Æfingadagbók

Föstudagur 19. maí

Morgunæfing tekin upp á SDSU vellinum í um 23 stiga hita og sól. Betra verður það ekki.

Létt upphitun og svo hámarkshraðasprettir.

3x20m fljúgandi
3x30m fljúgandi
3x40m fljúgandi
3x60m fljúgandi

Markmiðið semsagt að vera kominn á hámarkshraðann og halda honum út þessar vegalengdir. 5 min milli. Prófaði að taka tíman á 60m þegar ég kom fljúgandi inn og fékk 5,9 sek. Segir mér svosem ekki neitt, hefði alveg getað verið 6,2 sek eða eitthvað annað, það sem þetta gerir aftur á móti er að staðfesta það sem mig grunaði, ég er orðinn hraðari en ég var í fyrra og það er jákvætt. Nú þarf ég bara að læra að keyra af stað frá byrjun og þá er þetta allt á réttri leið.

Á seinniparts æfingunni fann ég loksins hvað æfingar seinustu daga eru byrjaðar að taka í. Var ótrúlega þreyttur, þungur og stífur og langaði bara að fara heim og sofa. Sem betur fer var það frekar róleg æfing, skokk, drillur og 10x120m stílsrpettir, þannig að ég talaðí mig í gegnum æfinguna og fékk mig þannig til að klára hana.

Kálfarnir verða stífari með hverri æfingu og sömuleiðis hamurinn, sjitt hvað ég hef aldrei verið jafnstífur í öllum líkamanum. Þessar æfingar eru byrjaðar að taka sinn toll, samt hef ég alveg verið að æfa 11 sinnum á viku, veit ekki hvað það er en ég er alveg að lognast útaf núna. Get ekki beðið eftir sunnudeginum en þá er 100% hvíld. Þarf að finna mér nuddara hérna, ætla að tala við stelpurnar og láta þær benda mér á einhvern góðan.

Ég tók mig líka til í kvöld og eldaði mér stóra og mikla máltíð og vá hvað mér líður betur, drakk svona einn líter af hreinum appelsínusafa með. Vá hvað mér líður vel núna og langar bara að fara sofa.

Skrifa athugasemd