í hjartahlaupinu svo fólk færi nú ábyggilega rétta leið. Þá fór ég nú að hugsa mér að koma mér heim, en lenti í því stjórna fitness þraut fyrir krakka. Að því loknu var ég svo fenginn til að ganga frá nokkrum hlutum og koma þeim aftur í fífunni og að lokum að skila pallbílnum sem við fengum lánað frá Toyota. Ég var því alls frá 9:30 - 14:00 að vinna við þennan blessaða dag. Kosturinn er aftur á móti að Forseti Íslands kom, bauð góðan daginn, tók í hendina á mér og byrjaði bara að spjalla. Hvar annars staðar en á Íslandi gæti ég verið að segja þjóðhöfðingja landsins að ég hafi ekki verið að hlaupa í dag, en hafi hlaupið á laugardeginum í víðvangshlaupi. Í dag væri ég bara að vinna. Alveg hreint magnað hvað Ísland er lítið. Dýrka það.

Ég kíkti svo beint í kaffi til Bjögga með Hafdísi og Sveinbirni, sem var mjög nice. Um kvöldið var ég svo óskynsamur og spilaði tölvuleiki með Bjögga, Gísla og Óla. Sem þýddi það að ég fór alltof seint að sofa og vaknaði alltof seint.

Mundi allt í einu eftir ótrúlega fyndu atriði eftir að hafa lesið bloggið hans Sigurjóns, sem ég verð að henda með.



kl. 8:35 | Athugasemdir (2)

26.9.2007 : Ógeðslegi gaurinn 2

Ákvað að taka ógeðslega gaurinn á þetta í dag upp í háskólarækt, en það er rúmlega ár síðan að ég tók hann seinast. Til þess að breyta til ákvað ég þó að taka hann á þrekhjólinu í þetta skiptið.

Ég mætti semsagt í Háskólaræktina rétt áður en aðal fjöldinn mætir. Settist á þrekhjólið og byrjaði bara strax af krafti og kikkaði svitaframleiðslunni strax af stað. Ekki batnaði þegar litla háskólaræktin fylltist af fólki, loftið var þyngra og heitara og enginn opinn gluggi. Ég sit og hjóla eins og ég eigi lífið að leysa með dúndrandi rokk tónlist í eyrunum. Ég eyk og eyk hraðann og þyngdina jafnt og þétt og svitinn hreinlega lekur af mér. Ég reyni að drekka vatn en það virðist bara skolast jafnóðum út um svitaholurnar. Eftir um það bil 12 min var ástandandið eins og í gamanmyndunum þegar persónurnar eru lekandi í óvenju ýktum svita eins og vatni hafi verið hellt yfir þá. Það hreinlega lekur af mér niður á þrekhjólið og gólfið í kringum án gríns er byrjað að polla. Lapparnir á mér hreinlega loga og mig er byrjað að klæja útaf sýru. Blóðflæðið er það mikið og líkaminn er að pumpa svo mikið að ég er bara rauð-og-hvít röndóttur. Svitinn lekur svo mikið af mér og ég er að anda svo djúpt og styn af sársauka að fólk er byrjað að snúa sér við og horfa. Sumum greinilega ekki alveg sama.

Eftir 30 min þar sem ég fór rétt tæpa 15 km og fór aldrei undir 110 rpm og hæst upp í 150 rpm er ég orðinn svo blautur og ógeðslegur að ALLUR hvíti bolurinn minn er orðinn gegnsær - Gjörsamlega. Ég stend upp og bolurinn er alveg límdur við mig. Það var eins og ég hafði hoppað í sturtu og þarna stend ég inn í Háskólaræktinni í svo rennandi blautum bol að allur efri líkaminn er sýnilegur í gegnum bolinn og geirvörturnar standa út eins og þær hafi verið ísaðar. Það stoppaði mig samt ekki í að fara í tækin og taka smá fitness.

...ég held að ég hafi náð að heilla nokkra gellur þarna.



kl. 18:44 | Athugasemdir (7)

23.9.2007 : Helgin

Ég er orðinn heavy lélegur bloggari. Vikan er búin að fera í test drive-a bíla. Pabbi og mamma ætla að fara skipta. Eftir að hafa prófað næstum alla bila á verðbilinu 2,5 - 3 að þá standa eftir Honda Accord, VW Passat og Mazda 6.

Helgin var mjög nice. Slappað af í góðra vina hópi.

Föstudagur: Tjill heima hjá Hafdísi og Sveinbirni með Bjögga. Á meðan einhverjir blikar djömmuðu af sér rassgatið.

Laugardagur: Fajitas og belgísk súkkulaðiaka heima hjá Trausta og Guðrúnu með Sverri og Hannesi.

Sunnudagur: Pottaferð með Bjögga. Sunnudagsmatur hjá pabba og mömmu.



kl. 22:32 | Athugasemdir (2)

20.9.2007 : Ísland og túrismi

Horfði á einn þátt af House í gær, áður en ég fór að sofa. Þar var 17 ára stelpa (að verða 18) sem er hrifin af House og vill sofa hjá honum.

Ali: In Iceland the age of consent is 14.
House: I'm surprised that tourism isn't a bigger industry up there.



kl. 12:38 | Athugasemdir (3)

12.9.2007 : That's the way to do it

...money for nothing and the chicks for free.

Vá hvað ég skrítinn. Ég gat ekki skrifað "That's the way to do it" án þess að botna hana. Mark Knopfler veit hvað hann syngur.

Lagðist upp í rúm klukkan 21 í gær, skellti einum Seinfeld í tækið og var því sofnaður um hálftíu í gær. Heavy nice, vaknaði svona um hálfsex í morgun af sjálfsdáðum. Þá var ég búinn með mína 8 tíma eða svo. Ótrúlega þægilegt. Tók smá slurk í lærdómnum og náði að klára eitt verkefni, spjallaði smá við Kristínu á msn (hehe hún og Jónas Hlynur einu manneskjurnar inni á þessum tíma) og hoppaði svo út í rokið og rigninguna þar sem Trausti nokkur Hannesson hafði platað mig í morgunskokk kvöldið áður. Ég hefði náttúrlega aldrei samþykkt það hefði ég horft á veðurspána, því við þurfum að hafa okku við að berjast við vindkviðurnar og rigninguna. Lagaðist sem betur fer í Elliðárdalnum, þar sem trén gáfu okkur smá skjól.

Trausti var reyndar hinn hressasti, þar sem hann hafði bara vaknað svona 2 min áður en hann hoppaði út og ekki litið út um gluggann og hljóp því á stuttbuxum og stuttermabol.

Svo tók ég bara smá maga, bak og armbeygjur. Fékk mér morgunmat og skellti mér í Garðabæjarlaugina að slappa af í heitu pottunum. Ótrúlega skrítið að vera búinn að gera svona mikið og búinn að vera vakandi í 4-5 klukkutíma þegar klukkan er bara 10 um morguninn.

Nú þarf ég bara að fara fylla út í æfingadagbókina og ef ég næ svo að mana mig í að reikna stærðfræði að þá verð ég heavy sáttur við daginn.

kl. 10:52 | Athugasemdir (4)

10.9.2007 : Helgin var fín..

Man nú samt ekki hvað ég gerði á föstudeginum. Það getur ekki hafa verið merkilegt. Ah jú alveg rétt. Skellti mér á létta æfingu og sund með Bjögga. Þessvegna man ég ekki eftir því! Eftir sundið pikkaði ég Tobba upp og við þremenningarnar ásamt Adda skelltum okkur á Austur-Indíafélagið. Indverskur matur er svo góður!

Laugardagurinn var illa nýttur um daginn, hefði átt að læra eða gera eitthvað annað að viti en í staðinn hvarf hann eiginlega bara. Um kvöldið kíkti ég aftur á móti í Grill og fyrirpartý hjá Stebba Guðmunds.

Tinna vinkona mína úr grunnskóla var aftur á móti kominn á klakann eftir að hafa verið í Danmörku, Californíu, Guate Mala og veit ekki hvað. Hún ákvað að halda upp á afmælið og maður gat ekki klikkað á að hitta hana, sérstaklega í ljósi þess að hún er að fara hoppa til Argentínu á næstu dögum.

Þar aftur á móti byrjaði ruglið, þar sem ég get ekki sagt nei við góðum Mohito ;). Þegar leið á kvöldið skellti ég mér aftur á móti í Hafnarfjörðinn til Óla Tómasar í fínasta partý. Heiðrún Ingólfsdóttir átti umtalaðasta move kvöldsins sem kom öllum rækilega (og skemmtilega) á óvart.

Þegar líða fór á kvöldið og fjölskylda Óla vildi fara fá húsið sitt aftur skelltum við okkur til Þóru Kristínar og héngum þar. Um fjögur- fimmleytið var ég aftur á móti orðinn frekar þreyttur og beilaði með Bjögga, Begga og Arnóri. En þó ekki fyrr en maður reddaði sér einni bacon pyslu með kartöflusalati.

Heljarinnar fínt kvöld, en það nokkurn veginn varð til þess að sunnudagurinn varð ekki úr neinu og því sat ég sunnudagskvöldið og reiknaði aflfræði þegar mig hefði frekar langað að skella mér í bíó eða leigja mynd. Það er svona að vera skynsami gaurinn.

Í dag fann ég líka fyrir þreytunni því mér tókst ekki að vakna í morgun. Ég svaf í gegnum tvær vekjaraklukkur og símtal frá Bjögga. Ég aftur á móti þaut upp úr rúminu  með tilheyrandi "sjitt" eftir ð hafa verið að bylta mér og litið á vekjaraklukkuna á náttborðinu og séð blikka "11:00".



kl. 11:45 | Skrifa athugasemd

8.9.2007 : Ó Já!

Á mánudaginn þann 22. Octóber kl 17:00 mun ég og Hlynur stíga upp í flugvél og fara til NY. Þar munum vera næstu 3 daga (mán,þri,mið) og fljúga þaðan svo á fimmtudagsmorgni til New Orleans.

Þar erum við búnir að panta 4 stjörnu lúxus hótel með fullri þjónustu í miðju franska hverfisins. Ekki nóg með það heldur erum við komnir með VIP passa á Voodo Music Festival sem verður haldið þar föstudag, laugardag og sunnudag. VIP passinn felur í sér lúxus stúku sem sér beint á sviðið, með fullum veitingum,, þjónustu, mat og fríu áfengi, engum biðröðum, frjálst að hoppa inn og út (getum farið í pittinn) og sérstökum "gesta heimsóknum" - hvað sem það þýðir.

Ástæðan er einföld. Þetta er eitt besta line-up sem hefur sést. Því þarna spila saman Kings of Leon og Rage Against the Machine...ó já og Smashing Pumpkins, Black Rebel Motorcycle Club, Black Crowes, Clap your hands and say yeah og svo má nefna "litlu nöfnin" eins og Fallout Boy, Red Jumpsuit Apparatus, Ben Harper, Spoon, Gym Class Heroes, Wilco og fleiri og fleiri.

Þetta mun mjög líklega setja mig á hausinn, en mér gæti ekki verið meira sama. Rage með Zach er náttúrlega nóg til þess að fljúga hinum meginn á hnöttinn, og þegar menn henda inn Kings of Leon og Smashing Pumpkins, ásamt öllum hinum að þá er þetta SOLD!



kl. 14:10 | Athugasemdir (5)

7.9.2007 : Blogg?

Ekki veit ég afhverju ég er með blogg. Það breytist ekkert hjá mér: Single, í skóla, æfi frjálsar og vinn hjá hugbúnaðarfyrirtæki/vefstofu. Svona hefur þetta verið síðan ég setti upp bergur.is árið 2001 þegar ég vann hjá Mekkano / Kveikjum. Eitthvað hefur mér nú samt tekist að blaðra um því ég er með tæplega 2.000 færslur í gagnagrunninum.

Það er því kannski skemmtilegt frá því að segja að vonandi í kvöld eða morgun kem ég með stórfrétt sem á eftir að breyta lífi mínu til frambúðar.

Uppfært 16:58
Ég hef ekki fengið frið á MSN í dag og því koma nokkrar auka vísbendingar.

1. Þetta er eitthvað sem ég hef beðið lengi eftir
  2. Ég þarf að tala við ákveðinn aðila áður en þetta er official
  3. Ég hef talað mikið um þetta
  4. Ég hef haft svipuð tækifæri en klúðrað
  5. Þetta felur í sér aukin útgjöld, en í svona dæmi hugsar maður ekki um það.

kl. 10:22 | Athugasemdir (2)

3.9.2007 : Upside down

Sólahringurinn er gjörsamlega kominn á hvolf hjá mér. Ég er búinn að vaka langt fram á kvöldin útaf HM sem er alltaf sýnt frá 01 til 03:30 og svo aftur um morguninn klukkan 10:00. Ég er búinn að horfa á alla dagana sem er í heildina 10 dagar af frjálsum íþróttum. Mér finnst bara varla finnast skemmtilegra sjónvarpsefni. Það sem ég hef séð fram á að missa af hef ég tekið upp á Archosinn og horft á seinna.

Ekki batnaði helgin því á föstudagskvöldinu endaði ég heima hjá Bjögga að tölvunördast til klukkan fjögur-fimm um nóttina og á laugardeginum tókum við það skrefinu lengra með að sitja til sex um morguninn.

Þarf semsagt að fara snúa mér aftur og koma mér er í góða rútínu, en ekki að vera blogga klukkan tvö um nóttina þegar það er skóli klukkan átta daginn eftir.

Annars ligg ég bara upp í rúmi núna nýbúinn að horfa á The Illusionist því ég gat ekki sofnað (hmm skrítið). Best of diskurinn með Simon & Garfunkel er núna kominn í gang og vonandi nær hann að svæfa mig eitthvað. The Only Living Boy in New York er ótrúlega flott og seiðandi lag.

kl. 2:04 | Skrifa athugasemd

29.8.2007 : Skólinn byrjaður

Lítið að frétta þessa dagana

  • Skólinn byrjaði á mánudag
  • Pabbi átti afmæli í gær og eldaði dýrindis mat og bauð svo fjölskyldunni á Bourne Ultimatum.
  • Ég skráði mig á facebook
  • Ég er búinn að liggja yfir HM.
  • Óli benit mér á MusicOvery.com - virkilega kúl concept sem ég fíla í tætlur.
  • Ég er fyndni pirrandi vinurinn, en Tobba finnst ég bara ábyggilega pirrandi vinurinn.


kl. 14:10 | Skrifa athugasemd

24.8.2007 : Strákakvöld

Massíft strákakvöld í gær. 300gr heimatilbúnum hamborguruum var hent á heitt grillið og ískaldur bjór drukkinn meðan dónlegir brandarar, óviðeigandi komment og almenn dólgs- og fíflalæti voru á hávegum höfð.

Brilliant kvöld, sem endaði með að labba um Kópavoginn eins og róni á fimmtudagsnótt með Óla Margeirs.



kl. 14:12 | Skrifa athugasemd

23.8.2007 : Haha

Það eru oft þessu litlu atriði sem bjarga deginum. Fékk bréf í vinnunni frá Sigurjóni

---------------------------------------------------------

Bergur minn...

Einingin er komin inn, flokkurinn í stjórnkerfinu er kominn, en hann virkar samt ekki. Fæ bara error og vesen á hana.

Einnig ætla ég að biðja þig um að kíkja á atburðardagatalseininguna (langt orð!) en það er ekki hægt að skrifa inn nýjan atburð á hana vefmeginn.

Það er reyndar eitt atriði enn á XXX.is sem ég veit ekki hvort þú getir lagað. Það var komið til Hauks (og er líklega ennþá þar miðað við hvernig staðan er á forriturunum okkar) en það tengdist villunni sem kemur á flutningsfyrirmælin á forsíðunni á innri vefnum. Þessi eining er notuð á forsíðunni á XXX.is og eru þar fest á ákveðið webcat.ID (auðvitað!) sem þýðir að það kemur error þegar reynt er að nota þau annarsstaðar, eins og á innri vefnum.

Hóaðu í mig ef þú hefur einhverjar spurningar.

kv.Sigurjón

---------------------------------------------------------

Ég svara

Sæll og blessaður minn kæri Sigurjón.

Eftir að hafa kíkt á þennan vef get ég með gleði í hjarta tjáð þér að skráning atburðar er komið í lag og sömuleiðis Flutningsfyrirmælin.

Aftur á móti hryggir það mig að segja þér að villan sem kemur upp varðandi myndaalbúmið tengist því að hún er ekki að þekkja ákveðnar skipanir eins og t.d. writeSpaces og getLocalizer. Ég hef sterka trú á að þessar aðgerðir séu ekki til í 1.4.3 umhverfinu heldur einungis í 1.4.5 og þessvegna sé þetta að klikka. Reynir og Gummi geta svarað því betur

Hafðu það sem allra best.

Þangað til næst, þinn vinur
Bergur Hallgrímsson

---------------------------------------------------------

Sigurjón svarar aftur

Kæri Bergur

Innilegar þakkir fyrir bréfið. Megi Guð blessa þig um aldur og ævi.

Þinn kæri vinur
Sigurjón Guðjónsson

---------------------------------------------------------

Þess má geta að við sitjum svona 3 metrum frá hvor öðrum.



kl. 12:41 | Skrifa athugasemd

22.8.2007 : Strangt uppeldi

Mamma og pabbi hafa alltaf haft "firm but fair" uppeldi, að mínu mati.

Á mánudaginn fannst mér þó mamma ganga helst til langt. Stelpurnar höfðu eitthvað verið að nota eldhúsið og ekki gengið almennilega frá eftir sig. Mamma var að drífa sig í ræktina og skildi því eftir miða eftir á borðinu sem á stóð.

"Viljiði gjöra svo vel að ganga frá ykkur!"

Ég hringdi náttúrlega í mömmu þegar ég sá miðann og tjáði henni að auðvitað ætti ég ekki að skipta mér að uppeldinu og ég skildi að þau gætu stundum verið þreytt á lélegri umgengni en að biðja dætur sínar um að ganga frá sér, væru kannski einu skrefi of langt gengið.



kl. 11:26 | Skrifa athugasemd

21.8.2007 : Superbad

Úff hvað ég var næstum því dáinn áðan. Ég náði ekki andanum útaf hlátri. Fór nefnilega á Superbad í smárabíó. Ísi var með einhverja prufu / vip sýningu eða eitthvavð og var svo helvíti nice að senda mér boðsmiða. Ég reyndar klikkaði á að auðvitað var allt þotulíð Íslands mætt þarna uppdressað en ég á íþróttabuxunum og polobol, hehe gott move.

En þessi mynd er rugl, ég mæli STERKLEGA með að allir sjái þessa mynd ASAP þegar hún kemur á klakann, sem ég held að sé 28. september.

Þetta eru sömu gaurar og gerðu 40 year old Virgin sem var mjög fyndin, en þetta slær bara öllu við, setur nýja standarda í gamanmyndum. Fólk sem notaði alltaf Dumb and Dumber eða Monty Python eða einhverja af þessum gömlu klassíkum sem viðmið geta bara skipt þeim út. Superbad setur ný viðmið fyrir gamanmyndir.

Ég hreinlega hætti ekki að hlægja, ef það hefði ekki verið eitt sæti á milli mín næsta manns að þá hefði hann verið illa lemstraður, ég hreinlega engdist og kipptist við af hlátri. Hefði  þurft bílbelti til þess að halda mér kyrrum. Ég var án gríns að veltast svo mikið um af hlátri að ég var orðinn kófsveittur.

Meira að segja eftir myndina, labbaði ég út í bíl og lenti bara í hláturskasti, hálfa leiðina heim frá Smárabíó. Þessi kvikmynd náði alveg til mín. Mér fannst t.d Laddi ekkert sérstakur, ég hefði verið tilbúinn að borða leikhúsmiðaverð fyrir þessa mynd. Eftir þessa mynd upplifði ég sömu tilfinningu og þegar ég sá Jesus Christ Superstar söngleikinn, þetta bara einhvern veginn náði alveg að hitta beint í mark.

Uppfærsla:
Sé á imdb að hún er þegar orðin #49 yfir bestu myndir allra tíma og #2 yfir gamanmyndir, strax á eftir Kubrick með Dr. Strangelove.



kl. 0:20 | Athugasemd (1)

17.8.2007 : Smokin' indo, sippin' on gin and juice

Já smá partý stand á manni í kvöld. Í tilefni læt ég fylgja létta blugrass útgáfa af Snoop Dog smellinum Gin and Juice. Helvíti fjörugt svona til að koma sér af stað í helgina.

Partý í kvöld, hjálpa til við Reykjavíkurmaraþon Glitnis á morgun, gefa skít í menningarnótt og skella sér í bíó. Er eina menningin á menningarnótt hvort sem er að hella sig fullan með 14 ára gelgjum?

The Gourds - Gin And Juice

 



kl. 15:05 | Athugasemdir (983)

15.8.2007 : Dalvegurinn í rugli

Það er búið að vera ansi skemmtilegt að keyra Dalveginn seinustu dagana. Aðallega því maður veit aldrei á hverju maður á von. Hann breytist bara á nokkra klukkutíma fresti. Í gær var búið að setja hann upp þannig að maður átti að keyra öfugt inn í hringtorgið við Smáratorg.

Nýji Dalvegurinn?

Pæling um að gera þetta á fleiri stöðum, setja smá líf í götukerfið, svona eins og stiginn í Hogwarts Skóla sem er alltaf sífellt að breytast, hafa bara gatnakerfið þannig.



kl. 11:27 | Skrifa athugasemd

14.8.2007 : 30.000 kr fyrir klippingu

Já þið lásuð rétt. Ég borgaði 30.000 kr fyrir klippingu. Ég hef alltaf farið til konu frænda míns til þess að láta klippa mig. Það hefur tvímælalaust sína kosti. Ég get nokkurn veginn farið í klippingu þegar mér hentar með stuttum fyrirvara og á óvenjulegum tímum (t.d. á kvöldin). Auk þess sem ég borga ekki sky-high verð eins og þegar maður fer á þessa staði í bænum,

Núna aftur á móti var smá undantekning á verðinu, því ég borgaði 30.000 kr fyrir seinustu klippingu. Ég er náttúrlega ekki segja alla söguna, því ég millifæri alltaf yfir á hana, núna bætti ég bara óvart einu núlli við.

Ég fattaði það ekki einu sinni sjálfur fyrr en ég fékk SMS í dag.

"Þú ert voða góður og örlátur en ég verð að segja að þetta er fulldýr klipping".

Já svona veður maður nú peningum, þrjú þúsund eða þrjátíu þúsund, hverju skiptir það!



kl. 13:43 | Athugasemdir (3)

11.8.2007 : Bikarinn og Stuðsmiðjan

Á föstudaginn hófst Bikarkeppni FRÍ niður á laugardalsvelli. Ég var því miður ekki í liðinu þetta árið. Hefði verið mjög gaman að taka þátt og hlaupa 400 m hlaupið og boðhlaupið, en Biggi stóð sig eins og hetja og braut 50 sek múrinn með brilliant hlaupi. Um kvöldið hélt starfsmannafélag Hugsmiðjunnar, Stuðsmiðjan, heljarinnar grill heima hjá Reyni. Heppnaðist mjög vel og ég hafði mjög gaman að.

Ég er reyndar búinn að vera eitthvað slappur seinustu daga og í morgun var ég alveg handónýtur. Svitakóf og með æluna í hálsinum. Það sökkar náttúrlega gríðarlega því ég er ekki sjá fram á að geta kíkt á Bikardjammið, en það er eitt af skemmtilegustu djömmum sem maður finnur. Treysti á að Tobbi og Óli sjái um ruglið fyrir mig.



kl. 17:43 | Athugasemdir (3)

8.8.2007 : Geggjuðustu gjafir ever

Hlynur var að koma frá Evrópuferðinni sinni á mánudaginn og ég hef aldrei fengið jafn fokkin geggjaðar gjafir á ævi minni. Ekkert verlsunardót nei þvert á móti, alvöru úthugsaður sérstakar og sjaldgæfar gjafir.

Í Þýskalandi KLIFRAÐI Hlynur yfir Berlínarmúrinn, klippti á gaddavírinn og tók svo smá bút handa mér. Já, ég er með gaddavír úr Berlínarmúrinum sjálfum.

Berlínarmúrinn

Hann var þó fljótur að toppa það því þegar hann fór til Austuríkis kíkti hann á Arnarhreiðrið sem er sumarbústaður Hitlers. Þar tók hann úr sumarbústaðnum nagla og stein. Ég er með nagla og stein úr sumarbústað eins merkasta manns mannskynssögunnar.

Arnarhreiðrið

Svo "the cherrie on the top", þá skellti hann sér til Grikklands og kom við í Nike hofinu og tók stein þaðan líka. Ef það er ekki happagripur að þá veit ég ekki hvað.

Nike hofið

Þetta finnst mér flottastu og úthugsuðustu afmælisgjafir sem hægt er að hugsa sér.



kl. 11:00 | Athugasemdir (3)

7.8.2007 : Þjóðhátið

Brekkan í ljósum logum

Bergur á tindinum

Þjóðhátíð

Brennan

Þetta eru svon artý-fartý myndirnar. Læt kannski fylgja svona stemmingsmyndir líka.

kl. 13:01 | Athugasemd (1)

31.7.2007 : MÍ og Eyjar

Ég gleymi alltaf hvað ég ætla að skrifa hérna. Alltaf þegar mér dettur eitthvað sniðugt í hug sem ég hugsa "ah já skellu þessu inn" að þá gleymi ég því alltaf.

Allavega. Ég fór norður á krókinn um helgina að keppa á Meistaramóti Íslands og það gekk bara bærilega, svona miðað við allt ruglið sem maður lenti í. Komum svo seint heim á sunnudagskvöldi, enda á ákváðum við að vera ekki að flýta okkur í bæinn heldur bara skokka niður, skella okkur í pottana og fá okkur eitthvað almennilegt að borða.

Í gær var ég svo bara eins og pró íþróttamaður. Fékk frí í vinnunni, svaf til rúmlega hádegis og fór svo til Jóhanns Inga, íþróttasálfræðings og svo í pottana og nudd. Svona á þetta að vera! :D Fer  betur um þennan tíma hjá Jóhanni seinna, nenni því ekki núna.

Annars eru undir og stórmerki að fara gerast í mínu lífi um verslunarmannahelgina. Ég er að fara á útíhátíð. Ég hef aldrei gert neitt um verslunarmannahelgi, nema bara slappað af heima. Núna aftur á móti fer ég til Eyja með Jóni Karli og Sverri. Við erum náttúrlega allir filthy-stinkin rich og því verður þetta gert með stæl. Ekkert ógeðslegt tjald í dalnum, nei heldur húsbíll! Það þýðir almennilegur svefn og góð aðstaða. Vakna og fá sér góðan morgunmat og vera ekki skítkalt og blautur eftir kvöldið.



kl. 10:41 | Athugasemdir (4)

23.7.2007 : Allstar Band

Einhvern tímann var ég að velta fyrir mér allstar rock bandi, þar sem má bara velja einn úr hverri hljómsveit. Nú nokkrum árum seinna er ég loksins kominn með það.

Söngur:
Scott Weiland (Stone Temple Pilots / Velvet Revover)
Bassi:
Flea a.k.a Michael Peter Balzary (Red Hot Chili Peppers)
Gítar:
Tom Morello (Rage Against / Audioslave)
Trommur:
Jimmy Chamberlain.

Reyndar væri líka gaman að fá Chad Smith á trommurnar (RHCP), en það þýðir að maður þarf að fórna Flea. Næsti maður á bassann væri náttúrlega Tim Commerford úr RATM, en þá vandast valið á gítarleikurum, sjálfsagt myndi ég henda inn pro eins og Steve Morse í staðinn fyrir Tom Morello.

Þetta er semsagt nútíma rokk bandið. Klassíkin kemur seinna.



kl. 11:03 | Athugasemdir (8)

20.7.2007 : Mikið og lítið

Alveg verið sá lélegasti að blogga. Gleymdi t.d. að minnast á það að Hlynur bróðir og Ingvi félagi hans fóru í 5 vikna backpacking ferðalag um ALLA Evrópu þar sem þeir verða að fíflast og leika sér.

Eru meðal annars búnir að skoða Omaha Beach í Normandí. Smakka snígla, sofa í kastala, gista á undir bekk í almenningsgarði og fleira svona "must do" hluti. Seinast þegar ég frétti var hann í Arnarhreiðrinu.

Ég kíkti líka á TOTO tónleikana, sem voru svosem ágætir. Þeir eiga rétt nóg af hitturum til að halda upp heilum tónleikum. Mér finnst þeir samt fara of mikið og of oft í einhverjar heavy instrumental show-off pælingar. Það verður samt að viðurkennast að David Paich og Simon Phillips eru killer hljóðfæraleikarar - mad skills.

Í gær varð ég svo 24 ára, en hélt voða lítið upp á það nema bara í rólegheitum heima með mömmu og pabba.

kl. 11:42 | Athugasemdir (5)

17.7.2007 : Muniði eftir þessu

Good Times.

kl. 1:17 | Athugasemd (1)

12.7.2007 : CPR

Landsmótið fór vel. 400 m hlaupið var ágætt. Ekki góður tími, í raun bara slæmur tími. En bara nokkuð ágætt miðað við að hafa ekki snert gadda og tartan í rúmar 5 vikur. Gengur ungmennafélagsandinn ekki að vera með og skemmta sér?

Annars brá mér nokkuð á mánudaginn. Kíkti niður í World Class og skellti mér í gufuna þar (sem er inni í karlaklefanum). Ákvað svo að fara út og kæla mig aðeins. Þá kem ég semsagt upp World Class meginn öfugu meginn við þar sem gestir Laugardalslaugarinnar koma út.

Ég byrja semsagt eitthvað svona að hrista mig til og leyfi semi-kalda loftinu að kæla aðeins líkamann þar sem ég var basically búinn að sjóða kjötið af beinunum í gufunni og ákveð svo leggjast niður á hellulagða göngustiginn þarna og bara slappa af.

Allt í einu heyri ég hröð fótatök en geri lítið mál úr því, svo opna ég augun og þá sé ég fyrir ofan mig starfsmann með HJARTASTUÐTÆKLI - og spyrjandi "Er allt í lagi!!?

Þeim fannst basically ekki sniðugt að ég skildi bara ákveða að leggjast á hellurnar svo langt frá lauginni. Þetta væri ekki beint hinn hefðbundi staður sem fólk legðist niður til að slappa af. Þau voru nú samt alls ekki fúl og fannst þetta bara frekar fyndið.

Sem betur fer tékkaði starfsmaðurinn fyrst hvort það væri allt í lagi með mig, mér hefði brugðið illilega ef ég hefði bara heyrt öskrað "CLEEEAAAAR" og litið upp til að sjá nokkur þúsund joule komandi í áttina að mér!

kl. 9:25 | Athugasemdir (3)

6.7.2007 : 2/3

Þá er ég búinn með tvennt af þrennu sem ég átti að gera um helgina á landsmóti.

Fyrst var að vera þulur á fimmtudeginum. Það fól í sér að sitja upp í nýju stúkunni og babla í míkrafóninn. Svo fékk ég það skemmtilega jobb að lýsa 800 m úrslitahlaupinu sem var hluti af setningarathöfninni. Ég hélt að ég fengi að sitja ennþá í boxinu upp í stúkunni, en nei nei Örn Árnason (kynnir á setningarathöfninni) og félagar voru ekki alveg á því. Ég átti að mæta upp á sviðið sjálft þar sem allt fór fram og lýsa þaðan. Ekki leist mér nú á það, en lét nú slag standa. Verð að viðurkenna að það er nú dálítið skrítið að standa fyrir framan ~5.000 manns aleinn upp á sviði og standa eins og þvara. Held þó að ég hafi komið þessu skikkanlega frá mér...vona það allavega.

Í dag var svo 400 m grindarhlaup sem ég náði að láta plata mig í. Ekki nóg með að ég hafi aldrei hlaupið yfir grindur á æfi minni, heldur hef ég ekki stigið í gaddaskó í 5 vikur og tartan í 4 vikur. Á miðvikudaginn tók ég semsagt mína fyrstu grindarhlaupsæfingu. Stebbi Guðmunds svo handviss um að ég myndi líta út eins og asni að hann kom meira að segja með vidjókameruna til að eiga þetta á tape-i. Hann varð reyndar pínu svekktur því ég sökkaði ekki algjörlega (allavega miðað við að hlaupa yfir sína fyrstu grind). Í dag fór það hinsvegar að ég sökkaði algjörlega. Úff mar, hvað ég klúðraði öllu. Ég var "all over the place". Hafði samt gaman að þessu og það er erfitt að vera eitthvað svekktur þegar maður hefur aldrei gert neitt svona, en samt, átti að geta gert þetta mun betur. Markmið dagsins tókst þó: Næla sér í nokkur stig fyrir liðið.



kl. 23:31 | Athugasemd (1)

3.7.2007 : Landsmót

Landsmótið er um helgina og ég vilja náttúrlega hvetja sem flesta til að mæta í Kópavoginn. Ég er ekki í neinu ástandi til að keppa, þannig að ég stefni bara að því að æfa í gegnum Landsmótið þar sem maður er svona að skríða aftur á fætur. Ég keppi í 400 m og svo 400 grindarhlaupi. Það verður fróðlegt, fer einmitt á eftir og tek mína fyrstu grindarhlaupsæfingu á eftir. Ég var einnig beðinn um að vera þulur, og því mun ég lýsa á fimmtudeginum. Meðal annars í kringum setningarathöfnina og 800 m hlaupið. Það er eitthvað sem enginn má missa af. Þetta hlaup verður svo hrikalegt að ég er orðinn bara spenntur að fá að lýsa því.



kl. 13:00 | Skrifa athugasemd

1.7.2007 : Sushi og Kubbur

Á fimmtudaginn dróg Hrönn, mig Bjögga og Sigurjón með sér á Iðu í Sushi. Ég er alltaf að vera meiri og meiri aðdáandi Sushis, en hafði aldrei farið á Iðu. Þetta er frekar kúl konsept, en maður getur labbað þarna út bláfátækur maður. Fíla þennan stað, á ábyggilega eftir að prófa hann aftur. Þarna sátum við semsagt og borðuðum sushi og spjölluðum þegar talið barst einhvernveginn að súkkulaði köku, þegar Hrönn missir úr sér að hún hafi einhvern tímann bakað súkkulaðiköku með einu kílói af suðusúkkulaði. Það næsta sem heyrðist var "OK LETS GO!" í Bjögga. Þannig að kvöldið endaði heima hjá Sigurjóni í kökubakstri.

Í dag tók ég mína fyrstu hlaupaæfingu, samt svona meira prufa, en ég kítlaði smá hraðann í nokkrum sprettum. Endaði svo í sundi með Óla Margeirs og var þar heilar 4 klst, þar sem ég hitti Jón Karl og Sverri eftir um það bil 2 klst þegar Óli var að fara, þannig að ég hékk bara aðeins lengur.

Fékk svo gourmet mat heima þar sem Hlynur átti afmæli í gær og endaði kvöldið í garðinum hjá Hafdísi í hinu forna víkingaspili Kubb. Stóð mig nú bara alveg ágætlega og átti mörg þrumuköst, en tapaði allri virðingu liðsfélaga minna þegar ég kastaði ótímabærlega í kónginn sem þýddi tap fyrir lðið mitt.



kl. 3:41 | Athugasemdir (4)

29.6.2007 : With a little help from my friends

Það eru afar fáir sem geta coverað bítlana og komist upp með. Lögin eru nær fullkomnun og því erfitt að reyna bæta einhverju við. Joe Cocker er einn af þeim sem hefur tekist að taka bítlalag og gera algjörleag að sínu.

Hann gerði það eftirminnilega á Woodstock 69. Eruði að grínast hvað maðurinn er út úr reyktur og stone-aður, en það hefur bara engin áhrif á sönginn. Þvílíkur kraftur og ótrúlega flottur hljómur í henni. Sjitt.



kl. 3:18 | Athugasemdir (9)

26.6.2007 : Hey sæta stelpa

Fyrir nokkrum dögum lenti ég í því að vera bakka út úr stæðinu heima hjá mér. Á sama tíma er svona sæmilega sæt stelpa að labba inn þvergötuna. Það væri ekki frásögu færandi nema að ég er með fullar hendur, held á símanum mínum, að reyna drekka úr vatnsflöskunni, um leið og ég reyni að stýra og skipta um gír. Í öllum þessi hamagangi rekst ég svona létt í flautuna. Stelpan snýr sér náttúrlega við og er ekki alveg viss hvað sé í gangi, og afhverju ég hafi verið að flauta "á hana".

Ég í sakleysi mínu lyfti náttúrlega upp hendinni og nikka hana létt sem átti að þýða "sorrý, rakst í flautina" en hún verður öll voðalega skringileg, þá fatta ég náttúrlega að það er ekkert alþjóðlegt mál fyrir "sorrý, rakst í flautina" og að nikka stelpu út í sólinni og rétta upp hendina getur alveg jafn auðveldlega þýtt "hey sæta stelpa".



kl. 13:02 | Athugasemd (1)

21.6.2007 : Hlaup og vinna

Lítið að frétta, nema að ég er orðinn nokkuð pirraður á þessum líkama mínum sem er hreinlega í ruglinu. Ég nenni ekki að standa lengur í því og stefni því bara að mæta á æfingu á mánudaginn og byrja að taka einhverjar alvöru æfingar. Það er nú einu sinni landsmót þann 5. júlí. Þetta sumar er því miður ekki búinn að fara eins og ég ætlaði mér. Stefnan var að núna ætti ég að vera í mínu allra, allra besta formi alveg að springa úr getu og svo gjörsamlega æða á það í Gautaborg og koma svo heim og negla á Landsmót. Núna er maður bara aftur á móti í ruglinu.

En áður en þetta breytist í eitthvað vælublogg að þá ætla ég að hætta. Í þessari viku fór Haukur verkefnastjóri í frí í mánuð og á meðan mun ég taka við starfi hans. Það er mjög gaman að prófa það, vona bara að þegar hann komi til baka sé ekki hali af verkefnum sem hann þarf að hreinsa upp ;)



kl. 10:41 | Skrifa athugasemd

18.6.2007 : Chong Lee

Já föstudagurinn fór nokkurn veginn eins og planað var. Ég, Sverrir og Trausti byrjuðum á að kíkja á B5 að fá okkur að borða. Mjög fínn matur þarna, röltum svo aðeins um bæinn áður en við enduðum á Snóker og Pool Stofunni á hverfisgötunni, sem er orðin brilliant núna þar sem engar reykingar eru leyfðar. Sverrir bar sigur úr bítum en Trausta tókst ekki að vinna einn leik. Enduðum svo heima hjá Trausta þar sem spjölluðum og gripum í nokkur spil. Þar sem Trausta tókst ekki að sigra einu sinni. Það er kannski vert að minnast á það að Trausti er sá sem er með kærustu sem gengur með son hans undir belti.

Á laugardaginn kíkti ég til Sigurjóns Örns, en hann var að halda upp á 21 ár afmælið. Mætti þó í seinna lagi og stoppaði nokkuð stutt, þar sem ég var rokinn til Bjögga en hann var að fagna B.Sc útskrift í Byggingaverkfræði. Ég Bjögg og Óli enduðum svo niður í bæ, þar sem Óli brilleraði.

Vorum með smá sketch sem við ætluðum að taka, leit nú ekki útfyrir að það myndi takast, en Óli tók af skarið og lét vaða.  Þetta var basically það sem við ætluðum að gera.

Ég og Bjöggi áttum að fara í röð þar sem voru stelpur voru. Svo átti Óli að koma og kíkja á merkimiðann á flíkinni hjá stelpunum segja "Aaah það var eins og ég hélt...." hún átti þá sjálfsögðu að hugsa endinn á þessari cheesy pickup línu "made in heaven" en þá  átti Óli að klára alveg með straight face "made in tawain - flottur jakki samt" nikka hana og labba í burt.

Þetta basically gekk alveg eftir fyrir utan að ég komst að því að Bjöggi er lélegur í tvennu. 1) Gefa leiðbeiningar og 2) Halda coolinu. Þessi maður getur ekki haldið straight face þótt honum yrði borgað fyrir það.

Ég og Bjöggi komum okkur fyrir í röðinni á Vöffluvagninum og erum að skoða "matseðilinn" þegar Óli kemur að stelpunum. Þá strax er Bjöggi byrjaður að panika létt. Þegar Óli byrjar svo að tala við stelpurnar "Aaah það var eins og ég hélt" var ég viss um að Bjöggi myndi springa. Hann nær þó að koma út sér einhverskonar háværri röddi sem er við að fara hlæja "Ég ætla að fá Chocolate Dream" hálf asnalega, ég lít á "matseðilinn" og er að reyna halda uppi small-talki "Ha? Chocolate Dream, hvar sérðu það" og þá er Bjöggi alveg að missa það og stynur upp sér ennþá vandræðlegra "VEIT EKKI!" og er alveg að flýta sér þvílíkt áður en hann springur úr hlátri.

Óli hinsvegar hélt algjöri kúl-faci. Jafnvel þegar stelpan botnaði línuna hans. "Aaah það var eins og ég hélt" með því að svara honum beint "já kallin, made in heaven". Óli lét það ekki á sig fá og svaraði salispakur "nei made in tawain, flottur jakki samt" og labbaði svo burt eins og EKKERT væri eðlilegra.

Það er því komin smá keppni í gang hjá okkur þremenningunum að setja upp óþægilega pikkup-aðstöðu. Ég var ekki lengi að finna eina hardcore sem verður pottþétt prófuð við tækifæri.

Reyndar náðum við að skjóta feitt fyrir Trausta Newbie FH-ing þegar hann fór að tala við eina stelpu með að kalla a hann og þegar hann og stelpan litu á okkur, gáfum við Trausta "Thumbs up" merki með slísí brosi ein og hann væri að standa sig að pikka upp stelpuna. Náðum þannig að koma af stað mjög óþægilegu augnabliki...en það var bara of fyndið.

Í dag fór ég svo að Powerkite-a með Bjögga, Hlyni bróðir og Halldóri. Tók mig smá tíma að ná þessu, en þegar maður var kominn af stað var þetta alveg heavy mikið fun.

Gaf svo Bjögga útskriftargjöfina með að bjóða honum að borða á T.G.I. ;)



kl. 1:58 | Athugasemdir (7)

15.6.2007 : Plan Helgarinnar

Skellti mér til Tobba í gærkvöldi eftir stutta æfingu. Byrjuðum á að pikka upp mat á Mekong áður en við settumst fyrir framan sjónvarpið að glápa á Laberinto del fauno, El eða Pan's Labyrinth. Virkilega vönduð og góð mynd. Svona dökk ævintýramynd fyrir fullorðinna.

Í kvöld er planið að hitta Trausta og Sverri og fá sér eitthvað gott að borða og reyna svo að hitta á Jón Karl og Einar seinna um kvöldið.



kl. 15:29 | Skrifa athugasemd

14.6.2007 : Orð sem ég segi oft

Sko - Basically - Jessör - Jessmem (Yes M'am) - Sánds læka plan.



kl. 18:05 | Athugasemdir (2)

13.6.2007 : Hætt að vera fyndið

Úff hvað þetta er ekki lengur fyndið. Hélt að ég væri svona að ná mér upp úr þessu þreytu og eymslum. Allavega emjaði ég ekki af sársauka í nuddinu á mánudaginn. Lýsir kannski eymslunum best að í seinustu viku fer ég til Elínar sjúkra.

Bergur : "úff, bíddu, þú verður að byrja mýkra...ég er ekki að meika þetta."
Elín: "Nei hættu nú alveg!!"
Bergur: "Hvað?"
Elín: "Ég er bara að dreifa olíunni!"

Mætti á Vormót ÍR í gær að horfa á en gafst upp klukkan 20:30 þar sem þreytan var byrjuð að síga á mig. Lét mig því hverfa og svaf í um það bil 13 klukkustundir. Skellti mér á létta morgunæfingu og var mættur í vinnuna rétt fyrir klukkan eitt.

Núna er klukkan rúmlega þrjú og ég er að deyja úr þreytu. Ég veit ekki hvað er eiginlega í gangi. Þarf að fara pressa á eftir blóðprufunni.

Annars er Ingibjörg að fara til NY í viku og svo The O.C í fjórar vikur. Mamma og pabbi fara svo til Englands á föstudaginn, þar sem þau ætla að sigla um alla skurðina sem liggja um Bretland og skoða landið þannig frá öðruvísi sjónarhorni.

Það verður því parté parté heima hjá mér næstu 10 daga eða svo. Öllum boðið nema Bjögga. 



kl. 15:17 | Athugasemdir (5)

11.6.2007 : Helgin, bústaður og tjill

Seinustu dagar eru búnir að vera afar nice. Eftir æfingu á fimmtudeginum hitti ég Ernu Dögg spóka sig um í sundi. Langt síðan að maður hafði rekist á hana og við ákvaðum því að skella okkur á take-away á Nings og svo heim til hennar í nýju stúdentaíbúðina. Að sjálfsögðu er hún á 200% að stílisera hana alla til.

Á föstudeginum var ég í allskyns stússi mest allan daginn en klukkan 18 rúllaði ég og Unnur upp á Flúðir ásamt Robba, Önnu og Óla. Bústaðurinn sem við fengum kom mér hrikalega á óvart, þetta var ekkert þessi standard bústaður, heldur bara íbúðarhús með öllum græjum.

Við versluðum dálítið í sitthvoru lagi og því keyptu allir eitthvað handa öllum. Held t.d. að það hafi verið um 25 bananar þarna því öllum datt í hug að kaupa banana til að grilla. Það var því til meeeeeeira en nóg af mat.

Þarna var afar gott að slappa af og ná Reykjavíkurstressinu úr sér. Helgin einkenndist því af ofáti, spili, spjalli og svamli í pottinum.

Potturinn var reyndar ekki alveg nógu heitur. Því það var bara hægt að velja á milli kaldur (39°) og pissvolgur (41°). Ég vil hafa pott í sumarbústað það heitan að ég þurfi pínulítið að neyða mig ofan í og það heitan að líkaminn neyðist til að slaka á og það heitan að maður verði að drekka kaldan bjór til að halda hitastigininu á líkamanum í jafnvægi. ;)

Annars myndi ég bara segja að þetta hafi verið afar góð ferð. Það fyndna við svona ferð er samt það að þótt mður nái stressinu úr sér, nær maður ekki svefnþreytunni því miður situr svo langt fram á nótt að spila og spjalla.



kl. 16:02 | Athugasemdir (4)

7.6.2007 : Bústaður

Vá hvað það verður gott að komast úr bænum. Á morgun fer ég nefnilega með Robba, Önnu, Unni og Óla upp í sumarbústað. Get ekki beðið eftir því að gera ekki neit.

Planið er að taka með sér nóg af góðum mat til að borða, nóg af spilum til að leika sér, helling af góðri tónlist til að slappa af við, eitthvað af sjónvarpsefni til að glápa á, smá bjór til að sötra á og þá er það upptalið held ég.

Ég get semsagt ekki beðið eftir að setjast í heitan pottinn við bjartan himininn og opna einn kaldan með góða tónlist undir. Uss mar það verður nice! Ef það rennur ekki af manni stórborgarþreytan og reykjavíkurstressið að þá veit ég ekki hvað.



kl. 12:33 | Athugasemdir (5)

5.6.2007 : Laddi, Spa og fleira.

Vinnan gengur sinn vanagang, nema að maður er að vinna í mjög skemmtilegum hlutum . Mikið um að vera.

Föstudagurinn fór í....jah ég man það ekki. Ah jú, ég skellti mér á létta æfingu með Tobba. Fengum okkur svo hinn fínasta Burrito og enduðum heima hjá Hafdísi með Bjögga og Sigurjóni og frú þar sem maður sat á kjaftagangi langt fram eftir kvöldi.

Á laugardagskvöldinu skellti fjölskyldan sér svo í Borgarleikhúsið á sýninguna Laddi 6-tugur. Fín sýning, en ég lá ekki hláturskrampa. Í raun var aldrei atriði sem ég gjörsamlega dó, en ég var alltaf með bros á vör. Fólkið í salnum virtist aftur á móti eiga í vandræðum með að anda útaf hlátrasköllum.

Sunnudagurinn var heavy nice. Tók heavy fína fitness æfingu með Hlyni niður í World Class áður en við skelltum okkur í Laugar Spa og létum dekra við okkur. Byrjuðum á að mýkja okkur upp í gufunum áður en við skelltum okkur í heilnudd. Sátum svo á baðsloppunum eftir nuddið og nörtuðum á mangó-kjúklingasalati og héldum svo áfram að mýkja okkur upp. Allt í allt vorum þarna í u.þ.b 7 klukkutíma eða svo.

Toppuðum svo sunnudaginn að fara í sjómannakaffa heim til ömmu þar sem maður borðaði yfir sig af kökum og góðgæti. Mmmm.

Svo vill Sigurjón meina að ég sé ekki nógu duglegur að fara í nudd og sjúkraþjálfun, þannig að ég ákvað að fá mér tíma á fimmtudaginn líka svo vikan sé nú uppbókuð...já og í nudd á mánudaginn.



kl. 14:59 | Skrifa athugasemd

4.6.2007 : Whut!?

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig er hægt að vera með strengi eftir viku þar sem maður æfir "ekkert", ferð tvisvar í sjúkraþjálfun og tvisvar í nudd og endar svo vikuna með því að skella sér í 5 klukkutíma í Laugar Spa.

Planið næstu daga:
Mánudagur: Nudd
Þriðjudagur: Sjúkraþjálfun
Miðvikudagur: Sjúkraþjálfun
Föstudagur: Sumarbústaður



kl. 10:35 | Athugasemd (1)

30.5.2007 : Krass

Það kom að því. Búinn að vera svo ánægður með hvernig formið hefur verið að koma til að það hlaut að koma að þessu. Líkaminn hjá mér gjörsamlega krassaði. Fyrir nokkrum vikum var ég að lenda í því að fá þvílík krampaköst í lappirnar, aðallega kálfana. Ég hef líka fílað mig eins og hamurinn sé að rifna í hverju skrefi sem ég tek. Ég er því búinn að vera mjög tæpur í hamnum og þessi krampaköst hafa líka verið að aukast. Til að toppa þetta er ég búinn að vera óhemju stífur í bakinu, axlum og herðarblöðum.

Allir þessir verkir hafa verið að aukast og náðu hámarki í seinustu viku, þá gat ég varla sofið fyrir verkjum, ég missti lóð í lyftingarklefanum, krampinn var svo mikill að ég hreinlega datt niður eins og fótunum væri kippt undan mér. Ég fæ orðið líka svona stinga í vöðvana jafnvel þótt ég sé ekki að gera neitt, sit við tölvuna eða borða ís þá finn ég að hamurinn er tæpur. Á laugardaginn seinasta hélt ég að ég hefði rifið í hægri hamnu þegar ég klæddi mig úr spariskónum.

Ég fór í nudd í seinustu viku með Tobba og þar vildi nuddarinn meina að ég væri bara stál. Það mikið meira að segja að þegar Tobbi kvartaði yfir að vera stífur (sem hann var) nefndi nuddarinn að hann væri ekki stífur miðað við strákinn sem var á undan.

Er líka búinn að skella mér í hnykkingar og nálastungur og í gær tók svo Stebbi sjúkri vel á mér. Hann settist bara ofan á mig með hnén á undan. Heavy þægilegt að fá fullan líkamsþunga af 80 kg manni með hnén beint í sig.

Ég ákvað því að taka ekki neina æfingu í gær, ekki einu sinni eitthvað létt. Var samt alveg að deyja úr þreytu og lagðist upp í rúm klukkan 19:00. Bjöggi hringdi rétt rúmlega sjö og ætlaði að draga mig í smá tölvuleikja-lan svona var samtalið.

Bergur: "Æji nei ég er að drepast úr þreytu"
Bjöggi: "Ertu að grínast, klukkan er sjö! Leggðu þig bara í 30-60 min og heyrðu svo í mér"
Bergur: "Hmm já ok, það er ekki vitlaust, geri það"

Ég vaknaði aldrei 30 min seinna, nei þvert á móti svaf ég eins og skata til klukkan 09 í morgun. Í heila 14 klst og hefði sofið lengur ef klukkan ekki verið að ape-a á náttborðinu.

Þetta er svo löngu komið útfyrir að vera eðlilegt. Planið þessa og næstu viku eru því rólegheit meðan ég leyfi Stebba og Co að ná þessu úr mér. Það þýðir 2,5 vika sem fara í litlar sem engar æfingar.



kl. 11:25 | Athugasemdir (9)

25.5.2007 : Some Like It Hot

Það er alveg ótrúlegt hvað klámið ræður ríkjum á netinu. Um helgina æltaði ég að ná mér í myndina Some Like It Hot, sem er gamanmynd með Jack Lemmon og Marilyn Manroe. Langflestar niðurstöður sem ég fékk aftur á móti var allt eitthvað "Hot Lesbian Sex" og "My Hot Neighbour" og fleira í þá áttina.



kl. 13:19 | Athugasemdir (5)

21.5.2007 : Allt í orden

Jæja þá skilaði ég af mér tilboði fyrir vef Garðabæjar. Það var áhugavert og öðruvísi að glíma við svoleiðis verkefni. Hef ekki verið í slíkri vinnu.

Þótt það sé alltaf gaman að kljást við eitthvað nýtt er þetta ekki alveg my cup of tea. Hef meira gaman af viðskiptaþróun og verkefnastjórnun. Það verður allavega nóg af áhugaverðum verkefnum að taka hjá Hugsmiðjunni í sumar.

Eins og ég sagði í seinust færslu er maður í nokkuð venjulegri rútínu. Vinna, æfingar, hangs. Stefni þó að skipta út hangsinu fyrir tiltekt á morgun eða eitthvað.



kl. 5:10 | Athugasemd (1)

18.5.2007 : Rútínan

Þá er allt byrjað að ganga sinn vanagang. Æfingar og vinna í fullkomnu jafnvægi. Byrjaði semsagt að vinna hjá Hugsmiðjunni á mánudaginn. Held að þetta verði afar skemmtilegt sumar, nóg af krefjandi verkefnum. Fæ meðal annars á spreyta mig á verkefnastjórn meðan Haukur verkefnastjóri fer í sumarfrí. Fæ einnig að taka á verkferlum og gæðamálum og er að spreyta mig á tilboðsgerð akkúrat núna.

Æfingarnar ganga mun betur en þessar þrjár vikur þegar maður var í verkefna- og prófageðveiki. Þótt líkaminn hafi sagt algjört stopp á miðvikudaginn. Hef aldrei upplifað annað eins. Fékk fáránlegan krampa eða tak í kálfavöðvana þegar ég ætla að hlaupa. Hann bara kipptist við og krepptist svo rosalega að þetta var eins og að vera með rafskaut á sér. Reyndi hvað eftir annað að fara af stað en hann sagði bara stopp. Eftir fimmtu tilraunina þar sem ég var nærri því dottin á brautina þar sem báðir kálfarnir stoppuðu gafst ég upp og fór upp í lyftingarklefa. Ekki gekk það betur, því í fjórðu lyftu í klíninu fékk ég fáránlegt tak í hægri bakvöðvann (lattann) að ég missti takið á stönginni og datt aftur fyrir mig. Reyndi aftur en var helaumur, og er ennþá í dag.

Nuddið í laugardalslauginni og pottarnir í gær hjálpuðu þó mikið til að ná þessum stífleika. Sigurjón nuddari var bara hissa að ég væri ennþá gangandi "þetta er bara stál". Hann reyndi sem mest hann mátti að reyna ýta í þetta en vöðvarnir gáfu lítið eftir.

Eftir nudd og potta skellti ég mér á Culican með Tobba og svo á Spiderman 3. Bæði var waste-of-money. Culican var ekki neitt rosalega góður, allavega fannst mér Serranos betri þegar ég fór á hann og Spiderman 3 er algjör amerísk vella. Hefði getað spara mér 2.500 kr þar. Ég reyndar sparaði mér þær, því ég lét Tobba blæða. Ég finn nefnilega ekki veskið mitt...Hmm.



kl. 12:51 | Skrifa athugasemd

13.5.2007 : Búinn

Veeeii. Búinn með prófin. Seinasta prófið var stjórnun fyrirtækja, sem ég held að ég hafi massað allsvakalega. Samt erfitt að meta það, því þetta eru bara ritgerðaspurningar. Ég fyllti út heila örk nákvæmlega og mjólkursýran var orðin rosaleg í höndunum ;)

Prófið var samt dálítið merkilega uppsett. Í upphafi veturs var skipt niður í hópa. Hóparnir áttu svo að glósa lesefni hverrjar viku og að loknu námskeiðinu var búið til stórt hefti með öllum glósunum sem mátti hafa með sér í prófið. Sumum fannst þetta dálítið skrítið því það voru kannski 6 hópar og þá er heftið 6 sinnum með sömu upplýsingar (því allir hópar glósuðu sama efni, þó eitthvað mismunandi væntanlega).

Ég hafði afar gaman að því að í prófinu kom spurning sem var hvergi að finna í öllum glósuhefðinu....nema akkúrat í glósunum sem hópurinn minn gerði, akkúrat í þeim kafla sem ég hafði glósað. Hækkaði því flesta um 10%, já kallinnkann að glósa ;

Á föstudeginum lærði ég þó ekki mikið fyrir prófið, þar sem mesti tíminn fór að skoða spekka fyrir flatskjásjónvörp. Niðurstaðan var geggjað gæða ítalsk Hantarex 32" widescreen LCD HD sjónvapr.

hantarex

Ég myndi segja að DVD um helgina væri málið.

Föstudagurinn fór líka í að redda sér fyrir laugardagskvöldið. Var alveg ákveðinn að ég ætlaði að útbúa mér eitthvað goooouurmet að borða þegar ég væri búinn með prófin. Ég keypti mér því 250 gramma nautalind sem ég lét marinerast yfir nóttina og skellti á grillið ásamt hinu ýmsu góðgæti á laugardagskvöldinu heima hjá Láru. Þar var semsagt smá prófloka / eurovison / kosningapartý. Mjög skemmtilegt, en ég var samt nokkuð rólegur og endaði með að skutla  fólkinu niður í bæ um tvö-þrjú leytið, eftir ansi kostulega ferð. Þar sem við vorum of mörg ákvað Danni að fórna sér fyrir hópinn og fór í skottið. Haha ég hef aldrei hlegið jafnmikið. Mér leið eins og versta mannræningja, fullur bíll af stelpum og maður í skottinu. Við hættum þó fljótlega við það plan og settum Danna framm í og Lára hnipraði sig saman í aftursætinu, eða gólfinu öllu frekar.

Núna er aftur á móti málið að njóta þess að vera búinn með prófin. Ætla að skella mér út í bakarí og lesa atvinnuauglýsingar. Veit ekki afhverju en mér finnst afar nice og róandi (me time), að sitja á bakarí með smá bakkelsi og fletta í gegnum blöðin.

kl. 11:02 | Athugasemdir (2)

10.5.2007 : Frankie, próf, þreyta og fl.

Allt og ekkert er búið að gerast seinustu daga. Helgin var nokkuð rólegt. Ætlaði að gera massa mikið á sunnudeginum eftir prófið, en hann hvarf nokkuð auðveldlega.

Á þriðjudaginn skellti ég mér svo í höllina að taka æfingu þar sem Frankie Fredricks var áhorfandi. Fór svo á fyrirlestur hjá honum um "Life After Sports". Auðvitað ekki beint málefni sem er mér hjartfólgið, þar sem ég er ekki byrjaður! Samt möst að hitta goðsögnina og heyra hvað hann hafði að segja.

Hermunarprófið var á miðvikudeginum og gekk bara svona sæmó. Sjáum hvað setur. Prófið var 120% þannig að ég skildi eitthvað eftir, en manni líður bara svo asnalega eftir próf þegar maður kláraði það ekki 100% (eða 120% í þessu tilfelli).

Það sem ég finn aftur á móti mest fyrir þessa dagana er stanslaus síþreyta. Ég er bara alveg orkulaus að deyja úr þreytu. Svona klukkan 14-15 á daginn að þá bara krassa ég. Gjörsamlega hryn niður. Er samt búinn að vera passa mig í þessari prófatöfn að ná mér samt í lágmarks 7 klst svefn - kannski 6 klst kvöldið fyrir próf. Samt sem áður að þá hef ég þurft að leggja mig í 2-3 tíma á daginn, því það bara gjörsamlega slökknar á mér.

Seinasta prófið er á laugardaginn. Hefði mátt vera klukkan 9 um morguninn, þannig að ég myndi klára kl 12, en nei það er 13:30 til 16:30. Ég var reyndar ekki lengi að sjá björtu hliðarnar á því. Breiðablik er nefnilega með æfingu í höllinni klukkan 10 á laugardagsmorgnum. Fór svo að hugsa og sá að það væri kannski ekki best að taka 3x200m heavy sýru æfingu fyrir próf - þá fyrst yrði ég þreyttur og sljór í prófi. Öll heimsins sýra í hausnum og ég að reyna leysa einhver nice dæmi.

Eins og staðan er núna sé ég heldur ekki heljarinnar djamm í hyllingum eins og flestir. Þvert á móti, ég sé heljarinnar afslöppun í hyllingum. Ætla samt að taka fram grilldótið mitt og útbúa einhveja gourmet máltíð á laugardagskvöldið. Mmmm.



kl. 10:17 | Athugasemdir (2)

5.5.2007 : Heavy

Þá eru fyrstu tvö prófin að baki. Heavy stemmari að sitja í prófi frá 09 - 16:30 með smá pásu fyrir Serranos í hádeginu. Iðnaðartölfræðin gekk ekki eins og ég vildi. Þetta er próf sem ég hefði átt að massa svo rosalega upp á 9 með möguleika á 9.5 en í staðinn verður þetta bara 7. Heavy svekk Ég er að gæla við að taka þetta í sumar til að hækka þetta. Þetta er svona svipað að keppa í sínu besta formi og hlaupa á lélegum tíma. Varma- og varmaflutningsfræðin er sjálfsagt líka upp á 7 en ég er ekkert að gráta það, því það er það sem ég er upp á í henni.

Eftir prófin skellti mér svo í sund með Bjögga og Tobba, sem var heavy nice. Maður var alveg orðinn vel steiktur í seinna prófinu. En núna er voða næs að vera búinn með tvö á einu bretti. Þannig að þetta er svona hate-love relationship að hafa uppsetninguna svona.

Við félagarnir rifjuðum svo upp gamla takta heima hjá Tobba með því að steikja okkur eðal heimatilbúna hammara a la Bergur, nema núna á nýja grillinu. Þeir urðu miklu betri fyrir vikið.

Einar Bergur hringdi svo í mig og dróg mig um kvöldið og dróg mig í kvöldskökk sem var fáránlega nice. Þurfti ekkert smá mikið á því að halda, 25 min rólegt skokk, smá magaæfingar og léttar armbeygjur. Nú skellir maður seinni helmingnum af Equilibrium í tækið og sofnar rótt. Verst bara að mig langar heavy mikið í einn kaldan núna og ég sem fæ aldrei þá tilfinningu!



kl. 23:25 | Athugasemdir (2)

3.5.2007 : Próflestur

Jæja þá er próflesturinn í fullum gangi. Tvö próf á laugardaginn. 09:00 - 12:00 og svo 13:30 til 16:30. Það verður heavy skemmtilegur dagur myndi ég segja. Held að maður skelli sér með Bjögga og fái sér eitthvað éta eftir þetta. Hann er einmitt í tvöföldu líka.

Sit heima hjá Bjögga að læra iðnaðartölfræði. Tókum ágætis törn í gær og erum að reikna próf núna. Langar að klára það frá í dag, svo ég hafi morgundaginn í varma- og varmaflutningsfræðina. Er ekki alveg að meika það.

Helga kíkti líka yfir, sem betur fer. Hún nefnilega mætir í tímana ólíkt mér og Bjögga og var því að benda okkur á ýmislegt sniðugt :D



kl. 14:50 | Athugasemdir (5)

1.5.2007 : Bale

Ástæðan fyrir því að ég seti þessa getraun inn í gær, er sú að ég var að horfa á American Psycho fyrir nokkrum dögum. Þessi mynd er náttúrlega alveg brilliant, þessi karakter Patrick Bateman er svo úúúúber töff en samt svo úber klikkaður að það er ekki fyndið. Textinn sem var þarna var semsagt daglega rútínan hans. Mjög kúl sjitt.

Christian Bale er án efa orðinn einn af mínum allra uppáhaldsleikurum. Hann er með ótrúlega margar góðar myndir af baki og mér finnst hann alltaf skila sínu mjög vel.

Annað sem er náttúrlega ofur-ofur töff, er hvað hann er geðveikur. Christian Bale er 183 cem á hæð og er svona um 83 kg. Sem gerir hann að nokkuð eðlilega útlítandi manni, eins og sést t.d í Harsh Times.

bale-harsh

Hann hefur aftur á móti köttað sig niður og massast fyrir hlutverk eins og t.d. Reign of Fire þar sem hann þarf að berjast við dreka.

bale-fire

Í Equilbrium er hann svo háþjálfaður lögreglumaður á 21. öldinni.

bale-equilibrium

Fólk gæti að vera hugsa, hey vá hvað hann kemur sér í gott form. ÞETTA er aftur á móti ekki neitt. Ekkert merkilegt við að köttast smá niður.

Það sem er aftur á móti það stórmerkilega er þegar hann tók að sér hlutverkið fyrir The Machinist tapaði hann tæpum 30 kg og varð um 55 kg.

bale-machinist

Já þetta er sami maðurinn! Fokkin geðveiki. Eftir því sem ég best kemst lifði hann á sítrónuvatni, te-i, tyggjói, káli og vítamínum.

Flestir þekkja hann aftur á móti úr nýju Batman myndinni (Batman Begins). Sem var tekin upp 6 mánuðum eftir the Machinist. Batman þarf náttúrlega að vera massatröll og bætti Bale á sig um 50 kg á 6 mánuðum og fór upp í 100 kg.

bale-batman

Mér finnst þetta bara alveg út í hött! Þetta er um 8 kg á mánuði, sem gera 2 kg á viku. Það getur náttúrlega ekki verið hollt fyrir líkamann, enda lýsti hann því yfir að honu hafi liðið hrikalega illa fyrir Batman, þar sem hann gat varlað borðað epli fyrsta daginn eftir The Machinist en þurfti að vera borða steikur og ís og allt annað sem hann gat látið í sig til þess að bæta á sig aftur.

Til þess að sýna ennfrekar fram á hvað þessi maður er ruglaðslega mikill töffari. Einn þekktasti karakter hans er einmitt Patrick Bateman úr American Psycho. Geðsjúklingur á háu stigi með fullkomnaráráttu dauðans.

bale-phsyhco

 

kl. 11:23 | Athugasemdir (13)

30.4.2007 : Trivia

Hvaða kvikmyndakarakter á þessa brilliant lýsingu!

I live in the American Gardens Building on W. 81st Street on the 11th floor. My name is XXX YYY. I'm 27 years old. I believe in taking care of myself and a balanced diet and rigorous exercise routine. In the morning if my face is a little puffy I'll put on an ice pack while doing stomach crunches. I can do 1000 now. After I remove the ice pack I use a deep pore cleanser lotion. In the shower I use a water activated gel cleanser, then a honey almond body scrub, and on the face an exfoliating gel scrub. Then I apply an herb-mint facial mask which I leave on for 10 minutes while I prepare the rest of my routine. I always use an after shave lotion with little or no alcohol, because alcohol dries your face out and makes you look older. Then moisturizer, then an anti-aging eye balm followed by a final moisturizing protective lotion.



kl. 14:43 | Athugasemdir (116)

30.4.2007 : Mr. Simulator

Ef það er einhvern tímann verkefni sem ég massað, fyrir utan jarðfræðiskýrsluna í Versló, er það hermunarverkefnið í HÍ.

Það er búið að vera hell mikið að gera eftir að ég kom að utan. Meðan ég var úti var sett fyrir 20% hópverkefni í Stjórnun Fyrirtækja auk 10% ritgerðar í sama fagi. Því miður fyrir mig var þó ekki sendur póstur um þetta heldur var verkefnið sett fyrir í tíma og ég hafði því ekki hugmynd um þetta meðan ég var úti.

Þegar ég kom því heim og allir fóru að tala um stóra hópverkefni var ég alveg lost. Ég reyndi að sjálfsögðu að koma mér inn í einhverja hópa en allir voru á lokastiginu. Það fór því þannig að ég endaði með að gera 20% hópverkefni aleinn, til viðbótar við einstaklingsritgerðina. Þetta setti auðvitað strik í reikningin því planið var að massa lokaverkefnið í Hermun með Betu.

Allt saman tókst þetta nú að lokum, en því miður hafa svefn og æfingar fengið að gjalda fyrir. Þrjú stór verkefni samt á einni viku verður að teljast gott og ég er afar ánægður með útkomuna, sérstaklega hermunina fyrir Össur.



kl. 10:01 | Athugasemdir (2)

25.4.2007 : Spánn 3

Hef ekki enn haft tíma til að skrifa seinni hlutann, þar sem ég er búinn að vera upptekinn að skrifa ritgerðir í Stjórnun fyrirtækja.

Hendi inn smá vidjó-i á meðan.

kl. 0:49 | Athugasemdir (3)

23.4.2007 : Spánn 2

Á meðan ég er ekki búinn að setja inn seinni hlutann af ferðinni að þá hendi ég inn þessari mynd.

Á hana í fullri útgáfu og er jafnvel að pæla að prenta hana út og skella upp á vegg.

Spánn

(Smellið fyrir stærri útgáfu)



kl. 14:30 | Athugasemdir (5)

21.4.2007 : Nerd Alert

Veit ekki hvort er nördalegra, að horfa á alla þætti af Stargate eða setja upp multicast straum til að broadcasta þáttunum. Úff, af tvennu illu.

Annars er ég kominn heim og búinn afreka hluti sem ég hef aldrei gert áður t.d. að vera niður í skóla á föstudagskvöldi til ellefu og mæta þangað aftur eldsnemma á laugardagsmorgni.

Það er reyndar ekkert nýtt að vera niður í vinnu á laugardagskvöldi.

Töffari.is



kl. 23:10 | Athugasemdir (4)

12.4.2007 : Spánn - fyrstu dagarnir

Komst loksins inn á netcafé. Hendi hér inn smá yfirliti yfir fyrstu 6 dagana af spánarferðinni og 10 dagar eftir. Ferðin byrjaði náttúrlega á því að ég svaf yfir mig og þurfti að æða út til að ná 05:30 rútunni, sem hentaði mér fínt, engin óþarfa bið á flugvellinum: Tékkaði mig inn, keypti mér myndavél og beint inn í flugvél.

Mánudagurinn fór bara í ferðalag og svefn, enn og aftur reddaði Archos AV700 ferðinni. Þriðjudaguirnn var svo tekinn léttur og á miðvikudeginum keppti ég á móti hérna. Ég er officially "gone pro", því þarna lenti ég í 3. sæti og fékk verðlaunapening og 100 evrur í verðlaun. Ekki slæmt það. Ætlaði mér sigur þarna, en rétt tapaði honum seinustu 20 metrana þegar sýrurnar hreinlega ruku í lappirnar á mér og ég fór hægar en snígill í gegn og misstitvo fram úr mér. Afar svekkjandi, en finn að ég er í fínasta formi sem fer bara upp á við og nú vantar bara að hitta á hlaupið.

Fimmtudagurinn fór svo bara í æfingar og léttan rúnt til Alicante þar sem við kíktum í Nike Factory Store. Ég var búinn að gefa út að ég ætlaði bara að vera rólegur, ólíkt seinast þegar við blikarnir kíktum. Þrátt fyrir það tókst mér að eyða mest, eða 250 evrum- næsti maður með 190 evrur.

Á föstudeginum var svo bara ein æfing, þannig að við kíktum í Tera Mitica seinni partinn sem er skemmtigarður hjá Benidorm. Ég verð náttúrlega eins og lítill krakki þegar ég kemst í svona garða. Varð þó fyrir pínu vonbrigðum því þetta var ekkert hardcore rússíbanar, en sjálfsagt fín fjölskylduskemmtun.

Skemmtilegast við ferðina var samt þegar við fórum út í að borða, enduðum á svona litlum flottum ítölskum veitingastað. Að sjálfsögðu fengu flestir sér eðal-pasta. Bæði ég og Tobbi pöntuðum okkur Spaghetti Dello Chef sem var með kjúkling, bacon, sveppum og rjómasósu. Tobbi heimsborgari gekk aftur á móti fram að þjóninum með: "Excuse me, can I have some ketchup!?" Haha ég hló mig máttlausan að panta fancy pasta rétt og setja það svo löðrandi í tómatsósu.

Á heimleiðinni brilleraði ég með því að missa af exitinu okkar af hraðbrautinni og fór langt fram hjá bænum okkar. Aðstoðardriverinn minn ásamt langflestri áhöfninni var sofnuð enda klukkan að slá miðnætti og allir orðnir mjög þreyttir. Komumst þó heim að lokum, um það bil klukkutíma of seint. Fannst dálítið skrítið þegar ég var kominn á einhverja rally-braut upp í fjöllum miðað við að hótelið er við ströndina ;).

Laugardagurinn a.ka. lykladagurinn var hreinlega ekki minn dagur. Byrjaði á því að ég fann ekki bíllyklana um morguninn og var því orðinn alltof seinn á æfingu. Allir nema ég og Stebbi voru farnir á æfingu, en ég var enn heima að leita. Ég leitaði og leitaði og gekk það langt að leita í ísskápnum, ruslinu, og jafnvel í vítamín boxinum mínu. Ég var orðinn svo viss að lyklarnir væru ekki heima að ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Þá hringir Óli (sem var kominn á æfingu) "Ég er hálviti, ég tók lyklana þína óvart". Brilliant move hjá Óla.

Seinna um daginn læsti Biggi mig svo úti með því að loka íbúðinni minni með lyklana inni og þar sem herbergisfélagarnir voru úti var ég læstur út í næstum 2 klst. Brilliant move hjá Bigga.

Um kvöldið þegar við ætluðum að kíkja út voru húslyklarnir svo horfnir. Þá var nú pirrstigið orðið frekar hátt. Ég leitaði hátt og látt og var orðinn alveg 200% að þeir voru ekki í íbúðunni og einhver strákanna hefði tekið þá til að hrekkja mig. (Það er búið að vera smá herbergisstríð í gangi). Ég var náttúrlega með stórar yfirlýsingar um að sá sem hefði tekið lykilinn yrði barinn. Þegar ég komst svo að því að Kári Steinn var hinn seki hafði ég ekki í mér að tuska hann til, gaurinn er bara of næs.

Um kvöldið kíkti blikarnir til Bjögga og Co. Flestir enduðu niður í bæ, en ég sem partý-pooper fór heim klukkan 02 upp á hótel að að sofa...allavega í svona 1,5 klst þangað til að allir komu heim og ákváðu að halda partý í herberginu til sex um morguninn.

Byrjaði svo sunnudaginn með því að leggjast upp í Sofa með Tobba, Óla og Nóa nr 6 að horfa á 24. Hvíld í dag, og því er ég aðeins búinn að kíkja í námsbækurnar og taka til í íbúðinni okkar. Stefnum á að fara út að borða í kvöld eitthvað semi-fínt.



kl. 19:54 | Athugasemdir (2)

27.3.2007 : Waaaa

Fáránlega mikið að gera þegar maður er að fara svona út. Er búinn að vera hreinlega á fullu að reyna æfa eins og brjálæðingur og læra eins og brjálæðingur.

Meirihlutinn í Breiðablik leggur af stað um hádegisbil á morgun ásamt einhverjum FH-ingum. Sjálfur fer ég ekki fyrr en eftir ferminguna hjá Ingibjörgu. Margrét og Rakel eru í sömu sporum og ég og því fljúgum við öll til Köben og þaðan til Alicante þann 2. apríl. Þetta verður svo geggjað.

Þessi vika verður aftur á móti ekki alveg eins geggjuð, eða jú, bara ekki á góðan hátt. Sé fram á mikla vinnu og lítin svefn.

Þar sem páskarnir eru aftur á móti að nálgast finnst mér rétt að benda fólki á samanburði mínum frá því í fyrra á páskaeggjum.

The Noa Challenge

Ég stend að sjálfsögðu við orð mín þar og er búinn að redda mér Kólus eggi fyrir þessa páska :D



kl. 23:24 | Athugasemd (1)

25.3.2007 : Lærdómur, æfingar, matargerð og kvikmyndir

Skólinn gengur ágætlega, er nokkuð vel staddur í flestum fögum nema kannski helst varma- og varmaflutningsfræði. Þarf aðeins að taka á þar. Vikan fór að mestu í hermun, bæði skilaverkefni og svo er ég og Beta Becks að massa lokaverkefni þar. Held að það verði mjög töff.

Æfingarnar ganga misvel, var ekki ekki að fíla mig vel á þriðjudeginu og miðvikudeginum. Það koma lélegir dagar alltaf inn á milli og maður verður bara að sætta sig við það. Það er ekki alltaf hægt að rústa æfingum.

Á föstudeginum hittumst við, Bjöggi, Eyja og Erna og skelltum okkur á Eldsmiðjuna til að gæða okkur á pizzu og smá catching up. Skutluðust svo á Erluís í eftirétt og enduðum með Halldóri í bíó á 300. Hörku kvöld, ótrúlega góð pizza, ís klikkar ekki og svo algjör kvikmyndaveisla. Svona stemmings mynd, sem maður á að fara í bíó, og narta á poppi og kók. Líka gaman að fara út að borða með stelpum sem eru óhræddar við að borða ;)

Á laugardeginum mössuðum við félagar Bjöggi og Tobbi hammara heima hjá Bjögga. Ég og Tobbi leigðum okkur síðan Lord of War sem er heavy fín mynd. Fróðleg og skemmtileg, maður trúir varla að þetta sé byggt á sönnum atriðum og að menn hafi samvisku við að starfa sem vopnasali.

Á sunnudeginum kíkti ég með Robba á létta æfingu en dagurinn snérist mest megnis samt í kringum Sunnudagsmatinn. Ég átti nefnilega þennan sunnudags mat. Á boðstólum var þriggja rétta mexikósk stórveisla; Osta nachos í forrét, kjúklinga súpa í aðalrétt og karamellu tortilla pie í eftirrétt. Var óvenju vel heppnað miðað við að þetta var algjör tilrauna starfsemi hjá mér, bara ég að leika fingrum fram útfrá ákveðnum hugmyndum. Skelli inn uppskriftum við tækifæri. Allt i allt tók þetta einhverjar 5 klukkustundir að versla inn, og gera allt til.

Hmm munaði engu að ég hefði endað þetta blogg eins og seinasta sunnudagsblogg "Nú ligg ég afvelta upp í rúmi", en ég ætla að sleppa því og frekar nefna að nú er aðeins vika í Spánarferðina miklu.

Ingibjörg systir fermist á sunnudaginn og ég flýg til Köben á mánudeginum og þaðan til Alicante. Þar mun ég vera að æfa eins og ég eigi lífið að leysa til 18. apríl.

...It's gonna be LEGENDARY!

kl. 23:40 | Athugasemd (1)

19.3.2007 : Hvernig ég kynntist mömmu þinni

Ég er byrjaður á því alltaf þegar ég leggst upp í rúm að horfa á sovna einn þátt áður en ég sofna. Þetta hefur í för með sér að ég fer í gegnum heilu seríurnar mjög hratt, þar sem maður er kannski að horfa á 4-5 þætti á viku.

Einn af þeim þáttum sem ég hef verið að horfa á er How I Met Your Mother. Skemmtilegir gamanþættir um 28 ára fólk þegar tilhugalífið stendur sem hæst yfir. Þar er líka að finna enn skemmtilegasta sjónvarps-karakter seinustu ára - eðaltöffarann Barney. Basically pikkar hann upp stelpur hægri vinstri án þess að hafa fyrir því, gengur alltaf í jakkafötum (nema við jarðafarir), á fáranlega flotta íbúð með 300 tommu flatskjá en enginn veit við hvað hann vinnur. Fíla hann kannski mest því hann er single gaurinn í hópnum. Ég kannast við það.

Datt því í hug að skella inn smá vidjó af bestu pikkup línu allra tíma.

kl. 8:52 | Athugasemdir (2)

18.3.2007 : Lítið að frétta

Óskup lítð að frétta þessa dagana, nema kannski helst að hollustan fór fyrir bí þessa helgina.

Heiður systir átti afmæli og bauð því bekkjarfélögum sínum í heimsókn á föstudeginum. Þar sem húsið var orðið fullt af 15 ára stelpum flúði ég til Hafdísar. Það dugði þó ekki til því stlepurnar hefðu fengið leyfi til að gista og þegar ég kom heim voru þær alveg á fullu hlæjandi, öskrandi og skrækjandi yfir að einhver hefði kysst þennan eða þessi hefði byrjað með hinum.

Á laugardeginum kíkti ég til Tobba og við skelltum okkur á Mekong að fá okkur að éta og hengum svo heima hjá honum um kvöldið eins og táníngsstelpur með nammi og spólu. Já svona erum við nú töff.

Sunnudagurinn byrjaði vel, svaf vel út og vaknaði ekki fyrr en klukkan 11, sem passaði akkúrat því klukkan 12 ætlaði ég fara niður á Nordica með Robba að æfa. Ég tók þar fínustu fitness æfingu og hékk þar í þrjá og hálfan tíma. Ótrúlega næs.

Sunnudagsmaturinn var líka mjög góður en ég borðaði yfir mig og mér hreinlega líður bara illa. Akkúrat núna líður mér eins og maginn sé að fara springa. Úff langt síðan ég hef upplifað svona áður, en maður á sín móment.

Spurning um að horfa á einn Futurama og skella sér svo í háttinn.



kl. 23:35 | Skrifa athugasemd

15.3.2007 : Þreyta og stífleiki - Spánn í sjónmáli

Seinustu vikur hafa gengið mjög vel æfingalega séð. Það hefur samt ákveðna fylgifiska í för með sér. Ég er t.d. allur lurkum laminn, helstífur, stirrður, aumur og þreyttur. Það er samt skemmtilegt því að maður veit að strengirnir tákna bara að eitthvað er maður að gera rétt.

Það sem er kannski skemmtilegast við þetta er að það eru aðeins örfáir dagar í spánarferðina. Blikarnir fara út þann 28, en þar sem Ingibjörg systir er að fara fermast þann 1. apríl mun ég fljúga sjálfur út þann 2. apríl í gegnum Köben og svo Alicante. Það verður náttúrlega alveg freakin' awsome. Get ekki beðið.



kl. 10:32 | Athugasemdir (4)

11.3.2007 : Helgin

Þessa helgi afrekaði´ég það að líta ekki einu sinni í bók. Í fyrsta skipti voru ekki skiladæmi á fimmtudaginn og föstudaginn og ég ákvað að nýta mér það hið ýtrasta taka langa helgi og slappa meira af en ég hefði átti að gera. Það þýðir náttúrlega bara að næsta vika verður meiri pressa. En maður tekur á því þegar að því kemur *hóst*.

Tækni og Vit var í Fífunni um helgina og Hugsmiðjan var að sjálfsögðu með bás þar. Ég tók vaktina á föstudaginn og sunnudaginn og það var bara góður fjöldi sem sýndi Eplicunni og Vitka áhuga. Verð samt að segja að sýningin var ekkert stórvirki - ekkert svona alvöru tækni sýning með mikið af tækjum og tólum.

Á föstudaginn fékk ég húsið hans Tobba til að útbúa hammara fyrir Óla, Tobba og Stebba Má. Gott og rólegt kvöld, fínt svona eftir vikuna. Slaka á, borða góðan mat og bara leggajst svo upp í sófa.

Á laugardagskvöldinu bauð Anna (og Robbi) mér og Unni í þessa dýrindismáltíð. Robbi er innan sviga því hann ekki mikla aðild að matseldinni nema bara að borða útkomuna ;) Tókum svo eitt partý og co, strákar á móti stelpum og að sjálfsögðu unnu stelpurnar. Þótt Robbi hafi reynt að mótmæla því. Kosturinn við kíkja til svona góðra vina er að maður getur verið heimilislegur, ég mætti því bara í íþróttafötunum beint af lyftingaræfingu :D

Þegar líða fór á kvöldið skellti ég mér svo til Stebba og Sölva þar sem var í gangi eðalpartý. Ég skemmti mér alveg ótrúlega vel, þvílí rugl og vitleysa í gangi.  Þetta var bara eins og í leikhúsi að horfa á heljarinnar sýningu, nema að þetta var svo sveitt, svo mikið rugl og ótrúlegt að engum hefði dottið í hug að skrifa þetta. Held að þetta hafi bara verið Gray's Anatomy á sterum.  Ég hef reyndar aldrei séð þáttinn en geri ráð fyrir flækjur og drama hægri vinstri með passlega miklu af sexý skandölum - það lýsir allavega kvöldinu nokkuð vel.



kl. 23:27 | Athugasemd (1)

9.3.2007 : Brjóstin mín eru allt í lagi!

Þann 19. nóvember 2004 skrifaði ég

Þetta vidjó Call on Me er svo suddalegt. Hvaða snillingi datt í hug að setja upp myndband sem byggist á Aerobic tíma þar sem konurnar eru klæddar 80's fötum nema bara að sleppa sokkabuxunum. Láta þær svo hreyfa sig og dansa eins sexy og mögulegt er.

Þetta tónlistarmyndband með Lene Alexandra held ég toppi Call on Me. Þetta er bara hársbreidd frá því að vera laugardagsmyndin á Sýn.

kl. 11:30 | Athugasemdir (3)

6.3.2007 : EM, lærdómurinn og sjónvarp og tónlist.

EM eyðilagði alveg fyrir mér helgina. Kom heim af árshátíðinni á laugardag og ætlaði náttúrlega að vera voða duglegur, en þá er EM á fullu. Ég lýg náttúrlega að sjálfum mér að ég geti slappaf af og læri bara betur á sunnudeginum. Je Ræt. Sunnudagurinn fór alveg jafnmikið í EM, sunnudagsmat og 24. Brilliant nýtni á helgi. Náði nú samt að koma einhverju verk.

Fékk úr iðnaðartölfræðinni og var nokkuð sáttur, en samt ekki. Var að vonast eftir í kringum 95 en varð að láta mér duga 89. Setan með Bjögga borgaði sig, en hann tók mig með nokkrum stigum. Helv. innsláttarviluur hjá mér sko ;)

Nú er aftur á móti farið að styttast all verulega í æfingaferðina, sjitt hvað það verður nett. Fer til Spánar þann 2. apríl og kem heim 18. Hversu nett verður það, það er bara ekkert skemmtilegra en að vera æfa í góðu veðri við topp aðstæður.

Annars var ég dálítið svekktur með að NBC cancellaði Studio 60. Það er eins og allt sjónvarpsefni í dag þurfi að vera fáránlega mainstream. Studio 60 voru ótrúlega hnyttir og vel skrifaðir þættir með ótrúlega skemmtilegum persónum, en útaf því að þetta var sovna ekki mainstrema kúrva á söguþræðinum þar sem hver þáttur byrjar á háu nótunum, svo róast eitthvað og í lokin kemur einhver sprengja. Svona mainstream þættir eru misgóðir. Heroes er gott dæmi um góðan mainstream þátt sem tekst vil til.

Þættir eins og Deadwood, Dexter og Studio 60 sem er uppfyllir af skrautlegum og skemmtilegum karakterum, hnyttnum línum og vel skrifuðu efni eiga bara ekki upp á pallborðið á móti týpískum rússíbana þáttum. Er t.d. ekki að heyra í mörgum aðdáendum Dexters, en það eru fokkin' crazy þættir.

blackdonnellys

Hugsanlega gæti NBC samt hafa náð að bjarga sér fyrir horn með Black Donnellys sem komu í staðinn fyrir Studio 60. Þættirnir fjalla um fjóra írska bræður í New York í krimma heiminum. Ef þú fílaðir The Departed að þá eru þessu þættir málið. Fyrsti þátturinn var allavega fáránlega nettur og Rebellion (Lies) með Arcade Fire sem er fáránlega flott lag hoppaði svona upp um 20 stig á kúl-listanum eftir þáttinn.

Speaking of..það væri djobb sem ég væri til að vinna við. Finna lög fyrir kvikmyndir eðaí sjónvarpsþætti. Það er nefnilega alveg ótrúlegt hvað ákveðin lög geta búið til sérstaka stemmingu. Þau raunverlega stjórna mjög miklu hvernig maður skynjar ákveðinn hlut eða atburð. Ég held að oft taki fólk ekki eftir lögunum afþví að upplifunin er svo sterk. Tónlist er hreint út sagt magnaður hlutur.



kl. 22:04 | Athugasemdir (10)

3.3.2007 : Próf, pizza og Árshátíð

Á miðvikudaginn var próf í iðnaðartölfræði. Ég og Bjöggi ákváðum að massa það saman. Fórum því niður í Öskju (betri aðstæða en VRII og meiri friður) og sátum því eiginlega bara allan mánudaginn og allan þriðjudaginn langt fram á nótt að læra. Held að ég hafi bara rúllað þessu upp, og ef ekki að þá er það einhver basic villa sem ég hef klikkað á og lítið mál að fínpússa það fyrir lokaprófið.

Bjöggi og ég eigum mjög auðvelt að læra saman. Við erum svona svipaðir námsmenn, vinnum á mjög svipaðan hátt og eigum vel saman. Eini gallinn er að við eigum of mikið sameiginlegt þannig að oft voru komnir út heavy umfræður um framtíðarpælingar, reyna finna flottar lausnir á einhverjum vandamálum, matarræðið, frjálsarnar, stelpurnar og ég veit ekki hvað.

Við tókum okkur þó öðruhverju góð hlé á milli og þar var toppurinn án efa 4.500 kr pizzan á Reykjavík Pizza Company. Sérpöntuð, með held ég 7 eða 8 áleggstegundum. Sjitt góð. Eyddum held ég nálægt 8.000 kr í mat þannig daginn. Algjört rugl að vera svona grand á þessu, þegar maður hefur ekkert efni á því.

Á föstudaginnvar svo árshátíð verkfræðinema og þangað skelltum við Bjöggi okkur líka. Needless to say að þá var þetta alveg brilliant og við skemmtum okkur gríðarlega vel!Við náttúrlega ownuðum dansgólfið - það mikið meira að segja að það var haldin sér danskennsla inn í herberginu okkar sem Maggí leiddi.

Grímur nokkur var líka alveg að flippa, einhver gaur svona í kringum 155 cm á hæð sem var með ekkert smá fyndna stæla og hélt að hann væri sá flottasti í heimi. Hann var í raun algjör hálviti en svo ótrúlega fyndinn að ég, Bjöggi og Sverrir lágum í hláturskasti inn í herbergi í 1,5 tíma með einhverjum gaur sem við þekktum ekkert og hélt því fram að hann gæti unnið okkur í hverju semer. Hann reyndar frussaði það meira en að segja það. Það var ekkert vit í manninum og þegar hann var byrjaður að girða niður um sig til að tjá okkur að við værum að skíta upp á bak að þá vorum við komnar með svo mikla strengi í magann að það náði engri átt. Sverrir tók vidjó af þessu sem ég skelli pottþétt inn.

Í heildina alveg brilliant kvöld. Ég átti held ég  samt move kvöldsins, sem Bjöggi klúðraði reyndar bigtime, en ég fer ekki nánar út í það hér. Ég er allavega vel þreyttur núna eftir að hafa sofið alveg alltof lítið.



kl. 17:12 | Athugasemdir (2)

25.2.2007 : Bikar

Þetta blogg skiptist í tvo helminga. Þeir sem eru ekki í frjálsum vilja sjálfsagt hoppa beint yfir í seinni helminginn, nema þeir hafi gaman að lesa vangaveltur um frjálsar, 400m hlaup og tíma.

Frjálsar
Bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins var haldin í laugardalshöllinni um helgina. Þar sem ekki er keppt 400m fékk ég aðeins að keppa í 4x400m hlaupi. Skil reyndar ekki afhverju 400m var ekki og 200m í staðinn sérstaklega þar sem 200m er ekki lengur official IAAF keppnisgrein innanhús. Allavega skiptir ekki máli.

Ég tók fyrsta sprett og fékk þau fyrirmæli að ég átti að ná góðu forskoti strax, sem ég gerði. Það dugði samt ekki til og við enduðum í þriðja sæti í boðhlaupinu. Náðum þó að vinna stigakeppnina í karla, kvenna og heildarstigakeppninni, þannig að maður getur ekki kvartað. Verð samt að viðurkenna að ég var dálítið fúll eftir boðhlaupið vildi svo vinna það. Er búinn að horfa á upptökurnar á RÚV aftur og aftur. Skil ekki hvað ég var að pæla, er ekki að fatta formið á mér þessa dagana. Hef aldrei verið jafn hraður en er bara ekki að kunna að hlaupa með þennan hraða og er því bara ekki að ná að hlaupa eins og ég gæti. Á MÍ hljóp ég með negatívu splitti á 49,9 þ.e.a.s seinni 200m hraðari en sá fyrri, hver gerir það? Núna negldi ég seinustu 100m og átti meira en nóg og öskraði bara á Sigurjón "hlauptu, af stað", því ég kom á fleygiferð.´Splittið núna var 50,6 upp úr blokk.

Allavega, ég veit hvað ég get gert og það er nóg, þótt það sé alltaf gaman að sýna það með góðum tíma. Það kemur þá bara í sumar.

Ég er samt á því að þetta hafi verið taktísk mistök hjá okkur, því við leiddum alltaf hlaupið og vorum því bara eins og gulrót fyrir hin liðin til að elta okkur uppi. Við höfðum enga keppni á meðan hin liðin gátu hugsað um það eitt að elta okkur uppi. Við náðum því kannski ekki eins sterkum tímum og við hefðum getað og hin liðin betri.

Almennt
Bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins var haldið um helgina, ég keppti í 4x400m og gekk bara mjög vel. Breiðablik endaði sem íslandsmeistarar í karla,kvenna og heildarstigakppeni.

Ég var mikið búið búið að reyna ná sal fyrir allt frjálsíþróttakvöldið um kvöldið til að hittast og skemmta sér saman, en það gekk lítið. Hringdi í hátt í 30 sali held ég án gríns og var um það bil að gefast upp en klukkan hálfníu á föstudagskvöldi náði ég að redda.

Bikardjammið varð því að veruleika með öllum félögunum saman að skemmta sér og það varð náttúrlega mun skemmtilegra fyrir vikið. Maður var reyndar dálítið í gestgjafa og foreldrahlutverkinu þarna og náði því ekki að mingla og fíflast með fólkinu eins og maður hafði viljað en samt alveg mjög skemmtilegt.

Á tímabili leit samt út fyrir að ég væri að fara taka dýrasta djammði mitt ever. Ég var búinn að fara fyrr um daginn að gera salinn til, versla snakk og eitthvað fleira til að hafa borðum. Mætti svo með Tobba klukkan 10 þar sem við sátum aleinir í sal með snakk og nammi fyrir 80 manns - eðal töffarar, en fljótlega fór nú fólk að mæta og fjör að færast í leikinn.

Fór svo að sofa klukkan sjö í morgunn en eftir tvo og hálfan tíma af svefni mætti ég út í Bakarí á náttbuxum og ermalausum bol að kaupa mér súkkulaðibitakökur og kakómjólk áður en ég skellti mér í sund. Dagurinn er svo búinn að fara rugl og ég er ekki búinn að gera neitt annað en að borða.

Held því að það sé þjóðráð að fara leggja sig núna.



kl. 23:28 | Athugasemdir (11)

23.2.2007 : Stríðni

Eitthvað hef ég fengið minn skammt af stríðni og skotum á æfingum. Þetta stafar að mestu að því að lyftingarnar hafa haft þau áhrif að ég hef stækkað eitthvað. Líkaminn minn er reyndar þannig að hann svarar öllu rosalega vel. Ef ég lyfti, stækka ég en ef ég hleyp mikið minnka ég. Í raun hef ég komist að því að ég á mjög auðvelt með tvíka hann til eins og ég vil - sem ég lít á sem kost. Ókosturinn er hinsvegar ef ég borða eins og svín, lít ég út eins og svín.

Allavega, stríðnin kemur að mestu frá strákunum sem finnst efri hlutinn og þá sérstaklega hendurnar hafa stækkað mun meira en læri og aðrir hlutir sem nýtast hlaupara mun betur.

Í gær var svo bikarfundur og þá fékk ég aldeilis að heyra það í ræðunni.

Jón Sævar: Ég hef komist að því að Sveinn, Bjarni og Bergur versla bolina sína á sama stað!

Bergur: Hey þetta er alfarið þér að kenna, ég lyfti bara eins og mér er sagt að gera!

Jón Sævar: Ekki er ég að rífa ermarnar af bolnum þínum.

Lítið sem maður getur sagt eða svarað til að halda kúlinu á mótu þessu.

Annars er Bikarkeppni FRÍ um helgina og að sjálfsögðu hvet ég flesta að mæta. Get allavega lofað hörku 4x400m hlaupi.



kl. 9:07 | Athugasemdir (6)

22.2.2007 : Ef ég væri ríkur

Ég hef alltaf haft eina fasta reglu þegar það kemur að peningamálum og það er "aldrei eyða umfram það sem ég á". Mjög einföld og góð regla sem hefur gengið hjá mér seinustu árin.

Aftur á móti virðist ég vera í ruglinu þessa dagana.

  • Keypti headphone af e-bay fyrir 10.000 kr.
    P.s þau fokkin' rúla, eru svo góð!
  • Fer í bretta/bústðarferð sem kostar í kringum 15-20 þús.
    P.s þetta var brilliant verð
  • Skellti mér í nudd og spa í Laugum fyrir 7.600 kr.
    P.s var orðinn vel stífur og þurfti á þessu að halda
  • Fer á árshátíð verkfræðinema sem kostar um 10.000 kr.
    P.s nauðsynlegt að hanga smá með verkfræðinördunum.

Þar fyrir utan er náttúrlega allt ruglið sem maður eyðir venjulega í. Fyrir þá sem ætla því að reyna draga mig eitthvað út, að þá megiði bara sleppa því! Er að pæla að klippa kortið og læsa mig inn í herbergi.



kl. 14:38 | Skrifa athugasemd

19.2.2007 : Brettaferð og bústaður

Helgin var brill. Var orðinn alveg úrvinda, ónýtur og útkeyrður eftir seinustu vikur. Þessvegna var algjör snilld að setjast upp í bíl og skella sér til Akureyrar. Fengum bústað í Ólafsfirði þar sem allir bústaðir á Akureyrar svæðinu voru löngu teknir útaf þessu vetrarfríi í grunnskólunum.

Bjöggi, Helga Kristín, Lára og Óli Tómas lögðu af stað um föstudagsmorguninn, en upptekna fólkið: Ég og Hrönn fórum af stað á föstudagskvöldinu og vorum mætt rétt um hálf-eitt upp í sumarbústaðinn. Þá voru fjórmenningarnir búnir að koma sér vel fyrir í heita pottinum. Kvöldið fór svo í almenn rólegheit og afslöppun.

Daginn eftir var því miður of mikið rok (40 m/s) til að fara upp í Hlíðarfjall en við skelltum okkur á Dalvík sem var algjört brill. Byrjendurnir Hrönn og Lára fikruðu sig áfram neðarlaga í brekkunni á meðan við hin skelltum okkur upp í fjallið og lékum okkur þar. Heavy gaman og toppurinn var án efa stökkpallurinn. Þar hengum við endalaust lengi. Við gjörsamlega áttum fjallið eins og sést á þessum mynd.

Bergur á bretti

bergur-bretti3

Bergur ber að ofan á bretti

..*hóst* þið sjáið væntanlega hver þróunin var..

Eftir að hafa hangið á skíðum í 6 klukkutíma skelltum við okkur í sund á Akureyri og svo beint í pizzu. Þá var haldið upp í bústaðinn þar sem við sátum á tjatti og nörtuðum á snakki, nammi og að sjálfsögðu grilluðum bönunum. Það er skylda í útilegu að vera með grillaða banana og ís.

Daginn eftir var því miður allur maturinn búinn og bara nammi eftir. Ég fékk þá snilldarhugmynd að borða Nóa Kropp og M&M með mjólk út á. Heavy morgunmatur sem það yrði, en því miður var mjólkin búin. Annars hefði ég pottþétt prófað það, getur ekki verið annað en gott ;)

Eftir morguntiltekina skelltum við okkur svo í Hliðarfjallið. Þetta er án efa skemmtilegast skíðasvæði landsins, Bláfjöll sökka. Djöfull var gaman mar. Fáránlega skemmtilegar brekkur og sérstaklega efst upp, heavy bratt og þungur snjór. Ég hefði getað verið þarna allann daginn en því miður réði skynseminn og við vissum að ef við ætluðum ekki að koma heim um nóttina þyrftum við að leggja sæmilega snemma af stað. Eftir bretti, sund, mat og Brynju Ís, sem er skylda þegar maður fer á Akureyri var klukkan rétt rúmlega sex og því tími til kominn að fara rúlla í bæinn.



kl. 15:44 | Athugasemdir (2)

16.2.2007 : Last minute planning

Er að skella mér til Ólafsfjarðar / Akureyrar á bretti og sumarbústað á morgun, það verður frekar mikið brill. Núna eru aftur á móti allir að gera sig til (nema ég sem er í heimadæmum) en það var því frekar góður hringur sem myndaðist.

Ég og Lára að spjalla á MSN. Bjöggi heima hjá Helgu að pikka upp dót, ég að tala við Bjögga í GSM og Lára að tala við Helgu í GSM.

Þetta kallar maður að vera vel tengdur!



kl. 0:06 | Skrifa athugasemd

14.2.2007 : Sub

Mamma og pabbi ákváðu að skella sér til London þessa helgina. Þar sem mamma er grunnskólakennari og á erfitt með að hoppa frá vinnu fékk hún mig til að kenna fyrir sig á föstudaginn!

Það verður fróðlegt, ég hef alltaf haft gaman að hjálpa og kenna, en svo þegar maður þarf að standa fyrir framan heilan bekk. Það er aðeins öðruvísi en maður er vanur, en ég held að það verði bara skemmtilegt.



kl. 12:10 | Athugasemdir (7)

12.2.2007 : Góð helgi

Helgin var virkilega góð. Keppti á Meistaramóti Íslands, þar sem ég var skráður í 400m og 200m hlaup. 400 metra hlaupið var fyrri daginn og það gekk mjög vel, allavega fyrstu 300 metrana eða svo, svo gekk það ekki alveg nógu vel.

Ég var búinn að vera væla að fá upp nokkur mót í vetur þar sem það tekur mig alltaf nokkur hlaup að finna mig. Samanber að 2005 byrja ég á 53,11 en enda á 51,37 sek. Árið 2006 er fyrsta hlaupið mitt á 52,56 en enda á 50,71 sek.

Á boðsmótinu núna í janúar fór ég alltof hægt af stað. Fór á 51,49 sek. Splittin voru 25,xx og 26,xx sem er basically fáránlegt 400m hlaup. Fann að ég átti nóg inni og ætlaði þetta ekki að láta koma fyrir aftur.

Núna ákveð ég því að neeegla af stað og fer í gegnum 200m á 23.x og 300 á 35.x sem basically er um 48 sek tempó. Needless to say, að þá er ég ekki alveg í því formi sem stendur. Það fór því þannig að eftir 320 m fann ég að eitthvað var í gangi og 330m steindrapst ég og seinust 50 metrana hreinlega labbaði ég mark. Fólk hélt að ég hafði tognað því ég snaaarstoppaði svo, það var eins og öllum sýrum heims hafði verið sturtað í lærin á mér. Ég gat hreinlega ekki hreift mig. Endaði á 52,5 sem er einni sek hægar, þótt ég hafði hlaupið þetta á 23 - 29 núna. Hehe smá munur. Finn samt að ég á mikið eftir og er því pínu full hvað það hefur verið lítið um mót.

Á sunnudeginum keppti ég í 200m þar sem ég vissi að ég ætti inni bætingu, það stóðst, ég hljóp á 23,43 en átti 23,90 utanhúss - var auðvitað frekar ánægður með að bæta mig um rétt tæða hálfa sekúndu - en sömuleiðis finn ég að ég á ná inni. Komst í úrslitin en hljóp hægar þar, 23,5x. Langar að hlaupa meira 200 m. Held að ég get stórbætt mig þar með nokkrum hlaupum.

Þá var komið að toppnum: 4x400m hlaup sem hefur aldrei verið jafn spennandi, þvílíkur liðsandi, þvílík stemming. Arnór tók fyrsta sprettinn fyrir blikasveitina og skilaði keflinu til mín þriðji.  Þá var ég með minn gamla vin Stebba Má í forrustu og Guðmund frá FH. Ég rúllaði svona hratt en þægilega af stað og fann að ég dróg hægt og rólega á þá allan fyrsta hringinn, ég sá hvernig forskotið minnkaði og minnkaði og hvað ég nálgaðist þá hratt, þegar 100 m er eftir er ég svo kominn alveg upp við þá og út úr beygjunni negli ég fram úr og næ að skila keflinu fyrstur eitthvað á undan Stebba og Gumma. Fann samt að ég negldi alltof seint af stað, því ég hreinlega hljóp inn í Sigurjón sem tók þriðja sprettinn fyrir Bblik. Sá eftir því strax að hafa ekki farið fyrr af stað. Sigurjón skilar svo keflinu til Bigga fyrstur sem hljóp seinasta sprettinn, en með Einar Daða og Svein Elías á eftir sér, sem er nú ekki auðveld hlutskipti. Það fór svo þannig að Einar Daði náði Bigga rétt á línunni, og Sveinn svo í þriðja. Breiðablik undir gamla íslandsmetinu en ÍR vann náttúrlega.

Breiðablik vann svo stigakeppnina og urði því Íslandsmeistara karla í frjálsum íþróttum, stelpurnar urðu í 2. sæti í heildina og því vann Breiðablik heildarstigakeppnina.

Ánægjan minnkaði ekki eftir að ég kom heim að skoða splittin sem pabbi hafði tekið á sveitinni - ég var með 49,9 sek -eða réttarsagt keflinu á öðrum sprett (splittin voru tekin á keflinu yfir línuna).

Pabbi var samt frekar sniðugur og tók 200m og 300m tímann á mér líka sem reyndist vera 25,2 og 37,9 - sem þýðir 12 sek sienustu 100 metrana. Sem segir mér að ég á nóg inni, eins og ég vissi.

Ég gat heldur ekki sofnað um kvöldið. Sofnaði ekki fyrr um þrjú um nóttina og svaf til ellefu (helv. smiðir).  Allt kvöldið var ég samt að deyja úr þorsta, ég var svo ógeðslega þurr í munninum að ég átti erfitt að anda, drakk svona 5 vatnsglös um nóttina. Þegar ég vaknaði svo daginn eftir var ég gjörsamlega algjörlega örkulaus, og svangur. Hámaði í mig allt sem ég fann í húsinu. Pastarétt frá því fyrradag, pizzu frá því um kvöldið áður skolaði niður með pepsi og svo hraunbita og tromp í eftirrétt  Sjitt hvað mér leið vel eftir það.

Mjög góð helgi að baki, ég er sáttur og lít bjartsýnn fram á veginn.



kl. 15:50 | Athugasemdir (5)

6.2.2007 : Lítið að frétta

Já það er same old, same old hjá mér. Vinna, æfa og skólinn. Enginn tími fyrir kvennafar...eins og seinustu 6 ár *hós* ;) Núna aftur á móti er smá breyting á. Þar sem ég er búinn að vera einstæður í u.þ.b 6 ár og aldrei verið í langtíma sambandi hef ég yfirleitt verið single gaurinn í vinahópnum, hvort sem það er í skólanum, frjálsum eða vinnunni. Núna aftur á móti eru tveir af mínum bestu vinum komnir aftur á markaðinn. Ég verð að viðurkenna; það er frekar að fyndið, því skyndilega breyttust samtölin og vangavelturnar alveg ótrúlega mikið. 180° snúningur hreinlega - sömu mennirnir, en allt annað sem er í gangi í hausnum.

Annars er ég búinn að sjá að ég er alveg að klúðra HÍ-gymminu. Mér hefur alltaf fundist vera ótrúlega fáir að æfa þarna og skildi ekkert í því. Í gær fattaði ég svo að ég hef verið að mæta á koooolröngum tíma. Vanalega er ég að mæta fyrir hádegi og þá er enginn. Sérstaklega í kringum átta leytið - vanalega er ég gaurinn sem kveikir ljósinn, án gríns. Í gær fór ég aftur á móti í kringum sex um kvöldið  og staðinn fyrir að það væru 3 í salnum voru svona 30 manns. Pakkað.



kl. 23:20 | Athugasemdir (5)

3.2.2007 : Heilsuátak

Ég er búinn að koma af stað heilsuátaki niður í vinnu, sem er 2-3 mánaða keppni um hlutfallslega bætingu í fituprósentu. í gær var þessu átaki startað formlega. Eftir vinnu mættu þeir hörðustu úr vinnunni niður í laugardalinn þar sem Boot Camp þjálfarinn Birgir Konráðs a.k.a frægir í form. Tók okkur í létt þrek, var alveg virkilega skemmtilegt, en svona aðeins í léttara kantinum, enda frekar hugsað sem svona hópefli og skemmta sér.

Þar sem þetta var samt alltaf hugsað sem hópefli náði maður samt að taka lúmskt á því, þar sem allt gekk út á að hjálpa hvor öðrum. Það þýddi því lítið fyrir þá sem voru í formi að æða af stað og skilja hina eftir. Svipað með hjarðirnar, sem ferðast aldrei hraðar en hægasti gripurinn.  Þetta varð líka miklu skemmtilegra fyrir vikið.

Eftir æfingarnar skelltum við okkur svo í pottana og svo var  Þorrablót Hugsmiðjunnar. Ég er ekki mikill þorramaður og var því mjög glaður að sjá að Sushi var líka á boðstólum, þótt maður hafi náttúrlega fengið sér hangikjötið sem klikkar aldrei. Allt hitt má eiga sig.

Annars var ég alveg miður mín þegar ég fór aftur í Salalaugina með Bjögga áðan, þar voru engir aðdáendur eins og seinast og ég var því ekki að hanga lengi þar heldur fór bara vonsvikinn upp úr.

kl. 17:35 | Skrifa athugasemd

2.2.2007 : Getraun - botn

Ætla að setja inn smá getraun hérna inn fyrir áhugamenn um tónlist.

Getraunin gengur út á að ég set inn textabrot og þið eigið að botna og segja úr hvaða lagi þetta er. Bannað að google-a, það er no fun.

Til að auðvelda þetta eitthvað gef smá vísbendingar. Fyrsta vísbendingin er að öll þessi lög eru frá grunnskólaárunum. (Miðað við að lesendur séu á svipuðum aldri og ég þ.e.a.s 24 ára)

1)
Man, living at home is such a drag!
-- Fylla inn --

2)
And I take a deep breath and I get real high
And I scream at the top of my lungs
-- Fylla inn --

3)
Im head of the class
-- Fylla inn --
Im a quarter back
-- Fylla inn --

kl. 12:35 | Athugasemdir (2)

31.1.2007 : Þulur og Testesterone

Um seinustu helgi var Meistaramót Íslands 15-22, en þar sem ég er náttúrlega orðinn of gamall var ég fenginn til að vera þulur. Var þulur á seinni degi í sumar og hef greinilega ekki alveg klúðrað því.

Hafði mjög gaman að þessu og er búinn að fá fín viðbrögð, og það er alltaf gaman. Maður var orðinn rosalega dasaður og þreyttur að lýsa frá 9-16 tvo daga í röð. Ekki frá því á röddin hafi aðeins verið að gefa sig í boðhlaupunum sem var lokagrein. Það var bara alltof spennandi.

Skólinn gengur bara ágætlega og sömuleiðis vinna. Æfingarnar ganga samt best. Búinn að henda upp 80 kg í jafnhöttun og 170 kg í hnébeygjun niður á bekk. Tók líka góða interval æfingu 3x200m með 12 min á 23,2 - 23,6 - 23,1 (fyrir þá sem vita eitthvað um frjálsar).

Ég er reyndar búinn að vera lenda í einelti á æfingum þar sem ég er alltaf beðinn um að spenna. Það er gott að fólk hafði gaman af þessari sögu minni. Testesterone flæðið á æfingu var samt alveg út úr kortinu áðan. Strákarnir hlupu berir að ofan, sem er svosem ekkert óeðlilegt, en þegar þeir voru byrjaðir að taka spretti á boxerunum í lok æfingarinnar að þá er eitthvað of mikið um að vera.

kl. 22:26 | Athugasemdir (5)

29.1.2007 : Vá hvað þú ert massaður

Ég er ekki frá því að ég hafi verið í falinni myndavél í kvöld. Fer með Bjögga í Salalaugina að slaka á eftir intervalið mitt niður í höll.

Ég og Bjöggi löbbum úr búningsklefunum og stefnum á afslöppunarlaugina. Bjögga er eitthvað kalt og skokkar því aðeins á undan mér á meðan ég rölti rölega. Allt í einu upp úr þurru kemur svona 14-15 ára stelpa upp að mérog horfir á mig og segir svo "vá hvað þú ert massaður!". Ég snarstoppaði, andlitið af mér datt af og ég vissi ekkert hvernig ég átti að haga mér og eina sem mér datt í hug var að segja "eeeh já, takk?". Þá grípur stelpan utan um hægri upphandlegsvöðvann (bicepinn) og segir svo "spenntu!" þá verð ég alveg hvumsa, stend þarna úti fyrir miðju með 14 ára stelpu utan um upphandleggsvöðvana að biðja mig um að spenna! Ég vissi hreinlega ekki hvað var í gangi en brosi svo til hennar og segi "nei nei" en fæ bara beint á móti "jú plís, viltu spenna? Gerðu það..." meðan hún heldur ennþá utan um höndina á mér. Ég hlæ eitthvað og neita aftur, enda fannst mér hálf kjánalegt að hálfnakinn maður stæði í miðju salalauginni að spenna bibbann fyrir 14-15 ára stelpu þarna. Hún var ekki alveg sátt með það og labbaði vonsvikin í burt á meðan hún dasaði "oh!"

...sönn saga.

kl. 23:53 | Athugasemdir (8)

24.1.2007 : Bergurinn

Minnið mitt er sérkafli útaf fyrir sig, en ég á það til stundum að vera mjög gleyminn, helst útaf því að ég ætla mér að gera of mikið og liggur alltaf svo á, er alltaf á fleygiferð og vill því oft gleyma hlutum.

Á laugardaginn seinasta kíkti í pottana með Bjögga. Vaknaði og nennti ekki að klæða mig í föt til þess eins að klæða mig úr niður í Laugardal og skipta svo yfir í hrein eftir sundið. Þannig að ég fór bara niður eftir á náttbuxunum og ber að ofan innan undir úlpuna. Þegar ég var svo búinn að slappa af í pottunum og gufunni og var að fara klæða mig, þegar ég tek allt í einu eftir því að ég gleymdi nýjum buxum. Algjör sauður og þurfti því að velja um að fara út á nærbuxunum eða aftur í náttbuxurnar.

Ég hef líka tvívegis núna þegar ég hef farið á morgnana niður í Háskólaræktina gleymt handklæði. Það er alveg gullregla að maður á ekki að taka til í íþróttatöskuna á morgnana. Samt geri ég það næstum því alltaf, snooze-aði aðeins of mikið og hendi því í töskuna á mettíma og rýk svo út. Algjör sauður.

Þrístillti einmitt vekjaraklukkuna í morgun til að mæta. Stillti símann á 07:10, vekjaraklukkuna á 07:20 og svo hringdi í vakningarþjónustuna til a hringja í mig klukkan 07:30. Pabbi kom svo inn í herbergi 07:50 og þá loksins náði ég að rífa mig á lappir og drífa mig út í rækt. Tók ekkert smá á, en tókst að lokum, þótt ég hafi mætt vel myglaður og upphitun á brettinu hefur aldrei verið svona erfið.



kl. 11:48 | Athugasemdir (2)

22.1.2007 : Bingó og hlaup

Á föstudagskvöldinu hélt verkfræðideildin Bingó sem fjáröflun fyrir útskriftarferðina. Ég og Bjöggi kíkti staðráðnir í því að vinna stóru vinningana. Bingó sökkar, eða ég sökka í Bingó hvort sem er. Hehe nei nei segi svona, ég vann allavega ekki neitt. Hafði samt alveg lúmskt gaman að þessu, þangað til að ég fór að velta fyrir mér hvar nemendafélagið fengi svona bingó spjöld; sný þeim við og þar blasir við stimplað aftan á þau: Hrafnista!

Laugardagskvöldið tók ég bara rólega og á Sunnudeginum keppti ég á þessu boðsmóti. Var bara svona sæmilega sáttur, auðvitað vill maður alltaf hlaupa hraðar en 51,49 innanhús í fyrsta hlaupi ársins hlýtur að teljast jákvætt. Besta opnun hjá mér og jafngildir 50,52 úti en þar á ég 50,71 sek. Svo ég lít bara bjartsýnn fram og veginn, finn að ég á mikið inni. Byrjaði alltof, alltof hægt.

Ætla samt að fara drulla mér að sofa, planið var að hitta Einar Bergi í háskólagymminu í fyrramálið.

kl. 1:11 | Athugasemdir (2)

19.1.2007 : Boðsmótið um helgina

Lítið að frétta af mér. Same old, same old. Skólinn, vinnan hlaupin.

Er að fara keppa á sunnudaginn á Reykjavík Indoor Games sem er boðsmót þar sem besta frjálsíþróttafólki landsins í hverri grein er boðið að keppa. Að auki er svo erlendum keppendum líka boðið á mótið. Þetta byrjar allt klukkan 14:00 niður í Frjálsíþróttahöllinni í laugardal. Mæli með að allir komi að horfa, verður stórskemmtilegt mót. Þetta verður líka sýnt beint á RÚV. Ég hleyp klukkan 15:30.

Um næstu helgi er svo Meistaramót Íslands 15-22. Ég er náttúrlega orðinn of gamall til að keppa þar en mun starfa sem þulur. Tók seinni daginn í fyrra og ég hef greinilega ekki alveg klúðrað því. Sjáum hvernig þetta fer núna.



kl. 12:22 | Athugasemdir (2)

14.1.2007 : Skólinn og Fleira

Skólinn byrjaður og mér líst bara nokkuð vel á þetta. Spurning um að spýta aðeins í lófana og reyna klára þetta af. Það er allavega planið. Sjáum hversu langt það gengur. Er samt í nokkrum mjög áhugaverðum fögum t.d stjórnun fyrirtækja og hermun gæti svingað báðum megin, veit ekki alveg strax.

Á föstudaginn eldaði svo Anna og Unnur ofan í mig Robba. Svona á þetta að vera, skella sér á æfingu meðan stelpurnar eru heima að elda *hóst*.

Laugardagurinn hvarf alveg, ætlaði að vera voðalega duglegur, en áður en ég vissi af var laugardagskvöldið. Kíkti til Tobba um sex leytið að veita listrænt innsæi mitt við innanhúshönnun. Vorum að hengja upp myndir, spegla, og tengja heimabíó-ið og fleira. Skelltum svo hammara á pönnuna og fljótlega komu svo allir  blikastrákarnir. Smá strákvöld þar sem stelpurnar voru að hittast. Þær enduðu samt að sjálfsögðu í strákapartý-inu.

Enduðum  svo nokkrir niður í bæ, ég var samt rólegur, enda búinn að gefa það út að ég er offiicially hættur að drekka. Fótbóltablikarnir voru greinilega í sama pakka og frjálsíþróttaguttarnir og sátu hressir á Hverfis með Jagemaster í Breezer - Þorkell held ég að þeir kölluðu það. Það er víst það nýjasta.

Ég var samt meira á röltinu, Prikið, Vegamót, Hverfis, Sólón. Eitthvað að reyna hitta á þá sem voru niður í bæ og rakst á nokkra.

Er að fara skella mér út að finna mér eitthvað að borða með Hlyni bróðir og svo í bíó á The Prestige. Held að hún sé geðveik.



kl. 17:55 | Athugasemdir (3)

12.1.2007 : Reunion

Um seinustu helgi hittist 6x bekkurinn úr versló heima hjá Ástu. Mjög gaman að hitta alla aftur, þótt maður sé nú í sambandi við svona flesta. Ég held að ég hafi verið pirrandi fulli gaurinn þótt sumir vilja meina að ég hafi verið stórskemmtilegur. En mark my words ég er officially hættur að drekka. Það hefur ekkert upp á sig, nema brotið kústskaft og kúlu eftir upphýfingar.

Reunion

Ég var samt með miklu meiri sönsum en ég hélt. Áður en ég fer heim eftir djammið kíkjum við Sverrir á Quiznos - nema að auðvitað gleymi ég veskinu mínu þar.

Daginn eftir hringi ég í Sverri

Bergur: Gleymdi ég veskinu mínu í bílnum hjá þér?

Sverrir: Oh ég vissi að ég átti ekki að treysta þér, þú sagðir í bílnum að þú hafir gleymt veskinu á Quiznos en það væri í lagi því gæti bara lokað því og þuldir svo upp eitthvað númer.

Bergur: Hvernig datt þér í hug að ég hafi haft sansa til þess? Jæja ég ætla að hringja núna og láta loka því.

Ég hringi því í VISA

Bergur: Góðan dag, ég ætlaði að láta loka kortinu mínu, kennitala 1907834139

Simadaman : Hmm þú hringdir hérna klukkan 06 á laugardagsnótt / sunnudagsmorgni til að loka því.

Mér fannst mjög fyndið að ég skildi hafa sansa til að hringja og láta loka kortinu en samt það fullur að ég mundi ekkert eftir því daginn eftir. Símadömununni fannst það ekkert fyndið.



kl. 9:51 | Athugasemdir (5)

4.1.2007 : Óska eftir vingjarnlegu Ljóni

Stelpurnar fengu í jólagjöf "Nýju afmælisdagabókina" eftir Michelle Knight. Ég er nú svosem ekki mikið fyrir svona dót, en hef samt stundum lúmskt gaman að því. Ákvað að skella hingað inn það sem stendur í þessari bók um 19. júlí sem er afmælisdaguirnn minn. Sleppi textanum sem fjallar almennt um krabba.

Persónuleiki: Þú ert upptekinn af líkama þínum og kannt því vel þegar aðrið dást að honum. Þó má vera að þú hafir verið yfir kjörþyngd nokkrum sinnum og þá leist þér ekki á blikuna. Láttu þér þykja vænt um líkama þinn eins og hann er núna og þú munt njóta góðrar velferðar. Þú vilt gjarnan halda þér í góðu líkamlegu formi en þarft líka að næra þinn innri mann.

Lífsbrautin: Þú ert stundum svolítið yfirborðskennd persóna og dæmir aðra á sama hátt og þú dæmir sjálfan þig. Mundu að líkaminn er verkfæri sálarinnar svo ekki vera háður líkamlegri fegurð.

Ástin: Þú ert í sjöunda himni þegar að þér dáðst en gætir lent í valdabaráttu í ástarsamböndum. Elskhugar þínir eða ástkonur dýrka þig í fyrstu en þú fellur auðveldlega af stallinum. Galdurinn er að stíga aldrei upp á hann. Reyndu vingjarnlegt Ljón en ríkjandi pláneta þess er Sólin sem einnig stjórna deginum þínum.

Óskagjöfin: Inniskór, trampólín.
Litur: Appelsínugulur, gulur
Tölur: 1,11,22
Steinn: Karneól - vegsamaður af Rómverjum sem lukkugripur, færir þér kraft.
Jurt: klukkubróðir
Dýr: Græneðla
Starf: Tennisþjálfari, balletdansari, keppnismanneskja í vaxtarrækt
Sérkenni: Aðlaðandi, í góðu formi, kraftmikill
Snillingur í: að tjá þig

Þið megið svo dæma hversu vel þetta á við mig.

kl. 21:01 | Athugasemdir (46)

1.1.2007 : Sót og púðurseitrun

Er ekki verið að grínast hvað Reykjavík var ógeðsleg klukkan 01:00 seinustu nótt. Það var eins og það væri dökk þoka yfir öllu þegar í rauninni var bara púður og sót í loftinu. Það var svo dökkt yfir að mér leið næstum eins og ég væri kominn "Middle Earth" í Hringadrottinssögu.

Í fyrsta skipti á ævinni fór ég út á lífið á gamlárskvöld. Vanalega hef ég tekið því bara rólega en Blikarnir voru í heljar stuði og því ákvað ég nú að kíkja með.

Kvöldið byrja samt rólega. Pabbi tók upp á því að hafa forrrétt, einhver svakanlega humarrétt með eplum og dóti. Ég komst að því að ég get ekki drukkið vín, ætlaði að fá mér hvítvín með, en mér finnst það bara ekki neitt gott. Alltaf smakka ég samt og alltaf finnst mér það jafn vont. Drekk hvorki rauðvín eða hvítvín. Hamborgarhryggurinn klikkaði aftur á móti ekki.

Skaupið var það besta sem ég hef séð! Ég hef aldrei hlegið jafnmikið yfir skaupi og þetta árið. Sem þýðir skv. Palla Magg að ég sé ótrúlega gáfaður með beittan húmór.

Mér fannst gaman að því að þetta var bara meira eins og lítlir sketsar í staðinn fyrir að hafa einhvern rauðan þráð í gegnum þáttinn. Svo eru hlutir eins og Baugsmyndin, þvílík snilld. Það fyrsta sem ég hugsaði var ekki "vá hvað þetta er fyndið" heldur "Vá hvað ég væri til að sjá þessa mynd!". Það var bara allt við þetta skaup sem var fyndið.

Kaupthings auglýsingin með John Cleese var líka ótrúlega fyndin og góð. Tveim mínútum fyrir auglýsinguna var ég og Hlynur einmitt að tala um það hvað auglýsingar eru orðnar eitthvað illa skrifaðar. Öll tæknileg vinnsla er orðin ótrúlega flott og góð, flottar tæknibrellur, flott myndgæði og vel klippt, en auglýsingin sjálf bara ekki nógu góð. Svo kemur þessu auglýsing frá Kaupthingi (KB Banka).  Ekkert flókið í vinnslu bara ótrúlega fyndin og vel skrifuð. Þetta er náttúrlega líka ótrúlega töff að því leiti að Kaupthing er ekki að gera neitt annað en að slá um sig. Sýna hverjir séu með peningana ;)

Að skaupinu loknu fór maður svo að gera sig til að sprengja upp peninga. Ég hef yfirleitt þann háttinn á að ég kaupi mér fátt en þá aðeins stærra á móti. Keypt semsagt eina góða rakettu til að senda upp á miðnætti og tertu. That's it. Svo hjálpaði ég bara Heiði, Ingibjörgu, Alexöndur og Guðnýju með dótið sitt.

Þegar puttarnir voru svo alveg að detta af að sökum frosts, hoppaði maður inn í heitt kakó og kökur hjá mömmu. Það er alltaf opið hús hjá okkur á gamlárs. Erum upp á hæð í Kópavoginum með stóra glugga í stofunni og sjáum því 360°yfir höfuðborgarsvæðið. Maður trúir þessu ekki, hvað Íslendingar tapa sér. Held að ég hafi leisð að 600-700 tonn af flugeldum hafi verið flutt inn. Það er sikk mikið magn.

Tobbi kíkti í heimsókn um kvöldið en um svona eitt-hálftvö leytið pikkuðum við upp Óla Margeirs og fórum svo í partý til Helgu Kristínar. Flestir blikarnir skelltu sér svo á Sálina á Broadway en ég var "designated driver" þetta kvöldið á eðalkerrunni hans Tobba. Var bara hið fínasta kvöld. Sérstaklega því Tobbi var að brillera. Held að Telma tali aldrei aftur við hann. Ég var alveg óvenju lengi að, enda margt um að vera og klukkan níu í morgun lagðist ég loksins upp í rúm. Vaknaði svo klukkan 4 í dag.

Dagurinn er svo búinn að vera í algjöri tjilli. Ég er basically bara búinn að sitja á náttbuxunum, borða súkkalaði og spila tölvuleiki eða horfa á video í tölvunni.



kl. 18:55 | Athugasemdir (5)

27.12.2006 : Konfektseitrun

Er hægt að fá konfektseitrun, svipað og fólk fær áfengiseitrun ef það drekkur of mikið. Ég held allavega að ég gæti verið að nálgast það.

Jólin eru búin að vera mjög næs og góð. Ég skildi eftir eina gjöf svona hálfpartinn viljandi til að geta farið á jólaról á Þorláksmessu og keypt seinustu gjöfina. Þar sem fjölskyldan eru ekki miklir áðdáendur skötunnar höfum við (óvart) komið upp hefð að setjast á kaffihús á Þorláksmessukvöld með kökusneið og heitt súkkulaði.

Aðfangadagur byrjaði á möndlugraut heima hjá ömmu með systkynum pabba. Ég og Helga höfum vanalega verið sigurvegararnir en þetta árið náði Kári í möndluna. Eftir grautinn fór ég svo í að keyra út jólagjafirnar. Ég hef tekið upp nýtt system hvað varðar jólakort og gjafir. Í stað þess að senda út 10-20 stykki af jólakortum, hef ég frekar ákveðið að kaupa jólagjafir handa svona nánustu vinum sem maður er mest með og svo frekar senda bara jólakveðjur á vini og kunningja í gegnum sms.

Kalkúnninn hans pabba var óaðfinnanlegur og fyllingin, kartöflurnar og sósan hrein snilld. Ótrúlega gott. Þegar búið var að taka af borðinu voru svo opnaðar gjafir. Ég og Hlynur gáfum stelpunum Singstar mikrafóna með Singstar Legends og Singstar Pops og svo Eye Toy myndavélina með Play Sports 3. Mamma og Pabbi fengu svo þessar fínu Cintamani flíspeysur. Þegar búið var að rífa upp alla pakkana tókum við fram konfektsísinn sem ég bjó til á Þorláksmessu og ég verð að segja að hann kom bara óvenjuvel út. Restin af kvöldinu fór svo bara í að horfa á video upp í rúmi með konfekt.

Á Jóladag var svo árlega jólaboðið hjá Sigurbjörgu frænku og alltaf gaman að hitta alla fjölskylduna og þakka fyrir góðu gjafirnar sem maður fékk.  Kvöldið endaði svo með að fjölskyldan settist yfir spili heima.

Á annan á jólum borðum við alltaf hangikjötið (ekki á jóladag útaf jólaboðinu) og það er ekkert betra en að vera nývaknaður, og borða hangikjöt á náttbuxunum. Heimilislegt og gott. Kertasníkir hefði verið svo hugulsamur að luma inneign í Smáralind inn um gluggan og því skellti hele famlien sér á lúxus sýningu á Eragon. Verð því miður að segja að hún stóð ekki undir væntingum, aftur á móti gerði Party og Co það algjörlega.  Þar kom í ljós að ég Hlynur bróðir syncum algjörlega, en það var mjög fyndið að sjá að Mamma og Pabbi voru ekki alveg á sömu blaðsíðu.

Þetta er því búið að vera afar næs. Búinn að borða yfir mig af mat, kökum og konfekti, spila og horfa á bíómyndir, kíkja í jólaboð og ég veit ekki hvað. Myndi því segja að þetta væri búið að vera afar næs og góð jól.



kl. 15:56 | Athugasemdir (3)

22.12.2006 : Jólin

Hélt upp á próflok þann 13. des með því að baka lakkrístoppa. Hafdís var búin að grínast með að ég ætti að baka fyrir hana meðan hún væri enn í prófum og ég ákvað að taka hana svona á orðinu. Bjöggi fékk líka sinn poka þar sem ég náði að múta honum gegn því að fá nokkur spil hjá honum.

Tobbi var líka svo myndarlegur að bjóða mér heim í hammara eins og hann á stundum til með að gera. Ég ákvað því að í þetta skipti skyldi ég blæða og þaut því á stælinn til að pikka upp hamborgara og náði svo í poka af lakkrístoppum í eftirrétt.

Jólaundirbúningurinn hjá mér hefur farið að mestu leyti í að þvo þvott. Ótrúlegt hvað hann safnast fyrir hjá mér, ég á alltof mikið af fötum held ég. Líka þegar maður þvær ekki í smá tíma hrannast þetta hreinlega upp.

Í dag fór ég svo á fyrsta jólaröltið og keypti fyrstu jólagjafirnar. Gekk vel reddaði langflestu á 1,5 klst og þarf bara að redda mömmu og pabbá núna. Ágætis nýtni það hjá mér.

Er annars að vinna í leynilegri jólagjöf sem er búin að taka fáránlega mikinn tíma og þá teg ég í tugum klukkustunda. Dæmi um það er að nú er klukkan 04:05 og ég er að vinna við hana.

Ég sit þó ekki heima heldur bauð Tobbi mér í smá jólastúss. Hann þurfti að pakka gjöfum og gera allt til fyrir förina austur í fyrramálið og ég þarf að klára þetta hér frá svo gjöfin verði nú tilbúin fyrir 24.  Stefni allt í allnighter sýnist mér.



kl. 4:09 | Athugasemdir (2)

17.12.2006 : Matt Damon

Þegar ég er spurður hver mér finnist vera besti leikarinn segi ég alltaf Jack Nicholson en þegar ég er spurður hver sé minn uppáhaldsleikari segi ég alltaf Matt Damon Þetta er meðal annars ein ástæða fyrir því(reynder er Christian Bale að koma sterkur inn, meira um það seinna).

Þetta er ógeðslega fyndið!



kl. 5:28 | Athugasemd (1)

11.12.2006 : Whatever People Say I Am, That's What I'm Not

Ég held alveg að Whatever People Say I Am, That's What I'm Not með Arctic Monkeys sé pasta plata rokkplata 2006.

arctic_monkeys

Alveg ótrúlegt hvað 19 ára strákar frá Norður Englandi með algjöran workin-class Cockney hreim geta gert.

Hér er t.d. eitt dæmi um það þegar það taka Girls Aloud smellinn Love Machine og pakka því saman - frekar töff og fyndið.



kl. 14:08 | Athugasemdir (4)

9.12.2006 : FM 957

Smá pása frá lærdómnum. Skellti Justin á fóninn og fór að pæla í einu merkilegu sem ég heft hugsað um. FM Hnakkar þekkja ekki góða tónlist. Hvað var t.d. málið með Basshunter, er hægt að finna leiðinlegra og ógeðslegra lag?

Aftur á móti er Justin Timberlake bara einn af betri tónlistarmönnum 20. áratugsins. Ótrúlegt hvað honum tekst að þróast og vera leiðandi í þessu. Hver man t.d. ekki eftir Like I Love You æðinu. Gítarriff í danslagi með góðum takti. Næsta sem maður vissi að öll danslög voru með gítarriffi. Nú gefur hann út Futuresex / Lovesounds og bara klikkar ekki, allt öðruvísi en lög hingað til og pródjúsering af Timberalnd er fáránlega töff, skemmtilegir taktar og allskyns litlir hlutir sem gera mikið.

Það er líka merkilegt hvað útvarspmenn á FM 957 vita ótrúlega lítið um hvað þeir eru að tala. Alltaf þegar ég heyri í FM 957 ná þeir að klúðra einhverju sem þeir vita ekkert um. Ég verð bara hissa á að þeir skuli stundum láta þessa hluti út úr sér.

Annað sem tengist FM 957 er hvað þeir eru rosalega langt eftir á, eins og ég var búinn að nefna áður hérna með Bar Fly sem kom út fyrir 1,5 ári en var samt sumarhit á FM 957 9 mánuðum eftir að það kom út. Nú fyrir stuttu heyrði ég að One með Trabant væri að falla niður listann. Er fólk að grínast?

Rás 2 og XFM er að mínu mati langbestu útvarpsstöðvarnar og standa bara algjörlega upp úr. X-ið er með helst til mikið emo-háskólarokk fyrir minn smekk.



kl. 23:17 | Athugasemdir (324)

8.12.2006 : Jólin og fl.

Tók fyrsta skrefið í jólaundirbúningnum í dag, þegar ég náði mér í Christmas Songs með Diana Krall. Flottar léttar jazz útsetningar á mörgum af flottustu jólalögum ever. Held að þetta svínvirki. Jafnvel bara að þetta nái sama sessi og jólalögin með Sinatra, Nat King Cole, Dean Martin og Bing Crosby. Þeir eru náttúrlega þeir flottustu. Það eru ekki jól nema að hlusta á jólalög með þeim.

Nú aftur á móti sit ég yfir "Bönkum og peningum" sem ég fer í á mánudaginn. Læri í svona klukkutíma lengur áður en ég fer að sofa. Interval í fyrramálið í höllinni.

Klára svo prófin á miðvikudaginn og get hreinlega ekki beðið. Langt síðan ég hef klárað próf svona snemma og ætla algjörlega að nýta mér það. Ætla að byrja á að taka til í herberginu og gera allt flott og fínt þar og svo blasta ég bara klassísku jólalögunum og baka eins og ég fái borgað fyrir það. Reyndar er aldrei nema 50% nýting hjá mér við baksturinn þar sem mér finnst deigið eiginlega jafngott ;)



kl. 23:00 | Athugasemdir (2)

6.12.2006 : MSN í gangi

Það er gaman þegar maður gleymir msn í gangi yfir nóttina, þá fær maður skemmtileg komment frá fólkinu í USA og vinnuóðum Íslendingum

Jónas Hlynur - says:

   er kominn próftími?


Kristín says:
   ekki segja mér að þú sért vakandi!

 

Tobbinn says:
   þú bara mættur

Tobbinn says:
    þú ert gaurinn sem æfir frá 5-9 og gaurinn sem mætir firstur í vinnuna

 

Ég var aftur á mót steinsofandi og vaknaði bara rétt um níu leytið. Kíkti aðeins í bækurnar og fór svo í tölvuna núna.



kl. 10:40 | Athugasemdir (2)

4.12.2006 : Nýjir þættir

Ég er byrjaður að horfa á tvo nýja þætti sem eru alveg að meika það.

Studio 60 on Sunset Strip

Nýr þáttur með Matthew Perry sem fjallar um sjónvarpsþátt í anda Saturday Night Live og fólkið sem vinnur við þáttinn. Þetta eru sömu gaurar og gerðu West Wing en eru virkilega góðir gamanþættir. Ekki svona Friends fyndnir heldur bara virkilega virkilega vel skrifaðir og skemmtilegir. Skemmtilegt líka að sjá Matthew Perry ALLT öðruvísi með engin fílfahúmór. Losnar algjörlega við Chandler stimpilinn þarna. Ég er búinn að horfa á alla þættina sem eru komnir út og Hlynur bróðir nær í þá um það bil 2 klst eftir að þeir eru sýndir úti í USA.

Heroes

Fjallar um venjulegt fólk sem fer allt í einu að uppgvöta að það hefur sérstaka hæfileika. Fyrst þegar maður heyrir þetta hugsar maður um einhverja útþynnta X-men mynd en það er alls ekki tilfellið. Hugsunin er sú að maðurinn er alltaf að þróast, hinir sterku lifa af og það hljóti að koma að því að maðurinn eigi eftir að taka næsta stökk í þróunarsögunni. Ég sá fyrir stuttu auglýsinug held ég á Skjá Einum um að þeir væru að fara sýna þessa þætti. Mæli með þeim.

kl. 10:27 | Athugasemdir (8)

1.12.2006 : Hopp, bakarí og Alicante

Alveg ótrúlegt hvað ég er lélegur í láréttum hoppum. Get hoppað hátt yfir lóðréttar grindur frekar vel en lárétt kemst ég ekkert áfram. Allavega, vona bara að ég hafi bætt mig í þessu hopp-testi sem var í gær, annars verð ég brjálaður.

Nú kemur annars 3 daga hvíld frá æfingum. Búið að vera nokkuð strembið seinustu vikur, mikið af þungum lyftingum og hröðum sprettum og ég finn að ég hef aldrei verið hraðari. 2x2x200m og 6x150m sönnuðu það fyrir mér. Ég var samt orðinn dálítið þreyttur, hamurinn tæpur og því hvíldin vel þegin.

Í tilefni hvíldar og afslöppunar leyfði ég mér þann munað að sofa út í morgun. Þegar ég vaknaði svo klukkan 10 tók ég inn vítamínin mín og hoppaði svo út í bakarí þar sem ég borðaði sælustykki og súkkulaðibitaköku yfir mogganum. Vá ef þetta væri svona alla daga.

Það er líka gaman að segja frá því að ég erbúinn að panta flug til Alicante þann 2. apríl og verð þar við æfingar með Breiðablik til 18. apríl. Flestir blikanna fara út 28. og koma heim 14. en útaf fermingu hjá systur minni þann 1. apríl að þá flýg ég út daginn eftir til Köben og þaðan til Alicante og verðu eitthvða lengur.



kl. 11:30 | Athugasemdir (8)

28.11.2006 : Svefn og lyftingar

Ég er hreinlega ekki að ná hvað ég þarf orðið mikinn svefn. Er ég orðinn svona gamall? Seinustu daga er ég búinn að sofa svona 8 klst og ég næ hreinlega ekki að koma mér á fætur.

Það er ekkert mál að sofa svona 10 klst og fyrir nokkru svaf ég í 14,5 klst. Það er náttúrlega ekki eðlilegt. Mér var reyndar sagt að þetta væri líkaminn að stækka, en er þetta ekki aðeins of mikið.

Þetta er komið svo langt út í hött að ég fór að sofa klukkan 21:30 á laugardagskvöldi og vaknaði svo um 10:30 daginn eftir. Hver fer að sofa klukkan halftíu á laugardagskvöldii??

Æfingar ganga vel og ég styrkist með hverri vikunni í lyftingunum og þyngi og þyngi. Alveg ótrúlega ánægður með þetta. Náði meira að segja að stríða spretthlaupurunum seinasta laugardag.

Maggi: Ok strákar í næstu viku þyngjum við í bekknum!
Arnór: Hehe nú er Bergur byrjaður að lyfta það sama?
Maggi Nei mér sýnist hann vera lyfta meira.

Annars er maður orðinn svo sjóaður í sjúkraþjálfuninni að maður er byrjaður að sjúkra sér sjálfur. Fór í sjúkraþjálfun í dag, og Frikki hamaðist á kálfunum, nuddaði, ýtti og pússaði eins og hann ætti lífið að leysa. Þegar tíminn var svo búinn, fékk ég bara 500 þús kr. laserinn lánaðan og skaut sjálfur á kálfana.



kl. 22:03 | Athugasemdir (7)

27.11.2006 : Klassík

hæ ask?

kl. 1:55 | Athugasemdir (5)

24.11.2006 : Skýrslur og húfur

Vikan er búin að vera ágæt, er búinn að minnka við mig vinnu svo ég get farið að einbeita mér að skólanum. Skilaði m.a. verkefni í Bankar og Peningar í dag. Annað hvort fæ ég mjög hátt fyrir þessi verkefni eða ég verð skotinn í kaf. Ástæðan er að þessi kúrs er valkúrs fyrir viðskipta- og hagfræðideildina sem ég ákvað að taka sem valkúrs úr iðnaðarverkfræði.

Ég er því kannski ekki með allan grunnin og öll hagfræðihugtökin sem hinir eru með, en á aftur á móti frekar einfalt með að taka flókin concept og pælingar og einfalda þau yfir á mannamál. Þessvegna í þessum skýrslum er ekki mikið um flókin hugtök eða mikið farið í kringum hlutina heldur fer bara beint í efnið og "cut the crap" á mannamáli eins og einhverj myndi segja. Veit ekki hvort það sé það sem kennarinn vill eða einhverja vel soðnar hagfræðipælingar.

Annars er ég alveg að deyja þessa dagana, mig langar í svo margt. Það er erfitt. Listinn yfir hluti sem mig langaði í var orðinn ansi langur. Ég endaði með því að sannfæra mig um það að ég þyrfti góðan vetrarjakka - sem er reyndar rétt. Eina sem ég á, eru léttir sumarjakkar eða snjóbréttaúlpan. Vantaði eitthvað á milli. Skellti mér því í Blend í dag og verslaði þessa fínu úlpu sem ég er mjög ánægður með.

Kom svo við í útilíf og keypti mér góða hlaupa vettlinga og húfu. Húfan var dálítið sérstök, þunn scullcap með dúski ofan á. Minnir mig á þessar norsku skíðagönguhúfur sem maður sér. Strákarnir gerðu reyndar óspart grín af mér útaf þessari húfu, en ég stefni að koma af stað góðu trendi. Dúskurinn verður kominn í hátísku í kringum jól og áramót, alveg viss um það. Þá hætta strákarnir að hlæja að mér og sjá sem þann trendsetter sem ég er!



kl. 22:21 | Athugasemdir (3)

19.11.2006 : Allt í góðu

það er allt gott að frétta af mér. Æfingar ganga vel og ég sit núna að klára frá nokkur verkefni svo ég geti farið að einbeita mér að lærdómi og próflestri næstu vikurnar.

Ég er að fíla powerprógrammið hans Jóns Sævars mjög vel og ég er bæti mig í lyftingunum jafnt og þétt og býst við enn meiru í næstu viku. Það er seinasta vikan í þessum 3 vikna fasa og svo í þeirri fjórðu tökum við aftur hopp testið sem við tókum og ég kúkaði á mig, en lofaði jafnframt miklum bætingum ;)

Á laugardaginn eftir fína morgunæfingu skellti ég mér ásamt Tobba niður í Laugar, þar stefnan var að slakaa í í nuddi og baðstofunni. Við skelltum okkur í heitsteinanudd sem var virkilega næs, meira svona aflsöppunarnudd frekarn en íþróttanudd, en þegar nuddarinn sá hvað ég var stífur var hann bara byrjaður að þrýsta heitu steinunum beint í vöðvana og renna þreim fast meðfram vöðvunum. Tók alveg vel í.

Eftir nuddið slökuðum við svo af í baðhúsinu - sem er náttúrlega alveg ótrúlegt. Vissi að þetta átti að vera flott en þetta er út í hött. Þegar ég spurðist fyrir þetta fékk ég frá afreiðsludömunni "já þá hafið þið aðgang að gufu og heitum potti"  en þetta er ekkert standar gufur og heitir pottir. Þetta er bara alveg ótrúlega flott, einhverjar 6-8 mismunandi gufur með mismunandi andrúmslofti sem þær skapa. Stjörnuhiminn, rennandi fossar, bjálkasauna með svona sætri appelsínu og kanil keim.  Þarna var líka ískaldur sjór sem ég og Tobbi fórum reglulega í til að kæla okkur. Algjört ísbað, vatnið er salt, þannig að það kemst niður fyrir frostmark án þess að frjósa.

Við byrjuðum rólega bara með kálfana en vorum svo byrjaðir að fara alveg ofan upp að háls og komnir upp í 1 mínútu. Ótrúlega þægilegt, sérstaklega eftir á þegar maður finnur hitann koma aftur í líkamann og blóðið hreinlega streyma og losa um bólgurnar og stífleikann. Setjast svo kannski í hægindastól við arineld og láta þreytuna líða úr sér.

Mæli alveg sterklega með þessu. Við enduðum með að slappa þarna af í heila 4 klukkutíma. Vorum frá eit til rúmlega fimm.



kl. 13:49 | Athugasemdir (3)

17.11.2006 : Hvað gerir þú við tímann?

Sá þetta hjá henni Þórey Eddu og fannst þetta of fyndið.

Hvað gerir þú við tímann?

Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "siesta" með konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum mínum.

Ég get gefið þér góð ráð sagði Reykvíkingurinn. Ég er ráðgjafi með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar, sett upp verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér heldur getur flutt suður.

Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn.

Svona 20-25 ár. En hvað svo? spurði fiskimaðurinn.

- Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með marga milljarða.

- Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo?

Reykvíkingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin, tekur "siesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.!!!



kl. 8:53 | Athugasemdir (2)

14.11.2006 : Próf, helgin og nudd

Er ekki búinn að vera duglegur að blogga þannig að ég hendi inn einhverri léttri samantekt.

Fyrst er kannski best að nefna að ég er líklegast að fara falla á jólaprófunum. Sjáum allavega hvernig þetta fer. Búinn að vera vinna eins og mofo.

Föstudagurinn var næs. Ég og Bjöggi kíktum til Hafdísar þar sem Bjöggi vildi endilega prófa Clue sem hann keypti úti, höfðum það gott yfir spili og kökum.

Laugadagurinn fór ekki alveg eins og planað. Sigurbjörg var úti og því ákváðum við Tobbi að taka húisð fyrir okkur og hafa smá strákakvöld. Áður en ég vissi af vorum við búnir að stúta 1 líter af vodka að berjast á móti hagléli klukkan 03 um nóttina.

Sunnudagurinn var slökun. Ég átti sunnudagsmatinn þessa vikuna og hafði Nauta Filet - piparsteik með gráðostakartöflum. Í eftirrétt var svo frönsk súkkulaðikaka með whisky súkkulaði ganaché. Svo var bara kvöldið í afslöppun og róleg heit.

Í dag fílaði ég mig aftur á móti eins og pró íþróttamann. Byrjaði á að fara niður í Smára að lyfta. Deaddaði m.a. 100 kg. Eftir lyftingaræfinguna fór ég svo í heilnudd hjá Sean. Alveg ótrúlega gott. Toppaði það svo með að fara í heita pottinn og saunað í sundhöllinni í smá stund. Þá hoppaði ég vinnuna og endaði svo á minni seinnu æfingu upp í smára þar sem ég tók nokkra spretti og hopp.

Annars er ég í helvítis vandræðum með nuddið. Þetta er ekkert smá gott og mér finnst ég bara allur endurnærður og góður. Ég er líka mjög sáttur við Sean og finnst hann mjög góður nuddari sem hentar mér mjög vel. Aftur á móti eru verðin búin að hækka. Fyrst þegar ég kom til hans var það 3.00 kr og einhverju seinna 4.000 kr. og í dag endaði ég með að borga 5.00 kr.

Ég er því aðeins ða pæla að horfa í kringum mig og athuga hvort ég finni einhverja góða nuddara á góðu verði. Ef einhver lumar á einhverjum má hinn sami endilega láta mig vita.



kl. 21:47 | Athugasemdir (2)

6.11.2006 : Frjálsíþróttablogg

Ég er ekkert búinn að vera duglegast að blogga. Er í sama pakka og Kristín - það er alveg nóg að frétta, ég kem mér bara ekki í það að skrifa.

Ég er búinn að vera æfa vel seinustu tvær vikur og tók mig líka á í matarræðinu. Þannig að þetta er allt á réttu róli.

Um helgina fór Breiðablik í æfingabúðir á Vík í Mýrdal sem heppnuðust mjög vel. Jón þjálfari var alveg að fíla sig vel á æfingum sem minntu helst á herbúðir og keyrði bara rólega í bílnum nokkuð fyrir aftan okkur meðan við skokkuðum í 30 min meðfram stígum á Þjóðvegi 1. Tókum svo interval á vellinum og hlupum berfætta spretti í sandfjörunni með Reynisdranga í bakgrunninum og ólgandi öldurnar berjandi á fjöruborðinu.

Laugardagskvöldið var reyndar lítið sofið þar sem 40 metrar á sekúntu og haglél barði á rúðurnar á litla farfuglaheimilinu sem við gistum á. Sömuleiðis teygðist æfingin á sunnudagsmorgninum aðeins þar sem okkur fannst skynsamlegast að halda fyrir í íþróttahúsinu á meðan mestu vindkviðurnar gengu yfir.

Þetta heppnaðist samt mjög vel. Ég hneykslaðist samt einna mest á hvað strákarnir voru týndir í eldhúsinu og endaði með að halda námskeið  "Matreiðsla 101" eftir að Kári Loga spurði hvort það væri ekki allt í lagi að kornin í paprikunni kæmu með þegar hann var að skera hana niður.

Núna tekur svo við 4 vikna powerfasi hjá Jóni þar sem verður lyft 4 sinnum í viku og tekið sprettir og neglingar 2-3 og svo interval í höllinni tvisvar í viku. Hlakka mjög mikið að sjá hvað kemur út úr því, en þetta er einmitt það sem ég þarf að taka mig á ef ég ætla að ná einhverjum tímum í 400m.



kl. 11:26 | Athugasemdir (4)

26.10.2006 : Tónlist

Þegar ég á lög eins og Tell Me Baby með RHCP þar sem Flea er í farabroddi með fáránlega funky og flottan bassa að þá langar mig ótrúlega að kunna að spila bassa.

Þegar ég hlusta á lög eins og Little Wing eftir Jimi Hendrix langar mig ótrúlega að kunna á gítar. Sjitt hvað þetta hlýtur að teljast eitt af betri gítarsólóum ever.

Hvað mynduði annars segja að væri flottasta gítarsóla allra tíma?

kl. 8:05 | Athugasemdir (9)

21.10.2006 : Auglýsingar

Sit niður í vinnu í þessum skrifuðu orðum. Stillti vekjaraklukkuna á 8:30 í morgun. Byrjaði morguninn að skoða fasteignir á mbl.is. Mig langar í mína eigin íbúð, er samt ekki alveg að sjá það ganga, er búinn að vera leika mér í Excel og kbbanki.is dag og nótt og sé ekki alveg að sjá þetta ganga upp. Ekki misskilja ég dýrka foreldra mína og lífið heima er afar næs, en þetta er samt eitthvað sem maður hugsar alltaf meira og meira um, eðlilega. Seinustu 2 ár hef ég mikið hugsað þetta og núna snýst hausinn bara á fullu.

Eftir að hafa eytt tímanum að skoða fasteignaauglýsingar. Fór ég niður í vinnu, að vinna smávegis. Tók samt með mér námsbækurnar og er því búinn að vera vinna og læra til skiptis. Aðallega að vinna samt. Ætli ég reyni samt ekki að læra eitthvað fram á kvöld. Ekki veitir af.

Tobbi dróg mig út í gærkvöldi eftir að ég hafði ekki látið heyra í mér í viku og fólk farið að spá fyrir um dauða minn. Skelltum okkur á Quiznos og enduðum heima í nýja place-inu.

Stefni að því að vakna snemma á morgun líka og einbeita mér þá meira að lærdómnum. Byrja samt daginn sjálfsagt út í bakarímeistaranum. Veit ekki afhverju en mér finnst ótrúlega skemmtilegt að lesa atvinnuauglýsingarnar í mogganum og fréttablaðinu. Ekki spyrja mig afhverju. Ég er langt frá því að vera leita mér að vinnu. Þetta er bara eitthvað sem ég hef haft gaman að síðan ég var í menntaskóla. Áhugavert held ég bara og gefi manni góða sýn á markaðinn - eða hvað veit ég. Veit bara að mér finnst gaman að lesa þetta og jafnvel ennþá betra með nýbakaða skonsu og kókómjólk.



kl. 17:35 | Athugasemdir (6)

18.10.2006 : Bankar og peningar

Seinustu dagar hafa verið í ritgerðasmíð. Tók kúrs úr hagfræðideildinni sem heitir Bankar og peningar. Fyrsta verkefnið sem hann lét fyrir var ekki að minni toganum, lesa allar fjórar greiningaskýrslur um bankanna sem komu út í mars á seinasta ári. Merrill Lynch greininguna og allt sem fylgdi í kjölfarið. Svo átti ég að skrifa eitthvað um þetta.

Hver skýsrla um 30-40 blaðsíður og því búinn að lesa um 140 blaðsíður af orðalengingum um íslenska bankakerfið. Skil ekki hvernig þessi greiningarfyrirtæki nenna að skrifa svona doðranta sem segja ekki neitt og fara bara í hringi og hringi.

Ég held að mér hafi tekist ágætlega til með að koma þessu frá mér á mannamáli.

Útaf þessu hefur mér ekki tekist að mæta á æfingu núna þrjá daga í röð og er ekki alveg sáttur við það, en hugga mig við að ég byrjaði með látum. Fyrstu vikuna voru skipulagðar 4 æfingar á hjá Jóni en ég tók 7 og þá næstu hækkaði hann upp í 5 en ég hækkaði upp í 10. Þarf svo bara að vera duglegur og halda þessu við.

Seinasta föstudagskvöld sat ég niður í vinnu til eitt um nóttina að reyna vinna, já ég kann sko að skemmta mér. Á laugardeginum tók mér aftur á móti fína hvíld um kvöldið og hitti Jón Karl og Sverri.

Við byrjuðum á léttu skokki í árbænum áður en við heilluðum gellurnar í heitu pottunum. Þegar við vorum svo að deyja úr hungri skelltum við okkur á Ruby þar sem við kláruðum allan matinn úr eldhúsinu. Hafiði séð Ástríkur og Þrautirnar 12, þar sem ein þrautin er að það kemur bara alltaf meiri og meiri matur á borðið sem þeir þurfa að klára - "Glóðar steiktur afríkufíll" (lesist með frönskum hreim) eins og kokkurinn sagði.

Þannig leið mér nákvæmlega á laugardagskvöldinu, við pöntuðum og pöntuðum og pöntuðum og borðuðum og borðuðum og borðuðum og drukkum og drukkum og drukkum. Fólki blöskraði hreinlega þegar það labbaði framhjá borðinu sem var um það bil að gefa sig vegna þungans.

Eftir að hafa étið á okkur gat fannst okkur tilvalið að hreyfa okkur eitthvað eins og sönnum íþróttamönnum og fórum því í keilu þar sem ég tók strákana í kennslustund. Þeir vildu reyndar meina að ég væri með mjög kvennlegan stíl sem þeir gerðu óspart grín af, en hættu fljótlega þegar ég var kominn með um 50 stiga forskot.



kl. 18:34 | Athugasemdir (3)

12.10.2006 : Frjálsar

Gaman að heyra viðtöl við tvær efnilegustu fótboltastjörnurnar úr kvennaboltanum; Margréti Láru Viðarsdóttir og Grétu Mjöll Samúelsdóttir því þær nefna alltaf frjálsarnar og hvað það gerði mikið fyrir þær að æfa frjálsar. Enda veit náttúrlega alþjóð að það fyrirfinnst ekki betri þjálfun; þol, hraði, tækni, styrkur og kraftur.

Annars er líka merkilegt hvað stelpur eru hreinlega af allt annari tegund en strákar.

kl. 22:09 | Athugasemd (1)

6.10.2006 : Náðu þér í kynæsandi snekkju!

Ég gleymi alltaf hvað ég ætla að skrifa hérna inn. Stundum þegar ég er að gera eitthvað að þá kemur upp í hausinn "ég ætla að skrifa um þetta" og svo gleymist það alltaf þegar ég fer að blogga.

Hér kemur samt smá saga sem ég man eftir. Fyrir nokkru síðan á laugardagskvöldi hittti ég Tobbaling þegar stelpurnar héldu eitthvað stelpukvöld sem basically felur í sér að borða nammi og drekka freyðivín. Góð blanda. Ég og Tobbi skellltum okkur aftur á móti á macho myndina Crank en kíktum svo til stelpnana síðar um kvöldið.

Fyrr um kvöldið hafði ég setið í kagganum og þá kom þetta sænska danslag sem allir á FM957 eru að tapa sér yfir "hun hedder Anna.." eitthvað. Að mínu alveg hræðilegt lag. Þá fór ég að tala við hann að ég gæti alveg hlustað á ákveðið píkupopp. Ég er er opinn fyrir allri tónlist. Ef lagið eða tónlistarmaðurinn er góður fíla ég það, hvort sem má flokka það undir rokk, píkupopp eða country.

Þessvegna hafði ég mjög gaman að því í partýinu hjá stelpunum þegar allir voru að syngja við Sexyback með Justin Timberlake, því það var enginn með textann á hreinu og sungu "Who's so sexy, yo!" við "Get your sexy on" eða jafnvel "Get a sexy yacht". Ég lá náttúrlega í hlásturkasti og var næstum dáinn yfir þessu en náði þó að leiðrétta fólkið því þetta var ekki ein tilfellið. Þegar JT svarar með "go ahead, be gone with it" heyrðist jafnmargar útgáfur og fólkið var. Kaldhæðni að ég hafi þurft að leiðrétta fólk, því hlusta sjálfsagt minnst á þessa tónlist, þótt JT kallinn klikka aldrei, sérstaklega með Pharrel sér við hlið.

Þetta er nú samt frekar algengt að fólk ruglast á textum og semji sína eigin. Eitt af því betra sem ég hef heyrt er þegar Elísabet söng "SVO KOM ÁÁÁÁST" við SÓDÓÓÓÓÓMAAA eftir Sálina.

Það eru náttúrlega heilu síðurnar á netinu tileinkaðar misheyrðum textum og það er tvennt sem ég man aðallega eftir að hafa séð.

Jimmy Hendrix - Purple Haze: Excuse me while I kiss the sky, sem varð Excuse me while I kiss this guy

Deep Purple - Smoke on the water: smoke on the water, fire in the sky, sem varð smoke on the water, fire engine guy!

Þið getið skemmt ykkur yfir kissthisguy.com

 



kl. 18:34 | Athugasemdir (2)

29.9.2006 : Workaholic

"Út þessa viku" sagði ég í þeirri seinustu og fór svo gjörsamlega yfirum í þessari hvað varðar vinnu. Sem útskýrir svo bloggleysið.

Toppnum var náð á miðvikudeginum þegar ég mætti til vinnu klukkan átta um morgunin og vann til sjö morguninn daginn eftir. Lagði mig í klukkutíma á sófanum og hélt svo áfram að vinna til klukkan miðnættis. Það er líka gaman frá því að segja að Hugsmiðjan opnaði 6 vefsvæði í þessari viku og ég setti upp 5 þeirra. Ágætt fyrir mann í hlutastarfi að skila VEEEL yfir 160 tímum (fullur mánuður).

Þetta hafði samt sína kosti. Ég gat spjallað við fólk eins og Sigurjón og Kristinu Birnu á msn, því ég var kominn á þeirra timzone.

Planið í kvöld er aftur á móti að horfa á Lucky Number Slevin en Addi var alveg hneykslaður að ég væri ekki búinn a að sjá hana. Ég ætla því að skella mér út í Bónus núna kaupa smá snakk og gos og liggja upp í sófa í allt kvöld!

Svo skal ég fara reyna blogga um eitthvað skemmtilegra en hvað ég er að vinna.

Lag vikunnar, af augljósum ástæðum er In the morning með Razorlight

kl. 6:23 | Athugasemdir (6)

22.9.2006 : Út þessa viku

Þarf bara að meika út þessa viku og þá verð ég sáttur. Vinnu og skólaruglið er búið að halda áfram og gekk það langt að einn daginn sat ég niður í vinnu til miðnættis og sat svo heima og reiknaði til sex um morgunin, áður en ég mætti aftur til vinnu um tíuleytið.

Útaf þessu hef ég ekki náð að hreyfa mig mikið, er ekki búinn að vera eins duglegur í klifurhúsinu og ég ætlaði mér en stefni á að bæta það. Náði þó að kíkja með krökkunum upp í íþróttasalinn í Sölunum, og spila körfu, brennó í klukkutíma.

Annars er kannski rétt að láta vita af því að ég er kominn með helgarkærustu. Það er náttúrlega næst besta tegundin af kærustum, því ég þarf ekki að sinna neinum daglegum skyldum heldur mæti bara um helgar. Hún heitir Hafdís og mér finnst þetta fyrirkomulag vera frekar þægilegt. Um leið og kærastinn fer út úr húsi mæti ég. Nú þarf ég bara að redda mér bólfélaga (sem er náttúrlega besta tegundin) og þá er ég kominn í helvíti góðan díl, myndi ég segja.

Plön helgarinn eru alveg óráðin fyrir utan lærdóminn. Hlynur downloadaði reyndar allri Sleeper Cell seríunni og því spurning hvort maður taki eina góða kvöldstund og leggist yfir því.

Klifurhúsið gæti líka verið sterkur leikur, eins og ég nefndi hér að ofan og svo er sunnudagsmaturinn byrjaður aftur. Ég á einmitt þennan sunnudag, þannig að ég verð að fara finna eitthvað sniðugt sem ég get boðið fólkinu upp á.



kl. 10:10 | Athugasemdir (2)

18.9.2006 : Blogg

Þetta er búin að vera frekar hörð vika. Er búinn að vera vinna mikið og langt fram á kvöldin og svo bætist skólinn ofan á. Veit ekki alveg hvernig þetta verður þegar æfingarnar koma inn í líka. Sérstaklega miðað við æfingaplanið sem ég stefni á.

Basically leit miðvikudagurinn og fimmtudagurinn svona út

08:00 - 12:00 Vinna
12:00 - 18:00 Skóli
18:00 - 24:00 Vinna
00:00 - 02:30 Rockstar
08:00 - 24:00 Vinna

Var orðinn frekar ógeðslegur gaur verð ég að segja þegar Robbi hringdi í mig á laugardaginn. Því ekki var föstudagurinn mkið betri. Við ákváðum þessvegna að skella okkur í Nordica. Það var algjör himnasending. Tókum vel á því í lyftingarsalnum í u.þ.b þrjá klukkutíma áður en við fórum í pottinn í axlarnuddið og svo út í Sauna. Bara lltof gott, leið ekkert smá vel eftir á.

Maður var algjörlega endurnærður - var allt annar maður, gott að komablóðflæðinu aftur af stað og hreinsa hugann. Ég hafði heldur ekki tekið æfingu síðan á þriðjudeginum þegar við strákarnir kíktum í fótbolta og það var því alveg kominn tími á smá hreyfingu. Mig er líka byrjað að hlakka til þegar æfingar byrja aftur, en það verður líklegast 2. október.



kl. 18:51 | Skrifa athugasemd

13.9.2006 : Rockstar

Eftir að hafa vakað og horft á úrslitaþáttinn af Rockstar eins og langflestir íslendingar ætla ég að setja fram eftirfarandi kenningu.

Magni verður í Supernova. Ég held að hann verði ekki forrustumaður hljómsveitarinnar en ég held að þeir bjóði honum að vera með í hljómsveitinni sem meðlimur.

Eftir á meikar það fullkomið sens. Supernova er samansett af reyndum körlum sem vilja ekki fá of sjálfstæðan og drifgjarnan aðalsöngvara. Ég held einmitt að þeir séu að leita sér af leikjabrúðu. Þeir eru með fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hljómsveitina, og nenni ekki að fara lenda í einhverjum "artistic" deilum um stefnu hljómsveitarinnar. Þeim vantar bara einhvern sem gerir sem þeir segja. Þeim vantar vanan sviðsmann sem flippar út á sviðinu og nær að vekja upp stemmingu á tónleikunum og vera rétta ímynd hljómsveitarinnar. Hefur lítið með söng og/eða spilahæfileika að gera. Það er Lúkas einmitt, han lúkkar rétt og hagar sér rétt. Hann er langt frá því að vera besti söngvarinn eða tónlistamaðurinn.

Það aftur á móti er Magni algjörlega, en honum vantar lúkkið og sviðsframkomuna sem Lúkas hefur. Raunveruleikaþáttarinn ýtir líka enn frekar undir þetta þar sem þar sést að Magni er alltaf sá sem kann öll lögin og er að hjálpa keppendunum með því að spila undir hjá þeim þegar þau eru að æfa sig og fleira í þeim dúr.

Þeir hafa verið að hrósa honum í gegnum seríuna hvað hann sé vanur og góður tónlistamaður með allt sitt á hreinu, stabíll og traustur.

Þegar Magni var svo rekinn nefndu Súpernova hvað hann væri hæfileikaríkur og sterkur tónlistarmaður. Súpernova sögðu m.a. sjálfir "You are more part of the band, than the leader of the band".

Í lokalaginu þegar Supernova er upp á sviði með nýja frontmanninum sínum Lúkasi, kemur svo Magni fram á svið og spilar með þeim. Afhverju ættu pródjúserarnir eða Supernova að fá hann til að spila þegar þeir eru með trilljón af öðrum möguleikum t.d einhvern úr housebandinu eða þessvegna hvaða sessionista sem er, eða jafnvel bara tape undir með kassagatarinum. Afhverju að sýna Magna í lokalaginu þegar Supernova er búin að fá á sig lokamymnd.

Ég held einmitt þessvegna að þeir kjósi Lukas sem frontman hljómsveitarinnar enda var það sem þátturinn og keppnin gekk út á. En það er ekkert sem bannar þeim að bjóða einhverjum að spila eða vera hluti af bandinu og þar held ég að Magni kemur inn í.

kl. 8:34 | Athugasemdir (10)

11.9.2006 : Helgin

Helgin var bara nokkuð góð. Náði nú ekki að gera allt sem ég ætlaði mér á þessum todo lista en eitthvað fór nú. Held að þetta hafi verið góð blanda af vinnu og afslöppun.

Laugardagurinn nýttist frekar vel, vaknaði eldhress klukkan átta um morguninn og byrjaði að læra. Þegar klukkan sló svo tíu fór ég út í Marel, þar sem ég tók létt skokk og fittness með Tobbanum.

Fór svo heim og kláraði dæmin sem ég þurfti að skila fyrir klukkan 16:00, henti þeim út í Háskóla og fór svo út á þvottastöð þar sem ég tók bílinn og hreinsaði frá toppi til táar.

Þetta þýddi að ég komst ekki á útgáfutónleikana hjá Margeiri í Bláa lóninu. Hefði svo verið til í að slappa af í bláa lóninu, fá sér einn kaldan og hlusta á Margeir matreiða slakandi tóna bláa lónsins. Þar sem lærdómurinn hélt mér frá lóninu, gaf ég Hlyni bróðir og Þórdísi miðana og mér skilst á honum að þetta hafi verið mjög kúl.

Kvöldið fór svo bara í almennt tjill, sem hefði kannski mátt nýta frekar í að þvo þvott en Assault on Precinct 13 sem Stöð 2 sýndi varð frekar fyrir valinu.

Á sunnudeginum ákvað ég að sofa út. Ætlaði þá að byrja á að þvo þvott og taka til, en Heiður systir var að fara í stærðfræðipróf á mánudaginn þannig að enn beið þvotturinn. Ég sat því með henni í 3-4 klukkustundir að fara yfir prósentureikning og breytiþáttinn.

Þá þurfti ég að fara reikna stærðfræðina sem ég átti að skila á mánudeginum en það passaði svo að akkúrat þegar ég var búinn var Hlynur tilbúinn með sunnudagsmatinn. Nú er nefnilega sumarið búið og flestir komnir í nokkuð fasta rútínu og þá byrjar sunnudagsmaturinn aftur. Hlynur tók af skarið og klikkaði ekki.

Fótboltaferðin sem átti að fara varð að bíða betri tíma þar sem veðrið á sunnudeginum var frekar leiðinlegt en ég heyrði í Bjögga og ég er ekki frá því að við séum að fara í ruglið.



kl. 10:50 | Athugasemdir (3)

8.9.2006 : Plan helgarinnar

  • Vinna eitthvað, dálítið mikið að gera í vinnunni þessa dagana.
  • Taka til í og þvo óhreinan þvott sem hefur safnast upp.
  • Reikna heimadæmi fyrir laugardag og mánudag.
  • Þvo og bóna bílinn innan sem utan.
  • Reyna æfa eitthvað.
  • Skella mér jafnvel í bíó með blikunum.
  • Kíkja í fótbolta með Tobba.
  • Reyna slappa af og borða góðan mat, Sunnudagsmaturinn á heimilinu er að byrja aftur. Vuhú!
  • Skipuleggja æfingatíma fyrir veturinn með Bjögga.
  • Spurning að skella sér á útgáfutónleika hjá Margeiri sem verða haldnir í bláa lóninu.

Þarna eru semsagt nokkrir hlutir sem ég verð að klára frá og aðrir sem eru svona í pípunum. Ég er opinn fyrir öllu. Verður líka fróðlegt að sjá á mánudaginn hverju ég áorkaði af þessum lista.



kl. 13:13 | Athugasemd (1)

6.9.2006 : Matur og klifur

Laugardagurinn var frekar næs, fór með Bjögga og Hafdísi á Ruby Tuesday að fá okkur að borða. Ég var ekki alveg viss hvað ég vildi, Colossal þriggja hæða hamborgarinn hljómaði vel en á hann vantaði Ruby Tuesday sósuna og bacon-ið sem er náttúrlega möst á hamborgara og því var Bacon Jack hamborgarinn líka dálítið heillandi.

Ég var því afar hrifinn þegar afgreiðslustúlkan bauð mér að fá stóra hamborgarann nákvæmlega eins og bacon hamborgarann. Þetta er kona að mínu skapi! Ég snéri mér líka að henni og sagði "Mér líkar hvernig þú hugsar! Ég fæ það".

Eftir á fórum við svo heim til Hafdísar þar sem ég og Bjöggi sáum um að klára úr ísskápnum en svo var bara slappað af spjallað og ...já, Bjöggi vildi fara í Scrabble sem er btw spil dauðans og ég sökka í því. Hver fattaði upp á þessum leik og hverslags fólki dettur í hug að spila hann?? ;)

Annars er það að frétta að ég er búinn að kaupa mér mánaðarkort í klifurhúsinu. Rosalega skemmtilegt sport og það sem ég fíla við það, er það sama og í frjálsunum. Það er undir þér komið og engum öðrum. Maður kemst ekki upp með að slaka á, því það eru ekki 10 aðrir á vellinum sem geta pikkað upp slakann fyrir mann. Maður verður að vera fit til að geta gert þetta. Þetta ert bara þú á móti vegginum! Því miður er það þannig í mínu tilfelli, sem stendur að veggurinn vinnur oftast. Stefni þó á að breyta því á næstu dögum.

Andri Cliffhanger var líka það heavy nice að lána mér klifurskó, þannig að ég þarf ekki alltaf að leiga mér. Ég er því all-set. Andri er töffari með sixpack, engin spurning. Hann er einmitt með svipaðan hugsunargang og ég, enda var hann mikið að velta fyrir sér að prófa frjálsar á sínum tíma. Stalst meira að segja nokkrum sinnum niður í laugardal til að taka 400m og 800m test eða stökkva langstökk. Þessi maður er náttúrlega óstöðvandi.

Ég er samt bara búinn að fara tvisvar að klifra á u.þ.b viku því á fimmtudaginn seinasta fékk ég þá snilldarhugmynd að taka lyftingaræfingu um morguninn, þar sem ég lyfti á efri búk, tók massíft af upphífingum, dips, bekk, axlarpressu, armbeygjum og þessháttar og fór svo í klifurhúsið eftir vinnu. Já gott prógram fyrir mann sem á að vera í hvíld.

Það þarf ekki að taka það fram að þegar ég vaknaði daginn eftir leið mér eins og ég hafði lent undir lest. Án gríns að þá hef ég aldrei fengið aðrar eins harðsperrur og strengi. Fyrst hélt ég að ég hafði eyðilagt eitthvað, það var alveg sama hvað ég teygði eða fór í gufu til að mýkja þetta upp, ég var alveg ónýtur. Í raun gat ég ekki klætt mig úr bolum, án þess að halda mér fram og toga hann þannig yfir mig. Ég fann til í efri líkamanum þegar ég labbaði og það var sárt að stýra þegar ég var að keyra bílinn. Ég var gjörsamlega að deyja. Það var ekki fyrr en í gær, á þriðjudegi, 5 dögum seinna að ég treysti mér aftur að klifra. Samt fann ég að ég var ennþá helaumur.

Unnur kom með mér í gær í klifurhúsið, og það var alveg ótrúlega gaman að sjá hana klifra. Þvílíkur munur að sjá hana klifra miðað við t.d. mig og Bjögga. Alltof mikill hamagangur í okkur og engin tækni. Hún hreinlega svífur upp þessa veggi, eins og hún sé spiderman (nú eða spiderwoman ef það er til).

kl. 12:17 | Athugasemdir (5)

2.9.2006 : Örlög

Ég og Tobbi ákváðum að hittast í gær eftir vinnu og fá okkur eitthvað gott að borða, henda kannski í smá bland og hafa smá strákakvöld bara við tveir þar sem Sibban var á einhverju læknadjammi.

Stefnan var að hittast í Bónus Holtagörðum og versla eitthvað inn. Ótrúlegt en satt mætti ég tímalega, og var því eitthvað einn að dunda mér í bónus þegar tvær stelpur eru eitthvað að spjalla og ég heyri útundan þegar ein þeirra segir við hina "æji okkar vantar einhvern handlangan". Ég sný mér að sjálfsögðu að þeim og segi "hvað segiði, vantar ykkur hjálp?"

Kemur í ljós að þær voru að reyna ná í vöru upp í hillu, en því miður var bara eitt stykki eftir og hún var leeeengst inni. Ég rétt næ að setja puttana í pokann, en næ ekki gripi þannig að ég þarf hálfpartinn að klifra upp í hilluna og næ þá þessu. Þær þakka kærlega fyrir og lýkur þar með þessari sögu.

Við Tobbi förum svo upp á nýju stúdentagarðana í Skuggahverfinu þar sem Tobbi býr í millibilsástandinu meðan hann er ekki kominn með nýja húsið sitt. Eitthvað átti nú eftir að versla inn íþessa íbúð, því það var ekki til neinn eldhúshnífur til að saxa laukinn eða skera kjúklinginn í Fajitas-ið okkar. Við reyndum eitthvað með matarhníf en það gekk brösulega, þannig að ég segi við Tobba að ég ætli að fara til nágrannanna (sem Tobbist segist ekkert þekkja) og fá lánaðan almennilegan eldhús hníf.

Ég banka á dyrnar vinstra megin við íbúðina, en ekkert svar. Þá prófa ég íbúðina hægra megin, þar kemur stelpa til dyranna. Ég kynni mig, útskýri aðstæðurnar og hnífa leysið og spyr svo hvort hún geti lánað okkur hníf. Þá brosir hún sínu breiðasta og segir "já þó það nú væri, þú hjálpaðir mér nú í Bónus!". Ég hafði ekki fattað það, en þetta var einmitt stelpan sem ég hafði hjálpað í bónus!

Tilviljun eða?



kl. 17:24 | Athugasemdir (2)

31.8.2006 : Að taka Berginn á 'etta

Er orðatiltæki sem Robbi og Daði byrjuðu að nota þegar við unnum að frjálsíþróttablaðinu. Þeim fannst fyndið hvað ég fór stundum fram úr sjálfum mér, gleymdi stað og stund og var í raun og veru í allt öðrum heim.

Ég á það nefnilega til að fara í einhvern trans, eins og á þriðjudeginum sat ég niður í vinnu í 9 klst samfellt án matarhlés að koma upp dagskránni fyrir icelandfilmfestival, og rúllaði svo beinti til Jón Karls að forrita meira. Ég var því á fullu í 11 klukkutíma non-stop að vinna.

Gömlu blikarnir áttu svo pantað borð á Caruso klukkan 19:30 sem ég sá um að panta. Ég er svona í seinni kantinum, eins og vill stundum gerast þegar ég er á fullu. Á leiðinni niður eftir hringir Óli og spyr "var þetta ekki á Enrico's". Ég er ennþá alveg á fullu og svara bara "jú, ég er rétt ókominn".

Þegar ég svo á Enricos situr Óli og segir að það sé ekkert borð pantað á nafninu mínu. Ég byrja að ræða við þjóninn en hún vil ekkert kannast við þetta, ég reyni að útskýra við hvern ég talaði en ekkert gengur. Stúlkan labbar um allan veitingastaðinn að spurja alla starfsmenn hvort þeir hafi tekið á móti pöntun á nafninu Bergur um þrjú leytið í dag. Þegar ekkert gengur spyr hún mig hreinlega "ertu viss um að þú hafir pantað hér??" og svara náttúrlega um hæl "já auðvitað, ég held ég viti hvar ég panti", um leið og setninginn kemur út úr mér horfi ég á Óla "Caruso - ekki Enrico's" þá hafði ég bara játað Óla í símanum án þess að hugsa eitthvað um þetta.

Við komumst loksins á Caruso nokkrum mínútum seint, en það varð ekki úr sök. Maturinn var virkilega góður og allt eins og það á að vera nema svo þegar það á að fara borga. Allt í einu fatta ég, að ég er ekki með veskið á mér. Ég spyr Robba og Önnu hvort þau geti ekki lánað mér þar sem ég hafi gleymt veskinu út í bíl.

Þegar ég er aftur á móti kominn út í bíl á leið heim til Unnar tek ég eftir því að þar er ekkert veski! Ég leita heima, ég leita betur út í bíl, ég hringi niður í vinnu, ég leita og leita og ekkert gengur, þangað til að ég hringi niður í Caruso. Þá hafði ég nefnilega gleymt veskinu í sófanum þar sem við sátum meðan við biðum eftir matnum okkar. Veskið var því allan tíman á Caruso.



kl. 14:13 | Athugasemdir (3)

30.8.2006 : Sumarið búið

Jæja þá er sumarið búið. Sjálfsagt eitt af viðburðaríkari sumrum sem ég hef upplifað.

Fyrir mér byrjaði sumarið 11. maí, en þá aðeins 3,5 klst eftir lokapróf í eðlisfræði settist ég upp í flugvél á leiðinni til Baltimore og síðan til San Diego. Þar sem ég gisti í góðu yfirlæti hjá Kristínu Birnu. Ég er ekkert smá þakklátur henni fyrir að leyfa mér að gista þarna hjá sér í þrjár vikur. Ég heillaðist gjörsamleg af San Diego og hver veit nema að ég reyni að troða mér næsta ár líka ;)

Samtals fór ég í alls þrjár utanlandsferðir í sumar, en í byrjun júlí skrapp ég helgarferð til Gautaborgar með Tobba til að keppa á Gautaborg Youth Games, þar sem ég hljóp á mínum besta tíma frá upphafi, 6. tíma besta ársins, hoppaði u.þ.b 20 sæti á all-time lista íslands og færðist einu skrefi nær því að komast undir 50 sek.

Í byrjun ágúst endurtók ég svo heimsókn mína til Gautaborgar en í þetta skipti til að taka þátt í Gautaborg Youth Forum, ásamt Tótu, Björgu og Adda, sem var einskonar ráðstefna fyrir unga leiðtoga í frjálsum. Þar kynntist ég helling af skemmtilegu og áhugaverðu fólki og er þetta upplifun sem á án efa að nýtast mér. Þetta var allt saman haldið í kringum Evrópumeistaramótið og því gat ég upplifað það í leiðinni.

Dagsdaglega einkenndist sumarið af æfingum hjá Breiðablik og að hitta vinina. Spilahópurinn var nokkuð öflugur og var Hafdís dugleg að skipuleggja og bjóða heim. Það sama gilti um Bjögga og Kristínu. Oftar en ekki einkenndist þessi kvöld samt meira af ofáti og kjaftaskap frekar en einhverju öðru. Þegar ég loks fékk því húsið útaf fyrir mig, hikaði ég ekki að bjóða þeim yfir til að elda ofan í liðið.

Ég fékk loksins að sjá hinn margrómaða bílskúr þegar Gróa bauð í 25 ára afmælið sitt og eins og venjulega var Robbi líka duglegur að draga mig í bíó og lána mér DVD myndir sem hann taldi skyldu að sjá.

Ég var líka duglegur að nýta þessa örfáu sólardaga sem komu upp til að kíka í sund og slappa af. Ég tók mig líka til og byrjaði líka að lesa aftur eftir smá hvíld.

Ég velti líka fyrir mér að skipta um starf, en eftir góða umhugsun ákvað ég að halda áfram. Hugsmiðjan er bara of kúl vinnustaður.

23. afmælisdagurinn kom líka þann 19. júlí eins og hann gerir árlega, en honum var tekið sérlega rólega og lítið gert í tilefni dagsins.

Af öðrum í kringum mig, stóð sjálfsagt þrennt upp úr. Daði og Gróa giftu sig í Hallgrímskirkju, ótrúlega flott athofn og geðveik veisla. Þau eru náttúrlega bara gerð fyrir hvort annað.

Hlynur bróðir gaf út sína fyrstu plötu, Ambulance, með hljómsveit sinni The Telpathetics, og hefur fengið góðar viðtökur. Hann var þó ekki sá eini því pabbi ákvað einnig að mixa og endurblanda gömlu Eglu plötuna Maður er manns gaman og endurútgefa.

Allt í allt hefur sumarið bara verið mjög viðburðarríkt og hrikaskemmtilegt. Nú tekur skólinn við, en ég mun samt sem áður starfa áfram hjá Hugsmiðjunni og svo að sjálfsögðu hefjast æfingar aftur eftir u.þ.b mánuð.

kl. 12:59 | Athugasemdir (3)

28.8.2006 : Búinn

Þá er tímabilið búið, sömuleiðis peningarnir og afmæliskakan hans pabba. Pústið í bílnum er farið og ég þarf að punga út 50 þús krónum til að skipta um allt heila klabbið. Strákurinn sem átti bílinn á undan var nefnilega svo snjall að setja í hann flækjur sem eru að detta niður, og sömuleiðis ákvað hann að taka hvarfakútinn til að fá meira afl. Já brilliant þessir hnakkar, eftir stend ég með 50 þús kr. færslu á visanu.

Helgin gekk ágætlega. Fyrri dagurinn hjá mér var horror, hljóp á 52.29 sem er svona 1,5-2 sek frá því sem ég að vera hlaupa á. Klikkaði bara allt sem hægt var að klikka. Var samt ákveðinn að ég ætlaði ekki að enda tímabilið á glötuðu hlaup og tók loka 400m sprettinn í 1000m boðhlaupinu, þar sem ég hljóp mjög vel að mínu mati. Hef sjaldan fílað mig jafnvel í 400 m hlaupi. Set kannski lýsingu inn á æfingadagbókina. Þar sem enginn tók splitt á mér hef ég ákveðið að ég hafi hlaupið undir 50,5 sek, þangað til að annað kemur í ljós.

Besta hlaupið var samt pottþétt 400m hlaupið sem ég tók klukkan 02:30 um nóttina. Var alveg ótrúlega léttur í því hlaupi. Engin aukaþyngd sem hægði á manni.

Pabbi á afmæli í dag og hélt grillveislu heima fyrir fjölskylduna og systkyni sín. Þannig að það var voðalega næs að setjast niður á sunnudagskvöldið og borða góðan mat að hætti pabba.

Ég er búinn að vera frekar mikið á fullu seinastu daga, meira en nóg að gera niður í Hugsmiðju, æfingarnar á fullu fyrir seinasta mótið og þar að auki hef ég verið að vinna með Jón Karli að forrita Access/VB lausn fyrir afa hans.

kl. 9:16 | Athugasemd (1)

20.8.2006 : Matur, hlaup og tónlist

Kíkti til Hafdísar á fimmtudaginn í mat, ásamt vel völdu liði. Nutum þess að borða góðan, mat, spjalla og slappa af. Hafdís var líka nokkuð sniðug og úthlutaði verkum á mann, þannig sá ég t.d um drykkjarföng og Sigurjón um eftirréttinn, þar sem drengurinn kom sérlega á óvart. Hann lumar á sér.

Bikarkeppnin um næstu helgi, seinasta mótið mitt og ég verð að viðurkenna að ég er orðinn ansi þreyttur, andlega og líkamlega. Langar bara að taka smá hvíld og fara svo á fullt að einbeita mér að næsta tímabili. Ein vika eftir, ein vika.

Merkilegt hvað Dani California, fyrsti singulinn af Stadium Arcadium frá Red Hot Chili Peppers er líkur Mary Jane's Last Dance eftir Tom Petty. Ætlaði að vera búinn að skrifa um þetta fyrir mörgum vikum, en eins og svo oft að þá gleymi ég oft einhverju sem ég ætlaði að pósta hingað.

Samanburður 1 - Samanburður 2



kl. 11:57 | Athugasemdir (3)

17.8.2006 : Svíðjóðarferðin

Þessi ferð var bara nokkuð góð, ég er sáttur. Sá fyrst hvað þetta var miklu stærra dæmi en ég gerði mér grein fyrir þegar ég var sáttur á flugvöllin á splúnkunýjum Volvo S80. Taskan barst heldur ekki til Gautaborgar, en ég þurfti ekkert að hugsa um það, heldur fór bara fólk í það fyrir mig að redda henni og 5 klst eftir að ég mætti var bankað upp á herbergið með töskuna mína - beint upp að dyrum.

Það að þetta Youth Forum væri miklu stærra, gilti náttúrlega báðar leiðir. Við vorum vöknuð um hálfátta, beint í morgunmat og út klukan 8 til að vera mætt á fyrirlestur klukkan 8:30. Þá tók við allskyns verkefnavinna, og umræður, annaðhvort opnar eða í fyrirframákveðnum hópum, svo klukkan hálfsex var hópferð á völlinn að horfa á EM.

Þetta var mjög áhugvert og margt sem maður lærði af hinum. Alls voru þetat 109 þáttakendur frá 37 löndum, og ég var mjög ánægður að sjá að ég væri ekki í herbergi með Íslendingunum. Miklu skemmtilegra að kynnast öðru fólki og raun og vera neyðast til þess. Ég var með einum Svíja, Armena og Litháa. Svíjinn talaði ágæta ensku, Armeninn ágæta, en Litháinn afar takmarkað. Fyrsta morguninn vakna ég og býð góða morgun.

Ég: "Good morning"
Giedruss : "Good morning" (lesist með rússahreim)
Ég: "So, how did you sleep? You slept well?"
Giedruss: "Yes I sleep! (lesist með rússahreim)

Það sem var náttúrlega skemmtilegast er að passinn minn gilti inn á völlinn og ekki nóg með það heldur í allar stúkurnar nema hjá Fréttamönnum og VIP. Sem þýddi að ég við sátum í íþróttamannastúkunni að horfa á. Ekki slæmt að horfa á spjótkast kvenna með Torskildsen eða hástökkið með Kluft. Það sama gilti um matsalinn. Við borðuðum í matsal íþróttamanna, sem var náttúrlega líka gaman.

Ég er samt þannig að það vantar alla svona dýrkun eða hvað á að kalla þetta, þannig að ég var voða lítið að kippa mér upp við þetta. Hvað þá að taka myndir eða biðja um eiginhandaráritun. Reyndar stóðst ég ekki mátið eftir fyrirlesturinn hjá Sergei Bubka að biðja um eiginhandaráritun.

Á seinasta deginum fór ég svo til Volvo, algjört stuð. Vorum sóttir af Volvo og þegar við mættum á staðinn var þar stórt bílastæði fullt af nýjustu bílunum og ökumaður sem sagði einfaldlega "you can testdrive any of these". Þannig að é glét mig hafa það að hoppa upp í eldrauðan Volva S60 Racing, sem voru 300 hestöfl, 5,4 sek upp í 100 km/klst. Takk fyrir. Algjör snilld, prófaði svo líka nýja convertible bílinn þeirra C70. En að lokum fórum við svo á testbrautina að keyra á milli keilna, æfa neyðarhemlum, bremsa og slide-a á heimatilbúni svelli og ég veit ekki hvað. Algjört stuð fyrir gaur eins og mig, sem finnst rússibanar of hægir ekki nógu góðir.

 



kl. 13:03 | Athugasemdir (2)

4.8.2006 : Gautaborg

Fer til Gautaborgar í fyrramálið. Taka þátt í European Youth Forum sem er haldið á vegum Evrópska frjálsíþróttasambandsins í kringum Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum.

Þetta er svona ráðstefna um frjálsar, og maður tekur þátt í einhverjum umræðuhópum. Án efa forvitnilegt að sjá hvernig þetta verður.

Ráðstefnunni lýkur á fimmtudeginum, en ég og Tóta ætlum að vera aðeins lengur, keyptum okkur miða á besta stað á EM, og ætlum að njóta þess að horfa á besta íþróttafólk evrópu etja kappi.

Uppfært 13:27

Í gær bauð ég Hafdísi, Sveinbirni, Bjögga og Krístinu heim. Alltaf þegar við hittumst, er það heima hjá Hafdísi eða Bjögga. Nú var ég með húsið og ákvað að bjóða heim, í staðinn fyrir að vera alltaf að níðast á gestrisninni hjá þeim.

Ég ákvað líka, þar sem ég býð svo sjaldan, að gera þetta aðeins stærra og útbjó þriggjar éttamáltíð handa okku. Reyndar ruglaðist ég smá á uppskriftinni á súkkulaði soufflé-inu, en það reddaðist samt ágætlega.

Útaf þessari matseld varð eitthvað minni um spil en venjulega en þeim mun meira af áti. Þetta var heljarinnar gott kvöld.

kl. 11:42 | Athugasemdir (3)

2.8.2006 : Sólin

Það er tvennskonar þörf sem kemur upp hjá mér í svona veðri. Þegar það er svona heitt og sólin skín svona rosalega fæ ég bara alveg hrikalega hreyfiþörf. Mig langar bara út í góða veðrið og æfa; taka góðan skokktúr, eða keyra á hardcore interval, kíkja jafnvel í körfubolta eða fótbolta, og enda svo á að spóna sig í sundlaugunum.

Hin þörfin sem ég finn fyrri er ís, mig langar bara ótrúlega mikið í ís, ég sé fyrir mér bragðarefi og ís í formi bara í hyllingum. Mmmm.

Í gær lét bæði eftir mér, tók langt hádegishlé og tók góða æfingu í góða veðrinu, fékk mér ís og eftir vinnu fór ég svo í körfubolta með félögunum og enduðum í sundi.

Ætluðum svo að vera voðalega sniðugir og setjast á Thorvaldsen og fá okkur að borða niður á Austurvelli og njóta góða veðursins. Það gekk samt ekki alveg eftir, því við vorum greinilega ekki þeir einu sem fengu þessu hugdettu. Við fengum hvergi borð á Thorvaldsen og ætluðum því að kíkja í garðinn á Hressó, en þar voru þeir hættir að bjóða upp á mat, þar sem biðin var kominn upp í 90 min. Við enduðum því bara á Stylenum. Ekki alveg það sem við sóttumst eftir, en það gerði það sama, fyllti hungraðan maga.



kl. 10:15 | Athugasemd (1)

31.7.2006 : Helgin

Helgin var bara hin ágætasta. Hljóp 400m á laugardeginum og er ekkert súper sáttur með það, en heldur ekkert svekktur. Svona lala frammistaða, veit að ég hleyp hraðar en 51,65 sek. Var bara of stífur og að streða of mikið í staðinn fyrir að reyna hlaupa þetta almennilega og leyfa þessu að koma að sjálfu sér. Ég átti líka að hlaupa 4x100m en B-sveitin okkar datt út, því miður. Hefði gjarnan viljað hlaupa það. Boðhlaup eru bara alltof skemmtilegt.

Á sunnudeginum hljóp ég svo lokasprettinn fyrir A-sveit breiðabliks í 4x400m. Við vissum fyrirfram að það yrði hörku baráttu milli Breiðabliks og FH það reyndist einmitt vera staðreyndin. Ég var í hörku baráttu við Bjögga á lokasprettinum alveg fram á seinustu metrana, en Bjögginn klikkar ekki og í gær var engin undantekning. Og því fór það þannig að ég þurfti að láta mér annað sætið duga en er nokkuð sáttur við splittið sem ég fékk 50.5 sek.

Um kvöldið hélt svo Helga Kristín upp á afmælið sitt í einni mest grand afmælisveislu sem sögur fara af. Ég er ennþá saddur.



kl. 9:30 | Athugasemdir (2)

28.7.2006 : MÍ og heimboð

Meistaramót Íslands fer fram núna um helgina á Laugardalsvelli og þar hleyp ég 400m og 4x100m á Laugardeginum og svo 4x400m á seinni degi. Fyrir villta aðdáendur mína að þá hleyp ég klukkan 15:15 á laugardeginum.  Mæli með því.

Í kvöld ætlum við blikarnir að hittast heima hjá mér og mynda smá stemmingu fyrir mótið sjálft. Hakkið liggur einmitt heima núna að marinerast og svo útbý úr því hamborgara. Nauðsynlegt að fá sér eðal-hammara fyrir mót.

Ég er að nýta tækifærið meðan hele familen er ekki heima og bjóða fólki heim. Það er nefnilega mjög erfitt að bjóða einhverjum heim þegar maður er hluti af sex manna fjölskyldu og því miður hef ég ekki efni á mínu eigin húsnæði eins og staðn er í dag.

Í gær mættu nefnilega til mín Robbi, Anna, Unnur og Óli, semsagt gamli blikahópurinn og á fimmtudaginn stefni ég á að bjóða spilahópnum ógurlega í spil og kræsingar. Ég er nefnilega glataði gaurinn sem á svo erfitt með að bjóða heim því í sex manna fjölskyldu er alltaf eitthvað að gerast og um að vera. Þessvegna er ég alltaf hoppandi heim til Hafdísar og Sveinbjörns og/eða Bjögga og Krístinar en nú verður breyting á ;)



kl. 15:52 | Athugasemd (1)

26.7.2006 : Tónlist & Italian Meatballs

Ég er einn heima nokkra daga. Ingibjörg fór að keppa í fótboltanum í Danmörku á laugardaginn og mamma fór með sem fararstjóri. Í morgun fór svo pabbi og Heiður austur á franska daga en þar er pabbi að fara spila, þar sem hann var endurútgefa Eglu diskinn. Já pabbi var heimsfrægur rokkari - gerði m.a lög með mönnum eins og Eríkika Hauks, Pálmi Gunnars og Pétri Kristjánssyni, og lenti m.a. á safnplötu með Björk. Já hann pabbi var sko heimsfrægur á austurlandi.

Hlynur fer á morgun einnig á franska daga á Fáskrúðsfirði með Telepathetics. Þeir eru núna á fullu að kynna plötuna, fengu umfjöllun í blaðinu, viðtöl á Rás 2, XFM, X-inu og spiluðu í Kastljósinu. Allt að gerast. Sjá gagnrýni á tonlist.is

Í kvöld ákvað ég því að taka mig til og elda mér góðan mat. Fyrir valinu urðu ítalskar kjötbollur, þetta er uppskriftin.

500 gr nautahakk´
2 egg
1/2 bolli rasp/brauðmolar
1/2 bolli permesan ostur
7 stk hvítlauksgeira
Majoran, Basil, Oregano, salt og pipar.
Hunts Italian Sausage Spaghetti Sauce
Barilla spaghetti

Blandið saman hakkinu við eggin, raspið/brauðmolana, parmesan ostinn og 6 hvítlauksgeira (nota hvítlaukspressu). Kryddið með Oregano, Majoran, basil, salti og pipari eftir smekk.

Hellið Olífuolíu á pönnuna og brúnið seinasta hvítlauksgeirann og hendið svo. Formið bollur út kjötdeiginu og steikið á pönnunni. Þá hentar að byrja sjóða pastað svo það verði "al dente". Þegar bollurnar eru fullsteiktar hellið þá yfir þær heillri dós af Hunt's Italian Sausage sósunni og látið malla í smá stund.

Stráið örlítið af parmesan osti, þegar borið er fram.



kl. 23:24 | Athugasemdir (3)

24.7.2006 : Sund, þulur og kubbur

Ég er búinn búinn að vera duglegur að nýta góða veðrið og fara í sund um leið og einhver sólargeisli lætur sjá sig. Kíkti í Árbæjarlaugina fyrir nokkru og viti menn, hver labbar inn nema Forseti vorrar þjóðar Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit.

Ég dýrka hvað Ísland er lítið, hvergi annarstaðar í heiminum sérðu forseta íslands í Speedo á almannafæri. Þetta finnst mér svo frábært, það verður samt að viðurkennast að Óli er ekki sá öflugasti í gufunni en það er aftur á móti Dorrit.

Um helgina var svo Meistaramót Íslands 15-22 ára. Þar sem maður er of gamall til að keppa var ég plataður til að starfa við mótið. Fyrri daginn hjálpaði ég við kringluna en á seinni degi var ég settur í hlutverk þular. Ég held að það hafi bara gengið ágætlega hjá mér. Ég hafði allavega mjög gaman af þessu. En þótt það sé gaman að tala í hátalarakerfið er miklu skemmtilegra að vera sá sem talað er um í hátalakerfinu þannig að ég ætla að halda mig þeim megin við brautina, allavega svona til að byrja með.

Í gær fór ég svo með Hafdísi, Sveinbirni, Kristínu, Bjögga og Ásgeiri í Kubb. Það er útileikur sem víkingar notuðu víst til þess að skemmta og leika sér þegar þeir voru of uppteknir við að ræna tilvonandi eiginkonum og brenna niður hús.



kl. 12:46 | Athugasemdir (4)

20.7.2006 : Afmælisdagurinn

Í gær varð ég 23 ára. Eftir að stelpurnar komu í heiminn hefur það þróast þannig að þegar eitthvað af okkur systkinunum á afmæli bakar mamma alltaf köku og pabbi hitar kakó. Þau koma svo inn í herbergi og vekja mann með afmælissöng, maður fær köku og kakó upp í rúm. Þau hafa svo gaman af einhverjum svona hlutum. Deginum áður hafði mamma spurt mig hvað ég vildi, en ég svaraði bara "alveg sama, suprise me"

Þar sem ég vaknaði aftur á móti fyrstur til að taka æfingu og var kominn út á undan öllum öðrum fékk ég ekkert upp í rúm. Þegar ég kom hinsvegar heim eftir æfinguna sá ég skál af niðurbrytjuðum ávöxtum upp á borði og við hliðina á því afmælispakka sem reyndist vera einhver svona rafmagnsfitumælir. Á pakkanum var svo lítill miði "Elsku Bergur til hamingju með daginn - segðu svo að þetta sé ekki suprise".

Ég útbjó mér nú samt tveggja hæða, heavy súkkulaðiköku sem ég fór með niður í vinnu ásamt boxi af ís. Svona til að bjóða vinnufélögunum upp á eitthvað í tilefni dagsins.

Í hádeginu fannst mér alltof gott veður til að vera að hanga inn fyrir framan tölvu, þannig að ég tók mér langt hádegishlé og tók létta æfingu.

Eftir vinnu var náttúrlega frjálsíþróttaæfing hjá Jón Sævari þannig að þennan daginn tók ég þrjár æfingar. Til þess að passa að ég yrði nú ekki vannærður fór ég heim eftir æfingu og borðaði yfir mig af afmælismatnum sem pabbi hafði útbúið og hómaði svo ís með snikkersósu,nóakroppi og m&m kurli eins og ég fengi borgað fyrir það. Til þess að vera alvög öruggur opnaði ég líka kassann af súkkulaði trufflunum sem ég átti.

Dagurinn var semsagt mjög góður nema að þegar ég vaknaði í morgun er ég með strengi dauðans í löppunum.



kl. 9:56 | Athugasemdir (7)

18.7.2006 : Bækur

Heiður systir kom frá Californíu núna á miðvikudaginn. Ég var ekkert smá glaður að sjá hana, ég hafði ekki séð hana síðan 11. maí þegar ég fór út. Þannig að það var liðið töluvert síðan við sáum hvort annað.

Hún kom heim með tvær bækur handa mér og Hlyni. Eragon og Eldest. Ég ákvað því að geyma Belladonna skjalið sem ég byrjaði á að lesa á leiðinni út til Kristínar, en meikaði bara ekki meira þegar ég var um hálfnaður. Þessi bók er ekkert lík Da Vinci lyklinum eins og hún er auglýst. Miklu hægari, alveg svona 100 bls of löng að mínu mati.

Kláraði aftur á móti Eragon (500 bls) á 3 dögum og skemmti mér ágætlega. Þetta er svona blanda af Star Wars og Lord of the Rings. Svosem ekkert nýtt þannig séð, en samt frekar góð bók.

í framhaldi ákvað ég svo að skoða hvað maður væri búinn að lesa margar bækur af Topp 100 bókum sem hafa verið skrifaðar. Auðvitað eru listarnir jafn misjafnir og þeir eru margir, en hér eru nokkrar bækur sem birtust á þessum listum sem ég er búinn að lesa

  • Njals Saga
  • Brave New World
  • MacBeth
  • Harry Potter and the Philosopher' Stone
  • Of Men and Mice
  • Matilda

Nokkrar bækur sem ég væri til í að lesa

  • Dune
  • Wind in the Willows
  • Hitchiker's Guide to the Galaxy
  • The Pillars Of The Earth
  • One Flew Over Over The Cuckoo's Nest
  • The Hunt for Red October
  • To Kill a Mockingbird
  • High Fidelity
  • Catch 22
kl. 13:56 | Athugasemdir (56)

14.7.2006 : Að sofa, eða sofa ekki

Já stundum skil ég ekki hvernig líkaminn funkerar hjá mér. Í nótt sofnaði rétt um tólf leytið, yfir bókarlestri. Klukkan 04:30 í nótt glaðvaknaði ég svo af engri sérstakri ástæðu. Hreinlega gat ekki farið aftur að sofa. Var því mættur niður í vinnu klukkan 05 og ég er búinn að komast að því að ég er miklu meira produktív á morgnana.

Ætli ég eigi samt ekki eftir að deyja fljótlega eftir hádegi.

Uppfærsla
Ég hef lent í mörgu skrítnu í vinnunni en ég held að vera tengja myndir og vinna við greinar sem heita "Big Breasts of Wests" eða "Screw my wife (harder) 4" sé með því fyndnara.

Fyrir kvikmyndaáhugamenn er líka vert að minnast á það að þriðja myndin af "Black up that white ass" eru nú loksins kominn og þar með líkur þessari merkilegu trílogíu.

kl. 6:59 | Athugasemd (1)

11.7.2006 : Komin heim

Þá er maður kominn heim og ég er bara hress og kátur. Fór inn á mótið með 51,37 sek sem var 44. best tíminn af 59 keppendum. (ath margir ljúga um tímann sinn til að komast í betri riðil)

Ég hljóp á annari braut í 5 riðli af 6. Byrjaði eins og alltaf frekar rólega miðað við flesta en þegar ég kem inn í 200m beygjuna er ég við það ná 3. brautinni. Keyri vel inn í beygjuna og pikka þá upp hvern á eftir öðrum og kem annar út úr beygjunni á eftir Aladdin sem er 49 sek maður. Reyndi að keyra í hann, en var ekki ekki nógu harður. Hélt þó hinum bakvið mig en vantaði herslu muninn að ná forrustunni. Kom annar í mark á 50,71 sem er bæting um 0,66 sek og lenti í 27. sæti yfir allt. Mjög ánægður en finnst ég geta meira, eins og manni líður eiginlega alltaf eftir hlaup.



kl. 10:29 | Athugasemdir (8)

6.7.2006 : Farinn út

Á morgun ætla ég að skella mér út til Gautaborgar með Tobbanum að keppa á Gautaborgarleikunum, þar sem ég mun keppa í 400 m hlaupi.

Legg af stað um hádegi á fimmtudeginum og verð mættur aftur heim um hádegi á mánudeginum. Mjög stutt og þægileg keppnisferð.

Æfingar hafa gengið vel og mótin hérna heima svosem vel líka ef maður horfir fram hjá gölluðum tímatökum, eða roki og rigningu.



kl. 2:00 | Skrifa athugasemd

2.7.2006 : Rifna úr stolti

Ég er svo að rifna úr stolti yfir "mömmu gömlu". Hún er búin að vera æfa eins og professional íþróttamaður seinustu vikurnar. Æfir lágmark einu sinni á dag og jafnvel tvisvar á dag stundum. Án gríns.

Við fórum út að skokka áðan og ég hef bara aldrei séð jafn mikla hörku. Þegar við erum búin að skokka smá spöl heyrist í henni "Ég kemst alveg hraðar, ef þú mátt fara hraðar". Hún viss nefnilega að þetta átti að vera easy-jogging hjá mér. Þegar ég sagði svo að ég gæti alveg farið hraðar æddi hún bara af stað á heljarinnár tempó.

Hlupum í Elliðarskóginum og þar komu stígar þar sem við þurftum að hlaupa í röð. Eftir smá spöl þar heyri ég svo bara "kemstu ekki hraðar? Ég er kominn á hvíldarpúlsinn hérna".

Já ég er ekki frá því að 51 ára gömul mamma mín hafi verið trash-talka mig á á æfingu.



kl. 17:01 | Athugasemd (1)

30.6.2006 : Helgin

Held ég taki tjill pakkann á þetta um helgina. Langar bara að slappa af og njóta helgarinnar á meðan flestir æða úr bænum í einhverju stressi að reyna drífa sig að setja upp tjaldið svo það geti hafið drykkjuna.

Í kvöld er 25 ára afmæli hjá Gróu og ég ætla að kíkja í það. Það verður ekki haldið í Eskihlíðinni heldur í skúrnum. Mér skilst að menn hafi drepið til að komast þangað í pool-borðið, pílukastið og allt það.

Laugardagurinn verður sjálfsagt bara hardcore interval um morguninn og svo tjill það sem eftir er. Bíó eða eða spóla um kvöldið, dunno. Kemur í ljós. Opinn fyrir öllu.

kl. 11:23 | Athugasemd (1)

29.6.2006 : Fat Camp

Ég er að pæla að skrá mig í fat camp eftir seinustu helgi. Camp Pennbrook virðist vera spennandi kostur en mottó-ið þeirra er "We're not a fat camp, we're weight loss camp".

Annars er það bara vinnan og hlaupin sem lífið gengur út á þessa dagana og reyndar er ég búinn að redda mér Season 2 af Scrubs frá Óskari frænda.

Maður dagsins er aftur á móti Hlynur Hallgrímsson. Hann er 21. árs gamall í dag. Þetta er nagli af gamla skólanum sem afþakka allar kökur og fékk sér Skyrfrauð á afmælisdaginn. Hann á líka lagið Last Song, sem situr í 14. sæti X-Dominos listans, ásamt hljómsveit sinni The Telepathetics og ætti að vera komið í spilun á allar helstu útvarpsstöðvar. Þetta er maðurinn sem segir Gilznegger að halda kjafti. Stelpur hann er á lausu.

Í kvöld ætla ég aftur á móti að prófa að negla á 200 m í laugardalnum.



kl. 16:19 | Athugasemdir (1121)

25.6.2006 : Fussball und partés

HM á fullu og maður fylgist náttúrlega ósjálfrátt með, öðruvísi er maður ekki samræðuhæfur. Á þriðjudaginn var Eldsmiðjumót Hugsmiðjunnar. Spiluðum tuðrubolta, kíktum í heitapottinu og fengum okkur svo pizzu og bjór yfir England - Svíþjóð. Ég hafði ekki fengið mér pizzu í háa herrans öld, við erum að tala um mánuði, febrúar eða eitthvað og það sama gilti um bjórinn held ég.

Merkilegt hvernig hlutirnar þróast. Þegar ég tók bitann af Eldsmiðju pizzunni hugsaði ég "sjitt hvað þetta er gott", þegar ég tók sopann af bjórnum hugsaði ég "hmm átti þetta ekki að vera betra?" og sleppti því bjórnum en hélt mig við pizzunni. Eldsmiðjan er bezt.

Í gær voru 6 veislur og partý á dagskrá. Fullbókaður dagur. Ég var að pæla hvort ég gæti samið við Smáralind að fá magnafslátt, gullkortið er rétt að kólna niður.

Byrjaði á að kíkja til Jón Karls sem var að útskrifast með 1. ágætis einkunn af stærðfræðibraut 9,1 takk fyrir. Stoppaði þar dágóða stund og gæddi mér á taðgrilluðu lambi áður en ég hoppaði svo yfir Gísla áður en ég fór heim til Trausta í kökurnar. Kíkti svo til Sigurjóns í smástund áður en ég fór út í fjörðinn í afmælisveisluna hjá hjónakornunum Silju og Vigni, en endaði svo aftur hjá Sigurjóni. Þegar allir voru svo að hugsa sér ti hreyfingar skutlaði ég fólkinni niður í bæ og skutlaði öðrum heim. Þvílík dagskrá mar! ;)



kl. 13:22 | Athugasemdir (7)

21.6.2006 : Toppnum náð

Núna hef ég náð toppnum á mínum vinnuferli. Þetta er ástæðan fyrir því að ég fór út í upplýsingageirann! Nýjasta verkefnið mitt niður í vinnu er að vefa og setja upp Bleikt og Blátt vefinn.

kl. 9:23 | Athugasemdir (2)

18.6.2006 : I hate my body

Nýlega uppgvötaði ég helvíti skemmtilega þætti sem heita Scrubs. Klippti smá brot úr einum þætti og datt í hug að deila þessu með ykkur. Ætli það sé eitthvað til í þessu?

I hate my body



kl. 13:50 | Athugasemdir (7)

14.6.2006 : Tónlist

Verð að byrja að hrósa Missy Elliot fyrir nýja lagið sitt "We Run This" þar sem hún öskrar í byrjun ""My style can't be duplicated or recycled". Sem er náttúrlega kaldhæðni dauðans þar sem lagið er ekkert annað en 80's rapp mixið Apace með Sugarhill Gang með Missy hrópandi yfir "We Run This". Það er meira að segja ekki einu sinni original lag því þetta er instrumental stef eftir the Shadows.

En þetta skiptir auðvitað engu máli. Það sem skiptir máli er að seinustu vikur og mánuði hef ég verið að brainstorma endalaust yfir gömlum og góðum lögum. Í einu af mörgum msn samtölum okkar Hafdísar kom hún með þá hugmynd að það væri kannski gaman að halda partý þar sem gömul lög væru bara leyfð. Þ.e.a.s flashback lög dauðans, 90's poppið út í eitt. Lög sem gera ekkert annað en rifja upp svakalegustu minningar eins og "viltu byrja með mér?". Sjæse good times.

Ég fór náttúrlega alveg á fullt, þar sem ég hef gaman að sökkva mér í tilgangslausa hluti og er núna kominn með um það bil 45 lög frá grunnskólaárunum. Sum lifa betur en önnur en öll eiga þau samalegt að ég hugsa bara um árin á Bifröst, heimavistina á Varmalandsskóla og öll samstarfsböllinn milli sveitaskólana á vesturlandinu.

Hlutir eins þegar Gústi kennari náði mér upp á kvennavist og setti mig í svörtu bókina. Þegar Aron sló í gegn með klæða sig sem kvennmaður með stærstu blöðrur í geimi á grímuballi. Þegar Fróði og Stebbi voru sendir til skólastjórans fyrir að vera búinn að hengja upp stelpu úr Hustler upp í herberginu sínu.

Jafnvel bara litlir hlutir eins og spila fótbolta í hverju einasta matarhlé og körfu hvert einasta kvöld með strákunum á Varmalandi eða spila pool niður í kjallara.

Allur tíminn sem maður eyddi í að hanga heima hjá Jónasi og gera ekki neitt nema að tala um hvað við ætluðum að gera og öll stóru plönin og alla diskana sem stórir bróðir hans kom með frá Bandaríkjunum. Öll kvöldin sem fóru í að rölta og hanga með Hlíf, Hildi, Rakeli, Jónasi og Óla.

kl. 16:47 | Athugasemdir (2)

14.6.2006 : Mótið í gær

Já það gekk ekki vel á mótinu í gær, jafnaði reyndar minn besta tíma í 100m - 12,17 sek sem er samt skammarlegt. Ég er svo glataður að starta og einhvern veginn tekst mér líka alltaf að fikrast fótur og dett hálfpartinn áfram úr startinu. Ekki gekk það betur í 200m þegar ég hljóp á 24,7 ég meina HALLÓ. Mér leið eins og ömmu [(c) Björgvin Víkingsson]. Ég hef verið að hlaupa hraðar á flatbotna skóm á æfingum en þetta.

Ég ákvað því bara að leita huggunar í kökunum hennar ömmu og leið að sjálfsögðu aðeins betur.

Mér finnst vera miklu meira inn í mér en ég virðist ná út. Þarf bara að halda áfram að keppa og finna mig betur og þá hlýtur þetta að koma. Ég veit að ég er ekki ná því úr mér sem ég get, þarf bara að hitta á það og þá er þetta komið. Mér finnst ég allavega vera í mínu besta formi.

...en kannski er ég bara ruglaður.

Svo fæ ég líka nýja gaddaskó á þriðjudaginn næsta. Ég á eina sem passa en gaddaplatan er orðinn alvarlega laus og hengur neðan úr botninum, rétt svo tollir á. Hinir eru svona 1,5 númeri of stórir og því alveg glatað að hlaupa í þeim, næ ekki að hlaupa vel og beita mér rétt.

Nike Monster Fly   Zoom Superfly G5

kl. 1:01 | Athugasemdir (2)

12.6.2006 : Fréttir seinustu daga

Jæja þá er maður kominn á rétt ról og allt byrjað að ganga sinn vanagang. Er byrjaður að vinna hjá Hugsmiðjunni eins og seinustu sumur og er þess á milli að æfa og keppa.

Á föstudeginum fór ég aftur á móti með Robba heim til Daða þar sem við grilluðum og tókum í eitt spil Catan. Daði reddaði húsnæðinu, ég mætti með hamborgarana og Robbi var yfirmaður efirrétta.

Daði heimtaði að ég byggi til hamborgarana eins og ég vanur, en þá tek ég hakk, mauka það saman við allskyns hráefni, sósur og krydd og læt marinerast áður en ég forma úr því hamborgararklatta sem svo er skellt á grillið. Útkoman að þessu sinni var bara nokkuð góð.

Á laugardeginum fór ég svo með Jón Karli og Gísla upp í bústað til Sverris ásamt Trausta og Guðrúnu. Þar nutum við hreina loftsins, grilluðum, slöppuðum af í pottinum og skiptumst á að hoppa inn í sauna og láta svo kalt loftið kæla okkur aftur niður. Svona á þetta að vera! Held samt að fólk sé eitthvað að eldast eða þessi hópur að róast því í staðinn fyrir að klára ginflöskuna og Tópas skotin sat fólk og borðaði osta og vínber. Eitthvað var fólk nú líka orðið þreytt og var komið upp í rúm alveg óvenju snemma, nema að sjálfsögðu Jón Karl og þá gat ég ekki annað en setið honum til samlætis með hann sötraði á rauðvíninu.

Á leiðinni heim stoppuðum við á Selfossi  og skelltum okkur í sund og svo á Hróa Hött. Þetta er einhver svona blanda sem maður verður að framkvæma þegar maður er á Selfossi.  Ég missti því miður að sjómannakaffi hjá Ömmu, en afi heitinn var sjómaður og útgerðamaður. Amma klikkar samt að sjálfsögðu ekki og útbjó því fyrir mig "nesti" sem mamma kom með heim-  Mmmm kökur frá ömmu. Stefni á að kíkja í heimsókn til hennar í dag.

En engar kökur samt, því á morgun er ég svo að fara keppa á Powerademóti FH þar sem ég ætla að hlaupa 100m og 200m.

kl. 10:52 | Athugasemdir (2)

8.6.2006 : Ruglið heldur áfram

Úff svefnruglið heldur áfram og meira rugl líka.

Ég keypti í gær og hljóp glatað 100 m hlaup þar sem ég beinlínis hrasaði úr startinu og hljóp svo geggjað hægt. Endaði á 12.29 sek. Hehe VEIT að ég er hraðari en það. Ef ekki fer ég að gráta og borða bragðarref það sem eftir er sumars.

Hljóp svo bara hreint ágætis 400 m hlaup. Fyrstu 300 m voru virkilega vel hlaupnir að mínu mati, rúllaði vel og afslappað og stílinn virkilega góður. Næstu 50 metrarnir voru svo alveg ágætir en svo eftir það fór þetta þetta bara línulega niður á við og seinustu 15 m voru rugl. Ég hljóp basically eins og hermenn Hitlers löbbuðu, ég gat ekki beygt hnéð. Ég var samt sáttur að fólk var að koma upp að mér eftir hlaupið og hrósa mér fyrir hversu vel þetta var hlaupið (fyrir utan seinustu metrana). Framkvæmdastjóra FRÍ, Egill Eiðsson a.ka. Unglingurinn fannst aftur á móti ég hafa verið að lyfta á vitlausum stöðum og spurði hvort ég ætlaði að hlaupa á höndunum 400 m í stað þess að nota fæturnar.

Ég var að springa úr hlátri samt á vellinum, því að seinustu daga hefur Tobbi verið að stríða mér með setningum eins og "kemur sá köttaði", "lemmér að sá sixarann" og heilsar mér með "massaður" í staðinn fyrir "blessaður" og fleiri þannig skot. Veit ekki alveg hvaðan hann hefur þetta því hann hefur ekkert séð mig eftir að ég kom heim og það vantar held ég nokkur skref upp á komast í hóp þeirra köttaðra, en þar er Kári Steinn formaður.

En á mótinu í dag voru fleiri byrjaðir á þessu, Kári kom upp að mér og sagði að stelpurnar væru að tala um hvað ég væri orðinn skorinn og svo var toppnum náð þegar Martha Ernst kom upp að mér upp úr þurru og byrja á þessu líka. Hehe helvítis rugl. Tobbi alveg búinn að tapa sér.

Eftir mótið fórum við heim til Magga í pottinn. Mjög næs og ég var kominn upp í rúm klukkan 01 og svaf eins ungabarn...svona 3 tíma. Þá bara var ég glaðvakandi, ekki séns að sofna og með svona fíling í löppunum og líkamanum eins og ég þyrfti að hreyfa mig. Löppinn var alltaf að hreyfast og kippast til og ég var að verða brjálaður. Hef bara einu sinnið fundið svona að ég gat ekki verið kyrr og það var þegar ég overdoze-aði af súkkulaðihúðuðum espresso baunum.

Þannig að ég fór út og tók mína morgunæfingu klukkan 04:30, heim í sturtu, morgunmat og mættur niður í vinnu klukkan 06. Held að einhversstaðar á bilinu 11-14 eigi ég eftir að detta niður.



kl. 7:11 | Athugasemdir (5)

6.6.2006 : Kominn til Íslands og svefninn í rugli

Og búinn að panta mér far aftur út....nei ok ekki alveg, en ég væri til í það. Þetta íslenska veður er ekki alveg að gera sig. Ég gæti sko alveg vanist að leiðinlegu dagarnir væru 18° og skýjað eins og úti

Svefninn er í algjöri rugli hjá mér. Á laugardaginn vaknaði ég klukkan 08 og tók æfingu. Dagurinn fór svo í að versla og redda hlutum og ég gat ekki byrjað að pakka fyrr en mjög seint um kvöldiðþ Ég náði því eiginlega engum svefn áður en við fórum út á flugvöll klukkan 05 í fyrramálið. Flugið var svo klukkan 07 til Baltimore og á leiðinni tapaði ég 3 klst. Tók svo næturflug frá Baltimore klukkan 09 um kvöldið og lenti heima klukkan 06:30 daginn eftir og tapaði á leiðinni 4 klukkustundum. Tæknilega var ég því vakandi frá því klukkan 08 á laugardagsmorgni til 10:00 á mánudagsmorgni. Þótt auðvitað hafi ég eitthvað dottað á leiðinni að þá var það ekki mikið og aðallega því líkaminn slökkti á sér en vaknaði jafnóðum þegar mig var byrjað að verkja í hálsinn eða einhversstaðar annarsstaðar.

Vaknaði einmitt í morgun og hugsaði bara hvað ég væri búinn að sofa út. Það var algjör þögn í húsinu og sæmilega bjart úti þannig að ég gerði ráð fyrir að klukkan væri svona um eitt eða tvö leytið og ég hafði náð að sofa vel út. Þvert á móti ég fór fram og klukkan var 05 um morguninn.

Ætla að pína mig að vaka fram á kvöld og sofna þá snemma, reyna rétta mig af sem fyrst.

Byrja að vinna á morgun og sömuleiðis keppi ég um kvöldið í 100m og 400m.



kl. 16:33 | Skrifa athugasemd

3.6.2006 : Kominn til Berkeley

Þá er ég kominn Jónasar í Berkeley. Mætti hingað á þriðjudagskvöldinu og er búinn að hafa það mjög fínt. Jónas tók mig um campusinn daginn eftir og sýndi mér um og þetta er aldeilis flott. Er svo bara að æfa á vellinum hjá Cal Bears og klára mína þriðju æfingaviku hérna.

Á miðvikudagskvöldinu fórum við til foreldra Kat en þau eru afar vel stæð og búa í ríkamannahverfinu. Slöppuðum af og skelltum okkur m.a. í heita pottinn undir stjörnubjörtinum himinum. Gistum svo þarna eina nótt, og mölluðum okkur scrambled eggs í morgunmat áður en við fórum aftur til Berkeley.

Í dag fór ég svo ég The Great Mall of Bay Area þar sem eru bara factory og outlet búðir frá helstu verslununum sem maður finnur í USA. Merkjavörur á mjög hagstæðu verði.

Á morgun ætla ég að reyna taka æfinguna snemma og fara svo til San Francisco og kíkja meðal annars í Niketown og skreppa svo aftur í The Great Mall og klára versla.´

Á sunnudagskvöldinu flýg ég svo frá BWI til Keflavíkur og verð lentur um sex leytið á mánudagsmorgni. Ég á reyndar eftir að pantað flugið frá Cal til Washington.



kl. 6:01 | Athugasemdir (3)

30.5.2006 : Æfingar og sólböð

Krístn er orðin algjör surfer chick. Fór eldsnemma á ströndina í morgun til að ná öldunum. Ég komst því miður ekki með þar sem ég þurfti að taka morgunæfinguna mína en um leið og hún var frá lá ég í sólbaði heima hjá stelpunum, þótt enginn væri reyndar heima en þær voru búnir að bjóða mér að koma þangað hvenær sem ég vildi. Húsið væri alltaf opið. Mandy brá aftur á móti pínu þegar hún kom heim og sá einhvern hálfnakinn strák liggja út i í garðinum hjá sér. Kristín og Kirsten komu svo þegar líða fór á daginn. Ótrúlega þægilegt að liggja út í sólinni og um leið og það verður of heitt þá hoppar maður bara út í laugina. Ég er því búinn að ná upp ágætis tani í dag.

Á morgun ætlum við Kristín að fara í Magic Mountain og skemmta okkur í rússibönunum. Vona að stelpurnar verði ekki brjálaðar á mér því ég er eins og lítill krakki þegar það kemur að rússibönum. Ég er svo mikill spennufíkill að ég hreinlega dýrka allt sem fer hratt og er jafnvel hættulegt, þótt rússibanar teljist nú reyndar ekki hættulegir.

Um kvöldið flýg ég svo frá LAX til Oakland til að heimsækja Jónas í Berkeley. Þannig að þetta verður heljarinnar dagur á morgun, nú þarf ég aftur á móti að fara pakka því ég eyddi öllum deginum í æfingar og sólböð.

kl. 5:13 | Athugasemd (1)

29.5.2006 : Jimmy Iceland

Hef haft ansi mörg nickname hérna. Fólk er ekki alveg að höndla að segja Bergur og hvað þá Bergur Hallgrímsson. Fyrst datt þeim í hug að kalla mig B en gallinn er að Björgvin Víkingsson lenti náttúrlega í sömu vandræðum og ég og því fékk hann nikkið B. Kristín er frekar auðvelt því það verður bara Christine. Til þess að rugla ekki saman mér og Bjögga fékk ég nikkið B2.

Í dag keppti ég á móti hérna en þau náðu ekki nafninu mínu alveg. Þegar ég er svo að skoða skráningarnar þá kemur aðstoðarþjálfarinn upp að mér og segir að hún hafi ekki fengið SMS sem Kristín sendi henni með nafninu og tímunum og því var ég skráður inn á þetta mót sem Jimmy Icleand.

Þjálfurunum fannst það frekar fyndið og báðust endalaust afsökunar á þessu en mér fannst það bara frekar fyndið að vera kallaður Jimmy Iceland, það hefur ákveðinn hljóm og töffleika ;)

Annars spjallaði ég við strákinn sem vann hlaupið á 47.xx. Ég hef stundum rekist á hann þegar ég er að æfa á Patrick Henry vellinum. Kemur í ljós að þeir eru nokkrir strákar sem er að æfa saman í einhverjum hóp þarna og buðu mér semsagt að æfa með þeim. Hann ætlaði að láta mig fá símanúmerið svo ég gæti verið í sambandi við þá en ég þurfti því miður að segja að ég væri að fara aftur til Íslands eftir nokkra daga. Eins svekkjandi og það var. Vá hvað það væri gaman að komast í svona hóp.

Nánar um hlaupið sjálft í æfingadagbókinni

kl. 0:36 | Skrifa athugasemd

28.5.2006 : O.C shoppin surfin'

Fór semsagt upp til Laguna Beach að heimsækja Birgittu frænku og fjölskyldu. Wally kallinn hennar ferðast um öll Bandaríkin að hanna skateparka, helvíti kúl og er eiginlega bara með þeim fremstu í heiminum sem gera þetta. Mæli með að þið tekkið á síðunni.

Ferðin var frekar töff, ég var snjall og kom við í BT þeirra bandaríkjamanna sem heitir Best Buy og keypti mér iTrip fyrir nanó-inn minn þannig að ég gat blastað öllum lögunum líka.

Fór hraðbrautina á leiðinni til þeirra enda lagði ég aðeins af stað í seinna lagi útaf æfingum og þessháttar. Þau sýndu mér bæinn og ég skoðaði ströndina sem flestir íslendingar þekkja núna úr the O.C. Gisti hjá þeim og keyrði svo aftur heim daginn eftir.

Þá fór ég reyndar Paciific Coast Highway og Highway 101 sem eru semsagt vegirnir meðfram allri strandlengjunni og það var frekar flott og skemmtilegri upplifun en að keyra á interstate-inu, þótt það hafi veirð óneitanlega gaman að keyra um á convertible bíl þar sem maður rétt snerti bensíngjöfina að þá öskraði bíllinn hreinlega velin "GRRRR" og æddi af stað.

Í dag fór ég svo á brimbretti með Krístinu og Kirsten. Bjöggi ef þú ert að lesa þetta, þá fékk ég blautbúninginn þinn lánaðan. Takk. Held samt að ég sé aðeins of stór í hann, helst til þröngur en það reddaðist alveg.

Að surfa-a er alveg fáránlega skemmtilegt, verst bara hvað ég er lélegur! Já ég sem tel mig vera hin ágætasta á snjóbretti og hef virkilega gaman var ekki alveg að ná tókunum á surfinu. Snýst allt um tímasetningu að hitta rétt á það og ná öldunni, og það var hreinlega ekki að ganga hjá mér. Sömuleiðis er smá tækni að koma sér frá maganum og upp á fæturnar. Mér tókst það í svona 2-3 sek og þá var ég dottinn með hausinn ofan í vatnið.

Já ég fór líka að versla smá í gær, reyndar fóru stelpurnar að versla og spurðu hvort ég nennti með. Þær höfðu smá áhyggjur af hvort ég væri að deyja úr leiðindum en þegar þær fundu mig var ég kominn með þrjá stóra innkaupapoka af fötum og skóm. Ég er nefnilega algjör sukker þegar það kemur að því að versla, get alveg tapað mér.

Arg stelpurnar eru að freista mín með súkkulaðibitum og nýbökuðum smákökum, en ég ætla ekki að láta undan, er að fara keppa á morgun!

kl. 3:57 | Athugasemdir (5)

24.5.2006 : That's life

Ef einhver getur toppað þetta vil ég endilega fá að heyra það

10:00 Vaknað og morgunmatur
11:00 Morgunæfing
12:30 Hádegismatur
13:00 Kíkt til Mandy og Monicu
13:10 Setið við sundlaugarbakkann hjá stelpunum
13:30 Legið í sólbaðið
14:10 Legið á vindsæng í sundlauginni
14:50 Legið á bakkanum við sundlaugina
16:30 Farið á Yogurt Express
18:00 Æfing
19:30 Kvöldmatur
20:00 Horft með öðru auganum á TV og hitt á tölvuna.
22:00 Farið að sofa

Já svo ætlaði ég bara að láta vita að ég er búinn að redda bílaleigubíl:

fordmustangconvertible

The Beatles - Good Day Sunshine

Þessu lagi var blastað við sundlaugabakkann og ég stefni að því að blasta því í bílnum á morgun.

kl. 21:41 | Athugasemdir (6)

22.5.2006 : Wild Animal Park

Á laugardaginn tók ég seinustu æfingu vikunnar, við mikinn létti. Gat alveg þegið smá hvíld. Kristín og vinkonur hennar ákváðu að fara niður í miðbæ San Diego að dilla rassinum á dansgólfinu um kvöldið en ég var bara alltof þreyttur til þess. Þótt ég hafði gjarnan viljað fara og hausinn sagði já, sögðu lappirnar nei.  Lét mér því duga að horfa á einn þátt af 24 og svo beint að sofa.

Á sunndeginum var 100% hvíld, þannig að stefnan var að fara í Six Flags skemmtigarðinn, en það var spáð rigningu í LA og að sitja í rússibana í rigningu hljómaði ekkert rosalega spennandi. Við fórum því San Diego's Wild Animal Park. En þar eru dýrin í sínu náttúrlega umhverfi og ótrúlega gaman að labba um og skoða. Frekar nett alltsamant, nema hvað að flest dýrin voru eitthvað löt eins og ljónin sem lágu bara og létin sólina sleikja sig. Það voru líka einhverjar breytingar í gangi og því var ekki hægt að sá blettatígana, það hefði verið magnað að sjá þá hlaupa, en þetta var samt ótrúlega gaman!

Fyrir áhugasama, þá læt ég inn allar æfingarnar inn í æfingadagbókina hérna hægra meginn jafnóðum, þannig að það er hægt að fylgjast nákvæmlega með.

kl. 19:15 | Athugasemd (1)

20.5.2006 : Próflokadjamm

Á miðvikudaginn var Kristín búin í prófunum og því var að sjálfsögðu haldið upp á það. Fórum út að borða á Outback og skáluðum vatni yfir kjúklingabringum. Svona er maður nú viltur hérna í æfingabúðunum, uss CRAAAZY. Reyndar var liðið hennar eitthvað að djamma í gær, en ég tók því rólega og var kominn upp í rúm klukkan tólf. Já þið heyrðuð rétt, fjöldin allur af köttuðum, tönnuðum frjálsíþróttastelpum  og ég heim að sofa. Veita þeir ekki einhver verðlaun fyrir svoleiðis??

Ég er samt alveg hissa hvað allt er flókið og þungt í vinnslu hjá þessum blessuðu könum. Skil það hreinlega ekki, þeir flækja einföldustu hluti.

Dæmi: Ég vissi ekkert heimilisfangið hjá Keith frænda þegar ég var að fljúga til D.C, þá var allt stopp, því ég má ekki ferðast til eða um Bandaríkinn nema að hafa fyrirfram ákveðinn samastað, sem ég verð að skrá niður og láta þá vita og fylla út allskyns paperwork. Svo má fartölvan mín ekki vera með öðrum handfarangri því það þarf að tékka hana sérstaklega, og því þurfti ég að rífa allt út meðan þeir tóku einhver sýni af henni.

Síðan pantaði ég einhver vítamín og supplement á vefnum en þá varð allt stopp því ég var með international kreditkort sem er skráð á íslenskt heimilisfang en að senda á bandarískt heimilisfang. Þeir vildu því að ég faxaði þeim kreditkortayfirlitið mitt eða einhvern official pappír þar sem fram kom kreditkortanúmerið mitt og heimilisfang til að staðfesta að þetta kort væri skráð á mig og heimilisfangið heima. Eg reddaði því bara með að opna  photosjopp og fake-aða og það svínvirkaði.

Svo er ég að reyna fá bílaleigubíl hérna, en þeir vilja ekki samþykkja ökuskirteinið mitt. Vildu að ég væri niður í Automobile Club of Southern California og léti þýða það, en þegar ég fór þangað kannaðist enginn við neitt, þannig að eftir mikið bras og læti fæ ég Ríkislögreglustjóra til þess að þýða kortið mitt heima og senda official staðfestingu frá þeim um ökuréttindi mín. Þannig að þá var ég kominn með það sem þau vildi, en það er samt ekki nóg.  Ég er búinn að vera í stanslausu sambandi við þessa blessuðu leigu, einhverjar skrifstofur hérna og FÍB og Ríkislögreglustjóra að reyna koma einhverju viti fyrir þessa blessuðu hamborgararassa.

Alveg ótrúlegt að þetta land skuli ennþá vera gangandi miðað hvað allt er flókið, þunglama og hægfara....en sólin er góð!

kl. 17:44 | Athugasemdir (5)

19.5.2006 : Búinn að eignast aðdáendahóp

Fyrst bera að nefna að ég er aðeins búinn að bæta fyrir hegðu mína. Ein stelpan hérna Bianca var að útskrifast í dag og öll fjölskyldan hennar var því að koma í húsið. Gallinn var að húsið var í algjöri messi, og þá meina ég messi. Þannig að ég hjálpaði henni eitthvað að taka til í húsinu og tók svo allan garðinn í gegn, þar fór heill ruslapoki bara í garðinn.

Annars eru stóru fréttirnir að ég er búinn að eignast aðdáendahóp hérna úti. Ég æfi stundum á Patrick Henry High School vellinum í staðinn fyrir SDSU vellinum og þar eru ég sko mitt fólk. Þegar ég mæti þangað á miðvikudagsmorguninn var enginn niður á velli, þannig að ég byrja að taka æfinguna mína en fljótlega sé ég að það er fólk að koma úr skólanum og niður á völlinn og sest í áhorfendastúkurnar og ég er einn á miðjum grasvellinum að hoppa.

Ég heyri allskyns öskur og læti en pæli ekkert í því og held að þetta séu bara almenn fíflalæti en heyri þá allt í einu "Come on blue shoed guy!", "You can do it" og fleiri hvatningarorð í svipuðum dúr. Já aðdáendahópurinn minn er hópur af 16-18 ára stelpum á gelgjunni. Og þannig voru þær alla æfinguna, öskruðu og hvöttu mig áfram og klöppuðu meira að segja eftir hverja hoppseríu hjá mér

Ég meina hvað er betra að æfa ber að ofan í sólinni í San Diego og láta stelpur rétt undir lögaldri öskra, klappa og hvetja mann áfram. Það verður ekki mikið betra held ég!

kl. 4:31 | Athugasemdir (3)

16.5.2006 : Strax búinn að brjóta af mér

Það tók ekki nema einn dag til þess að Kristín þyrfti að tala við mig um hegðun mína á heimilinu. ;)

Ég og mín frjálslegheit. Ég var búinn á æfingu og var að koma úr sturtunni. Ég klæði mig í nærbuxur og svo náttbuxur og fer svo fram og leggst á dýnuna mína frammi í stofu. Þannig að ég ligg þarna ber að ofan. Ég var auðvitað algjörlega búinn að gleyma að Bandaríkjamenn eru spéhræddasta fólk sem fyrirfinnst og ekki alveg eins frjálslyndir og Íslendingar þegar það kemur að svona hlutum.

Kristín var sem það góð að benda mér á þetta áður en allt færi í háaloft. Stelpurnar hérna eru semsagt alls ekki vanar að sjá stráka svona bera að ofan og það er bara litið á það sem taboo. Ég segi nú bara að þær voru heppnar að ég ákvað að klæða mig í náttbuxurnar ;)

kl. 18:46 | Athugasemdir (8)

15.5.2006 : Kominn til San Diego

Vuhú!! Kominn til San Diego. Mætti til Washington D.C á föstudagskvöldinu og eyddi helginni hjá Keith frænda og er svo nýmættur hérna til Kristínar.

Ég held samt að eftir þessa þrjá daga hjá Keith þurfi ég bara  þessar 3 vikur til að koma mér í formið sem ég var á fimmtudeginum þegar ég fór. Hann hóaði bara í alla vinina og það var kíkt út í næturlífið bæði föstudags og laugardagskvöldið og þessir kanar borða líka ekki hollasta matinn. Þannig að þessi helgi er búin að vera frekar slæm.

Ég fékk það líka staðfest að Bandaríkin eru genapollur feitra rassa. Um að gera að senda deCode þarna út og athuga hvað málið sé. Ég sá ekki EINA sæta stelpu þarna út í D.C hvorki um dag eða á kvöld, á pöbbunum eða klúbbunum. Ef ég sá einhverja sem var eittthvað nálægt því að vera andlitsfríð að þá var hún eins og risavaxin pera.

Á laugardeginum tók ég samt túrista pakkannní D.C. Hvíta húsið, þinghúsið, minnismerkin og allt það. Líka frekar gaman að félagi hans Keith vinnur hjá einum þingmanni þarna, þannig að ég fékk private túr um þinghúsið og kannski aðeins öðruvísi en þessa standard túra sem eru farnir. Fórum basically yfir alla borða sem stóð á "No Visitors, Staff only".  Þingmaðurinn var líka í NY um þessa helgi þannig að við fórum inn á skrifstofu og fífluðumst þar, tókum m.a. mynd af mér í sætinu hans og rúntuðum um á bílnum hans, sem þýddi að við máttum leggja hvar sem er ;)

En nú eru það semsagt bara æfingarnar sem eiga hug minn allann og ég stefni að því að skella þeim inn í æfingadagbókina hérna hægra meginn ef fólk hefur áhuga að tékka á því.

Tímamismunurinn er aðeins að fara með mig, basically mætti ég til D.C klukkan 20 á föstudagskvöldinu og tapaði um 4 klukkustundum sem ég náði aldrei að vinna upp því ég var alltaf dreginn út á kvöldin og vakinn á morgnana.  Svo er ég kominn til San Diego núna þar sem klukkan er 11:45 á meðan klukkan er 06:45. Ég veit því ekkert hvað snýr upp né niður og sé fram á að sofa frekar mikið út á morgun, þannig að morgunæfingin verður meira eins og hádegisæfing.

Ég trúi samt ekki að ég sé raunverlega hérna, fyrir nokkrum dögum var þetta allt saman bara dagsetning í tölvunni en nú er ég raunverlega að upplifa þetta. Of gott til að vera satt.



kl. 6:48 | Athugasemdir (6)

11.5.2006 : Cup Therapy - Cupping

Cupping

Fyrir þá sem ekki vita, er þetta semsagt bakið á mér. Já ég er með svona för upp alla hryggjasúluna.

Ég fór nefnilega til Sean nuddara í dag eftir nuddið bauð hann mér upp á Cup Therapy sem er ævaförn kínversk lækningleið í ætt við nálastungur. Þar sem sérstakri skál er komið fyrir á líkamanum og allt loft er tæmt úr henni, þá togast viðkomandi svæði upp og blóðið fer á fullt.

“Cupping brings fresh blood to the area, Gaeta says. “So it tends to improve circulation. It also helps open up the chest and benefit the lungs and can even benefit menstrual problems and digestive problems, too. Most commonly, it’s used for aches and pains of various types as well as respiratory problems, cough, wheezing, things like that.”
 - CBSNew.com Cupping takes the pain away

kl. 13:29 | Athugasemdir (87)

9.5.2006 : Að nálgast

Þar sem það er lítið annað að gerast hjá mér þessa dagana en lærdómur, æfingar og gera allt til fyrir utalandsferð, að þá ákvað ég bara að setja upp tékklista og haka jafnt og þétt við hann í staðinn fyrir að vera alltaf að blogga með nýjar fréttir.

Basically er planið þannig að ég fer í próf á morgun og svo á föstudaginn frá 09:00 - 12:00, og flýg svo út til Baltimore klukkan 16:30. Þannig að ég þarf að vera 95% tilbúinn þegar ég fer í seinasta prófið. þÞetta er semsagt á todo listanum mínum þessa dagana.

  • Læra fyrir prófin (seinasta próf)
  • Klára prófin (fös 12:00)
  • Athuga með vegabréf
  • Prenta út flugmiðana
  • Þvo allan óhreinan þvott (er að klára það)
  • Taka til og þrífa (er að vinna í því)
  • Fara til Rikka hnykkjara
  • Fara til Sean Nuddara
  • Fara til Stebba sjúkraþjálfara (fös 12:10)
  • Klipping
  • Fara með bílinn í hjólastillingu
  • Fara með bílin í smurningu og tune-up
  • Pakka niður í tösku
  • Láta laga úrið

Þannig að í stað þess að skrifa alltaf nýjar færslur mun þessi listi bara breytast.

kl. 12:18 | Athugasemd (1)

7.5.2006 : Megrunarlausi dagurinn

Í gær var víst megrunarlausi dagurinn. Ég tók honum að sjálfsögðu mjög hátíðlega. Þetta málefni er mér mjög hjartfólgið og ég vildi því sýna aukinn stuðning og tók meira að segja megrunarlausa helgi. ;)

Vá hvað það er gott að vakna á sunnudögum, við að pabbi kallar á morgunmat og maður mætir fram í beikon, egg, steiktar pylsur og fleira æðastíflandi góðgæti.

Nú er sól úti og ég er að reyna telja mér trú um að ég hafi alveg efni á að fara í sund í staðinn fyrir að læra massíft og gera allt til fyrir USA.  Held ég haldi mig samt inni og sýni smá skynsemi, nóg er allavega að gera.

Red Hot Chili Peppers - Californication.mp3

Uppfærsla:
Ég gafst upp og valdi útivistina og hreyfinguna í staðinn fyrir lærdóminn. Tók góðan hjólatúr með Robba. Skelltum okkur svo í sund í laugardalnum og hjóluðum svo aftur heim. Herlegheitin tóku frá klukkan 14:00 - 18:30. Gott move.

kl. 12:18 | Athugasemdir (2)

4.5.2006 : Dekk, lærdómur og formið

Ég er ennþá á negladekkjunum. Ástæðan er að ég fann ekki hjólbarðaverkstæði fyrr en í dag, sem selur dekkin sem eru á bílnum mínu. Framhjólin eru nefnilega komin á vírana. Það var nefnilega aðeins meira vesen að finna þessi dekk en ætla mætti því gaurinn sem átti bílinn á undan mér keypti þessi rosalegu 17" þýsk sérhönnuð racing dekk sem eru hönnuð fyrir keyrslu á 280 km/klst - 300 km/klst hraða og kosta um 18 þús kr. stykkið. Þessi dekk eiga eftir að nýtast mér gríðarlega, ætla prófa að fara spyrna á Miklubrautinni, maður er að heyra að það sé inni þessa dagana.

Annars er ég ekki búinn að vera nógu duglegur að læra seinustu daga, þarf að taka mig á, læra meira, betur og lengur.

Ég er nefnilega með hugann við æfingarnar sem ganga nefnilega ótrúlega vel. Ég er ekkert smá spenntur að komast út í sólina að æfa og vonandi keppa aðeins líka. Held að þetta verði mjög skemmtilegt sumar.

Kálfarnir eru búnir að haga sér furðuvel, enda hef ég bara hlaupið á flatbotna og ekki dirfst að fara á racera hvað þá gadda, nema nú fyrst á miðvikudaginn. Kálfarnir eru svona rétt að láta vita af sér í dag eftir góða æfingaviku og nokkur hopp og hraða spretti á göddum. En þá kemur undraolían mín vel að notum. Auk þess sem maður er duglegur að kæla og hita til skiptist. En sem stendur er stífleikinn innan velsæmismarka. Leyfi honum ekkert að fara lengra en það.

Þá er komið að enn öðru Californíu lagi. Flestir þekkja þennan kappa sem söngvarann sem söng Hallelujah úr Shrek, en hann á nokkur góð lög sjálfur, þetta er eitt af þeim.

Rufus Wainwright - Calfornia

kl. 21:34 | Athugasemdir (3)

2.5.2006 : Ógeðslegi gaurinn

Jamm það er ég. Eftir að vera búinn að lesa undir prófin nokkuð vel um morguninn ákvað ég að skella mér upp í háskólaræktina fljótlega eftir hádegi. Þá var rigning þannig að ég ákveð að fara frekar á brettið en að skokka úti. Byrja frekar rólega. Fljótlega eftir að ég er byrjaður kemu stelpa kemur inn og velur sér bretti beint við hliðina á mér, skiljanlega.

Þegar ég er búinn að hlaupa í um það bil 40 min og orðinn vel sveittur ákveð ég að setja allt á fullt. Svitinn heldur því áfram að leka niður og ekki minnkaði hann þegar sólin kom og skein beint inn og ég kominn á fulla ferð. Ég þurfti að hafa mig frekar mikið við á þessum hraða og því var ég byrjaður að anda frekar þungt, var orðinn þyrstur og ræskti mig því og án þess að setja hendina fyrir (enda á þannig ferð). Sömuleiðis er smá kvef að hrjá mig þannig að ég þurfti kannski að sjúga upp í nefið. Nú er svitaframleiðslan orðin þannig að ég er eins og nýkominn út úr sturtu. Ég get því ímyndað mér að þetta hefur allt saman litið mjög "villimannslega" út. Þannig held ég áfram í smá tíma, þegar ég tek eftir að stelpan slekkur á brettinu. Ég held að hún sé búin, en nei þá labbar hún af brettinu og á næsta bretti við hliðina og heldur áfram þar. Ég get ekki séð það á neinn annan hátt að henni hafi verið meira en nóg boðið! Já þetta eru áhrifn sem ég hef á hitt kynið.

kl. 21:33 | Athugasemdir (17)

1.5.2006 : Einbeiting flogin burt

Einbeitingin góða stakk af, nánar tiltekið til San Diego, Californíu. Já ég veit að annaðhvert blogg hérna fjallar um þetta en ég er bara alveg að deyja.

Til að mynda meðan Hafdís er að hugsa um kúkasturtur og annan óþrifnað sem bíður hennar, hugsa ég um hvítar sólarstrendurnar og sólina í Californiu. O.C lagið segir allt sem segja þarf: "Californiaaaa heeeere I coooome" ;)

Annars er vert að minnast á það að Sverrir Örn Hlöðversson átti afmæli á laugardaginn. Ég myndi að sjálfsögðu setja mynd hingað inn ég held að enginn þeirra sé birtingarhæf, allavega ekki ef það á ekki að særa blygðunarkennd lesenda. Ég var aftur á móti algjörlega með hugann við prófið sem eg fór í sama dag og gleymdi meira að segja senda afmæliskveðju í sms.

Ég ákvað þó að bæta það upp daginn eftir og ætlaði að bjóða honum á ísrúnt í sólinni á sunnudeginum. Hann neitaði pent og bar fyrir sig að hann mætti ekki við að tapa neinum tíma. Ég tók því málin í mínar hendur og fór bara einn út í ísbúð keypti bragðaref og keyrði svo heim til hans og gaf honum svo hann tapaði ekki neinum tíma og gæti borðað hann yfir bókunum. Smá flipp.

Í gærkvöldi ætlaði ég og Tobbi að skella okkur í bíó á Ice Age en það var bara einn miði eftir. Þannig að það varð að bíða betri tíma. Leigðum því bara spólu en þegar myndin var búin klikkuðum við á því að þegar við byrjum að tala um hlaup, frjálsar og æfingar að þá stöðvast tíminn. Næsta sem ég vissi var að klukkan var að slá þrjú. Passaði ekki alveg inn í planið að vakna snemma og byrja að læra.

Californiu lagið að þessu sinni er með eðalrokkurunum í Led Zeppelin og er í rólegri kantinum, en samt sem áður mjög gott og lýsandi.

Led Zeppelin - Going to California

kl. 22:55 | Skrifa athugasemd

29.4.2006 : Væri til í sund

Klukkan er 23:06 á laugardagskvöldi og mig langar í sund! Veit ekki afhverju en mig langar bara að leggjast og slappa af í heitum potti  í næturrökkrinu. Skrítið.

Annars er ég bara glataði gaurinn sem hengur heima núna, ætlaði að gera eitthvað sniðugt, en það einhvern veginn gleymdist. Þess í stað er ég að blogga með Ungfrú Stevie Nicks mér til hjálpar.

Mamma og Pabbi fóru á Bifröst að halda upp á 10 ára útskriftarafmæli. Þannig að húsið er laust og opið. Parté Parté. Hitt þó heldur, ég er að lognast útaf.

Lendi stundum í þessu að vera ógeðslega þreyttur og dasaður en samt langar mig að gera eitthvað, þegar ég veit að ég ætti að bursta tennurnar og fara að sofa.



kl. 23:15 | Athugasemd (1)

26.4.2006 : Hlynur að brillera

Haha Hlynur bróðir var að brillera á í Snorralauginni á XFM nú rétt í þessu. Fyrst var Castle með Telepathetics (hljómsveitin hans) spilað og hann svo kynntur. Hann tók stórsmellinn Smoke on the Water með Deep Purple og gerði það bara ansi vel.

Hlynur í Singstar á XFM
Mynd frá: xfm.is (Snorri)

Kom óvenju vel út úr þessu. Ég hafði viljað heyra hraá og falska tóna í bland við öskur og læti.

Uppfært kl 20:51
Það er kannski vert að minnast á það að þetta move hans þýðir hann er falur fyrir nákvæmlega 3.299 kr en það kostar Singstar Rocks sem hann fékk fyrir þetta.

kl. 3:29 | Athugasemdir (2)

25.4.2006 : Að taka Berginn á þetta

Ég er búinn að vera alltof ólíkur sjálfum mér seinustu mánuði, ég er að muna eftir hlutum, ég er að mæta á réttum tímum og ég veit ekki hvað og hvað.

Það var því mikill léttir að í seinustu viku "tók ég Berginn á þetta" með því að gleyma öllu, ef hausinn hefði ekki verið fastur á mér hefði hann sjálfsagt líka gleymst einhversstaðar.

Fyrst gleymdi ég úrinu mínu í kaplakrikanum, reyndi að fá lykla hjá Þórey Eddu sem var þá út á Svalbarða, en fattaði að lokum að Daði var líka með lykla. Þá gleymdi ég skónum mínum í Nordica og að lokum húfunni og vettlingum aftur út í firði. Ég var því töluvert mikið í símanum og að keyra fram og tilbaka að redda þessum hlutum aftur.

Róbert Freyr Michelsen er afmælisbarn dagsins.

robbi

Eftir morgunæfinguna niður í Háskólarækt pikkaði ég svo Robba upp og bauð honum út að borða í tilefni dagsins. Hressó varð fyrir valinu, þar sem við ætluðum að vera ótrúlega sniðugir og setjast út í bakgarðinn en þeir eru ekki búnir að opna hann. Skil það ekki, flott vorveður, aðeins kalt en sól. Eru það ekki ekta Íslendingar sem borða úti í 3° C hita?

kl. 16:23 | Athugasemdir (6)

23.4.2006 : Veðmálið, prófin og pizza

Ég er búinn að vera æfa töluvert með Bjögga síðan hann kom á klakann. Erum meðal annars búnir að vera gera helvíti skemmtilegar fitness æfingar og settum upp veðmál varðandi eina þeirra. Það verður skorið um sigurvegara þann 1. júlí. Sá sem tapar býður hinum út á Stælinn (eða sambærilegan stað) og svo ísrúnt.

Er annars byrjaður að setja mig í prófstellingar og ekki seinna vænna, fyrsta próf á laugardaginn næstkomandi. Afhverju læri ég aldrei yfir veturinn? Veit ekki. Pælið í því hvað það væri magnað ef það væri vika í próf og maður myndi hugsa "djöfull er ég í góðum málum".

Ég fór í Elkó á fimmtudaginn og keypti pizzuofn. Þetta er algjört snilldartæki. Burt með samlokugrillið, þetta er málið. Pizza deigið verður líka miklu betra, maður fær svona ekta kanta. Pizzan er líka til á nokkrum mínútum. Fínt bara að hafa svona self-service hjá 6 manna fjölskyldu þegar það er bökuð pizza hérna. Þá er sósunni, tilbúni degi og áleggi komið fyrir og það geta bara allir búið til pizzu eins og þeir vilja hafa hana. Góð fjárfesting.



kl. 12:10 | Athugasemdir (2)

20.4.2006 : Ruglið og spenna

Úff ég held að ég hafi aldrei verið jafnmikið í ruglinu fyrir prófin eins og núna. Er ekki búinn að sinna þessu nógu vel finnst mér. Þarf að fara sparka rassgatið í mér og gera eitthvað af viti.

Nú eru nákvæmlega 3 vikur þangað til að ég klára prófin og fer út. Verð bara spenntari og spenntari að komast út. Í tilefni af því kemur hér enn eitt California lagið. Að þessu sinn gott flashback sem allir ættu að kannast við.

Tupac & Dr. Dre - California Love



kl. 13:35 | Skrifa athugasemd

18.4.2006 : The Nóa Challenge

Því hefur lengi verið haldið fram að Coke Cola sé hinn raunverlegi kóla drykkur og sé miklu betri en Pepsi. Held að Coke var meira að segja á tímabili með um 70% markaðshlutdeild. Pepsi tók á það ráð að koma af stað "The Pepsi Challenge" sem gekk út á það að vegfærendum út á götu var boðið að drekka úr tveimur ómerktum glösum. Annað innihélt Coke og hitt Pepsi. Þau voru spurð hvor tþað myndi velja. Niðurstaðan var að rétt rúmlega meirihluti valdi Pepsi.

Ég ákvað að gera svipað um páskana. Það er nefnilega alltaf talað um að Nóa sé svo miklu betra en Góu og öll hin. Ég held nefnilega að hluti af því að fólk haldi því fram sé einfaldlega útaf markaðssetningu.

Ég tók mig því til og keypti Góu páskaegg og Freyju Rís páskaegg til viðbótar við Nóa páskaeggið sem ég fékk frá mömmu og pabba. Ég lét pabba brjóta nokkra bita af hverju eggi í þrjár mismunandi skálar og smakkaði svo blindandi til að ákvarða hvað væri raunverlega best. Ég lét svo alla fjölskylduna gera það sama. Niðurstaðn var að meirhlutinn eða 4/5 völdu Nóa en 1/5 Góu. Það sem mér fannst um eggin var eftirfarandi:

Freyju Rís egg (Elli eldfluga nr 4)
Sætasta eggið, meira svona nammi-súkkulaði heldur en raunverlegt súkkulaði bragð. Það er samt mjög bragðgott en ég get ímyndað mér að maður verði pínu þreyttur á því, þar sem þetta er næstum því eins og að borða stórt Freyju Rís, þótt það sé ekki eins mikið af Rísi eins og í namminu. Þarna er aftur á móti lang besta og mesta nammið sem maður fær í páskaeggi. Djúpur, hrís kúlur, góðar karamellur og fleira og fleira.

Góa (nr 4)
Góu eggið er ekki eins sætt eins og Freyju eggið og ekki heldur með eins sterku súkkulaði bragði eins og Nóa eggið.  Það er því ekki eins þreytt til lengdar. Það er þar af leiðandi nokkuð góð blanda af báðum. Nammið er ágætt, en ekkert sérstakt. Kúlurnar sem fylgja er vondar en það flott að fá lakkrísstangir með.

Nóa (nr 6)
Nóa eggið er með sterkasta súkkulaði bragðinu. Það verður því dálítið þungt og mikið ef maður borðar mikið af því en bragðið er samt best að mínu mati. Nammið er yfir meðallagi, en í stóru eggjunum fær maður tromp með sem er töff move.

Niðurstaðan: Freyju eggin fara sjálfsagt best í krakkana þar sem það er meira "nammiegg" heldur en hin. Nói Síríus hentar aftur á móti betur fyrir fullorðna sem vilja þykkra og meira súkkulaði bragð á meðan Góa fer milliveginn og ætti því að henta flestum.



kl. 14:58 | Athugasemdir (6)

17.4.2006 : Gesturinn

Kíkti til Hafdísar og Sveinbjörns með Bjögga í gær. Markmiðið var að slappa af og taka í smá spil og spjall og það tókst ansi vel. Áður en ég viss af spyr Bjöggi hvað klukkan sé og fær þá að hún sé rétt rúmlega fjögur. Þá vorum við búnir að sitja þarna frá klukkan níu um kvöldið og borða allt sem við fundum í eldhúsinu.

Virkilega gott kvöld og gaman þegar tíminn flýgur gjörsamlega frá manni. Ég þarf nú samt að fara setja mig í gestgjafahlutverkið í staðinn fyrir að vera alltaf gesturinn. Bara pínu erfitt með 6 manna fjölskyldu þar sem aldrei er dauður punktur. Planið er semsagt að halda svaaakalega grillveislu þegar Kristín er komin frá Cali.

Í morgun tók ég svo helvíti fína æfingu með Bjögganum og fór bara í Cruz prógrammið. Stefni á að halda því eitthvað áfram meðan allir eru úti.

Planið á eftir er að prófa jafnvel Koníaks ísinn sem ég og pabbi reyndum að gera um páskana, en hann aðskildist og fór í algjört hakk held ég. Já og svo náttúrlega "The Nóa Challenge".

Spurning að kíkja aðeins í bækur svona rétt áður en Queen gerir allt vitlaust í American Idol. Þetta verður fróðlegt að sjá.



kl. 19:08 | Athugasemdir (3)

14.4.2006 : Hress og kátur

Ég hress og kátur. Það er ekkert smá góð tilfinning að finna og sjá að maður er að komast í form. Ég fékk líka óvart ágætis hrós á mánudeginum þegar ég var að lyfta. Þá heyrist í Sverri: "Hvað kom fyrir, afhverju ertu svona bólginn?" Ég horfði á hann og spurði á móti hvað hann meinti. Hann bendir þá á framlærisvöðvann (Quadricep Vastus Medialis) sem stóð þá svona út, ég hló náttúrlega bara og eina sem ég gat sagt var "eh þetta bara vöðvi". Ég finn líka hvernig formið eykst með hverri vikunni, held að ég sé sterkari og hraðari en áður og hraðaúthaldið er allt að koma til.

Get ekki beðið eftir að komast til Californíu og taka almennilega á því. Markmiðið er að koma svona tilbaka:

hawn

En Tobbi vildi meina að þá þyrfti ég að framlengja flugið og koma heim til 4. júní 2008 í stað 4. júní 2006. Gæti verið rétt hjá honum.

Í kvöld er svo heljarinnar partý. Spurning um hvort maður verði rólegur eða taki á því? Veit ekki, maður tímir varla að fara í sukkið þegar æfingarnar ganga svona vel, en aftur á móti er langt síðan að maður hefur slett úr klaufunum.

kl. 13:14 | Athugasemdir (3)

11.4.2006 : Seinustu dagar

Eitt hafa seinustu dagar átt sameiginlega og það er skýrslugerð í eðlisfræði en þar fyrir utan gerðist þetta:

Föstudagur:
Tók því rólega þegar líða fór á kvöldið og horfði á mynd sem ég átti alltaf eftir að sjá en það var JFK. Samsæriskenningarnar upp úr öllu valdi.

Laugardagur:
Horfði á hina myndina sem ég átti alltaf eftir að horfa á: Reservoir Dogs sem er svona töffaramynd, frumraun Tarantino og ég fílaði hana vel.

Um kvöldið var svo kíkt heim til Unnar ásamt Robba, Önnu og Óla þar sem við gerðum gott við okkur, elduðum saman, spjölluðum spiluðum og fífluðumst. Leið stundum samt eins og ég væri í spurningakeppni með Önnu og Unni því þær voru ekki alveg vissar á öllu sem þær voru að tala um og því voru margar setningarnar eitthvað á þessa leið "æii hérna mannstu ekki, gráharði kallinn, ógeðslega fyndinn. Pabbi dýrkar hann."  og "oh það er hérna....stelpan sem var í fréttunum, æi mannstu ekki?"

Sunnudagur:-
Heiður systir fermist og fermingin tókst ekkert smá vel. Heiður er alveg í skýjunum. Ég og Hlynur gáfum henni Nokia 6111 sem er ekkert smá mikill gellu sími með öllu því flottasta ;)

Nokia 6111

Mánudagur:
Morgunæfing með verslóstrákunum eða stráknum. Því Trausti og Jón Karl meikuðu ekki að mæta klukkan 08 í stað 09 og því var það bara ég og Sverrir. Það varð svo bara ég, því Sverri þurfti að taka stutta æfingu útaf tíma en ég hékk þarna í einhverja þrjá tíma.

Eftir það tók svo önnur æfing við, réttarasagt hreingerning á salnum eftir ferminguna. Mitt verk var aðallega að ferja niður 10 stykki af stórum borðum og það tók alveg lúmskt í.

Það var 150 manns boðið í veisluna, enda stór fjölskylda, mamma á 13 systkyni og elsti bróðir hennar er eldri heldur en amma í pabbaætta, svo stórt er bilið. Það var því bakað ekkert smá mikið. meira að segja of mikið. Það voru heilu terturnar afgangs. Reyndum bara að gefa þeir til fólks í veislunni sem vildi taka með sér heim. Svo var eitthvað borðað í dag, eitthvað fór í frystinn og verður fínt að narta í um páskana.

kl. 1:53 | Athugasemdir (5)

7.4.2006 : Ferming á næsta leyti

Þá eru flestir blikar farnir út til Kanarí. Flugu út á miðvikudaginn og koma heim þann 19. Ég varð aftur á móti eftir heima til þess að vera viðstaddur ferminguna hennar Heiðar. Við erum bara alltof náin til þess að ég sé ekki með henni á þessum degi. Sé samt alveg strákana fyrir mér vera hlaupandi úti í eðalveðri, því hérna er búið að vera mjög leiðinlegt veður seinustu daga. Ég hugga mig við það að Californía bíður mín bara.

Seinustu daga hef sitið sveittur við gerð eðlisfræðiskýrslu, þótt ég hafi tekið mér smá frí í gær, til að horfa á úrslitin í Gettu Betur.

Ég er ekki búinn að vera æfa neitt rosalega mikið, ákvað að taka því rólega eftir 2 erfiðar vikur og enda því í 6 æfingum þessa vikuna. Ég er bara búinn að vera eitthvað ótrúlega orkulaus seinustu daga, veit ekki afhverju.

Ég hef líka átt erfitt með að sofna, þótt það tengist ekki orkuleysinu. Það tengist nefnilega frekar bakstrinum hjá mömmu. Hún og pabbi eru á fullu að vinna í því útrétta og redda öllu fyrir ferminguna og því bakar mamma alltaf á kvöldin. Þannig að þegar ég er kominn upp í rúm og er að reyna sofna, læðist þessi rosalega kökulykt útum allt hús. Það ruglar dálítið einbeitinguna fyrir svefnin og manni langar allt í einu einhverja köku.



kl. 9:41 | Athugasemdir (2)

5.4.2006 : Slappur

Ég held að ég sé orðinn eitthvað slappur, hausverkur, þreyta og sljóleiki, jafnvel ekki frá því að ég sé smá heitur. Veit ekki. Ég verð svo sjaldan veikur. Veit bara að ég er ótrúlega orkulaus eitthvað og með góðan hausverk. Nenni samt ekki að fara veikjast núna, það er víst eitthvað að ganga, en mér finnst alltaf "eitthvað vera að ganga". Maður má ekki veikjast og þá heyrist "já það er eitthvað að ganga".

 

kl. 16:26 | Athugasemd (1)

4.4.2006 : Afhverju segja allir þetta?

Það eru tvennskonar umræður sem ég lendi oft í. Sú fyrri snýst um hvort ég raki á mér lappirnar, en ég ætla ekki út í þá sálma hér.

Hin er sú að það sé leiðinlegt að elda fyrir sjálfan sig. Ég þekki nefnilega rosalega marga sem segjast hafa gaman af góðum mat, en eldi aldrei svoleiðis fyrir sjálfan sig - bara fyrir gesti. Ég er einmitt akkúrat hinum meginn, ég útbý mér oft eitthvað flókið og gott, þótt ég sé bara að fara borða einn. Kannski er ég svona mikið einbirni í mér, veit ekki, hvað með ykkur?

P.s ég raka ekki á mér lappirnar. Látið mig í friði!! ;)



kl. 14:35 | Athugasemdir (3)

3.4.2006 : Hellingur að frétta

Já það er geggjað að mikið nýtt að gerast hjá mér. Látum okkur sjá, ég er æfa á fullu, ég er að vinna og svo er maður í skóla. Hmm nákvæmlega eins og seinustu 150 vikur. Ok þannig að það eru engar stórar breytingar í gangi.

Aftur á móti eru morgunæfingar á mánudögum að taka miklum breytingum. Fyrst var ég bara einn að æfa og tók þá svona fittness- og fegrunaræfingar. Æfingar sem skila litlu á brautinna en bæta útlitið. Síðan bættist Jón Karl við og því næst Trausti. Þannig að nú erum við þremenningarnir úr Verzló að æfa saman á mánudagsmorgnum. Það vantar aftur á móti fjórða manninn, en Sverrir er alltaf í tímum klukkan 9:40 á mánudagsmorgnum. Á æfingu í dag var því tekin sú ákvörðun að flýta æfingatímanum fram um klukkutíma og mæta klukkan 8:00 í stað 9:00 og reyna þannig að fá Sverri með.

Í dag hitti ég svo Andra Cliffhanger í HÍ gymminu. Það er ótrúlegt hvað þessi drengur nær að halda sér í formi, þótt hann sé ekki að æfa. Þetta er líka maður sem maður vill hafa innan vinabanda, því ef maður týnist upp á fjöllum eða jöklum er þetta garpurinn sem kemur klífandi upp tindana til að bjarga manni. Ég meina hversu oft lendir maður í því að festast upp á jökli, ég er allavega orðinn frekar þreyttur á því. Og að auki hversu kúl er að skrifa inn "Andri Cliffhannger" á google og síðan hans kemur upp. Það gerist ekki með Bergur Hlaupari, nei þá kemur hans síða líka upp. Þótt google viti að ég sé hinn eini sanni Bergur, þá þarf ég að fara kenni henni eitthvað fleira um mig. Þótt auðvitað sé ég æðislegur.

Allavega nóg af bulli. Spurning að skella næsta Californíu lagi inni. Flestir ættu nú að þekkja þetta.

Phantom Planet - California.

kl. 12:13 | Athugasemdir (45)

30.3.2006 : Hversu satt?

Flestir hafa séð American Beauty. Mér finnst þetta alltaf jafn fyndið, sérstaklega því ég held að 80% af fólki í ræktinni hugsi þetta:

Lester leikinn af Kevin Spacey, er semsagt miðaldra kall með gráa fiðringinn og ákveður að koma sér í form. Hann ákveður að tala við fitness-hommana sem eru alltaf skokkandi í hverfinu.

Lester: I figured you guys might be able to give me some pointers. I need to shape up. Fast.
Jim: Are you just looking to lose weight, or do you want increased strength and flexibility as well?
Lester: I just want to look good naked!



kl. 17:04 | Athugasemdir (3)

28.3.2006 : Kínanudd

Var frekar stífur í mjóbakinu í gær og ákvað því að skella mér í smá nudd. Ég hef oft pælt í kínversku stofunni upp í Hamraborg og hringdi því fyrr um daginn. [Ath lesið afgreiðslukonuna með kínverskum hreim]

Bergur: Já góðan daginn
Afgreiðsla: goda da
Bergur: Ég ætlaði að forvitnast hvað nudd hjá ykkur kostaði?
Afgreiðsla: nud?
Bergur: Yes, what does it cost?
Afgreidsla: Jú kom ná?
Bergur: No, I'm just wondering how much it is?
Afgreidsla: Venn jú kom?
Bergur: uff eh maybe one a clock
Afgreidsla: Ok tötúsund og níhundr
Bergur: And how much for the needle puncture?
Afgreidsla: eeeh
Bergur: Nálastunga?
Afreidsla: aaah yes.
Bergur: Ok great, thanks.

Hún tekur svo niður nafnið og ég fæ tíma klukkan eitt. Þegar ég mæti svo tekur nuddari á móti mér og bíður mér inn. Hann byrjar að nudda mig og hann nuddar nokkuð vel, frekar öðruvísi en maður er vanur, en samt sem áður nokkuð vel. Þegar hann er svo búinn kemur kona og spyr: "nálastunga?", ég lít á pakkana hjá henni og fullvissa mig um að þau noti einnota dauðhreinsaðar, vacume pakkaðar nálar og svara svo "yes please".

Ég hef áður farið í nudd og nálastungu hjá Rikka í Orkuhúsinu og þá virkaði nálastungan sem svona "final touch" eftir nuddið og ég kom endurnærður eftir tímann. Núna aftur á móti fannst mér það gera verra. Mér sem leið vel og fann mun á mér eftir nuddið, leið verr eftir stunguna.

Jæja ég fer svo fram og ætla að borga, konan tekur á móti mér með bros á vör og segir kurteisislega: "fögurtúsund og femhundr". Ég horfi á hana frekar hissa á hana þar sem hún hafði gefið mér upp að verðið var 2900 kr. fyrr um daginn. Til að toppa þetta svo býður hún mér að taka 5 tíma og fá þá afslátt...svosem allt í lagi nema að ég átti að borga þá fyrirfram, þannig að hún vildi að ég reyddi fram 20þús krónum eins og ekkert væri.

Ég afþakkaði kurteisilega og sagðist bara ætla að taka þennan tíma en það var ekki búið. Hún hreinlega hleypti mér ekki út fyrr en ég væri búinn að panta tíma, þrátt fyrir allmörg "no" og endalaust handapat. Auðvitað endaði ég með að panta tíma á sunnudaginn sem ég stefni á að afpanta eða ekki mæta í, sá fram á að það væri eina leið min svo ég kæmist aftur heim.

kl. 16:08 | Athugasemdir (3)

26.3.2006 : Hakk, viðurkenning og Ísland

Jæja þá lenti ég í mínu fyrsta hakki en vefsíðan frjalsar.com var hökkuð nú í dag. Það sem mér fannst merkilegast er að ég fékk fleiri hamingjuóskir fyrir það en þegar ég fæ Tónlistarverðlaun XFM fyrir bestu vefsíðuna. Hehe kaldhæðni. Var samt að enda við að koma vefnum aftur í loftið þannig að fólk getur farið að handa hægar.

Annars var helgin ágæt, þótt ég hafi ekki náð að koma öllu í verk sem ég ætlaði mér, tókst nú eitthvað. Ætla að reyna bæta úr aðgerðaleysinu á morgun. Ég er bara búinn að vera svo ótrúlega þreyttur. Tók líka ellefu æfingar í vikunni og er bara ekki vanur því, þótt ég stefni á að venja mig á það.

Frjálsíþróttaþingið var líka haldið um helgina í 55. skipti. Þar sem meðal annars voru veitt heiðursverðlaun FRÍ. Ég, Daði og Robbi fengum bronzmerki félagsins fyrir framlag okkar til frjálsa íþrótta og er ég afar þakklátur fyrir það.

Ég fór svo líka aðeins að pæla í dálitlu sem ein vinkona Robba sagði á laugardaginn. Það var eitthvað á þá leið, að hún skildi ekki að nokkur maður skildi vilja búa á lítilli afskekktri eyju lengst á norðurhveli jarðar í skítakulda. Ég hef sjálfur oft hugsað eitthvað á svipuðum nótum þótt það sé kannski ekki eins harðort, en játa að ég hugsa stundum til til fjarlægra landa með hærra hitastig. Málið er samt að það er svo margt æðislegt við þetta land sem maður upplifir hvergi annarsstaðar.

Ég upplifði eitt af því á laugardagskvöldinu þegar það var frekar kalt úti, en samt svo ótrúlega heitt og notalegt í pottunum í Árbæjarlauginni, þar sem ég lá í algjörri ró á meðan nætursólin litaði Elliðarárdalinn með rauðum bjarma í næturrökkrinu.

Ísland - Bezt í heimi.



kl. 23:46 | Athugasemdir (3)

24.3.2006 : Undraolían

Jæja enn önnur helgin að nálgast. Seinasta helgi var róleg en góð. Kíkti til Hafdísar með Robba og Önnu á föstudagskvöldið og á laugardagskvöldið kíkti ég til Tobba og Sigurbjarga þar sem við elduðum saman.

Stefni þó að eyða þessari helgi í vinnu og lærdóm. Hef ekki alveg sinnt lærdómnum eins og skildi og er byrjaður að fá smá stress útaf því.

Æfingarnar ganga aftur á móti mjög vel, og kálfarnir halda líka nokkðu vel. Það er meðal annars því ég náði að panta undraolíuna mína netinu eftir langa leit. Þessi kínverska olía er pöntuð beint frá Singapore og kostaði mig offjár. Jurtirnar sem eru notaðar í þetta eru týndar af hreinum meyjum við fullt tunglsljós á toppi Huangshan fjallsins. Það er allavega eina útskýring sem mér dettur í hug fyrir þessu verði...og náttúrlega að þetta svínvirkar.



kl. 13:59 | Athugasemdir (5)

21.3.2006 : California

Jæja þá er ég búinn að panta ferð til U.S.A þann 11. maí til 4. júní. Dálítið langt, já ég veit en það var bara á svo góðu verði fannst mér og það kostar ekki nema 5.000 kr að breyta ef ég vil fara fyrr.

Hringdi líka í Jón Sævar og spurði hvenær hann vildi fá mig heim og svarið var "Þú átt náttúrlega bara að vera eins lengi og þú getur og nennir, ég vil reyndar fá þig heim fyrir Meistaramótið og Bikar". Já gott að þjálfarinn minn vill mig heim fyrir miðjan júlí. Hann er greinilega með sama markmið og ég: að æfa eins og brjálaður maður og helst fylgja orðatiltækinu "the closer you are to death, the more you feel alive" þegar það kemur að því að setja upp prógrammið.

Annars hef ég litla trú á að ég vilji fara fyrr þar sem Kristín ætlar að leyfa mér að krassa hjá sér í San Diego. Jónas var líka það góður að bjóða mér að gista ef ég vildi kíkja upp til San Francisco. Þannig að ég verð í virkilega góðum félagsskap og veit hreinlega ekki hvernig ég á eftir að þakka fyrir mig. Þetta er náttúrlega topp fólk! Kannski frekar að þau verði leið á mér og hendi mér fyrr út. Kemur í ljós ;)

Ég flýg til Baltimoreþann 11. maí þar sem ég ætla að hitta Keith frænda og eyða helginni með honum og svo fara til San Diego. Ástæðan fyrir þessu ferðalagi mínu er sú að ég fer ekki til Kanarí með blikunum um páskana þar sem Heiður systir mín er að fermast og ég vil ómögulega missa af því. Ég held því að þetta sé góð lausn, og að auki verða kálfarnir þá betur tilbúnir fyrir gaddana og hraðar gæðaæfingar.

Ég er orðinn ótrúlega spenntur og til þess að hjálpa mér að telja niður hef ég ákveðið að skella inn lögum um Californíu hérna reglulega inn. Hér fáiði það fyrsta.

Beach Boys - California Girls.

kl. 13:51 | Athugasemdir (5)

15.3.2006 : Sagan af Jörundi

Var að spjalla við Óla Margeirs í gær í gemsanum. Búnir að vera spjalla dálítið lengi þannig að Óli segir við mig "afhverju hringiru ekki í heimasímann 561-0515" og gef mér hann upp. Ég tek upp heimasímann hjá mér og byrja að hringja og segi við Óla í gemsann "ég er að hringja til þín, bæ" og legg svo á.

Þá svarar maður í heimasímann "Jörundur", með rödd sem mér finnst eins og röddin á Óla með fyndnum raddblæ eins og hann sé að fokka í mér. Ég lendi í hláturskasti og rétt kem upp úr "ha? Hvað segiru, JÖRUNDUR?". Maðurinn endurtekur sig "Já Jörundur". Ég er held náttúrlega að þetta sé ennþá Óli að stríða mér og svara með asnalegri rödd á móti "Já blessaður Jörundur, er hann Ólafur Margeirsson hjá þér" ennþá hálf hlæjandi. Þá fæ ég bara hvasst á móti "Það er enginn með því nafni hér!". Þá loksins fatta ég að þetta var EKKI Óli og segi skömmustulegur "eeeh fyrirgefðu vitlaust númer".

Ég hringdi nefnilega í 562-0515, en ekki 561-0515.



kl. 20:48 | Athugasemdir (4)

13.3.2006 : Parte Parte

Já kallinn búinn að vera í ruuuglinu. Nei nei segi svona. Kíkti samt til Trausta á föstudagskvöldinu að heilsa aðeins upp á kallinn.

Á laugardagskvöldinu hélt Hafdís nokkur Pétursdóttir svo upp á 25 ára afmælið með stæl. Ég hafði fengið skilaboð frá Sigurjóni fyrr um daginn sem voru eitthvað á þessa leið: "Hvíldu þig vel fyrir kvöldið - ég verð í stuði!" Og það passaði, við vorum í góðu stuði þótt við fórum ekki í ruglið þetta kvöldið og vorum rólegir mestmegnis af kvöldinu þótt kannski undir lokin hafi hann verið muldrandi, þvoglumæltur og hálfdauður upp í sófa sullandi mat yfir sjálfan sig.

Þegar líða fór á kvöldið fór fólk líka í Singstar fílinginn þótt Davíð Harðarson hafi iðað í skinninu allt kvöldið eins og smástrákur á aðfangadag að fá að prófa þessa rosa græju. Sveinbjörn stóð sig líka nokkuð vel og náði nokkrum sigrum þótt hann hafi fljótt orðið frekar óvinsæll því eftir hvern sigur stóð hann upp og öskraði yfir alla "RÚÚÚST!". Ég stóð mig nokkuð vel þótt ég segi sjálfur frá en toppurinn var samt tvímælalaust þegar Gauti þurfti að rappa "Shut Up" með Black Eyed Peas i liðakeppni, strákar á móti stelpum. Stelpurnar sungu hlutan hennar Fergie á meðan Gauti þurfti að rappa fyrir Will I Am. Ég lá í hláturskrampa því orðin hurfu jafnóðum af skjánum og þau birtust og ekki séns að ná þessu.

Fyrr í vikunni hafði ég spurt Hafdísi hvað hún vildi í afmælisgjöf og fékk það svar að kossar frá mér væru meira en nóg, þannig að ég mætti með fullan poka af kossum. Ég gaf henni reyndar líka súkkulaði fondue pott, því það þýðir ekki bara að reyna að vera fyndinn.

Hafdís og Sveinbjörn eru náttúrlega líka alveg topp gestgjafar og þarna voru þvílíkar kræsingar. Ég hef heldur líka aldrei lent í partýi þar sem gestirnir fá fría heimskeyrslu eftir kvöldið en það var í boði í þessu tilfelli.

Svo er náttúrlega Heimsmeistaramótið í Frjálsum, innanhús búið að vera á fullu um helgina og Íslendingarnir búnir að standa sig með sóma. Bjössi Margeirs á brautinni og Sammi og Sigurbjörn í lýsingunum.

kl. 0:04 | Athugasemdir (2)

9.3.2006 : Góður nætursvefn

Náði virkilega góðum svefni á þriðjdagskvöldinu. Steinsvaf, og alltaf þegar ég næ góðum svefni dreymir mig alveg rosalega. Dreymdi núna m.a. að ég hefði farið og keypti pizzu með Hrafni og flugelda með Sigurbjörgu.



kl. 21:49 | Skrifa athugasemd

8.3.2006 : Smá könnun

Langar að gera smá könnun:

Hvort er betra KEA skyrr eða MS Skyrr.is?
Hvort er betra KEA Skyrr Smoothie eða MS Skyrdrykkur?

Fyrir mér er þetta ekki spurning.

Svör í komment.



kl. 0:11 | Athugasemdir (10)

6.3.2006 : Matarblogg

Fattaði að ég er ekki búinn að blogga um mat alltof lengi og þar sem það er matur er eitt af mínum áhugamálum, sérstaklega að borða hann að þá læt ég til skara skríða.

Uppskrift að heimatilbúnum Ferskjuís Inga La Bergur. Þennan bjó ég til með litlu systur minni í gær.

3 ferskar ferskjur
1 bolli sykur
250 ml rjómi
2 egg
1 tsk vanilludropar

Afhýðið ferskjurnar og hreinsið kjarnann/steininn. Setjijð í blandara og maukið vel. Þeytið eggin og sykurinn saman þangað til að það er komin mjúk og fluffy blanda.  Takið fram aðra skál og þeytið rjómann. Blandið svo öllu saman í stóra skál rólega með sleif og setið vanilludropana út í. Setjið í ísform og frystið.

Það ber að taka  fram að ég hef aldrei áður búið til ís á ævinni og veit því ekkert hvort þetta sé official leiðin eða eitthvað crap, þetta bragðaðist samt bara nokkuð vel hjá okkur.



kl. 23:01 | Skrifa athugasemd

5.3.2006 : Rólegt djamm

Gærkvöldið fór í rólegt djamm ef svo má að orði komast. Kíkti til Tobba um kvöldið en þar voru einhverjir fótboltastrákar að austan og svo voru vinkonur hennar Sibbu. Þær gáfust þó fljótlega á dólgslátunum í okkur strákunum og fóru niður í bæ í afmæli hjá Cheerios stráknum "mér finnst bara bæði betra". Gott move.

Tobbi var í algjöru sullstuði og blandaði öllu mögulegu saman, svo lengi sem það var áfengi í því var kallinn sáttur. Ég þarf einhvern veginn að koma myndum af símanum mínum inn á tölvuna, því ég er kominn með ágætis safn af myndum og vidjóum. T.d. video af Tobba vera hella í sig einhverju ógeði og deyfa bragðið svo með sykurpúðum. Snilld. Ég lét nú hálft hvítvínsglas duga og reyndar náði Tobbi að koma einhverju glasi af Baileys sulli í mig en þar lét ég staðar numið.

Þegar stelpurnar fóru að sakna okkar niður í bæ rúlluðm við strákarnir á Hverfis í einhverja afmælisveislu hjá Marilyn Manroe eftir því sem ég vissi best. Þá var skellt sér á dansgólfið en upp úr hálfþrjú ákvað ég að láta gott heita og dreif mig heim og upp úr rúm.

Hin hafa þó verið að allt kvöldið því í morgun þegar ég vaknaði var sms á símanum frá því klukkan fjögur um nóttina "Ert þú með símann hennar Sibbu?". Hann var þó ekki týndur heldur bara í veskinu hjá vinkonu hennar en því voru semsagt allir búnir að gleyma nema ég. Bravó.

Ágætis afsökun fyrir morgunskokki er svo að skokka eftir bílnum sínum, en það gerði ég einmitt í morgun þegar ég skokkaði út á Naustabryggju. Stefni svo á að taka daginn sæmilega rólega, þótt ég gæti alveg gert slatta af hlutum. Er bara búinn að vera eitthvað svo dasaður, stefni bara á að hlaða batteríin og vera þeim mun duglegri á morgun.

kl. 14:09 | Athugasemdir (2)

4.3.2006 : Karfa, Bíó og Kálfar

Búin að vera ágætasta vika. Komst samt af því að ég get hreinlega ekki mætt á tímalega tíma, alveg sama hvað ég gef mér mikinn tíma. Ég er alltaf á seinasta séns.

Annars fór ég með blikastrákunum út í Mosfellsbæ að rústa frjálsíþróttadeild Aftureldingar í körfubolta. Ég ákvað að nota sálfræði hernað þar sem hæfileikar mínir eru af skornum skammti og mætti því í Jordan stuttbuxunum, ermalausum bol og svitabandi eins og ég væri beint úr ghetto-inu. Þetta var helvíti gaman og Blikar bjóða því Aftureldingu heim í Smárann við tækifæri þar sem annaðhvort verður spilað Bridds, eða ef fólk er ævintýragjarnt, Boccia.

Hafdís var líka svo væn að bjóða mér á forsýningu Bleika Pardusins þar sem hún vann nokkra miða. Þetta verður seint kallað stórmynd eins og þær gömlu en engu að síður hló ég mikið af þessum einfalda aulahúmor.

Æfingarnar ganga ágætlega, maður er fljótur að tapa niður sérhæfðu formi á 2.5 -3 mánuðum. Þannig finn ég að allt hraðaúthald eða sýruþol er dottið alltof mikið niður. Ég var einmitt byrjaður að fíla mig svo rosalega fyrir aðgerðina, þ.e.a.s fíla formið, ekki kálfana. Nú er því öfugt farið ég fíla kálfana en ekki formið. Er hægt og rólega að lauma mér inn á æfingar hjá Breiðablik og taka með strákunum en fer samt öðruhverju í laugina til að létta á álaginu. Þar munar að vera með félaga til að stytta tímann.

Kvöldið er alveg óráðið en ég ætla að hitta Tobba um klukkan 17 til að taka smá skokk og fittness.

Ég er líka búinn að ákveða að ég fer ekki í æfingabúðir til Kanarí um páskana með Blikunum. Það er er fyrst og fremst ferming systur minnar sem ég vil ekki missa af því. Við erum bara alltof samrýmd systkynin. Það hentar líka ágætlega upp á kálfana og formið að gera.  Ég stefni bara að fara eitthvað út eftir seinasta prófið í HÍ þann 10. maí og vera eitthvað úti meðan þessi vormót eru hérna. Þá verða kálfarnir og formið komið í betra stand til að geta tekið einhverja gæðaæfingar í hitanum. Er svona aðeins að þreyfa fyrir mér hvert ég ætti að fara, þarf reyndar að fara reyna negla það aðeins niður til að fá flugfarið á sem hagstæðasta verði.

kl. 14:56 | Skrifa athugasemd

2.3.2006 : Nöööörd aleeeert

Ég og Bjöggi eigum það sameiginlegt að okkur finnst ótrúlega gaman að svona DIY projectum eða Do It Yourself. Ég hef ótrúlega gaman að iðnhönnun og allkynsfikti og fannst því ótrúlega töff þegar Bjöggi sýndi mér heimatilbúna skjávarpann.

Þá fór ég nú að flakka um netið að leita af öðrum flottum hlutum sem hægt er að gera og þetta er án efa toppurinn:

Home made sentry Gun en fyrir þá sem ekki vita er Sentry Gun svona varnarbyssa sem þarf ekki að stjórna. Hún er með nema og skynjar hreyfingu og skýtur. Þessi byssa nemur t.d. hreyfingu og gefur skipunina "Freeze" og ef maður hreyfir sig eftir skipunina skýtur mann. Hversu mikill paranoid nörd þarf að vera. Þetta er samt of kúl.

Þegar maður lendir inn á svona nördasíðum að þá finnur maður líka allt. Flestir kannast þannig við hin klassíska fjölskylduleik Scrabble. Núna er hægt að fá viðbót í spilið og spila 133t scrabble.  Rólegur að vera búinn að þróa leet talið of lengi. Held að þetta sé næsta skref fyrir þig Daði ;)

Þetta hér er samt án efa nördalegast nördadót ever. Þú þarft að vera fokkin geðveikur til að gera þetta. Einhverjum datt semsagt í hug að bera saman stærðir á geimskipum úr helstu Sci-Fi þáttum og myndum ever. Þarna er verið að bera saman skip úr Star Trek, Babylon 5, Star Wars, Halo, Starship Troopers, 2001 Space Odessey. Bara name it. Waaaayyy to much freetime segi ég.



kl. 14:27 | Athugasemdir (3)

2.3.2006 : Úff

Þótt ég sé ekki alveg að taka Ernuna á þetta að þá hef ég verið alveg uppgefinn seinustu daga. Náði hámarki í gærkvöldi þegar ég var að reyna halda mér vakandi um þrjú leytið og búinn að stúta tveim Magic, Mars og Snikkers allt til að halda mér gangandi en viti menn ég sofnaði í stólnum fyrir framan fartölvuna. Vankaði samt fljótlega við mér aftur (enda massa óþægileg staða) og gat pínt mig aðeins lengur.

Ætlaði svo að vera bjartsýnn og vakna klukkan 08:30, en þar sem ég er búinn að vera aðeins of mikið á fullu seinustu daga að þá harðneitaði líkaminn bara og ég steinsvaf til klukkan 13:00.

Dálítið langt síðan að ég fann þessa tilfinningu að vera úthvíldur. Var svo rétt í þessu að massa heimadæmi í eðlisfræðinni og ætla því strax að sofa.

P.s stelpurnar fengu fáránlega mikið nammi, það er út í hött. Samanlagt hafa þær fyllt svona einn Debenhams poka, kæmist ekki fyrir í týpískum bónuspoka.



kl. 0:12 | Skrifa athugasemd

27.2.2006 : Bústaðurinn

Rúllaði upp í bústað með blikunum á föstudaginn. Alveg ótrúlega næs og skemmtilegt. Skemmtum okkur langt fram á morgun.

Ég útnefndi sjálfan mig sem DJ og yfirkokk í ferðinni og það tókst ágætlega. Það er bara eitthvað ótrúlega næs að sitja undir berum himnum í heitum potti út landi með með ískaldan bjór í hendi . Það eru andstæðurnar sem ég fíla. Potturinn alveg sjóðandi heitur en ískalt úti. Alveg stjörnubjartur himinn og algjör þögn. Jah reyndar var kannski ekki mikil þögn þar sem það var helst til mikið um öskur og annan fíflaskap, en það gerði það reyndar bara enn skemmtilegra.

Þessi ferð hafð einmitt að geyma allt það sem góðar bústaðarferðir þurfa að innihalda. Grill, spil, drykkju, heitan pott, fíflalæti, göngutúra, og í raun almenn skemmtanaheit.

Rúllaði svo í bæinn aftur rétt um tvö leytið daginn eftir og beint í óformlega afmæliskaffið hennar mömmu.

Það er líka fyndið hvað smá viðurkenning getur gert því ég tók mig til og henti upp leitarvél fyrir rokk.is. Eitthvað sem átti að vera löngu komið upp.

Af æfingum er það að frétt að ég er alltaf að fíla mig betur og betur þótt ég sjái að loftfirrða þjálfunin er fljót að detta niður. Prófaði að taka smá á seinasta mánudag og ég þurfti að hafa alltaf mikið fyrir því.



kl. 13:25 | Athugasemdir (2)

23.2.2006 : Meira Jeeeei

Ég fékk annað skemmtilegt símtal í dag. Hákon hringdi í mig og sagðist vera með miða fyrir mig á tónlistarverðlaun XFM 91.9 sem voru haldin í kvöld. Rokk.is var nefnilega tilnefndur sem bestu vefurinn. Ég hafði heyrt tilnefningarnar í útvarpinu en ekkert hugsað út í að það að ég hafði smíðað þennan vef.

Ég var nú ekkert viss um hvort ég ætti að mæta, okkur fannst báðum ólíklegt að við myndum vinna, en viti menn þarna sitjum við þegar allt í einu heyrist í kerfinu "og besti vefurinn er ROKK.IS" og heljarinnar klapp fylgdi.

Hákon leit snöggt á mig: "Þú upp á svið með mér!". Þannig upp á svið hoppaði ég og rétti upp hönd til að þakka fyrir mig eins og sannur atvinnumaður sem hafði aldrei gert neitt annað.

Þegar við komum bakatil kemur svo Snorri svo til okkar og segir "beint í viðtal". Þannig að niður í kjallara fórum við og spjölluðum rokk tónlist, dreifingu og allt tengt því.

Ég hafði líka gaman að því hvað ég var ekki alveg í rétta pakkinum þetta kvöldið. Þótt vanalega myndi ég smellpassa í hópinn var ég nefnilega bara tiltöllega nýkominn af æfingu og því var ég barna þarna í  flottu Nike hettupeysunni minni drekkandi Kristal Plús á meðan allir aðrir voru í leðurjökkum drekkandi Tuborg.

Það var líka mjög fyndið að ensimi.is var tilnefndur en Hrafn gerði hann og sömuleiðis var Breakbeat.is tilnefndur en Reynzi er maðurinn bakvið hann. Það voru því 3 af 6 vefjum sem voru gerðir að mönnum í Hugsmiðjunni.



kl. 23:38 | Athugasemdir (6)

22.2.2006 : Jei og úff

Gleymdi að minnast á að ég fékk mjög skemmtilegt símtal á mánudaginn. Má því miður ekki greina frá því strax, en það kemur að því.

Úff hvað ég var alveg að missa mig yfir þessari eðlisfræði. Málið er að skilin eru gegnum vefmiðmót, þannig að maður þarf að skrifa inn jöfnur og læti inn á tölvunna. Frekar mikið pirrandi. Svo gerir maður kannski smá villu eins og t.d. áðan skrifaði ég svar sem 0.055 en svar en sá ekki að það átti að skila upp á þrjá markvissa stafi og fékk því 0 fyrir dæmið. Rétt svar var 0.0553. Þoldi ekki meira af þessu rugli og tók mér því pásu sem fólst í því að fara niður í Sundhöll með Sigurbjörgu að hlaupa í sundi. Hún er nefnilega orðin eitthvað slæm í kálfunum. Hún er því hér með orðinn official meðlimur í "Fjörkálfum" félagi sem ég og Tobbi eru stofnendur að. Spurning um að Tobbi hafa smitað hana. Veit ekki.

Annars eru pælingar í gangi hjá blikunum að kíkja í sumarbústað á föstudaginn og koma heim á laugardaginn. Það hljómar ekkert smá vel fyrir mér. Gott að kúpla sig aðeins frá. Þótt maður myndi kannski ekki vinna eða læra á föstudagskvöldi að þá er það alltaf hangandi yfir manni. Með því að fara bústað er maður með hugann við allt annað. Komast útfyrir borgina og hreinsa hugann.



kl. 7:04 | Athugasemdir (8)

20.2.2006 : Fín helgi

Föstudeginum eyddi ég heima í sófa með fjölskyldunni bölvandi hvað íslenska idolið er leiðinlegt miðað við það ameríska.

Á laugardaginn vorum við Hafdís búin að stefna í að grípa í smá spil, og ég ákvað að draga Tobba með. Hann var einn heima þar sem Sigurbjörg fór á Eurovision að hvetja systur sína. Hafdís þurfti því miður að hætta við á seinustu stundu þannig að ekkert varð úr því. Ég og Tobbi ákváðum því að fara smá bíltúr sem endaði á Erluís og bragðarref.

Stelpan sem afrgreiddi okkur var klárlega ógeðslega skotin í okkur því ég hef aldrei fengið jafnmikið af nammi í einn bragðaref og málið var svo kúfað af ís. Alveg ótrúlega sáttir rúlluðum við með bragðarrefin heim til Tobba þar sem við horfðum á úrslitin í Eurovision og heljarinnar tónlistar- og hlaupapælingum.

Sigurbjörg kom svo fljótlega heim en hún er orðin gjörsamlega orðin hooked á Desperate Housewifes, þannig að því var skellt í DVD spilarann á meðan ég kynnti "Laugardagsklessukökur Bergs".

Fyrr um daginn langaði mig nefnilega í eitthvað til að narta í nema að það það var ALLT tómt, gjörsamlega allt. Ég tók því á það ráð að baka! Ég nennti samt ekki að fara eftir einhverri uppskrift og blandaði bara saman hráefnum sem ég hef séð að er sett í kökur og útkoman voru "Laugardagsklessukökur Bergs" ágætustu smákökur sem hægt var að narta í.

Á sunnudaginn kíkti ég svo niður í höll og horfði á Meistaramót Íslands. Það var virkilega gaman, sérstaklega svokallaður "dauðariðillinn" en Fannar, Óli og Biggi lentu saman í riðli í 400m. Allir með tíma upp á 52.5-52.9.  Þannig að þar var uppgjör milli blikastrákana. Auðvitað var keppt um "braggin' rights" eða "réttin til að rífa kjaft" á æfingum.´

Hefði meira en lítið verið til að keppa en er því miður ekki í formi til þess sem stendur.  Á fimmtudagsæfingunni hafði Jón Sævar komið upp að mér meðan ég var að hita upp.

JS: Ég skráði þig í 800m og 400m á meistaramótinu!
Ég: eeeeeh
JS: Já engan helvítis aumingjaskap
Ég: jaaaah sko
JS: Það þýðir ekki stanslaust að vera kveinka sér
Ég: uhm hérna
JS: Nei  nei ég er að fíflast í þér maður
(og svo mikill hlátur)

Hann náði mér alveg. Mér bauðst samt í alvörunni að hlaupa í B-sveitinni fyrir Breiðablik. Hefði ábyggilega getað rúllað þar á 54-55, en vill frekar bíða aðeins og keppa þegar ég er búinn að æfa eitthvað.

Anyways ætla að klára nokkrar bókunarvélar fyrir Icelandair áður en ég fer að sofa. Stefni svo vonandi á smá morgunfittness í fyrramálið, fer eftir hversu lengi ég verð að í kvöld.



kl. 0:35 | Athugasemdir (5)

17.2.2006 : MSN

Ég verð hreinlega að deila þessu með ykkur. Ég er nú yfirleitt loggaður inn á msn-ið en sjitt hvað ég yrði brjálaður ef allir vinirnir væru svona:

MSN hjá 14 ára stelpu

Þetta er semsagt msn hjá Heiði systur.



kl. 13:28 | Athugasemdir (6)

16.2.2006 : Ekki bara feitur

Nei heldur líka heimskur. Vá hvað mér veitti ekki stundum af einu góðu smakki í hausinn eða svo. Sat í gær og í morgun að massa heimadæmi. Fer svo í skólann í dag, daddara sit alla tímana mína og bruna svo heim um klukkan 16:00. Núna er klukkan 17 og ég er að átta mig á því að skiladæmin eru ennþá í töskunni minni. Ég gleymdi að skila þeim! Það skiptir reyndar svosem ekki öllu þar sem það er ekki gefin einkunn eða neitt, en ég meina samt sem áður, hálvitaskapur.

Anyways ætla að rjúka á æfingu núna og sjá hvort ég lifi það ekki af.



kl. 17:09 | Athugasemdir (4)

15.2.2006 : Aumingi

Ingibjörg systir spyr mig hvort ég geti skutlað henni á fótboltaæfingu í dag. Þegar við erum svo að keyra úr stæðinu finn ég að bílinn "skelfur" dálítið. Svona hálfpartinn hristist til pínu. Ég held áfram að keyra og alltaf eykst þessi hristingur, upp að því marki að þetta var ekki eðlilegt. Ég er kominn nokkuð hundruð metra frá húsinu þegar ég skelli hazard ljósunum á og hoppa út. Labba hringinn í kringum bílinn og sé hvað hefði gerst. Sprungið dekk.

Ég hringdi í Hlyn sem kom og pikkaði Ingibjörgu og kom henni á æfingu. Á meðan ég fór í það að tjakka bílinn upp, setja upp viðvörunarþríhyrninginn í sæmilegri fjarlægð og skipta um dekk og skella aumingjanum  (lesist varadekk) undir. Ég er sem betur fer vel útbúinn og er alltaf með auka hanska og dóterí í bílnum, þannig að þetta var ekkert mál í kuldanum.

Annars fann ég fyrir ótrúlega skringilegri tilfinningu í dag. Sit í gufunni niður í sundhöll eftir að hafa að hafa hlaupið í lauginni. Þegar tvær stelpur labba inn og allt í einu var ég ótrúlega meðvitaður um vaxtarlagið á mér. Þetta hef ég bara aldrei upplifað! Ég hef nú aldrei verið helmessaður eða köttaður en ég tel mig nú samt yfirleitt verið í frekar fínu formi, þá sérstaklega seinasta sumar. En núna allt í einu varð ég meðvitaður að ég væri ekki í eins góðu formi eftir tvo og hálfan mánuð af engri (eða afar lítilli) hreyfingu. Auðvitað er ég náttúrlega langt frá því að líta eitthvað illa út, það er ekki eins og ég sé orðinn 95 kg eða eitthvað, og í raun hef ég ekkert þyngst, og langt frá því sem fólk myndi kalla lélegt form, en samt sem áður var þetta ekki eins og ég vildi hafa það og ég var óvenju meðvitaður um það.

Sem betur fer er ég að byrja auka æfingarnar hægt og rólega og býst ekki við að þetta vari lengi.



kl. 23:06 | Athugasemdir (6)

13.2.2006 : Spil, blikar og mót.

Ekki búinn að vera sá duglegasti í blogginu. Búið að vera dálítið mikið að gera. Ég er búinn að komast að því að frjálsíþróttamenn eru spilaóðir. Alveg ótrúlegt hvað það eru margir frjálsíþróttamenn sem spila Catan eða Carcassone. Kíkti m.a til Tobba og Sigurbjörgu í vikunni og tók eitt spil með Stebba og Magga.

Annars var árshátíð Breiðabliks um helgina og við í frjálsum hittumst heima hjá Bigga og settum upp heljarinnar veislu. Þar var m.a. sett upp Singstar keppni og lýsi ég Sigurjón Böðvarsson singstar meistara. Ég veit ekki hvort ég eigi að viðurkenna þetta en mér tókst BARA að vinna þegar við lentum á lögum með flytjendum eins og Atomic Kitten, Scissor Sisters eða Dido. Hvað er málið með það?

Stundum er ég líka alveg úti að aka. Ætlaði að mæta niður í höll á laugardaginn að horfa á Tobba og Sigurbjörn hlaupa 800 með Stebba og Óla sem héra. Ég var í barnaafmæli hjá frænda mínum en fer þar fyrr, kveð alla og bruna niður í Höll, frekar tæpur á tíma og alveg viss um að ég myndi missa af þessu.

Þegar ég mæti eru alveg óvenju fáir, ég lít á klukkuna og hlaupið ætti að vera farið af stað, en þegar lít betur í kringum mig sé ég engan Tobba, engan Sigurbjörn, engan Stebba og engan Óla.  Ég skil ekkert í þessu og labba upp að Jóni Odds og spyr hvort 800 sé búið, hann horfir pínu skringilega á mig og svarar svo "neeeei".

Þá fer ég að hugsa aðeins betur lít á úrið og átta mig á því að hlaupið var 18:40 en klukkan var 17:40. Ég nennti ómögulega að fara keyra upp í kópavoginn til þess að keyra svo strax aftur niður í Laugadal, þannig að ég eyddi þarna auka klukkutíma í að horfa á MÍ öldunga þangað til. Stundum er ég alveg með á nótunum.



kl. 23:36 | Athugasemdir (2)

7.2.2006 : Fikt

Kíkti til Bjögga á laugardagskvöldið þar sem kallinn er að fara aftur til Californiu til Kristínar og Cruzarans. Ætli hann sé ekki reyndar núna í NY að skoða og flakka.

Annars er mestlítið að frétta, ég er reyndar kominn í smá fikt fíling. Fikt og smíðafíling, alltaf gaman að föndra eitthvað. Fór í Akron í dag og keypti einn fermetra af svörtu acrylic plasti. Verst bara að tíminn er mér ekki alveg hliðhollu, mikið af skiladæmum og svo er það náttúrlega líka vinnan.

Æfingarnar ganga ágætlega, en hef ekki sett mikið í æfingadagbókina, hef samt verið að æfa, bara gleymt að uppfæra. Þetta er nú mestmegnis allt það sama, smá skokk og táar og kálfaæfingar tl að koma sér af stað aftur.



kl. 0:33 | Athugasemd (1)

4.2.2006 : Strákakvöld

"fram úr mínum bestu vonum"
- Jón Karl Sigurðsson

"tónlistin er frábær"
- Sverrir Örn Hlöðversson

"ég vildi að þú hefðir verið meira með vélina"
- Trausti Hannesson

Frumsýningin á Kýpur var semsagt í gær og var að mínu mati ótrúlega vel heppnað. Í heild var kvöldið bara ótrúlega skemmtilegt og eins og í alvöru VIP boði voru náttúrlega miklar kræsingar og frítt áfengi.

Ég hafði horft á myndina svona tíu sinnum áður, og fannst hún mjög fyndin en svona lagað er bara miklu fyndnara þegar maður horfir á þetta með þeim sem voru með manni. Asnaleg atriði verða ennþá fyndnari þegar maðurinn sem er að gera sig af fífli situr við hliðina á manni eða þegar maður þarf sjálfur að finna einhverjar afsakanir.

Kærustum strákana var ekki boðið einmitt útaf þessu. Þarna voru atriði sem maður gerði þarna og BARA þarna. Eitthvað sem aðrir eiga ekki að sjá en eru alveg ótrúlega fyndið fyrir okkur, mikið af einkahúmór og það er ljóst að ef einhverjir utanaðkomandi aðilar höfðu verið þarna hefði ekki verið eins frjálslegt umhverfi eins og myndaðist í gær.

Maður sá bara hvað var gaman úti og maður náði að upplifa allt aftur. Í framhaldinu var mikið talað um að gera eitthvað saman, fara eitthvað og leika sér. Þótt svona ferð verði aldrei leikin eftir, og maður á ekki einu sinni að reyna það. Þetta er bara "once in a lifetime" ferð.  Það þýðir þó ekki að það sé ekki hægt að planna einhverskonar aðra stórskemmtilega ferð.

Í raun var líka miklu skemmtilegra að þetta skyldi dragast svona á langinn. Að horfá á þetta tvemur og hálfu ári seinna er bara allt öðruvísi og miklu skemmtilegra en að horfa á þetta hálfu ári seinna. Maður sér þetta í öðru ljósi og maður þorir að skjóta meira og það sem er frábært við þennan hóp er að menn eru óhræddir að skjóta, enginn er hörundsár og maður veit að ef það er skotið á einhvern mun sá sami fá það tilbaka. Skemmtilegt saklaust vinagrín er alltaf skemmtilegast.

Eftir myndina settum við slideshow af þeim myndum sem við tókum og minntumst góðra tíma meðan myndirnar skutust upp á skjáinn hver eftir annari. Það fékkst líka botn í allskyns mál eða eins og kaninn myndi orða það "closure". Það var fyndið og ótrúlega merkilegt að við tókum sjálfsagt um 2.000 myndir og hverri einustu mynd sem kom upp á skjáinn fylgdi saga. Það fannst mér einna merkilegast.

Ég þakka strákunum fyrir eitt fyndnasta kvöld sem ég hef upplifað í ótrúlega langan tíma. Ég man ekki eftir því að hafa hlegið svona mikið.



kl. 2:14 | Athugasemdir (7)

1.2.2006 : Þreyttur?

Ætlaði að vera voðalega sniðugur í gær og fara snemma að sofa. Fyrst ætlaði ég reyndar að vera voðalega duglegur að læra en fann fljótt að svefnin og þreytan höfðu yfirhöndina.

Ég lagðist því upp í rúm rétt fyrir níu í gærkvöldi, en stillti vekjaraklukkuna á 06:30, hugsaði með mér að 9,5 klst í svefn ætti nú að duga. Stefndi þá á morgunæfingu og svo lærdóm.

Þegar ég vaknaði var klukkan aftur á móti ekki 06:30, og ekki 07:30 og ekki einu sinni 08:00. Neibb hún var 09:10 þegar Hlynur bróðir kom inn í herbergi og spurði hvort ég þyrfti ekki að fara vakna. Ég svaf semsagt í u.þ.b 12 klukkustundir. Greinilega einhver þreyta í manni.

Ég skellti mér þó á morgunæfingu eins planað var og nú er bara að halda sér við lærdóminn fram að fimm eða sex þegar ég tek seinni æfinguna.

kl. 10:52 | Athugasemdir (2)

30.1.2006 : Uppskeruhátíð

Skellti mér á uppskeruhátíð frjálsíþróttasambandsins á laugardagskvöldið. Ætlaði að fara á vígslumótið sem var fyrr um daginn en komst því miður ekki útaf því að ég var enn að vinna í þessu video fyrir okkur blikana. Horfði samt á þetta í sjónvarpinu og fannst þetta koma virkilega vel út.

Kvöldið var lika mjög gott. Sterkur leikur að hafa fordrykk frammi og láta fólkið aðeins mingla áður en því var boðið inn að fá sér sæti. Félögin komu semsagt með skemmtiatriði og þótt ég hafi ekki náð að gera okkur aaalveg eins og ég hafði viljað að þá var ég alveg búinn að breyta um tón um morguninn frá því að ég skrifaði að allt væri að fara til fjandans. Mér fannst ég bara ná að gera þetta nokkuð vel og þetta vakti nokkra lukku þannig að ég er bara ánægður, þótt ég hefði viljað gera sumt öðruvísi og betra. Takarkmarkið tókst samt, að búa til sæmilegt skemmtiatriði sem fólk gat hlegið að.

Þegar allri formlegri dagskrá var lokið voru miklar vangaveltur hvað væri næst á dagskrá. Stefanía Hákonardóttir og Björg buðu öllum heim til sín, en ég vissi að ef ég færi þangað liti ég út eins og parnabía eða eitthvað þar af verra. Þótt þetta séu alveg ábyggilega fínar stelpur. Ég fann því Bjögga og við fórum ásamt Bjössa Arngríms og Gunnhildi til Hafdísar og Sveinbjörns sem var alveg virkilega gaman. Þannig að ég er mjög sáttur með kvöldið.

Svo var 5. sería af 24 að byrja í gær og maður mátti náttúrlega ekki missa af því. Nú þarf ég bara að finna hvenær Lost byrja og þá eru uppáhaldsþættirnir mínir komnir af stað aftur.

Nú kallar aftur á móti smá tiltekt og lærdómurinn á mig. Var ekki að sinna honum nógu vel í seinustu viku.



kl. 11:28 | Athugasemd (1)

27.1.2006 : Kvikmyndagerð

Ég er kominn með nýtt áhugmál: kvikmyndagerð. Þegar maður er búinn að ná að fikta og lesa sig áfram er þetta alveg ótrúlega skemmtilegt.

Kláraði að klippa Kýpur myndina fyrir nokkru. Því miður þurfti að seinka frumsýningu um viku vegna anna hjá aðalstjörnunni.

Það kemur þó ekki að sök því í dag erum við blikarnir búnir að vera leika okkur með kvikmyndatökuvél niður í Fífu að undirbúa skemmtiatriði fyrir uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambandsins. Tveir og hálfur klukkutími sem við vorum þarna, tókum upp rétt hálftíma af efni sem vonandi ætti að verða að finni 5 min sketchi og gríni.

Er búinn að ná öllu efninu af vélinni og yfir á réttu tölvuna og er að byrja að klippa. Sé fram á að nóttinn fari í það.

UPPFÆRSLA kl 04:00

Ok ég tek þetta tilbaka, þetta er ekkert skemmtilegt! Hehe. Finnst eins og upptakan (video skotin sjálf) hafi ekki heppnast nógu vel. Sá þetta einhvern veginn allt öðruvísi fyrir mér í hausnum en það sem er komið.

Annars er ég ekki byrjaður að klippa útaf fáránlegu veseni:

Fyrst capture-aði ég video-ið alltof lítið. Þegar ég setti það svo nógu stórt tekur það um 6gb. Ég þurfti að tengja camcorderinn við fartölvuna því hún er með FireWire tenginguna, en aftur á móti er borðtölvan með klippiforritið. Þá þarf ég að koma 6gb á milli tölvanna, þær eru tengdar með þráðlausu neti sem flytur 11mb/s ef allt er 100%. Þannig að það er bara dauði og djöfull. Fartölvan er ekki með skrifara þannig að ég get ekki skipt þessu niður á diska.  Þá dettur mér í hug að skera þetta í tvo bita og flytja á iPod á milli. Nema hvað að fartölvan er með USB 1 en ekki tvo. USB 2 færir um það bil 480mb/s á meðan USB 1 er með u.þ.b 12m/s. Fokk sjitt og Helvíti.

 



kl. 23:23 | Athugasemdir (4)

23.1.2006 : Love & Hate

Ég er ástfanginn. Hún heitir Rebekka. Við rákumst á hvort annað fyrir nokkru en í dag var svona fyrsti ekta dagurinn. Hún er ótrúlega nett og við getum gert næstum því allt saman. Hún hefur líka ótrúlegan áhuga á tónlist eins og ég. Þið getið séð mynd af henni hérna.

Ég veit ekki afhverju en þegar ég var að installa nanó-inum inn á tölvuna kemur upp "þú getur skírt ipodinn þinn" og ég ákvað semsagt að skíra minn Rebekku.

Ég fór út að skokka í dag. Doksi sagði að ég ætti að bíða í 6-8 vikur með að skokka og á miðvikudaginn eru komnar nákvæmlega 8 vikur frá því að ég fór í aðgerðina. Þetta var ekki frábært, en heldur ekki alsæmt. Fann samt til, sérstaklega í hægri. Ég vona bara að Stebbi sjúkri geti squeesað mér inn á morgun.

Ég ætlaði að skokka rosalega rólega, en það breyttist fljótt. Þegar ég er að fara snúa við og skokka aftur tilbaka heyri ég að það er gelt á mig. Geltin magnast upp og þeim fjölgar. Ég held áfram að skokka og lít til hægri og sé þrjá stóra hunda í einum garðinum alveg brjálaða, geltandi og urrandi á mig. Ég kippi mér ekki mikið við það, enda þeir inn í garði og ég á skokkstígnum. Auk þess sem garðurinn var girtur af og ég bjóst við að þeir væru í bandi. Þeir nálgast grindverkið og halla sér upp að því og gelta og urra á mig eins og þeir eiga lífið að leysa. Ég held sallarólegur áfram en tek svo allt í einu á harðarsprett þegar ég sé þessa þrjá hunda hoppa yfir grindverkið og á eftir mér! Sem betur fer var ég kominn með smá forskot á þá og þegar þeir höfðu hrekið mig nógu langt frá húsinu hættu þeir að elta mig. Ég held samt að ég hafi sjaldan hlaupið eins hratt, þetta voru engin smá flikki, þrjú stykki af þeim urrandi og hlaupandi á eftir mér...og nei ég veit ekki hvaða tegund þetta var, ég var of upptekinn við að flýja.



kl. 21:44 | Athugasemdir (3)

21.1.2006 : Bíllinn klesstur og ónýtur DVD

Dagurinn byrjaði frekar vel, en endaði ekki alveg nógu vel.

Í dag var dæmatíma sem átti að klárast um fjögur leytið. Þá ætlaði ég að rúlla niður í vinnu og vinna dálítið vel í þeim verkefnum sem þar bíða.

Dæmatíminn gekk vel og við losnum aðeins fyrr. Ég stelst til þess að skokka út í bíl, sesti upp í hann, spenni beltin og ræsi hann. Ég er að keyra burt af bílastæðasvæðinu hjá Háskólanum þegar allt í einu er bakkað út úr einu stæðinu og beint í hliðina á mér. Ekkert alvarlegt svosem en nóg til fá stóra beygju á brettið og framhluta bílsins.

Ég ætla að hringja niður í vinnu og láta vita að mér seinki, en þá deyr gemsinn minnn. Ég spjalla við hinn strákinn og við fyllum út skýrsluna í bílnum hans. Ég býst svo við að keyra bara heim, fannst þetta ekki vera það miklar skemmdir. Keyri smávegis en heyri truflandi hljóð í bílnum, stoppa, stíg út úr bílnum og athuga með beygluna. Í þeirri mund keyrir hann framhjá og ég vinka um leið ég skoða beygluna aðeins betur og hvað sé að valda þessum hljóðum.

"Æji þetta er ekkert" hugsa ég og sest aftur upp í bíl og held áfram. Hljóðin og titringurinn halda áfram og þegar ég er kominn að bóksölu stúdenta þori ég ekki að nauðga bílnum og legg bílnum við aðalbygginguna. Nú þarf ég að hringja í dráttarbíl, en síminn minn er ennþá dauður og skrifstofa HÍ lokuð á þessum tíma. Ég rölti því út í bóksölu og fæ að hringja í pabba þaðan sem pantar bíl hjá Krók.

Þá sit ég út í bíl í töluverðan tíma að bíða eftir dráttarbíl, hann kemur að lokum og keyrir bílin á verkstæði. Ég fæ far með dráttarbílnum að verkstæðinu en enda svo á að labba heim. Tók allt í allt um 2.5 klst.

Ég ákveð því að slappa bara af í kvöld og leigja mér DVD mynd í kvöld. Þegar það eru aftur á móti svona 5 min eftir af myndinni frís diskurinn og dettur út. Ég prófa þetta á öllum dvd spilirum heimilisins en allt kemur fyrir ekki diskurinn er steindauður seinustu mínúturnar. Þannig að ég fékk aldrei að sjá endan sjálfan.

Ég er nú samt ekkert að stressa mig á þessu, ég geri ráð fyrir að ég hafi verið í fullum rétti og ég býst við að ég fái nýjan disk á morgun endurgjaldslaust út á leigu. Bara fyndið í hverju maður getur lent. Ég sagði líka við strákinn sem keyrði á mig (enda vorum við afar afslappaðir útaf þessu óhappi) "góð leið til að byrja helgina ;)"



kl. 4:09 | Athugasemdir (2)

20.1.2006 : Fréttatilkynning

Stórmyndin KÝPUR er komin út. Þetta er sannkallað stórvirki sem hefur verið í framleiðslu í 2,5 ár Með aðalhlutverk fara Trausti Hannesson, Jón Karl Sigurðsson og Sverrir Örn Hlöðversson. Myndin fjallar um þrjá vini í útskriftarhverð og þau vandamál sem upp koma þegar einn þeirra velur sjóðandi heitt kynlíf framyfir vinina. Leikstjóri er Bergur Hallgrímsson. Kvikmyndaeftirlitið telur myndina ekki hæfa kærustum.



kl. 12:05 | Athugasemdir (4)

18.1.2006 : Skil og spil

Kíkti til Daða að skila scrabble spilinu sem Sigurjón fékk lánað (löng saga). Ég fékk þó að borga fyrir það, því þegar ég kem heim til Daða með spilið togar hann mig inn til að kíkja á tölvuna. Tölvan að deyja útaf vírusum útaf öllu kláminu sem Daði er að sækja og ef það er einhver sem kann að berjast við vírusu af völdum of mikils kláms að þá er það ég. Held að ég hafi náð að koma tölvunni aftur á rétta hlið.

Bjöggi hringdi svo í mig að mana mig í Catan ásamt Gísla, Hafdísi og Sveinbirni og auðvitað segi ég ekki nei við svoleiðis látum. Það er þó tvennt sem maður verður að passa sig á þegar maður spilar með Bjögga. Það fyrsta er að hann verslar eins og brjálæðingur. Maður kaupir kannski eitthvað til að nartí, en Bjöggi verslar þriggja-rétta nammimáltíð. Þessi maður bara tapar sér í snakk- og nammideildinni. Skemmst er að minnast þegar við bjuggum til drullukökuna góðu. Hið seinna er að hann er sá lúmskasti og ALLTAF bitnar það á mér. Ég er kannski kominn með 6 stig af 10 og Bjöggi er með 8 stig af 10. Þá heyrist í honum "USS! Sjáiði þetta, það þarf að fara passa Berg" eða "nei nú er bara viðskiptabann á Berg" eða "nei vá Bergur er að vinna þetta" þótt hann sé jafn mér eða jafnvel yfir. Svo laumast hann yfirleitt hægt og rólega meðan allir eru að reyna stoppa mig og tekur sigurinn. Þetta á semsagt til að gerast, en nei ekki núna. Hann beitti reyndar ölllum sínum sálfræðitrikkum en það var til einskins! Múhahaha!!

kl. 1:30 | Athugasemdir (8)

16.1.2006 : Full að keyra

Helgin var fín, kíkti meðal annars í útskriftarveislu til Tobba. Kallinn orðin véla- og orkutæknifræðingur. Kvöldinu eyddi ég svo í AutoCad teikningu en kíkti að lokum til Trausta og Guðrúnar í létt partý, þar sem var gengið frá mér í playstation. Fyrst í fótboltaleik og svo í singstar.Þegar klukkan var að verða þrjú skutlaði ég svo liðinu niður í bæ, en ætlaðu sjálfur heim.

Þegar ég er að labba að bílnum mínum sé ég stelpu, sjálfsagt um 25 ára, labba í átt að bílastæðunum. Hún er hálf skjagandi eftir gangstéttinni.. Eins og flest allir aðrir niður í miðbæt á laugardagskvöldum (sunnudagsmorgnum). Ég sé að hún tekur upp bíllykla og sest inn í bílinn við hliðina á mínum. Ég hugsa að þarna sé einhver að fara keyra heim fullur eftir djammið, en ákveð að sjá til og bíða aðeins. Hún dregur upp bíllyklana og ræsir bílinn. Ég pæli hvort ég eigi að fara skipta mér að þessu. Ég veit ekkert hvort hún sé búin að drekka, en ákvað eftir smá  smá umhugsun að banka á rúðuna hjá henni. Hún skrúfaði niður rúðuna og ég heilsaði. Ég leit á hana og fannst nú nokkuð augljóst að hún hafði verið að drekka, eins og mig grunaði. Roði í kinnunum og augnaráðið, hvernig hún horfði á mig, gaf það til kynna. Hún hafði ekki verið að drekka mikið að mínu mati, ekki orðin glær í augunum og alls ekki þvoglumælt, en samt sem áður sást það að hún hefði fengið sér meira en einn bjór með kvöldmatnum. Ég spyr hana hvort hún sé í ástandi til að keyra. Hún horfir spekúlerandi á mig, eins og hún sé að reyna lesa mig og svarar á móti "jájá, ég ekki búinn að fá mér einn sopa í kvöld". Ég horfi betur á hana til að sannfæra mig um að ég hefði rétt fyrir mig, hún væri að ljúga,  og segi að lokum "ertu viss?". Hún hikaði ekki "já treystu mér". Það var lítið meira sem ég gat gert, fannst mér. Ég segi því að lokum "jæja, góða nótt, keyrðu varlega"



kl. 3:19 | Athugasemdir (5)

12.1.2006 : Dodgy looking guy

Rétt í þessu bankaði maður upp á hurðina niður í Hugsmiðju og spurði hverskonar starfsami væri hér. Ég svaraði að þetta væri Hugsmiðjan (hélt að hann væri að leita að Birtingarholti eða Basis sem eru í sama húsnæði). Maðurinn segir þá "nei hverskonar starfsemi?", ég svara þá að þetta væri vefstofa. Hann virðist ekki heyra og endurtekur "verkstofa?". Ég leiðrétta hann og segi "nei vefstofa". Hann virðist ekki vita hvað hann eigi að segja næst en segir að lokum "jáááá svoleiðis". Þá kemur löng þögn og ég spyr "nú? Get ég eitthvað aðstoðað?" Hann muldrar eitthvað sem ég heyri ekki og kveður snögglega. Mér fannst þetta frekar skrítin hegðun og fékk að á tilfinninguna að allt væri ekki eins og það ætti að vera. Ég stend upp og labba fram á gang og segi: "Fyrirgefðu ég heyrði ekki hvað þú sagðir?" og fæ á móti "er ekki allt í lagi með þig?". Ég verð pínu hvumsa en segi strax "jújú ég heyrði bara ekki hvað þú sagðir", hann starir þá á mig og segir með hvössum tón : "erum við ekki kvitt!?". Ég fattaði ekki hvað hann átti við með því en segi "ég ætlaði að bara athuga hvort ég gæti aðstoðað þig?" og fæ á móti "þú ert þegar búinn að því" sem ég svara þá með "gjörðu svo vel".

Þótt ég viti ekkert um manninn eða ætlanir hans, fékk ég pínu á tilfinninguna að það væri verið að scope-a staðinn.

kl. 14:10 | Athugasemdir (4)

11.1.2006 : Huggun

Stundum er ég eins versti kvennmaður. Þar sem ég gat ekki fengið 4gb nano í gær þurfti ég eitthvað til að hugga mig. Hvað er þá betra en fara út og kaupa nýtt skópar. Þetta voru reyndar ekki Manolo Blahnik heldur Nike. Nánar tiltkeið Nike Free 5.0. Prófaði að ganga um heima í þeim og ég er bara mjög sáttur, maður á víst að byrja að nota þá lítið og vinna sig upp í notkun, þannig að það hentar mér vel.

kl. 3:08 | Athugasemdir (4)

10.1.2006 : 2gb vs 4gb

Ætlaði loksins að gerast maður með mönnum og fjárfesta í einu stykki iPod Nano. Varð aftur á móti helvíti svekktur þegar ég kom upp í Apple umboðið og því þar var mér tjáð að 4gb nano væri ekki til og kæmi ekki fyrr en kannski eftir 2 vikur. Nú veit ég ekkert hvað ég á að gera?? Ég fékk nefnilega iPod Shuffle í jólagjöf og ætlaði að skipta upp í nano. Ég var ekki viss hvað ég ætlaði að gera og tók því bara inneignarnótu sem ég gæti þá notað hvort sem er upp í 2gb eða 4gb nano-inn.

Þetta eru möguleikarnir sem ég hef:

1) Láta 2gb duga og eignast iPod nano núna sem ég get byrjað að nota.

2) Bíða í u.þ.b 2 vikur og kaupa 4gb nano.

3) Versla í gegnum shopUSA, það munar 900 kr. á verðinu. Fæ hann á svipuðum tíma, ef ekki fyrr. Ég get látið grafa í hann, en ég get þá ekki notað inneignarnótuna.

Aaarg. Mig langar svo í hann núna, en það munar bara 5000 kr á 2gb og hann þyngist ekkert við það.



kl. 12:59 | Athugasemdir (8)

7.1.2006 : Byrja á mánudaginn

Þá fer allt saman að fara hægt og rólega í normal gír. Skólinn byrjar á mánudaginn og ég stefni þá að fara æfa líka á fullu. Það felur reyndar í sér hjól og lyftingar. Hlaupin verða bíða í aðrar fjórar vikur.

Þetta er búið að vera mjög góð hvíld, en ég hlakka ekkert smá til að fara æfa aftur og ekki veitir af. Reyna ná þessu konfekti og smákökunum af sér. Í raun hlakka ég rosalega til að setjast á þrekhjólið á mánudagsmorgun. Ætla að reyna koma mér í sem best "strength & condition" -fittness form sem ég get svo byggt á þegar ég byrja aftur á hlaupa. Þannig ætti ég að geta verið ágætlega staddur.

Ég er samt ennþá pínu stressaður, því hægri kálfinn er ennþá að bögga mig. Ég finn gríðarlegan mun á vinstri kálfanum fyrir og eftir aðgerð og á tímabili gilti það um þann hægri, en það hefur breyst upp á síðkastið. Ég er búinn að reyna vera teygja og teygja á honum en það gengur lítið.

Ég kvað því að panta tíma hjá nuddara og láta hann hamast á kálfunum, en auk þess keypti ég mér nuddtæki í Elko svo ég gæti reynt að þjösnast á kálfunum sjálfur og reynt að losa um.



kl. 19:52 | Athugasemdir (4)

4.1.2006 : Hittingur, vinna og doksi.

Við ákváðum að hittast á mánudaginn strákarnir úr versló, sem deildum herbergi á Kýpur saman. Hittumst hjá Jón Karli og spiluðum og spjölluðum. Ótrúlega gaman að hittast allir saman aftur og fíflast aðeins.

 

Ég er byrjaður að vinna líka aftur. Vann strax eftir prófin og farm að jólum, en ákvað að vinna ekkert milli jóla og nýárs og reyna slappa sem mest af. Nóg að gera í vinnunni.

 

Ég var búinn að vera pínu stressaður útaf kálfunum. Því um svona 19. des byrjaði ég að finna fyrir smá stífleika upp í kálfavöðvanum sjálfum. Ekki í hólfinu sem hann skar. Ákvað samt að gera ekki mikið veður út af þessu og sjá hvernig þetta þróaðist, en á gamlársdag var þetta ennþá að bögga mig smá og hafði því samband við Brynjólf sem skar mig. Fékk tíma hjá honum í gær, en hann gat ekki séð betur að það virtist allt vera eins og það ætti að vera. Sagði mér bara að fara setja meira álag á þetta hægt og rólega. Sem ég stefni að því að gera.

 

Svaf svakalega yfir mig í dag, var ekki mættur niður í vinnu fyrr en klukkan 11. Ég hef verið bara með einhverja uppsafnað þreytu. Ætla því að vinna aðeins lengur í dag, en fer svo til Hafdísar að spila og spjalla með Kristínu og Bjögga.



kl. 13:05 | Athugasemdir (3)

31.12.2005 : Staðan

Mér gengur ágætlega að klára "planið mitt" fyrir jólin.

  • Lesa einhverja spennusögu: Robbi gaf mér Krosstré eftir Jón Hall Stefánsson sem ég er að lesa. Alistair McLean bíður því um sinn.
  • Lesa heimsbókmenntir: Það verður einnig að bíða þangað til að ég klára Krosstré.
  • Spila Civilization út í gegn: Það hefur tekist mjög vel, ég hef setið nokkuð í honum.
  • Hóa saman í smá LAN: Hef ekki ennþá gert neitt í því en spurning að gera það fljótlega eftir áramót.
  • Fara á King Kong og Chronicles of Narnia: Fór á Chronicles of Narnia með systrum mínum og skemmti mér vel en á enn eftir að sjá King Kong. Það verður einnig gert á næstu dögum. 
  • Borða yfir mig af góðum mat: Það hefur líka tekist mjöög vel.
  • Vonandi að byrja hreyfa mig rólega: Ekki annað en teygjur og þessháttar fyrir kálfana, en stefni á þrekhjólið, laugina og lyftingarsalinn eftir áramót.
  • Hitta vini og kunningja: Það hefur einnig tekist mjög vel en samt ennþá eftir að hitta þær vinkonur Hafdísi, Kristínu og Ernu almennilega.
  • Reyna troða mér á einhver spilakvöld: Það hefur sömuleiðis tekist mjög vel en eins og að ofan að þá á ég eftir að hitta stelpurnar.

Held að næst á dagskrá sé King Kong.



kl. 13:39 | Athugasemdir (2)

28.12.2005 : Allt samkvæmt áætlun

Allt eins og það á að vera. Búið að vera mjög næs og skemmtilegt seinustu daga. Ég keyrði út pakka og jókakort á aðfangadag eftir árlega möndlugrautin hjá Ömmu með systkynum pabba.

Jenný frænka og dætur henna eyddu aðfangadagskvöldi með okkur. Það myndast allt öðruvísi stemming þegar það eru svona ungir krakkar með. Þið getið ímyndað ykkur 6 ára stelpu sem klæðir sig í Öskubuska og Mjallhvítardress frá A-Ö hleypur um allt húsið að þá verður einfaldlega miklu meira líf. Það varð líka allt brjálað þegar hún áttaði sig á að það fylgdi ekki EKTA bað með nýju Baby-Born dúkkunni. Hún vildi fá ekta bað með, ekki dúkkubað!

Jóladagur var líka mjög fínn. Fórum í kaffiboðið til Diddu frænku, eins og vanalega og hittum stórfjölskylduna og svo var spilað fram á kvöld. Fyrst með fjölskyldunni en svo með Jóhönnu og Co eitt skemmtilegasta pictionary/actionary spil sem ég hef upplifað. Ég var allavega orðinn sveittur.

Diskókvöld Margeirs var svo á öðrum á jólum. Ómissandi, þar sem þetta var nú tíunda og seinasta skiptið. Kallinn hélt þetta eeeeðalshow á Óðal. Ótrúlega flott og vel heppnað. Ég, Sigurjón og Hrafn hittumst heima hjá Reyni til að hita upp. Ég dansaði af mér rassgatið. Hann átti að hætta klukkan þrjú, en stemmingin var svo mikil að klukkan hálffimm voru dyraverðirnir alveg búnir að fá nóg. Mér fannst fyndið að þegar strippararnir voru ekki upp á súlunni reyndu þær íslensku (sem komu bara á diskókvöldið) sem kom alveg mjög misvel út. Ég þakka diskó Margeiri bara kærlega fyrir mig.

Í dag fórum við systkynin á Pizza Hut og svo á Chronicles of Narnia. Hlynur var reyndar eitthvað að veikjast þannig að hann komst ekki í bíó, en þetta er hin fínasta mynd. Algjör svona epísk ævintýramynd.

Ástæðan fyrir að þetta blogg er svo skrifað klukkan 04 um morguninn er að ég er búinn að sitja yfir Civ IV og hætti ekki fyrr en ég var búinn að rústa Roosevelt og Viktoríu Englandsdrottningu.



kl. 3:59 | Skrifa athugasemd

23.12.2005 : Nostalgía

Nostalgía

Prófin afstaðin og ég er byrjaður að vinna. Nóg að gera og inn á milli kemur jólastússið. Náði samt að versla mest allt í gær og útbúa jólakortin.

Ég ætla að standa að kortagerðinni öðruvísi en seinustu ár. Þá sendi ég kannski 20-30 kort á flest alla félaga og vini. Það eru aftur á móti ótrúlega fáir sem senda jólakort. Ég fæ alltaf jólakort frá sama fólkinu og ákvað því að gera færri en persónulegri og betri jólakort í staðinn fyrir að senda á nógu marga.


Eitt af því sem ég var að gera í jólastússinu var að taka niður tölvuna á ganginum og setja inn til stelpnana. Þegar ég tók niður tölvuborðið sá ég aftur á móti box af diskettum. Þið vitið þessar gömlu 1.4mb diskettur. Ég fékk ótrúlegt flashback. Þetta er frá DOS tímanum góða og það sem ég kunni best var að zippa leiki í DOS. Algjör matrix fílingur. Þarna fann ég semsagt slatta af gömlu góðu leikjunum t.d. Dune II sem tók heilar 4 diskettur og viti menn ég fann Civilization I. Magnaður leikur, ég keypti III í sumar og var að fá fjarkann (IV) lánaðan yfir hátíðarnar. Stóri leikurinn sem ég tók samt eftir var Indiana Jones and the fate of Atlantis.
Ég gleymi aldrei grafíkinni, vá ég var að tapa mér yfir hversu flottur leikur þetta var. Sérstaklega close-up myndirnar.Indiana Jones closeup
Þessi leikur tók líka fokkin fimm diskettur þegar hann var zippaður. Sem er þá um 7mb zippað!

Ég fékk bara ótrúlega nostalgíu tilfinningu og vellíðan eins og ég væri orðinn 14 ára aftur. Það var svo skemmtilegt að spila þessa LucasArts leiki.

Seinustu jól tók ég mig til og spilaði Monkey Island. Aaah good times. Þetta eru sjálfsagt eitt af best skrifuðu tölvuleikjum í geimi, húmorinn, ævintýrin, samræðurnar, uppákomurnar. Bara allt saman gera þetta af einum besta adventure leik allra tíma.

Ég man líka eftir fyrsta leiknum sem ég spilaði á geisladisk. Það var annaðhvort Command & Conquer eða Full Throttle.

Full Throttle box front
Hversu kúl leikur var Full Throttle. Eitur svalur leikur. Rokkhljómsveit sem átti hugmyndina að leiknum og því var geggjuð tónlist í honum. Ég man þegar ég var í Varmalandsskóla að þá var ein tölva sem réði við þennan leik. Svo sátum við strákarnir, sérstaklega ég og Hákon í þessari tölvu að spila þennan leik á kvöldin. Útaf hljóðinu höfðum við líka tengt stóru græjurnar sem skólinn átti og notaði á diskótekum við tölvuna og blöstuðum allt sem við gátum. Teiknuðu animation-in sem komu inn á milli í bland við þessa geggjuðu rokktónlist, þvílík tilfinning og ástand sem maður komst í. Hávaðinn var líka yfirleitt það mikill að Unnar íslenskukennari þurfti að koma og láta okkur lækka svo aðrir gætu verið í skólanum.

Guybrush Treepwood
Vá hvað ég vildi að lífið væri stundum eins einfalt og þegar maður var 14 og þurfti bara að hafa áhyggjur af því að finna Atlantis með Indiana Jones, vera í hlutverki  svalasta og harðasta móturhjóla töffara sem uppi hefur verið. nú eða reyna gera almennilegan sjóræningja úr hinum glatað, klaufalega en hjartahlýja Guybrush Threepwood.



kl. 22:16 | Athugasemdir (8)

19.12.2005 : Jólaskapið að koma en hausinn að fara

Ég er ekki frá því að ég hafi komist í smá jólaskap á laugardagskvöldinu. Pabbi útbjó þessa fínu jólaglögg sem fjölskyldan drakk saman og nartaði (lesist: hámaði) í piparkökur. Svona jólaglögg er alveg ótrúlega góð. Allt húsið fyllist af ótrúlega góðri jólalykt, svona appelsínu-neguls-kanil lykt.

Ég er sauður. Calenderinn er orðinn stútfullur af tímum hjá lækni, sjúkraþjálfara og cranio. Í dag tókst mér svo að ruglast algjörlega á tímum. Ég mætti semsagt til Stebba sjúkra klukkan 13:00, og beið og beið og beið fyrir framan dyrnar. Ég gerði ráð fyrir að það væri bara svona mikil seinkun á kallinum því klukkan 13:30 opnast hurðin. Ég fer inn, hann kíkir á þetta og skýtur smá laser á. Þegar nokkuð er liðið á tíman er bankað á hurðina og eldri kona kemur inn "fyrigefðu er ég að ruglast á tímum, ég hélt að væri hálf tvö?". Stebbi verður pínu hugsi, lítur í tölvuna og segir svo allt í einu "Bergur, þú átt ekkert að vera hér, þú átt tíma klukkan 15:30".  Stebbi kláraði samt enda vorum við komnir langleiðina þegar konan kom inn. Þegar ég er svo að fara frá Stebba fæ ég sms frá Mörthu:  "Hæ Bergur, gleymdiru cranio". Týpískt ég að ruglast á einhverju svona.

 

Það sem var samt skemmtilegast var þegar ég var búinn að vera bíða eftir tímanum "mínum", því þegar Stebbi opnar hurðina labbar engin önnur en Erna Dögg út. Ég var eitthvað út á þekju, heyri bara "nei hæææææ" og svo er ég allt í einu faðmaður. Tók mig svona hálfa sekúndu að átta mig. Bjóst einhvern veginn ekki við hitta á hana þarna, en það var ekkert smá gaman að sjá hana eftir svona langan tíma!

kl. 15:40 | Athugasemdir (3)

17.12.2005 : Þetta er strax byrjað

Þetta er strax byrjað:
Unnur Birna Emotion Chart

Þegar það er byrjað að gera svona grín á netinu, að þá veistu að viðkomandi er celeb.

Ætli hún megi ekki búast við meiru svona á næstu vikum.



kl. 20:27 | Skrifa athugasemd

17.12.2005 : Plan fyrir jólafríið

Tvö próf búin, tvö eftir. Hagverkfræði á mánudaginn sem ætti að rúlla nokkuð þægilega í gegn og stærðfræðigreining á miðvikudaginnn sem ég er alls ekki búinn að vera sinna nógu vel.

Ég sé jólafríið alveg í hyllingum. Búin að vera hugsa aðeins um jólagjafir og veit hvað ég ætla að gefa stelpunum, en veit ekki alveg hvað ég á að gefa mömmu, pabba og Hlyn.

Ég er aftur á móti búinn að ákveða nokurnveginn hvað ég ætla að gera í fríinu:

  • Lesa einhverja spennusögu, t.d. Byssurnar frá Navarone eða eitthvað annað með Alistair McLean.
  • Mikil pæling líka hvort maður eigi að leggja í einhverjar heimsbókmenntir eins og Don Kíkóta.
  • Spila Civilization út í gegn.
  • Hóa saman í smá LAN með Bergi frænda, Hlyni og einhverjum vel völdum einstaklingum og spila fram á nótt.
  • Fara á King Kong og Chronicles of Narnia.
  • Borða yfir mig af góðum mat.
  • Vonandi að byrja hreyfa mig rólega.
  • Hitta vini og kunningja.
  • Reyna troða mér á einhver spilakvöld.


Þetta er svona það sem mig langar að gera í jólafríinu. Ég er reyndar mikið að pæla hvort ég eigi að reyna vinna eitthvað eða taka því rólega. Maður getur náttúrlega alltaf þegið auka pening en mig langar líka ótrúlega að slaka á og njóta jólanna í botn.



kl. 11:33 | Athugasemdir (4)

15.12.2005 : Umbúðirnar af

Fór í sjúkraþjálfun til Stebba í dag. Hann klippti umbúðirnar af. Þær eru voðalega vígalegur og það lítur út eins og ég hafi hafi verið í heljarinnar aðgerð. Þegar allur bómbullinn, grisjurnar og vafningarnir eru farnir af stendur bara einn lítll plástur eftir. Hálf asnalegt finnst manni hvað læknavísindin eru komin langt. Það þarf ekki nema bara smáskurð á þetta, og svo fer hnífurinn bara undir og sker. Stebbi tók svo plásturinn af og skaut laser á þetta og gekk aftur frá. Ætla að nýta mér laserinn sem mest til að reyna flýta fyrir.

Þetta er líka fyrsti dagurinn sem ég rölti allt sem ég fer og ég keyrði meira að segja líka. Ég ákvað því að kíkja á æfingu til krakkana en það var nú frekar fámennt. Spjallaði samt dálítið við Jón Sævar.

Ég hitti einnig Halldór Lárus, hann er búinn að vera æfa núna í 3 vikur en það eru um 10 vikur síðan hann fór í sömu aðgerð hjá sama lækni. Þegar ég kem situr hann eitthvað á brautinni og ég spyr hvort það sé eitthvað að og þá kemur "æji ég var bara að fá verk aftur í kálfana" Eruði ekki að grínast? Ég fölnaði, þetta var önnur aðgerðin hjá honum, því ekkert gekk og það sama hér mér. Hann hefur séð hvað mér brá því fljótlega kom "...eeen það kemur ábyggilega ekki fyrir þig, ég held að þetta sé annað".

Annars líður mér bara frekar vel, nú koma erfiðu dagarnir. Það er ekkert mál að hreyfa sig þegar maður hreinlega getur það ekki og liggur fastur upp í sófa. Núna aftur á móti gæti ég alveg farið að pína mig til að hlaupa dálítið, en ég verð að sýna skynsemi. Ég hef bara alltaf verið með frekar háan sársaukaþreskuld þegar það kemur að svona löguðu og því gæti alveg hvarlað að mér að fara æfa þegar ég á ekki að vera að því.

Mér líður mun betur eftir þessa aðgerð, ólíkt þeirri fyrstu. Þá gat ég ekki ímyndað mér að æfa ótrúlega lengi. Prófaði þó að taka smá æfingu eftir 8 vikur (6-8 vikur hvíld sagði læknirinn) og þá beit í höndina allan tíman útaf sársauka. Ég gat semsagt ekki ímyndað mér að æfa lengi.

Nú er sagan aftur á móti allt önnur, mig dauðlangar að fara á þrekhjólið, lyfta og hægt og rólega færa mig í skokkið. Ég á nú samt ennþá eftir að losna við saumana, þannig að það er sjálfsagt skynsamlegast að bíða með það. Greinilegt hvað læknar vinna mismunandi, í fyrstu aðgerðinni voru bara notaðir lífrænir saumar sem eyðast upp með tímanum. Í þessari voru aftur á móti notaðir nylon sem þýðir að það þarf að draga þá úr.

Ég losna við sauman þann 20 des. Ég stefni því á að hjóla og synda af mér jólaspikið. Vonandi verð ég svo byrjaður að skokka í lok janúar, en fram að því verða það sérhæfðar kálfaæfingar til að gera þá tilbúna fyrir komandi átök. Því ég stefni á mikil átök fyrir komandi sumar ef allt gengur eftir.



kl. 0:59 | Athugasemdir (5)

14.12.2005 : SMS

Vaknað nú rétt í þessui við eftirfarandi sms:

Er að versla í xxxxxxxx og afgreiðslukonan er FOXY! Ég HEIMTA að þú farir og bjóðir henn á date!! P.s hún er með flott brjóst.

Það er gott að sjá að maður eigi umhyggjusama vini sem hugsa um mann.



kl. 11:32 | Athugasemdir (7)

13.12.2005 : Drífa og bakstur

Svona hefur lærdómurinn semsagt gengið. Ég ligg upp í sófa og reyni að lesa. Drífa hundurinn okkar er aftur á móti mest ofdekraði hundur í geimi.

Drifa

Alltaf þegar maður leggst eða sest upp í sófa. Stillir hún sér fyrir framan sófann, þótt hún geti hoppað upp í hann og byrjar að væla og væla þangað til maður lyftir henni upp í. Þá er hún eins köttur labbar um og leitar sér að góðum stað til að leggjast.

Hún er ekkert smá loðin, en samt sem áður neitar hún hreinlega að leggjast á parketið. Hún er svo mikið frú að hún finnur sér alltaf eitthvað til að leggjast á, skólatösku eða annað þvíumlíkt. Þegar hún finnur ekkert fer hún á stjá og dregur það. Fer t.d. inn í geymslu/þvottahús og finnur óhrein föt sem hún dregur þá fram og leggst á.

Eina undantekningin þar sem hún leggst á gólfið er þegar sólin skín á það og hitar það. Þá kemur hún sér þannig fyrir að sólin skíni beint á hana og þannig sér maður hana breyta um stöðu og hreyfa sig eftir færslu sólar.

Ég gæti talað upp endalausa hluti um hana Drífu, en læta þetta duga. Þess í stað ætla að lýsa yfir ánægju minni að fyrstu smákökurnar voru bakaðar í gær. Hmm bóndakökur og mjólk.



kl. 13:20 | Skrifa athugasemd

12.12.2005 : Prófin

Eitt próf búið, þrjú eftir. Fílingurinn bara nokkuð góður og ég fór tiltöllega snemma að sofa eða rétt um eitt leytið. Mér fannst prófið ganga nokkuð vel, en þetta er það fag sem ég hef alltaf látið sitja á hakanum þegar ég hef þurft að taka vinnu eða æfingar fram yfir skólann. Ætla ekki að fara skjóta á neina einkunn, þetta kemur allt saman í ljós.

Undirbúningurinn fyrir prófin hefur náttúrlega ekki alveg gengið eins og ég hefði viljað. Ég hefði náttúrlega viljað setja fleiri daga í þetta, en það er bara ekki hægt að reikna liggjandi á bakinu og sömuleiðis verður maður frekar sljór af því að bryðja parkódíni forte.

Ég á nefnilega frekar erfitt mað sitja því ég stífna svo upp í löppunum við það. Það er mun betra að liggja fyrir (eins og doksi rálagði) það léttir á þeim. Ákvað reyndarfyrir prófið taka ekki inn verkjastillandi, þótt ég þyrfti að setja í 3klst. Það var annaðhvort verkir vs sljóleiki og eins Mr. T orðaði það "No Pain No Gain".

Ég er samt byrjaður að geta hreyft mig sæmilega, og fór meira að segja. á hækjunum með Önnu, Robba og Unni í smá ísrúnt á laugardagskvöldið. Var orðinn alveg brjálaður á að liggja svona fyrir. Það er fínt að liggja og geta ekki gert neitt fyrsta dagin, en svo eftir það verður þetta afar þreytandi verð ég að segja.



kl. 14:42 | Athugasemd (1)

10.12.2005 : Miss World

Oh ertu ekki að grínast. Skrifaði eftirfarandi grein inn í kerfið í gær, án þess að birta hana, en setti sem uppkast. Náði ekki að klára hana þar sem ég var að hjálpa systrum mínum að læra.
Uppkastið er svo hljómandi

Lá og horfði á enn eina Miss World kynninguna í kvöld og þá sá ég mína mannesku; Miss Puerto Rico. Hún er mitt uppáhald, en Hlynur segir Mexico. Get reyndar tekið undir með honum. Þær eru fallegastar að mínu mati. Svo heldur maður náttúrlega með UB.

Ég og Hlynur er búum að vera algjörar karlrembur fyrir framan sjónvarpið og horfa á þessar kynningar og kommenta jafnóðum á hverja stelpu; "ljót" "njaa allt í lagi" og "sæt" og fleira álíka komment. Sum verri, sum betri.

Svo fréttir maður að UB hafi unnið, Mexico í öðru og Puerto Rico í þriðja. Hver segir svo að maður hafi ekki vit á kvennfólki?

kl. 15:03 | Athugasemdir (3)

7.12.2005 : Sófalega & Miss World

Skrítið, mér liður eiginlega verr í löppunum í dag en í gær. Búinn að vera hálfsofandi og vankaður í allan dag. Það er ekki bara fæturnar einhver pirrandi hausverkur og slappleiki í gangi.

Ég hef ekki mikið hreyft mig, annað en að staulast á hækjum fram í eldhús og klósett. Hef mest megnis legið upp í sófa með hátt undir löppunum. Næ ekki mikið að einbeita mér að lærdómnum því miður en vonandi verð ég hressari á morgun.

Ég fann mér aftur á móti hina fínustu dægrastyttingu og það eru Miss World kynningarnar. Sumar ffinnst mérbara hreinlega ALLS EKKI fallegar og sumar bera sig rosalega illa. Persónulega finnst mér svona keppnir alltaf hálfskrýtnar. Er hægt að keppa í að vera fallegust? Spurning um að æfa sig daglega í að vera fallegur. Er þetta ekki meira svona Hver-Á-Besta-DNA-Pollinn Keppni?

Ég sá ekki Norður-Evrópu sem var á mánudaginn, en Asía var í gær og þar fær Ungfrú Ástralía stórt hrós fyrir kynninguna sína "Hi I'm Miss Australia. My name is Dennae and when I'm not here making a fool of myself I work as a legal secratary". Fyndið að átta sig á þessu. Betra heldur en "My name is Unnur Birna, but you can call me UB"



kl. 11:38 | Skrifa athugasemd

6.12.2005 : Aðgerðin

Jæja þá er aðgerðin búin og líður bara nokkuð vel. Ligg upp í sófa með hátt undir fætur bryðjandi á bólgueyðandi og verkjastillandi. Undir það flokkast Indocid, Voltabren Rapid, Parkódín Forte og Chocolate Chip Cookies. Held að þær geri mikið gagn - spila lykilhlutverk í þessu recovery ferli ;)

Fæturnir eftir aðgerðina

Finnst alltaf jafn skrítið að láta svæfa mig. Fékk þrjár sprautur og hann eftir þá fyrstu fær maður svona óbragð í munninn og líður eins og maður sé ótrúlega vankaður en ég var samt ennþá með fullu viti. Ég er eitthvað að spjalla við svæfingalæknin og eftir þá þriðju segi ég eitthvað eins "já vá nú finn ég að ég ...zzzzz" Steinrotaður. Seinast að þá átti ég telja niður frá tíu og það var einhvern svona "þetta á aldrei eftir að virka - tíu - níu - á...zzzzz"

Skrítin tilfynning að fara að sofa og líða nokkuð vel en vakna svo með verk í löppunum "alveg upp úr þurru".

Tek því rólega næstu daga, hen var forsjáll og fór til Bjarna og Fjólu að sækja með stultur þannig að ég get eitthvað hreyft mig, en virka samt takmarkað þar sem ég var skorinn á báðum fætum.



kl. 21:35 | Athugasemdir (9)

6.12.2005 : Kítl

Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey
1. Fara í fallhlífastökk
2. Mæta á ólympíuleika
3. Ferðast og skoða heiminn
4. Giftast og eignast börn
5. Hlaupa 400m á 47 sek.

Hlutir sem ég get gert
1. Eldað
2. Útskýrt hluti fyrir fólki
3. Tapað klukkutímum í tölvunni
4. Borðað eeendlaust af mat, meira en flestir
5. Haldið ró við ótrúlegustu aðstæður

Hlutir sem ég get ekki gert
1. Saumað
2. Verið reiður til lengdar
3. Hætt að æfa
4. Sungið eins og engill
5. Hlaupið 400m á 47 sek ;)

Hlutir sem heilla mig við hitt kynið
1. Líkamlegt og andlegt heilbrigði
2. Útlit og útlínur
3. Ró
4. Sjálfsöryggi (hvernig hún ber sig)
5. Kímnigáfa (sérstaklega að geta hlegið að sjálfri sér)

frægir kvenmenn sem heilla mig
1. Aishwarya Rai
2. Charlize Theron
3. Heidi Klum
4. Jennifer Aniston
5. Adriana Lima

Hlutir sem ég sé núna
1. Tölva
2. Hljómflutningsgræjur
3. Sjónvarp
4. Gaddaskór
5. Nammipoki

Orð sem ég segi oft
1. afsakiðhvaðégkemofseint
2. Crap
3. sett / rep
4. jessör
5. góða nótt

Manneskjur sem ég ætla að kitla
1. Eyju
2. Hlaupagellur
3. Óla
4. Sigurjón
5. Silju

3.12.2005 : Tónleikar

Kíkti á tónleika í gær á Grandrokk. Leaves að spila og The Telepathetics að hita upp. Allt saman mjög skemmtilegt og flott, en aftur á móti alveg fáránlegt hvað það var mikil seinkun. Grandrokk var greinilega ekki með sína hluti á hreinu, það var einhver popptrivia í gangi þarna fyrr um kvöldið og því gat soundcheckið ekki hafist fyrr en seint og síðir.

Tónleikarnir áttu að byrja klukkan 11:00 þannig að ég mæt 10:50 þannig að ég sé nokkuð öruggur með sæti og bílastæði. Þegar ég mæti er ekki hræða, bara gömlu fyllibytturnar, þannig að þarna sat ég einn út í horninu á Grandrokk með gömlu byttunum sem voru þvoglumæltari en allt og reyndu að halda uppi samræðum við stúlkuna á barnum. Var frekar mikið eins og illa gerður hlutur þarna.

Lagaðist þó örlítið þegar Auður og Maggi komu, en þá vorum við allavega þrjú sem stóðum út úr. Ég beið í um klukkutíma, því um tólfleytið var loksins byrjað að hleypa upp. Telepathetics byrjðu svo rétt fyrir klukkan eitt og þá var ég búinn að hanga í 2 tvo tíma með Auði og Magga, reyndar kíktu Bergur frændi og félagar fljótlega við, en það var greinilegt að sumir voru í góðu stuði að halda upp á afmælið.

Hata samt að fara sofa eftir að fara á lífið, þessi reykingarfíla sem hreinlega er pikkföst á manni og manni líður eiginlega ekki vel þegar maður leggst upp í rúm. Svo þegar ég vaknaði var ég ótrúlega þurr í munninum og með smá vott af hausverk. Alveg ótrúlegt hvað þessi reykur fer í mann.

Á morgun er svo kaffi hjá ömmu, þrjú tilefni eiginlega; aðventukaffi, Bergur frændi á afmæli 2 des og svo hefðu amma og afi átt brúðkaupsafmæli 6. des



kl. 23:26 | Athugasemdir (6)

1.12.2005 : Crap

Vá hvað ég er búinn að vera orkulaus og slappur. Var t.d. lveg búinn á því á æfingunni á mánudegi, náði ekki að klára lyftingaræfinguna og fór því bara í fílu heim, bölvandi yfir aumingjaskapnum.

Ég held að ég hafi bara verið að gera of mikið. Æfa 8-10 sinnum í viku seinustu 5-6 vikur og aldrei undir 6 frá því að við byrjuðum að æfa. Aldrei tekið létta viku þegar þær eru á prógramminu og seinasta sunnudag tók ég enga hvíld heldur (vanalega hvíli ég alltaf á sunnudegi). Þar fyrir utan er það náttúrlega vinnan sem tekur tíma og eykur á stressið og skólinn að sjálfsögðu en það er búið að vera ótrúlega mikið af heavy hópverkefnum, þannig að það er extra álag.

Ég ákvað því að hvílast bara heima á þriðjudegi og miðvikudegi og reyna ná þessu úr mér. Ætla líka að fara yfir hversu margar kkcal ég er að innbyrða, kannski er það bara alltof lítið, ef ég er alltaf svona orkulaus. Þarf að tékka á þessu. Málið er bara að ég fer í aðgerðina 6. des og dett þá út í 6-8 vikur og ætlaði bara að reyna æfa eins mikið og ég gæti þangað til. Ég er bara ekki vanur þessu álagi, þarf samt að fara venja mig á það, ef maður ætlar að ná einhverjum árangri.

Heiður systir er líka búin að vera dálítið í prófum og ég hef því setið mjög mikið með henni að rifja upp gamla taka úr 8. bekk. Lærði t.d allt sem ég þurfti um stjörnufræði stanslaust frá 17-23 í gær.

Núna ætla ég aftur á mót að kíkja á stærðfræðina með henni á meðan ég reyni að sansa til í herberginu mínu til að gera það lærdómshæft. Fyrsta próf 12. des. Hópverkefnin búin og því þarf maður að fara koma sér í gírinn.



kl. 16:11 | Athugasemdir (2)

26.11.2005 : Blogg

Jæja ég ætla aðeins að reyna girða í brók varðandi þetta blogg. Frábært orðatiltæki sem hann verkefnisfélagi minn Einar Odds kom með.

Potterinn var fínn, V.I.P er líka ágætt öðruhverju. Lay-Z-Boy og ótakmarkað gos (light sko) og popp. Það eru samt tvær myndir sem mig langar að sjá á næstunni og það er King Kong og The Chronicles of Narnia. Held að það verði skemmtilegar myndir, sérstaklega Narnía. Man fólk ekki eftir þáttunum sem voru sýndir á RÚV?

Svo stalst ég niður í nýju frjálsíþróttahöllina í dag, hún er ótrúlega töff en ég er ekki frá því að það hafi alveg gleymst að gera ráð fyrir áhorfendum. Æji það skiptir engu, það horfir hvort sem er enginn á frjálsar.

Annars fannst mér mjög fyndið að horfa á msn listann minn. Þar inni var ungfrú Eygerður Inga Hafþórssdóttir a.k.a Eyja en svo var félagi minn (sem hún þekkir ekkert) með nikkið mig langar í eyju. Það fannst mér fyndið.



kl. 17:12 | Athugasemdir (7)

24.11.2005 : Lélegur

Vá hvað ég er búinn að vera lélegur að blogga. Ég held samt ástæðan fyrir því sé einfaldlega hvað það er lítið að gerast. Eða réttarasagt lítið merkilegt að gerast.

Seinasta helgi var samt mjög fín, sérstaklega laugardagskvöldið þegar ég kíkti til Robba í gott spilakvöld ásamt Óla og Unni. Þar tókum við í popppunkt og svo Carcassone, sem ég er bara að fíla helvíti vel.

Ég hef ekkert farið út á lífið í heljarinnar tíma, veit ekki afhverju en löngunin að hella mig fullan og fara í eitthvað rugl er einfaldlega ekki til staðar.

Hópverkefnin niður í HÍ eru alveg að rugla öllu upp. Kláruðum hagverkfræðina, en þar unnið fyrir Hafnarbakka til að athuga hvort hagstæðara væri að borga ET fyrir gámabíla, eða kaupa og reka sinn eigin. Núna er ég að gera seinna verkefnið í verkefnastjórnun sem snýst um að flytja verkfræðideildina niður í Vatnsmýri. Heavy fun. Nenni samt ekki að blogga um skólann.

Á morgun er aftur á móti fjölskylduferð í bíó. Forsýning á Harry Potter í V.I.P salinn. Það verður næs að slappa aðeins af með fjölskyldunni.



kl. 13:00 | Athugasemdir (4)

21.11.2005 : Pabbi

Ég verð bara að minnast á það hvað pabbi er gera ótrúlega góða hluti. Hann hefur nú svosem aldrei verið neinn íþróttamaður þótt hann hafi gaman að íslensku náttúru og göngutúrum, en hefur aftur á móti hrikalegan áhuga á tónlist og kvikmyndum, sérstaklega tónlist, enda heimsfrægur á austurlandi á sínum yngri árum.

Síðustu ár var búinn að vera þyngjast hægt og rólega og fyrir um það bil þrem-fjórum mánuðum náði hann hámarki 112kg. Það stóð aftur á móti ekki lengi, fyrir um það bil 20 vikum tók hann sig fáránlega á og byrjaði að mæta í ræktina reglulega og tók matarræðið 250% í gegn. Hann tapaði 15kg á 12 vikum sem mér finnst bara út í hött gott hjá honum og get ekki annað en gefið honum stórt hrós fyrir!

Ég er náttúrlega búinn að vera mjög leiðinlegur við hann þessar vikur með "er þetta ekki of stórskammtur", "ertu búinn að taka æfingu í dag" og "ætlaru að borða þetta". Það þurfti þó ekki mikið nema kannski fyrstu vikurnar, en hann var staðráðin í að taka þetta og var því ekkert fúll þegar ég var að gagnrýna matinn, æfingarnar og setti út á allt sem ég gat. Ég hef því hrósað honum meira en gagnrýnt.

Um seinustu helgi fögnuðum við svo upp á að 20kg væru farin. 20kg á 18 vikum - ef hann heldur áfram á þessum hraða verður hann orðinn hinn besti eþópíumaður um næstu jól. Ég er ekkert smá stoltur af kallinum.

Til þess að fagna upp á þennan áfanga bjuggum við til svaðalegustu og stærstu súkkulaðiköku sem ég hef á ævinni litið. Í hana fór meðal annars 1kg af suðusúkkulaði (það eru 1000gr af súkkulaði!), 12 egg og 1kg smörlíki. Þetta var fjögura hæða súkkulaðibomba þar sem 1/2 sneið dugði meira en nóg. Ég lá afvelta upp í sófa eftir á, gjörsamlega að springa, hársbreidd frá því að maginn myndi rifna. Ég gat ekki hreyft mig en gaf öðruhvoru frá mér stunur til að láta vita að ég væri enn á lífi.

Annars er ég líka sáttur með hvað það eru allir orðnir heilsusamlegir hérna heima. Hlynur bróðir tók sig líka rosalega á fyrir um það bil ári. Þá var ég búinn að vera reyna draga hann af stað, nuða og hvetja eins og ég gat frekar lengi, en ekkert gekk. Svo sá hann mynd af sér og sagði bara: "vá ég er ógeðslegur". Þá var hann orðinn um 95kg, en er núna um 78kg og fer ekkert yfir 80kg, 185cm á hæð. Bara virkilega flottur kallinn.

Ég held reyndar að þetta stafi af því að hann er að verða heimsfræg rokkstjarna með Telepathetics og þá er náttúrlega nauðsynlegt að geta verið á ermalausum bol upp á sviði til að trylla smápí**rnar og gera svo allt vitlaust með að rífa sig úr að ofan, en það bara mín kenning.

Ef pabbi og Hlynur halda svona áfram þarf ég að passa mig, stefnir í að ég verði þyngstur í fjölskyldunni. Það hefur bara aldrei gerst!



kl. 11:51 | Athugasemdir (2)

14.11.2005 : Núverandi staða

núverandi tími: 13:34
núverandi föt: Köflóttar náttbuxur, hlýrabolur
núverandi skap: Hress og kátur
núverandi hár: Nýklipptur, stutt í hliðunum en toppurinn langur þannig að lokkarnir ná fram að augum.
núverandi pirringur: Ég ruglaðist á hvenær hópurinn minn í verkefnastjórnun ætlaði að hittast, var handviss um að það væri á miðvikudaginn en það var víst áðan.
núverandi lykt: Ralph Lauren Polo Sport
núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Taka til og læra
núverandi skartgripir: Geng aldrei með neitt nema tölvuúr á æfingum
núverandi áhyggja: Skólinn, hef ekki sinnt honum eins og skildi
núverandi löngun: Væri alveg til í að komast í smá hita
núverandi ósk: Að kálfarnir mínir lagist
núverandi farði: Nice try
núverandi eftirsjá: Helgin var alltof stutt
núverandi vonbrigði: Hmm veit ekki.
núverandi skemmtun: Deadwood á Stöð2 og svo er fínt að grípa í Civilization III stundum.
núverandi ást: Fjölskyldan
núverandi staður: Upp í rúmi í herberginu mínu, Álfabrekku 15, Kópavogi
núverandi bók: Skólabækurnar
núverandi bíómynd: Ég horfði á Scooby Doo : Monsters Unleashed á laugardaginn með litlu systur minni.
núverandi íþrótt: Frjálsar, 400m hlaup
núverandi tónlist: Bloc Party, Zutons, Kaiser Chiefs, The Magic Numbers, Strokes, The Killers.
núverandi lag á heilanum: Don't ever think, ever think, ever think to much, etc, etc.
núverandi desktop mynd: Nike Free skóauglýsing.
núverandi áætlanir fyrir kvöldið:  Æfing og heimadæmi í hagverkfræði.
núverandi manneskja sem ég er að forðast: Ég haga mér þannig að ég þurfi ekki að forðast fólk.
núverandi dót á veggnum: Sjónvarp, gaddaskór, hátalarar, veggljós, mynd.



kl. 13:46 | Athugasemdir (4)

12.11.2005 : Hata svona

Ég hata svona daga, eða réttarasagt svona kvöld. Ég er þreyttur og latur en samt langar mig að gera eitthvað. Þetta eru eins og tvö öfl sem toga í mig. Eitt segir mér bara að hanga heima yfir ömulegri sjónvarpsdagskrá, en hitt segir mér að hringja í fólk og finna eitthvað að gera. Verst að maður hlustar ekki á skynsemina sem segir að ég þurfi að læra.

Anyways. Tíu æfingar búnar í þessari viku og allt gott. Maggi Valli hélt upp á afmælið sitt í gær og við strákarnir gáfum honum AC/DC - Family Jewels DVD diskinn. Horfðum á Idol á meðan við borðuðum rjúkandi flatböku og nörtuðum svo í skúffuköku og popp meðan við spiluðum popppunkt. Yfirburða sigur hjá mér, Magga og Margréti ;)

Ég var líka klukkaður í þessum "Núverandi staða" bloggleikk, skelli því inn við tækifæri.

Oh ég veit ekkert hvað ég að gera, ég er eitthvað svo dasaður, langar bara í heitt bað eða eitthvað sen samt langar mig líka eitthvað út. Veit ekkert hvað ég á að gera. Hmm kannski bara heitt boð og svo í ísrúnt. Langt síðan maður hefur fengið sér bragðaref á Erluís. Nennti samt ekki að klæða mig úr náttbuxunum og í einhver alvöru föt. Spurning um að leggjast bara yfir sjónvarpið og horfa á North by Northwest. Ég hef ekki leigt mér mynd í marga mánuði. Ég nota "Robbaleigu", besta leigan í bænum. Kostar ekki neitt og ég fæ ekki sekt þótt ég skili dvd disknum 6vikum of seint.

Á maður kannski að reyna kíkja í bíó? Wallace & Gromit gætu verið fyndnir. Sá upprunulegu stuttmyndirnar þegar ég bjó í U.K og þetta er bara ótrúlega fyndið. Cinderella Man er líka kandidat í óskarsverðlaun og því ætti maður að fara á hana, en stuðið í mér er einhvern ekki þannig að mig langi á þungar myndir og eru því Flight Plan eða History of Violence ekki heldur ákjósanlegar.

Spurning líka um að hlaða sig upp af einhverri óhullustu og smala í spil. Catan er alltaf klassískt, Carcassone hljómar spennandi og Sequence er létt og þægilegt. Það þýðir bara að ég þurfi að hugsa og ég eiginlega bara nenni því ekki í kvöld.

Ætla allavega að byrja á að hætta og rausa og nöldra hér.



kl. 18:03 | Athugasemdir (2)

10.11.2005 : Alveg orðinn ruglaður

Nú er ég alveg búinn að tapa mér. Allt á fullu þessa vikuna og það hlaut að koma að því að ég færi yfir um og ruglaði öllu. Í dag sleppti ég hagverkfræði klukkan 8 í morgun og ákvað þess í stað að næla mér í lengri svefn. Málið er að á fimmtudögum er langt gat eftir hagverkfræðina. Eftir að ég hafði sofið nægu mína tók ég fína morgunæfingu, svo fer ég heim að stússast í hinu og þessu. Klukkan 13:20 fatta ég svo að ég er orðinn ALLTOF seinn. Dæmatími klukkuan 13:40! Ég hafði steingleymt mér yfir pælingum með Hlyni varðandi fermingagjöf fyrir Heiði systir. Skýst í sturtu, finn bækurnar og allt dótið og rík út í bíl. Bruna svo eins og ég eigi lífið að leysa svo ég missi nú ábyggilega ekki af fyrstu dæmunum.

Þegar ég loksins finn stæði er klukkan orðin 13:55, ég hleyp inn í háskóla og beint inn í stofuna. Finnst reyndar dálítið skrítið að þar sé Eysteinn en pæli svosem ekki í því og finn mér sæti. Horfi svo á töfluna og hmm þetta er skrítið. Ég er ekki alveg búinn að vera sinna stærðfræðigreiningunni en þetta var aðeins of mikið. Ég sit og reyni að átta mig á hlutunum, dreg upp stundatöfluna og man þá skyndilega að dæmatíminn er ekki fyrr en 14:40 EKKI 13:40. Ég var staddur í dæmatíma fyrir greiningu III fyrir eðlisfræðina en ekki greiningu II fyrir verkfræðina.

Needless to say að þá leið mér náttúrlega mjög asnalega þegar ég labbaði út í stofunni.



kl. 14:10 | Athugasemdir (4)

7.11.2005 : Helgin

Þarf að fara einbeita mér meira að honum ef ég ætla ekki að klúðra jólaprófunum, það er nokkuð víst.

Á föstudagskvöldið óskaði Daði eftir hetjum í partý og ég lét að sjálfsögðu sjá mig. Mætti galvaskur með einn léttbjór og kippu af lager. Sötraði á léttbjórnum og spjallaði en þegar klukkan var rétt um tólfleytið fór ég til Daða kvaddi og tjáði honum að hann ætti kippu af bjór inn í ísskáp.

Á laugardagskvöldinu var svo vinnudjamm. Þórarinn, nýji framkvæmdarstjór Hugsmiðjunnar, bauð okkur heim til sín þar sem við gæddum okkur á humarsúpu, lamba fillet og fleira góðgæti. Stútaði í mig 6 vatnsglösum og var kominn heim um tólfleytið. Ótrúlega er maður orðinn rólegur.

Það gekk reyndar frekar erfiðlega að finna þetta. Ég var búinn að gleyma hvar þetta var og hringdi því í Hrafn á leiðinni sem tjáði mér að þetta væri í Sólheimum 64. Ég keyrði sólheimana svona 100 sinnum þangað til ég var orðinn handviss að Sólheimarnir færu bara upp í 56. Það passaði líka, enda var þetta Sólheimar 54, en ekki 64. Veit ekki hversu oft ég var búinn að keyra fram hjá húsinu.

Fór í klippingu á föstudaginn og er ekkert smá sáttur. Hélt toppnum en lét snyrta hliðarnar vel þannig að nú lafir toppurinn í stað þess að allt hárið standi út í loftið eins og ég sé með hjálm eða eitthvað. Var orðið alltof langt síðan ég fór í klippingu.

Á sunnudeginum freystaði Robbi mín með því að bjóða mér á Nordica, þar slappaði ég af í pottinum og lét nudda mig og gufusauð mig svo rosalega í sauninu. Hef labbað út eins og 80 ára gamall kall, ég var svo uppþurrkaður.



kl. 14:56 | Athugasemdir (6)

3.11.2005 : Það sökkar að vera í hlutastarfi

Það getur stundum sökkað að vera í hlutastarfi. T.d. átti ég mjög fína mús sem Stebbi keypti handa mér og nú er þessi maður hér með hana. Ég var líka með skrifstofustól, en hann hvarf einhverja hluta vegna. Ég fékk meira að segja frekar góðan skjá í upphafi sumars og í gær var hann horfinn. Hef líka lent í því að lyklaborðið mitt hafi horfið. Ég bíð eftir því að mæta og sjá tölvuna mína sundurrifna upp á borði sökum þess að einhver var að leita sér að stærra minni! ;)

Ég held að þetta alveg fyrir mér. Þegar ég er kominn út, stökkva vinnufélagnir upp og þjóta í átt að skrifborðinu mínu öskrandi "ég á músina" "ég tek skjáinn", "stólinn er minn" og þá er þetta bara spurning um "the strongest survive" í blóðbaði um aukahluti fyrir tölvuna.



kl. 10:11 | Athugasemdir (4)

1.11.2005 : Ný síða og nýtt blogg

Ástæðan fyrir því að ég hef ekki verið að blogga er ekki leti, þvert á móti að þá er ég eins og sést búinn að vera vinna í nýrri síðu þegar tími gefst.

Mér finnst hún kúl, en vinnufélögunum fannst hún helst til metró ;) Ég verð að segja að ég er orðinn algjör MySQL og jsp snillingur eftir þetta.

Seinasta vika er búin að vera fín, aðeins rólegri. Lenti meira að segja í því að á föstudaginn voru ekki heimadæmi í örtölvu- og mælitækni og hagverkfræði eins og vanalega og því var kominn helgi fyrir mér á fimmtudagskvöldið. Ég var reyndar ekki sá skynsamasti þar sem ég nýtti ekki lausa tíman í að læra í öðru, en stundum er maður bara latur.´

Á föstudaginn tók ég hrikalega lyftingaræfingu um morgunin sem olli því að ég var eins og spítukall allan föstudaginn, laugardaginn, sunnudaginn og mánudaginn. Í dag er fyrsti dagurinn sem mér líður sæmilega. Þvílíka strengi hef ég aldrei upplifað. Ég gat ekki sest á klósettið án þess að styðja mig við baðkarið. Ég var að drepast þegar ég klæddi mig í sokka, ég gat ekki sest inn í bíl án þess að halda í handföngin. Basically bara handónýtur og hálfhaltraði og labbaði eins og 200kg fangelsisfélagi minn hann Bubba hafi sængað hjá mér alla helgina.

Aftur á móti var ég svo að deyja í kálfunum eftir seinniparts æfinguna að ég fór heim ógeðslega svekktur, gjörsamlega að deyja og drekkti sorgum mínum í nammi, snakkk, ís og fleira sem ég hefði betur látið ógert. Þannig var eiginlega öll helgin, vorkenndi mér hvað ég ætti ónýta kálfa og sótti huggunn í sukk.

Anyways, pælingin er svo að skipta síðunni upp í blogg og æfingadagbók. Þeir sem hafa gaman að æfingum geta þá lesið það, án þess að ég sé að drepa hina úr leiðindum.



kl. 23:49 | Athugasemdir (14)

23.10.2005 : Sunnudagur til slökunar

Æfingarnar ganga vel, þriðja æfingavikan, 8 æfingar og allt gengur mjög vel fyrir utan kálfana náttúrlega. Er líka búinn að vera reyna hjálpa eins mikið til og ég get niður í vinnu og svo er það náttúrlega skólinn. Laugardagurinn er bara orðinn eins og hver annar vikudagur.

Annars fattaði ég það fyrir nokkru að ég er alltaf með pörum þegar það er gert eitthvað. Alveg merkilegt, alveg sama í hvaða vinahóp (frjálsar, skóli, vinna, etc) að þá er ég eiginlega sá eini sem er ennþá single. Robbi, Tobbi, Jón Karl, Trausti, Daði, Sverrir, Steinþór - hehe allir félagar mans eru bara harðgiftir.

Náði að stýra vikunni þannig að ég gæti bara slappað af mestmegnis af sunnudeginum og það hef ég gert. Svaf út, horfði á Staupastein vikunnar, borðaði vöfflur og Lambalæri La Bergur er í ofninum í þessum skrifuðu orðum. Algjör snilld að ná að slappa af eftir vikuna og borða góðan mat og svo er það bara Deadwood í kvöld.
kl. 18:09 | Athugasemdir (6)

18.10.2005 : Mikið að gera

Búið að vera rosalega mikið að gera seinustu viku. Erfið vika og ég man ekki eftir hvenær ég vaknaði seinast klukkan 8 á laugardagi, en það gerði ég um seinustu helgi. Vaknaði klukkan 8 og lærði, fór á æfingu klukkan 11 og niður í skóla í hópverkefni klukkan 13 og svo í vinnunni frá hálfjögur til átta. Stefnir í mjög svipaða viku núna.

Annars náði ég þó að kíkja til Tobba og Sigurbjargar á laugardagskvöldið eftir vinnu. Tókum í Catan og ég hef aldrei hlegið jafnmikið í Catan. Ég hef aldrei upplifað jafnmikinn misskilning varðandi skipti á spilum, eitt ruglið rak annað í gegnum spilið og miðað við kærustpar voru þau stundum ekki alveg að synca... ;)

Sigurbjörg: Viltu Korn?
Tobbi: Fyrir Kind
Sigurbjörg: Ok
Tobbi: Tvö korn fyrir kind
Sigurbjörg: Neeei

Smá pása, Sigurbjörg og Tobbi líta á spilin sín og reikna út hvað þeim vantar. Þá kemur frá Sigurbjörgu.

Sigurbjörg: Viltu Korn?
Tobbi: Fyrir Kind
Sigurbjörg: Já ok
Tobbi: Tvö korn fyrir kind
Sigurbjörg: Neeei

Ég held að þetta hafi gengið svona 4 sinnum áður en þau áttuðu sig á að þau næðu ekki að skipta.
kl. 20:10 | Athugasemdir (2)

17.10.2005 : Sjónvarp og dagskrágerð

Ég horfi svosem ekki mikið á sjónvarp en öðruhverju lendi ég inn á þáttum sem ég gjörsamlega fíla í tætlur. Lost var einn af þeim þáttum, snilldarhugmynd sem var útfærð alveg ótrúlega vel. Þetta eru algjörir cliffhanger þættir, enda alltaf á hápunkti og maður bíður spenntur eftir næsta þætti. Ég flokka þá undir svona "love/hate" þætti, ég dýrka þegar þeir byrja, orðinn geggjað spenntur en þegar þeir enda á hápunktinum bölva ég og get ekki beðið eftir þeim næsta.

24 var einnig einn af þeim þáttum, algjör nýjung í sjónvarpsgerð. Ég leita sjálfsagt að einhverjum frumlega. Þeim sem datt í hug að hafa rauntímaþátt, 1klst, 24 þætti og fylgjast því með sömu persónunni heilan sólarhring á nafnbótina snillingur skilið. Það krefst líka þess að handritshöfundar séu góðir, því það þarf stanslaust að hafa eitthvað í gangi. Það getu reynst erfitt því það er frekar auðvelt að detta inn í klisjurnar.

Fyrsta serían af Monk var líka algjör snilld, en mér finnst þeim hafa farið hrakandi. Það er verið að yfirkeyra þá dálítið af sama húmornum og það verður dálítið þreytt til lengdar. Vantar eitthvað nýtt og skemmtilegt við þetta.

Seinfeld eru sjálfsagt einu gamanþátturinn sem kemst inn á þennan lista. Ótrúlega skemmtilegt hvernig þeir fjalla um hversdagshlut á ótrúlega fyndin veg. Hlutir eins og stefnumót, andlitsbjaganir, neðanjarðarlestin, að sleppa vinnu og fleira í þeim dúr. Hlutir sem maður tengir alveg við sett upp komískan hátt.

Deadwood eru þættir sem ég er að fíla í tætlur. Enn og aftur frábær hugmynd sem er snildlarlega útfærð. Það sem stendur náttúrlega upp úr þar eru samtölin, handritið er bara alltof vel skrifað. Þetta eru vestrar, en langt frá því sem við þekkjum sem vestra, það er engin hetja, enginn að berjast við indjána og hrópa "íaaah". Þetta er bara saga, ótrúlega skemmtileg saga. Það sem er svo ennþá skemmtilegra er að Deadwood er bær sem er til og 90% af fólkinu sem fjallað er um í þættinum voru til. Þarna er semsagt bara verið að segja sögu af bæ á gullaldaræðinu í villta vestrinu. Fáránlega góðir, vel skrifaðir og leikararnir alveg að brillera. Þetta eru líka alltof raunsæir þættir, og ótrúlega brútal, alltof brútal. Það klikkar ekki að í hverjum þætti heyrist í mér "aaah fokk, ertu ekki að grínast!!".

Band of Brothers eru líka þættir sem ég mátti ekki missa af. Ótrúlega vandaðir þættir um seinni heimstyrjöldina. Spielberg og Hanks leiða hesta sína saman til að búa til eina af flottustu framhaldsþáttum sem gerðir hafa verið. Söguþráðurinn sannur, leikararnir að brillera og myndataka og effecter út úr kú.

Það sem ég hata aftur á móti er þegar Íslendingar reyna að taka formúlur sem hafa svínvirkað og klúðra því. Hvað er t.d. málið með íslenska bachelorinn. Afhverju eru þeir að breyta og gera öðruvísi en bandaríska útgáfun. Ætli sjónvarpsstöðin sem gerði þáttinn hafi ekki eitt miljónum í rannsóknir, focus hóp og kynnt sér þetta og unnið að finna formúlu sem myndi virka. Afhverju reyna þá Íslendingar að gera eitthvað öðruvísi. Það er búið að sýna og sanna að hin formúlan svínvirkar og afhverju þá að breyta.

Nokkur dæmi, afhverju voru þessir kynningaþættir. Afhverju? Er ekki pælingin að kynnast stelpunum í þættinum. Ég (hinn almenni sjónvarpsáhorfandi) vil ekki fara mynda mér skoðun á keppendunum áður en þátturinn byrjar. Er ekki punkturinn með þessum þáttum að ég horfi á þá og myndi sér skoðun á stúlkunum og piparsveininum þegar líða fer á þættina. Kynnist þeim betur og betur með hverjum þættinum sem líður og finni mér mitt uppáhald.

Afhverju er verið að sýna stelpurnar fá frítt make-up námskeið. Hey geggjað ég (aftur hinn almenni sjónvarpsáhorfandi) fær að sjá stelpurnar læra að meika sig. Skítt með það, við viljum sjá þær uppdressaðar að reyna eins og rjúpa við staur að næla sér i kallinn. Um það snýst þátturinn. Þetta er sleesy þáttur, þessvegna virkar hann. Afhverju fór bachelorinn til þeirra en ekki þær að hitta hann. Ég vil sjá stelpurnar í fyrsta skipti þegar þær stíga út úr limmanum að hitta mann drauma þeirra.

SkjáEinum hefur tekist að taka sleesy þátt sem svínvirkaði, var sýndur um allan heim og halaði inn milljónum og búa til sleesy þátt sem virkar bara alls ekki. Ég spáði Ástarfleyginu sigur áður en það var byrjað að sýna bachelorinn og ég stend við það. Ég held að sá þáttur verði svo sleesy að hann verði ótrúlega hallærislegur og glataður að fólk geti hreinlega ekki slitið sig frá honum.

Persónulega ætla ég samt að halda mig við þættina sem ég taldi upp hér að ofan.
kl. 22:32 | Athugasemdir (2)

14.10.2005 : Föstudagsmúslí Bergs

1 dl gróft haframjöl
0,5 dl Kellogs All-Bran
Dálítið af rúsínum
Muldar hesilhnetur (hæfilegt að hafa það passlega mikið)
Smá af möndluflögum.

Sett á pönnu/pott og hitað þangað til að það er orðið pínu brúnt og gyllt. Látið kólna og seti svo út á súrmjólk eða jógúrt. Nauðsynlegt í lok viku eins og þessari, þegar allt er brjálað að gera og svefn er lítill. Startar deginum vel.
kl. 12:50 | Athugasemdir (2)

11.10.2005 : Trúnó

Hmm, ég er ekki frá því að ég og Raggi höfum verið á frjálsíþrótta-trúnó á MSN. Þetta hef ég aldrei upplifað, en þetta var hollt og gott spjall, engin spurning!
kl. 21:56 | Athugasemdir (13)

11.10.2005 : Sagan af kálfunum : 38231292. hluti

Áfram heldur leitin að lækningu fyrir mínu elskulega kálfa. Fór í göngugreiningu í dag, bara til að vera 200% viss. Ekki það að ég hafi ekki prófað það áður eins og flest annað. Greyið konan snéri sér bara í hringi sagði jafnóðum "bíddu þetta passar ekki" og "hmm þetta er óvenjulegt" og "já þetta er...nei bíddu við". Um leið og hún hélt að hún fyndi hvað væri að kom eitthvað annað fram sem hrakti það í burt. Þannig að niðurstaðan var engin. Jú kannski að ég væri með skakka mjaðmagrind og ætti að láta hnykkjara kíkja á það og stífa rist sem væri orsök af því að það væri mikið álag á tibial beininu í kálfanum - hmm já alveg rétt þessvegna fór ég göngugreiningu ;). Hún var samt virkilega góð og hjálpsöm og reyndi hvað hún gat að finna eitthvað út en eins og vanalega hefur enginn almennilega hugmynd hvað er að angra mig. Hún skrifaði samt niður niðurstöðunnar hennar sem ég fór með til Stebba sjúkra.

Í stuttu máli: Engu nær annað en að það er eitthvað funky í gangi.

Stundum langar mig að grenja. Afhverju þarf þetta að vera svona flókið!! Afhverju get ég ekki verið heill, ef ég verð einhvern tíman down að þá er það útaf þessum helvítis kálfum! Samt heldur maður áfram að fara til lækna og sérfræðinga um von um að þeir geti eitthvað sagt og lagað, en allt kemur fyrir ekki. Ég enda alltaf á upphafsstað. Mér þykir það ekkert smá ósanngjarnt.
kl. 15:13 | Athugasemdir (4)

11.10.2005 : Æfingar og félagsskapur

Vá hvað það var gaman á æfingu í gær. Ég sé fyrir mér alveg stórskemmtilegan vetur. Félagsskapurinn er bara orðinn svo helvít góður. Ég, Stebbi Guðmunds, Tobbi og Óli Margeirs. Í gær tókum við 30m neglingar, 30m hraðabreytingar og 100m stílspretti. Þetta er skemmtilegur hópur því bætingarlöngunin er til staðar hjá okkur öllum en samt eru allir voðalega hressir og líbó, óhræddir að skjóta á hvorn annan. Samanber MSN nikkið hjá Tobba í gær sem var einhvern veginn "Bergur ég á eftir að rústa þér!!"

Sömuleiðis gat ég og Óli strítt Tobba þegar hann var orðinn desperate eftir þrjá spretti og ákvað að taka ermalausa á þetta. Ótrúlegt en satt að þá virkaði það. Ég held að Óli ætli næst að hlaupa ber að ofan.

Ég verð reyndar ekki alltaf með þeim þrem, þar sem ég meika ekki löngu túrana útaf kálfunum en þá hoppa ég yfir til Sigurbjargar og Magga.

Svo er verið að tala um æfingaferð til kanarí um áramótin. Það væri alveg súperb. Ég væri svo meira en til í það. Tók bara eftir því í gær, eftir æfingu, hvað það er orðið fáránlega dimmt á kvöldin. Það er bara byrjað að rökkva klukkan 18 og klukkan 20 er bara orðið dimmt. Kanarí um áramótin og portúgal um páskana. Það yrði magnað. Nú bíð ég bara eftir svari frá Stebba sjúkraþjálfara en hann ætlaði að ræða við nokkra lækna. Vonandi heyri ég í honum í dag eða á morgun.

Rússinn á eftir, get ekki beðið eftir því að deyja úr þreytu og grátbiðja um miskunn. Hlakka til.
kl. 10:45 | Skrifa athugasemd

9.10.2005 : Lestur, bílinn og brjálaður rússi.

Stærsti hluti vikunnar er búinn að fara í að lesa allt sem ég finn á netinu sem inniheldur orðin; "sport medicine", "exercise induced leg pain" "stress fracture" "chronic compartment syndrome" "medial tibial stress" og fleira í þeim dúr. Eitthvað sem gæti varpað ljósi á þennan endalausa verk í kálfunum. Eins og Stebbi sjúkraþjálfari sagði einu sinni þegar ég kom og kvartaði yfir verk í peroneus longus og brevis, að þá er ég ábyggilega búinn með fyrsta árið í sjúkraþjálfun. ;)

Jú og svo tók ég til í bílnum mínum og kominn tími til. Hann var orðinn frekar ógeðslegur; almenn rusl út um allt, fyrir utan allt íþróttadóteríð. Handklæði, sokkar og jafnvel nærbuxur sem fundust í aftursætinnu. Charming, yes. Nú aftur á móti glansar hann eins og aldrei fyrr, bæði innan sem utan.

Blikarnir fóru í æfingabúðir á Vík í Mýrdal um helgina, lögðu af stað á föstudeginum og eru sjálfsagt að koma í bæinn núna á næstu klukkutímunum. Ég fór ekki útaf jarðaförinni hans Stjána frænda. Var að velta fyrir mér að rúlla til þeirra á laugardeginum en ég var ekki kominn heim fyrr en um sex leytið, og því nennti ég varla að keyra tæpa 400km fyrir eina morgunæfingu á sunnudeginum.

Æfingarnar byrja svo fyrir alvöru í þessari viku. Hlakka sérstaklega til þriðjudagana, en þá verður klassískur þrekhringur í Smáranum. Gamla góða austur-evrópska stöðvaþjálfunin. Ég verð fúll ef Jón Sævar verður ekki með skeiðklukkuna hangandi um hálsinn, öskrandi á okkur eins og brjálaður Rússi "30 sek, SKIPTA!!"
kl. 14:27 | Athugasemdir (5)

6.10.2005 : Seinasta helgi, Rabbi og Stjáni frændi.

Smá um seinustu helgi; en á föstudeginum fór ég í bíó með Robba og Önnu að sjá The 40 year old virgin. Mjög fyndin mynd og er Steve kallinn ekkert smá góður. Fyndinn karakter, vonandi að maður sjái meira af honum. Á laugardaginn fór ég svo yfir til Tobba og Sigurbjargar í létt partý, eiginlega bara til að sötra bjór og borða súkkúlaði. Mjög fínt. Það var líka ágætis danskennsla í gangi. Náði video-i af því og þarf að skella inn við tækifæri.

Ég er líka mjög glaður að Rabbi, félagi minn frá Fáskrúðsfirði er kominn af spítalanum. Eins og margir vita sem hafa fylgst með fréttunum datt hann niður 4 metra háum vegg hjá Fylkisheimilinu niður á steinhellur og lenti í hjartastoppi. Hann raunverlega dó, læknarnir naðu þó að endurlífga hann og hann er allur að ná sér. Þannig að það eru gleðifréttir.

Yfir í leiðinlegri fréttir að þá var bróðir mömmu, hann Stjáni frændi að deyja. Var að smala þegar hjartað gaf sig. Jarðaförin er á laugardaginn. Í framhaldi af því fór ég að velta fyrir mér einu sem ég tók eftir ekki fyrir löngu síðan.

Ég græt voðalega sjaldan, nánast bara aldrei. Ég minnist þess bara t.d. ekki að hafa fellt tár við jarðaför eða kistulagningu. Ekki misskilja mig, ég finn náttúrlega til söknuðar og er sorgmæddur en ég græt aldrei. Finnst það dálítið skrítið, man meira að segja þegar ég ég var lítill og Inga amma dó, að þá spurð ég einmitt mömmu "þýðir það að ég hafi ekki grátið, að ég elskaði ömmu ekki?". Auðvitað vissi ég betur, þetta var heimsins besta amma sem ég elskaði útaf lífinu en það var eins og ég væri með sektarkennd yfir því að hafa ekki grátið eins og allir í jarðaförinni.
kl. 10:52 | Athugasemdir (2)

3.10.2005 : Pretty face - junk calves

Það er kannski vert að taka það fram svo ég fái ekki stimpilinn "just að pretty face" eða "dumb male model" að ég gerði meira en að módelast, hlaupa um og líta sætur út ;) Frakkarnir voru mikið að velta fyrir sér stöðum sem hægt væri að taka myndir. Þeir voru með nokkrar svipmyndir af íslandi yfir landslag sem þeir voru hrifnir að. Ég keypti nákvæmt kort af íslandi og þá sérstaklega suðvesturlandinu, fékk myndirnar hjá þeim og fann alla þá staði og merkti inn á kortið. Fyrir þá staði sem ekki voru nógu nálægt reyndi ég að benda þeim á sambærilega staði auk þess sem ég skellti nokkrum sjálfur inn. Þá tók ég túss og teiknaði inn leiðina á kortið og skrifaði svo smá um hvern stað inn á tölvuna og leiðbeiningar hvernig ætti að komast þangað. Þeir voru virkilega ánægðir með þetta og ég sá að þeir notuðu marga af stöðunum sem ég benti á.

Anyways. Fyrsta æfing vetrarins var í dag og það sem ég hef um hana að segja er "jkdfæa jdsklæa fkjdsæa fkjdæsa dfjaæ" sem mætti líka lesa sem "h******s d********s f*****g ó*******a h*****i". Ég er ekki vanur að bölva mikið og ætla ekki að byrja á því hér á blogginu en ég get ekki annað verið en hundfúll. Kálfarnir eru í hakki, algjöru hakki, algjörlega ónýtir, kaputt. Ég fann til eftir tvo rólega á vellinum og var það búinn eftir 5 að ég haltraði. Þurfti að leggjast á jörðina og láta þetta líða út.

Stebbi Carls er kominn úr fríinu og því er ég kominn með úr myndatökuna, en þar sást ekkert nýtt. Það er ennþá mikil upptaka í löppunum og best væri ef ég myndi hvíla. Nema að ég er búinn að vera hvíla meira og minna frá 2001 að undanskildum mars - ágúst 2005. Stefán sjúkraþjálfari ætlar aftur að móti að tala við nokkra lækna sem hann þekkir og grennslast aðeins betur fyrir. Við erum báðir sammála um að þetta er ekki eðlilegt.
kl. 21:40 | Athugasemdir (7)

1.10.2005 : Salomon

Ansi mikið búið að gerast seinustu daga. Fékk póst frá Frakka að nafni Dino sem var að leita af módelum fyrir franska útivistarmerkið Salomon. Þeim vantaði semsagt módel/hlaupara til að auglýsa útivistar og skokk fatnaðinn sinn fyrir veturinn 2006.

Þriðjudagurinn, miðvikudagurinn og fimmtudagurinn fóru í þetta dæmi. Vaknaði klukkan 6:30 og var kominn til þeirra hálftíma seinna, allur dagurinn fór svo að sitja í bíl, skipta um föt, og standa út í ísköldu veðrinu að pósa og hlaupa. Var svo vanalega kominn heim um 21-22 á kvöldin. Ég held að ég hafi aldrei skipt jafnmikið um föt og þessa daga. Sitjandi inn í bíl að troða sér í fötin og fara svo út í nístingskuldann að hlaupa um á tightsbuxum í -2 stiga frosti eins og ekkert væri eðlilegra. Þessi vetrarfatnaður var ekki alveg sniðinn að íslensku veðri, það er nokkuð ljóst ;).

Þetta var semsagt ágætis puð, en líka virkilega skemmtilegt og ég fílaði þetta bara nokkuð vel. Fæ svo smá sýnishorn af myndunum eftir 2-3 vikur en bæklingurinn sjálfur kemur ekki út fyrr en fyrir haustið 2006. Honum verður þá dreift alþjóðlega og þá stefni ég að því að flytja til New York og halda áfram að vinna í frama mínum sem módel. *hóst* *hóst*
kl. 15:54 | Athugasemdir (5)

26.9.2005 : Klukk og foli

Var klukkaður og mun skella því 5 atriðum um sjálfan mig. Ég ætla að reyna setja einhver hálffyndin atriði um mig sem fáir vita um. Mæli svo með Fola vikunnar hjá Hlaupagellunum.

1. Ég hef einu sinni á ævinni stolið. Þá var ég 8 eða 9 ára og Fáskrúðsfirði. Ég og Sverrir vorum að smíða túttubyssur og okkur vantaði tape. Mér leið ógeðslega illa í langan tíma eftir á. Ég hef aldrei á ævinni verið með eins mikið samviskubit.

2. Í Varmalandsskóla setti Gústi kennari mig í svörtubókina þegar hann gómaði mig inn á kvennavistinni um hánótt. Ég reyndi að fela mig inn á kvennaklósettinu en það gekk ekki. Ég og Snorri tókum víra úr smíðatíma til að plokka lásinn upp.

3. Í 7. bekk á skólaballi sem var haldið fyrir flest alla skólana á vesturlandi var ég spurður hvort ég vildi byrja með ákveðinni stelpu. Svarið mitt var eitthvað á þessa leið "ég þarf að hugsa um það"

4. Ég sá fyrst klámmynd þegar ég var í 8. bekk. Bekkjabróðir minn fann safnið hjá mömmu hans og pabba og við stálumst að horfa á hana einn daginn þegar þau voru ekki heima. Við sáum samt ekki nema nokkrar mínútur því stóra systir hans kom heim og við þurftum að fela allt áður en við yrðum gómaðir.

5. Einu sinni eftir hlaup á Fáskrúðsfirði fór ég á háskæla eftir að hafa tapað. Ég hljóp á annari braut allan tíman án þess að vita að ég mætti fara innar. Ég tapaði með örfáum sekúndubrotum. Pabbi var þulur á mótinu og ég var brjálaður út í hann að hann skildi ekki kalla í kallkerfið að ég mætti fara á fyrstu brautina.
kl. 18:20 | Athugasemdir (9)

21.9.2005 : Taekwando

Keypti mér kort í háskólaræktina. 6.000 kr fyrir árskort. Algjörlega best buy. Þarna eru öll helstu tækin sem maður þarf. Sporthúsið er bara ekki að gera sig lengur og gerði það í raun og veru aldrei. Svo setur maður bara 25.000 krónurnar sem maður sparaði upp í æfingaferð um jólin eða eitthvað ;)

Tók svo eftir það að það var opinn tími þarna sem hét "Taekwando fyrir byrjendur" og ákvað að láta slag standa og prófa. Var samt ekki alveg að fíla þetta nógu vel, held að jui jitsu eða júdó eða eitthvað þessháttar sé skemmtilegra. Þetta var það sem maður kallar skítsæmilegt. Náði allavega ekki að heilla mig, þótt það hafi verið fróðlegt að prófa. Það er samt nokkuð ljóst að ég held mig við hlaupin í bili.

Í einni æfingunni áttum að æfa okkur að taka hliðarspörk í magann/hliðina á andstæðingnum. Hugsunin var að taka þetta rólega og æfa hreyfingarnar, nema að feiti strákurinn sem var á móti mér var annaðhvort asni eða gat ekki stjórnað fótunum. Hvort sem það var, fékk ég bara allt föst högg beint í magann/kviðinn hvað eftir annað, þannig að ég þurfti alltaf að vera með spenntan magann. Svo kom upp úr honum: "aðeins að leyfa þér að finna fyrir þessu". Sú hugsun skaust á kollinn á mér hvort ég ætti að þrykkja í magann á honum og segja svo "aðeins að leyfa þér að finna fyrir þessu". Hehe nei nei segi svona., mér fannst þetta bara hálfpartinn fyndið og dapurlegt, því það virtist vera að hann væri svona að reyna sýna sig aðeins.
kl. 23:29 | Athugasemd (1)

20.9.2005 : Bloggedí

Úff mikið að gera þessa dagana. Vinna og skóli, skóli og vinna. Bloggið hefur aðeins setið á hakanum.

Tók algjöra hvíld frá æfingum í um 10-12 daga og hreyfði mig ekki neitt. Var svo duglegur að lyfta með Robba niður í Nordica. Ekki beint lyftingar sem myndu gagnast við hlaupin heldur meira í svona vaxtarrækt. Mjög sérhæfðar lyftingaæfingar. T.d. bara ein æfing tekin í að lyfta á brjóst og bicep, hehe. Það er fínt að breyta til og hef ég einmitt hugsað að nota hvíldartímabilið til að slaka og æfa öðruvísi. Vera ekki að æfa beint fyrir hlaupin heldur bara svona að hreyfa sig létt. Þá var fínt að lyfta 3-4 í viku með Robba.

Var samt algjörlega niðurlægður þarna því einn nuddarinn spurði Robba hvort ég væri litli bróðir hans. LITLI bróðir hans. Ég var reyndar ekki viðstaddur þá en nokkrum dögum eftir að Robbi segir mér frá þessu kemur einn þjálfarinn upp að okkur og spyr hvort ég sé bróðir Robba. Erum við virkilega svona líkir!?

Á föstudaginn fór ég svo á mitt annað djamm frá því í mars. Maður hefur bara ekkert snert áfengið. Vinnan fór út að borða og skelltum okkur svo út á lífið. Byrjuðum á drekka Mohito á Thorvaldsen og fá okkur eitthvað í gogginn. Kíktum svo í pool, tókum smá rölt og enduðum á Oliver þar sem ég dansaði af mér rassgatið. Ég var alveg í eðalfíling.

Rakst á Einar Berg upp í skóla í dag og fyrsta sem hann gerir er að spyrja hvort ég hafi verið að djamma um helgina. Ég náttúrlega bara "eh já?" þá kom frá honum "Ég fékk nefnilega sms klukkan þrjú á föstudagsnóttunni þar sem stóð: Oliver er málið, enga vitleysu, í djammið". Gott þetta Bergur!

Nú er fyrsta serían af Lost búin og ég veit ekkert hvað ég á að gera núna á mánudagskvöldum. Vá hvað þetta eru spennandi og skemmtilegir þættir. Langt síðan það hefur komið svona frumlega og virkilega spennandi hugmynd í sjónvarpið. Ég er alveg fastur í þessu. Gerðist meira segja það grófur að skoða spjallborðin á imdb.com til að lesa kenningar um hvað gæti verið að gerast. Á lostlinks.net má líka finna helling af dóti. Ég tapaði mér semsagt aðeins þarna einn daginn að finna allt sem ég gat. Er þó kominn í raunverleikan aftur núna.

Æfingarnar byrja 5. október. Jón Sævar hélt lítin liðsfund til að athuga stemminguna fyrir næsta tímabili og það er gott hljóð í öllum. Ég held að þetta verði mjög skemmtielgur vetur, ennþá skemmtilegri ef ég fæ jákvæðar fréttir frá doska úr myndatökunni. Það vildi nefnilega svo óheppilega til að hann fór í frí 2 dögum eftir að ég fór í myndatökuna. Ætti samt að fá símtal frá honum á morgun.

Já og fyrir þá sem áttuðu sig ekki á því að þá var seinasta færslan um að fara í raunverleikaþættina smá grín. Ég er samt alvarlega að pæla að flytja til the O.C. Það eru bara alltof fallegir kvennmenn þarna.
kl. 20:00 | Athugasemdir (6)

15.9.2005 : Singúll

Spurning um að hætta þessu single standi á manni og skrá sig í íslenska bachelorinn eða Ástarfleygið....eða ekki.
kl. 11:03 | Athugasemdir (9)

11.9.2005 : Fréttir vikunnar

Ég, Robbi og Daði héldum Contender og Lost kvöld heima hjá Daða á mánudagskvöldinu. Tókum seinasta grill ársins og öskruðum svo yfir höggunum í hringnum og bölvuðum svo í hljóði yfir að vita ekki hvað væri um að vera á eyjunni.

Á miðvikudaginn fór ég til Bjögga að kveðja kallinn áður en hann hélt út til San Diego. Líst mjög vel á að þar verði hann að æfa undir stjórn Joaquim Cruz. Maður sem hefur hlaupið 1:41.77 min ætti að vita eitthvað um 800m hlaup.

Á laugardaginn fór ég í sund með Sigubjörgu og Sigurjóni. Um kvöldið var svo partý heima hjá Sigurjóni þar sem ég skemmti mér hreint ágætlega. Byrjuðum frekar snemma og því gat maður verið kominn heim um tvö leytið. Líka snilld að vera í partý-um þar sem enginn reykir. Maður fær ekki klígju yfir reykingarfílunni þegar maður er að hátta sig.

Í morgun tók ég mig svo til og henti í amerískar pönnukökur fyrir litlu systur mínar. Fór svo út og skökkaði yfir þveran Kópavoginn að sækja bílinn til Sigurjóns. Ég tók Drífu með og hún hafði greinilega gaman að fá að hreyfa sig almennilega. Brunaði svo niður í Nordica á killer lyftingaræfingu með Robba.

Dagurinn hefur svo farið að mestu í að rifja upp grunnskóla dönskuna og prósentureikning með Heiði systur.
kl. 19:12 | Athugasemd (1)

9.9.2005 : Aldrei lærir maður

Maður hefði haldið að miðað við allar sögurnar hans Ragga um eldamennskuna þegar hann fór fyrst til svíþjóðar, að maður væri búinn að læra eitthvað. Maður hefði haldið, já.

Samt datt mér einhvern veginn í hug að steikja kjúklingabringur ber að ofan. Í þokkabót var þetta honeymustard sósa þannig að steiktur sykurinn skvettist svona skemmtilega á bringuna.

Note to self: Ekki steikja ber að ofan!
kl. 12:04 | Athugasemdir (9)

5.9.2005 : Massinn

Ég ætla að ganga undir nafninu Bergur Massi, allavega út þessa viku. Ástæðan er einföld, ég náði að klára Mangómassann um helgina. Fyrir þá sem ekki þekkja til í hamborgaraheiminum er það stærsti hamborgari í Evrópu. Heildarþyngd hans er 1100gr eða 1,1kg.

Á laugardaginn tókum við blikastrákarnir seinni part laugardagsins útaf fyrir okkur. Hittumst á grasvellinum hjá Fífunni, köstuðum rugby bolta á milli og spiluðum fótbolta eins og algjörir atvinnumenn. Fáránlega skemmtilegt, því allir tóku þessu mjög létt, allavega þangað til að ég greip boltann með höndum á miðjum vellinu þegar mótherjar mínu í skyndisókn hehe. Fórum svo til Magga og slöppuðum af í heita pottinum þar áður en við fórum upp á Mangó grill.

Það var gaman að sjá svipin á afgreiðslufólknu þegar við báðum um 6 stykki af Mangómassanum. Það er semsagt 6,6kg af hamborgara sem við pöntuðu!. Ef maður klárar hamborgarann og franskarnar á 10min fær maður máltíðina fría. Ég reyndi nú ekki við tímamörkin heldur setti mér það markmið að klára allavega hamborgarann. Fyrir þá sem ekki gera sér grein fyrir stærðinni að þá er Heavy Special á Stylenum með 200gr kjöti. Þessi var í heildina 1100gr. Það þýðir að hægt væri að skera hann í fernt og maður væri samt með nokkuð stóran hamborgara. Hamborgarinn tekur heilan disk og því fékk maður tvo diska. Einn fyrir hamborgarann og einn fyrir franskar.

Ég tók þessu svona semi-rólega og kláraði hann svona rétt rúmlega tuttugu min. Hefði getað reynt við franskarnar eftir á, en ákvað að sýna skynsemi. Held samt að ef ég myndi leggja mig fram gæti ég klárað hamborgarann á 10 min en ALDREI hamborgarann + franskar á 10 min. Það er óeðlilegt! Strákarnir heldu þó að ég ætti meira inni því Biggi þorði ekki að veðja að ég gæti stútað bragðarref eftir máltíðinna. Það kom samt skemmtilega á óvart hvað þessi hamborgari var í raun virkilega góður þrátt fyrir stærðina. Ég var pínu hræddur um að ég fengi bara kjöthleyf eða eitthvað, en þetta var bara mjög gott.

Maggi var ansi nálægt því að klára, kláraði allt kjötið en skildi grænmetið og hluta af brauðinu eftir. Stebbi og Steini keyptu sér einn saman og þeir kláruðu hann og franskarnar Hefði viljað sjá þá reyna við sitthvorn hamborgarann. Óli byrjaði vel eins og hann gerir alltaf en náði ekki að halda út. Skemmst er að minnast pastasalatsins frá Egilstöðum. Hlynur bróðir stóð á gati eftir að hafa klárað svona 2-3/5 af hamborgaranum. Trúði því varla sjálfur, en hann ætlaði sér mun meira. Tobbi beilaði, maðurinn sem kallar föstudagskvöld hammarakvöld gat ekki séð sér fært að prófa stærsta hamborgara í Evrópu og fær því mínus kúlprik. ;)
kl. 12:17 | Athugasemdir (8)

2.9.2005 : aaaah *geisp*

Þá er skólinn byrjaður. Fór í fyrsta tíman á mánudaginn og ég er nokkuð spenntur fyrir sumum kúrsum eins og verkefnastjórnun og jafnvel hagverkfræði. Annars mun ég vera að vinna niður í Hugsmiðju áfram part-time. Var að spjalla við Stebba og við komumst að því að ég væri búinn að vinna hjá síðan ég var 17 ára. Pælið í því. Þetta er orðin ágætis reynsla sem maður er kominn með.

Hvíldartímabilið hófst semsagt hjá mér eftir hlaupið á laugardaginn. Ég er búinn að taka því mjög alvarlega og leggja mig allan fram að leggja áherslu á orðið HVÍLD. Ég er ekki búinn að taka skipulagða æfingu í viku núna og borða þess í stað, hamborgara, nammi og ís. Næsta vika verður samt ekki alveg svona rosalega mikið, þótt ég stefni ekki að því að taka alvarlega æfingar.

Ég, Stebbi Guðmunds og Sigurbjörg vorum að ræða að það væri gaman að hittast og fara í fótbolta, hornabolta eða rugby. Bara svona leika sér. Gera eitthvað annað og fá hreyfingu út úr því í leiðinni.

Þar sem hvíldartímabilið er í gangi fór ég líka og gaf blóð. Ég þarf ekki mikið á því að halda miðað við hreyfingaleysið þessa vikuna ;) Það var greinilega mikill skortur, því það var búið að hringja í mig í allan morgun. Sleppti seinustu mínutunum í seinasta tíma til að geta mætt áður en þeir lokuðu. Eitthvað verður maður að leggja út í samfélagið.

Í kvöld verður heljarinn fjölskyldukvöld. Það verður semsagt kíkt í keilu, farið á Pizza Hut og að lokum á tónleika með Eyfa og félögum. Það verður væntanlega mjög gaman.

Á morgun ætlum við blikastrákarnir á Mangó grill og fá okkur Mangó Massann, 11000gr hamborgara með stórum skammt af frönskum. Kostar 2.490kr og ef maður klárar hann á 10 min fær maður hann fritt. Þetta er engin smá smíði, hamborgari sem er 1,1kg og þeir þurfa meira að segja að sérbaka brauðin í hann. Þetta verður fróðlegt.
kl. 14:13 | Skrifa athugasemd

29.8.2005 : Matreiðslumeistarar

Fékk skemmtilegt símtal frá Bjögga í gær. Hann var að velta fyrir sér hvort ég hefði áhuga á borða köku og spila spil. Ég var náttúrlega ekki lengi að játa því. Hann og Lára voru eitthvað búin að tala um það að baka og ætluðu svo eitthvað að grípa í spil spila og leika sér. Ég fékk þau fyrirmæli að mæta eftir svona 1 - 1,5 klst á meðan ætluðu út í búð að versla og byrja að baka.

Eftir rúmlega 1,5 klst er ég kominn til Bjögga en þá er enginn heima! Ég hringi í Bjögga og kemst að því að hann og Lára eru ennþá út í búð alveg gjörsamlega týnd. Höfðu gleymt að hugsa út í hvað þau ætluðu að baka og vissu því ekkert hvað þau þyrftu að kaupa.

Þegar þau komu aftur (ég beið heima hjá Bjögga og hékk í Xbox) týndi Bjöggi upp úr pokanum; marens botn, kit kat, banana, jarðaber, banana, 1,5 líter súkkulaði ís, kókósbollur og rjómasúkkulaði og sagði svo "eeh nú þurfum við bara að gera eitthvað úr þessu!".Niðurstaðan kom virkilega skemmtilega á óvart.

Klukkan var aftur á móti orðin nálægt kvöldmat þegar við vorum að ljúka við "baksturinn" þannig það var ákveðið að fara út og versla kvöldmat og var fajitas fyrir valinu. Heppnaðist allt saman sérlega vel, þótt allt við eldamennskuna og kökugerðina þann daginn hafi verið "eh jájá prófum það bara". Raunverlegt dæmi:

Lára: Hvað eigum við að setja mikið Kit Kat, er ekki þrjú stykki ekki meira en nóg?
Bergur : Það er of seint, ég er byrjaður að mylja það fjórða!
Bjöggi: Jájá þá er alveg eins gott að setja það fimmta í!

Og þannig var það nú. Endaði með að ég eyddi mestum deginum í bakstur og eldamennsku heima hjá Bögga og staulaðist ekki heim fyrr en rétt fyrir miðnætti þegar Bjöggi var búinn að rústa öllum í Risk.

Að lokum skelli ég uppskriftina af : Drullugott

Hitaðu 1,5 líter af súkkulaðibita ís í örbylgjuofni þannig að hann verður mjúkur eins og shake. Myldu 5 stykki af Kit Kat og marensbotninn. Blandaðu öllu saman í stóra skál þannig úr verði mikil "leðja". Skelli því í form og frystið. Þá skaltu taka jarðaber, banana og vínberin og skera niður. Skerðu kókósbollurnar í helming. Þegar leðjan (botninn) er orðinn frosinn skaltu taka formið út og raða kókósbolunnum yfir og reyna dreifa aðeins úr með skeið. Taktu ávextina og blandaðu saman og helltu yfir allt formið. Bræddu súkkulaðið og helltu yfir. Borðið með mestu lyst yfir Risk.
kl. 17:41 | Athugasemdir (8)

27.8.2005 : Nú liggur vel á mér

Tralla la la la. 51,37 sek í 400m nú rétt í þessu. Er ekkert smá glaður með það. Var pínu áhyggjufullur að ég myndi vera einn í 400m á þessu Powerademóti FH en landliðsstjórinn og þulur með meiru Sigurbjörn Árni Arngrímsson var skráður í nákvæmlega sömu greinar og ég; 100m og 400m. Ég skráði mig nú bara í 100m til vonar og vara, því ég var pínu stressaður með veðrið og nennti ekki að hlaupa 400m í leiðinlegu veðri. Það gerðist ekki í dag. Veðrið var mjög gott, hitnaði eftir því sem leið á daginn, sólin skein og vindur lítill sem enginn.

Byrjaði á 100m þar sem ég lenti í 4. sæti á eftir Gunna B, Óla Tómasi og Bjarna M. Það verður seint sagt að maður sé með kraftinn upp úr blokkunum. Sá rassgatið á Óla áður en ég var lagður af stað. Ég og Bjössi vorum gjörsamlega skildir eftir, eðlilega svosem. Enda hefðum við getað haldið þessum hraða aðra 100m í viðbót eins og sást kannski best á MÍ 15-22 ára þar sem ég náði að vinna Gunnar og var í mikilli báráttu við Óla T. Hljóp þetta á 12,17 sek og held að um leið og maður fer að taka einhver stört með Magga Valla að þá fari 12 sek múrinn.

Um 50 min seinna var svo 400m og þar fékk ég fjórðu braut og Sigurbjörn þriðju. Ég byrjaði í rólegri kantinum, en þó ekki eins og á MÍ á Egilstöðum. Bjössi byrjaðu aftur á móti vel og náði mér eftir 100m. Þá hlupum við saman en eftir 200m þegar við komum að 300m beygjunni hugsaði ég um það eitt að auka hraðann og láta hann ekki fara fram úr mér. Þar munar náttúrlega á lengdinni (einhverjir 3-4 m) og þar sem við vorum að hlaupa hlið við hlið þar, var ég kominn á töluvert meiri hraða. Svo út úr 100m negldi ég fram úr honum og reyndi svo hvað ég gat að halda út alla leið. Fannst ég samt gefa örlítið eftir seinustu 20-30 metrana, þar hefði hjálpað að hafa einhvern betri fyrir framan sig til að geta hugsað um að minnka bilið. Lokatíminn 51,37 sek sem er góð bæting frá 51,71 frá MÍ á Egilsstöðum og 51,81 frá því á Bikar í fyrra. Er mjög sáttur með það.

Núna er eiginlega engin mót framundan heldur bara hvíldartímabilið og því getur maður aðeins farið að slappa af. Hefði samt gaman að því að finna eitt 200m hlaup svo ég gæti sagst hafa bætt mig í 100m, 200m, 300m, 400m, og 800m á þessu ári. En því miður hefur mér ekki tekist að bæta mig í 200m, sem ég skil hreinlega ekki því ég held að ég eigi það alveg inni. Er að hlaupa 100m, 300m, og 400m hraðara en í fyrra, en tekst hreinlega ekki að ná þessu út úr mér í 200m. Mjög skrítið.

Allavega, fínt sumar búið með ágætis bætingum þótt tímarnir sjálfir séu nú kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir ef maður horfir aðeins út fyrir landið. En ég held að um leið og þessir kálfar komast í lag getið maður farið að laga það.
kl. 13:38 | Athugasemdir (7)

25.8.2005 : Frjálsíþróttapælingar dauðans

Keppti á stigamótinu í kvöld og bætti mig um u.þ.b hálfa sekúndu í 300m. Átti 37,48 sek, en fór á 36,92 sek. Hefði vilja hlaupa með Svenna, Halldóri, Mumma og Óla Guðmunds. Mummi var í á 36,6 og það hefði hjálpað töluvert að berjast á 100m brautinni. Ég var nefnilega settur í B-riðli en þeir í A. Þrátt fyrir það náði ég samt að hlaupa fram úr þeim Óla Guðmunds og Finna í A-riðli. Þetta virðist vera dálítið viðloðið við mig. Ég á betri tíma en sumir í A-riðli en er látinn hlaupa í B. Anyways, þetta er bæting og ég er sáttur. Held samt að ég eigi pínu meira inni.

Það er samt svo svekkjandi að hafa ekki getað æft allt árið og þurfa byrja að æfa í mars. Það þýðir að ég næ ekki að komast í mitt besta form. Vantar ákveðinn grunn sem þeir sem hafa æft allt árið (október - september) hafa en mig vantar. Ég vona svo sannarlega að Stebbi Carls geti fixað kálfana á mér 100% og fljótt, þannig að ég geti æft allt árið eins og maður. Þá vonandi fer maður að hlaupa á almennilegum tímum. Það er dálítið erfitt og pirrandi að finna að maður gæti verið að hlaupa betur en vegna skorts á æfingum nær maður því ekki út úr sér. Ég held að um leið og ég nái að æfa október fram í sumarið að ég nái hröðum framförum. En allavega, nóg af pælingum.

Dr. Stefán Carlssoon fer í frí á morgun og Landsspítalinn hefur ekki enn sent myndirnar frá mánudeginum. Það þýðir að ég fæ ekki að vita niðurstöðurnar fyrr en eftir 2 vikur þegar Stebbi kemur til baka. Dálítið svekkjandi að þurfa að bíða. Ég vil náttúrlega að það sem þarf að gera verði gerst sem fyrst svo það hafi sem minnst áhrif á æfingatímabilið hjá manni.
kl. 21:37 | Skrifa athugasemd

22.8.2005 : Radioactive man!

Í dag er ég geislavirkur. Já ég lýg ekki, það er búið að sprauta mig af geislavirku efni þannig að ég er að senda frá mér einhverja alpha eða beta geisla. Ástæðan fyrir þessu er ísótrópísk 3-fasa mjúkvöðva og beinskönnun sem ég fór í útaf þessu eilífa kálfavesini hjá mér. Þetta virkar semsagt þannig fyrir sig að í morgun var tekin mynd af löppunum á mér og ég svo sprautaður af ísótrópa (geislavirka efnið) sem dreifir sér um líkamann. Þá þarf ég drekka vatn og bíða í 1-2 tíma og þá er aftur teknar myndir. Í seinna skiptið sést allt miklu betur, þá er ísótrópinn kominn út í beinin og þau lísast upp og þannig er hægt að sjá betur hvað er að. Vonandi heyra ég svo í Doksa fyrir helgi varðandi hvað næsta skref sé.

Um helgina fór ég Sauðárkrók með Blikunum að keppa á Meistaramóti Íslands 15-22 ára. Mér fannst ég vera hlaupa mjög vel alla helgina og sáttur við frammistöðu mína þrátt fyrir að tímarnir hafi verið í hægara lagi en þar kenni ég miklum vindi um. Það getur hægt vel á manni seinust 100 metrana að fá 7 m/s framan í sig. Annars voru tímarnir:
400m - 52,12 sek og 3. sæti. (Vindur í 100m hlaupinu rétt á eftir mældist -7,8. Mér fannst ég hlaupa þetta vel og skokkaði ekki fyrstu 200m eins og seinast heldur byrjaði vel og hélt svo út.

200m : 24,46 sek og 3. sæti eftir harða báráttu við Óla Tómas seinustu metrana. Vindur -3,6 m/s. Ánægður með að Gunnar Bergmann spretthlaupari náði mér ekki í startinu og ég hélt vel út og kláraði alla leið.

Er alveg handviss um að bæði hlaupin hafi verið bætingarhlaup í rétta veðrinu. Þar að auki fór ég í 4x100m boðhlaup og 4x400m og er nokkuð sáttur við hlaupin þar. Annað sæti í 4x100m og yfirburðasigur í 4x400m með Óla, Stebba og Magga.

Svo er það 300m á fimmtudaginn. Get ekki beðið.
kl. 13:35 | Athugasemdir (4)

13.8.2005 : Æfingar, þreyta og innbrot

Æfingar hafa gengið heldur betur vel þessa vikuna og reyndar seinustu viku líka. Tók mína hröðustu æfingu frá upphafi í gær með Óla Margeirs. Þar sem hann kom fljúgandi á mig og ég hugsaði bara um það eitt að ná honum á meðan hann hugsaði um það eitt að leyfa mér ekki að ná sér. Holl samkeppni milli liðsfélaga sem hjálpar báðum er ekkert nema af hinu góða. Þegar báðir vinna að sama takmarki.

Ég var annars alveg úrvinda í gær, var búinn að heyra í strákunum að gera eitthvað um kvöldið en beilaði svo, fór í laaaangt sjóóóóðandi heitt bað og lagðist svo upp í rúm og steinrotaðist. Það er merkilegt að vakna að sjálfsdáðum klukkan átta á laugardagsmorgni. Allt í einu eru komnir 4 klukkutímar aukalega sem hefur aldrei haft á laugardegi. Verst hvað ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við þá. Þetta er annars búið að vera svona þessa vikuna, hef ekki þurft vekjaraklukku heldur bara vakna af sjálfsdáðum.

Þessa helgi langar mig svo bara að slappa af og taka því rólega. En afslöppunin tekur samt ekki alveg strax við, því ég stefni á hörkuæfingu með einkaþjálfaranum hans Clints Eastwood á eftir. Þá verður tekið á því og svo beint í nudd hjá Nazeem.

Lenti annars í því í nótt að það var brotist inn í herbergið mitt. Herbergið mitt er nefnilega með hurð út á pallinn. Það er hægt að teygja sig inn um gluggann og ofna hurðina innan frá og það gerðist einmitt í gær. Vaknaði við það að ég sé hendi koma inn um gluggann og reyna opna hurðina innan frá. Ég reis náttúrlega strax á fætur og öskraði "Hvern andskotanum helduru að þú sért að gera!!? "Hver er þetta?!" með "hræddu-þjófinn-í-burtu" röddinni minni. Þá fæ ég lítið aumt á móti "æ sorrý elskan, þetta er mamma".

Já hún mamma mín hafði læst sig úti og þurfti að komast inn. Hún vildi ekki hringja dyrabjöllunni eða banka upp á hjá mér. Hún hélt nefnilega að hún gæti lumar sér inn um herbergið mitt án þess að ég myndi vakna. Gott move!
kl. 13:02 | Athugasemdir (2)

10.8.2005 : Snillingurinn hann Bergur

Var voða snjall í gær. Vanalega mæti ég í vinnu klukkan níu en í gær, tók ég mig til og vaknaði klukkan sjö og var því mættur hálfátta. Sat fyrir framan tövluna og vann og vann, tók engan hádegismat heldur hélt áfram að vinna. Með þessu móti tókst mér að sleppa fyrr úr vinnunni og var mættur aftur heim rétt rúmlega þrjú. Allt til að geta horft á HM í frjálsum. Það passaði að ég sá nokkur köst í kringlunni og bamm - kolsvartur himinn; rigning eins og hellt væri úr fötu, þrumur og eldingar og heljarinnar rok sem endaði með því að mótinu var frestað.

Gott að miða allan daginn útfrá því að geta horft á HM og svo er því frestað. Auðvitað passaði það svo að þegar mótið var að hefjast aftur var kominn tími til að fara æfingu. Í dag ætla ég að vera snjallari, fá minn nætursvefn og láta systur mínar taka þetta upp klukkan þrjú í dag og horfa á eftir æfingu. Athuga hvort það gangi ekki betur.
kl. 10:16 | Skrifa athugasemd

6.8.2005 : Mér leiðist

Vá tilfinning sem ég hef ekki fundið fyrir lengi. Mér hreinlega leiðist og ég nenni ekki neinu. Hvað er þá betra en að væla yfir allt internetið?

Ég er aleinn heima, pabbi, mamma og stelpurnar á Siglufirði og Hlynur í vinnunni. Húsið er algjörlega tómt og hljóðlaust. Það er hreinlega ekkert að gera, og það sem er hægt að gera er of leiðinlegt til að ég nenni því. Loftnetið er svo eitthvað að klikka þannig að ég get ekki horft á sjónvarpið. Mér leiðist!

Í gær bauð ég Tobba og Sigurbjörgu í hamborgara eins og til stóð, en í staðinn fyrir að vera bara þrjú ákvað ég bara að halda Blikagrill. Þannig að eftir æfingu skelltu allir blikarnir sér í Kópavogssundlaugina og svo heim að grilla. Ég stóð samt við að ég ætlaði að BJÓÐA þeim þannig að þau sátu bara í sófanum meðan ég grillaði ofan í þau hamborgara.

Í morgun hélt ég svo áfram að elda ofan í fólk, því Daði kom yfir í brunch. Týpískan english breakfast; bacon, hrærð egg, ristað brauð, steiktar pylsur og bakaðar baunir og að sjálfsögðu Earl Gray te-ið og/eða hreinan appelsínu safa til að skola þessu niður. Klassískt.

Núna aftur á móti er ekkert að gera og allt dautt. Undir venjulegum kringumstæðum væri ég kominn með ís eða bakkelsi úr bakeríinu undir hönd, en þar sem maður er að reyna hugsa um hlaupin þessa dagana að þá hef ég ekki samviskuna í það. Sérstaklega eftir þennan morgunmat.
kl. 16:27 | Athugasemdir (5)

4.8.2005 : Versló og fleira

Þrátt fyrir að seinasta vika hafi verið killer var Verslunarmannahelgin afar næs, tók tvær hörku æfingar niður í Nordica með Robba á lau og sun og var rétt í gær að losna við strengina. Tók svo grill með Robba, Önnu og Unni. Mjög rólegt og þægilegt.

Fór líka til Bjögga og Kristínar og vann þar Catan á glæsilegum endasprett á móti Bjögga. Endurtók leikin svo í Gettu Betur með Kristínu og Sveinbirni. Skemmtilegt kvöld og bananakakan hennar Kristínar ennþá betri.

Mamma og Pabbi eru sjálfsagt í þessum skrifuðu orðum að leggja af stað til Siglufjarðar en Ingibjörg systir er að fara keppa þar í fótbolta. Það þýðir að ég er með húsið og í tilefni að því ætla ég að bjóða Hr. Bicep og frú í eitt stykki hammara.
kl. 12:52 | Athugasemdir (11)

29.7.2005 : Úff

Jæja núna er ég farinn HEIM, eftir að hafa sitið niður í vinnu frá því klukkan 09:00 á fimmtudagsmorgni!
kl. 18:14 | Athugasemdir (6)

29.7.2005 : Pressa

Úff, hefur sjaldan verið eins mikið að gera í vinnunni eins og upp á síðkastið. Ég er hreinlega non-stop. Sit einmitt í þessum töluðum orðum niður á Snorrabraut að klára frá enn einn vefinn fyrir mánaðarmótin. Sé fram á að verða eitthvað fram eftir.

Það versta er að ef það væri ekki svona mikið að gera að þá lægi ég heimi, því ég er hreinlega búinn að vera hóstandi, hnerrandi og snýtandi alla þessa viku. Ég skil ekki hvernig er hægt að næla sér í kvef í heitustu viku sumarsins. Ég er líka greinilega byrjaðurr að smita, því sífleiri innan fyrirtækisins eru byrjaðir að hnerra óvenju mikið.

Útaf þessu helv. kvefrugli og mikilli vinnu hafa æfingarnar því miður ekki verið eins og ég hefði viljað. Það er líka þannig að þegar maður er að vinna svona frameftir er maður alltaf að narta i eitthvað, kexpakkarnir hreinlega hverfa.

Fyndið samt að Margeir kom hingað fyrr í kvöld til að prenta eitthvað út og var greinilega brugðið. Bjóst kannski ekki alveg við að sjá einhvern gaur með rauð augu, þrútið nef, sveittan (bókstaflega) og hokinn yfir tölvunni með kexmylsnurnar út um allt að forrita. Stemming.
kl. 0:21 | Athugasemd (1)

26.7.2005 : MÍ, CS og ÍS


Meistaramót Íslands búið, gekk bara ágætlega. Keppti í 400m fyrri daginn á 51,71 sek sem er bæting um nákvæmlega 0,1 sek. Nokkuð ánægður með það. Sérstaklega því ég held að ég eigi aðeins inni þar. Ég byrjaði mjög, mjög rólega en jók hraðann þegar ég kom að 200m beygjunni og negldi svo út úr henni. Skemmtilegt að hlaupa þannig að maður neglir í lokin, en ekki endilega hentugast til bætinga. 800m daginn eftir gekk aftur á móti ekki eins vel. Vantaði allan haus í þetta, skil ekki ennþá afhverju ég fór ekki með Óla og Tobba. Það endaði að ég skokkaði í mark á 2:05 "ekkert" þreyttur.

CS
Compartment Syndrome sagan endalausa heldur áfram. Þetta virðist ekki lagast eins og ég hef margoft vælt yfir á þessari síðu. Ég er því að fara hitta Stefán Carlsson sem skar mig upp 6. september í fyrra núna 12. ágúst. Reyna finna út afhverju ég get ekki skokkað meira en 2 hringi á grasi í upphitun. Ég vil finna endalega lausn á þessu sem gerir mér klefit að æfa eins og maður. Ég næ aldrei alvöru árangri svona, maður nær að halda sér svona sæmilegum en ekki meira en það.

ÍS
Ég er búinn að komast að því hvað Ben & Jerry's ís er alveg ótrúlega góður ís. Ég er orðinn pínu hooked á honum. Þetta eru svo skemmtileg brögð og eins og "Chocolate Mint Cookie" eða "Chokolate Chip Cookie Dough". Hverjum dettur í hug að setja deig í ís....það virkar allavega! Mæli hiklaust með
Ben & Jerry's ís. Maður stútar einni dollu (e. pint) á no-time. Hmmm.
kl. 10:32 | Athugasemdir (4)

21.7.2005 : Jamm og jæja

Fer austur á föstudaginn með blikunum að keppa á Meistaramóti Íslands. Þar mun ég keppa í 400m, 800m og 4x400m boðhlaupi. Þessi vika er því búin að vera nokkuð róleg æfingalega séð.

Sem betur fer er ég að fíla mig betur en í seinustu viku, var bara að klúðra hverri æfingunni á eftir annari, var sloj, þreyttur og orkulaus. Æfingarnar núna í dag hafa gengið mun betur og mér finnst ég nokkuð léttur og hraður. Finn meira að segja til smá í hamnum eftir 150m sprettina með Tobba í gær.

Mín "heittelskaða" er gjörsamlega að redda mér. Ég fór í tíma á mánudaginn, miðvikudaginn, í dag og á tíma líka á morgun. Þannig að vonandi verða kálfarnir í sínu besta standi fyrir austan. Það er allavega búið að hamast nógu mikið á þeim og skjóta laser á þá.

Svo er ég búinn að panta tíma hjá Stebba Carls, doksanum sem skar mig upp í haust, því ég er alls ekki heill. Enda búinn að vera í sjúkraþjálfun 3 sinnum í viku frá september. Þetta er bara orðinn standard. Ég er aldrei 100% - en er nokkuð góður eftir sjúkraþjálfun. Sjúkraþjálfunin kemur mér þannig form að ég geti æft, þá tek ég æfingu, verð slæmur þarf að fara í sjúkraþjálfun sem reddar mér að næstu æfingu og svo viedere. Basically bara eins og rússibani. En varðandi uppskurðinn að þá er það víst þannig að í extreme tilfellum þarf oft að skera tvisvar upp til að losa um þetta almennilega. Veit samt ekki hvort ég sé ofur-hrifinn af því, en lokaniðurstaðan er samt sú að ég vil losna við þetta, fá smá botn í þetta kálfamál þannig að ég geti hlaupið meira en 2 hringi á vellinum í upphitun.

Hvernig væri nú að taka heilt ár, þar sem engin stórvægileg meiðsli eru að angra mann.
kl. 15:22 | Athugasemd (1)

20.7.2005 : Nafnalisti

Þetta er náttúrlega fyrir utan fjölskylduna.

Sérstakur töffari og heiðursmaður
- Róbert Freyr Michelsen

Almennir töffarar og heiðurfólk
- Eyþór Rúnar Eiríksson
- Elsa og Lilja
- Anna Jónsdóttir

Hálfheiðusrmenn
- Þorbergur Ingi Jónsson
kl. 11:12 | Athugasemdir (6)

19.7.2005 : Skyndibiti

Það er naumast að maður er í skyndibitamatnum þessa dagana.

Föstudagur:
- Hádegismatur: Heavy Special á Style-num
- Kvöldmatur: Pizza Hut

Laugardagur:
- Hádegismatur: Pylsur
- Kvöldmatur: Heimagerðir hamborgarar

Sunnudagur:
- Hádegismatur: Nings
- Kvöldmatur: Heimatilbúin Pizza La Mamma

Helgin var annars nokkuð góð, kíkti tvisvar á bíó; Madagascar og Sin City. Sú síðarnefnda er ekkert smá töff, frekar nett mynd. Sigurbjörg hélt líka upp á afmælið sitt og þar sem ég komst að því að stelpan er bara helvíti lúnkin við að baka. Svo var bara eðal Singstar partý eftir á. Kíkti líka lyftingaræfingu með Robba og að sjálfsögðu var kíkt í pottana, fengið axlarnudd og slappað af í Sauna. Náði líka að vinna aðeins í frjalsar.com. Þannig að þetta var bara helvíti fín helgi, þótt ég hafi borðað helst til mikið af ruslmat og nammi. En nú sný ég bakinu við öllu svoleiðis. Meistaramót Íslands um næstu helgi og þá er betra að vera ferskur og gera eitthvað af viti.
kl. 7:42 | Athugasemdir (11)

18.7.2005 : Sjúkraþjálfun

Fólk hefur greinilega gaman af þessu. ;)
kl. 12:04 | Athugasemd (1)

15.7.2005 : Tæææpur

Umræða varðandi 200m hlaup sem ég var að pæla að taka þátt í gær.

3:41.64 mín...áður en ég dey says:
hvað ferðu hratt?
3:41.64 mín...áður en ég dey says:
23.40?
Bergur says:
nei ég er búinn að vera rosalega sljór og down seinustu viku-10 daga
Bergur says:
langar bara að rífa mig upp úr þessu og negla á einn 200m, og reyna taka 24,3 sek (hljóp það á maí mótunum)
3:41.64 mín...áður en ég dey says:
Þú jarðar það!
3:41.64 mín...áður en ég dey says:
mundu að það er ókeypis að bæta sig í krikanum, svo mættu
Bergur says:
jájá ég mæti sko, en ef ég fer ekki hraðar en 24,3 að þá fer ég heim að grenja
3:41.64 mín...áður en ég dey says:
hmmm eða heim öskuvondur eftir að hafa komið við í klefanum staðráðinn að þetta bætingaleysi dugi ei meir!
Bergur says:
já það hljómar reyndar betur

Frá mótaforrit Frjálsíþróttasambandsins:
2. sæti 24,29 0,0 Bergur Hallgrímsson 1983 Breiðablik

Gat það verið tæpara! ;)
kl. 10:40 | Athugasemdir (9)

11.7.2005 : GSM

Hvorn síman á ég að kaupa
- 6230i
- 6111

Ég veit ekkert. Öll komment þegin.
kl. 21:06 | Athugasemdir (689)

9.7.2005 : Letipúki?

Það mætti halda að ég væri orðinn algjör letipúki. Ég er orðinn alltof rólegur í djammi og partýstandi. Í gær ætluðu nokkrir krakkar út 10. bekk að hittast á Sólón að rifja upp gamla tíma og svo var 22 ára afmæli hjá Trausta kallinum. Samt sem áður var ég komin heim fyrir 01. Það var alveg gaman að hitta alla og ná smá catching up og allt það, en ég nennti samt sem áður ekki að vera langt fram á nótt. Ég held að Robbi hafi smitað mig!

Ég er einmitt að fara í kvöld til Robba og Önnu í grill, spil, og spjall. Verður gaman að hitta þau eftir utanlandsferðina. Einhvernveginn að þá er ég orðinn miklu meira fyrir að setjast niður með vinum í staðinn fyrir að fara eitthvað heljarinnar fyllerí. Hittast, grilla, borða góðan mat, grípa í spil og/eða leiki og njóta kvöldsins frekar þannig en að hella í mig áfengi.

Það getur samt verið fínt öðruhverju að taka smá rugl, en ég sé að það er bara orðið rosalega sjaldan sem ég fæ mér áfengi. Bikarhelgin er reyndar fínt dæmi, þá var heljarinnar djamm á laugardagskvöldinu en á sunnudeginum eyddi ég svo hjá Bjögga og Krístinu ásamt Hafdísi og Sveinbirni. Þar sátum við, nörtuðum í fríhafnarnammi, spiluðum Catan og Sequence, pöntuðum pizzu og skemmtum okkur akkúrat öfugt við kvöldið áður.

Dagurinn í dag er búin að vera frekar rólegur, búinn að vera leika mér í eldhúsinu að útbúa grillmatinn minn fyrir kvöldið. Fiktaði aðeins í tölvunni og svo legið upp í rúmí að horfa á Gullmótið.

Ég er samt pínu svekktur því að Blikastrákarnir + Tobbi tóku helvíti fína æfingu í gær sem ég gat ekki tekið og sé ekki fram á að taka. Fæturnir eru ekki alveg að gera góða hluti. Núna er semsagt samviskubitið og skynsemin að berjast um hvað eigi að gera.
kl. 16:10 | Skrifa athugasemd

7.7.2005 : Snilld

Annað kvöldið í röð sem ég fer snemma að sofa. Þetta er allt að koma. Reyndar hefði ég alveg þurft að vinna smá, en ég ákvað að velja rúmið frekar. Fékk mér því að borða, skellti mér í sturtu, lagðist upp í rúm, kveikti á sjónvarpinu og lenti á Seinfeld. Það eru sjálfsagt með betri gamanþættum sem hafa verið gerðir. Ég fíla allavega húmorinn í þeim. Lá semsagt upp í rúmi horfði á Seinfeld og svo Coupling. Voru fínir þættir frá Bretlandi og sýndir á Stöð 2, nú er Skjár Einn komnir með Coupling U.S. Breskur húmór sem er búið að ameríkuvæða og virðist virka fínt.

Slökkti svo á imbanum klukkan 21:00 og sofnaði. Vaknaði þó klukkan 02 eftir 5 tíma svefn og átti erfitt með að sofna aftur, enda erfitt að fara sofa klukkan 21:00 ef maður er algjörlega úthvíldur. Klukkutíma seinna var ég þó sofnaður aftur og mættur svo niður í vinnu rétt fyrir 08:00. Magnað að ná 8,5klst í svefn. Frekar en einhverjum 5-6. Maður er alveg úthvíldur. Allt annar maður.

Annars er annað sem ég verð að minnast á og það er yndislegu náttbuxurnar mínar. Mamma og Pabbi gáfu mér í sumargjöf. Þetta er bara mesta snilld sem um getur. Þetta er svo þægilegt, ég myndi ganga í þessu í vinnuna ef það væri ekki eitthvað smá dress-code hérna. Þetta er sérstaklega nytsamlegt fyrir mann sem klæðir sig ekki um helgar og getur því gengið í þessu heima. Plús að það er miklu "frjálslegra" að sofa í þessu heldur en þröngum boxerum.
kl. 8:23 | Athugasemdir (2)

6.7.2005 : Næs

Seinustu dagar hafa verið nokkuð strembnir og þar af leiðandi er ég búinn að vera fara seint að sofa. Það var því sérlega þægilegt að koma heim að æfingu um 20:30, fá sér að borða, skella sér í sturtu og vera kominn upp í rúm klukkutíma seinna.

Þessi morgun var líka frábrugðinn öðrum morgunum upp á síðkastið þar sem ég vaknaði ekki við þrjár vekjaraklukkur sem ég snooza stanslaust. Núna vaknaði ég að sjálfsdáðum 7:30 eftir 9klst svefn. Aaah.
kl. 8:32 | Skrifa athugasemd

4.7.2005 : 6,1

Er uppáhaldstalan mín.
kl. 23:41 | Athugasemdir (3)

3.7.2005 : Live 8 hraðlestin

Laugardagurinn fór að mestu í það að horfa á stærsta heimsviðburð og tvímælalaust stærsta tónlistarviðburð sem haldin hefur verið. Markmiðið að þessu sinni var ekki að safna peningum eins og fyri 20 árum, en þá söfnuðust um 100 milljónir, heldur að skora á G8 (iðnríkin 7 + Rússland) að gefa eftir skuldir fátækustu ríkja heims, og útbúa áætlun svo að svona gerist ekki aftur. Finna leiðir til að hægt sé að fara byggja upp nútíma samfélag þar sem fólk þarf ekki að deyja úr hungri.

Geldof og félagar lögðu mikið upp úr því að auglýsa að þetta væru ekki góðgerðartónleikar heldur áskorun. Það væri ekki verið að biðja um ölmusu, heldur aðgerðir! Miðar á tónleikana voru ekki seldir heldur var haldið happdræti. Þeir sem unnu miða og ætluðu sér að græða með að selja þá á netinu á vefsetrum eins og e-bay græddu lítið þar sem e-bay lokaði á öll slík viðskipti. Rökin voru sú að það væri ekki rétt að græða á góðgerðastarfi annara.

Það vakti þessvegna athygli mína að Unicef á Íslandi skyldi vera auglýsa á sama tíma. Ég veit ekki hvernig þessu var háttað úti en mér fannst eins og Unicef væri að nýta sér þennan gríðarlega kraft og áhrif Live 8. Auglýsingar Live 8 með yfirskriftinni "Justice not charity" voru út um allt á tónleikastöðunum, en samt sem áður virtist Unicef á Íslandi vera óska eftir fólki til að gefa peninga. Einmitt öfugt við stefnu Live 8. Unicef vildi að fólk væri að borga mánaðarlegar greiðslur til uppbyggingarstarfs á meðan Live 8 var með sérstakar yfirlýsingar eins og "We don't want your money, we want your name!". Tilgangurinn með tónleikunum var að safna undirskriftum sem yrðu síðan afhentar forystumönnum G8 á fundi sem fram fer 6. júlí.

Mér fannst þessvegna Unicef vera að fara þvert á móti tilgangi tónleikana, þeir voru að biðja um peninga. Mér fannst þeir vera hálfpartinn vera sníkja far hjá Live 8. Láta þá gera alla vinnuna og fá svo fólk með sér í lið. Ég hef ekkert á móti Unicef og styð það fullkomlega ef fólk vill borga fasta upphæð á mánuði sem fer í uppbyggingarf. Það er mjög gott og göfugt. Það var bara ekki markmið tónleikana, það var bara ekki það sem þetta snérist um og mér fannst Unicef vera að nýta sér þennan áhuga sem allt í einu vaknaði í sína þágu meðan athyglin hefði áttað beinast að því að safna undirskriftum ekki peningum.
kl. 15:10 | Skrifa athugasemd

29.6.2005 : War of the Worlds

Mastercard voru svo næs að gefa hugsmiðjunni 8 miða á sérstaka forsýningu á War of the Worlds í gær, en venjuleg forsýning er í dag. Þarna var boðið upp á frítt popp og kók og jafnvel kaldan Thule fyrir þá sem vildu það frekar.

Fín mynd, sem betur fer sleppur hún við flest allar klisjur. Engin skot af Forseta Bandaríkjanna með setningar eins og "We gotta save the people" eða eitthvað. Þannig að ameríska vellan er frekar lítil, sömuleiðis er mjög lítið um hetjur og í raun og Tom Cruise bara hræddur alla myndina. Hann er ekki gaurinn sem fer upp á móti geimverunum, og berst við þær og sigrar. Þvert á móti, þá er það eina sem hann hugsar um er að halda lífi. Þetta er samt ekki mynd sem skilur neitt rosalegt eftir sig, en hin ágætasta Blockbuster mynd.

Sýningin í gær hlýtur að hafa verið einhver extra-powersýning, því salurinn hreinlega nötraði. Ég var með smá hausverk þegar ég labbaði út úr salnum. Hef farið á powersýningar, en þessi var mun háværari en þær sem ég hef allavega farið á.

Þessi miði kom sér annars vel, því ég hef mikið verið að pæla í bíóferð seinustu daga og vikur. Langt síðan að ég fór seinast í bíó. Þannig er þetta oftast með mig, fer á nokkura mánuða fresti en þegar ég fer að þá tek ég smá bíó syrpu og sé allt. Er einmitt að pæla að fara skella mér á Star Wars á næstu dögum og jafnvel Batman Begins og hugsanlega Mr & Mrs. Smith. Sjáum til.
kl. 12:35 | Athugasemdir (2)

29.6.2005 : Út að borða

Það voru fleiri sem voru í góðri stemmingu á laugardagskvöldið, þar á meðal kvennasjarmörinn Einar Bergur Ingvarsson a.k.a netti gaurinn a.k.a Ken a.k. einbing og núverið a.k.a armbeygjumeistarinn.

Nýjasta nikkið fær hann vegna þess að fyrir nokkrum mánuðum förum við út að skokka eins og við eigum stundum til. Ég var þá nýkominn frá æfingabúðum í Portúgal en hann ekki búinn að hreyfa sig mikið. Við hlupum dágóðan spotta og í fyrsta skipti biður Einar um að við stoppum rétt áður en við klárum hringinn. Hann hefur nú alltaf verið natural fit, svona pund-fyrir-pund sterkur og eins og Viddi Sím orðaði það: "harður kall" þannig að ég var nokkuð hissa. Eftir skokkið ákveðum við að taka nokkrar upphífingar. Ég byrja og rumpa af tólf stykkjum og þótt nú viss að Einar myndi sýna mér í tvo heimana. Ótrúlegt en satt, í fyrsta skipti á ævinni tókst mér að gera fleiri upphífingar heldur en Einar.

Við förum í framhaldi að ræða um svona standard fittness og vorum sammála um að t.d. 50m armbeygjur væri eitthvað sem maður ætti "alltaf" að geta án of mikilla vandræða. Einar bætir við að hann ætli einmitt að fara taka sig og á stefni á 100 armbeygjur í einu setti. Ég hef nú aldrei verið sérstakur í armbeygjum þótt ég nú eitthvað og var fljótur að svara að ef hann færi 100 armbeygjur fyrir lok sumars að þá myndi ég bjóða honum flott út að borða. Bætti svo við að það væri "ekkert mál" að koma sér t.d. upp í 70 stykki en frá 70 upp í 100 væri ansi stórt bil.

Nú hefur kallinn aldeilis tekið sig á, skokkar 10km reglulega án þess að blása úr nös. Stefnir ótrauður á hálfmaraþonið í ágúst og viti menn hann er kominn upp í 70 stykki í þessum helvítis armbeygjum. Ég er byrjaður að spara.
kl. 11:15 | Athugasemdir (3)

26.6.2005 : Bikarinn

Bikarinn var stórfínn. Átti bara að hlaupa eitt hlaup, en endaði að hlaupa alls þrjú á laugardeginum. 800m eins og til stóð, hljóp svo í skarðið fyrir Magga Valla í boðhlaupinu og að lokum nektarhlaup um miðja nótt á Kópavogsvelli.
kl. 12:35 | Athugasemdir (9)

23.6.2005 : Sund

Gærdagurinn endaði bara helvíti vel. Mælti mér mót með Tobba niður á Kópaovgsvelli eftir vinnu þar sem við tókum nokkra 150m fílingsspretti. Seinustu æfingu fyrir bikar, algjörlega andleg til að finna sig. Skelltum okkur svo á Mekong og borðuðum hraustlega. Ég rauk snemma þaðan því ég ætlaði að hitta Einar Berg í Salalauginni. Þegar við erum svo að fara upp úr, ég nýbúinn að klæða mig úr skýlunni, þá ség ég Tobba mættann og viti menn Sigurbjörg og Linda á leiðinni. Ég ákvað því að kíkja aftur ofan í með þeim. Var semsagt í rétt tæpa 3 klukkustundir í sundi.

Í kvöld er fundur fyrir Bikarinn. Ég hleyp 800m á laugardaginn. Spurning hvernig verður með Bikardjamm, það eru nú vanalega, en Bikarinn er líka vanalega í lok tímabilsins en ekki fyrir miðju. Ef það klikkar er Signý með afmæli um kvöldið. Beta er eitthvað að reyna hvetja fólk til að mæta, fá smá 6-X stemmingu. Það verður ábyggilega gaman.

Annars er líka fjölskylduútilegan um þessa helgi. Barnabörn langaömmu og langafa hittast, tjalda og leika sér saman með allri fjölskyldunni. Þannig að það gæti vel verið að maður fari bara þangað eftir mótið. Sé til, allt óráðið. Maður er allavega með nokkur járn í eldinum.
kl. 11:22 | Athugasemdir (2)

21.6.2005 : Lestur og nammi - sjónvarp og nammi

Eftir að ég kom heim frá Eistlandi í gær eyddi ég deginum í að narta í nammi og klára lesa Da Vinci lykilinn. Svona á að slappa af! Fattaði svo að það er mikið Robba að þakka, því hann gaf mér Anthon Berg bita með súkkulaði og appelsínumarsipan. Algjört svona sparinammi sem er alltof gott. Hann lánaði mér líka bókina, og hún var sömuleiðis mjög góð. Afslöppun í boði Robba segi ég nú bara.

Ég hélt svo áfram að narta á nammi um kvöldið, en í þetta skipti lakkrís og yfir sjónvarpinu. Nánar tiltekið Lost og svo 24 sem pabbi hafði tekið upp fyrir mig kvöldið áður. Heimkoman var því afar góð. Fínt að taka smá nammidag eftir góðar æfingar úti og fyrir skemmtilegt mót um næstu helgi.

Væri það samt ekki of næs, ef maður gæti lifað alla daga svona. Ég væri til í að geta bara lesið góðar bækur, borðað góðan mat og slappað af áhyggjulaus. Vá hvað ég lifi í draumaheimi, ég held að ég sé bara orðinn langtíma þreyttur. Ég nýt svona daga bara alltof mikið. Ég ætla að reyna vera skynsamur og hætta hlaða á mig verkefnum og gefa sjálfum mér meiri tíma. Hætta þessu "já ekkert mál" syndrome-i sem ég er stundum með. Gallinn er að það er líka gaman að taka að sér krefjandi og skemmtileg verkefni. Takast á eitthvað nýtt og spennandi og hafa mikið að gera. Ég balance-a þessu bara stundum ekki nógu vel. Það er samt allt á réttir leið.
kl. 13:29 | Athugasemdir (2)

19.6.2005 : Skítfínt

Allt gengur svona skítfínt. Mér finnst ég vera rúlla upp æfingunum nokkuð vel og er sáttur við það. Ég, Kristín Birna og Stebbi Guðmunds fundum líka snilldar veitingastað þar sem var sko matur. Í raun það fyrsta sem ég gat kallað mat í þessari ferð. Kjötborðið út í matvörubúðinni er samt fínt, búin að fara þangað tvisvar. Er alveg hættur að borða á hótelinu. Í gær pantaði ég bara pizzu með Silju, Eyju og Einari. Get ekki sagt að það hafi farið vel ofan í mig, en þau eru hress.

Svefninn í gær gekk heldur vel, herbergisfélagi minn hraut svo að ég vaknaði klukkan hálfsex og náði ekki nema svona að hálfdotta til 8, þá kom þögn og ég náði góðum "svefn" til 9. Get ímyndað mér að ég verð þreyttur í kvöld.

Taxarnir hérna eru happa glappa. Borgaði 124 eisneskar krónur til að fara á völlinn í morgun en 43 til að komast heim. Ég bað nú bara um númerið á þeim taxa þannig að ég hringi bara beint í hann ef mig vantar far.

Ég náði mér í Press passa í gær og sit því í fréttamannastúkunni núna, en sleggjukast er hafið á upphitunarvellinum. Það eru samt fáir fréttamenn hérna, norska ríkissjónvarpið er reyndar hér og ég hef eitthvað spjallað við þá.

Sigurjón var á vellinum að mynda í sólinni, en ég sat upp í stúku í skugganum. Fattaði ekki að taka með mér peysu og var að krókna úr kulda þarna. Er þó betur klæddur núna, hettupeysu og síðum buxum.

Og að lokum fyrir Robba: Íslenskar frjálsíþróttastúlkur bera af hvað varðar fegurð kvennmanna hérna en danir koma þar á eftir og svo koma nokkrar austurískar. Þær eistnesku er alveg út úr kú.
kl. 11:38 | Athugasemdir (2)

16.6.2005 : Allt gott

Jæja þá er maður kominn til Tallins og er bara á fullu að hafa samband við fjölmiðla, semja greinar á frjalsar.com og fri.is og æfa. Auk þess er ég líka að skila af mér Skógar 2005 plakkatinu, þannig að það er allt að gerast.

Ég er sáttastur við að ég fékk viðtal í hádegisfréttunum á Rás 2 í beinni útsendingu að tala um Evrópubikarinn. Afar sáttur með það.

Annað sem ég er sáttur með er 2x4x200m æfingin sem ég tók með Stebba Má, landsliðsmanni í 800m. Kom bara svona helvíti vel út hjá mér. Mæli með þessu

Ég er aftur á móti ekki alveg sáttur við matinn sem við fáum þarna, þetta er eitthvað svo slísí matur. Þetta er svo ótrúlega óhollt eitthvað, samt ekki svona hamborgarar og pizzur óholt heldur er allt djúpsteikt eða löðrandi í olíu. Kjötið hérna er heldur ekki upp á marga fiska og ég er stundum ekki viss um hvaða kjöttegund ég er að borða.
kl. 18:42 | Athugasemdir (3)

13.6.2005 : Leyndó 01

Jæja þá er komið að því að uppljóstra allavega einu leyndó. Það er samt ekkert leyndó, ég vil bara ekki gaspra um einhverja hluti án þess að þeir séu 200% öryggir. Maður veit aldrei hvað getur gerst. Nú er það aftur á móti öruggt.

Frjálsíþróttasambandið hafði samband við mig í seinustu viku til að athuga hvort ég hefði áhuga á að fara út með landsliðinu á Evrópubikar sem svona "public relations " / fréttaritarastörf. Ég er því að fara út til Tallin, Eistlands núna á miðvikudagsmorguninn og kem aftur heim á mánudaginn. Þetta verður mjög gaman, og ég ætla mér að reyna publishera og koma þessu eins mikið á framfæri og ég get.
kl. 20:03 | Athugasemdir (4)

13.6.2005 : Helgin

Föstudagurinn tekinn easy og farið snemma að sofa, enda vaknað klukkan 7 til að keyra til Sauðárkróks. Maggi Jakobs hringdi í mig fyrr um kvöldið og var að velta fyrir sér hvort hann mætti fljóta með.

Ég fór náttúrlega aðeins seinna en ég ætlaði mér, og var að lagður af stað um 8 í stað 7:30, það kom þó ekki að sök. Var mættur á völlinn vel tímanlega, hitti blikana og slappaði af í sólinni áður en við fórum að hita upp.

Þetta boðhlaup var algjör snilld. Virkilega skemmtilegt og spennandi. Allar sveitir voru ekki eins mannaðar og þær vildu og því mikil spenna. Ég var settur á seinasta sprett á móti Bjössunum tveim og hélt í þá alveg 700m og er ekki frá því að ég hafi fengið bætingarsplitt. Var um og undir 2 min. Hvort sem það var 1:59.5 eða 2:00.5. skiptir ekki öllu. Þetta var "asnalega" hlaupið, mikil taktík. Hratt eina stundina og hægt þá næstu og svo bara negling í lokin. Þannig að það hentaði kannski ekki til bætinga. En ég veit hvað ég get núna. Við settum að auki nýtt héraðsmet UMSK.

Veislan hjá mömmu var sömuleiðis mjög skemmtileg. Pabbi grillmeistari sá um matinn eins og honum er einum lagið. Mamma ákvað að bjóða ekki öllum heldur frekar hafa fólk og skyndmenni sem hún umgengst mest og þar af leiðandi myndaðist mjög skemmtileg stemming. Mikið spjallað og rætt í staðinn fyrir að það myndist hópar hverjir í sínu horni.

Sunnudagurinn var eins og vanalega algjört tjill. Lág í sundlauginni mest allan daginn og hitti Einar Berg og Jóa þegar ég ætlaði upp úr og stoppaði því enn lengur. Það var fínt. Ég var orðinn soðinn eftir einhverja rúma 3klst í pottinum og gufunni.

Helgin gekk þó ekki slysalaust fyrir sig því mér tókst að gleyma bensíntappanum hjá ÓB bensín í Borgarnesi og keyrði því í bæinn með opinn bensíntank. Góður Bergur. Sullaðist samt ekkert niður eða voðalega lítið allavega.
kl. 9:56 | Skrifa athugasemd

9.6.2005 : Mót, mamma, dót og Leyndó

Það var pæling að keppa í gær, en vegna þreytu og verks í baki (sjá fyrir neðan) ákvað ég að sleppa því. Fer aftur á móti norður á Sauðárkrók um helgina til að keppa í 4x800m á laugardaginn.

Ég býst við að keyra snemma á laugardagsmorgun, keppa og rúlla svo jafnóðum aftur í bæinn. Mamma hörkukvendi er að útskrifast úr kennaraháskólanum. Hún kláraði það sem var þá kennaraskólinn fyrir mörgum árum. Honum var seinna breytt í kennaraHÁskólann og mamma ákvað því að taka réttindaprófið í vetur. Það þýðir að nú er hún með tvær háskólagráður, en hún er líka með Bs frá Bifröst.

Ég er að sjálfsögðu ekkert smá stoltur af henni og þótt ég nái ekki að mæta í útskriftina sjálfa þar sem ég verð að keppa, ætla ég að mæta í veisluna og fagna áfanganum með henni.

Hlynur kom annars heim frá útskriftarferðinni á Mallorca í gær. Hefur greinilega hangið inn á börunum og skemmtistöðunum. Því hann var ekki neitt súper brúnn, þótt hann hafi tekið lit. Hann keypti lyftingarbelti úti, þannig að nú verða beygjurnar teknar alvarlega. Hitti svo Eyju á mótinu í gær og fékk þá gaddaskóna mína. Vá hvað ég er ekkert smá sáttur! Vona að þeir virki eins vel og þeir lúkka.

Annars er margt og mikið að gerast hjá manni sjálfum á næstu dögum og vikum, en ég ætla að ljóstra því upp seinna.
kl. 16:14 | Athugasemdir (3)

7.6.2005 : *geisp*

Veit ekki hvað er búið að vera að mér seinutu tvo-þrjá daga, en ég hef verið gjörsamlega mátt- og kraftlaus. Búinn að sofa tvívegisyfir mig í vinnu og á æfingu í gær var ég alveg dauður og komst ekkert áfram. Núna er ég alveg að deyja í bakinu. Mig langar helst til að fara sofa strax núna.

Þarf að fara hrista þetta sloj af mér!
kl. 11:22 | Athugasemd (1)

6.6.2005 : Góð helgi

Þrefalt húrra fyrir Sverri að láta sér detta í hug að fara í útilegu. Við vorum búnir að negla niður þessa helgi fyrir mörgum vikum og vorum ekkert smá heppnir með veður. Glampandi sól allan tíman og þvílíkt fjör.

Ég, Jón Karl og Sverrir fórum á föstudagskvöldið og vorum búnir að koma upp tjaldi um eitt leytið föstudagsnóttina. Daginn eftir við morgunverðarborðið í glampandi sól komu svo Trausti, kærastan og Gísli.

Þá var ferðinni heitið í Hvítá (Biskupstungum), en hana ætluðum við niður á gúmmíkanó. Tveir saman í bát. Ég paraði mig saman með Sverri, Trausti var með kærustunni og Jón og Gísli svo á þriðja bátnum. Með okkur var svo guide á kayak og á eftir okkur komu þrír rafting bátar. Guide-inn sagði okkur að við yrðum svona 3svar sinnum meira í vatninu en rafting bátarnir. Leiðbeindi okkur í gegnum hvað við ættum að gera og þá var komið að því.

Ég og Sverrir höfðum smá áhyggjur af sætinu, en það var eitthvað laust. Það passaði, því að við vorum nýkomnir út á vatnið þegar sætið brotnaði, Sverrir missti jafnvægið og báturinn valt. Við vorum komnir út í ískalt jökulvatnið, ÁÐUR en ferðin byrjaði. Eftir mikið basl í vatninu að komast upp, halda í árarnar og snúa bátnum við, stóðum við í miðjum flúðum og vissum ekkert hvað átti að gera. Sverrir kallaði svo að hann skyldi halda bátnum meðan ég skriði uppí, svo ég gerði það og svo dróg ég hann upp.

2 min liðnar og við vorum búnir að velta og sætið hans Sverris komið hálfa leiðina niður Hvítá. En þótt ótrúlegt sé voru þetta einu vandræðin sem við lentum í. Við vorum ekki lengi að átta okkur á hvernig ætti að stjórna þessu og héldum okkur þurrum út alla ferðina. Reyndum hvað sem við gátum að fara í mestu öldurnar til að hafa eitthvað að gera, en aldrei ultum við.

Jón Karl og Gísli voru nokkuð duglegir við að fara út í vatnið og ég held að Trausti og sérstaklega Guðrún hafi verið meira í vatninu en í bátnum. Jón og Gísli ultu snilldarlega við aðrar flúðirnar, gjörsamlega á bólakaf. Þegar þeir loksins komu sér upp, voru þeir strandaðar á kletti í miðjum flúðunum og búnir að tapa annari árinni. Að sögn Gísla var hann þá að því kominn að gefast upp og reyna bara að koma sér upp á bakkann. Þeir fengu þó aðra ár og gátum því haldið áfram.

Trausti og Guðrún voru líka nokkuð lúnkinn við að detta, velta, og koma sér í vatnið. Ég held að Guðrún hafi einfaldlega viljað vera þar, því það gekk yfirleitt brösulega að komast aftur í bátinn hjá henni ;)

Sverrir og ég vorum aftur á móti orðnir það lúnknir við kanó-inn að við vorum í björgunarleiðangrum að hjálpa fólki (lesist Guðrún) upp, sækja árar og fleira í þeim dúr. Okkur tókst meira að segja að fara eina flúðirnar þannig að Sverri stóð fremst í bátnum meðan ég stýrði okkur niður. Þessi leið var víst af erfiðleikastigi 2,5 - 3 af 6 og miðað við það hefði ég alveg viljað fara fjarkann svona til að hafa action allan tímann. Það komu of margir dauðir punktar þótt þetta hafi verið virkilega skemmtilegt og Kanó-inn tvímælalaust skemmtilegri en raftingið.

Okkur bauðst líka að stökkva fram af 4-5m háum kletti niður í vatnið. Aggi úr versló er guide þarna og var ekki lengi fá mann í það, þar sem hann mundi eftir að ég hafði stokkið fram af 10m klettinum á Kýpur 3-4 sinnum. Þetta var gaman, hæðin ekkki vandamál en sjokkið að lenda í ísköldu jökulvatninu var ....frískandi!

Sund og Grill eftir ferðina var svo til að toppa áhrifin. Um kvöldið var svo setið við grillið, spjallað, hlegið og sungið. Trausti gítarsnillingur sá um gítarinn og ég reyndi að syngja með þegar ég áttaði mig á hvaða lög hann var að syngja og spila, en það var ekki alltaf ljóst. Ég held samt að hann hafi batnað eftir bjórmagninu sem hann innbyrgði og eftir því sem leið á kvöldið. Það kunna allavega allir í hópnum Stál og Hnífur 100% núna.

Við vorum heldur ekki ein á tjaldsvæðinu því Einar Bárða var að gifta sig og þið megið gíska hver gisti við hliðina á mér laugardagskvöldið. Jú engin önnur en Birgitta Haukdal. Það var reyndar ekki alveg eins og ég sá það fyrir mér því hún svaf í öðru tjaldi en ég, réttarasagt í fellihýsi með kærastanum. Jæja gengur betur næst.

Á sunnudaginn rúllaði ég svo í bæinn um kaffileytið meðan Jón Karl og Co fóru á laugarvatn á seglbretti. Get ímyndað mér að það hafi verið hörku fjör líka, en ég ákvað að mæta í sjómannadagskaffi hjá ömmu. Afi heitinn var gamall útgerðarstórlax og því þessi dagur alltaf dálítið sérstakur.

Þessi helgi var í einu orði sagt: Brilliant.
kl. 11:25 | Athugasemdir (5)

2.6.2005 : Æfingar, Útilega, Spil og Lestur.

Í seinastu viku var mikið um keppni. 4 eða 5 hlaup á 10 dögum. Þessa vikuna verður ekkert um mót heldur bara hardcore æfingar meðan Coach Jón er úti með landsliðshópinn. Tók eina slíka í gær og lyfti svo eins og brjálæðingur með Magga a.k.a Magga Klín.

Um helgina verður svo eðal skemmtun. Ég, Trausti, Sverri og Jón Karl förum austur fyrir fjall. Nálægt Reykholti og ætlum að finna okkur góðan stað til að tjalda á. Það er ekkert ákveðið nema að við ætlum niður Hvítá. Hvort sem það verður í kanó, kajak eða einhverju öðru kemur seinna í ljós. Við erum heldur ekki búnir að finna hvar nákvæmlega hvar við ætlum að tjalda. Þannig að þetta verður meira svona upp í bíl og keyra þangað til að við finnum góðan stað. Hugsanlega koma einhverjir aðrir bekkjafélagar með.

Fór til Daða að spila fyrr í vikunni ásamt Robba og Jón Grétari. Catan Sæfararnir urðu fyrir valinu. Rúst er eina orðið sem kemur upp í hugann. Það er erfitt að vera svona góður í þessu spili, hreint út sagt vandræðalegt.

Ég fékk líka lánaðan Da Vinci Code frá Robba. Sjitt hvað þetta er skemmtilge bók með töff pælingum. SVONA bækur fíla ég. Eye of the Needle var svona klassík en Da Vinci Code er allt annað. Þetta er ótrúlega spennandi bók. Minnir mig á tölvuleiki eins og Broken Sword eða Indiana Jones. Skemmtilega roleplay leiki sem ég spilaði sem unglingur á Bifröst. Þessi bók er svona hálfpartinn ævintýri inn í glataðan heim og fornar reglur.
kl. 11:18 | Skrifa athugasemd

29.5.2005 : Grill

Úff, ein svakalegasta grillveisla sem sögur fara af var haldin í gær í Álfabrekku 15. Ég bauð Robba og Daða í þrírétta grill til að ræða framtíð frjálsar.com, frjálsíþróttablaðsins, samstarf okkar við FRÍ, og almennt bara allt sem tengdist því sem við erum að gera, hvað FRÍ er að fara gera og hvað okkur langar að gera.

Í stutt máli borðuðum við yfir okkur af mat og nammi og þegar útgáfu og markaðsmálin voru útrædd tókum við í smá spil og varð Scotland Yard fyrir valinu. Spiluðum þangað til að klukkan var að slá þrjú. Ég skemmti mér virkilega vel og þetta er alveg klárlega eitthvað sem við þurfum að gera aftur í sumar. Hittast svona, borða góðan mat, spjalla og leika sér fram á kvöld.

Það var þó eitt sem klikkaði í gær og það var að ég ætlaði að hitta á Eyju til að ná gaddaskónunum mínum áður en hún færi út á Smáþjóðarleikana. Ég var bara steyngleymdi mér með strákunum. Týpískt ég.

Í dag fór ég svo í Nordica til Robba að reyna hrista af mér kaloríur gærkvöldsins. Held að það hafi gengið ágætlega. Fínt líka að hitta Magga Scheving sem var sáttur við að ég Robbi vorum í "Úrvalshópur FRÍ" bolunum okkar og var sko með rétta bætingarprógrammið fyrir okkur.
kl. 17:36 | Athugasemdir (6)

27.5.2005 : Sothern Rokk

Nú þegar Suðurríkja rokkið er aftur orðið vinsælt þökk sé American Idol og Bo Bice er rétt að benda fólki á eftirfarandi hljómsveitir sem passa inn í sama rokk & roll stíl:
- Lynyrd Skynyrd
- ZZ Top
- Bad Company
- Creedence Clearwater
- Bachman Turner Overdrive
- Bob Seger
- Ted Nugent
- Steppenwolf
- Thin Lizzy

Þeir sem vilja nútíma southern rokk er bent á Kings of Leon.
kl. 0:32 | Skrifa athugasemd

25.5.2005 : Æ vá

Mig dreymir ekkert smá mikið þessa dagana. Hausinn bara verið á fullu þegar ég er sofnaður. Þetta er svona "raunverlegir" draumar. Finnst eins og allt sé að gerast í alvörunni. Þetta tengist allt fólki sem ég þekki og einhvernveginn gæti atburðarrásin og allt sem gerist í draumunum raunverlega gerst. Í morgun vaknaði ég ekki alveg viss um hvort þetta hafi verið draumur eða ekki.

Hlynur fór til Mallorca í útskriftarferðina sína með FG í dag. í næstu viku kemur svo Versló og mun hann þá vera með Versló krökkunum. Eiginlega tvöföld útskriftarferð hjá honum. Ég ætla aftur á móti að taka rematch við Officerinn í dag í 400m. Seinasta vann hann nokkuð örugglega með 0,24 sek.

Sjúkraþjálfun á eftir, það léttir vonandi aðeins á kálfunum fyrir keppnina. Eftir mótið hitti ég svo D&R Accosiates. A.k.a Daða og Robba, til að ræða þessi útgáfu-frí-markaðs-.com mál. En núna er best að hætta slóra og fara setja upp þessar einingar fyrir Ríkiskaup.
kl. 10:44 | Athugasemdir (4)

24.5.2005 : Þín bíður póstur

Var voða spenntur í gær þegar ég sá að inn á milli ítrekanna og markpóstsins sem mamma lét inn á borð til mín var tilkynning um að mín biði pakki á pósthúsinu. Hausinn á mér snérist og ég reyndi að láta mér detta í hug hver gæti verið að senda mér pakka og afhverju. Ég var ekki lítið svekktur þegar ég fór út á pósthús og komst af því að þetta var bara enn ein bókin úr þessum föndur bókaflokki sem ég fékk fyrir að vera á Topp 10 listanum hjá Innlit / Útlit í gjafakeppninni um jólin.

Ég held að ég sé kominn með 5 bækur, ullarþæfingu, gjafakort og eitthvað annað sem ég man ekki. Núna fékk ég "Litríkar Veislur". Sé ekki fram á að ég sé að fara lesa þetta frekar en hinar. Ég er heldur ekki alveg að sjá fram að á að ég sé að fara nýta 10.000kr gjafabréfið sem ég fékk í Föndru. Væri ekki hissa ef það væri meira að segja týnt. Semsagt ef þið fáið bók um föndur frá mér næst þegar þið bjóðið í veislu - ekki vera hissa! ;)
kl. 16:27 | Athugasemdir (3)

24.5.2005 : Draumur

Vá hvað mig dreymdi skemmtilegan draum í nótt. Hann var eiginlega bara ógeðslega fyndinn og merkilegur að mörgu leiti Eða kannski ekki merkilegur, en lýsandi. Hann gekk semsagt út á að ég er í utanlandsferð. Virðist vera einhverskonar útskriftarferð, þar sem ég er með nokkrum krökkum úr Versló og í raun er allt fullt af ungu fólki þarna. Þetta var samt ekkert líkt Kýpur á neinn hátt.

Það sem var svo merkilegt er að allir eru að gera eitthvað sem er svona týpískt fyrir þeirra karakter. Lýsti eiginlega öllum félögum og kunningjum mínum mjög vel. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn en einn félagi minn stóð ber að ofan í stuttbuxunum með bjór í einni hendi og 2-3 stelpur í kringum sig sem hann er að reyna tala til, algjör spaði. Sömuleiðis er keppnisskapið í hámarki og hann vill athuga hvor sé massaðastur, og taka keppni í sprett að vegg og aftur til baka. Annar félagi minn er með mp3 spilarann alveg á fullu og er að sýna mér hvernig þetta virkar og hvaða möguleikar eru til staðar. Þriðji félaginn er frekar rólegur en með svona lúmskan svip og nikkar til mín. Sjálfur var ég að mestu leyti inn á herbergi með vinkonu minni og vinkonum hennar alveg að spjalla á fullu um allt mögulegt.

Við ákveðum svo að fara í sundlaugina að slappa af. Ég nenni ekki að taka þátt í egó-keppni við félaga númer eitt en langar samt eitthvað að hrefya mig þannig ég ákveð að taka sundsprett meðan vinkonan og stelpurnar tala saman. Laugin er óvenju lítil svo að ég rétt ÞARF að spyrna mér í bakkann og þá er ég kominn út á hinn endan. Allt í einu breytist svo laugin einhvern veginn þannig að fólk situr við borð og er að borða Í miðri lauginni, en ég get samt sem áður haldið áfram að synda. Ein stelpa stendur upp frá borðinu og ég einhvern veginn gríp í hana þegar ég spyrni mér yfir í næstu ferð. Þá vakna ég við að pabbi kemur inn í herbergi og segir "Bergur, ert þú ekki orðinn seinn? Klukkan er rétt rúmlega níu"
kl. 9:59 | Athugasemdir (2)

23.5.2005 : Uss

Vá hvað það munar að hafa bassbox (active að sjálfsögðu) við græjunar. Tók eftir því þegar það datt út að tónlistin hljómar ekki nærri því eins vel. Ég er þannig að ég verð að blasta tónlistina, enda er ég svosem með græjurnar í það. 2x150W Eltax gólfhátalara, 2x60W vegghátalara,120W Paradigm miðjuhátalara og 50W active bassabox. Þá er gaman að blasta hljómsveitir eins og Bloc Party og Kasabian. Eru bretarnir bara alveg að brillera? Ég er allavega alveg með Banquet á heilanum!

Og talandi um tónlist að þá er gaman að sjá hvað Green Day eru að standa sig. American Idiot er sjálfsagt bara ein besta punk og punk-rokk plata sem hefur komið út í háa herrans tíð. Billy kallinn er líka loksins hættur að syngja með nefinu. Var stundum alveg "hryllilegt" að hlusta á hann í sumum gömlu lögunum.

Coldplay eru svo bara klassískir. Litlar breytingar hjá þeim - stabílir eins og sumir myndu orða það. Mjög gott lag hjá þeim, nákvæmlega sama og hefur virkað fyrir þá á hinum tveim plötunum.

..en aðalmálið er að Bloc Party rúla!
kl. 23:25 | Athugasemd (1)

22.5.2005 : Helgin

Stúdentaveislan hans Hlyns var snilld og vá hvað það var mikið af góðum kræsingum á boðstólum og ég borðaði að sjálfsögðu þangað til að mig verkjaði í magann. Þá tók ég mér nú smá hvíld...og hélt svo áfram. Ég tók reyndar ekki 20km morgunskokk heldur bara 4x150m rólega. Lét það duga. Þótt 20km morgunskokk verður ábyggilega einhvern tímann á dagskrá svo Burkni hlaupi laugarveginn í kjól - voða sætur.

Um kvöldið kíkti ég svo til Daða í Eurovision/Afmælispartý, en kallinn var 23 á föstudaginn, kláraði Bs og byrjaði að vinna hjá Viðskiptablaðinu. Merkisdagur. Ég og Robbi keyptum náttúrlega smá gjöf handa honum og vildum við gefa honum eitthvað sem hann gæti nýtt og sýndi jafnvel að við þekktum kallinn. Semsagt eitthvað persónulegt og nýtanlegt - hann fékk Núpó-létt!! Það vakti náttúrlega mikla lukku, en auðvitað var það bara grín og fljótlega færðum við honum alvöru stóra bjórkrús. Hann var ekki lengi að nýta hana, helti heimalagaða beint í og byrjaði að þamba. Spurning hvort hann nýti núpóið eins vel.

Ég skutlaði svo liðinu niður í bæ um tvöleytið og rúllaði þá heim upp í rúm þar sem ég sofnaði yfir Jay Leno. Í dag er maður svo búinn að vera að narta á afgöngunum og skellti sér svo í sund. Á morgun er stefnan sett á að kýla á eitt 200m hlaup á Utanhúsmóti FÍRR og á miðvikudaginn er annað 400m. Keppa sig í form! Fá reynsluna.

Í kvöld verður ábyggilega nartað eitthvað meira á aföngum meðan Jack Bauer hamast við að bjarga heiminum. Það er allt í voða þægilegum farvegi þessa dagana, vinna frá 9-17 og æfing frá 17:30 til 20:00. Þá er kvöldið laust. Reyndar fer þetta eitthvað að breytast, þar sem maður er með nokkur aukaverkefni í gangi, þarf að fara taka frjalsar.com í gegn og er með nokkur járn í eldinum. Spennó.
kl. 18:07 | Skrifa athugasemd

19.5.2005 : Fundur, pottar og hlaup

Talandi um fund. Ég og Daði sátum með Gumma sem sér um markaðsmálin hjá FRÍ í þrjá klukkutíma eða frá 08:00 um morguninn til 11:00. Fórum yfir alveg heilan helling og ræddum margt og mikið. Það kom líka margt áhugavert fram þar og í framhaldinu fór ég að hugsa og velta fyrir mér möguleikum og leiðum sem hafa verið að blunda í mér. Við þremenningarnir ætlum að reyna hittast um eða eftir helgina og ræða þessi mál betur. Nánar um það seinna.

Blikaliðið skellti sér í pottana eftir miðvikudagsæfingu og ég er búinn að finna mér potta- og gufufélaga. Vanalega lendi ég nefnilega í því að vera alltaf aleinn í heita pottinum (en ekki einhverri buslulaug) eða vera lengst inn í gufunni. Ég get verið þar endlaust. Finnst þetta svo þægilegt að vera í svona miklum hita. Oftast fæ ég bara "er þetta ekki orðið gott" eða "ég get ekki meira" og enda því aleinn. Núna komst ég aftur á móti því að Sigurbjörg er líka fyrir að sjóða sig í pottunum og gufunni. Var ennþá sáttari við hana þegar hún vildi sjóða sig í gufunni, skella sér í ííískalda sturtu og hoppa aftur inn í gufuna. Ég er því búinn að finna sundlaugarfélagann minn. Sorrý Tobbi.

Fyrsta mót ársins var svo í kvöld. Keppti á Powerade mótinu út í Kaplakrika. Prófaði að hlaupa eitt stykki 400m. Ég er nokkuð sáttur við það. Í fyrsta lagi hef ég aldrei keppt svona snemma á tímabilinu. Ég hef bara hlaupið 400m í júlí og ágúst. Tíminn var 53,11 ekkert alltof langt frá Stebba Má. Þetta er samt náttúrlega skítatími, PB er 51,81 (sem er náttúrlega líka skítatími). Það eru þó nokkrir ljósir punktar t.d. er þetta ágætt miðað við að byrja að æfa aftur um miðjan mars eftir aðgerðina í september. Ég er líka sáttur við að ég stífnaði lítið sem ekkert, og streðaði ekki seinustu 100m heldur hélt stílnum og rúllaði nokkuð þægilega í gegn, þannig að hlaupið var mjög jafnt. Líka nokkuð sáttur að þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í gaddaskó síðan ágúst 2004. Ennþá sáttari að kálfarnir gerðu ekki uppreisn eftir hlaupið og ég er ekkert súr og ónýtur. Leiðin liggur því bara upp á við. Ég þarf að ná þessum helvítis 51,81 ef ég á ekki að fara splæsa ís á alla 1 júní!
kl. 21:32 | Skrifa athugasemd

17.5.2005 : Áhugvert

Þá er maður byrjaður að vinna. Dagurinn er að mestu leyti búinn að fara í það að setja upp tölvuna, setja upp öll forrit sem maður þarf að hafa og bara svona almennt að koma sér fyrir. Maður verður orðinn góður á morgun og byrjar þá á 200% að klára frá einhver verk.

Á morgun er smá fundur hjá FRÍ varðandi áframhald á Frjálsíþróttablaðinu, og eiginlega bara almennt varðandi útgáfumál hjá sambandinu. Það verður áhugaverður hittingur.

Ég stefni svo á að keppa í 400m á fimmtudaginn. Það verður einnig mjög áhugvert. Ég held samt að ég sé í nokkuð góðu formi og ætti því að geta hlaupið ágætlega. Þegar maður byrjar svona seint að æfa verður maður eiginlega bara að keppa sig í form. Bara vera duglegur að keppa, það er besta æfingin. Spáin fyrir fimmtudag 3-7°C norðaustan 4m/s. Lofar ágætu.

Útskriftin hjá Hlyni bróðir er á laugardaginn. Mamma og Amma eru alveg á fullu að gera allt tilbúið. Amma er snillingur í að baka, það er bara hættulega gott. Svo fær hún líka stóran plús að nýta allar eggjarauðurnar sem voru afgangs í að útbúa heimatilbúin ís. Amma klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Ég sé fram á 20km morgunskokk á sunnudagsmorgun til að brenna öllu sem ég á eftir að innbyrða á laugardaginn!
kl. 14:16 | Athugasemdir (10)

16.5.2005 : Uppskrift að góðum sunnudegi

Sunnudagar eru sko mínir dagar. Vaknaði rétt fyrir klukkan níu í morgun alveg útsofinn þar sem ég sleppti próflokadjamminu. Eldaði mér hafgragraut og slappaði af til hálf ellefu en þá fór ég niður á Kópavogsvöll að taka 350m testið. Veðrið var svo gott að ég ákvað að kíkja í sundið eftir á og slappa af í heitu pottunum þar. Lá svo bara í sólbaði og lét fara vel um mig í dagóðan tíma. Eftir sundið var náttúrlega ekki annað hægt en að rúlla út í Erluís og fá sér einn bragðarref í þessu góðviðri.

Þá var eiginlega komið að því að taka til í eldhúsinu og gera tilbúið fyrir sunnudagsmatinn, en í kvöld bauð ég upp á Humar með villisveppasósu í forrétt, grillaðar kjúklingabringur með hunangi og kóríander, borðið farm með avakadó og perusalati. Í eftirrétt var svo berjabaka með þeyttum rjóma.

Þessi máltíð tók náttúrlega náttúrlega helling af tíma, bæði að undirbúa og borða. Þá hentaði bara að leggjast upp í sjónvarpssófann og horfa á Jack Bauer bjarga heiminum í 24 á meðan ég borðaði bara lakkrís og súkkulaði.

Ég er semsagt eiginlega ekki búinn að gera neitt annað en að slappa af og borða góðan mat í dag. Sunnudagar eru mín leið til að slappa af eftir vikuna og gera mig tilbúinn fyrir komandi átök næstu viku. Dýrka þá.
kl. 0:31 | Athugasemdir (10)

13.5.2005 : Oh

Vá hvað ég er alveg að krepa núna. Eitt próf eftir. Það hjálpaði samt aðeins að um hálfsex þegar ég var að deyja úr hreyfingarleysi og ætlaði út, hringdi Einar Bergur einmitt og við skelltum okkur í hálftíma skokk í rigningunni. Svona rigning er í raun og veru hressandi og góð þegar hún er svona léttur úði. Eftir skokkið voru teknar svo smá upphífingar upp á lúkkið. Langt síðan maður hefur gert þetta með kallinum. Þarf að vera í meira bandi við hann.

Ég skellti mér svo aðeins í pottinn og gufuna upp í nýju sundlaug. Örstutt, en nóg til að slaka aðeins á. Svo var bara haldið heim í kjúklingasalatið frá því í gærkvöldi með gömlu Pepsi Max yfir Joey.

Núna er það bara lokahnykkurinn, ég er samt alveg að deyja. Nenni ekki meira. Get ekki beðið eftir að þetta sé búið. Klukkan 16:30 verð ég afar glaður!
kl. 20:47 | Skrifa athugasemd

12.5.2005 : Hlutirnir fljótir að breytast

Coca Cola mótið verður klukkan 13:00 á laugardeginum sem þýðir náttúrlega að ég keppi ekki þar sem prófið byrjar 13:30. Jæja þá hélt kallinn að maður gæti nú fengið sér Eldsmiðjupizzu og kaldan bjór, en það er aldeilis ekki. Í staðinn var bara skellt á manni 350m testi.

Þar sem ég sé ekki aaalveg fram á að ég muni ná að hlaupa vel eftir 3klst setu í killer prófi. Þá hugsaði ég með mér að ég tæki þetta bara á sunnudaginn. Það þýðir aftur á móti að ég geri ekkert á próflokadjamminu.

Hmm þarf aðeins að pæla hvernig ég útfæri þetta.
kl. 20:24 | Athugasemdir (14)

10.5.2005 : Daddara

Æfingarnar ganga alveg vonum framar! Formið er bara allt að koma og kálfarnir kvarta eiginlega ekkert. Fer samt einu sinni í viku í sjúkraþjálfun til að losa um og laga aðeins. Annars tek ég bara kálfaæfingarnar hérna heima lágmark 2svar á dag. Gaddaskórnir eru komnir til Eyju og ég get ekki beðið eftir að negla á nokkra spretti í lok maí.

Skólinn gengur kannski ekki alveg jafnvel, enda legg ég mig ekki nærri því jafn mikið fram þar, en hann gengur samt ágætlega. Er búinn að ákveða að vera duglegri næsta vetur. Svona meðalmennska í skóla gengur ekki til lengdar. Ég var samt búinn að ákveða að um leið og kálfarnir kæmustt í lag og ég gæti byrjað að æfa almennilega yrðu frjálsarnar númer eitt, tvö og tíu.

Í sumar verð að vinna hjá Hugsmiðjunni eins og vanalega. Þar fyrri utan mun ég væntanlega taka að mér einhver aukaverkefni. Það er gaman að hugsa til þess að ég er búinn að vera vinna hjá Stebba frá því að ég var 16 eða 17 ára. Frábær vinnustaður og frábærir vinnufélagar. Þannig að ég er mjög sáttur. Í raun hef ekki þurfti að leita mér að suamrvinnu seinustu 6 ár eða svo, því mér er alltaf boðið eða einhver bendir á mig. Ég er náttúrlega mjög ánægður með það, því það sýnir fyrst og fremst að ég hef verið að standa mig.

Annars er ég í smá bobba. Á laugardaginn fer ég í seinasta prófið mitt. Framleiðsluferli sem ég klára klukkan 16:30. Það er Coca Cola mót út í Hafnarfirði sama dag klukkan 17:30. Veit að ég hefði gott að því að prófa hlaupa eitt 400m hlaup. Málið er bara að það er náttúrlega próflokadjamm. Það hefur líka alltaf verið farið á Eldsmiðjuna strax eftir próf og fengið sér eina pizzu og kannnski einn kaldan. Það væri ekki slæmt. Um kvöldið verður væntanlega líka heljarinnar skrall sem gaman væri að kíkja á.

Ég er eiginlega kominn á það að ef það verður GEÐVEIKT veður á laugardaginn sleppi ég Eldsmiðjunni og bjórnum með félögunum og rúlla frekar strax út í Hafnarfjörð að reyna hita upp fyrir 400m hlaupið. Annars verður það Eldsmiðjan. Burtséð hvað ég geri strax eftir prófið ætla ég að vera rólegur á próflokadjamminu. Mér finnst ég vera komast í gott form og ég nenni ekki að fara drekka það frá mér.
kl. 19:03 | Athugasemdir (5)

8.5.2005 : Æfingar, matur og lærdómur

Sleppti að keppa um helgina, en Jón Sævar Coach hringdi í mig og setti mér samt eina hraða 400m æfingu fyrir. Æfinguna tók ég í hádeginu í dag og ég held að þetta sé bara ein af betri æfingum sem ég hef tekið. Fínt og flott veður og ég var að fíla mig vel. Var búinn að heyra í Tobba upp á að taka æfingu, þótt við tækjum ekki sömu æfingu munar miklu að vera ekki aleinn á vellinum.

Fór svo heim og ætlaði að baka amerískar pönnukökur með heitum ávöxtum og ávaxtasýrópi í tilefni mæðradags. Gekk ágætlega, samt ekki alveg eins og ég ætlaði. Þetta var ekkert slæmt, alls ekki, bara ekki eins gott og ég vildi. Ég er líka miklu meira fyrir að elda en að baka. Samt aðallega að borða ;)

Hlynur bróðir átti sunnudagsmatinn í dag og hann var alveg að brillera strákurinn. Ég er líka alveg að deyja í maganum, er búinn að borða svo mikið af mat og sérstaklega nammi í dag að ég gæti ekki látið eina djúpu ofan í mér þótt mér væri borgað 10.000kr fyrir það! Ég er að springa, bókstaflega!

Seinustu þrjá daga hef ég svo verið að hitta Arnar frænda, en hann er að fara í stærðfræðipróf á mánudaginn. Sátum eitthvað yfir þessu fös,lau og í dag. Vona að það hafi eitthvað skilað sér. Á morgun fer ég svo í að læra sjálfur.
kl. 23:55 | Athugasemdir (2)

6.5.2005 : Kallinn sáttur

Já það er tvímælalaust American Style eftir sundið og föstudagsæfinguna í dag með blikunum. Svona allavega miðað við hvernig fitumælingin hjá Fríðu fór. Hún var mjög sátt við mig og ég eiginlega ennþá sáttari. Fór seinast 8. mars og það er stórbreyting á manni.

kl. 15:43 | Athugasemdir (9)

5.5.2005 : Sjónvarpsgláp og Burg's Burgers

Fór með Robba í gær til Franks að horfa á Hotel Rwanda. Ekki alveg eins góð og ég bjóst við og vonaðist eftir. Það sem heldur manni við þessa mynd eru náttúrlega þessir hræðilegu atburðir en myndin sjálf er ekki nógu vel uppbyggð. Of mikill rússibani, hæðir og lægðir. Samt magnað að lesa eftir myndina að það létust milljón manns í þessum átökum! Það er sjúklega mikið. Það er bara absúrd.

Ég var að fikta í eldhúsinu í gær við að útbúa hamborgara. Ég ætla að kalla þá Burg's Burgers. Þeir voru góðir að mínu mati og fjölskyldunni líkaði vel við. Þarf aðeins að þróa þá betur. Það er gaman að fikta svona í eldhúsinu og útbúa sér eitthvað gott. Það er náttúrlega bara aðallega því ég dýrka góðan mat. Algjör matmaður. Kæmi mér ekki á óvart ef ég væri svona svona 10kg þyngri ef ég væri ekki frjálsum. Þessir hamborgarar voru semsagt næstu kynslóðar barbeque bacon hamborgari. Næsta skref er að þróa sósuna aðeins betur.

Stefnan er nefnilega sett á smá grillveislu í lok maí og bjóða nokkrum vel völdum einstaklingum.
kl. 10:16 | Athugasemdir (2)

3.5.2005 : Próf

Framleiðsla og Tæknibúnaður á morgun klukkan 13:30. Sit núna og fer yfir gömul próf. Er ekki alveg sáttur hvernig ég er búinn að nýta tímann, en þetta hefst. Verst að það var farið yfir vörustjórnun sem gildir um 25-30% af prófinu meðan ég var úti í Portúgal, þannig að ég er ekki alveg að dansa þar. Kom kennari frá Chalmers og kenndi þetta og fór svo.

Var alveg ómögulegur í 150m sprettunum í dag, blóðmissirinn hefur greinilega meiri áhrif en ég hélt. Var bara svona kraftlaus í sprettunum, mig hálfsvimaði, eins og ég væri vankaður, nývaknaður eða eitthvað. Fór bara inn að lyfta létt í staðinn. Spurning með að geyma þetta mót aðeins. Finn samt ekkert fyrir þessu svona venjulega, það er bara þegar maður tekur á, þá finnur maður að það er ekki fullur kraftur til staðar.

Næsta próf er svo 14. maí. Tíu dagar, það verður líka killer próf - Framleiðsluferli. Þarf að nýta þann tíma vel, betur en ég er búinn að vera gera með Framleiðslu og Tæknibúnað. Núna er það aftur á móti gömul próf og svo í háttinn.
kl. 22:58 | Skrifa athugasemd

2.5.2005 : Hnykkingar og blóðgjöf

Fór í sjúkraþjálfun klukkan 10 í morgun. Bað Stebba Sjúkra að fara líka aðeins í bakið mér þegar hann væri búinn með kálfana. Vá hvað ég dýrka að láta hnykkja mig, Þetta bara losar um mann allann. Maður þarf að láta gera þetta oftar. Láta vinna í bakinu og festingunum við rassinn. Safnast of mikið þar.

Á leiðinni heim fæ ég svo SMS frá blóðbankanum þar sem ég spurður hvort eigi möguleika á að gefa blóð. Ég rúllaði því niður á Barónsstíg. Ég hef ekki mátt gefa blóð í rúmlega ár vegna þess að ég fór í nálastungur. Þetta eru víst alþjóðlög þótt að sjálfsögðu hafi verið notaðar dauðhreinsaðar einnota nálar í mínu tilfelli.

Ég hélt nú reyndar að ég fengi ekkert að gefa því ég hakaði við að ég hefði tekið inn lyf (voltaren rapid), fór til tannlæknis, var í útlöndum, hef farið í skurðaðgerð frá seinustu blóðgjöf og eitthvað fleira. Það er aftur á móti allt svo langt síðan eða ekki alvarlegt að það reddaðist. Hún hafði reyndar áhyggjur af því hvað púlsinn minn var lár, en hann mældist 42 bpm. Blóðþrýstingurinnn var aftur á móti fínn 124/68. Þannig að ég er í fínum málum. Fer reyndar að pæla eftir á að þetta mun kannski há mér eitthvað ef ég er að fara keppa 5. maí að hafa tapað 450ml af blóði, en þetta er nú ekki það merkilegt hlaup að það skipti einhverju.
kl. 11:53 | Athugasemdir (9)

30.4.2005 : Á dagskrá

+ Fínasta æfing í gær, afslöppun í sundlauginni með Óla eftir á
+ Fyrsta próf eftir 2,5klst
+ Hugsanleg bíóferð á Hotel Rwanda í kvöld með Robba
+ Sunnudagsmatur á morgun með fjölskyldunni og Jenny frænku.
+ Sjúkraþjálfun á mánudaginn hjá Stebba sem og aðalfundur Breiðabliks
+ Byrja á lyftingarprógrammi á lappirnar í fyrsta skipti eftir aðgerð í næstu viku
+ Fitumæling hjá Fríðu næsta föstudag
kl. 11:02 | Athugasemdir (3)

29.4.2005 : Birta að gera góða hluti

Ég er eitthvað að fletta Birtu (litla blaðið sem kemur fréttablaðinu á föstudögum) þegar ég á að vera læra undir Þróun Hugbúnaðar sem er á morgun. Svo er ég búinn að renna yfir nokkrar greinar og rekst á stjörnuspána: "Þú ert allur að koma til enda er sumarið tíminn fyrir þig"

Fannst það mjög fyndið í ljósi þess hvað ég skrifaði í seinust færslu. Stjörnurnar eru mér greinilega hliðhollar *hóst*

Annars er önnur snilld í því blaði og það er auglýsing frá IndoKina sem ber yfirskriftina "Hollustuna heim!" og undir því "Hollur og góður kínamatur - beint heim til þín". Þá fer ég nú að lesa þennan hollamatseðill og það sem fyrsta sem stendur er "Djúpsteiktar rækjur" og heldur áfram á barnamatseðlinum: "kjúklingaleggir, franskar, og kokteilsósa, kindergg".

Aha akkúrat.
kl. 10:30 | Athugasemdir (3)

28.4.2005 : Allt að koma

Æfingarnar og formið er allt að koma til. Reyndar byrjaði þetta með smá struggle þar sem hamurinn var alltaf að gefa sig. Var nú smá smeikur því kálfarnir eru allir að koma til og þá tók hamurinn upp á þessu. Þegar hann var búinn að gefa sig í þriðja skiptið, var það einmitt fá frekar hraðri æfingu 2x4x150m á meðaltíma um 18,6sek. Eftir það tók ég bara 11 daga í rosalega rólegu prógrammi, létt skokk, lyftingar og léttar hraðaaukningar eftir því sem lengra leið.

Á mánudaginn seinasta tók ég svo einmitt eina af mínum betri æfingum sem ég hef tekið. 3x200m með 10min hvíld á meðaltíma 24,8 og það í flatbotna track flats/racerum. Þannig að ég var mjög ánægður með útkomuna úr því. Svo hefur þessi vika verið skynsöm og þægileg og á morgun er komið að annari harðri æfingu. 2x300m með 10min á milli. Tímarnir eiga að vera um 39 sek og kannski aðeins undir. Jón Sævar þjálfari bannaði mér sérstaklega að reyna negla á þetta og ég ætti frekar að reyna vera afslappaður. Ég verð nokkuð sáttur ef ég kemst undir 39 sek í flötu track skónum mínum.

Kálfarnir sjálfir eru orðnir mun betri. Svona 90% heilir. Er reyndar pínu aumur núna, en ekkert svona stífir. Ég er bara duglegur að teygja heima og taka kálfaæfingarnar sem sjúkraþjálfarnir settu fyrir. Verð bara að vera skynsamur út sumarið og ekki reyna of mikið á mig. Markmið númer eitt er að ná sér 100% heilum og halda sér þannig. Þegar því er náð er hægt að fara bæta ofan á og vonandi nær maður einhverjum góðum tímum. Það er þó seinni tíma pælingar. Bati er númer 1,2,3 núna.
kl. 21:58 | Skrifa athugasemd

27.4.2005 : Gaddaskór

Þar sem maður er nú byrjaður að hlaupa aftur þá þarf maður gaddaskó og nú er ég loksins búinn að panta mér þá. Ég á reyndar eitt par sem ég fékk í skiptum við Stebba. Botninn/platan er aftur á móti að gefa sig og mér finnst þeir ekki henta mér nógu vel. Nýju skóna fæ ég í lok maí þegar Eyja kemur heim, en hún var það frábær að leyfa mér að senda þá á sig.
Zoom MaxcatNike Zoom Miler
kl. 15:02 | Athugasemdir (4)

25.4.2005 : Veðmál / Keppni

Það er officialt núna. Ég og Tobbi eru í veðmáli eða smá keppni sem hljómar svona: Við fáum tvö hlaup til að bæta okkar besta tíma í hlaupunum. Hann í 800m og ég í 400m. Hann er búinn með eitt og það var nokkuð gott 1:59,5 í því næsta þarf hann að fara undir 1:58,58. Það þýðir sömuleiðis að eftir 2 hlaup þarf ég að fara undir 51,81 sek í 400 m. Það verður strembið en tekst vonandi. Tók t.d hörku 400m æfingu dag með ælu og öllu tilheyrandi. Sá sem tapar þarf að bjóða upp á stæðsta ís/bragðarref/shake/whatever að vali sigurvegarans. Auðvitað er fleirum frjálst að taka þátt og þá er bara hægt að skrifa hérna undir og taka fram hvaða grein þær ætla að bæta ;)

Jón Sævar vill einmitt að ég keppi þann 5. maí, þannig að nú er eins gott að vera iðinn við æfingarnar. Hentar líka ágætlega þar sem ég fer í próf 3. og 4. maí.
kl. 22:13 | Athugasemdir (14)

23.4.2005 : Oh

Ætlaði að vera duglegur, skynsamur og rólegur með því að fara sofa snemma á laugardalskvöldi. Lagðist upp í rúm um ellefu leytið, en hreinlega tókst ekki að sofna. Alveg sama hvað ég reyndi. Ég gafst því upp og er kominn inn í stofu með sængina, og ætla að liggja þar eitthvað og glápa á sjónvarpið, þangað til ég lognast útaf. Þá get ég skriðið inn í rúm.
kl. 23:58 | Skrifa athugasemd

22.4.2005 : What!

Ég veit ekki hvað var í gangi í gærkvöldi, en þegar ég vaknaði var rúmið komið á ská þvert yfir herbergið og lakið rifnað!
kl. 9:14 | Athugasemdir (8)

21.4.2005 : Robbi Hönk

Ég og Robbi erum búnir að vera brillera seinustu daga,. Við erum búnir að fara á tvær myndir á Kvikmyndahátíðinni. Motorcycle Diaries og svo í gær á Der Untergang, sem er hrein og bein snilld. Ein af betri stríðsmyndum sem gerð hefur verið. Nú eigum við bara eftir Hotel Rwanda og jafnvel The Woodsman líka.

Þar að auki er ég búinn að mæta á tvær lyftingaræfingar á Nordica með honum í vikunni. Robbi er alveg með prógrammið á hreinu og við náum að hvetja hvorn annan áfram vel og lyftum svipað. Þetta eru því búnir að vera massa æfingar. Ég er allavega mjög sáttur. Ég er jafnvel enn sáttari við að fara í pottana og fá axlarnudd hjá stelpunum þar og enda svo í sauna/gufu. Það er líka rosalega gott hvernig þær enda nuddið á að fara með hendurnar í hárið og nudda smá þar. Þá gæti maður alveg sofnað á staðnum.
kl. 18:57 | Athugasemdir (2)

20.4.2005 : Símaskráin

Ég fór aðeins að pæla í símaskránni í gemsanum hjá mér. Sigurjóni fannst t.d. dálítið merkilegt að þar héti hann "Sigurjón Guðjóns" en ekki Sjonni, Grjóni eða eitthvað þessháttar. Ég skrifa nefnilega flesta niður eftir alvöru nafni t.d. Sigurjón Guðjóns, Helga Óskars og svo framvegis.

Ég set reyndar oft aðrar endingar til að einkenna fólk t.d. Jóhanna frænka eða Heiður Systir. Það sem ég fór aftur á móti að velta fyrir mér er hvort fólk sé að nota mikið af gælunöfnun í símaskránni. Ég nota bara gælunöfn yfir þá sem ég þekki vel, og eru þau oftast upp á létt grín sem einkennir persónuna dálítið. Hér eru t.d. nokkur:


Kári The Man, Tobbi Höstler , Daði Pró, Bjarni Ha?, Eyja Peyja, Eyþór sæti, Hákon Rokk, Robbi Hönk, Steinþór Massi, Elísabet Becks, Trausti Pleja.
kl. 9:53 | Athugasemdir (8)

19.4.2005 : Uppáhaldsnammi

Ég fór aðeins að pæla í hvað væri uppáhaldsnammið mitt. Það er ekki langt síðan að mér fannst Toblerone og/eða After Eight alltaf besta nammið, en ég er eiginlega kominn á það að Freyju Draumur sé besta nammið sem maður finnur! Reyndar er svo Lindor Lindt algjör súkkúlaði sprengja, en það er svona hátíðarnammi.
kl. 9:51 | Athugasemdir (15)

17.4.2005 : Ágætis helgi

Seinasta vika er búinn að vera frekar mikið puð og í raun seinustu tvær vikur. Tókst þó að klára ógeðslegt hópverkefni í framleiðsluferli, taka nokkrar góðar æfingar og koma upp SeedForum.is. Þannig að þetta tókst að lokum og því var fínt að slaka aðeins á um helgina og gera sig tilbúinn fyrir komandi átök nú þar sem prófin nálgast óðfluga.

Á föstudagskvöldið fór ég að sjá Motorcycle Diaries með Robba sem er verið að sýna á kvikmyndahátíðinni. Fílaði þá mynd mjög vel, fannst hún áhugaverð og skemmtilega uppsett. Stefni að sjá Der Untergang og Hotel Rwanda áður en þetta hættir. Fróðlegar og áhugaverðar myndir sem maður má ekki missa af.

Strax eftir myndina fór ég til Jón Karls, en hann var með smá innflutningspartý þar sem hann var að flytja á stúdentagarðana. Var þó bara "Designated Driver" og því afar rólegur. Það var þó gaman að hitta strákana Einar, Jón, Gísla og Sverri. Maður þyrfti eiginlega að hitta þá oftar. Það var eins og Einar sagði, skrítin tilfinning að vera kominn í Honduna og fá far heim. Versló flashback.

Laugardagurinn var líka algjört tjill. Gerði ekkert um daginn, fékk reyndar smá móral útaf því seinna um daginn;). Um kvöldið var það svo gleymt. Alltof mikið að gera til að velta sér upp úr því. Unnur var með smá félagsskap heima hjá sér útaf 21 árs og Stebbi Guðmunds var sömuleiðis með afmælispartý hjá sér. Var þó kominn heim um tvö leytið enda verkefnisvinna niður í HÍ næsta morgun klukkan 10:00.

Reddaði svo letinni á laugardag í dag. Verkefnisvinna með Davíð og Sigga í Þróun Hugbúnaðar. Tók reyndar smá hvíld frá því og fór með Daða Pró út að skokka í laugardalnum og svo tjill í heita pottunum.

Nú þarf ég bara að klára smá lærdóm, svo er það bara morgunæfing, tannsi, sjúkraþjálfun, verkefnisvinna og eitthvað fleira sem morgundagurinn býður upp á.
kl. 22:23 | Athugasemd (1)

16.4.2005 : Tónlisrtaráhrfi

Strákarnir í Telepathetics voru í viðtalið hjá Rokkaranum á XFM nú fyrir stuttu þar sem þeir áttu að taka saman lög sem höfðu haft áhrif á þá. Í framhaldi fór ég að pæla hvaða lög hafa haft mest áhrif á mig. Ég ætla að setja niður smá pælingar varðandi það.

Deep Purple - Highway Star
Þegar pabbi kom úr siglingu frá London eitt árið - ég held að ég hafi verið í svona 3. bekk. Kom hann með rosastórar JVC græjur með geislaspilara! Glænýtt og flott. Hann hafði einnig keypt helling af diskum og þar á meðal var Deepest Purple - The Very Best of Deep Purple. Ég tók diskinn inn til mín einfaldlega vegna þess hversu flott hulstrið var og varð strax ástfanginn. Ég hefði getað sett hvaða lag sem er af þessum disk inn en set Highway Star því það er rosalega hratt og fjörug lag sem ég fílaði strax.

Rage Against the Machine - Now you do what tell you
Ímyndið ykkur algjöran titt í 3 eða 4. bekk í grunnskóla að koma heim til frænda síns sem er á bullandi unglingaárunum, býr í kjallaranum með flottustu græjur sem maður hefur á ævi sinni séð með plaggöt af Axl Rose, Zach De La Rocha og fleiri rokk snillingum frá þessu tímabili hangandi uppi. Þetta lag mótaði mig algjörlega.

Queen - Bohemian Rhapsody
Annar diskur sem pabbi kom með heim frá þessari London ferð var Best of Diskurinn hjá Qeeen. Ég uppgvötaði þennan disk ekki strax. Það var ekki svona ári seinna sem ég fór að hlusta á hann. Þá var ég kominn á Bifröst. Þetta lag greip mann náttúrlega strax og hefur fylgt manni eftir það.

The Beatles - Sgt. Peppers and the Lonely Hearts Club Band
Í helgarferðum okkar til Reykjavíkur frá Bifröst, reyndum við að gera eitthvað sniðugt. Eina helgina bauð pabbi okkur á tónleika upp í Háskólabíó. Þá var það Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt helstu söngvurum og tónlistarmönnum Íslands sem tóku plötuna Sgt. Peppers and the Loneley Hearts Club Band ásamt öðrum vel völdum Bítlaverkum. Ég hefði aldrei hlustað á plötuna. Sat þarna inni þegar öll sinfonían er að stilla hljóðfærin þegar allt í einu, upp úr engu og öllum að óvörum byrjar allt. Nákvæmlega eins á plötunni - ótrúlega flott. Gleymi þessu aldrei.

Smashing Pumpkins - Bullet with Butterfly Wings
Á Bifröst var ekki mikið af krökkum, enda þegar við fluttum þangað var þetta háskólaþorp rétt að rísa. Ég kynntist aftur á móti Jónasi félagi mínum fljótlega. Við náðum vel saman og hengum öllu stundum saman. Oftast inni hjá honum að hlusta á tónlist og spjalla saman um allt milli himins og jarðar. Bróðir hans Einar var duglegur að gefa honum flotta diska og þar á meðan var Mellon Collie and the Infinite Sadness. Diskurinn er náttúrlega stórverk, en þetta lag gripur mann strax. Kom mér algjörlega inn í nútímarokkið.

Alanis Morrisette - Ironic
Einar gaf Jónasi ekki bara rokk diska heldur allskyns diska sem voru vinsælir á þessum tíma. Það hlýtur að vera svona árið 1994 eða 1995 þegar hann fær þennan disk. Það var dálítið öðruvísi að vera allt í einu að hlusta einhverja "rólega" flotta tónlist í staðinn fyrir allt rokkið sem voru alltaf að hlusta á. Þetta mótaði tónlistarmsekk minn án efa.

Radiohead - Rows of houses
Þriðja lagið frá þessum Bifrastar árum heima hjá Jónasi. Þarna mótaðist tónlistarsmekkur minn mest án efa. Jónas átti alla flottu diskana á þessum árum og the The Bends er engin undantekning á því. Gítarinn í þessu lagi nær manni strax.

Led Zeppelin - Stairway to Heaven
Árin á heimavistaskólanum á Varmalandi eru sjálfsagt einna minnistæð. Þarna gerði ég min mestu prakkarstrik, sem voru þó aldrei mikil. Helst að stelast upp á kvennavist. Táningsárin og allt á fullu. Maður er að uppgvöta nýja hluti og nýjar kenndir. Þarna var ég enn að hlusta á diskana sem pabbi kom með frá London, enda hafði ég fengið svona Boomblaster í jólagjöf. Halli skólabróðir minn var aftur á móti ekki eins heppinn. Hann var því með rosastóra hátalara inn á herbergi og tengda við þá var vinyl spilari. Hann hafði fundið Stairway to Heaven plötuna heima hjá sér og komið með í skólann. Vá hvað þetta var töff, ég man ennþá eftir að hafa hlustað á þetta lag með vinylrispunum.

Tímabilið sem mótaði minn tónlistarsmekk er án efa 3-8 bekkur í grunnskóla. Seinustu árin á Fáskrúðsfirði og svo Bifröst og Varmaland. Þetta eru árin sem maður er meðtaka allt og allt á fullu. Þar var tónlistarsmekkur minn nokkuð mótaður, ég fer að kaupa mér diska eins og Moby - Play, Red Hot Chili Peppers - Californiacation, Stereophonics - Perfomance and Coctails, RATM - Renegades, Maus - Í þessi sekúndubrot sem ég flýt, Ensími - Kafbátamúsik, Botnleðja - Magnýl, Live - Throwing Copper, Foo Fighters - There's nothing left to loose og Weezer - Pinkerton svo nokkur dæmi séu nefnd.

Ég er samt ennþá náttúrlega að kynna mér tónlist og meðtaka allt. Ég væri ekki hissa ef tónlist seinustu 5 ára hafa mótið mig rosalega mikið. Ég get bara ekki farið út í það núna. Áhrif þess koma seinna í ljós.
kl. 12:29 | Athugasemdir (4)

14.4.2005 : Í svona veðri er gott að

- Fara í morgunsund, gufu og láta sólina svo aðeins sleikja sig
- Labba Laugarveginn með vinnufélögunum og enda inn á Hressó að fá sér að borða
- Taka nokkra 150m spretti með æfingafélögunum
kl. 14:28 | Athugasemdir (5)

12.4.2005 : Kebab

Það er nóg að gera þessa dagana. Í gær komst ég ekki heim í mat, og ákvað því að fara í einhvern skyndbita. Þá vandaðist valið, átti ég að fara í eitthvað lélegt eins og pylsu út í sjoppu, eitthvað týpískt eins og Subway, Dominos, kannski eitthvað í aðeins hærra klassa eða prófa eitthvað nýtt. Ég ákvað að prófa eitthvað nýtt.

Í útskriftarferðinni út á á Kýpur komst á lag með að borða kebab. Hreinlega dýrkaði það, sérstaklega að finna einhverja sveitta staða eftir fyllerí. Besti kebabinn var aftur á móti þegar við strákarnir leigðum okkur scooter og keyrðum bara eitthvað, kortalausir, án þess að veita neitt. Áður en við vissum af vorum við komnir í eitthvað íbúðarhverfi. í einu húsinu virtist vera einhverskonar matsölustaður, eiginlega bara í heimahúsi. Þar fékk ég besta mat ferðarinnar, þrátt fyri að hafa prófað dýra og flotta veitingastaði þarna, - kjúklingakebab.

Þegar ég kom heim frá Kýpur, reyndi ég að útbúa mér eitthvað í líkingu við þetta, en aldrei tekist fullkomlega. Ég hef aldrei "þorað" að panta mér Kebab á Íslandi því minningin úti var svo rosalega góð og ég vildi ekki eiga hana.

Í gær breyttist það, ég fór á Kebabhúsið á horninu á Austurstræti og Tjarnargötu við Laugarveginn. Vá hvað þeir troða af mat. Þeir eru ekki að spara kjötið og þetta var bara drullugott. Þetta er einn besti skyndibitamatur sem ég hef smakkað á klakanum.
kl. 22:26 | Athugasemdir (5)

10.4.2005 : Joggingalli

Laugardagskvöldið stefndi í afar rólegt kvöld. Spjallaði á msn með hálfum hug meðan ég lá upp í sófa og horfði á sjónvarpið. Daði poppar þá upp og spyr hvað eigi að gera í kvöld, hann sé að boða nokkra HR-félaga og skiptinema yfir til sín. Ég tók vel í það, en um leið og ég svaraði dró hann allt til baka, HR strákarnir og skiptineminn í einverju öðru partý-i, Gróa að fara út með vinkonunum og allt virtist ætla að backfire-a. Þar sem hann var þó kominn á 2. bjór var hann þó ekki alveg tilbúinn að gefa þetta upp á bátinn og niðurstaðan var að ég ætlaði að kíkja til hans í afar rólegt tjill, og drekka með honum einn bjór til samlætis. Ég var bara búinn að vera heima að vinna í smá vef, og var því bara í joggingbuxunum og hlýrabol. Ákvað að ég þyrfti nú ekkert að skipta fyrir eitthvað létt og stutt spjall með Daða.

Það fór ekki alveg eins og til stóð. Einn bjór breyttist í tvo, tveir í þrjá, þrjá í fjóra og svo koll af kolli, þangað til að enginn kaldur bjór var lengur til. Þá fór Daði að mixa heimatilbúna kokteila og áður en ég vissi af var ég byrjaður að drekka martíni á jogginggallanum. Á þessum tímapunkti kemur Gróa heim með fullt hús af stelpum. Ég sá að hlýrabolur og joggingbuxur var sterkur leikur!

Rólegt spjall og einn bjór var greinilega löngu tapað og í staðinn var bara heljarinnar stemming. Live-Aid diskurinn hans Daða var í tækinu og því ekki annað hægt en að blasta Queen, Beach Boys, David Bowie og fleiri snillinga fara á kostum. Kenny Loggins með Foot Loose fékk meira að segja að hljóma og ég og Daði tókum okkur til og tókum Foot Loose dansinn, þannig að Kevin Bacon hefði verið stoltur. Það var þó ekki eini dansinn því auðvitað þurfti maður að kenna stelpunum að bömpa almennilega við "Do the Hustle". Þetta er orðinn bara fastur liður þegar maður er í partý-i hjá Daða, að taka The Hustle. Þarf bara að læra hann 100% fyrir næsta partý, maður kann bara svona brot og brot úr honum.

Stelpurnar og Úlli fóru svo niður í bæ þegar vel var liðið á kvöldið, og eitthvað var nú talað um að fara á Hverfis í joggingallnum, en ég var nú kannski alveg til í það. Daði og Gróa eru líka náttúrlega svo miklir gestgjafar að ég gat ekki hafnað amerískar pönnukökum með sýrópi í morgunmat, þannig rétt fyrir sex í morgun lagðist ég upp í sófann undir gestasængina.
kl. 13:58 | Athugasemdir (5)

8.4.2005 : Bergur Pervert

Á föstudögum förum við blikastrákarnir (og stundum stelpurnar) í heita pottinn og saunað upp í blikaheimili eftir æfingu. Í dag var afar létt æfing á prógramminu, og við ákváðum því bara að drífa hana af og kíkja svo í pottinn / saunað uppi. Kvöldið áður var ég búinn að senda sms að reyna hvetja sem flesta blika að mæta og bauð að auka UMSS-ingunum Stebba Má og Tobba.

Ég tók með mér kippu af léttöli, enda var ég búinn að taka fram að ég byði upp á bjórinn í kvöld þeim sem vildu. Í íþróttatöskunni í dag var því kippa fyrir pottafélagana. Það er bara fátt betra á föstudagskvöldi að fara í heitapottinn og saununa með einn kaldann, það gerir mann alveg tilbúinn fyrir kvöldið hvort sem það fer í eitthvað djamm eða afslöppun. Ég gat heldur ekki séð betur en að flestur nytu þess ágætlega líka.

Fyrir þá sem ekki vita er blikaheimilið þannig að það er náttúrlega kynjaskiptir búningsklefar þarna, en í herberginu þar sem potturinn og saunað er, eru líka tvær stutur og smá snagar. Við fórum í karlaklefann og klæðum okkur í skýlurnar, tökum handklæði með okkur og förum svo inn þar sem potturinn/saunað er, skolum af okkur og skellum okkur í svo pottinn, en tökum eftir að yngri stelpurnar (16 ára) eru þar fyrir. Allt í góðu með það, þarna sitjum við semsagt spjöllum, hlæjum, fíflumst og slöppum af með bjór í hönd.

Þegar það á svo að fara koma sér upp úr, ætlaði ég að skola svona það helsta af mér, áður en ég hlypi inn ganginn og inn í karlaklefann, eins og við gerum oftast. Ég var aftur á móti ekki alveg að hugsa, eitthvað fullu að spjalla við strákana og byrja að klæða mig úr skýlunni í sturtunni inni hjá pottinum/sauna, sem við gerum oft líka, en bara þegar við erum þarna strákarnir. Ég hugsa semsagt ekkert út í að þarna eru sextán ára stelpur. Byrja að sturta mig og þvæ mér eins og ekkert væri eðlilegra. Þá sitja stelpurnar inn í sauna án þess að ég sé enn búinn að kveikja. Svo tek ég handklæðið og byrja að þurrka mér. Þá kemur ein stelpan út, en ég kveiki ekki ennþá og er bara sáttur þarna kviknakinn að þurrka mér. Stelpa númer tvö labbar út og ég er ennþá bara póllrólegur að þurrka mér - ennþá kviknakinn alveg eins og ég væri inn um strákana. Þriðja stelpan labbar út og þá allt í einu kveiknar á perunni, án þess að ég sé eitthvað að stressa mig á þessu. Set handklæðið um mig miðjan, þá spyr stelpan "Er einhver í sturtunni" sem ég svara náttúrlega eins og ekkert hefði gerst "jah Steini er þarna".

Ég veit ekki hvort þær tóku eitthvað eftir þessu, en fín saga engu að síður.
kl. 20:15 | Athugasemdir (4)

7.4.2005 : Leiðinlegasta æfing...

...í geimi er þrekhjól. Vá hvað þetta er leiðinlegt. Ég hef aldrei farið á þetta fyrir alvöru eða í lengri tíma. Þar sem ég er ekki að meika að hlaupa fór ég á þrekhjólið og náði að pína mig í 45min. Ég var að deyja úr leiðindum. Eins gott að það er sjónvarp við hvert tæki í Sporthúsinu. Verra að það er ekki hljóð við MTV.

Það er annars mjög gott að ég hafi þraukað á þessu helvítis hjóli því það var afmæli hjá Heiði systir um kvöldið og ég borðaði yfir mig. Þegar ég segi borðaði yfir mig, þá meina ég þannig að ég er að deyja í maganum- líður bara illa.

Og Raggi, já ég veit með operation sixpack. Ég segi bara: til fjandans með Operation Sixpack, eða eins og Hómer Simpsons orðaði það svo fallega "Who needs a sixpack when you can have a keg!"
kl. 0:08 | Athugasemdir (10)

6.4.2005 : Vel útbúinn

Með meiðslasögu mína er ég loksins búinn að læra að vera vel útbúinn. Á æfingu í gær þá kom "tognunin" aftur upp í seinasta sprettinum - helvítis. Í íþróttatöskunni er því standard núna eitt spjald af Voltaren Rapid, eitt spjald af Indocid. Kælisprey, tvö stór sjálflímandi teygjubindi, eitt minna teygjubindi, klemmur, Voltaren Emulgel og teygjusokkur.

Ég er viðbúinn öllu!
kl. 17:22 | Athugasemdir (2)

5.4.2005 : *hóst*

Ekki skil ég afhverju strákarnir eru að kalla mig eitthvern Hitch því Daði Rúnar a.k.a Daði Runner a.k. Daði Diskó a.k.a Kinderegg-maðurinn er alvöru! Þessi maður er kann þetta, algjört pró! The Man With The Plan!
kl. 11:02 | Athugasemdir (2)

3.4.2005 : Hey fulli gaur!

Gleymdi náttúrlega að minnast á tvö ótrúlega fyndin atriði sem gerðust út í Portúgal.

Í herberginu okkar var náttúrlega bara eitt baðherbergi og ekki það stórt að margir gætu komist fyrir til að gera sig tilbúinn fyrir háttinn. Eitt kvöldið ætla ég inn að bursta mig eftir að Kári og Tobbi er búnir að bursta sig og gera sig klára. Þegar ég tek svo utan um tannburstann minn, tek ég eftir því að hann er blautur. Ég náttúrlega hugsa bara "hmm hvernig stendur á þessu" rölti fram með sposkan svip og spyr hlæjandi "Strákar voruði að nota tannburstann minn?" Tobbi verður allt í einu hissa á svip og segir "Nei, þetta er tannburstinn minn!" Ég var náttúrlega ekki alveg tilbúinn að sætta mig við það og við löbbum inn á baðherbergi til að athuga allt. Ég fer í snyrtiveskið hans Tobba og tek upp nákvæmlega eins tannbursta nema bara þurran og segi "Nei, þetta er tannburstinn þinn!". Við lágum náttúrlega í hláturskasti og Tobbi biðst innilegrar afsökunar.

Jæja dagar líða og eitt kvöldið þegar ég aftur seinastur inn á klósett og ætla að fara bursta á mér tennurnar tek ég eftir því að tannburstinn minn er blautur! Nú hugsa ég náttúrlega "nei það getur ekki verið!" er sjálfur að springa úr hlátri yfir þessu og labba fram þar sem Tobbi er hálfsofandi og öskra með naumindum inn á milli hlátursins "Hey fulli gaur, viltu hætta að nota tannburstann minn!" Tobbi náttúrlega ræður ekki við sig og hlær og hlær en inn á milli nær hann að koma út "æji sorrý, sorrý félagi" og byrjar svo að bölva vitleysisskapnum í sér.

Eftir þetta náði Tobbi loksins að læra hver átti hvaða tannbursta,en það þýddi samt ekki að ég væri laus allra mála.

Eitt kvöldið erum við að taka okkur til fyrir mattinn og Kári er að raka sig og snyrta. Ég gef því ekkert gaum og þegar allir eru tilbúnir förum við út. Næsta morgun þegar ég ætla svo að fara snyrta mig tek ég eftir því að rakvélin mín er ekki þarna en þess í stað önnur rakvél sem er ekki ósvipuð í útliti. Mín var grá með svörtu gúmmí, en þess í stað var svört rakvél með gráu gummí. Ég hristi hausinn hálfhlæjandi og hugsa bara "nei ég trúi þessu ekki!" en áður en ég felli einhvern dóm fer ég fram þar sem Kári geymdi dótið sitt og viti menn sé rakvélina mína góðu. Ég náttúrlega skemmti mér konunglega yfir þessu og kalla yfir allt herbergið "Strákar viljiði hætta að nota dótið mitt!! - næst fariði að taka nærbuxurnar mínar!"
kl. 14:46 | Athugasemdir (2)

1.4.2005 : Besta ástarlagið

Ég er alltaf að pæla í tónlist og eitt af því sem ég lendi oft í miklum umræðum við fólk er hvað sé besta ástarlagið. Lagið sem kemur manni algjörlega í gírinn. Lagið sem kveikir í manni. Auðvitað geta þau verið mismunandi og oftar en ekki einhver öðruvísi lög sem fólk velur frekar útaf einhverjum tengslum eða minningum frekar en útaf laginu sjálfu.

Ég fór því mikið að pæla í þessu og mér datt þrjú lög í hug sem fólk gæti valið sem Besta ástarlagið.

Rigtheous Brothers - Unchained Melody
Procul Harum - Whiter Shade of Pale
Marvin Gaye - Lets get it on.

Ég fór svo inn á heimasíðu VH1 en þar var búið gera úttekt á besta ástarlagi allra tíma. Righteous Brothers næst því, en í fyrsta sæti var lag sem ég fíla bara alls ekki. Celion Dion - My heart will go on úr Titanic. Lagið sem kemur mér aftur á móti algjörlega í gírinn og er að mínu mati það besta er Lets Get It On. Mér finnst það bara algjör snilld. Það er einfaldlega of flott.

Hvað með ykkur, hvaða lag kveikir í ykkur?
kl. 19:28 | Athugasemdir (7)

1.4.2005 : Bergur borðar nammi

Þessa dagana geri ég ekkert annað en að borða nammi og bólgueyðandi. Hvort tveggja fekkst fyrir skítapening úti. Indocid og Voltaren Rapid fæst án lyfseðils út í Portúgal og nammið er ódýrt í fríhöfninni. Í raun er ég búinn að vera borða bólgeyðandi eins og nammi síðan að ég tognaði úti. Síðan ég kom heim á þriðjudeginum er 1,8kg af nammi farið. Ég er algjörlega að fara á kostum hérna með allt þetta fríhafnarnammi. Það sem hræðir mig mest er að ég er fara létt með að stúta þessu!
kl. 13:59 | Athugasemd (1)

31.3.2005 : Færsla ferðarinnar

Lag ferðarinnar: Phantom Planet - California.
Flestir þekkja lag sem titillagið úr the O.C en það setti algjörlega stemminguna á ströndinni seinasta kvöldið þegar við sátum við varðeldinn. Boomblasterinn hennar Árnýjar stóð ofan á plastruslatunni og flestir voru búnir að koma sér vel í kringum eldinn og þetta lag var blastað um alla ströndina og ég held að allir hafi komist í þenann góða þægilega fíling.

Nammi ferðarinnar: Maltesers og Lionbar
Gat ekki gert upp á milli hvort væri nammi ferðarinnar, Maltesers eða Lionbar. Herdís borðaði svo mikið af Maltesers í ferðinni að það hreinlega kláraðist í matvörubúðinni. Lionbarið kom líka sterkt inn því Tobbi ætlaði að sýna Sigurbjörgu glænýja Nike Triax úrið sitt en hélt víst líka á Lionbar og það var það eina sem Sigurbjörg sá og pældi ekkert í úrinu heldur hvernig hún gæti nælt sér í þetta Lionbar.

Setning ferðarinnar: Ertu maðurinn?
Þetta var erfitt val, enda voru nokkrar góðar þarna en ég held að þessi hafi vinningin því hún var sögð á hverju einasta kvöldi þegar Kári Steinn labbaði inn á herbergi seint og síðla nætur. Þá var ég (og oftast Tobbi) komnir upp í rúm og vorum hálfsofandi en vöknuðum alltaf þegar Kári labbaði inn. Þá var þetta orðinn standard spurning: "Kári, ertu maðurinn??".

Dans ferðarinnar: Rassadansinn
Rassadansinn á N O X er tvímælalaust dans ferðarinnar. Sigurbjörg og Helga eiga heiðurinn af honum.

Drykkur ferðarinnar: Strumpurinn
Sigurjón Örn kynnti okkur fyrir heimatilbúnu skoti sem hann nefndi Strumpinn, því það leit út eins og strumpur - blátt með hvítum topp. Hann var ekki lengi að kenna barþjónunum á hótelinu þennan nýstárlega drykk og persónulega fannst mér þetta úber kúl drykkur og hugmyndin enn betri.

Svefnpurrka ferðarinnar: Maggi og Biggi
Ég, Kári og Tobbi byrjuðum vel í svefninum en þegar leið á ferðinna fóru strákarnir að vaka lengur og lengur fram eftir á meðan Maggi og Biggi litu alltaf út eins og þeir hafi veirð nývaknaðir!

Afrek ferðarinnar: McDonalds
Afrek ferðarinnar er án efa þegar Kári Steinn var orðinn svo svangur að hann fór á McDonalds og stútaði í sig heilum fimm (5) McOstborgurum. Það er kannski óþarfi að taka það fram en hann var ónýtur það sem eftir var dags og langt fram á kvöld og lofaði sér aldrei að borða McDonalds aftur á lífsævi sinni. Þegar við reiknuðum kaloríurnar voru það um 1.500 kkal sem hann innbyrgði í þessari máltíð.
kl. 13:54 | Athugasemdir (6)

29.3.2005 : Hitchinn

Þessi ferð rosalega skemmtileg og vil ég þakka herbergisfélögum mínu; Tobba og Kára fyrir frábæran tíma og félagsskap. Þeir eiga stóran þátt í hversu skemmtileg þessi ferð var og reyndar allir blikarnirr. Það er heljarinnar stemming og samstaða í hópnum. Tobba og Kára nefni ég þó sérstaklega þar sem þeir voru að gera góða hluti í kvennamálunum. Þeir vilja reyndar meina að það sé eitthvað mér að þakka og fékk ég því viðurnefnið Hitchinn fyrir að vera að vinna eitthvað í þessum málum og gefa þeim ráðleggingar og gekk eiginlega bara undir því nafni seinustu vikuna Þótt ég viti ekki hvort það eigi allt rétt á sér. Ég var aftur á móti rólegur sjálfur en beið bara og hugsað þess í stað um Sofie, en hún kom aldrei. Svo var reyndar morgunmatsstelpan að gera góða hluti.

Ze Partyroom heppnaðist ekki alveg nógu vel. Fyrsta kvöldið ætlaði fólk að kíkja til okkar en þá lágu við steinsofandi. Hádegi næsta dag gerði fólk aðra tlilraun en við lágum þá líka steinsofandi eftir æfingu. Herbergið breyttist því fljótt úr Partýherbergið í Svefnherbergið. Þótt það nafn hafi ekki staðið lengi. Í herberginu voru tvö rúm sem voru sett saman sem "hjónarúm" og svo lítill beddi sem kom úr sófanum. Auðvitað var hæsta manninum náttúrlega hent þangað (ég) til að byrja með en við ætluðum að skipta reglulega. Það fór þó þannig að svaf þarna 7 af 12 nóttum með hálfa fæturnar út úr og minnsti gaurinn svaf þarna eina nótt. Þá reyndar með næturgest, en ég gerðist svo grófur það kvöldið að taka undir mig allt hjónarúmið. Það var nett, lagðist ská yfir það og teygði úr mér öllum til að nýta sem mest pláss. Besta nóttin.

Við kíktum tvisvar, þrisvar út á lífið. Fyrra skiptið var nú semi-rólegt en í því seinna fórum við Tobbi ásamt Sigurbjörgu og Helgu á skemmtistað að dilla okkur með sænsku, þýsku og dönsku stelpunum. Seinasta kvöldið var Sigurjón og félagar svo miklar snillingar að safna trjágreinum, og eldivið til að halda litla brennu á ströndinni. Heljarinnar fjör og stemming.

Æfingarnar gengu vel þangað til að ég tognaði í hægri ham (læri) á 5. degi. Ég var að flýta mér aðeins of mikið í hraðaaukningum. Ætli ég megi ekki telja mig til spretthlaupara núna? Aðstaðan þarna er alveg tip-top og verður eiginlega ekki betri. Það er mikil uppbygging þarna. Ingo Schultz var meðal annars þarna. Hann kom og spjallaði við mig að fyrra bragði. Spurði hvort ég væri búinn á þrekhjólinu sem ég svaraði "yeah go ahead, I'm done". Jón Sævar var annars ánægður með mig þrátt fyrir meiðslin. Við æltum okkur að setjast niður á næstu dögum, fara yfir markmið og útbúa heilsteipt plan.

Við lærðum líka helling í þýsku en VIVA var þýsk sjónvarpstöð sem sýndi eiginlega bara tónlistarmyndbönd úr dans og trance heiminum. Get ekki sagt annað en það hafi verið heljarinnar stemming að vakna með Mr. Chaos með lagið Figaro. Ég ætla að mixa disk með lögum sem við tengjum við ferðina.

Ég rústaði stelpunum í innkaupum. Áttu aldrei séns í mig. Keypti meirihlutann í Nike Factory Store. Ég fór meira segja aftur þangað með FH strákunum til að eyða meira. Svo var einhver verslunarferð til Faro sem ég kom líka vel pakkaður úr. Já það er svona að vera pró. Ég þori varla að logga mig inn á netbankann til að skoða yfirlitið á visa kortinu.

Nú þarf ég bara að heyra í strákunum upp á að fá myndir úr ferðinni. Ég tók myndavélina mína með og tók heilar 4 myndir. Ég notaði myndavélina hans Sigurjóns oftar og náði nokkrum góðum myndum og vidjóum þar.
kl. 23:53 | Athugasemd (1)

21.3.2005 : Ber að ofan

Þetta er úterflippað, frábærlega geðvekt og ógeðslega gaman. Engar áhyggjur, engar pælingar. Eina sem maður þarf að gera er að æfa, sofa og borða - æfa meira sofa meira og borða meira. Þannig gengur dagurinn eiginlega fyrir sig.

Það hefur lítið verið um sól, þannig að maður hefur ekki legið mikið í sólbaði en hitinn er nokkuð þægilegur upp á æfingar og var t.d. 21-22°C þegar best var. Þar sem sólin hefur ekki verið rosalega duglega að skína að þá hefur maður bara lagt sig inn á hótelherbergi eftir æfingar. Sefur fyrir æfingar, æfir, þvær sér, fær sér að borða og leggur sig svo aftur fyrir næstu æfingu. Vá hvað ég vildi geta gert þetta alla daga!

Ég verð samt skynsamur og eins og Coach Jón Sævar sagði að þá markmiðið að koma betri til baka en maður fór. Það þýðir ekkert að fara í æfingabúðir og ganga frá sér. Maður fær samt alveg nettan fíling að keyra á 200m spretti hérna ber að ofan ;)

Svo voru skokkskórnir mínir alveg að tapa sér, skósólinn var búinn að gefa sig fyrir ferðina, og skósmiðurinn sem ég fór til gerði eiginlega bara illt verra. Ég plataði því fólk með mér í bílrúnt til Albufeira sem er svona 80km fjarlægð og fór í Nike Factory Store, þar sem ég ætlaði að kaupa mér nýja skokkskó, en kom víst út 1,5klst seinna 450 evrum fátækari, en 4 skópörum ríkari ásamt f*****g HELLING af fötum. Ég var bara orðinn sveittur að hlaupa á milli að máta og prófa. Ég endaði bara með að "þurfa" kaupa nýja íþróttatösku til að bera þetta allt saman!

Skelltum okkur á kínverskan í gærkvöldi sem var mjög góður og ég kom rúllandi út, enda var þetta margrétta máltíð og við sátum í 2,5klst að borða. Röltum svo aðeins um en ég fór fljótlega upp á hótelherbergi að klára smá verkefni sem ég þarf að senda á Sigga og Davíð útaf Þróun Hugbúnaðar. Ég sat því bara inn á herbergi með Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band í gangi á meðan herbergisfélagarnir voru út á höstlinu. Þegar ég fer nú að hugsa um það eftir á að þá er þá er smá kaldhæðni í þessu!
kl. 14:46 | Athugasemdir (3)

16.3.2005 : Portúgal

Geri ekki ráð fyrir að hafa tíma til að skrifa í morgun. Dagurinn í dag hefur bara farið í undirbúning. Redda því sem redda þarf sem felst aðallega í því að klára heimadæmi og svo að þvo og brjóta saman þvott. Á samt eftir að hreinskrifa heimadæmi og ákvað hverju eigi að pakka.

Ég mun taka með mér fartölvuna ásamt námsefni, til að kíkja í...eða þá til að friða samviskuna. Tobbi ætlar samt að gera það sama, þannig að við ákváðum að við fyndum bara sameiginlega tíma til að læra. Það myndi aldrei ganga ef einn væri að læra og hinn úti! Ekki að maður sé að fara læra mikið þarna, en það væri fínt ef maður gæti kíkt í bók í 1-2klst eða eitthvað.

Ég verð afar tæpur á morgun því ég fer í sjúkraþjálfun klukkan 8:30 um morgunin. Svo ætlaði ég nú líka að fara í klippingu fyrir ferðina þar sem það er orðið dálítið mikið og ég vil að sjálfsögðu fá einhverja sólargeisla í andlitið. Það fyrsta sem ég gat fengið var klukkan 14:00. Það er mæting upp á flugvöll klukkan 16:00 þannig að ég verð góður!

Fer með Tobba og Kára í bíl sem einnig munu vera herbergisfélagar mínir í Ze Parteroom. Þar mun semsagt aðalstemmingin vera og er ákveðið að Kári verður dyravörður.
kl. 23:00 | Skrifa athugasemd

15.3.2005 : Portúgal eftir tvo daga

Maður er frekar mikið á fullu þessa dagana. Reyna að klára öll verkefni í skólanum sem maður veit að þarf að skila á tímabilinu 17-29 mars. Sömuleiðis er eiginlega allt óhreint hjá manni þannig að ég er að henda í þvottavélar hérna hægri vinstri. Ég er orðinn dálítið spenntur að fara út, þótt ég verði á léttu prógrammi. Stefni ekki að drepa mig þarna eins og seinast. Það var rugl.

Svo er skemmtilegt frá því að segja að ég hitti Stebba fyrrv. sjúkraþjálfara í dag. Núna er ég hjá Rafael, þar sem læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina sendi mig á hann. Ég spjallaði aftur á móti við Fríðu fyrir nokkrum dögum varðandi þetta vesen á mér og þá nefndi hún að það væri sjúkraþjálfari upp í Orkuhúsi sem héti Stefán og væri virkilega vandvirkur. Ég sagðist nú þekkja hann mætavel. Vésteinn kom mér inn hjá honum og Guðmundi Pétri á sínum tíma. Stebbi og Pétur voru semsagt í "fullu djobbi" að reyna finna hvað væri að og koma mér í lag. Þegar ég fór til hans í dag nefndi hann einmitt að hann hafi verið að fara yfir gamlar kvittanir og þá rekist í nafnið mitt og hafi hugsað til mín. Farið að pæla hvernig þetta hafði endað hjá mér. Því við vorum búnir að prófa svo margt. Hann mundi eftir mér, því eins og hann sagði "maður mann alltaf eftir erfiðu tilvikunum' og bætti við að það væri leiðinlegt að ekki ekki komið einhverjum í lag og ég væri ofarlega á listanum hjá honum þar.
kl. 14:21 | Skrifa athugasemd

13.3.2005 : Úff

Helgin stefndi í mikla rennismíði. Iðn- og vélaverkfræðinemar þurfa semsagt að taka námskeið í rennismíði sem ég átti að taka frá 8 - 18 bæði laugardag og sunnudag. Það mættu aftur á móti svo fáir á á laugardaginn, þannig að maður gat nýtt kennarann miklu betur og því náði ég að klára þetta klukkan fjögur. 12 tímum styttra en áætlað var.

Um kvöldið var svo Blikapartý, heljarinnar fjör. Ég skemmti mér alveg suddalega vel! Heavy stemming. Fengu líka nokkrir UMSS-ingar að fljóta með eins og Kári, Tobbi og Arndís. Hittumst heima hjá Árnýju og vorum þar eitthvað fram eftir kvöldi að skemmta okkur, en endaðum svo niður í bæ. Þetta var magnað kvöld og ég get ekki beðið eftir Portúgal.
kl. 19:59 | Athugasemdir (5)

12.3.2005 : Svefn, portúgal, pottar og spjall.

Ákvað að sleppa tíma klukkan 8 í morgun og sofa út í staðinn. Veit ekki afhverju, en ég var alveg útkeyrður. Ég held að það séu þessar bætingar í bekknum! ;)

Borgaði svo Portúgalsferðina. Þannig að nú er ég, Tobbi, Sigurbjörg og Steini örugg um sæti til Portúgals! Vuhú - 5 dagar.

Annars afrekaði ég það að skokka 33 min með Tobba í dag. Get verið nokkuð sáttur við það auk þess sem ég var helvíti snöggur í hraðaaukningunum. Var að fíla mig vel. Tobbi fór svo á lokahóf Powerade hlaupana, en ég var eftir að taka eitthvað fittness og leita að félaga í pottana í laugardalslauginni. Tobbi var út úr myndinni og Daði var að fara á árshátíð. Ég sá þó fljótt hvaða einstakling ég gæti platað, því ég bara veit ekki til þess að Erna Dögg hafi einhvern tíman sagt nei við pottunum. Að lokum var samið að ég tæki sex 120m spretti með henni og í staðinn fengi ég pottafélaga. Góður samningur myndi ég segja. Í miðri æfingu kemur svo Burkni og býður sig fram sem pottafélaga, en ef ég þarf að velja milli sæts stráks og sætrar stelpu þá vel ég nú frekar stelpuna! Sorrý Burkni. ;)

Trausti lét svo heyra í sér og var að kanna áhuga fyrir Pravda, þar sem hann var staðsettur, en þar sem klukkan var að verða tólf var ég ekki alveg að nenna fara drífa mig í þann gírinn. Auk þess sem maður er að heyra um eitthvað blikadjamm á morgun.

Kíkti þess í stað til Robba um kvöldið og ætlaði eiginlega bara að skila Mystic River en í staðinn fór maður í heljarinnar spjall með honum og Örnu. Það er alveg ótrúlegt hvað ég og Robbi getum blaðrað um allt og ekkert; söngleiki, söfn, útanlandsferðir, mat, kvikmyndir, gellur, íþróttir, og allt þar á milli, bara on and on and on.
kl. 2:46 | Skrifa athugasemd

11.3.2005 : Skúli Óskars hvað?

Þegar menn *hóst* Óli Margeirs *hóst* eru byrjaðir að auglýsa á vefsíðum að ég ætli að lyfta 92,5kg á fimmtudaginn. að þá er náttúrlega ekki annað hægt að en að standa við það! Ég fór því upp í blikaheimili í kvöld og vippaði þessum 92,5kg upp.

Robbi hvað var það aftur sem þú sagðir um að sýna okkur aumingjunum hvernig ætti að lyfta bekk?? Ég er ekki frá því að ég hafi verið að jafna þig. Auk þess að þá fæ ég alltaf svarið "nei ekki í dag" þegar ég sendi sms á þig með "Á að taka æfingu í dag". Ég held að þú ferðir að fara taka á þig, kallinn! ;)

Ég er nefnilega búinn að finna leið hvernig ég get fengið Robba til að æfa frjálsarnar aftur. Fyrst ætla ég að lyfta meira í bekk hann, það getur ekki verið gott fyrir spretthlaupara þar sem ég er bara aumur millivegalengdarhlaupari. Ef það dugar ekki ætla ég mér að taka 400m tímann hans upp á 51,03 sek. Nú ef hann er ekki tilbúinn að verja það met, þá neyðist ég til að bæta mig um 1,12 sek í 200m til að bæta 22,79 sek hjá Robba. Ef kallinn verður ekki búinn að ranka við sér þá, þá er bara að taka 11,34 sek í 100m, en ég vona innilega að þessi vitleysa fari svo langt, því ég er kannski ekki alveg að sjá 11,33 gerast hjá mér!!

En eftir lyftingarnar tók ég svo bara Skúla Óskars á þetta. Hann var þekktur fyrir að fara út í sjoppu og kaupa sér rjómaís eftir lyftingaræfingar. Hann setti nú heimsmet, þannig að ég ákvað að taka þetta system upp!
kl. 1:06 | Athugasemdir (16)

7.3.2005 : Miðinn

Þegar ég er á leiðinni heim úr skólanum í dag og er sestur upp í bilinn tek ég eftir einhverju á rúðunni. Það var búið að festa miða undir rúðuþurrkuna og fyrsta sem ég hugsa er "Oh Bjöggi!!" enda hann þekktur fyrir að fíflast í bílnum mínum og þá sérstaklega rúðuþurrkunum. Ég stend upp, tek miðann sem var afrit frá 10-11 en tek eftir því að það var búið að skrifa eitthvað á hann. Þá stóð "92,5kg í bekknum í kvöld!" skrifað undir "ÓM". Snilld. Veit nú samt ekki hvort það verður að því, en við sjáum til.

Já sjitt, ég er að fara í fitumælingu til Fríðu á eftir. Valdi eiginlega vitlausan mánudag, því þessi helgi var svo rooosaleg. Núna ætla ég aftur á móti að fara gera mig til fyrir sjúkraþjálfun.
kl. 11:52 | Athugasemdir (2)

6.3.2005 : Hjálp hann er að deyja!

Árshátíðin var brilliant, ég skemmti mér svo fáránlega vel. Mikið fjör, mikið drukkið, mikið dansað, mikið sungið, mikið spjallað, mikið fíflast, og mikið....eh pósað?

Set kannski meira seinna, en ég er ennþá að hlæja að brandaranum hans Helga Bá. Drengurinn var þá að deyja upp í rúmi, Sverrir var búinn að búa um hann en ég var ekki sáttur og byrja að reyna gefa honum hjartahnoð, lífga manninn við og öskra "Does anybody know CPR!?!" Þá heyrist í hálfdauða manninum: "Down on the corner, out in the street....no wait that's CCR!"
kl. 16:58 | Athugasemdir (3)

2.3.2005 : Hvað er málið..

..að senda póst um morguninn og tilkynna að það verði ekki tímí. Mætti niður í skóla til þess eins að uppgvöta að kennarinn hafði sent póst klukkan 8 um morgunin að það væri ekki tími klukkan 9:40.

Rúllaði því bara heim til að vinna í nokkrum hlutum, útbjó t.d nýjan banner fyrir Danna á frjalsar.com. Svo er ég að gera smá vef fyrir nýsköpunarstöðina Klak, en Steinar Hugi benti Jón Helga framkvæmdarstjóranum þar á mig. Við vorum ekki lengi að átta okkur á því að hann mun svo kenna mér hagverkfræði næsta ár. Þannig að þetta verður skemmtilegt samstarf.
kl. 12:31 | Athugasemd (1)

2.3.2005 : Framleiðsluferli, æfing og árshátíð

Búinn að sitja vel yfir heimadæmunum í Framleiðsluferli í dag. Daði plataði mig aftur á móti á æfingu um hálfátta í kvöld þar sem ég tók 4x4x100m með honum og Árna Richard. Var að fíla mig mjög vel. Einmitt svona úthaldsæfing sem ég þarf á að halda. Hraðinn er líka allur að koma til. Dað var einmitt dálítið duglegur að bjóða mér á æfingar seinasta sumar. Þetta hentar okkur ágætlega, við erum báðir svona að koma okkur af stað.

Daði var svo að skila Háskólablaðinu af sér í dag og því bauð ég náttúrlega kallinum upp á smá öl í heita pottinum og gufunni til að fagna því. Ekki annað hægt þar sem ég kemst ekki í útgáfupartý blaðsins þar sem öllum sem viðkomu blaðinu er boðið. Ætli ég hafi ekki eytt heilum 20-30 min í þetta blað ;)

Árshátíðin er semsagt á föstudaginn og verður haldin á Hótel Selfossi. Ég mun gista með Jóni Karli og stefnt er að leggja í hann úr bænum um hádegisleytið til að nýta daginn sem mest. Ég er reyndar í dæmatíma til klukkan hálfþjú en mér skilst að Jón Karl stærðfræðigúru ætli að fara yfir allt efnið í bílnum á leiðinni meðan hann sturtar í sig bjór.

Ég á tvö dæmi eftir af þessum Framleiðsluferladæmum og það er eins gott því Tobbi plataði mig á morgunæfingu í fyrramálið klukkan 0740...*geiiisp*
kl. 3:00 | Athugasemdir (2)

1.3.2005 : Yikes!

Úff þegar próftaflan er komin inn á netið veit maður að það er stutt í próf. Þá áttar maður sig líka alltaf á því að maður er ekki búinn að vera nærri því nógu duglegur að læra og maður sé með þrjú aukaverkefni með skóla.

Það eru aðallega tvö próf sem ég er dálítið stressaður fyrir, stærðfræðigreiningin náttúrlega og svo er framleiðsluferli að bögga mig. Aðallega því ég hef ekki verið nógu duglegur að lesa í bókinni. Nú verður gerð breyting þar á. Framleiðsa og tæknibúnaður ætti að rúlla nokkuð þægilega í gegn og ég ætti ekki að vera í of miklum vandræðum með Þróun Hugbúnaðar.

Ætla samt ekki að hugsa prófin því næsti áfangi er Portúgal 17 - 29. mars! Vuhú!
kl. 14:27 | Skrifa athugasemd

1.3.2005 : Just great

Akkúrat þegar ég er kominn upp í afsláttarkort í sjúkraþjálfun þá losna allir samningar hjá þeim og Tryggingastofnun Ríkisins. Var loksins kominn niður í ~800kr fyrir tímann þar sem ég var kominn með svo marga tíma á sömu beiðnina, nú fer ég upp í fullt verð eða ~2.600 kr. Annars er þetta system mjög asnalegt, þegar maður er búinn að vera svona lengi í sjúkraþjálfun fer maður alveg að sjá það.
kl. 13:45 | Athugasemdir (4)

28.2.2005 : Bústarferðin

...var snilld! Ég og Hlynur rúlluðum eftir skóla á föstudeginum en mamma, pabbi og stelpurnar höfðu farið á fimmtudagskvöldið. Við bræðurnir vorum búnir að planna að koma mömmu á óvart með því að labba inn í bústaðinn syngjandi "Hún á afmæli í dag" með rós, kampavín og stóra djúsí súkkúlaðitertu. Það heppnaðist vel og maður sá alveg andlitið á mömmu lifna við.

Helgin var snilld í alla staði, slappa af í heita pottinum, grilla og borða góðan mat. Gæða sér á kökum, tertum, nammi og snakki. Fjölskyldan var líka dugleg að grípa í spil, klassík eins og Catan og svo ný og skemmtileg spil eins og Popppunkt. Ég fíla það því ég stendur betur að vígi en í öðrum spurningleikjum.

Komum heim á sunnudaginn, og þá fór ég beint í að vinna í hópverkefninu í Þróun Hugbúnaðar með Davíð og Sigga. Gekk ágætlega, en við þurfum að klára það í dag. Eigum eftir að fínísera eitthvað þar. Fékk þó afganga úr veislunni hennar Lenu hún var að fá tannlæknaprófið. Ég er því búinn að vera góður að overdoze á sukkinu og sé ekki eftir því - það var GOTT!
kl. 12:27 | Skrifa athugasemd

25.2.2005 : Bergur Crocker

Ég er að baka köku hérna heima sem ég ætla að færa mömmu upp í sumarbústað á eftir. Mér sýnist á öllu að ég verði búinn með þetta Betty Crocker krem áður en kakan kemur út úr ofninum!
kl. 13:01 | Athugasemd (1)

24.2.2005 : Fjörkálfar

Þessir kálfar eru "svona" nálægt því að vera komnir í gott stand. Sjúkraþjálfun komin niður í 2svar sinnum í viku í stað 3x. Búinn að vera duglegur í styrkta- og teygjuræfingum fyrir kálfana, festingarnar og himnuna. Í þarnæstu viku ætlar Rafael *(sjúkraþjálfarinn) að prófa leyfa mér að byrja æfa með Breiðablik aftur. Hann mætir svo með mér á eina eða tvæ æfingar til að fylgjast með.

Ég er samt ennþá dálítið aumur í þeim, en ég er jafnt og þétt búinn að vera auka álagið. Ég hef fulla trú á að eftir svona 6-8 vikur verði ég hættur að finna fyrir þessu. Ég verð bara skynsamur út í portúgal. Ætla ekki að tapa mér eins og seinast. Það lítur því útfyrir að ég nái að keppa eitthvað í sumar, þótt ég verði ekki að gera neina svakalega hluti.
kl. 17:36 | Athugasemd (1)

23.2.2005 : Bekkur og Bretti

Ágætis dagur. Vorum niður í skóla að fínpússa fyrirlesturinn um áhættumat hjá Ölgerðinni. Eitthvað var fólk að færast undan að vera uppi að tala en það hefur mér aldrei fundist neitt mál og hálfpartinn haft gaman að því. Ég var því settur í það djobb.

Þaðan losnaði ég aftur á móti um hádegisbilið og rúllaði því upp í Fífu að taka lyftingaræfinguna mína með Tobba. Sibba Skvís var þarna reyndar líka þannig að þetta var fínn félagsskapur. Ég er ekki frá því að bekkurinn sé líka allur að koma til.

Næst á dagskrá voru smá reddingar hér og þar áður en ég hélt upp í Bláfjöll með Ernu Dögg. Dálítið blautt færi sem olli því að maður ýtti eiginlega öllum snjónum á undan sér, öll brekkan var líka rosalega mikið í litlum hólum eða sköflum. Tók tvær ferðir að ná almennilegum tökum á þessu, en þá var þetta mjög skemmtilegt því útaf bleytunni surfaði maður eiginlega í gegnum þetta. Heljarinn fjör semsagt. Útaf hitanum sem er búið að vera hérna, var ekki mikið af snjó og því eiginlega seinasti séns til að skella sér á bretti.

Ég var ógeðslega svangur þegar ég kom heim og borðaði því yfir mig. Át næstum stóra Dominos + brauðstangir. Þegar maður er svona svangur gleymir maður alveg að borða hægt og áður en maður veit af er maður búinn að skófla í sig þvílíku magni, þannig að maður er alveg að springa.

Dálítið busy dagur á morgun. Mamma verður fimmtug á föstudaginn og við ætlum því að slappa af sumarbústað í Úthlið um helgina og hafa það næs. Þarf því að klára margt frá, því ég vil hafa helgina algjörlega fría.
kl. 22:55 | Athugasemdir (2)

22.2.2005 : Smá vottur af stolti

Það er pínu vottur af stolti að hafa klárað æfinguna sem Breiðabliks strákarnir voru að taka í dag. Hún var 2x3x200m. Ég keyrði svakalega á fyrra settið, og sýran var orðinn staðreynd. Á spretti 4 var þetta komið upp í haus, og eftir 5 sprett var ég byrjaður að riða þegar ég labbaði og pírði augun til að reyna sjá eitthvað . Var að pæla að hætta þá, en gat ekki annað en að klára alla æfinguna. Tímarnir voru svo ekki alltof skömmustulegir miðað við aldur og fyrri störf. Ég reyndi að labba um eftir á og taka djúpt andan, en sýran hafði yfirhöndina þannig að ég "skaust" út í kant og hleypti þessu út a.k.a ældi.

Þetta samband mitt við interval æfingar er svona hate-love relationship. Ég dýrka að keyra á spretti, fílingurinn er bara alltof góður. Þegar sýran sest í mann þá finnur maður hvað þetta tekur skemmtilega á sem svo breytist í mikla smá sársauka og eftir seinasta sprett er maður alveg búinn og skilur ekki afhverju maður sé að þessu. Aftur á móti þegar ég er búinn að ná mér, líður mér ekkert smá vel og ég byrja að elska þetta aftur!

Náði semsagt að sanna fyrir mér að ég er ekki alveg formlaus og ætti að geta hangið eitthvað í strákunum í Portúgal (23 dagar) ef kálfarnir halda. Skil samt ekki alveg hvað Bjössi er að lofsama bekkinn því að í fyrsta skipti stífnaði ég upp í höndunum. Ég lít samt náttúrlega bara á björtu hliðirnar og lít þannig á að nú séu nógu stórir til að súrna ;)

Gallinn er aftur á móti að ég skokkaði ekki nógu vel niður, þar sem ég vildi eiginlega bara koma mér heim eftir æfinguna. Þar afleiðandi er ég eiginlega strax byrjaður að labba eins og ég og Bubba fangelisfélagi minn höðfum átt saman smá quality time!
kl. 21:08 | Athugasemdir (4)

22.2.2005 : Víetnam

Ég ætla að halda áfram í tónlistarpælingum. Ég veit ekki afhverju en ég get algjörlega tapað mér í þessháttar pælingum. Ég get lesið endalaus review um diska og hljómsveitir á netinu og hef tapað mér í að kynna mér hljómsveitir og lög.

Sömuleiðis hef ég virkilega gaman að setja saman diska. Ég get nefnilega bara ekki hent einhverjum lögum á disk og skrifað hann. Það verður að vera einhver heild, einhverskonar þema eða stemming. Þetta verður allt að virka saman. Ekki nóg með það heldur get ég verið endalaust lengi að raða lögunum á diskinn því það skiptir máli hvernig flæðið á disknum sé. Ég man t.d þegar Ms. Beckham bað mig stundum að ná í einhver lög fyrir hana sem voru þá oftar en ekki einhver lög eftir Justin eða Britney. Þá fór ég bara í það að búa til heildardisk með svipuðum lögum, raða þessu rétt niður og gat dundað mér lengi í þessu. Þannig setti ég t.d. saman Motown disk (Marvin Gay, Temptations, etc) og 50's Rock disk (Chuck Berry, Little Richard, etc,)

Núna er ég búinn að vera að hlusta mikið á rokkbylgjuna sem var í kringum 60-70. Þessa Víetnamstónlist, annaðhvort rosaleg rokk lög eða skemmtilegu hippalögin. Þetta er eitt mitt skemmtilegasta tímabil. Ég ákvað því að setja saman disk með þemanu; Víetnam. Þetta er niðurstaðan:

Box Tops - The Letter
Jimi Hendrix - All Along The Watchtower
Mama's & Papa's - California Dreamin'
Canned Heat - On The Road Again
Creedence Clearwater Revival - Fortunate Son
Edwin Starr - War
Jeffersson Airplane - Somebody to love
Deep Purple - Hush
Nancy Sinatra - These Boots are made for walking
The Kinks - All Day and All of the Night
Martha Reevers and The Vandella - Nowhere To Run
Cat Stevens - Peace Train

Ég á reyndar aðeins eftir að gera betur upp hug minn varðandi hvaða CCR lag verði á endalega listanum. Þetta reyndar ekki heldur réttri röð, þá eftir að taka einhvern tíma í viðbót hjá mér að raða þessu í rétta röð svo þetta komi sem best út. Ætli Hendrix byrji ekki, kröfug og flott endurgerð af laginu hans Dylans sem einhvern veginn tekur mann með sér.
kl. 15:29 | Athugasemdir (4)

21.2.2005 : Harkan sex

Stóð við að næsta vikan yrði tekin með hörku. Klukkan hálffimm í dag var ég búinn að taka þrjár æfingar! Fór upp í blikaheimili fyrir skólann í morgun og tók fitness og léttar lyftingar. Um hádegi voru svo styrktaræfingar fyrir kálfana, hopp og sjúkraþjálfun. Svo klukkan þrjú var það sprettir með Spiderman. Get því sagt með vissu að operation sixpack er komið á full swing aftur. Spurning um að fara út að skokka í kvöld bara til að geta sagt hafa tekið fjórar æfingar á einum degi. Uss ;)

Annars er ég í miklum tónlistar pælingum þessa dagana. Verð að finna mér diska til að kaupa mér í fríhöfninni eða út í Portúgal. Ég downloada dálítið af tónlist, en ef ég fíla eitthvað rosalega vel að þá kaupi ég diskinn. Einhvenr veginn miklu eigulegra. Ég er kominn á:

David Gray - White Ladder
Franz Ferdinand - Franz Ferdinand

Tillögur vel þegnar.
kl. 16:48 | Athugasemdir (2)

20.2.2005 : Stólalyftur, sund, dvd og ís.

Strax eftir skóla á föstudeginum var brettaferð hjá mér, Óla, Stebba og Steina upp í Bljáfjöll. Þetta var náttúrlega alveg massíft gaman. Ég byrjaði reyndar ekki alltof vel. Var að fíla mig rosalega í fyrstu ferðinni þar sem við áttum fjallið alveg. Þegar ég kem niður eftir fyrstu ferðina, renni ég mér beint í röðina. Nema að það er engin röð þannig að ég fer alveg fremst að stólunum. Beygi mig niður til að losa aftari festinguna (skylda) en var greinilega kominn of framalega því þegar ég beygði mig kom stóllinn beint í hausinn á mér og keyrði mig niður. Ég lá náttúrlega kylliflatur, en náði að færa mig til hliðar, hálf vankaður. Fann svo að einhver greip um hausinn á mér og kallaði "Er allt í lagi með þig!!?" Þá opnaði ég loksins augun og stamaði út úr mér "já, jájá, þetta er allt í góðu". Ég var náttúrlega pínu ringlaður enda nýbúinn að fá stálflykki á góðri ferð beint í hausinn. Þeir vildu fara með mig upp í skála, en ég tók bara klaka og ís og skellti á hausinn. Beið svo eina ferð eftir strákunum og skellti mér aftur að stað.

Eins og flestir vita er náttúrlega skylda að taka með sér heitt kakó, kex, samlokur og súkkulaði. Setjast inn í skálann og hlýja sér og fá sér smá hressingu. Þar hittum við Ernu Dögg sem hafði líka ákveðið að fara á bretti. Reynt að ná í mig til að plata mig með, en þá var ég þegar kominn upp í Bláfjöll.

Svo var bara haldið áfram að renna sér til klukkan átta en þá rúlluðum við í bæinn. Ég, Óli og Steini fórum svo í Árbæjarlaugina og enduðum heima hjá Óla í Megaviku.

Tobbi var í útförinni hjá THÍ sama kvöld og var ólmur að reyna veiða mann í bæinn. Ég var aftur á móti vel dasaður. Ég hélt ég myndi sofna hjá Óla, maður var svo mjúkur eftir daginn. Hann hafði vist fariði í vísindaferð á tóman maga og var því orðinn dálítið hress um níuleytið fyrst þegar hann byrjaði að reyna fá fólk niður í bæ og gafst ekki upp fyrr en um eitt leytið. Ég beilaði í þetta skipti og ákvað bara að fara heim að sofa.

Laugardagurinn var líka rólegur. Hitti Davíð og Sigga niður í skóla til að vinna í Þróun Hugbúnaðar, en um kvöldið var það bara ísrúntur og sofnað yfir DVD. Ég er einhvern veginn búinn að vera hálfdasaður og þreyttur alla helgina.

Dagurinn í dag verður líka rólegur. Vaknaði í morgun við að Ingibjörg systir lét mig vita af brunch-i sem pabbi hafði sett saman í tilefni konudagsins. Fínt að fá bakkelsi og te í morgunmat. Planið er svo bara að taka aðeins til, kíkja á lærdóminn, borða sunnudagsmat og horfa á 24. Byrja mánudaginn svo með hörku.
kl. 13:44 | Skrifa athugasemd

17.2.2005 : Skólinn og sund

Í þessari viku er "Nei langt síðan að ég hef séð þig!" eina sem er sagt við mig. Það gæti passað við seinasta vika var í námslegu rugli útaf blaðinu. Eins og ég sagði þá var ég meira upp í HR en HÍ.

Ég er sömuleiðis búinn að reyna koma æfingunum aftur að stað eftir seinustu viku. Samt mjög litlar og aumingjalegar. Þarf að taka mig til og koma mér aftur af stað fyrir næstu viku, bæði æfingalega og námslega séð. Ég hef reyndar sjálfsagt aldrei verið sterkari á efri búk, ég er ekki frá því að ég sé kominn með smá brjóst.

Annars fórum við í ferð upp í Össur klukkan 10 í morgun. Það hljómaði rosalega spennandi og var það svosem, en þetta var basically 3,5klst fyrirlestur. Það var aldrei stoppað, aldrei hlé, aldrei nein hressing. Við eltum bara gaurinn í gegnum verksmiðjurnar hjá þeim, það er ekkert grín að standa lengi og reyna heyra í mönnum fyrir óhljóðum í vélunum. Fengum þau að setjast aðeins niður meðan það var farið yfir sögu og afrek fyrirtækisins - en engin hressing. Ég held að það hafi bara átt eftir að sýna okkur klósettaðstöðuna. Ég var alveg búinn á því þegar þetta var loksins búið. Geðveikin hélt samt áfram því þá fóum við upp í skóla að klára hópverkefnið um áhættumat hjá Ölgerðinni.

Þegar ég kom gat ég því ekki annað en að henda í íþróttatöskuna, rúlla niður í laugardalinn, skokka smá og slappa af í pottunum. Ætlaði að vera snjall og var með MP3 spilarann, nema að ég var að fíla mig svo vel með hann að ég keyrði bara á fullu. Aaaalltof hratt. Þannig að þetta var ekki nema 6 min hlaup og þá þurfti ég að stoppa. Í lauginni hitti ég reyndar hann Örvar. Hann er gamall félagi frá Fáskrúðsfirði. Gaman að ná smá svona catching-up time.

Við Tobbi stefnum svo á morgunæfingu klukkan 0700. Skólinn tekur þá við til 14:30, en þá er stefnt að brettaferð með Óla Margeirs og Stebba Guðmunds. Djöfull hlakkar ég til.
kl. 22:28 | Athugasemdir (6)

15.2.2005 : Discovery

Þetta er án efa ein af betri sjónvarpstöðum sem hægt er að hafa. Ekkert smá mikið af áhugaverðum þáttum þarna. T.d. Mythbusters, tveir félagar athuga hvort myths eða "goðsagnir" séu sannar með að beita vísindalegum aðferðum og prufunum. T.d. hvort raunverlega sé hægt að búa til death-ray með nógu mörgum öflugum speglum og nota svo geisla sólarinnar til að búa til stóran geisla sem getur brennt allt. Tékkuðu líka hvort zippo kveikjari, spilastokkur og bók væru skotheld og fleira í þessum dúr. Mjög skemmtilegt semsagt.

Svo eru þættir eins og Extreme Engineering þar sem er verið að skoða töff hluti eins og hönnun rússíbana. Sögu þeirra, hvernig þetta byrjaði og þróunina. Þetta er samt ekki allt tæknilegt því seint í gær var t.d. mjög góður heimilldaþáttur sem hét Battlefield og að þessu sinni fjallaði um seinni heimsstyrjöldina. Ég lá kylliflatur yfir honum. WWII hefur alltaf heillað mig rosalega.

Vel uppsettir og góðir fræðiþættir eru bara svo rosalega skemmtilegir. BBC eru nokkuð góðir í þessu man t.d. eftir Spying-Game (þýskir njósnarar sem bjugg í Bretlandi og koma aldrei upp um), Mayday (leitar- og björgunaraðgerðir á stórslysum) og svo Why Buildings Fall Down (hrun mannvirkja).

Þegar maður var yngri horfði maður á dýraþættina með Richard Attenborough. Þættir þar sem var verið að leita af einhverju skemmtilegu eins og leitin að fljótasta dýri jarðarinnar. Blettatígurinn var alltaf uppáhaldsdýrið mitt þó það hafi ekki verið hraðasta.
kl. 17:35 | Athugasemdir (9)

13.2.2005 : Djamm, video og MÍ

Eftir æfingu á föstdeginum og örstutta porttaferð fór ég á Ítalíu að hitta Robba og Daða sem sátu í makindum upp á Koníkastofunni. Á Ítalíu sátum við til miðnættis að borða, drekka og spjalla. Daði hitti einhverjar æskuvinkonur sínar frá Grindavík sem voru alveg vel klikkaðar og endaði með að við kíktum öll heim til Daða. Burkni kom svo til okkar rétt í tæka tíð til að skála með okkur í freyðivíni.

Robbi og Burkni yfirgáfu pleisið svo fljótlega eftir það en ég og Daði enduðum með þessum stelpum heim til þeirra. Við vorum orðnir vel mjúkir þegar við vorum komnir niður í bæ. Þar skemmtum við okkur helvíti vel, vorum í feiknastuði. Ég kynnti hann fyrir möguleikum barborðsins, og við pöntuðum staup og drykki sem hann hafði aldrei heyrt um, en hafði gaman að prófa. Ég komst líka að því hvað FH stendur fyrir, en Daði ætlaði að vera lúmskur og hvísla því að mér en öskraði það eiginlega yfir allan staðinn. Mjög fyndið. Við vorum semsagt óstoppanlegir þarna aðeins að sletta úr klaufunum.

Hitti líka Öldu aftur. Hvað er málið að hitta hana á Hverfis, en aldrei Steinþór! Danstaktarnir létu náttúrlega ekki á sér standa í Grease syrpunni og náði hámarki með Frank Sinatra í New York, New York.

Á laugardeginum hringdi svo Egill í mig um morguninn. Hvað er málið að fá aldrei að sofa? Ég man ekkert hvað hann sagði en játaði öllu. Nokkru síðar hringdi hann aftur og þá var ég aðeins meira með á nótunum. Fór upp í Egilshöll að horfa á MÍ og endaði svo bara heima um kvöldið með nammi yfir myndinni Saved. Fín mynd þar á ferð. Þetta er sjálfstæð mynd, ekki frá einhverju stórfyritæki og kom því skemmtilega á óvart. Hljómar kannski ekki spennandi en fjallar um krakka í kristilegum menntaskóla.

Í dag var svipað upp á teningnum, tók æfingu upp í Egilshöll meðan allir voru að keppa. Tók aukaeintökin af blaðinu sem við létum prenta og keyrði þau út á nokkra staði. Sunnudagsmatur og 24 í kvöld. Morgunæfing á morgun.
kl. 18:03 | Skrifa athugasemd

11.2.2005 : Robbi hættu að vekja mig!

Manninum er búið að takast að vekja mig þrisvar sinnum á sex dögum. Vanalega þegar ég vakinn svara ég alltaf ósjálfrátt "nei nei, alls ekki" við spurningunni "var ég að vekja þig?" - ég er alveg hættur því hjá Robba, nú kemur bar "Já, hvað segist?"

Þeir félagar Robbi og Daði vöktu mig semsagt í morgun því að Frjálsíþróttablaðið kom ekki með mogganum. Ég fór því að að hringja upp í Mogga og tékka hvað væri að. Niðurstaðan var að innskotsvélin hafði bilað og því hefði aðeins 10.000 eintökum af blaðinu verið dreift. Blaðinu verður í staðinn dreift á morgun. Nokkrum símtölum seinna lagðist ég aftur upp í rúm og svaf til eitt.

Í kvöld ætlum við að gera eitthvað sniðugt og halda "útgáfupartý". Það er náttúrlega bara elítan sem kemst í þetta partý. Er ekki alltof flottustu partý-in ef fáir fá inngöngu. Það verða semsagt ég, Daði og Robbi og svo ætla Sigurjón og Burkni að kíkja við. Creame Le Creame. Já eða ekki. Það væri náttúrlega toppurinn ef einhver peningur kæmi úr þessu og það væri hægt að halda alvöru útgáfupartý. Staðan er bara því miður ekki þannig.

Ég er strax kominn í gírinn, byrjaður að blasta tónlist. Ég fór líka að pæla hvaða lag gæti verið valið "Lag Frjálsíþróttablaðsins 2005". Fyrir mér stendur valið á milli:
- Eric Pryds: Call On Me. Þetta video reddaði algjörlega málunum kvöldið fyrir prentun.
- Scissor Sisters: Take Your Mama. Sönghæfileikar ritstjórnar hafa aldrei verið fengið að njóta sig eins vel.

Ég fór líka að pæla að ég er búinn að eyða meiri tíma upp í HR seinustu tvær vikur en upp í HÍ. Það getur ekki boðað gott. Eftir tvo klukkutíma nákvæmlega fer svo niður í Laugardal með Tobba að taka æfingu. Ég get ekki beðið eftir að fara troða 6km af snjó!

p.s. það er gaman að spjalla við Burkna á msn á föstudögum. Það kemur annaðhvort mynd af bjór eða * ROOOOP * eftir hverri setningu.
kl. 14:56 | Skrifa athugasemd

10.2.2005 : Vuhú

Í kvöld ætla ég ekki að gera neitt, ekki bofs. Ég ætla að skjótast út í búð og leggjast svo fyrir framan sjónvarpið og slappa af! Ég hef ekki tekið æfingu frá því á fimmtudag og sleppti skóla á mánudag og þriðjudag til að vinna sem mest í þessu.

Það var undarleg tilfinning að labba út úr HR klukkan 8:30 í morgun og átta sig á því að alli aðrir vorur að mæta til skóla. Í gær sat ég stanslaust við blaðið frá tvöleytinu- fyrst heima en hitti svo strákana upp í HR um kvöldið. Þar sat ég semsagt til 8:30 í morgun. Þegar ég kom heim var pabbi svo nettur að hafa steikt bacon og egg handa mér. Ég skóflaði því í mig og lagði mig 2,5 klukkustund áður en maður hélt svo áfram. Fyrst var að redda dóterí fyrir FRÍ / Jónas og svo rúlllaði ég upp í Morgunblaðshús til að sjá hvernig þetta kæmi út. Þá hafði eitt logo-ið klikkað og því fór ég í það að reyna redda því.

Tók þó nokkur prufueintök og fór að skutlast út um allan bæ með þau, fyrst til Daða, niður í Adidas umboð, Robba og svo loks skrifstofu FRÍ. Klukkan var orðin fjögur þegar ég loksins komst heim og gat hvílt mig. Þótt þetta hafi verið knappt var þetta ekkert eins og í fyrra en þá vakti ég nálægt 50 tímum samfleytt við að koma þessu frá.

Við unnum blaðið mun betur núna, enda var hitt blaðið kannski meira upp á hvort okkur tækist að gefa út blað. Nú var það ljóst og því hægt að tune-a metnaðinn aðeins upp. Umgjörðin er allt önnur, efnið mun betra,og metnaðarfyllra, uppsetning er töluvert betri og auglýsingar í takt við efnið. Það eru samt hlutir sem ég vil bæta úr og það er hægt að gera þetta betur. Maður lærir alltaf.

Núna er ég semsagt rosalega þreyttur, en stoltur sem síðan á eftir að breytast yfir í gleði og stolt þegar ég borða fáránlega góðan hamborgara, með ísköldum bjór og skemmti mér með strákunum á föstudagskvöldið.
kl. 19:46 | Athugasemdir (6)

8.2.2005 : Tap

Operation sixpack var skotið í kaf, því ég er búinn stúta 11 bollum.
kl. 2:57 | Athugasemdir (5)

6.2.2005 : Eðal helgi

Á laugardaginn, klukkan eitt hringir síminn. Ég lá þá steinsofandi upp í rúmi en vakna þó fljótt og svara. Robbi var á hinni línunni að spurja hvort ég ætlaði að taka æfingu í dag og hvort ég hefði áhuga á að kíkja með honum niður í Nordica. Þegar ég var aðeins búinn að átta mig á hlutunum var ég ekki lengi að þiggja það.

Niður á Nordica rúlluðum við. Ég var ennþá með passlega strengi eftir fimtudagsæfinguna, en náði þá að fylgja Robba eftir í bekknum og var afar ánægður með það. Þótt ég hafi ekki lyft eins mikið á fæturnar eins og hann. Við lyftum og æfðum eins og það væri enginn morgundagur. Ég var orðinn vel stífur þegar við lögðumst í heitu pottuna og nutum þess að láta nudda okkur. Ef einhver stífleiki eða þreytleyki var eftir þá hvarf hann endanlega í mintu-gufunni. Þetta var svo algjörlega það sem ég þurfti, annars hefði ég bara sofið upp í rúmi og komið engu í gang. Þetta var því algjör eðall, þökk sé Robba!

Þrenningin var toppuð algjörlega með að rúlla Nings. Ég byrjaði náttúrlega með prjónana, og gekk svo sem ágætlega en gaf mig þegar ég sá að meirihlutinn af matnum myndi lenda á borðinu en ekki upp í munninum.

Þegar Robbi var svo búinn að skutla mér heim fór ég að vinna í frjálsíþróttablaðinu góða. Þangað til að klukkan var orðinn hálfátta en þá rúllaði ég í "matarboð" til Tobba. Þar steiktum við okkur Trölla-Túla hamborgara, vel kryddaða með tvöföldum ost og fáránlega mikið að honey-barbeque sósu. Tobbi vildi ekki láta þar við sitja og vildi meina að egg og ananas á hamborgara væri skylda. Það hafði ég aldrei prófað, en lét til leiðast. Það var ekki slæm ákvörðun því þessir hamborgarar brögðuðust einstaklega vel. Einhvern veginn þurfti þó að redda eftirrétti og því skutluðumst við niður í ísbúðina í Skeifunni. Nörtuðum þar á ísnum og enduðum svo á Meet The Fockers. Ég sprakk alveg úr hlátri.

Það er því alveg ljóst að þetta var massa dagur, og í raun massa helgi. Henni er þó ekki lokið því að það er náttúrlega sunnudagsmatur hérna heima eins og vanalega. Pabbi sér um hann þessa helgina og ég ef því fulla trú að hann verði alveg eðall eins og flest allt við þessa helgi. Ég þarf samt að fara mana mig upp í að taka nokkra spretti úti í dag.
kl. 12:41 | Athugasemdir (4)

5.2.2005 : Föstudagurinn langi

Þessi dagur var í lengra lagi. Byrjaði á sjúkraþjálfun klukkan hálfátta í morgun. Þá tók skólinn við, en ég skellti mér þó í hádeginu með Tobba niður í úrval útsýn þar sem við ætluðum að borga staðfestingargjaldið fyrir Portúgalsferðina. Það gekk þó ekki eftir vegna tæknilegra örðuleika og við eigum því að mæta á mánudaginn. Þá hentist ég upp í skóla fyrir meiri lærdóm en þegar seinasta tímanum lauk klukkan 14:30 rúllaði ég upp í HR að hitta Daða og Robba til að vinna í frjálsíþróttablaðinu. Þar sátum við til háflsex, þá alveg að krepa á þessu og gátum ekki meira. Ákváðum að hlaða orkubirgðirnar með ferð á Quiznos til að gæða sér á glóðuðum samlokum en héldum svo heim til Daða,þar sem haldið var áfram við skrif og aðra vinnu tengda blaðinu. Það entist til miðnættis og þakka ég bara namminu hans Daða fyrir að við meikuðum það. Ef nammið hefði ekki verið til staðar er ljóst að ég hefði ekki enst svona lengi.

Þegar við vorum svo að hætta fæ ég sms frá Tobba en hann var kominn niður í miðbæ. Ég ákvað að slá til, henti fartölvunni heim og rúllaði svo niður í bæ til að hitta kallinn. Á röltinu niður laugarveginn hittum við Hafdísi og Ernu og enduðum með þeim á Hvebbann. Þar var heljarinn stuð, Tobbi í eðalfíling að redda Ernu date-um hér og þar, við mismikla ánægju. Ég var nú bara rólegur, en átti þó tvö góð móment. Fyrsta var þegar ég sá að stelpa sem var að labba upp stigann misti veskið sitt. Þá nýtti ég náttúrlega tækifærið, þaut upp úr sætinu, sótti veskið og labbaði rólega en örugglega upp að stelpunni - "Fyrirgefðu, gæti verið að þú hafir misst veskið þitt?". Alveg hreint klassískur þar á ferð. Ég fer ekki í seinna atriðið þar sem það var algjört klúður frá upphafi til enda að minnu hálfu. Verkfræðinemarnir komu svo frá kennarafagnaðinum; Elísabet, Trausti, Bjarni ásamt Öldu kærstunni hans Steinþórs. Ég fæ alltaf svo skemmtilegt augnaráð frá henni, en við skemmtum okkur nefnilega svo konunglega á nemó.

Stóð mig samt alls ekki í djamminu en lofaði að bæta úr því við fyrsta tækifæri. Maður er búinn að fara á djammið en alltaf frekar rólegur. Þetta gengur ekki til lengdar. Nú er aftur á móti Robbi að fara koma til að pikka mig á æfingu í Nordica..
kl. 13:09 | Skrifa athugasemd

3.2.2005 : Lítið að frétta

Það er svosem lítið að frétta þessa dagana. Það þýðir samt ekki það sé ekkert að gerast. Þvert á móti er maður alveg á fullu. Það eru bara alltaf sömu hlutirnir. Fyrr í vikunni var ég alveg að tapa mér, leið bara hreint og beint illa yfir hvað ég hafði mikið að gera og fannst ég vera missa tökin á því öllu. Náði þó að vinna mig úr þessu og allt er í ágætis farvegi núna. Þakka samt guði fyrir að það voru ekki heimadæmi í framleiðsluferli fyrir morgundaginn. Það hefði drepið mig.

Plaggatið fyrir árshátíð verkfræðinema kom vel út. Ég var allavega nokkuð sáttur. Ég fæ í staðinn frítt á árshátíðina og þurfti ekki að berjast um að skrá mig í herbergi. Sparaði 7.600kr þar. Má reyndar deila um hvort það sé að spara því ef maður horfir á tímavinnuna borgar þetta sig náttúrlega ekki fjárhagslega. Þetta er bara svo gaman. Náði að plata Jón Karl með mér í herbergi með Trausta og Steinþór sem nágranna og hef því ekki trú á öðru en að þarna verði hörkufjör.

Operation sixpack er komið ágætlega á veg. Tók einmitt 6 stykki af 200m sprettum með Tobba á þriðjudaginn. Eftir fyrsta sprettinn gat ég ekki annað hlegið og hugsað "djöfull er þetta gaman! Maður gleymir því alveg". Fyrir lokasprettin hugsaði ég náttúrlega "djöfull er þetta erfitt, maður gleymir því alveg".

Aftur á móti gengur operation fjörkálfar ekki alveg nógu vel. Því ég fæ ennþá í kálfana. Náttúrlega ekki nærri því eins mikið. Nú get ég allavega hlaupið eitthvað, en ég stífna alltaf aðeins. Ég finn samt að ég batna með hverri vikunni í sjúkraþjálfun. Maður verður bara að vera duglegur. 8 vikur að recovera my ass ;)

Ég fékk líka svar frá Afrekasjóði ÍTK sem hljóðaði einhvern veginn svona: "Stjórn sjóðsins sér sér ekki fært að verða við umsókn þinni að þessu sinni". Bjóst nú svosem alveg við því, en það sakaði ekki að prófa. Spurning að skipta, nei djók!

Anyways langur dagur á morgun og þvi best að reyna ná einhverjum svefni.
kl. 22:46 | Skrifa athugasemd

1.2.2005 : Klúður

Ætlaði að vera voðalega grand og flottur á frjálsíþróttablaðsfundinum í gær. Fólk man kannski eftir því að ég var alltaf með fasta bloggfærslu um veitingarnar sem Daði bauð upp á og oftast var ég eitthvað að stríða honum. Núna sendi ég sms og talaði við strákana að ég ætlaði að sjá um veitingarnar.

Þannig að fyrir fundinn skelli ég mér á Dominos og pikkaði upp Dominos Extra og Bahamas pizzur, stóran skammt af brauðstöngum og appelsín til að skola þessu niður. Mæti svo til Daða og þá kemur í ljós að Robbi skyldi orðið veitingar sem nammi eða snakk og fékk sér því vel að borða áður en hann mætti. Daði var búinn að vera á fundi þar sem samlokur voru á boðstólum, fékk sms-ið aðeins of seint og var búinn að háma í sig samlokur.

Plan mitt um að vera sæmilega grand klikkaði því svakalega, fékk bara "úff nei ég er alveg pakkaður" og "æ nei veistu ég var að borða". Takk strákar, takk! Það var því alveg slatti eftir í gær, en afgangarnir verða bara kláraðir í kvöld.
kl. 18:33 | Athugasemdir (3)

31.1.2005 : Sushi, verkefni, sleepover og sætabrauð

Sjitt hvað þetta er búin að vera nett helgi. Ég hef voða lítið farið út á lífið. Seinast var það eftir prófin 21. des og þar á undan var líka rosalega langt síðan ég fór. Ég gerði bót úr því þessa helgi.

Innflutnings- og afmælispartý-ið hjá Hugsmiðjunni á föstudaginn var einstaklega vel heppnað og ég skemmti mér ágætlega í bjórnum, snittunum og sushi-inu. Hafði aldrei smakkað sushi og gat ekki annað en prófað. Finnst nauðsynlegt að prófa nýja hluti og experimenta. Ég veit ekki alveg hvað það voru pantaðir margir lítrar af bjór fyrir utan rauð- og hvítvinið en ég lagði mitt að mörkum að reyna klára bjórinn. Ég var samt bara mjög rólegur. Þegar maður byrjar klukkan fjögur að þá getur maður bara verið kominn heim klukkan ellefu. Afar næs. Búinn að skemmta sér í 7 tíma. Í staðinn fyrir að vera frá 23:00 til 06:00. Maður verður dálítið þreyttur á þessu Hverfisbarinn til klukkan 06:00 um morguninn margar helgar. Þótt það sé fínt öðruhverju.

Á laugardaginn réði metnaður ríkjum, allavega fyrri partinn. Fór niður í Háskóla að vinna hópverkefnið í Þróun Hugbúnaðar. Ég er ekki frá því að við höfum massað það allsvakalega upp. Líka mjög fínn hópur sem ég er í. Þótt ég hafi ekki þekkt þessa stráka fyrir að þá vinnum við mjög vel saman.

Um kvöldið stóð svo annaðhvort til boða afmælispartý hjá Steina eða bara plain afsökun-til-að-drekka-partý hjá Daða. Ætlaði að byrja að kíkja til Steina og rúlla svo til Daða en vegna smá anna varð ég að sleppa viðkomunni hjá Steina. Ég mætti nú bara á bílnum, geymdi bjórinn heima og ætlaði að vera rólegur. Mætti fyrstur á svæðið. Daði hellti bjór í glasið og endaði með að ég skemmti mér svo vel að ég var seinastur úr húsinu þegar ég fór svo heim klukkan tvö daginn eftir. Ég var reyndar frekar rólegur eins og kvöldið áður. Sötraði fjóra bjóra í rólegheitum yfir kvöldið. Tók smá singstar og var bara í heljarinnar samræðum mest allt kvöldið og endaði í poppi og kók.

Þegar allir voru farnir bjó Gróa um mig í sófanum - skellti laki á og góðri sæng. Ég las svo fyrstu blaðsíðurnar í Belladonna skjalinu og sofnaði sáttur. Daði var búinn að lofa að elda amerískar pönnukökur með sírópi um morguninn. Mér var meira að segja bannað að stilla vekjaraklukkuna því ég átti að vakna við ilminn.

Það hljómaði gífurlega vel en fór eitthvað öðruvísi, því ég vaknaði við óhljóðin við tómar bjórflöskur, skálar og glös sem var verið að ganga frá. Ég rauk því á fætur, stal náttbuxum og bol af Daða og hófst handa við að hjálpa til við að þrífa. Eftir smávegis bras við að redda súrmjólk og að átta sig á muninum á salti og sykri þá urðu pönnukökurnar að raunverleika hjá Daða og ég get sagt að þetta eru mestu hlussu pönnukökur sem ég hef borðað...en þær voru góðar!

Eftir pönnukökurnar var svo sólarpönnukökukaffi hjá ömmu. En á þessum degi sást sólinn í fyrsta skipti á Fáskrúðsfirði eftir veturinn og þá voru alltaf bakaðar pönnukökur. Ég lýg því ekki þegar ég segi að ég er ekki búinn að borða neitt annað en nammi og sætabrauð í dag. Ég held að ég verði með sætabrauðsþynnku á morgun. Því bjórinn hefur allavega engin áhrif á mig.
kl. 0:10 | Athugasemdir (4)

29.1.2005 : Ókassa dans

Vanalega set ég þetta í lagalistann, en Unsquare Dance í útfærslu Paddy Milner er að rokka feitast eða réttarasagt að djassast feitast. Þegar maður hlustar á svona lög bölvar maður því að hafa hætt í tónlistarnámi.
kl. 19:13 | Skrifa athugasemd

27.1.2005 : No Pain No Gain!

Orðið sársauki og kvöl hafa fengið nýja og dýpstærðri merkingu hjá mér eftir sjúkraþjálfunina í dag. Eftir léttar kálfaæfingar, teygjur og 25min í rafmagni þá tók Rafael sig til, tekur svona gúmmídúk úr svona teygju-gúmmí efni. Leggur yfir kálfana á mér