Þriðjudagur 21. maí
Kálfarnir stífir í morgun. Stefnan var að taka létta morgunæfing með skokki og stílsprettum en ákvað eftir smá skokk að fara á þrekhjólið þótt það væri svekkjandi að hanga á þrekhjóli í líkamsræktarstöð í svona veðri. Fór því um 25 min skokk úti og svo 30 min á þrekhjólinu auk þess og náttúrlega slatta af maga+bak. Keypti mér nokkrar bólgueyðandi til að hjálpa til með kálfana, en ætla að nudda þá vel í kvöld með góðri olíu.
Seinni æfingin var svo basic lyftingaræfing þar sem ég tók
Clean: 5x(60kg-65kg-67.5kg-70kg)
Hnébeygjur 6x(100kg-120kg-130kg-140kg)
Stiff leg: 4x8x50kg
Held að ég hafi aldrei verið sterkari. Reyndar fannst mér það líka áður en prófin komu, en ég er sterkari núna. Finnst semsagt ég vera sterkari og sterkari með hverri vikunni sem líður sem er jákvætt. Vona að það skili sér eitthvað á brautina. Hnébeygjurnar voru frekar þægilegar og lítil píning, en ég er ekki nógu góður með tæknina í hlutum eins og klín og snörun, held að um leið og ég nái því fari þær tölur hratt upp.
Skokkaði svo hratt heim.
Skrifa athugasemd