Æfingadagbók

Þriðjudagur 16. maí

Tók létta morgunæfingu í dag. Prógrammið frá Jóni gerði reyndar ekki ráð fyrir morgunæfingu en þegar sólin skín svona rosalega að þá er bara eitthvað í manni sem segir "út að hlaupa". Þannig að það gerði ég. Skokkaði létt í um 30 min og endaði svo á fótboltavellinum þar sem ég teygði vel á og tók svo 3 hraðaaukningar.

Seinni parturinn fól svo í sér 4x90sek á grasi með 3 min hvíld. Ég fór á fótboltavöllinn sem er 320 m kassalaga grasvöllur og tók sprettina þar. Á prógramminu stóð "enginn rembing" en auðvitað fór ég strax eitthvað að pæla hvað ég kæmist langt á 90 sek og því var fyrsti spretturinn ekki nógu góður. Kom þó vitinu fyrir mig og fór að hlaupa þetta eins og maður, afslappað hratt og vel.

Meira að segja það vel að það stoppaði mig maður í hvíldinni og spurði fyrir hvað ég væri að æfa, þegar ég svaraði "the 400m" svaraði hann "yeah I figured" og bætti svo við að e´g væri að hlaupa þetta mjög vel, stíllinn væri mjög góður. Hann hljóp 400m fyrir háskólann sinn á sínum tíma (ætli þetta hafi ekki verið maður í kringum fertugt) og átti um 48 sek.´

Ég var samt pínu efins hvort þessi æfing væri nógu specific fyrir 400m á þessum tímapunkti, svona nálægt keppnistímabilinu en efasemdir mínar hurfu fljótt og ég sá hvað Jón hafði í huga. Ég er nefnilega ekki vanur að taka over-distance á hröðu tempói og ég fann það alltaf að þegar ég var kominn í kringum 60-70 sek fór þetta alltaf að taka hlutfallslega miklu meira í. Held því að þetta hafi verið góð æfing til að fá mig til að halda vel út. Kannski líka ágætt til að halda 800m hlauparanum í mér, þótt ég stefni að einbeita mér 100% að 400m í sumar.

Fór svo upp í lyftingarsalinn sem by-the-way lætur World Class laugum líta út eins ruslakompu. Djöfull er þetta flott mar og vá hvað það er gaman að æfa þar sem er fjármagn til að gera allt best, flottast og stærst. Þarna tók ég léttar lyftingar:

5x5x61 kg klín
4x6x110 kg hnébeygjur
4x8x35 kg stiff leg

 

Og skokkaði svo heim.

2 Athugasemdir

  1. Hlynur skrifar :

    Ég spyr nú bara hvernig þetta er þá í samanburði við Iceland Spa & Fitness, haha :D

    22.05.2006, kl. 23:12 | #

  2. Bergur skrifar :

    Hehe þetta er náttúrlega pínu ýkt, en samt sem áður ótrúlega töff. Þeir skipta þessu eiginlega í þrjá meginsali.

    1. Cardio
    Þarna er fáránlega mikið af af upphitunartækjum og allskyns brennslutækjum. Meira að segja er tröpputækið raunverlegar tröppur. Ég ætlði ekki að trúa því, þetta var 5 stiga rúllustigi sem fór niður og maður þurfti að ganga upp!!

    2. Fitness
    Annar salurinn er stútfullur af allskyns tækjum, svona fitness lyftingar tækjum eins og eru í flestum líkamsræktarstöðum og meira til.

    3. Weights
    Þriðji salurinn eru allskyns tæki, búr og stangir og aðir hlutir nota frjáls lóð til að hlaða á. Fyrir þá sem eru alvöru.

    Auk þess er klifurveggur, og fjöldinn allur af öðrum sölum þar sem eru aerobic tímar, spinning og hentar fyrir allskyns hóptíma.

    24.05.2006, kl. 6:01 | #

Skrifa athugasemd