Æfingadagbók

Þriðjudagur 31. jan

Æfingarnar breytast lítið þessa dagana, markmiðið er einfaldlega að ná sér góðum. Sýna þolinmæði (sem er oft auðveldara að segja en að gera) og halda áfram að byggja sig upp hægt og rólega með því að auka álagið jafnt og þétt.

Það gerði ég einmitt í dag þegar ég jók um einn hring inn í fífu og fór því samtals 5 hringi. Tók svo nokkrar drillur og teygði mjög vel á, bæði með stöðu- og hreyfiteygjum.

Þar sem æfingarnar hjá mér taka rosalega stuttan tíma hef ég reynt að auka og lengja teygjurnar hjá mér. Ég er með stífari mönnum sem ég veit um og því um að gera að reyna aðeins að liðka sig við.

Ég fann lítið til, samt er eins og það sé eitthvað sem er alltaf að bögga mig í hægri löppinni ofarlega. Eitthvað sem ég virðist ekki ná úr.

Ég er búinn að vera kíkja til Stebba dálítið reglulega og hann hefur verið að ýta, nudda og skjóta en ég er ekki að finna mikinn mun finnst mér. Stefni samt að því að halda þessu áfram og panta jafnvel tíma hjá Sean nuddara í næstu viku. Ég fór í nudd til hans fljótlega eftir aðgerðina og þá vildi hann (eðlilega) ekki fara mikið í þetta heldur frekar aðeins að reyna örva blóðflæðið og mýkja smá án þess að taka hardcore íþróttanudd á þetta.



1 Athugasemdir

  1. mymemb skrifar :

    XLkPej my membmaster

    23.11.2008, kl. 19:32 | #

Skrifa athugasemd