Sunnudagur 28. maí
Keppti á 2006 Road Runner Sports USATF SD-Imperial Track Championship á SDSU vellinum hérna rétt hjá, sem er 9 brauta mondo völlur.
Var að fíla mig óvenju vel í upphituninni þrátt fyrir æfingaálagið. Náði að kíkja á skráningarnar klukkutíma fyrir hlaup og það var fullbókað á allar brautir. Ég var settur á braut nr 2 með strák með 50.00 utan á mér og var ákveðinn að keyra í hann. Strákurinn innan á mér var settur með 59 sek en á 4,5,6,7 brautum voru strákar á 46-49 sek og svo á 8, og 9. braut voru strákar með svipaðan tíma og ég.
Það kom svo í ljós að flestir þeir sem voru með svipðan tíma og ég, mættu ekki til leiks nema strákurinn á 3. braut. Skotið reið af stað og eins og ég sagði, ætlaði ég að reyna keyra í strákinn utan á mér en náði ekki nógu góðu starti, rúllaði samt frekar hratt af stað enda frekar hratt hlaup. Þar sem 46 og 47 sek strákarnir æddu af stað og lítið um stráka á mínu leveli. Það hafði sín áhrif á seinni hluta hlaupsins og sýran byrjaði að safnast vel upp. Náði samt að halda nokkuð ágætlega og sá að ég dróg á 3. brautina á seinustu 100 metrunum.
Lokatíminn var 52.72 sem er betri opnunartími en í fyrra. Í fyrra opnaði ég á 53,11 en endaði á 51,37 sek. Ég var búinn að setja mér ákveðið markmið fyrir sumarið og það var að ná 50.5 sek. Held alveg að ég eigi að geta náð því.
Minnkaði lítið álagið fyrir þessa keppni og hljóp bara í gegn, horfði á þetta sem hálfpartinn stöðutest og er sæmilega sáttur svosem. Auðvitað vill maður alltaf hlaupa hraðar en ég er ekkert að stressa mig ennþá, fyrsta hlaup og það er ennþá maí.
Ætla svo að reyna að vera duglegur að keppa í sumar, bara reyna ná inn eins mörgum mótum og ég get, 100m, 200m, 300m og 400m.
Þetta var allavega gaman og áhugavert.
Tók svo létta æfingu um kvöldið, þar sem ég skokkaði í 20 min og fór svo í gymmið að lyfta smá fitness lyftingar. Slatti af maga og baki en þar að auki lyfti ég:
Leg Extension (quadriceps)
Leg Curl (hamstrings)
Bekkur (brjóst)
Bicep Curl
Róður (bak)
1 Athugasemdir
Hlynur skrifar :
Sáttur við kallinn! :D
29.05.2006, kl. 1:24 | #