Æfingadagbók

Miðvikudagur 21. júní

Það er ánægjulegt að fólk skuli kvarta yfir hversu lélegur ég hef verið að uppfæra æfingadagbókina, því auðvitað hef ég verið að æfa síðan 2. júní.

Búinn að taka misgóðar æfingar og lenti því fyrir svona viku að vera ekki að fíla mig, fannst ég vera hægur og þungur og lítill frískleiki til staðar.

Þessa dagana snýr dæmið aftur á móti allt öðru vísi við. Tók fínustu 400m æfingu og er mjög sáttur, þótt ég hefði viljað halda betur út.

Mætti of seinn á æfingu og varð því að láta einn hring í upphitun duga og klæða mig svo beint í gaddana til að geta hlaupið þetta með strákunum.

Tókum 3x300m með 7 min á milli. Reyndar var 8 min eftir fyrsta sprettinn því ég hélt að þetta væru þessar standard 10 min sem Jón hefur alltaf sett en eitthvað var hann að mixa þetta í dag og strákarnir rétt náðu að leiðrétta mig áður en ég fór upp í 10 min pásu.

Fyrsti spretturinn var alveg gríðarlega þægilegur 36,8 sek sprettur, með góðum stíl og frekar létt og afslappað og fann að ég hefði komist hraðar hefði þess þurfað. Kom örugglega á undan Bigga, Fannari og Sigurjóni.

Á öðrum sprettunum var ég að fíla mig svipað vel, rúllaði vel og afslappað en mjög hratt. Það voru því afar mikil vonbrigði að þegar ég kom í mark stóð á klukkunni "out of memory". Það eru semsagt komnar of margar æfignar inn á klukkuna vegna aulahátts hjá mér að vera ekki búinn að færa þetta inn og því fékk ég engan tíma á miðju sprettinum.

Í hvíldinni fann ég aftur á móti hvernig sýran safnaðist upp, í hamnum, quadriceps, glutusnum. Ég sá fljótt að ég hefði verið að keyra fyrstu tvo sprettina helst til hratt.

Rúllaði samt inn í þriðja frekar afslappað en fann að hann var mun hægari. Seinustu 60m einkenndust líka af mikilli sýru, en í stað þess að reyna djöflast eitthvað hugsaði ég frekar um að rúlla þetta í gegn. Tíminn á lokasprettinum 40,0 slétt. Það hefði verið gaman að sjá 39,9 bara til að geta skráð í æfingabókina alla undir sub 40 sek með fyrsta sub 37 sek.

Finn að ég er allur að koma til og er bara nokkuð bjartsýnn varðandi næstu mót, þótt mér finnist alltof langt í það.



1 Athugasemdir

  1. qbqxtsrq skrifar :

    St03LB quzyaiaqrcuf, [url=http://rtwlicetozlu.com/]rtwlicetozlu[/url], [link=http://bralxehwoktd.com/]bralxehwoktd[/link], http://ebxfjvcxijuj.com/

    15.11.2009, kl. 16:30 | #

Skrifa athugasemd